Ísafold - 17.04.1909, Page 2
86
ISAFOLD
Ráðg'jaíaskiftin
sambandsdeilan.
Danskt blaðaviðtal við ráðgjafann.
Eitt þeirra blaða, er átti tal við ráð-
gjafa vorn hinn nýja og hafði því
nær alveg rétt eftir ummæli hans, var
0stsjallands Folkeblad, eitt hið helzta
og mest metna blað danskra vinstri-
manna utan Khafnar og hefir jafnan
lagt gott til vorra mála. Ritstjórinn
heitir Svarre. Því segist svo frá —:
Vér komum inn til ritstjóra ísa-
foldar, alþingisforseta Björns Jóns-
sonar, og fáum óvenjulega vingjarn-
legar viðtökur, eftir nýafstaðna ráð-
stefnu við yfirráðgjafann (30. marz)
og rétt á undan veizlu hjá konungi.
B. J. ritstjóri er meðalmaður á hæð,
þéttvaxinn, fríður sýnum og einkenni-
legur; hann er maður við aldur, með
mikið skegg og grár fyrir hærum.
Hann talar hægt og röddin fremur
þreytuleg; auðséð að ferðin til Khafnar
hefir ekki verið nein skemtiferð, enda
ekki slegið slöku við hér. Hann bið-
ur samverkamann blaðs vors vera veJ-
kominn með því, að þakka hinn mikla
áhuga blaðsins á málefni íslands.
— Eg hefi veitt eftirtekt starfi þess
og þykir því vænna um að tala við
yður, sem eg veit, að það blað hefir
öðrum dönskum blöðum framar rætt
um íslands mál. Um stjórnmál vor
hefi eg ekkert öðru nýrra að segja
sem stendur; en lang: yður til að vita
skoðun mina á einhverju sérstöku
atriði, þá er eg til.
— Varða viðræður við konung og
stjórn Dana ráðgjafamálið eitt, eða
tekur það til sambandsmálsins líka,
afstöðunnar við nefndarfrumvarpinu?
— Viðræðurnar taka tii allrar að-
stöðu landanna sín í milli, Danmerkur
og íslands. Ráðgjafamálið er útkljáð,
en úrslitin verða ekki kunngerð fyr
en fyrri partinn á morgun — getur
jafnvel orðið í kvöld.
— Eruð þér á því, að stefnuskrá
meiri hluta alþingis sé konungssam-
band ?
— Já, markmið vort er hreint
konungssamband, sem vér von-
umst til vér fáum komið á með tím-
anum. Sem stendur verður því ekki
framgengt; en vér vonumsttil
að geta snúið hugum manna
hér i Danmörku á það mál,
svo að það komist til fram-
kvæmdar á sínum tíma. Nú
er deilan um stefnu Dana og íslend-
inga í fullveldis-atriðinu.
Það hefir gert stefnu Dana mikið
mein, að þýðingin á nefndarfrum-
varpinu úr dönsku á íslenzku er
r ö n g ; manni liggur við að halda,
að þýðingarvillurnar séu gerðar vís-
vitandi.
— Hver hefir ábyrgð á þessari rang-
færðu þýðingu ?
— Abyrgðina hafa íslendingar í
nefndinni. Allar þýðingarvillurnar
halda í sama horfið, og þ a ð vekur
gruninn um, að þær séu gérðar vís-
vitandi. Danir hafa verið gabbaðir.
í kosningabardaganum á íslandi í
sumar hélt ráðgjafinn og hans fylgis-
menn því fram, að í nefndarfrumvarp-
inu væri fólgið oss til handa full-
veldissamband við Danmörku; en í
frumvarpinu sjálfu hafði verið forðast
að taka það fram afdráttarlaust. Frum-
varpinu átti með öðrum orðum að
lauma inn á kjósendur. Vér víttum
þá aðferð þegar í upphafi og héldum
fram, að þýðingin væri rangfærð. Nú
þykir mér vænt um að sjá, að hinn
danski ritari nefndarinnar (Dr. Knud
Berlin) hefir fallist á mínar skýringar.
— Nú, þá má kveða svo að orði
um ágreininginn: Islendingar krefjasl
algers fullveldis, en Danir synja?
- Já.
— Vonist þér þá til að nokkuð
geti bundið enda á ágreininginn nú,
eða verða forsetar að telja för sína
hingað árangurslausa ?
— Nei, Iokið verður ekki ágrein-
ingnum, en því fer fjarri, að ferð vor
sé farin til engis. Árangurinn er sá,
að nú kemur stefna hvors aðila hreint
fram. Vér höfum að voru leyti haldið
fram skýrt og skorinort vorri stefnu,
og Neergaard hefir að sínu leyti látið
uppi mjög greinilega, en einkar-ljúf-
mannlega, fyrir hönd hinnar dönsku
stjórnar, hið sama eða mjög líkt og
dr. Berlin.
Mér virðist sem hann hafi mikinn
vilja á að hliðra til við oss áður langt
líður. En nefndarfrumvarpið mun
falla bæði hér og á íslandi.
Ef til vill verður borið fram á ís-
landi alveg nýtt frumvarp.
Eg hygg þó, að málinu verði lokið
með lipurð á alþingi. Það á ekki við,
þegar mælt er til vináttu og góðs
samkomulags við annan, að byrja á
því að reka honum utan undir.
Og mín stefnuskrá er sú, að varð-
veita góða sambúð við Danmörku, af
því að eg hefi meiri trú á mætti
sólarinnar en stormsins — svo að eg
hagnýti orð spakmæla-sögunnar fornu.
Það mundi vera langt of ógáfulegt,
ef við héldum að oss ynnist nokkuð á
með afli stormsins. Vilji maður sætt-
ast við nábúa sinn, þá á aflið það ekki
sem bezt við.
— Eg skil yður þá rétt, að þér
séuð ekki á því að skilja við Dan-
mörku eða leita sambands við neitt
annað ríki.
— Já, eg er hvorki með sambandi
við neitt annað ríki né heldur með
lýðveldi. Eg trúi ekki á lýðveldið;
það eru ekki heldur til tíu lýðveldis-
menn á íslandi. Jafn-örlítil þjóð sem
vér erum ætti ekki að standa ein sér,
og eg held, að konungsættar-vernd
geti orðið oss til góðs, jafnvel í kon-
ungssambandi einu. Raunverulega
vernd vitum vér að Dantnörk getur
enga veitt íslandi; en landinu getur
orðið gagn að því, að hafa yfir sér
hlífiskjöld konungakyns þess, er ber
ættjöfurlegan ægishjálm yfir svo mörg-
um þjóðhöfðingjum álfu vorrar. (Hér
hafði skolast nokkuð í tíðindamauni).
— Haldið þér, að til sé nokkur
hagsýnileg leið ö n n u r en vilji meiri-
hluta alþingis til þess að samrýma
skoðanir Dana og íslendinga í sam-
bandsmálinu ?
— Nei, það held eg ekki. Eg þekki
vel kenningu um rétt konungs til að
leggja málið beint fyrir þjóðina, t. d.
fyrir ríkissamkomu. En það er ekki
annað en hugarburður, og ekkert
stjórnarfarslegt gagn að þvi. Alþingi
verður að annast velferðarmál íslands
— aðrar leiðir en sú eru undanbrögð
og ekki annað.
Björn Jónsson hverfur aftur að ráð-
gjafamálinu, sem hann kveður ráðið
vera fram úr, hvað sem líði sambands-
málinu.
— Og það eftir þingræðislegum
reglum ? skjótum vér inn í.
— Já, eftir þingræðislegum reglum
sömu og tíðkast hér í Danmörku; en
úrslitin verða ekki gerð heyrinkunn
fyr en á morgun.
— Svo að þá mun samt vera óhætt
að óska yður til hamingju?
Ráðgjafinn tilvonandi brosir —: Já,
það býst eg við að sé óhætt. En
vafinn er sá, hvort þetta er þá nokkur
hamingja. Eg hefi spornað i móti því í
lengstu lög, að eg yrði tilnefndur, en
fekk þar engu um þokað. Málum
var þar komið, að svo hlaut að fara.
Veðrátta
vikuna frá 11.—17. apríl 1909.
Hv. íf. Bl. Ak. Gr. ,Sf. >h.
Sunnd. 4,5 8,4 14) 1,0 3,0 2.0 6,2
Mánud. 9,0 0,7 0,8 2,6 2,0 2,7 6,6
Þriðjd. 4,0 b,4 3,5 3,6 0,6 1,0 6,5
Miðvd. 4,5 8,4 4,6 4,5 3,2 2,5 6,«
Fimtd. 4,0 -0,8 1,5 0,8 -1,2 0,0 1,0
Föstd. a,6 1,5 1,6 2,6 » 2,4 «,7
Laugd. 4,2 0,4 8,0 5,0 1,8 1,3 6,6
Rv. = Reyk.javík; íf. = ísafjörður [nýbætt
viðl; Bl. = Blönduós; Ak. = Akureyri; ör
=* Grims8taðir; Sf. *= Seyðisfjörður; I»h. *=
Þórshöfn i Færeyjum.
Baðgjaílnn
er jafnaðarlega til viðtals í embætt-
isskrifstofu sinni hvern rúmhelgan dag
kl. 2— 3V2, til þingloka.
Rammalistar.
Með s/s Sterling hefi eg fengið stórt úrval af rammalistum, mjög
góðum og ódýrum. — Hvergi fást myndir ódýrara innrammaðar en hjá mér
undirrituðum.
Jón Zoéga.
Talsimi 128. Bankastræti 14.
Aminning
Þeir sem eiga báta eða annað án leyfis liggjandi á lóðinni kringum
Batteríið, eru hér með ámintir um að hafa tekið það i burtu fyrir i. maí
þ. á., að öðrum kosti verður það meðhöndlað sem óskiJaeign.
Reykjavík 16. april 1909.
Björn Gfuðmundsson.
Ný stórgróðalind.
Norskt miljónafélag.
Hér er maður nýkominn frá Nor-
vegi að ganga frá stofnun miljónafé-
lags, er ætlar sér að fara að reyna að
hagnýta fossaflið í Skjálfandafljóti til
þess að vinna áburðarefni úr
1 o f t i n u, eftir nýfundinni aðferð
og harla hugvitssamlegri; og nefnist
félagið Skjálfandi.
Maður þessi er af islenzku höfð-
ingjakyni, bróðursonarsonur Jóns Espó-
líns sagnameistara (f 1836), en hann
var hálfbróðir sammæðra Stefáns amt-
manns Þórarinssonar á Möðruvvöll-
um (f 1823), er mikil ætt er frá
komin hér á landi og annar kynþátt-
ur samt meiri og frægari frá móður-
bróður hans, Ólafi Stefánssyni stift-
amtmanni (f 1812). Hann heitir S a m-
úel Johnson, þessi frændi vor,
og er hæstaréttarmálfærslumaður í Krist-
janíu. En frægastur maður í hans
ætt í Norvegi er Gísli Kr. Johnson
guðfræðisháskólakennari (f 1893).
Hr. Sam. Johnson þessi ferðaðist
hér í fyrra austanlands og norðan, og
festi hönd á fossana í Skjálfandafljóti.
Til atvinnureksturs þess, er hann
hugsar sér að hagnýta við fossaflið,
þarf 20—30 milj. kr. og gizkar hann
á, að af því muni helmingur ílendast
hér.
Lögum samkvæmt er meiri hluti
félagsstjórnarinnar íslenzkur og hefir
félagið skrifstofu sina og varnarþing
hér á landi.
Kynbróðir vor þessi er hinn mesti
íslandsvinur, atkvæðamaður mikill og
fremdarmaður i sínu landi.
Utsala
Frá í dag til sumardagsins fyrsta
verða sjöl og öll eldri tau seld með
15% afslætti í verzlun Augustu
Svendsen.
Þ. 13. þ. m. þóknaðist drotni að kalla
heim til sin heittelskaðan eiginmann minn
Guðmund Guðmundsson, eftir langa og þunga
sjúkdómslegu.
Jarðarförin fer fram miðvikudaginn 21. þ.
m. frá heimili hans. Húskveðjan byrjar kl-
I e. h.
Þetta tilkynnist vinum og vandamönnum.
Ánanaustum, Reykjavik.
Húsnœði.
Góð 4 herbergja íbúð og einstök
herbergi til leigu í miðbænum.
Upplýsingar í Lækjargötu nr. 6 B.
Magnús Blöndahl.
Umsækjendur
fyrir nemendur þá, sem ætlað er að
ganga undir gagnfræðapróf hins alm.
mentaskóla, eru hér með (samkvæmt
9. gr. prófreglugjörðar fyrir gagn-
fræðadeild mentaskólans) ámintir um,
að senda umsóknirnar svo tímanlega,
að þær verði komnar í hendur undir-
skrifaðs skólastjóra ekki seinna en
Það var hann, sem tók svo drengi-
lega svari voru við Dani og bar á
oss mikið lof á málfundi í Khöfn í
haust, svo sem getið var í vetur í
ísafold.
■----——
Stjórnarbyltingin
i Miklagarði.
Af henni barst þessi hraðfrétt hing-
að í gær frá Khöfn.
Ungtyrbir aflstola.
Dómsmálaráðgjafl myrtur o. fl.
Afturhaidsmenn bomnir að stjórn.
Þingtíminn lengdur.
Samkvæmt heimild í konungsbréfi
1. þ. m. um lenging þingtímans um
4 vikur eða 8. maí hefir ráðgjafi lengt
þann tíma að sinni til næsta laugar-
dags, 24. þ. m. En helzt búist við,
að alveg nauðsynlegt muni vera að
lengja hann til mánaðarloka.
Gufusbip Barden, frá Ellefsen bvalara
á Mjóafirði, kom austan að nú í vikunni
með efni i Heilsuhælið fyrirhugaða, er
hann sýnir hælinu þann höfðingsskap að
flytja hingað frá Norvegi ókeypis. Far-
þegar hingað að austan meðal annara var
Axel Y. Tulinius sýslumaðnr og hans frú,
og Jóhann L. Sveinbjarnarson prófastur,
Benedikt Sveinsson borgari í Mjóafirði m.fl.
Farþegar hingað á Sterling 11. þ.m. vorn
auk ráðgjafa og deildarforsetanna m. fl.
frá Kaupmannahöfn þær systur frú Yal-
gerður Benediktsson (með 3 börnum) og
frú Sigriður Jaoobsen, Magnús SigurðsBon
yfirréttarmálafærslum. og frú hans, Gunnar
Egilson stud. mag. og unnusta hans frk.
Guðrún Thorsteinsson, Bogi Brynjólfsson
cand. jur., kaupmennirnir Jón Brynjólfsson
Th. Thorsteinsson, Hörri.ig cand. mag.,
Guðm. Zophoniasson stud. art., Þórhallur
Daníelsson kaupm. frá Hornafirði, Torfi
Tómasson verzlunaragent frá Stykkishólmi.
En frá Leith komu Hannes S. Hansson kaup-
maður, Finnur Ólafsson verzlunarumhoðsm.,
Geir Thorsteinsson verzlunarmaður. Frá
Ve8tmanneyjum komu með skipinu P. J.
Thorsteinsbon kaupm. og tengdasonur hans
Eegert Briem óðalsbóndi i Viðey, er brugð-
ið hafði sér snöggva ferð til eyjanna.
Aðflutningsbannið.
Frumvarpið það, um bann gegn
aðflutning áfengis frá ársbyrjun 1912,
var samþykt við 3. umr. í neðri
deild 15. þ. m. með is atkv. gegn
7, með þeim einum breytingum, er
meiri hluti nefndar í málinu bar upp
eða lagði til með, og horfðu til bóta
lögunum, en hinar feldar, er þeim
voru til skemda eða fyrirstöðu, yfir-
leitt með 13 eða 14 atkv. gegn 8—10.
Frumvarpið á nú eftir að komast
gegn um efri deild.
Apelsín ur,
Kartöflur, Laukur,
Gulrœtur
nykomið til
CJuðm. Olsen.
Sigriður M. Reykdal.
Reikningur
yfir tekjur og gjöld sparisjóðsins í Keflavik
árið 1908.
T e k j u r.
Kr. au.
1. Sparisjóðsinnlög............ 15432.77
Vextir fyrir 1908 ............. 241.92
2. Diskonto...................... 226.27
3. Vixlar innleystir .......... 12419.00
4. Vextir af lánum............... 335.20
5. Ýmwlegar tekjur................ 29,34
Samtals 28684.50
Gjöld.
1. Lánað gegn:
a. Sjálfsskuldarábyrgð . . .
b. Ábyrgð sýslufélags . . .
2. Vixlar keyptir.............
3. Útborgað af sparisjóðsinn-
lögnm.......................
4. Ýmisleg gjöld..............
5. Vextir af innstæðufé með
sparisjóðskjörum............
6. í sjóði 31. des. 1908 ....
Samtals
A c t i v a.
Kr. au
Skuldabréf fyrir lánum:
a. Sjálfskuldar-
ábyrgðarlán kr. 3920.00
b. Lán gegn á-
byrgð sýslu-
félags .... — 2000.00
-------------- 5920.00
2. Vixlar óinnleystir............ 1955.00
3. í sjóði 31. des. 1908 .... 1056.63
Samtals 8931.63
P a s i v a.
Kr. au.
1. Innieign 80 samlagsmanna . 8602.44
2. Varasjóður..................... 329.19
Samtals 8931,63
Stjórn sparisjóðsins i Keflavik 31. des. 1908.
Kristinn Danielsson Þorgr. Þórðarson
p. t. form. p. t. gjaldkeri.
Arnbjörn Úlafsson.
Reikning þennan höfum við endurskoðað
og ekkert fundið við hann að athuga.
Keflavik 23. janúar 1909
Sig. Þ. Jónsson Ólafur V. Ófeigsson
Ostar
eru beztlr í verzlun
Einars Arnasonar.
Til leigu ágæt ibúð, stofa, kam-
ers, eldhús, geymsla; sérstaklega lág
ieiga.
Tödu
selur
Guðm. Olsen.
Kr. au.
3920.00
2000.00
14374.00
7072.25
19.70
241.92
1056.63
28684.50
15. maí næstk.
Reykjavík 16. apríl 1909.
Stgr. Thorsteinsson.
Touskinn. Áreiðanlegt Lundúna-
firma vill komast í beint samband
um íslenzk dýraskinn. Menn snúi
sér til P. C. Hartmann, 16 Great
Saint Helens, London E. C.
A Hveríisgötu nr. 3C
fást þorskanetaslöngur keyptar.
Efri íbúðin í húsinu á Hverf-
isgötu 3 C, einhver langfallegasta ibúð
i bænum, er til leigu, semja ber við
Björn Rósenkranz.
Einkar-hentug herbergi til
Ieigu. Semjið sem fyrst við
Eyvind Arnason, Laufásveg 2.
Agœtar íbúðir til leigu frá 14. maí
í Grettisgötu 1.
Peningabudda fundin; vitjist
Laufásveg 37.
2 berbergi og eldhús óskast til
leigu frá 14. maí. Tilboð merkt
herbergi afhendist i afgr. ísaf.
Lifandi blóm, óvanalega falleg,
fást í Þingholtsstræti 18.
Svanlaug Benediktsdóttir.
3 herbergi með eldhúsi til
leigu 14. maí nk.
Jón Lúðvígsson Þingholtsstræti 1.
Til leigu jrá 14. mai heil hús og
einstakar íbúðir.
Gisli Þorbjarnarson.
1—2 herbergi til leigu 14. maí á
Sigríðarstöðum (gömlu).
Metta Einarsdóttir
Kvistherbergi til leigu frá 14.
maí, Óðinsgötu 10.
Eyvindur ^Arnason.
Stórt herbergi í miðbænum
með forstofuinngangi óskast til leigu.
Afgr. vísar á.
Fræsölu
gegnir eins og að
undanförnu
Ragnheiður Jensdóttir, Laufásveg 13.
2 herbergi til leigu frá 14.
maí á Stýrimannastíg 8.
Herbergi með húsgögnum og
rúmi óskast til leigu á góðum stað.
Skrifið F. Oiafsson, Iðnó, Reykjavik.
Budda fundin. Vitja má í
Grettisgötu 50.
Gott húspláss
er til leigu frá 14. maí hjá Ara
Antonssyni Lindargötu 9.