Ísafold - 22.08.1908, Blaðsíða 3

Ísafold - 22.08.1908, Blaðsíða 3
ISAFOLD 207 BindindismannahTöt. Ein templarastúkan hér í bæ (Hlin) hef- ir nú nýlega sent öllum stúkum á landinn svolátandi hvöttil stuðnings atkvæðagreiðsl- unni um aðflutningsbannið: Þegar vanda ber a8 höndum, verður það jafnan fyrir, að ieita vina sinna og samherja, bæði til þess að tjá þeim sam- hug sinn og hvetja þá, svo og jafnframt til aö leita hjá þeim trausts og upp- örfunar, sjálfum sér til handa. Þann veg er og háttaö þessu erindi voru. Yór finuum til þess, hve varbún- ir vér erum viö hinum mikla viðburði, sem nú fer í hönd, — að mjög skortir á að vór séum svo vel viðbúnir sem vera ætti undir hina a 1 m e n n u a t- kvæðagreiðslu um aðflutn- i n g 8 b a n n, sem fram á að fara nú að sex vikum liðnum. Þess vegna sendum vór yður alúðlega vinarkveðju vora og árnaðaróskir, um leið og vór leyfum oss með örfáum orð- um að minna á göfugan tilgang þess sameiginlega starfs, er vér höfum með höndum: algerða útrýmiugu á f e n g i s. Lítum á aigenga viðburði kringum oss. Sjáttm bræður vora á veginum: A n n- ar gengur niðvirlútur og þrútinn; hann er tötrum búinn, óhreinn og rifinn, og hann reikar til beggja handa, rekur upp óp og dýrsleg óhljóð, og með formæl- ingum fellur hann máttvana niður f sáurrennuna og bíður þar þess er verða vill. '— Hinn horfir hátt; yfirbragð hans er bjart og hreint og hann er snyrtimannlegur í hvívetna; hann geng- ur beint að verki sínu og er glaður og ánægður. B á ð i r þessir rnenn eru bræður vor ir. Vór viljum að þeir verð'i báðir jalnsælir og ánægðir. — Og til þess miöar áfengis-útrýmingin. Athugum í annan stað heimili þess- ara manna. Vér þurfum ekki að lýsa þeim hór: Fölar kimiar og tár konu og barna, skortur fæðis og fata, sorg og vonbrigði, — alls þessa vitum vór enn sorglega mörg dæmi. — Og svo hitt: Björt og hlýleg híbýli, glöð og ánægð kona og frjálsmannleg börn, reglusemi og samhugur í hvívetna. Ollu miðar þar upp og áfram. Þessi heimili eru oss sitt til hvorrar handar. Og heimilis- menn á b á 8 u m eru bræður vorir og systur. Vór þráum a8 geta gert hvoru- tveggja jafnsæla. Og það teljum vér oss bezt gera með því, að n e m a b u r t u það sem bölinu veldur — út- rýma áfenginu með öllu. Og 8 j á 1 f u m oss geturekki liðið v e 1, nema vór gerum það. Vér skoðum oss skylt að reyna að bæta úr böli náunga vors svo sem oss er frekast auðið og efla hagsæld hans. Og eins og það er hverjum einst.akling ómetanlegur hagsældarauki að hætta áfengisnautn — láta áfengi aldrei koma á sitt helmili, eins er og háttað um þjóðfólagsheimilið í heild sintii. [Um það leyfum vór oss að vitna í meðfylg- jandi ritgjörð um aðflutningsbannið]. Höfum í huga heimili drykkjumanns- ins, og jafnframt heimili þess, sem af- neitar áfenginu. Berum þau saman við ísland fljótandi í áfengi, — og ísland áfengislaust. Samlíkingin hlýtur að vera sönn og hárrétt. í vissri von um að þór, kæru bræður og systur, lftið sömu augum og vér á þetta mál, treystum vér og því, að yð- ur só ljúft að vinna af ítrasta megni að góðum árangri atkvæðagreiðslunnar 10. september f haust. Þór vitið það, ekki síður en vér, að þar er aö vinna að einu allra mesta lfknar- og velferöar- starfi þjóðfólagsins. Vér árnum yður alls góðs f því starfi. Verið örugg og ótrauð. Látiö engar tálmanir hindra yður. Samhugur allra mætra manna er yðar megin. Og jafn- hagfelt tækifæri til að vinna bindind- indismálinu gagn býðst oss ef til vill aldrei aftur. — Leiðiti til þeirrar far- sældar og fullkomnunar, sem oss e r fyr- irhuguð, hún er löng eða skömm — alt eftir því, hvernig vér notum tækifærin, rás viðburðanna, sem fram hjá oss fer. Beynið að hafa góð áhrif á a 11 a, sem þór náið til. Reynið að fá alla — eða sem allra flesta — til að greiða atkvæði með að- flutniugsbanninu. Fáið alla til að láta vilja sittn í Ijósi, hvort sem þeir eru með eða móti. Og umfram alt: Það má ekki með nokkuru móti viðgangast, að heitorð verði rofið við oss um, að atkvæðagreiðslan fari fram eins og til hefir verið ætlast, í öllum kjördæmum landsins, — hverju einasta hrepps- og bæjarfélagi. Og loks vildum vór mælast til þess af systurstúkunni, að hún að loknum önnum veiti oss þá ánægju, að láta oss í tó sem nánastar upplýsiugar um til- högun og árangur atkvæðagreiðslunnar í yðar bygðarlagi og nálægum sveitum, þar sem drepið só á undirbúningsráð- stafanir af hálfu stuðningsmanna máls- ins, hvern árangttr þær bera, hvað bezt gagnar, og eins hitt, er mest hefir orö- ið til tálmunar. Vór viljum vera í samvinnu við yður, að svo miklu leyti sem oss er auðið, — viljum geta rótt hjálparhönd öllum þeim, sem að þessu velferðarmáli vinna, eins og vór líka óskum engis frekar oss til handar en að ujóta samhttgar yöar og uppörfunar. Tekjur Landsímans um 2 ársfjórðunga 1908. Símskcyti: Innanlands.............Kr. 2304,60 Til útlanda Kr. 18,762,85 Þar afhluti útlanda . — 15,104,39 Hluti íslands..........Kr. 3658,46 Frá útl. hluti íslands . . — 1434,38 Símaviðtal ..............— 6153,80 Talsímanotendagjald . . — 824,55 Vextir, afgjöld og aðrar tekjur............ca*J — 1476,93 Samtals kr. 15,852,62 *) Afgjald frá talsímafélagi Reykja- víkur er hér meðtalið fyrir 1. og 2. ársfjórðung og er áætlað 750 kr. Reykjavík 20. ágúst 1908. O. Forberg. Druknun. Það slys vildi til 6. þ. mán., út af Kögrinum, að stýrimanninn af þil- skipinu Keflavíkinni tók út, og varð eigi náð. Hann hét Magnús Jóns- son, héðan úr bænum, röskleika mað- ur, 35 ára gamall. Hann lætur eftir sig konu og 3 börn ung. Hádegismessa á morgun i dómkirk- junni: dómkirkjupresturinn. Siðdegismessa kl. 5: síra Fr. Friðriksson. Áf Snæfellsnesi. Rifinn er upp ljótur leppur og löðrinu núið öllu i hann; sá kefir alt, sem kjafta kann. . Bólu-Hjálmar. Mór hefir verið sent 31. tbl. Reykja- víkur þ. á., stjórnarblaðsins fræga, af því að meðal annars góðgætis er þar einnig dálítil klausa, sem mór kemur við. Yfir Reykjavík þeirri svífur nú andi Lárusar Bjarnasonar. og þá þarf ekki að lýsa henni lengur. Það, sem sagt er um mig, undirskrif- ar hann reyndar ekki, en ritstjórinn ber ábyrgð á því. Þeir eru svo þægilegir, þessir leppar, til þess að núa í þá öllu löðrinu, og þykjast svo sjálfur hvergi nærri koma. Um mig er sagt í blaðinu, að eg hafi í fyrra ætlað að ráðast inn í hús í for- boði sýslumanns, til að taka þar út mis- lingaveikan son, sem þar var sóttkvíað- ur, og haft þá í frammi hegningarverð orð og atferli við sýslumanninn. Ekki er þess getið, h v a r í heimin- um þessi atburður hafi gerst. Líklega á það þó að hafa verið í Stykkishólmi; því að þar var í fyrra þessi sóttkvíun, sem tókst svo meistaralega, sem kunn- ugt er. Og sýslumaðurinn er þá sótt- kvíunarstjórinn þar, merkisyfirvaldið Guðm. Eggerz. En öll er greinin eintóm ósannindi, eða þetta sem sumir kalla »Reykjavíkur sannleika.« Eg hefi aldrei átt mis- lingaveikan son í sóttkvíun hór á landi, og aldrei dottið í hug að taka nokkurn mann úr sóttkvíun með valdi, og ekki haft nein þau orð við hr. Guðm. Egg- erz, er honum sóu ekki fullboðin. Annað mál er þaö, að í fyrra hótaði Guðm. Eggerz mór því að setja mig í a r r e s t, og vissi eg þó ekki, hvað eg hefði til saka unnið. Það gengur fjörugt til í Rússítt. Af því eg hafði gilda og góða votta að þessu, þá langaði mig til að athug- að væri af dómara, hvort sýsiumenn rnega að ástæðulausu hafa slíkar hótan- ir í frammi. En ástæðan til þess, að eg slepti þessu, var eittkum sú, að eg bjóst við, að yrði landsstjórnin svo væn, aö setja dómara í málið, mundi hann engiun anttar verða en einmitt Lárus Bjarnason. Guðm. Eggerz hefir farið svo margan snúning í hans þágu og dæmt fyrir hann svo marga og merkilega dóma, aö það hefði að líkindum þótt koma vel heim, að Lárus gjörði aftur eitthvaö honum við- komandi. Eg vildi ekki Lárus fyrir dómara, ekki af því, að eg væri hræddur um, aö málshátturinn: »hrafnarnir kroppa ekki augun hver úr öðrum«, mundi sannast á þessum heiðursmönnum, Guð- mundi og Lárusi. En eg vildi ekki vera Orsök þess, að honum yrði ef til vill þvælt út í slikt vastur, og hann tafinn um leið frá vísindaiðkunum sín- um og uttdirbúningi undir stöðuna, sem hann á að takast á hendur fyrir »þjóð- ina sína«, og hann er svo vel að kom- inn, eins og öllu öðru. Annað, sem mór er gefið að sök í Rvíkur-greininni, er hvorki meira nó minna en það, að á fundi í Stykkis- hólmi 12. f. m. hafi eg lagt hendur á fundarstjóra (náttúrlega Guðm. Eggerz! og sagt eitthvað ljótt við hann um leið. — Hvað sem þessu líður, þá játa eg þab, að eg á bágt með að sjá rangsleitni og ofríki beitt, einkum þó af mönnum, sem eg met heldur lítils, en þó eru næsta miklir á lofti, reigingslegir og spertir. — En eg vil nú bera það und- ir alla, Sem eg hefi kynst fjær og nær, hvort þeir þekkja það til mín, að eg verði að ástæðulausu svo æstur og ofsafenginn, sem Rvík segir. í raun réttri er frásaga blaösins ekkert annað en ný sönnun og játning um það, hve afar-erfitt það er, aö komast af illinda- laust í umdæmi þeirra Lárusar og Guð muttdar fyrir þá, sem óvanir eru lífinu hér. Lárus er altaf að reyna að koma mönnum betur og betur í skilning um þetta. Og þó skilur það enginn til fulls, sem ekki reynir þaö sjálfur. En tímarnir breytast. — Snæfelling- ar eru uú óðum að vakna og hrista af sér okið, yfir höfuð allir hinir skynsam- ari og betri rnenn hór, og það er sann- arlega skemtilegt að sjá þennan glað- lega ánægjusvip, er hjá þeim sem öðr- um fylgir frelsinu og meðvitundinni um að gjöra það, sem rótt er. Eg get ekki í þetta sinn skrifað neitt af þeim ógrynnum, sem hóðan er að segja. Seinna mætti það ef til vill smám saman. Lárus er nú héðan vikinn, eftir að hafa setið hér á veldisstóli 14 ár, jafn- lengi og Neró ríkti forðum yfir Róm- verjum. Vissulega þyrfti sýsla þessi aö fá nýt- an og góöan og róttvísan mann í hans stað, og um það gjörum við okkur von í lengstu lög. Ennþá er þó ekki búið að veita sýsluna. Bjarnarhöfn 10. ágúst 1908. Jón O. Magnússon. Veðrátta vikuna frá 16. ág. til 22. ág. 1908. Rv. Bl. Ak. Gr. Sf. Þh. 8 10.6 12.5 14.4 14.0 14.4 10.0 M 9.5 11.4 16.3 13.0 10.1 9.3 Þ 10 0 10.8 15.0 15.0 14.4 10.5 M 10.5 11.3 13.2 12.0 10.8 9.7 F 8.4 7.8 8.3 8.0 10.5 11.8 F 8.3 6.4 6.8 4.0 7.6 10.8 L 6.5 5.7 9.2 6.9 9.8 9.5 Frídagur verzlimarmanna. Hann var haldinn í Kópavogi mið- vikudaginn er var, að viðstöddum mörgum þúsundum manna (þegar flest var). Gengin héðan flokkganga suður þangað kl. io að morgni með lúðra- sveit í broddi fylkingar. Hátíðin sett kl. 12. á hád. (Tr. Gunnarsson). Ræðu- höld: Minni íslands (Þ. J. Thorodd- sen), minni verzlunarmanna (Ol. Rósen- krans), minni Reykjavíkur (Benedikt Sveinsson). Verðlaun voru veitt fyririr sund, glímur, hjólreiðar og hlaup. Þessir hlutu verðlaun: Sund: Stefán Ólafsson i. verðl., Símon Pétursson önnur 2. v. og Þorst. Björnsson 3. v. Glímur: Jónatan Þorsteinsson söðla- smiður 1. v., Snorri Einarsson 2. og Guðbrandur Magnússon prentari og Magnús Tómásson, báðir 3. verðl. Hjólreiðar: Kristinn jóhannsson 1. verðl., Grímur Arnason Bakka 2. verðl. og Arni Þorsteinsson Hafnarf. 3. vl. Hlaup: Ólafur Magnússon ljós- myndari 1. verðl. og Guðbr. Magn- ússon prentari 2. verðl. Seinni part dags skemtu menn sér með dansi og leikum í mörgum hópum víðs vegar um túnið. Flugeldar seint um kvöldið. Há- tíðinni lokið kl. 10. Bezta veður um daginn. 204 að hérna væri ágætt að hafa sýning- una, hérna undir einu eplatrénu. þegar fiðluleikurinn hófst, komu til nokkrir menn, karlar og konur, svo að úr varð dálítil áhorfendasveit. En það var þó hart á, að þau hr. Blom- gren og frú hans gæti haft sýningar. Ingiríður mæltist til of mikils. f>að lá svo illa á þeim í dag. Og það var illa farið, að Ingiríður hafði farið með þau þarna inn f garð- inn. Hún hefir sjálfsagt ekkert hugsað út í, að gluggarnir á sumum gesta- stofunum vissu þangað út að. Frú Blomgren var rétt að kalla þotinburt í miðjum klíðum; hún heyrði að ein- um stofuglugganum var lokið hrana- lega upp. Hugsið ykkur, vitfirringur- inn hafði heyrt hljóminn, og hugsið ykkur, hann hljóp út um gluggann og niður til þeirra. Frú Blomgren hægði, þegar hún sá, hver það var, aem stóð við gluggann. það var ungur maður, fríður og þokka- legur. Hann var snöggklæddur, en að öðru leyti búinn snoturlega. Ró- Iegt augnaráðið, varirnar brosandi, og hann strauk hárið upp frá enninu. 206 Hr. Blomgren tók ekki eftir neinu nema þvf, sem hann var að gera; hann hafði allan hugann við það, og leit ekki upp úr. Frú Blomgren þurfti ekki annað að gera eu að kyssa á fingurna í allar áttir, og hafði gott tóm til að taka eftir öllu. Íngiríður var orðinn allur annar mað- ur á einni svipstundu. Engin heimasæta er jafnmikil blómarós og hún var nú. Geislana lagði úr augunum skærari en nokkru sinni áður, og andlit hennar var orðið bvo bjart, að birtuna lagði frú því. Og allir lágu þræðirnir í geislaglitinu upp til hans, Bem stóð við gluggann. Hann var ekki að tvínóna við það, steig upp f gluggakistuna og hljóp niður á jafnsléttu. Gekk til blinda mannsins, og bað hann að ljá sér fiðluna sfna. Ingirfður brá við, greip fiðluna af blinda manninum og fekk hana gest- inum. — Spilaðu nú valsinn úr V e i ð i- mannsbrúðinni, sagði hún. Gesturinn tók til að spila, og Ingi- ríður brosti, en hún var öll svo ójarð- nesk að Bjá, að frú Blomgren var á 208 að það hlaut að gagntaka hverja sál; það hlaut að geta látið hjörtu bráðna. En fimleika snillingarnir gömlu fóru ekki að dansa að heldur. það var orðið Iangt sfðan er þau höfðu hitt Btúdentinn í Uppsölum, og þau voru búin að steingleyma, hvað þau voru gagntekin af fiðluleiknum daginn þann. |>au grunaði ekki, að hann byggist við þau færi að dansa. Gnnnar Hede leit á Ingirfði til að fá vitneskju um, hvers vegna þau væri hætt að dansa. Hann horfði í augu hennar. þau voru f miðri glóandi geislahvirfing, svo himinlifandi hýr að sjá, að hann hætti að spila. Hann stóð kyr stundarkorn og horf^j á hópinn f kring um sig. Alt fólkið horfði á hann, en þó svo ókyrt og undarlegt augnaráðið. Hann gat ekki spilað, þegar aliir einblíndu svona á hann. Hann gekk þaðan burt. Hann sá nokkur alblómg- uð eplatré lengst niðri í garði. |>ang- að fór hann. Hann sá, að þessu gat ekki verið svona háttað, sins og hann hafði hald- ið áðan. Að Gústaf hefði lokað hann Erl. ritsímafréttir til ísafoldsr. Rhöfn 21. ágúst. Bretar og Þjóðverjar. Þeir Vilhjálmur keisari og Játvarð- ur konungur hafa fundist. Saman dregur með Bretum og Þjóðverjum. Mylius Erichsen. Skip hans Danmark komið til Björg- vinjar. Góður árangur. Gufusklp. Sterling (E. Nielsen) fór béðan í gær til útlanda. Nál. 70 farþegar; þar á meðal: prófessor Panl Hermann (frá Þýzkalandi), R. Braun kaupm. i Rvik, Brann kanpm. (frá Hamborg), Sigurður Jónsson læknir (frá Eyrarb.), Newmann (Marconi- stöðvar-vörðnr) með frú sinni og börnum, frú Philipsen, Sigvaldi Stefánsson cand med., frú Guðriður Meyer; stúdentarnir: Bogi Ólafsson, Georg Ólafsson, Gnðm. Ólafsson, Geir Zoéga, Hjörtur Hjaitarson, Ingvar Signrðsson, Jakoh Jóhannesson, Jón Signrðs- son (frá Rallaðarnesi), Oddur Hermannson, Skúli Thóroddsen og Yernh. Jóhannsson. Enn fremur Sveinn M. Sveinsson snikkari, jungfrúrnar : Ingibjörg Signrðard., Ragnh. Þorsteinsd. (Tómáss.), Guðrún Jafetsdóttir, Guðrún Thorsteinsson, Ingibjörg Guðmunds- dóttir; verzlm.: Rristinn Briem (til Skot- lands), Geir Thorsteinsson, Gunnar og Samú- el Thorsteinsson; enn fremur margir Eyja- menn, ýmsir útlendir ferðamenn, 0. fl. Lampa-úrval — fagurt — fjölbreytt — — ódýrt — Hengihmpar — Ballancelampar — Borðlampar — Vegglampar — Stand- lampar — Náttlampar — Amplar — Lugtir og alt lömpum tilheyrandi er að vanda lang-ódýrast í verzlun B. H. Bjarnason. Nýkomió! Spegipylsa Servelatpylsa Matvæli alls konar, niðursoðin Kartöflur nýjar Laukur Sleifar fl. tegundir Handkörfur i verzlunina Vesturgötu 39. Jón Arnason. 1 vor tapaðist úr Vogum þriggja vetra hryssa, jörp, fá hár hvít í enni, og hvítur hófur á öðrum afturfæti; mark: blaðstýft aftan vinstra; ferða- mark Z klipt á lendina. Klömbru í Austur-Eyjafjallahreppi 28. júlí 1908. Ingvar Pálsson. Nýtt f jármark Bjarna Þórð- arsonar frá Reykhólum, nú til heimilis á Bíldudal, er: Afeyrt hægra, hvat- rifað og gat vinstra. 201 veginn tekist að losa á sér hendurnar, og þegar þeir komu að sækja hann, hafði hann staðið þarna einn og óbund- inn, og hann hafði tekið upp stól, hamslaus af reiði, til að þeyta honum i hausinn á hverjum sem inn kæmi. þeir höfðu séð sér þann kost vænstan, að snúa við og læsa dyrunum, bvo að bann kæmist ekki út. Biðu þess eins, að bóndinn og vinnumennirnir kæmi heim, svo að hann yrði bundinn af nýju. Ekki var hann þó alveg útbrunninn, vonareldurinn, sem þeir höfðu kveikt i brjósti hennar, kunningjarnir gömlu; enn var eftir neisti. Hún vissi að Gunn ar Hede var nú með lang lakasta móti, en hún hafði ekki heldur annars vænst. Og enn var hún ekki úrkula vonar. Henni hafði ekki vaxið hugur af æfin- týrunum þeirra. Heldur af ást þeirra, hinni miklu. Hún bað mennina að lofa sér að koma inn til vitfirringsins. Hún sagði hún þekti hann, og hann mundi ekk- ert gera sér. En mennirnir sögðu að, þ e i r væru engir vitfirringar. Hanu

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.