Ísafold - 16.06.1909, Síða 2
146
ISAFOLD
sér þessarar vitneskju, í atvinnuleys-
inu, — að minsta kosti þegar timi
Málm-félagsins verður út runninn?
Þá er sjórinn.
Otæmandi er hann. Ekki stendur
á öðru, en að kostnaðinum sé ekki
þeytt svo upp, að alt verði ókleift í
örðugum árum.
Er ekki unt að stunda hann lengur
en þá mánuði, sem nú er við hann
fengist ?
Er ekki unt og óhætt að láta þil-
skipin vera lengur að störfum að
haustinu ?
Er ekki unt að hafa hér opna báta
handa mönnum að róa á, þeim er
það kynnu að vilja, þegar þilskipin
þryti að haustinu?
Og er ekki unt að auka útgjörð
botnvörpuskipanna, sem haldið er úti
alt árið, og vafalaust gefa stórkost-
legan arð, ef rétl er með farið?
Enn er jörðtn.
Reykjavík á mikið rækthæft land.
Hún hefir afarmikla þörf á meiri
jarðrækt. Alt af er of Iítið af mjólk
og eggjum í bænum, þó að hvort-
tveggja sé selt afarverði. Eins tæki
bærinn við meiri kartöflum og kál-
meti en hann fær.
Jarðræktin veitir ekki vinnu að mun
um háveturinn. En að haustinu, oft
langt fram eftir þvi, og að vorinu,
oft snemma.
Er ekki unt, með einhverjum ráð-
um, að auka þessa notasælu atvinnu?
Loks er qrjótið.
Við aðra bæi mundi grjótið hér
verða nefnd dýrmæt náma.
Getur það verið, að ekki sé unt að
færa sér það í nyt annan veg en
gert er?
Gæti ekki bærinn sjálfur látið vinna
úr þvi handa sér pípur, gangstéttaefni,
húsaefni ?
Gæti hann ekki reist úr því hús,
fyrst og fremst handa þeim mönnum,
sem hann hjálpar, og þá fært sig upp
á skaftið i þeirri grein, ef vel gengi?
Með þvi að færast slikt í fang
virðist ekki ósennilegt, að bærinn gæti
aftrað eitthvað hættulegum húsagjörðar-
kippum og þá jafnframt afstýrt eftir-
farandi atvinnuleysis-timum. Hann
yrði þá og að einhverju leyti þiándur i
götu timburhúsagjörðarinnar, sem ann-
ars er vafamál, hvort ekki ætti að
banna i þessum bæ. Og honum væri
þá innanhandar að veita mönnum at-
vinnu, þegar þörfin yrði brýnust.
Vér höfum ekki á það minst, að
bærinn færist sjálfur annað í fang af
því, sem vér höfum vikið að, en
grjótvinnuna.
En ekki virðist oss neitt ódæði, þó
að spurt væri, hvort óhugsandi sé, að
hann geti tekið að sér fleira af þessu,
ef engir einstakir menn fást til þess
— og ef um það er að tefla að bjarga
honum sjálfum.
Er bænum ókleift að eiga báta til
þess að lána atvinnulausum og blá-
fátækum mönnum til róðrar, ef það
er annars ráð að róa — sem senni-
iega er jafn-mikið ráð nú eins og fyrir
nokkurum árum?
Er bænum ókleift að halda úti
botnvörpuskipum, ef einstakir menn
gera það ekki nægilega, og ef það er
gróðavegur ?
Eða er bænum ókleift að rækta eitt*
hvað af landi sínu?
ísafold gerir ekki annað en spyrja.
Hún er enginn sérfræðingur í þessum
greinum. Hún spyr eins og hver
annar óbreyttur borgari bæjarins.
Hún spyr í þeirri trú, að einhverjir
vilji um þetta hugsa, og að menn láti
ekki lenda við vll og kvíða. Hún
vonast eftir einhverjum svörum frá
þeim, sem góða grein kunna á þess-
um efnum.
Og hún spyr með algerðu skiln-
ingsleysi og vantrú á það, að bær,
sem með margvíslegum hætti er stór*
kostlega styrktur sem höfuðstaður
og aðalmentastöð landsins, að bær,
sem er rétt hjá góðum fiskimiðum,
á nóg af landi, sem að eins býður
eftir mannshöndinni, og hefir yfir-
fljótanlegt húsagjörðarefni handa sér
um margar aldir, sé sjálfdæmdur til
þess að verða ráðþrota og bjargarlaus.
Að vér ekki nefnum það, ef hann
hefir gullnámu innan um húsin —
þegar atorkan er orðin svo mikil, að
menn fá að verða þess vísir!
Hyað vill Island?
íslendingur í Noregi, sem þar er I
lýðháskóla, Snorri Sigjússon úr Svarf-
aðardal, hefir ritað nýlega í eitt Björg-
vinjarblað (Bergens Tidende) mjög ít-
arlega grein um sambandsmálið ís-
lenzka, og lýsir þar markmiði sjálf-
stæðisbaráttu vorrar.
Hann ræður norskum blöðum að
hafa ekki Dani að milligöngumönn-
um um fróðleik sinn á íslenzkum
stjórnmálum, þeir sé ekki skilnings-
glegstu mennirnir á slíka hluti. Þeir
muni þvert á móti vera ófróðastir
Norðurlandaþjóða um ísland og islenzk
mál, þótt öfugl ætti að vera.
Þá segir höf. í stuttu ágripi stjórn-
málasögu íslands fram að þessu; og
að við sögulokin verði niðurstaðan sú
hin margsannaða, að vér eigum enn
óglataðan allan rétt vorn. Markmiðið
sé ekkert annað en að f á hann, ná
honum úr höndum Dana.
Þá lýsir hann i fám orðum ráð-
gjafanum nýja (B. J.) og hans stjórn-
arfarslegri stefnuskrá. Þetta er niður-
lagið —:
Hann vill ekki ganga að neinum
öðrum samningi milli landanna en
þeim, að ísland verði frjálst sam-
bandsland við Danmörku, — að
löndin verði bæði jafn-rétthá.
Þá stjórnartilhögun vill hann kalla
persónusamband. Hann er ekki með
lýðveldinu.
Inn á við vill hann einkum leggja
kapp á að auka framleiðsluna. Hann
vill veita konum sama rétt sem körl-
um í öllu. Með þeim hætti hygst
hann að geta þroskað siðferðistilfinn-
ing með þjóðinni.
B. J. hefir verið hinn öflugasti stuðn-
ingsmaður bindindismálsins á íslandi.
Þar var hann á verði, er flestir aðrir
voru sofandi. Á fyrsta þingi er hann
situr á ráðgjafi, sér hann ávöxt vinnu
sinnar þar sem eru bannlögin, sem
alþingi hefir nú samþykt.
Björn Jónsson er enginn ellikarl,
fullur af kreddum eða þröngsýni. Hann
hyggur ekki að lífið sé að finna á sér-
stökum stað eða stundu í einhverju
oftrúargerfi. Hann trúir á hið jafn-
skifta, frjálsa líf, þann veg sem það
birtist í hverri skapaðri veru og hver-
jum þeim gróðri, sem sprottinn er fram
af guðshugmyndinni.
Sú lifsskoðun mun að likindum móta
stjórn hans.
B»r brennur.
Aðfaranótt þriðjudagsins 8. þ. m.
brann bærinn að Flögu í Vatnsdal i
Húnavatnssýslu. Kona vaknaði við
það um nóttina, að henni heyrðist
vera farið að rigna. En þetta var
brakið í tréspónum, sem voru í veggn-
um bak við þiljurnar við rúmið henn-
ar. Fólkið bjargaðist út. En alt biann,
eða mest all, sem var á efra gólfinu
— þar á meðal mikið af fatnaði og
rúmfötum, og eitthvað af peningum,
sem eigandi jarðarinnar og ábúandi,
Magnús kaupm. Stefánsson á Blöndu-
ósi, sumpart átti, sumpart hafði í
vörzlum sinum fyrir aðra. Húsakynni
voru ágæt, að miklu leyti úr timbri.
Alt var óvotrygt. Tjónið auðvitað
mjög tilfinnanlegt.
Landlækuir
lagði á stað laugardaginn var í
embættisskoðunarferð austur um sýsl-
ur og norður, alla leið til Skagafjarðar.
Bjóst við að verða um 6 vikur i
ferðinni.
Truarbragðakeríi og trurækni.
Eftir Jean Finot.
W. T. Stead segir svo nýlega, að
siðan hlekkirnir, sem tengdu saman
ríki og kirkju á Frakklandi, voru slitn-
ir, hafi löngun vaxið þar til að þekkja,
hvernig nú megi endurtengja jörðina
við himininn og síðan líf vort alt.
Það er maklegur inngangur að grein
hins franska rithöfundar, er nýlega
birtist í meiri háttar tímariti þarlendu
[La Revue) og víðar, en hér fer á eft-
ir ágrip af. Þó að ísafold sé ekki að
öllu sammála höf., er ágrip þetta
prentað hér sem sýnishorn þess, hvern-
ig visindamenn, sem aðhyllast hina
nýju stefnu hugsananna rita um þess-
ar mundir. Engum dylst brsytingin,
þeim er hugsa svo sem 25—30 ár
aftur í tímann —:
Trúin er æðst af öllu góðu. Án
hennar yrði oss lífið likt og ef vér
lifðum i myrkri. —
Trúarbragðakerfi er óhugsanlegt án
trúar, en öll einlæg trú er jafngild
trúarbrögðum.
Trúarbragðakerfin leysast sundur,
því að þau þróast fram og verða að
eins konar trúrækni, þ. e. trúarsviði,
þar sem trúarsetningarnar týna sínum
tilteknum fyrirmörkum og taka á
sig gervi ótiltekinnar löngunar.
Trú og trúrækni hafa alla tíð verið
til. Trúarbragðakerfin eru nýgerfing-
ar. Það er fyrst með þeim Búddha,
Konfúcíus, Zarathústra, Móse, Kristi,
Múhamed, að greinaföst trúarbrögð
komast á. Þeir vanmeta framtíðina,
sem halda, að ekki sé hugsanlegt mann-
kyn án trúarbragðakerfa.
Vér skulum trúa á mannsandann.
Hann er víðfeðmnari og djúptækari en
allir heimspekiskólar. Hann sem hefir
sjálfur búið þá til og tekur þá alla.
Glötun einhvers trúarbragðakerfis eða
heimspekiskerfis merkir ekki hið sama
og glötun mannsandans. Á leiðinni
upp á við til stjarnanna hefur hann
sig upp yfir allar umbreytingar trúar-
bragða og íhugana, sem verða á vegi
hans.
í baráttu frjálsrar hugsunar við trú-
arsetningar geta trúarsetningarnar ekki
átt nokkra von á að fara með sigri
af hólmi. Hernám visindanna, sem
allir eiga aðgang að nú á dögum,
grafa meir og meir undan öllum trú-
fræðisgreinum. Allir verða að játa, að
sí og æ eru lönd að ganga undan
trúarbrögðunum. Engum dettur í hug,
að þau muni hverfa aftur sigri hrós-
andi til að taka bætur. Það mundi
oss þykja jafn-fjarstætt og tíminn stöðvi
göngu sína. Trúarbrögðin verða að
semja frið við frjálsa hugsun til að
halda sér við. En frjáls hugsun gref-
ur grundvöllinn undan trúarbragða-
kerfunum.
Vísindin hafa veitt hroka mannsins
rothögg. Með sannfæringunni um, að
jörðin er ekki annað en dropi í eyðslu-
sömu búi alheimsins, dirfist ekki mað-
urinn nú á tímum að krefjast neinn-
ar sérstöðu gegnt guðdóminum. —
Það er hörmulegt að vita, hvernig
ruglað er saman hugtökunum trúar-
bragðakerfi og trúrækni. Trúarbragða-
kerfin eru óhugsandi án tiltekinna
helgisiða, og þau eru safn af föstum
trúarsetningum. Trúræknin er ekki
annað en ein tiltekin hljð á manns-
andanum.
Maður, sem telur sig ekki til neins
trúarbragðakerfis, getur verið trúræk-
inn, guðhræddur. —
Trúræknis-þroskinn, sem tekur á-
hrifum af nútiðaríhugun, gerir lífsskoð-
un vora æ frjálsari, Stirðnaðar trúar-
setningarnar týna sinu sérstæða verð-
mæti og eru knúðar til að fylgja
frjálsri hugsun.
Allir kirkjusiðir og trúarsetningar
munu því færast æ nær þeirri trú-
rækni, sem ókomnar kynslóðir mann-
kynsins munu þýðast. Sú trúrækni
mun varpa útbyrðis þeim villum, sem
skilur sundur sálir — til þess eins að
halda eftir þeim sannleika, sem tengir
þær saman. —
Menningarþróun og þjóðlífsframfarir
sýna ljóst, hve mikii þörf er á félags-
skap meðal mannkynsins. Með hver-
jum degi, sem líður, færast þjóðflokk-
arnir nær hver öðrum. Vísindi og
bókmentir verða sameign þjóðanna.
Það er eins og alheimsleg hugsun líði
í lofti yfir andvígum skoðunum og á-
hugamálum.
Trúarbrögðin verða að hlíta . lög-
máli lífsins eins og allar mannlegar
tilstofnanir. Fjarri fer því, að þær
skilji hugi manna; þar eiga þær að
leitast við að sameina þá.
Sá íágur mun sannarlega renna
upp, að allar trúarsetningar og trú-
ræknissiðir, sem varpa skuggum á
mannsandann, munu mást burtu. Þá
mun undirstaða allra trúarbragða, frjó-
stöngull þeirra allra hinn guðdómlegi,
spretta fram i allri sinni dýrð. Hann
hefir jafnan verið sú hin hressandi
lind, sem trúarbrögðin hafa ausið úr
þrótt sinn. Trúarbragðakerfin sjálf
munu detta í mola, hvert af öðru á
sama staðnum, er þau fengu að líta
ljós dagsins.
Með þeim hætti munu og trúar-
setningar hverfa, til þess að trúrækn-
in komist að, hún sem er inning á
þeirri eilífðarþrá, er sameiginleg er
öllum mönnum. —
Grimmilegasti sjónleikurinn, sem
trúarbragðakerfin hafa leikið, eru of-
sóknir þeirra i nafni trúarinnar. Eti
jafnskjótt og umburðarsemi og mann-
úðleg meðaumkun fá framgang í trú-
arbrögðunum, munu þau verða bjart-
ari og sæluríkari.
Hatur á öllu nýju mókar, þó að
vér vitum ekki af, i hverju manns-
brjósti.
Sé þetta hatur vakið, þá ver það sig
með hverju sem hendi er næst. Menn
ioka sig inni í sinum gömlu skoðun-
um og troða upp í allar rifur fyrir
ljósinu, sem leitar á. Sáttfúsari menn
leitast aftur við að samþýðast því
sem bezt að auðið er. Þeir skreyta
hús sín eftir sniði tímans.
í slíkum meiri og minni háttar
byltingum fálmar hugurinn i myrkri
og leitar að leið til ónýtis. Baráttan
æsir geðið og gerir það beiskt og
ósáttfúst. Smám saman ryður Ijósið
sér fram; þvi að sannleikurinn á öllu
öðru meiri mátt til að ryðja sér til
rúms. Leiðinni iýkur þar, að rikin
láta þjóðirnar eiga sinn þátt í ríkis-
stjórninni og trúarbrögðin veita skyn-
seminni rúm i trúarsetningunum.
Á að neyða með valdi þá hugi,
sem kunna ekki hinu nýja ástandi?
Gamla húsið, sem er rétt komið að
hruni! Það getur komið á hverri
stundinni, að flutt verði úr því. Bar-
átta til þrautar mundi ekki valda öðru
en að auka beiskjuna. Látum
mannsandann starfa frjálst og fram-
farir renna upp af valdi sannleikans
sjálfs.
Flytjum fagnaðarboðskap friðar og
sáttfýsi. Mannlegar ástriður munu
eins fyrir því vinna sitt starf. Þær
munu leitast við að knýja fram sigur
hugsjónanna með ofsóknum og of-
beldi. Það er hlutverk göfugra anda,
að mýkja og draga úr beiskjunni.
Umburðarlyndi er spaks manns þolin-
mæði og eingöngu dygð viturra manna.
Þegar öllu er á botninn hvolft, er
dauðinn forlög allra trúarsetninga;
enda eiga þær ekki tilkall til annars.
Þegar aldinið er alþroskað, getur ekk-
ert aftrað því að falla af trénu; það
mundi ekki vera því til annars en
gagnslausrar byrði. Eins koma vis-
indi og heilbrigð skynsemi sér hjá
því að hlaða greinar sínar úreltum
skoðunum.
Verum umburðarlyndir gömlum
hleypidómum og örvasa trúarsetning-
um, og opnum hugann fyrir nýjum
sannleiks-gestum, sem berja að dyrum.
Trúræknin varðar ekki annað en
aðstöðuna við hið eilífa og óendan-
lega og er al-séreðlisleg. Eðli henn-
ar hefir séð um fyrir fram, að henni
verður ekki þrýst inn undir neinar
trúarsetningar eða reglur. Hún þarf
hvorki að halda á kirkjum eða trúar-
greinum eða prestum.
í trúrækninni geta þeir allir fund-
ist, sem trúa á eilifan leyndardóm,
allir sem bera í brjósti sér vonarþrá
eilífðarinnar. Innihald þessarar eilifð-
arlöngunar varðar engu. Hitt er alt,
að hún sé til í raun og veru.
1 öllum trúarbrögðum er trúrækni.
Hún bindur engum skildaga öðrum
en þeim, að hugur mannsins sé trú-
rækiun, »kki að hann sé I neinu trúar-
bragðafélagi. Skilin á þessa lund mun
trúræknin verða hér eftir einkenni á
hugsandi mönnum.
Trúarbragðakerfin munu veslast upp
og hverfa með öllu, en trúræknin
eða þráin eftir þvi, sem er ekki af
þessum heimi, mun ávalt halda áfram
að vera förunautur hverrar hugsandi
veru. Hugsjónaleitin verður ekki
skilin frá mannmum. Eðlilegur andi
getur jafnilla verið án hennar eins og
eðlilegur líkami án tiltekins súrefnis-
forða.
Mannsandinn, vikkaður og dýpkað-
ur, opnar oss þá paradís, er oss hef-
ir svo lengi langað eftir. Vér skil-
jum betur og betur, að Guð er í oss
öllum, eins og vér erum allir i Guði.
Eins og fiskar sjávarins lifa i sjónum
og sjórinn er í þeim, eins lifuin vér
í Guði og Guð í oss. Til eru sálir,
sem liggja i dái; en dýpst i grunn-
inum lifir guðsvitundin. Inst i sálar-
djúpi hverrar hugsandi veru vakir
eitthvað guðdómlegt. Virðum þetta
með öðrum; þá fyrst getum vér vænst
að aðrir virði það með oss.
Þessi virðing á báða bóga er aðal-
skilyrði friðsamlegrar þróunar fram á
við til trúrækninnar, hennar, sem er
hin eina eðlilega kirkja, sameiginleg
öllum mönnum.
Erl. ritsímafréttir
til íiafoldar.
Kh. »/••
Landskjdlftar d Suður-Frakklandi og
Spdni. Menn hafa farist hundruðum
saman.
Laudar erleudis.
---- Kh. %
Haukur Gislason cand. theol. tók
hér nýlega prestsvígslu og er nú orð-
inn aðstoðarprestur í Álaborg á Jót-
landi.
Trúlojuð eru hér í Höfn þau Sig-
valdi Stejánsson læknir og Margarethe
Mengel-Thomsen, dönsk hjúkrunarkona.
Jón Kristjánsson (háyfirdómara) lauk
hér lögfræðisprófi í gær með I. ein-
kunn, óvenju hárri.
Heimspekispróf hafa þessir tekið:
Ólajur Pétursson frá Hrólfskála (I.
eink.) og Hjörtur Hjartarson^ trésmiðs
(II. eink.).
Undir hebreskupróf gekk Asmund-
ur Guðrnundsson í dag og hlaut ágætis-
einkunn.
Látinn er hér í borginni fyrir nokkru
Sigurður Jóhannesson, stórkaupmaður.
Eirikur Magnússon, meistari í Cam-
bridge hefir sagt af sér bókavarðar-
embættinu nýlega, enda er hann nú
hálfáttræður að aldri. En »eigi er að
sjá að elli hann saki«. Minnið og
fjörið er við fulla heilsu. Hann er
um þessar mundir að vinna að ritgerð
einni mikilli um Eddukvæðin og upp-
runa þeirra.
Samsöngur 1 Bárubúö.
Hr. Gunnar Matthiasson.
__________________*->
Nýkominn íslenzkur söngvari frá
útlöndum. Það er nóg til að fylla
húsið. Og sex, sjö lög ásöngskránni,
sem fæstir hér hafa heyrt.
Söngvarinn kemur upp á pallinn,
eða réttara sagt inn í skemmuna, sem
pallurinn hefir verið gerður að með
»skreytingunni«. Er það loftleysið, sem
háir honum, svo að hann nýtur sín
ekki ? Hann syngur Ijómandi smálag,
enskt. Röddin ágætlega skóluð, fram-
burðurinn vandaður. En hann hefir
litla rödd, eða sést það ekki fyrir lag-
inu? Jú, þarna kemur lag úr Faust-
óperunni (Gounod), sem ætti að láta
hljóðin njóta sín. Þau eru lngleg, þýð,
en lítil, — of lítil. Hann syngur seren-
ötu eftir Sv. Sveinbjörnsson (við enskt
smákvæði eftir Longfellow), en óheyr-
anlegt pianissimo þeim sem fjarst erú.
Og þó er skemtilegast að heyra hann
syngja lægst og stiltast; þá sést æfingin
svo vel. Eitt lag syngur hann á ís-
lenzku, R ó s i n eftir Á. Th., ogannað,
þegar hann er klappaður fram.
Frk. Elin Matthíasdóttir syngur á
íslenzku einsöng í tveim lögum, og
þau systkinin saman tvo tvisöngva, á
ensku.
Frk. Kristrún Hallgrímsson leikur
undir, og einu sinni sóló, fræga són-
ötu eftir Beethoven (Sonate pathetique
Op. 13., nokkuð af henni).
— t.