Ísafold - 14.03.1909, Blaðsíða 1

Ísafold - 14.03.1909, Blaðsíða 1
Kemur út ýmist einu sinni ef>a tvisvar i viku. Verð árg. (80 arkir minst) 4 kr., er- lendis B kr. eða l‘/« dollar; borgist fyrir miðjan júli (erlendis fyrir fram). 1SAF0LD Uppsögn (akrifleg) bnndin viö áramót, er ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 1. okt. og kaupandi skuldlans viö blaöib. Afgreibsla: Austurstrœti 8. XXXVI. árg. Reykjavík sunnudaginn 14. marz 1909. 16. tölublað I. O. O. F. 893i98y2. Aiugnlækning ók. 1. og 8. þrd. kl. 2—8 i spltal ^orngripasafn opib á mvd. og ld. 11—12. íslandsbanki opinn 10—2 x/a og ö>/a—7. K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. til 10 siM. Alm, fundir fsd. og sd. 81/* siöd. Landakotskirkja. öuösþj.91/* og 6 á helgidögum Landakotsspitali f. sjúkravitj. 101/*—12 og 4—5. Landsbankinn 101/*—21/*. P-xkastjórn við 12— 1. Landsbókasafn 12—3 ogr l -8. Landsskjalasafnið á þt.ti,, fmd. og Id. l2—1. Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12. Náttúrugripasain (i landsb.safnsh.) á sd. I1/*—21/*. Tannlækning ók. i Tósthússtr. 14, l.og3.md. 11— • Iðnaðarmenn I Munið eftir að ganga í Sjúkrasjóö iðnaðarmanna — Sveinn Jónsson gjk. — Heima kl. 6 e. m. — Bókhlöðustig 10. Tollhækkunin. Frumvarpið það, eitt stórmálið á þessu þingi, hlaut fullnaðarsamþykki þingsins i gærkveldi, í sameinuðu þingi. Deildahrakningnum olli mest ágreiningur um, hvenær lögin skyldu koma til framkvæmdar. Sumir vildu leggja á allar áfengis- birgðir í landinu þann dag, er lögin gengi i gildi. En þar í móti héldu aðrir fram þeirri meinloku, að slíkt væri að láta lögin gilda fyrir sig fram. Þeir höfðu íram sitt mál, þótt rangt væri og hinum sviði það, að þeir kaupmenn, sem mikill grunur liggur á um að fengið hafi njósn um, að tollhækkunin væri i vændum, löngu á undan öðrum — líklega úr prent- smiðju þeirri, er prentaði stjórnar- frumvörpin, — væri látnir njóta þess og græða á því svo tugum þús. skifti, landssjóði til sama tekjumissis. Síðast var þráttað um, hvort drykk- jar-ólyfjanið »súr berjasafi* ætti að komast hjá tollgjaldi að mestu leyti. Það vildu io þingmenn, með einn hinna kgkj. þm. (Ág. Fl.) í broddi fylkingar. En 27 voru í móti og lögðu á hann 1 kr. gjald. Það er þessi mikla tollhækkun, sem landssjóður á að fleyta sér á aðallega til ársloka 1911: 1. gr. Þangað til annari skipan verður komið á skattamál landsins skal greiða aðflutningsgjald sem hér segir: 1. Af alls konar öli kr. 0,10 af hv. pt. 2. Af alls konar brennivíni, rommi, kognaki, whisky, arr- aki og sams konar drykkjarföngum með 8° styrkleika e. minna — 1,00 —---------- yfir 8° og alt að 120 styrkleika............— M°------------- yfir i2° og alt að 160 styrkleika............— 2,00 ■— — — Af 160 vínanda, sem aðfluttur er til elds- neytis eða iðnaðar, og gerður er óhæfur til drykkjarundirumsjón yfirvalds, skal ekkert gjald greiða. 3. Af rauðvini og sams konar borðvín- um hvítum (eigi freyð- andi), svo ogafmessu- víni.....................— 0,50--------- 4. Af öllum öðrum vínföngum, þar með töldutn bittersamsetn- ingum, sem ætlaðar eru óblandaðar til drykkjar, svo og af súrum berjasafa (súr- saft)....................— 1,00--------- 5. Af bitter-vökva (bitteressents, elixír og þvl.)....................— 1,00------pl. eða minni ílátum. Eftir sarna hlutfalli skal greiða toll, sé varan aðflutt í stærri ilátum. Séu vörutegundir þær, sem taldar eru í töluliðunum 2., 3. og 4., flutt- ar i ilátum, sem rúma minna en pott, skal greiða sama gjald af hverjum 3 pelum, sem af potti í stærri ílátum. 6. Af tóbaki alls konar, reyktóbaki, munntóbaki, neftóbaki og óunnu tó- baki.................kr. 1,00 af hv. pd. 7. Aftóbaksvindlum og vindlingum (ci- garettum)............— 2,60------------ Vindlingar tollast að meðtöldum pappírnum og öskjum eða dósum sem þær seljast i. Tóbaksblöð, sem aðflutt eru undir umsjón yfirvalda, og notuð eru ein- göngu til fjárböðunar, eru undanþeg- in aðflutningsgjaldi. 8. Af óbrendu kaffi og kaffibæti alls konar..................13 a. af hv pd. 9. Af alls konar br. "kaffi.................18 - — — — 10. Af sykriog sirópi 6J/2 ------— 11. Af tegrasi ... 50 -----------— 12. Af súkkulaði . . 25 - —--------- 13. Af kakaódufti . .13 - —--------- 14. Af öllum brjóst- sykurs- og konfektteg- undum..................40 - — ■— — 2. gr. Með lögurii þessum er úr gildi feld 1. gr. 1 —14 í toll-lögum fyrir ísland frá 8. nóv. 1901 og 1. gr. i lögum 31. júlí 1907 um framlengingá gildi laga um hækkun á aðflutningsgjaldi frá 29. júli 1905 og skipun milliþinga- nefndar. 3- £>"• Lög þessi öðlast gildi þegar i stað. Af þeim ofangreindum vörum, sem að- flutningsgjald er hækkað á, eða nýtt gjald á lagt og flytjast til landsins frá 12. marz 1909 þar til lögin öðlast gildi, skal greiða aukagjald, er nemi hækkuninni eða tollgjaldinu. Gufuskipaferðirnar. Tilboð Thorefélags. Hlutafé þess aukið um 550,000 kr. Hluthafar Thorefélagsins taka hluti fyrir 330,000 kr., landssjóður fyrir 500,000; hlutir landssjóðs verða for- réttindahlutir. Landssjóður á kauparétt á hinum hlutunum. Landssjóður fær meiri hluta í stjórn félagsins með ráðgjafa íslands í for- mannssæti. Félagið tekur 600 þús. kr. skulda- bréfalán með 1. veðrétti í sldpum fé- lagsins. Fénu verður varið sem hér segir: Kr. 850,000 er áætlað að þurfa mutii til að kaupa skip Thorefélags- ius, sem nú eru, með þeirri breytingu, að skift verði á KongHelge og P e r w i e fyrir skip eins og S t e r- 1 i n g. Skip Thorefélagsins má taka í félagið eftir virðingu. Kr. 500,000 verður varið til þess að kaupa nýtt skip á við S t e r 1 i n g og 3 ný strandferðaskip. Eftir eru kr. 50,000 í rekstursfé. Skip hins nýja félags verða þá þessi: 3 skip eins og Sterling, íngolf, Aukaskip, 3 strandferðaskip; það eru alls 8 skip. Fvö skipin eins og Sterling eiga að vera með kælirúmi. Strandferðaskipin eiga að hafa 150 smál. lestarúm, rúm fyrir 20—30 far- þega í 1. farrými, 50 í 2. farrýnti, 9 mílna hraða. Ætlað er á, að skipastóll þessi muni geta annast þessar ferðir: 11 ferðir milli Reykjavíkur og út- landa. 8 ferðir rnilli útlanda og Reykja- víkur og Vesturlands. 9 ferðir milli útlanda og Norður- og Austurlands. 5 ferðir frá útlöndum og kringum land. 5 ferðir aukaskipsins. 16 strandferðir, fram og aftur. í 22 millilandaferðum á Reykjavík að vera fyrsti viðkomustaður hér á landi. Með því eiga að fást reglu- legar samgöngur við útlönd hér um bil einu sinni á hálfum mánuði. Gert ráð fyrir, að tillagið úr lands- sjóði verði 60,000 kr., og úr rikis- sjóði 40,000 kr., eins og nú. Bókmentir og listir. 8aga mannsandans. Ágúst Bjarnason: Yfir- lit yfir sögu mannsandans. Austurlönd. Rv. (Sig. Krist- jánsson) 1908. í þessari grein bókmentanna eigum vér íslendingar ekkert til áður. Því er hér mikil þörf á fræðslu. Rj,t þetta, sem alls á að verða 4 bindi, er eins konar yfirlit yfir sögu trúar- bragðanna og heimspekinnar. Síðasta (IV.) bindið er áður út komið. Það er um heimspeki og vísindi 19. ald- arinnar og er sú bók mikill gróði bókmentum vorum. Nú er I. bindi ritsins nýkomið út. I þvi lýsir höf. helztu trúarbrögðum mannkynsins. Vér lítum svo á, að nokkur þekk- ing á helztu trúarbrögðum heimsins sé miklvæg þjóð vorri. Hún hefir hingað til ekki átt kost á því að kynna sér á sinni tungu önnur trúar- brögð en gyðingdóminn og kristin- dóminn. Öllum öðrum trúarbrögð- um hefir lengst af verið lýst svo sem væri þau hið svartasta villumyrkur og þau nefnd einu nafni heiðni. Af þvi hefir leitt þröngsýni og umburðar- lyndisleysi i trúmálaskoðunum. Rit þetta mun stuðla að því að færa sjón- deildarhringinn út, gera menn víðsýnni. Það sýnir þeim, að margt er göfugt í öðrum trúarbrögðum og að drottinn hefir birt öðrum en Gyðingum og kristnum mönnum ýmislegt háleitt og fagurt. Að vita það, gerir oss um- burðarlyndari gagnvart öðrum trúmála- skoðunum. Og á engan hátt getur slík þekking rýrt vora trú. Ef kristin trú þolir ekki samanburðinn, þá væri hún ekki það, sem hún er sögð að vera. Á þvi er og lítill efi, að yfirburðir vorrar trúar í ýmsum atriðum koma einmitt skýrt í ljós við samanburðinn. Fátt er í raun og veru ókristilegra en hugsunarófrelsi og illindi við þá, er öðru vísi hugsa en vér. Það er kominn tími til að kirkjudeildirnar kristnu, eða ýmsir menn innan þeirra, sjái að sér í þeim efnum. Þar hafa þær lengi steininn klappað, þvert ofan í dæmi meistarans. Og eitt hið bezta ráð til þess að venja menn af þeim hugsunarhætti, hyggjum vér vera það, að láta þá kynnast öðrum trúarbrögð- um og skoðunum þeirra manna, er öðrum augum líta á tilveruna en vér 1 ýmsum efnum. Höf. ætlast til, að ritið verði 4 bindi. Lítil líkindi eru til að hann fái lokið því styrklaust. Undanfarin tvö ár hefir hann notið styrks af al- þingi. Ef nú væri hætt að styrkja hann, mundu 2 síðari bindin að lík- indum ekki koma út. En i þeim ætlar hann að lýsa: í II. bindinu: andlegrisögu Grikkja og Rómverja, hinni kristnu kirkju og miðaldaspekinni, en í III. bindinu: heimspeki og vísind- um endurreisnartímabilsins alt til loka 18. aldar. Bækur um slikt efni ætti að geta orðið allri alþjóð mentunarauki, ekki sízt þegar þess er gætt, hve fróðleiks- fúsir íslendingar hafa verið. Ef þau 2 bindin vantaði, yrði bindin, sem út eru komin, ekki nema að hálfu gagni. Höf. mun að visu ekki koma hér með rieinn frumlegan fróðleik, heldur styðjast við ýms beztu rit Norðurálfu- þjóðanna í þessum fræðum; en sjálf- sagt má treysta þvi, að lýsing hans sé sæmilega rétt og hlutlaus. Sér- þekking skortir oss til þess að dæma um rit þetta, en einna hugnæmust og fegurst finst oss lýsing hans á Búddha- trúnni. Skoðanir sínar á gyðingdómn- um, reisir hann á biblíurannsóknum síðari tíma og fylgir þar ákveðnustu ruðningsmönnunum. Lýsing hans á aðallega við ytri hlið trúarbragðanna. l7t í hitt fer hann ekki í þessari bók, atf hverju trúarþörf mannanna sé sprottin og hver sé raunréttur uppruni trúarbragð- anna. Hann lætur og ósagt, livort nokkur veruleiki felist bakvið trúar- vonir mannanna. Sumt í bókinni virðist jafnvel fremur benda í þá átt, að hann trúi ekki á neina æðri til- veru. Úr þeirri miklu vandaspurn- ingu verður heldur ekki leyst nema með því, að sanna ódauðleik manns- sálarinnar eða öllu heldur framhald lífsins eftir dauðann. íslenzku höf. er ábótavant í sumu. En svo er um marga mentamenn vora. Honum er það vorkunn að meiri, sem harin hefir numið skóla- lærdóm sinn í Danmörku og dvalist þeini flestum lengur erlendis. Hins vegar er málið víða mjúkt og þýður blærinn. Ymislegt má finna að lýsing hans á kristindóminum, og ekki er neitt undarlegt, þótt surnir kennimenn vor- ir hafi sitthvað við hana að athuga. En ósæmilegt væri að synja honum um styrk til útgáfu ritsins fyrir þá sök. S v o niikið umburðarlyndi ættum vér þó að hafa í byrjun 20. aldar. Stafróf viðskiftafræðinn- ar. [Að miklu leyti eftir H. D. Macleod: E c 0- nomics for Beginn- ers]. Kenslubók i Verzl- unarskóla íslands eftir Jón Ólafsson. Rv. 1909 (Sig. Kr.) 216 bls. íslenzk verzlunarlöggjöf. Sundurlaust ágrip helztu aðalatriða. Kenslubók i Verzlunarskóla íslands og handbók fyrir kaupmenn og verzlunarmenn, eftir J ó n Ó 1 a f s s 0 n. Rv. 1908. 18C bls. Hvað sem öðru liður, eru þetta bækur sem bráð þörf er á. Meðan ekki kemur ítarlegt, islenzkt rit í þeirri fræði, viðskiftafræðinni, samið af einhverjuni sérfræðingi í þeirri grein, þeirra er nú eigum vér eða erum að eignast, — á meðan er bráð þörf á jafnfróðlegum og handhægum bókum sem þessum. Fyrri bókinni, Statrófi við- skiftafræðinnar, er vikið við úr ensku. Hún er eftir nafnkunnan viðskiftafræðing og bankamann í Lund- únum. Hún er í 11 kapítölum. Einn' þeirra merkastur er sá um 1 á n s- t r a u s t i ð. Höf. hefir haldið mjög á lofti nýrri skoðun á því og mis- jafnlega tekinni af mörgum, þeirri, að lánstraustið sé sjálfstæður framleiðslu- þáttur og arðberandi höfuðstóll engu síður en handbærir peningar eru. Aðrir merkastir kaflar eru um það, er höf. nefnir ólíkamlegan líkamsbundiu auð; réttindi eða ólíkamlegan auð; stafró:’ bankastarfanna; arð — o. fl. í einunt þeim kapítula (IX.) er t. d. fyrirtaks-hugvekja um skijting vinn- unnar. Það er ekki annað en hin alkunna kenning annars viðskiftafræð- ings Englendinga og frægari niiklu, Adams Smiths. Höf. hagnýtir dærni eftir hann um títuprjónagerð, hve miklu muni á dags- verkinu, ef hver gerir sitt handtak við þá smíði, en þau eru 18. Annað enn betra dæmi tekur hann eftir J. B. Say, viðskiftafræðinginn franska. Hvert einasta spil í spilaheild fer um 70 manna hendur, þar sem spilagerð er fullkomnust, hver þeirra vinnur að þeim sitt hið sérstaka verk; einn litar bakið á þeim, einn prentar lit- ina á myndirnar, einn umgerð mynd- anna á framhliðinni, o. s. frv. o. s. frv. flver þessara manna kann venjulega að eins sína iðn. Sumstaðar eru vitanlega ekki ráð á svo miklum mannfjölda. Það er talið svo til að 30 menn búi til 15500 spil á dag eða meira en 500 hver. En ætti einn maður að búa til eitt spil að öllu leyti sjálfur, mundi hann ltoma af t v e i m u r á dag, eða 60 spilum allir 30 í stað 15500. Þetta smá- dæmi eitt sér sýnir vel þann feikna- mikinn hagnað, er hlýzt af vinnu- skiftingunni. Þá er kaflinn um samvinnufélags- skap einn af mörgum góðum í þess- ari bók. — Hitt ritið, Verzlunarlöggjöf- i n, er talsvert styttri bók og frum- samin að öllu. Þar er alveg unnið á óplægðri jörð, og það eitt er mikils um vert. Það er ætlast til, að báðar þessar bækur verði kendar í Verzlunarskól- anum eftirleiðis; höf. hefir flutt þær í köflum fyrir nemendum jafnóðum og þurft hefir. Það er með öðrum orðum, að bækurnar eru fyrirlestrar hans þar í þessum kenslugreinum. Slökkvilið i Hafnarfirði. Frumvarp um stofnun slökkviliðs i Hafnarfirði hefir efri deild samþykt, eftir tillögu síra Jens próf. Pálssonar. Sóknargjöldum vilja þeir breyta, hafa borið upp frv. um það, Jósef Björnsson, Steingr. Jónsson og Aug. Flygenring, afnema frá næstu fardögum preststíund af fasteign og lausafé, offur, lausamanns- gjald, lambsfóður og dagsverk, en leggja þess í stað i1/^ kr. nefskatt til prestslaunasjóðs á hvern mann, 15 ára eða eldri, er telst til þjóðkirkjunnar, hvort heldur er karl eða kona og í hvaða stöðu sem er. En til þjóð- kirkjunnar teljast allir þeir, sem eru ekki í einhverju kirkjufélagi utan þjóð- kirkjunnar, því er prest hefir eða for- stöðumann, er fengið hefir konung- lega staðfestingu. Þá vilja þeir ennfremur afnema frá næstu fardögum kirkjutíund af fast- eign og lausafé, kirkjugjald afhúsum, ljóstoll, lausamannsgjald, legkaup og skylduvinnu sóknarmanna við kirkju- bygging. Sömuleiðis í kirkjufjárhalds- sóknum niðurjöfnun á kirkjusöngs- kostnaði og kirkjugarða, á prestskosn- ingakostnaði og safnaðarfulltrúaþókn- un; og skal greiða þann kostnað all- an úr sjóði sóknarkirkjunnar. í öðr- um sóknum skal jafna öllum þeim kostnaði niður á þann hátt, að sama gjald komi á hvern 15 ára gamlan safnaðarlim eða eldri. Hver 15 ára gamall þjóðkirkjumað- ur á að greiða 75 a. gjald á ári til kirkju sinnar. Skólabækur. Stefán Stefánsson skólastjóri vill láta stjórnina skipa 5 manna nefnd, er annist um að samdar verði og út- gefnar hentugar skólabækur í fræði- greinunt þeim, sem kendar eru í hin- um æðri mentaskólum landsins. Skilnaö ríkis og kirkju vill Jón frá Hvapná láta neðri deild alþingis skora á landsstjórnina að leggja fyrir næsta alþingi frumvarp um. V eizlun arlöggj öí. Hana vill Sigurður Sigurðsson láta stjórnina taka til rækilegrar athugun- ar, sérstaklega réttindi hérlendra kaup- manna og verzlunarfélaga, rétt manna, karla sem kvenna, til verzlunar í kaup- stöðum, löggiltum verzlunarstöðum og sveitum, sem og rétt til lausa- kaupaverzlunar og umboðssölu, og leggja fyrir næsta alþingi frumvarp til laga um þau efni.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.