Ísafold - 30.11.1907, Side 2
294
IS AFOLD
Jóiiasar-afniæiið
í Kliöfn.
Landar þar mintust afmíelisins (16.
þ. m.) með mikils háttar, óvenju-fjöl-
mennu samsæti í einum helzta al-
menna veizluskála borgarinnar, Odd-
fellowhöllinni. Þar voru saman komn-
ir hátt á annað hundrað íslendingar
og nokkrir útlendingar. Samsætið með
öðrum orðum töluvert fjölmennara en
hér, í höfuðstað landsins.
Tíðindamaður Isafoldar í Khöfn
segir svo frá ennfremur:
Kvenfólkið skautaði allmargt, og
mun eigi sést hafa áður jafnmargir
skautbúningar á einum stað hér í
Danmörku.
Heiðursgestir vóru Einar Jónsson,
Olav Hansen skáld og Holger Wiehe
magister. Þá hafði og Henrik Ussing
kennara í Sórey verið boðið; hann
gat eigi komið, en sendi fagnaðar-
símskeyti. Auk þessara voru fáeinir
aðrir útlendingar viðstaddir — þeirra
virðulegastur sendiherra Bandaríkjanna,
Dr. Egan
I hátíðarsalnum var reistur allhár
stöpull, er á stóð brjóstmynd af Jón-
asi úr gipsi. Hún var prýdd'-lárviðar-
sveig, en uían um stöpulinn vafið ís-
lenzka fánanum.
Hátíðin hófst með því, að íslenzkir
stúdentar sungu : Hvað er svo glatt.
Þá steig í stólinn mag. Guðm.
Finnbogason og flutti ágætt erindi um
skáldið og ritsnillinginn Jónas. (Ræð-
an mun birtast í Skírni, og vil eg
því eigi fara að kroppa neitt úr henni
hér).
Þá flutti dr. Þorvaldur Thoroddsen
prófessor erindi um náttúrufræðinginn
Jónas Hallgrímsson, skemtilegt og fróð-
legt og með svo íslenzkum málblæ,
að unun var á að heyra. Hann gat
þess, að sér hefði sagt bóndi einn
gamall norður í Aðalvik, að þá er
þeir Jónas og Jap. Steenstrup voru
þar á ferð, hafi Jónas oftast haldið
kyrru fyrir heima í ferðatjaldi þeirra,
en Steenstrup verið eins og köttur
upp um fjöll og firnindi. Jónas mundi
hafa orðið ágætur náttúrufræðingur,
ef vanheilsa hefði eigi dregið úr vinnu-
þreki hans og stytt honum aldur.
Þýðing hans á Úrsins stjörnufræði
væri meistaraverk. Þeir gátu þess
báðir Þorv. og Guðmundur, að ýms ný-
yrði úr þeirri bók væru svo vel kom-
in inn í íslenzkuna, að ætla mætti
þau mörg hundruð ára. — Vonandi
fylgjast ræður Guðm. og Þorv. að í
Skimi, og gefst fólki þá færi á að
rýna í þær.
Þá flutti Guðm. Tómasson læknir
kvæði Jónasar: Ferðalok, en Valdimar
Steffensen söng: Fífilbrekka gróin grund.
Loks sungu íslenzkir stúdentar ýms
önnur kvæði Jónasar.
Fftir það var sezt að snæðingi og
setið lengi. Þar rak hvert minnið
annað.
Hannes Hafstein rann fyrstur á
vaðið. Það var höfuðræðan. Hon-
utn sagðist vel og skörulega. Hann
kvað Jónas fyrstan íslendinga hafa
risið upp aftur í eir annar en Leifur
hepni (á Vínlandi). — Hann flutti í
ræðulok kveðju frá konungi til sam-
kvæmisins. Þeirri kurteisi af kon-
ungs hálfu var svarað með níföldu
húrrahrópi fyrir konungi Islendinga.
Undir borðum voru og drukkin
minni íslands, Fjölnismanna, Einars
Jónssonar, heiðursgestanna og kvenna,
öll rökstudd með ræðum — og rétt
áður en horð voru upp tekin var
drukkið minni Bjarna frá Vogi, sem
þess, sem mest og bezt hefir unnið
að því, að Jónasarmyndin kæmist
upp. —
Undir borðum flutti og Jón Sig-
urðsson (frá Kallaðarnesi) minningar-
ljóð, er hann hafði ort og ætlast var
til, að sungin væri. En tími vanst
eigi til að setja lag við þau.
Drukkið var og minni Hannesar
Hafsteins, og mæiti fyrir því dr. Val-
týr Guðmundsson, — »af því að eng-
inn ætlaði að gera það«.
Síðar um kveldið var sezt að sam-
drykkju. Þar voru og margar ræður
fluttar og sungið fram eftir nóttu.
Loks stíginn dans um hríð.
Þótti þetta verið hafa hin bezta
skemtun.
Margt likt með skyldnm.
Þeir eru að segja, að þar sé margt líkt
meS skyldum, ráðgjafanum okkar og
stjórnvizku-iæriföður hans hinum danska,
Alberti, — að þeir séu alllíkir bæði í
sjón og reynd.
Það er eitt, sem orð hefir verið á gert
núna í haust sórstaklega, að þeir eru
báðir bendlaðir við hin alræmdustu
sorpblöð hvor sinnar þjóðar.
Það komst upp um Alberti í haust,
og varð að umræöuefni á þingi, að hann
hafði haft leynimök við ábyrgðarmann
saurblaðsins Middagsposten í Khöfn,
hlíft honum við afplánun hegningar-
dóms fyrir illyrði um saklausan mann
og haft hann með því góðan við s i g.
Þeir voru æfir út af þeim ósóma, all-
ir óháðir þingmenn Dana og öll óháð
blöð í landinu.
En þá gerum vór það betur, íslend-
ingar.
Vér höfum ráðgjafa, sem hefir ekki
einungis mök við einn hans nóta hér,
Middagspostsritstjórans, og er hans alda-
vin og fóstbróðir, heldur er eigandi
blaðs hans, eitin af eigendum þess, og
samverkamaður viö ritstjórn, eöa var það
að minsta kosti tii skamms tíma. Má
vera, að hann só hættur .því nvt, síöan
er mannasaursgreinin birtist (»Konginn
vantar —«). En ekki veit almenningur
betur en að meðeigandi blaðsins só hann
enn, nó heidur annaö en að sömu mæt-
ur hafi hann enn á ábyrgðarmanninum
sem áöur — var t. d. í samsæti með
honum fám dögum síðar, þar sem
annar aldavin hans, ráðgjafans, og einn
helzti hirðgæðingur mælti fyrir minni
ábyrgðarmannsins; og það e f t i r a ð
hann (ábm.) hafði sýnt af sér þá karl-
mensku, að s k á 1 d a sig frá faðerni að
tóðri grein, er yfir vofðu ill eftirköst
fyrir það, þ ó a ð bæði þeir og aðrir
þektu mark bans á hverju orði í grein-
inni, þó að hljóðbært væri orðið þá, að
hann hafði gengið um bæinn raupandi
af því, hvað hún væri smellin hjá sér
og hvað hann hefði sérstaklega »náð sór
vel niðri á Halli«, og þ ó a ð sömuleiðis
væri hljóðbært orðið, að grein sú, er
ábm. kvað hafa orðið misgrip á (í svefn-
rofum!) og mannasaursgreininni, fæddist
ekki fyr en 2—3 dögum síðar, — smá-
tíndist í sneplum frá honum 1 prent-
smiðjuna m á n u-daginn eftir að blaðið
var út komið 1 a u g a r-daginn fyrir með
mannasaursgreinina!
Kom til Norge, Far, der skal De se
Fjelde! er haft eftir raupsömum Norð-
manni.
Komið þið til íslands! þar skuluð þið
sjá sómasamlegt samband sorpblaðs og
ráð-herra! gætum vór sagt við dönsku
þingmennina, sem hneyksluðust á mök-
um Albertis við Middagspostsritstjórann.
Erlendar ritsimafréttir
til Isafoldar frá R. B.
Kh. 26. nóv. kl. 4 sd.
Þýzk ófrelsislög.
Þýzka stjórnin hefir lagt fyrir ríkis-
þingið félagsskaparfrumvarpið, er fyr-
irskipar að mœla skuli á þýzku á öll-
um fundum, sem haldnir eru í heyr-
anda hljóði. Þó mega stjórnarvöld veita
undanþágur frá þvi.
Viðsjár enn í Portugal.
Enn eru viðsjár töluverðar í Portú-
gal. Þjóðvaldsinnar eflast, að mun.
Járnbrautarslys.
Hraðlest milli Barcelona og Valencia
hrundi í gœr niður af brú yfir Canes-
elfi. Fundin til þessa 20 lík; 80 sárir.
Khöfn 28. nóv. kl. 51 /„ sd.
Þingmannaheimsóknin.
Rikisþingmenn þeir, er voru í íslands-
förinni í sumar, halda veizlu í kveld
og bjóða Iiafstein í hana.
Prússar og Pólverjar.
Prussastjórn hefir laqt fyrir lands-
þingið frumvarp, sem veitir stjórninni
heimild tit að taka lögnámi pólskar
fasteignir til þjóðlegra (prússneskra)
fyrirtœkja.
400,000 króna víxlafölsun.
Sveitakaupmaður í Sandved á Sjá-
landi, Poulsen að nafni, hefir vcrið
höndum tekinn fyrir 400,000 kr. vixla-
fölsun.
"Veðrátta við sama fram yfir miðja
viku, sifeldir útsynningar með snjókomu
öðru hvoru. Hlánaði i fyrri nótt. Mara-
þiða i dag með mikilli leysing.
Lik veðrátta norðanlands og austan.
Þó á norðan á Seyðisfirði fyrri part vik-
unnar. Tólf stiga frost á miðvikudaginn
á Blönduós með sunnanátt. — Þessi tafla
sýnir hitann:
Rv. Bt. Ak. Gr. Sf.
Sd. 2.4 -6.0 -+8.5 +11.3 +17.9 +6.4
Md. 25. -1-4.1 —4.8 +3.0 +2.0 +7.6
Þrd. 26. -t-5.7 —4.9 +6.0 +11.0 +3.0
Mvd. 27. -4-2.0 +12.1 +6.5 +11.6 +4.7
Fd. 28. —0.8 0.0 +2.5 +13.0 +4.4
Fsd. 29. +2.1 +2.2 +1.5 +2.0 +3.5
Ld. 30. +3.1 +3.0 +5.5 +2.5 +7.1
Kartöflur.
Verzlunarfirma í Kaupmannahöfn
vill komast í viðskiftasamband við
kaupmenn í verzlunarstöðum á ís-
landi. Tilboð merkt KartofieP
16531 má senda
Aug. J. Wolff & Co.
Ann. Bup. Köbenhavn.
Leikfél. Reykjavikur.
sunnudaginn i. des. kl. 8 síðdegis í
Iðnaðarmannahúsinu.
Nýja, iestrarí‘éla§rid.
Þeir, sem kynnu að vilja takast k
hendur umsjón á lestrarstofu og ann-
ast útlán bóka 3 stundir á dag, sendi
skrifleg tilboð til undirritaðra.
Ágúst Bjarnason. Björn Bjarnason.
Laufásvagi 35. Laufásvegi C.
Almennur borgarafundur fyrir Rvik
Undirskrifaður bæjarfulltrúi leyfir
sér hér með að boða til almenns borg-
arafundar fyrir Reykjavík þriðjudaginn
3. desbr. kl. 8 siðdegis í Báruhúsinu.-
1. Umræðuefni vatnsveita bæjarins.
2. Borgarstjórinn tilvonandi.
3. Bæjarstjórnarkosningin sem i
hönd fer.
4. Önnur má! sem fram koma k
fundinum.
Reykjavik 29. nóv. 1907.
Kristjan Þorgrímsson.
Maður, sem er þaulvanur öllunr
utanbúðar verzlunarstörfum og fisk-
verkun óskar eftir fastri stöðu frá
næstu áramótum eða seinni parti vetr-
ar, við áreiðanlega verzlun helzt sunn-
an- eða vestanlands. Einnig er mað-
ur þessi vanur verkstjórn við alt hið-
stærra trésmíði, sem fyrirkemur við-
stórverzlanir, svo sem húsasmíði,
bryggjusmíði og skipasmíði. Tilboð
sendist i lokuðu umslagi á skrifstofu
ísafoldar, merkt C. H.
Jörðin Ufra-Sel
í Hrunamannahreppi fæst til kaups og
ábúðar frá næstu fardögum (1908).
Lýsing á jörðinni er þannig : Tún í
ágætri rækt gefur af sér í meðalári
200 hesta af töðu. Flæðiengi 130—
140 dagsláttur, stararflóð og miklar
vall-lendisslægjur að auk, sauða- og
hrossabeit góð, afréttarland mikið,.
torf- og reiðingarista ágæt. A jörð-
inni er nýbygt timburhús vel vandað,-
næg önnur hús og hlöður í góðu
lagi. Jörðin er mjög hæg, nálægt
akbraut og rjómabúi. Menn snúi sér
til hr. Gísla Einarssonar i Asum við
Reykjavík, sem gefur nánari upplýs-
ingar, en aðallega ber að semja við
undirritaðan, sem er nú eigandi og
ábúandi téðrar jarðar.
Efra-Seli 18. ttóv. 1907.
Bjarni Guðinundsson.
• -----------------------------------------(I
1. Hér i blaðinu verða 15 auglýsingar
i þeeeari umgjörð tölumerktar (meðl—15).
Hver 8em heldur þeim aaman og sendir
þœr unglingablaðinu TJnga íslandi
fyrir lok maimánaðar nœstkomandi. fœr
aent geflns og kostnaðarlauat kverið
B arnaaö gur 1.
• -----------------------------------------i ►
Góða kli, mjólkandi, vorbæra,
vill Björn í Grafarholti (Gröf) selja
(eða skifta fyrir skurðarkú) nú þegar.
Hvítur fjaðralbúi tapaðist 16.
nóv. Finnandi skili honum til Stefa-
níu A. Guðmundsdóttur.
Tai þið rní lagið!
Grammophons-plöturnar eru komnar
í verzl. á Bergstaðastræti i.
Ryper
Onskes tilkjöbs eller forhandling ved
N. Andersens Delikatesseforretning
»Exellent«, Markevejen 35, Bergen
(B. A. E.).