Ísafold - 21.08.1909, Blaðsíða 4
220
I S A F 0 L 0
(Framh. frá i. síðu).
Stórvesírinn tyrkneski, Hilmi pasja,
hefir farið að öllu með varúð og gætni.
Nefnd Ungtyrkja hefir þótt hann vera
alldeigur i þessu máli og heimtar nú
af honum skýrslu um, hvað gerist
bak við tjöldin. Hann segir það ríkis-
launung og neitar að segja frá því.
Ungtyrkir hóta honum vantrausti.
Hann biður þá gera svo vel.
Morð 1 Danmörku.
Maður myrtur til fjár af I»jóðverja.
Fyrir rúmri viku fanst búðar-
maður einn, Bjðrnsen að nafni, dauð-
skotinn í búð sinni. Þetta var um
laugardagskvöld. Hafði hann verið
að loka búðinni og haft með sér
peningakassann með 8oo krónum í.
Kassinn var horfinn.
Fyrir dugnað lögreglunnar hefir ó-
dæðismaður náðst. Hann heitir Leander
og er Þjóðverji, 23 ára gamall. Morð-
ið hefir sannast á hann með ótal
gögnum og hann hefir hálft í hvoru
meðgengið. Hann er annars orðinn
hálfruglaður, en vera má að það sé
uppgerð og gert til þess að komast
í sjúkrahús og geta síðan strokið
þaðan.
Annar Þjóðverji hefir og verið hand-
samaður, grunaður um að hafa verið
í vitorði með Leander og hjálpað
honum til.
Ferðalag Rússakeisara.
Hann er á flakki um álfuna, milli
þjóðhöfðingja, eins og getið hefir ver-
ið og fer svo að segja huldu höfði.
Enginn má vita fyrirfram hverja leið-
ina hann fer. Ollu er haldið leyndu.
Sagt er að ódæðismaðurinn Hartinv-
Landessen sé hafður til þess að gæta
hans fyrir glæpamönnum á leiðinni.
A Englandi var hann fyrir skömmu.
Til þess að blíðka landslýðinn gaf
hann laus nokkur hundruð pólitískra
fanga. Þó urðu þar allir fegnir burt-
för hans, því að menn máttu naum-
ast um frjálst höfuð strjúka meðan
hann var þar. Umferð var bönnuð
um stór svæði, sem hann fór um og
enginn mátti nærri honum koma.
Umboð
TJndiraknfaðar tekar að sér að kaapa
útlendar vörur og aelja fel. vörar gegr
œjög sanngjörnam amboðeiannum.
G. Soh. Thor8tein#*on.
Peder Skramsgade 17.
Kjöbenhavn.
Sálmabókin
(vasaútgáfan) fæst í bókverzlun ísa-
foldarprentsm. með þessu verði:
1.80, 2.25,
gylt í sniðum og í hulstri 3.50 og 4.00,
í flauelisbandi og gylt i sniðum
og í hulstri 6.50.
35 aura ostinn
í verzlun
Kinars Arnasonar,
ættu allir að reyna.
Hljóraleik
heldur
hr. Groth Jolianncssen
fiðluleikari, frá Edinborg,
í Bárubúð á morgun (sunnudag)
kl 6 síðdegis
með aðstoð:
hr. Brynjólfs Þorlákssonar,
hr. Reynis Gislasonar og
hr. Hjartar Hanssonar.
Aðgöngumiðar á 1 kr. seldir i bóka-
verzlun G. Gamalielssonar í dag og í
Bárubúð á morgun (sunnud.).
Poesi-bækur
skínantli fallegar og mjög
ódýrar eftir gæðum tást í
Bókverzlun Isafoldar.
Vinnukona
óskast 1. okt. á gott heimili. Verður
að vera góð matreiðslukona. Hátt
kaup. Bréf merkt: 860. Skrifstofa
ísafoldar.
Ef menn vissu!
hvað Sseng’urdúkurinn sem
Brauns verzlun selur, er sterkari, endingarbetri og miklu ódýrari en
annara, þá myndi engin verzlun hér á landi selja sængurdúk nema
Brauns verzlun.
Komiö! Skoöiö! Reyniö!
Póstkorta-albura
afar-fjölbroytt aö goeðum og vorði oru komin aftur
í bökverzlun Isafoldar.
Viudla- og tóbaksverksmiðjan DANM0RK
Niels HemmingsensKade 20, Kmhöfrt K,
Talsimi 5621 Stofnuð 1888 Talsimi 5621
Stærsta verksmiðja i þvi landi, er selur beint til neytenda.
Kaupendum veittnr 32 °/0 afsláttur og borgað undir 9 pd. með járnbraut, yfir
10 pd. 6 °/0 aukreitis, en burðargjald ekki greitt. Tollbækkun 18 a. á pd. nettó.
Biðjið um verðskrá og meðmæli verksmiðjunnar.
= Verksmiðjan Laufásveg 2 =
Eyvindur & Jón Setberg
Líkkistur af mörgum stærðum, líkklæði og líkkistuskraut.
Skoðið og spyrjið um verð áður en þér kaupið annarsstaðar.
Legsteinar úr granít og marmara, plötur í steina úr sama efni
(til sýnis steinar og myndir af mörgum teg.).
— Líkkransar, pálmar, lyng- og perlukransar. —
I
I
Í
1
BREIÐABLIK
TIMARIT
i hefti 16 bls. á mán. í skraut-
kápu, gefið út í Winnipeg.
Ritstj. síra Fr. J. Bergmann.
Ritið er fyrirtaksvel vandað,
bæði að efni og frágangi; málið
óvenju gott. Arg. kostar hér
4 kr.; borgist fyrirfram.
Fæst lijá
Áena Jóhannssyni,
biskupsskrifara.
Neðri íbúðin í húsinu nr. 7 í
Grjótagötu er til leigu 1. október.
2—3 herbergi með eldhúsi til
leigu. Upplýsingar hjá Jóni Lúðvígs-
syni verzlunarm. Þingholtsstræti nr. 1.
TiL leigu óskast fyrir litla fjöl-
skyldu frá 1. okt 2 eða 3 herbergi.
Auk eldhúss og geymslupláss. Afgr.
vísar á.
4 herbergi og eldhús óskast til
leigu á góðum stað í bænum 1. okt.
Afgr. vísar á.
Til leigu 3 herbcrgja góð íbúð
með eldhúsi og geymslu; sömuleiðis
stofa móti sól, fyrir einhleypa, fov-
stofuinngangur; Hverfisgötu 51.
Góð 5 herbergja íbúð með
eldhúsi óskast til leigu. Tilboð mkt:
G ó ð í b ú ð, sendist í skrifstofu ísaf.
Eitt herbcrgi í miðbænutn
með húsgögnum óskast. til leicu nú
þegar. ). P. T. Brydes-verzluu ávísar.
Til leigu frá 1. okt 3 herbergi
ásamt eldhúsi og geyntsluplassi. Uppl.
í verzl Lindargötu 7.
Trésmíði. Þeir sem vtlja taka
að sér að innrétta til íbúðar hús og
ÞyggUgeymsfi'hús^núi sér til Magnús-
ar Steindórssonar, Lindargötu 8 B fyr-
ir 24. þ. m.
Ungur kveuinaður óskar að
fá vist 1. október, helzt sent ráðs-
kona á léttu heimili; en hún hefir
ársgamalt barn með sér. — Eyvindur
Eyvindsson, Vitastíg 9, vísar á.
Hér með vottum viS okkar inniiegast hjart-
ans þakklæti öllum þeim, sem hciðruðu út-
för móður og tengdamóður okkar, Karitasar
Guðmundsdóttur. — Fyrir hönd barna og
tengdabarna.
Rvík. — Hverfisgötu 47.
Guðmundur J. Diðriksson.
Sólvélar. Mikilsverðum uppgötvun-
um fleygir fram með hverju
árinu, sem líður. Nú er mannkynið
í þann veginn að ná tökum á loftinu
og gera sér það undirgefið. En margt
er ófundið enn, sem betur fer. Vís-
indamaður einn enskur hefir spáð um
það, hver næsta uppgötvun verði.
Eins og kunnugt er, hafa sólargeisl-
arnir að geyma heljarmikið hreyfiafl.
Ef vér gætum hagnýtt þá rækilega,
mundi sú uppgötvun verða oss að
ómetanlegtt gagni. Annars hefir sú
hugsun lengi vakað fyrir mannkyninu
að temja sólarhitann, og færa sér
hann í nyt. Þar var Archimedes
fyrstur maana. Hann fann upp safn-
eða brenniglerið og kveikti með því
í rómverskum húsum. Nú á tfmum
bjó Frakkinn Mouchot fyrstnr til
svonefnda sólvél. Hann lét setja
spegla marga á flöt einn spor-
öskjulagaðan, 60 ferhyrningsstikur á
stærð. Með þessu fyrirkomulagi náði
hann einu hestafli úr sólarhitanum á
brennidepilinn. Síðan Mouchot leið,
hafa menn endurbætt vélar þessar að
mörgu leyti, en þó á það enn langt
í land, að sólarmótorar verði eins aí-
mennir í sólsælum löndum og t. d.
vindmyllurnar eru nú á Hollandi.
Stærsta sólvél, sem enn er til, er í
South Pasadena í Kaliforníu. Hún
hefir það verk með höndum, að dæla
vatn upp úr vatnsbóli til þess að
vökva með landið. I vél þessari eru
1788 smáspeglar. Mótorinn hefir 10
hestöfl og dælir 11,000 potta af vatni
upp úr brunninum á mínútunni. Vél-
inni er auk þess fyrir komið eins og
teleskópnum. Hún getur elt sólina
á ferðinni um himinhvelið.
SfjórnarvE’daaugl. (ágrip)
Skuldum skal lýsa i
þrb. Jóns Jónssonar sagnfræðings og
þrb. Moritz W. Bierings skósmiðs fyrir
skiftaráðanda i Reykjavík innan 6 mánaða
frá 19. þ. mán.
Nauðungaruppboð
A hálflendnnni Svalvognm í Þingeyra-
hreppi i ísafjarðarsýslu 21. ág., 4. og 18.
sept.; á húseign nr. 46 A vjð Laugaveg
i Rvik 11., 18. og '26. septbr.
Ostar
beztir í verzlun
Bæjarskrá Rvíkur 1909
afar-fróðleg bók og alveg ómissandi hveijum borgara bæjarins, er til sölu
í bókverzlun ísafoldar og kostar að eins 1 krónu.
Blekbyttur
fást í bókverzlun Isafoldar.
Eiiiars Arnasonar.
POSTKORT
lituð og ólituð
fást í Bókverzlun ísafoldar.
10 a. bréfsefni
fást æfinlega
í bókverzlun Isafoldar.
Xaupið altaf
= SIRIUS =
allra ágætasta
Konsum og kgæta Yanillechocolade.
Japanskir skrautgripir
fást í bókverzlun Ísaíoldar. Einnig spil, póstkort mjög falleg o. m. m. fl.
sem skifta um heimili eru vinsamlega
beðnir að láta þess getið sem fyrst
i afgreiðslu blaðsins.
Noœgskonungasögur
fást í Bókverzlun ísafoldar.
Yiðskiftabækur
(Kontrabækur)
fást í Bókverzlun ísafoldar.
JÓN Í^Ó^ENF^ANZ, DÆfyNIÍ^
Lœkjargötu 12 B — Heima kl. 1—B dagl.
FRÁ DE FORENEDE BRYGGERIER
Jínusíu sRaíJríar ölíagunéir.
8KANDINAVI8K
Hxportkaffi-Hurrog'at
Kabenhnvn — J? ■ Hjorth & Co
STEROSKOF HEfi MTHDOffl
■■■■■ fæst í bókverzlun ísafoldar. mmmm
Lárus Fjeldsted
yfirréttarmálafærslumaður
Lækjargata 2
Heima kl. iol/a—I2V2 °g 4—5.
Hvar er hægt að skemta sér?
Með því að fara og sjá
sem er kominn og sýnir
leikfimi í Bárubúð laugard.21.
og sunnud. 22. þ. m. kl. 8 x/2.
Allir þurfa að sjá hann. Hrein list.
Ekkert -tál. Aðgöngumiðar fást frá
kl. 4—6 báða dagana í Bárubúð og
kosta: síétio.50, stand 0.3 5, börn 0.25.
Fiskedamper tilsalgs
S/s Niörd, klasse A 1 i Norsk Veritas
60 tons, gross 23 net., bygget af furru,
eg og pitchpine, i udmærket stand,
sælges billig om handel kan ske straks.
Maskinen compound med kondenser,
steam capstow, .fart 8 mil. Nærmere
ved O.R.sagförer Kristen Foye
eller Kristian Dekke
Bergen, Norge.
Skrifstofustörf
Stúlka sem kynst hefir ensku og
skrifstofustörfum getur fengið atvinnu
hjá G. Gíslason & Hay i Leith.
Eiginhandar umsókn og meðmæli
óskast send á skrifstofu þeirra í
Reykjavik.
Ritstjóri Klnar ir.jöi-leifssou.
ísafoldarprentsmiðja.