Ísafold - 02.10.1909, Page 3
I8AF0LD
259
Excelsior.
lngóljur, »bannlagaandstæðingurinn
ópólitískic, fárast ósköpin öll út af
nokkrum orðum í ræðu ráðgjafans um
daginn til Stórstúkunnar.
»Excelsior þ. e. hærra; hærra og
hærra (ber oss að halda) upp eftir
braut mannkærleika og sannrar sið-
menningarc. Þessi voru orð ráðgjafa.
En nú fer ritstj. Ingólfs að spreyta
sig á því, að skýra orðið excelsior —
og það í munni ráðgjafai
»Orð ráðgjafa þýða það, piltarl hróp-
ar ritstj. að nú ætlar hann hvorki meira
né minna, en banna ykkur að drekka
kaffi og te, að reykja tóbak — og
éta ket. Hvernig lizt ykkur á? Er
ekki kominn tími til að segja: hingað
og ekki lengraU
Hún er forkostuleg skýringin sú
arna. Ekki sizt rúsínan seinasta, sem
auðsjáanlega er hátrompið það, er al-
þjóð á að skjálfa fyrir: að nú eigi að
fara að banna fólkinu að borða dilka-
kjötið blessað og nautasteikina, að
nú eigi hangikjötið og saltkjötið,
rullupylsan og kæfan að fara að verða
forboðin vara!, að nú ætli stjórnin að
fara að ryðjast inn á verksvið dýra-
laknisins, sem hingað til hefir verið
einn um hituna þá, að banna fólkinu
að selja og éta kjöt, verið eini Kjöt-
bannherrann á Suðurlandi!
En ekki trúum vér því, að ritstj.
geti ýtt mörgum inn á sama matar-
hugsunarháttinn, sem hann sjálfur er
að veltast í.
Ekki trúum vér því, að hann fái
marga til að hoppa inn á þá fárán-
legu skýringu á orðum ráðgjafa, að
hann, er hann var að hvetja menn
inn á braut meiri siðmenningar og
mannkærleika, hafi átt við kaffibann,
tóbaksbann, tebann og — kjötbann!
Georg Grikkjakonungur
hefir lýst yfir því, að hann muni
leggja niður konungdóm, ef stjórnar-
skipun landsins verði í nokkru rofin.
Helzt mun það vera uppi á teningn-
um að rjúfa þingið og láta þjóðina
skera úr málum um hervarnarfrum-
varpið.
Af þingi Ðana.
Hervarnafrumvarpið samþykt
í landsþinginu.
Cbristensen og Holstein-Ledreborg
segja af sér?
Avarpsmötinum fjölgar.
í gær var loks hervarnafrumvarpið
samþykt i landsþinginu með 29 atkv.
gegn 25, með einhverjum lítilháttar
breytingum og ívilnunum frá Christen-
sens hálfu. Nú fer það aftur til fólks-
þingsins og þar verður það útkljáð í
snatri. Þingið kvað eiga að slíta á
föstudaginn. (Þetta er nú orðið, segir
símfrétt frá 25. þ. m.).
Það er fullyrt hér í blöðum, að
Christensen ætli að fara frá síðast í
október, þegar konungur er búinn að
staðfesta hervirkjafrumvarpið. Fyrst
var talað, að hann ætlaði að gera það
undir eins á laugardaginn, en því er
mótmælt nú af flokksblöðum hans;
en hitt kannast þau við að satt sé,
að hann muni láta af embætti í næsta
mánuði.
Jafnframt er fullyrt, að yfirráðgjafinn,
Holstein-Ledreborg greifi, muni segja
af sér og hverfa aftur heim á búgarð
sinn. Hann mun þykjast hafa lokið
því, sem hann beittist fyrir, er hann
hefir ráðið hervirkjamálinu til lykta,
þótt ekki sé það nema til bráðabirgða.
Að minsta kosti hafa jafnaðarmenn
og gjörbótamenn heitið stjórninni því
og hervarnavinum, að ekki skuli verða
friður í landinu á næstunni.
Undir ríkisdómskröfuna gegn J. C.
Christensen hafa nú ritað um 50,000
manna víðsvegar um land.
H
f Sápuhúsið er flutt
úr Austurstræti 6 í Austurstraeti 17
(búð Matth. kaupm. Matthíassonar).
í minningu þess fá þeir, sem á mánudag og þriðjudag næstkomandi
kaupa vörur fyrir 1 kr. í búðinni 1 pd. ókeypis af ágætri Mar-
seillesápu, sem annars kostar 22 aura.
H/f Sápuhúsið, 17 AustUFStræti 17.
Mikið ágætlega fara Fötin!
»Mikið ágætlega
fara þau, fötin, sem
þú hefir nú fengið
þér! Hver hefir
saumað þau?c —
»Saumað þau! Eg
kaupi allan þann
fatnað, sem eg þarf
með, tilbúinn í
Brauns verzlnn.
Brauns verzlun hef-
ir, eins og þú veizt,
íslands stærsta úrval
af alls konar tilbún-
um fatnaði, og þú
yrðir steinhissa á
þvi, hvað verðið er
lágt, ef þú kæmir
þar inn og fengir
að sjá hvað menn
fá þar fyrir pening-
anac. — »Já, þú
segir satt. Eg er
sjálfur orðinn sann-
færður um, að við
það að kaupa í
Irauns verzlun sparast margar krönur. Líttu á! Þessi frakkierlíka
Irá Brauns verzlun. Hugsaðu þér baral Eg sá þar verulega falleg og sterk
föt frá 16 kr., og hausts- og vetrarfrakka frá 15 kr. og upp eftirc.
Talsínii 58 Taisími 58
„Sitjið við þann eldinn sem bezt brennur/'
Timbur- og kolayerzlunin Reykjavik
selur fyrst um sinn kol heimflutt í bæinn fyrir
kr.3,20 -- þrjár krónur og tuttugu aura - kr.3,20
hvert skippund. Verðið er enn pá lagra sé keypt til tnuna í einu.
„Hitinn er á við hálfa gjöf.“
Talsíini 58 Talsími 58
Fataefni.
Vetrarfrakkaefni, efni og alt tilheyrandi i loðkápur, háls-
lin, regnkápur, göngustafir, enskar húfur o. fl. hjá
H. Andersen & Sön.
Sænskur konsúll
á Islandi.
Ragnar Lundborg ritstjóri ritar í
blaði sínu þ. 18. f. mán. grein um
verzlunarsamband milli Svíþjóðar og
íslands.
Hann tilfærir kafla úr bréfi frá Þór-
arni Túliniusi stórkaupm., þar sem
íann ræður Svíum til þess, að setja
sérstakan útsendan konsúl fyrir ísland,
:í Kaupmannahöfn, en ekki á íslandi.
Það líkar Lundborg ekki, heldur
ivetur hann Svía sterklega til þess,
að senda sérstakan, útlendan konsúl
consul missus) sinnar þjóðar mann hing-
að heim, eins og Norðmennséu að gera,
en fá sér varakonsúl i Kaupmannahöfn.
Bendir Lundborg á hr. Túliníus sem
íinn færasta mann til þess starfs.
»íslendingar flytja margt af þeim
vörum inn, sem Svíar flytja út, og
ættu því Svíar að geta fengið góðan
markað á Islandic — segir í grein-
inni.
Agætt væri, ef tillögur Lundborgs
í þessu efni yrðu teknar til greina;
því að það mundi áreiðanlega verða
gott og gagnlegt oss, að fá útsenda
konsúla úr sem flestum löndum.
Það mundi auka viðskifti milli ís-
lands og hlutaðeigandi landa — ekki
einungis í verzlun heldur og á öðr-
um sviðum.
Hingað til hafa aðallega um oss
leikið danskir straumar. Frá því á-
standi eigum vér og verðum vér að
komast. Oss á að vera hughaldið
um, að þekking okkar og viðskifti,
einnig utan Danmerkur, fari vaxandi,
og eins hitt, að aðrar þjóðir fái betri
og gleggri kynni af oss, en átt hefir
sér stað undanfarið.
Mikill stuðningur i þessum efnum
á það að verða oss, sem Norðmenn
eru að gera og Svíar væntanlega fara
að hugsa um: sem sé að senda sér-
stakan mann, er hafi þann starfa ein-
göngu með höndum, að vinna að
aukinni kynningu milli þjóðanna.
Einkennilegir uppboðsmnnir.
Uppboð var haldið nýlega hér í
bæ á ýmsum reitum eftir Sigurð Jóns-
son Jrá Fjóllum, er dó í sumar.
Meðal munanna var koffort eitt,
fult af stjórnmálabæklingum Heima-
stjórnarmanna. Það keypti Jónas
Jónsson rithöfundur. En þegar hann
fór að gæta að koffortinu, sá hann að
á það var málað pósthorn, og eru því
allar líkur til, að það muni vera eign
póststjórnarinnar.
Af öðru »gózic, sem selja átti, var
m. a. skjalastrangi einn mikill. Og
er uppboðshaldari fór að skygnast í,
hvað i stranganum væri, reyndist það
vera jrumrit aj Jylgiskjölum við mann-
talsbókarreikninga Vestur-Skajtajellssýslu
árið ipoy, þar sem skráð eru nöfn
kjósenda allra og efnahagsástæður o. s.
frv. En skjöl þessi eiga að vera i
stjórnarráðinu og hvergi annarsstaðar
og væri því ekki ófróðlegt að vlta
hvernig embættisskjöl stjórnarráðsins
hafa flækst inn í reitur Sig. heitins.
Veðrátta
vikuna fr& 26. sept. til 2. okt. 1009.
Kv. íf. £i. Ak. Gr. Sf. Þh.
Sunnd. 8,6 9,7 9,2 109 6,6 10,9 7,2
M&nud. 8,0 8,^ 6,6 5,9 4.0 4.0 62
Þriðjd. 9.2 2,6 11,7 8,4 1,0 8.0 8,C
Miðvd. 93 8,6 2.0 8,4 1,2 7.2 8.2
Fimtd. 4,8 8,0 2,8 1.2 7,6 2,2 4.f
Föstd. 2.6 2,9 1,6 0,B -1,5 1.8 1.2
Lftugd. 8,6 1,0 21 1,0 -1,6 1.7 9,1
= Reyk.jftvlk; íf. = Isftfjörður;
n = Blönduós; Ak. = Akureyri;
ör* ~ ®rÍDa8staöir; Sf. = SeyðÍ8fjörðnr ;
PH. = Þórshöfn I Færeyjum.
Seinustu fréttir.
Lárus var enn ójarinn í mál við
ísafold, er blaðið fór til prentunar.
Til kaups og abúðar í næst-
komandi fardögum (1910) fæst jcrðin
Ytri-Ásláksstaðir í Vatnsleysustrandar-
hreppi. Jörðin gefur af sér í meðal
grasári fóður fyrir 2 kýr, 60—80
kindur og nokkur hross. Henni fylgir
landrými mikið utan túns, góð fjöru
beit, útræði og næg vergögn. Enn-
fremur íbúðarhús úr timbri, 2 geymslu-
hús (annað heima við, hitt við sjóinn),
heyhlaða og fénaðarhús mörg. Um
kaupin skal semja við Guðm. Guð-
mundsson i Landakoti á Vatnsleysu-
strönd fyrir 30. nóv. þ. á.
Atvinna
til 14. maí við landvinnu og sjóferðir.
Talið strax við Jón Þórðarsou
caupm. í Reykjavík.
Fæði, húsnæði og þjónustu geta nokkrir menn fengið á Skóla- vörðustig 10.
Gærur eru keyptar í verzlun Jóns Þórðarsonar, sömuleiðis haustull; gær- unum er veitt móttaka i pakkhúsinu á Móakotslóð (gamla sláturhúsinu) og sömuleiðis heirna við verzlunina i Þing- íoltsstræti 1.
1—2 hestar verða teknir í fóð- ur nú þegar. Upplýsingar í prenl- smiðju isafoldar.
A Stýrimannastíg, 10 eru teknir menn í þjónustu. Ásamastað er sterkjað hálslín.
K.vÍ8tstofa og svefnherbergi til eigu í Hverfisgötu 6.
Nokkur einstök herbergi til leigu í Bergstaðastræti 45, fyrir carla og konur.
Ódýrt fæði fæst á Laufásveg 4. Eirmig herbergi fyrir einhleypa.
t»eir, sem þurfa að geyma slátur- fé, og vilja láta fara vel um það, geta l:engið það geymt i Geldinganesi, sem er afgirt. Hægt að komast að góð- um samningum, ef menn snúa sér til caupm. Jóns Þórðarsonar Þingholts- stræti 1.
Tunnur undir kjöt og slátur, af mismunandi stærðum, fást í verzlun Jóns Þórðarsonar.
Munið eftir að núna í haust- rigningunum fæst hvergi betri né ódýr- ari ollujatnaður en í verzlun Jóns Þórðarsonar. Waterproofskápur fást með stórum afslætti.
Grá hryssa hefir tapast, (mark: gagnbitað hægra). Finnandi sendi eða tilkynni síra Þorsteini Briem, Görðum.
Peningabudda með 14 kr. og 90 aurum i tapaðist frá apótekinu að Duus-búð. Skilist í afgreiðslu ísaf.
Husnæði, fæði og þjónusta fæst í Þingholtsstræti 8 (uppi).
Stofa til leigu handa einhleypum reglumanni. Semja má við Sigurð Jónsson lögregluþjón. Ennfr. rúm- stæði ódýrt hjá sama.
2 herbergi til leigu á Stýri- mannastíg 8.
2 áf0st herbergi móti suðri, húsgagnalaus, bæði með forstofuinn- gangi, fást leigð strax í JJergstaða- stræti 9 A (niðri). — Jón ÓJeigsson.
I Þingholtsstrœti 24 fæst fæði eins og að undanförnu; einnig fæst að æfa sig þar á Piano.
Lítið brúkað Orgel óskast til kaups. Afgreiðslan vísar á.
Til sölu ný kommóða fín, rúm- stæði og borð með góðu verði Lauga- veg 22.
Kensla. Undirrituð veitir stúlk- um kenslu í söng og guitarspili. Kristín Benediktsdóttir Pósthússtr. 15.
Til leigu stofa mót sól fyrir einhleypa, Hverfisgötu 51.
Stofa með forstofuinngangi til leigu, Hverfisgötu 4 f.
Gott fæði fæstfrá 1. okt. í Þing- holtstræti 18 fyrir að eins kr. 25 um mánuðinn. Einnig húsnæði á sama stað.
Vinnukona, vönduð og þrifin, óskast vetrarlangt á fáment heimili í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar Laufásveg 15 Rvík.
Ullarkambar, er seldir voru á uppboði hjá Birni Kristjánssyni kaup- manni siðastliðið haust, eru keyptir ajarháu verði (ef þeir eru óbrúkaðir' á Lindargötu 8 A.
Matsöluhúsið nú Hverfisg. 4D selur eins og áður gott fæði ódýrara en annarsstaðar.
Rófur og
kartöflur
eru seldar þessa daga i Gróðrarstöð-
inni.
NB. Þeir, sem pantað hafa gefi sig
fram sem fyrst.
Kenslu
í söng, piano- og orgelspili tek eg að
mér, eins og að undanförnu.
Valgerðnr Lárusdóttir,
Hofi við Reykjavík.
Muniö þaö,
að miðvikudaginn 6. þ. m.
kl. 11 árd. verður haldið stórt
uppboð
í
Li verpool.
Seld verða alls konar húsgögn, t. d.
Plyds-sofl og Stólar. Divanborð.
Kon8olspegilI,Skápur, Chaiselong.
Hœgindastóli. BorðstofuborO m. ra.
Tvöfalt skrifborð. Ofnar.
Auk þess, sjófatnaður, álna-
vara m. m.
Hvítabandið heldur fund mánu-
daginn 4. okt. á venjul. stað og tíma.
iriríðandi að allar félagskonur mæti.
Stjóruiu.
Nfit tatir
i „LiYerpool"
amerísk »Epli«,
Appelsinur, Vínber,
Citronur, — Melonur, —
(julrófur, Kartöflur, Laukur
fæst nýtt
i „LiverpooT1.
Samskotura
til sjálfsafneitunarviku Hjálpræðishers-
ins í ár verður byrjað að safna ein-
hvern hinna næstu daga.
Umboðsmenn Hjálpræðishersins munu
í þeim erindum koma á hvert einasta
heimili í bænum.
Góðir menn eru vinsamlega beðnir
að láta eitthvað af hendi rakna mál-
efni voru til stuðnings.
Reykjavik 2. okt. 1909.
Hj. Hausen,
leiðtogi Hjálpræðishersins á íslandi,