Tíminn - 21.12.1979, Page 11

Tíminn - 21.12.1979, Page 11
Föstudagur 21. desember 1979. n 85 ára Benedikt Gíslason frá Hofteigí Þennan dag, 21. des. 1894 fædd- ist hjónunum á Egilsstööum I Vopnafiröi, þeim Jónínu Hildi Benediktsdóttur og Gisla Siguröi Helgasyni, litiö sveinbarn, eins konar jólabarn og var hann frum- buröur þeirra. Þessi , Jólasveinn” sem i dag fyllir hálfan niunda aldurstuginn, hlaut viö skírn nafn Benedikts afa sins er nú þekktari oröinn sem Benedikt Gislason frá Hofteigi, þjóökunnur fræöimaöur, rithöf- undur og skáld og eitt sinn einn af fjárrikustu bændum landsins á meðan hann bjó I Hofteigi á Jökuldal sem hann kennir sig viö slöan. Enginn maöur er ég þekki, gæti fremur gert eftirfarandi vísuorö úr Hávamálum aö slnum en Benedikt Glslason frá Hofteigi: Þá nam ég frævast og fróöur vera og vaxa og vel hafast: orö mér af oröi orös leitaöi verk mér af verki verks leitaöi. 011 ævi hans hefur veriö fólgin i þvl aö sanna sannleiksgildi þess- arar fornu vlsu. Fræöimenn telja aö oröiö fræv- ast sé sömu merkingar og aö þroskast, og vel aö hafast sömu merkingar og aö dafna. Jólapiltinum frá Egilsstööum hefur tekist þetta allt I senn: að frævast til manndóms og þroska aö veröa svo fróöur um sögu lands og þjóöar aö lengi mun til jafnaö, ættfræöi er þar meötalin. Hann haföist svo vel aö veröa einn af stórbændum landsins og slöar landnámsmaöur I þess orös fyrstu merkingu og löngum sóttur aö ráöum af bændum og samtök- um þeirra. Leit hans aö oröum hófst að sjálfsögöu 1 foreldrahús- um slöar meö tveggja vetra dvöl I búnaðarskólanum á Eiöum og eins vetrar I Samvinnuskólanum, en áköfust og árangursríkust hefur þó ,,orös”-leitin oröiö i sjálfsnámi hans I alhliöa búfræöi hagfræöi og sögu Islands ásamt ættfræöi eins og taliö er upp I bók- inni Islenskir samtiöarmenn. Arangur orösleitarinnar hefur birst I fjölda ritverka bóka og greina um hin óllkustu efni. 1 verkleit sinni tók hann mörg- um bændum fram um stórhug og áræöi eins og áöur hefur verið minnst á. Auk þess aö hafa veriö frum- kvööull um margt á sviöi bú- skapar og I félagssamtökum bænda hefur hann veriö svo frum- legur og nýstárlegur I sögu- skoðunum slnum og tilgátum aö vakiöhefur óskipta athygli þeirra er áhuga hafa á sögu og ættfræöi. Sumar hafa hlotið viöurkenningu læröra sagnfræöinga og þótt aör- ar standist ekki þá visindalegu gagnrýni, sem nú er tiltæk og uppi höfö, verður ekkert um þaö fullyrt hvaö siöar kann aö veröa uppi á teningnum I þeim efnum, aö minnsta kosti reyndist þaö svo meö hina fornu byggö I Hrafn- kelsdal og þar meö sannindi Hrafnkelssögu sem „vlsindin” höföu úrskuröaö sem hreina skáldsögu, að vísu góöa. Þessi orö um Benedikt vin minn áttu ekki aö veröa nein æviminn- ing. Enn er hann sæmilega and- lega hress þótt hann hafi oröiö aö dvelja á sjúkrahúsi undanfarin ár. Minnið á hin fornu fræöi er enn hiö sama. Tilgangurinn var aö minna á aö enn væri hann á meöal vor, fræöimaðurinn frá Hofteigi, þótt liöin séu áttatlu og fimm ár slðan hann leit fyrst dagsins ljós og viö getum þvl enn fært honum persónulegar þakkir og heillaóskir. Þakkir fyrir ómælt ævistarf 1 þágu islenskra fræöa, bæði I sögu- og ættfræöi og heilla- óskanna nýtur hann I einsemd daganna. Þórarinn Þórarinsson frá Eiöum Frumraun Strengja- sveitarinnar Hin nýstofnaöa hljómsveit, Strengjasveitin munkoma fram I fyrsta skipti opinberlega á dans- leik i Seifossbiói á kvöldi annars dags jóla. t hijó.msveitinni eru þeir Einar M. Gunnarsson (gltar og söngur), ómar Þ. Halldórsson (hljómborö og söngur), Siguröur I. Asgeirsson (bassi), Sigurjón Skúiason (trommur) og Sævar Arnason (gitar). Strengjasveitin, sem stofnuö er á rústum hijómsveitanna Evrópa og Ópera mun bjóöa iandslýö upp á góöa og hressilega danstóniist, en frumraunin er sem sagt I Sei- fossbiói á annan I jólum. HELGI SÆMUNDSSON TIUNDIR Ijoð Útgefandi Skákprent 1979 Það kemur í hlut örfárra manna á hverri tíð, að halda uppi menningunni, synda með hana, svo hún ekki sökkvi í djúpið, og afhenda hana svo nýjum mönnum þegar haustar. Einn þessara manna er Helgi Sæmundsson, fyrrum ritstjóri Alþýðublaðsins. Hann hefur verið menningarviti alla ævi. En það er nú svo, aö einstakir menn úti i bæ bjarga ekki end- anlega menningu okkar og bók- menntum með þvi aö vera lobbyistar I ársölum. Ekkert getur bjargaö bók- menntunum, nema skáldin sjálf og höfundar þjóöanna. Hitt er svo annaö mál, aö ef bók- menntaáhuga skortir, þá er voöi á ferö og þess vegna eru ein- dregnir menningarmenn nauö- synlegir. Og áhrifalausir eru þeir ekki, þvl þeir móta samtlö sina, móta skáld og stefnur, engu siöur en sjálfir listamenn- irnir. Gott dæmi er þetta kvæöi, SUMARGJAFIR „Glöggt ég heyri djúpsins þróttmiklu raust. Nakin standa trén I garöi minum uppskerutiminn liöinn, komið haust. Ég veit aö bráöum kýngir niöur snjó. Dúnlétt mjöllin þýngir kaldar foldir. Afskekkt norpir húsiö mitt útviö sjó. Jónas Guðmundsson: Helgi Sæmundsson Tíund Helga Sæmundssonar - Helgi Sæmundsson hefur ver- iö svona menningarþræll alla ævi, og það kann aö vera vegna þess arna, sem hann hefur gleymt aö skrifa og senda frá sér sinar eigin bækur, þar til núna. Fyrsta bók Helga Sæ- mundssonar Sól yfir sundum (æskuljóö) kom út áriö 1940 og þaö liöu 35 ár þar til sú næsta kom, Sunnan i móti (1975) en sú bók rakti ljóö allt frá árinu 1937. Ekki var ástæöan fyrir þögn- inni sú, aö æskuljóö hans hafi veriðákaflega vond og þeim illa tekið, heldur þvert á móti. Gáf- aðir menn hafa sagt mér, aö Helgi hafi á slnum tlma veriö talinn skáldsefni, enda haföi hann þá þegar gengiö bókinni á hönd fyrir fullt og fast. Fyrst i veikindum i æsku, síöan I starfi og lifi. Tíundir Þaö vakti þvl dálitla athygli, þegar Helgi Sæmundsson kom enn meö ljóöabók áriö 1977, Fjallasýn, þvi meö réttu lagi heföi hún átt aö koma áriö 2010, ef fyrri reglu heföi verið fylgt, en i ljós kom að Helgi átti i fór- um si'num ýmis merkileg kvæöi og þau bestu ekki af verri end- anum, aö ekki sé nú meira sagt. Þaö þarf ekki aö taka þaö fram um jafn þekktan mann og Helga Sæmundsson, aö hann getur ort, þaö vissu allir, en góöum alvarlegri ljóöum hélt hann I greip sinni og lét þau hvergi, þar til nú. Nýja ljóöabókin er þvl bók hins þroskaöa manns, bók hins sjóaöa manns. Helgi kann góö skil á ljóölist, en leyfir kvæöun- um aö tala máli sinu. Tekur ekki um of fram fyrir hendur þeirra, eins og öguöum bókmennta- mönnum hættir annars til. Þessi kvæði hafa öll sérstakan blæ, sérstakt umhverfi, og þaö er þessi lifheimur, sem ber þau allt eins vel og sá boðskapur er þau flytja. En sumargjafir bregöast ekki mér. Huga minum birtast ljóöasýnir fegurri þvl sem veruleikinn er”. Ortá staðnum Helgi Sæmundsson kemur vlða við. Hann er oftast á staön- um sjálfur, horfir ekki I fjarlægö. Þessi nálægö birtist t.d. I Vestmannaeyjakvæðinu, þar sem aðeins tvö augu og örfá orö, gefa skýrari mynd, en tonn af átthagafræöurn og héraöa- fróöleik. Þaö er svona: Djúpskreiöi floti, hvert er ferö þinni heitiö? Úr aftureldfngu inni aftanskin og liggur þó viö akkeri útifyrir Landeyjasandi en býöur mér eigi aö siöur i undraveröan leiöángur, siglfnguna miklu frá morgni til kvölds. Ég held aö styrkur þessara kvæöa liggi þannig, aö kvæöin játast undir efniö, svipaö og átt- æringar og opin hákarlaskip. Þau flutu og brotnuöu ekki af þvl aö þau höföu sömu llnur og hafiö, en voru ekki sterkari en þaö. Fjórir kaflar Helgi skiptir bók sinni I f jóra kafla, sem er rétt. Þetta er fjögurra manna far. Fjögur ólík umsvif, fjögur ólík handtök. í fyrsta kaflanum yrkir hann um efni eins og Sumargjafir, Leikslok. Aftann, Skylduna, Spegillinn, Sóiargull og annaö tengt umhverfi og upplifun. í öðrum kafla eru sendingar til skálda. Minni Þorsteins og Skeyti til Ólafs Jóhanns. Ágúst Strindberg fær mynd af sér þar og Heine fær ljúflingslag i þeim kafla llka: „Leita heim á fóstur- jörð/ útlæg kvæöi min”. Þriöji kaflinn er prósi. Ósvif- inn, eins og gerist hjá strákum sem frika og lykta af fjölritara- oliu, af því þeir voru aö hella ljóðum yfir vitstola þjóöina. Þarna eru tveír bálkar. Upp- gjöf Esaús. Bibliulegt kvæði og þú færö sand I tennurnar af lestrinum. Þar er einnig Ræöa góöborgarans, sem er svo ein- kennileg, aö hiö eftirsóknar- veröa og fullkomna veröur aö grimu bak viö einhverja angist. Hann tætir þar sundur borgara- stéttina og sekkur lystiskipi hennar meö lofi en engum sprengjum. Seinasti kaflinn er svo landa- fræöi, héraöasaga. Þar er Vestmannaeyjakvæö- iö, Vetrarmynd frá Hornströnd- um, og þar þorir hann ekki ann- að en aö rima, þvl fjöllin þar fyrir vestan eru rimuö sjálf. Bókin endar svo á Eyjafjalla- jökli, sem sveif i sál hans heima I Vestmannaeyjum. Lokaorðin eru: „Þú ert stór en ég er lltili Og þú veröur hér eftir þegar ég dey”. 1 einu kvæöanna segist Helgi fagna vorinu eins og barn. Ég held aö hann fagni ljóöinu á svipaöan hátt og við lika. Jónas Guömundsson. bókmenntir

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.