Ísafold - 23.12.1909, Blaðsíða 2

Ísafold - 23.12.1909, Blaðsíða 2
338 ISAFOLD Nýtt falsskeyti tii dðnsku mðmmu. Höfuðið bitið af allri skömm. Það var allmikil nýlunda, er höíuð- tíðindalindin á Norðurlöndum, Ritzaus tiðindaskrifstofa í Khöfn, tók e k k i hér um daginn simskeyti frá tíðinda- manni sinum(?) hér í Reykjavík um þetta, sem gerðist 28. nóv. þ. á., at- förina frægu að ráðgjafanum, þessa, sem hér varð hraklegasta sneypuför til handa þeim, er fyrir henni réðu, en mestu fagnaðaratlot við ráðgjafa. Kunnugir munu fara nærri um, að þar muni sannleiksástin(l) hafa náð sér almennilega niðri, úr því að skeytið var ekki einu sinni hirt eða birt í þeirri stofnun. Þeir vita, að alla tíð frá því er ráð gjafaskiftin urðu i vor hefir verið lát- laust í hana ausið úr pyttinum hérna, í hinum herbúðunum, sama leginum, útvöldum »skáldskap« um nýja ráð- gjafann og alt sem hann kemur nærri, sem sé: ómenguðu níði hér um bil. Það er engu líkara en að fengið hefði verið allra-háfleygasta »skáldið« í þeirra liði til þeirrar iðju. Stofnunin, Ritzaus Bureau, á að vera áreiðanlegasta og missagnaminsta tiðindalindin á Norðurlöndum, svo sem fyr segir, og skal sízt neitt af henni dregið yfirleitt. En un; oss hér á hólmanum, sem er svo nauðalitill í slíkra stórvelda augum, mun við eiga um hana hið fornkveðna: Sú vitleysa er ekki til, er til vor kemur, íslendinga, sem eigi sé hægt að teija Dönum trú um. Þeir virðast hafa rent niður öllum þeim fjarstæðum og bábiljum, öllu því níði og öllum þeim rógi, er þeim hefir verið h j á 1 p a ð um á þá lund, sem nú var mælt. Fréttaskeytið, sem hér segir frá og Ritzau hafði þó ekki fulla lyst á, er svo látandi: * Ovationerne for Ministeren, som Re- geringskontoret(l) omtaler, indskrcenker sig til Spetakler Jra en Samling Gade- drenge, som havde samlet sig paa Mi- nisterens Trapper Jor at overdöve Taleren paa Torvet. Þetta er á íslenzku (ieturbreyl. eftir ritstj.): Fagnaðaratlotin við ráðgjafann, sem stjórnarskrifstofan(?) talar um, voru ekki annað en ólœti úr gðtu- strákahóp, sem höfðu safnast saman á dyrariðinu hjá ráðgjafanum, til þess að taka yfir róm ræðu- mannsins á torginu. Þarna komast þeir að, en ekki lengra, mun mega gera ráð fyrir úr þessu. Þetta, um ræðumanninn á torginu, sem götustrákarnir við dyrnar hjá ráðgjafanum hafi ætlað að bæla niður, kæfa það, sem hann sagði, láta það ekki heyrast — það er harla forkostu- legt. Eftir reglunni, að alt má segja Dön- um, gerir skeytið ráð fyrir, að hægast verði þeim að hugsa sér ráðgjafabú- staðinn við höfuðtorg bæjarins, og því hafi það verið þjóðráð af götu- strákunum, að safnast þar saman með ópi og óhljóðum og reyna þetta: að láta ekki heyra til ræðumannsl Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að það vissi sama sem öll Reykjavík, hvað gerðist þenna sunnu- dag, 28. nóv., og aðdragandann að því. Almenningur vissi um tilraunirnar undanfarna daga að koma á almenn- um mótmælafundi út af bankastjórnar- afsetningunni, — hve herfilega þær fóru út um þúfur. Og svo loks þetta, að ekki fyr en undir morgun sunnudagsnóttina (kl. 4) tókst forsprökkunum loks að etja veslings Knúti út á foraðið, láta hann krönglast upp á pípnahlaðann á Lækjar- torgi og garga þar upp úr sér ræðu- stúf, sem ónefndur dánumaður auð- sjáanlega hafði í hann látið, fyrir á að gizka 70—80 svo nefndum »fund- armönnum*, en konum og börnum og ýmsum fleiri standandi álengdar og horfandi á þetta eins og einhvern skripaleik, án þess að heyra nokkurn skapaðan hlut né vita, hvað var urn að vera. Og þá »herförina« suður Tjarnar- brekku með »drenginn« í fararbroddi, hverfandi þar með alt sitt lið inn í mannþyrpinguna, sem fyrir var suður við ráðgjafabústaðinn, og geta engan skapaðan hlut gert annað en rekið upp skræk við og við, sem átti að vera óbænir yfir ráðgjafanum, en kafn- aði alveg innan um fagnaðaróp mik- ils meiri hluta þeirra, er létu málið til sín taka. Liðsmunur að ráðvandra manna dómi viðstaddra einhverstaðar milii 5 móti t eða 10 móti 1, sem fleiri voru ráðgjafa megin en hinna, og það sízt lakara mannval, þ ó a ð sjálfur »húsbóndinn« og hans þægustu fylgiliðar (j. Ól. og Múla-Jón) væru hinna megin, þ. e. minnihlutans. Og loks hreystileg framganga Zölln- ers-agentsins, sem gera skyldi grein fyrii erindinu: honum margboðið inn, og hjálpað til að komast inn, en fer ekki, er til kemur, og fær svo bágt á eftir hjá »húsbóndanum«, og biður loks lögreglustjóra fyrir skjal til af- hendingar, svo greiðlegasem það tókst, og öllu hinu hlægilega bauki daginn eftir að koma því af sér, í stað þess að láta aðra eins markleysu ganga rétta boðleið: alvanalega póstbréfaleið. Því líkt endemi! Því lík lokleysa! Því lík sneypuför! Og þessu öllu, öllum þessum óför- um, hyggja þeir félagar sig munu geta leynt fyrir »d ö n s k u m ö m m u« og láta hana ímynda sér að alt annað hafi gerst en var, með því að láta einhvern ófeimnasta bófann, er þeir gátu í náð, síma henni fyrgreint skeyti! Hvenær skyldu þessir piltar vita sig hafa bitið höfuðið af allri skömm? Haukur. Vedrátta vikuna frá 12. des. til 18. des. 1909. Rv. íf. Bl. Ak. Gr. Sf. Þh. Sunnd. 0,8 0,0 -1.0 -4,0 -4,f -0,2 3,1 Mánud. 4.8 8,0 6,0 7.0 2.0 7,0 8,8 J*ri<Vjd. 7.4 58 9.2 10.8 7.0 133 7,0 Miðvd 8.1 2.6 6,2 8,0 9 2 7,7 Fimtd. 1,0 -2,2 -0,1 -08 -4.0 3,4 6,8 Föstd. —6.0 —4.7 —6,5 -5,0 -10 5 —6,8 —1,4 Lans:d. -9.0 —9.0 -9.9 -9.0 -12,0 -A8 -7,8 Rv. == Reykjavík ; íf. = Isafjörður; Bl. = Blönduós; Ak. = Akure.yri; Gr. = Grimsstaöir; Sf. = Seyöisfjöröur; Þh. »= Þórshöín i Færeyjum. Um verzlunarsamband milli Svíþjóðar og íslands hef- ir hinn ágæti talsmaður vor í Upp- sölum, dr. Ragnar Lundborg ritstjóri, ritað mikið laglegan bækling og fróð- legan. Höf. ber þar fyrst saman viðskifta- veltuna íslands og annarra landa þeirra í milli annars vegar og Svíþjóðar hins vegar við önnur lönd 20 ára tímabil- ið 1887—1907, og sýnir fram á, að vöruútflutningur frá Sviþjóð hefir lítið meira en tvöfaldast og aðflutningur orðið 2l/z sinnum stærri; en á íslandi hafa þær sömu tölur nær f i m f a 1 d- a s t — hækkað úr rúmum 3 og tæp- um 4 milj. kr. upp í 14^/2 milj. og 20 milj. Hann segir, að útflutning- ur á innlendum varningi hafi 1907 verið tiltölulega um 87 af hdr. stærri en Svíþjóðar og innfl. um 97 af hdr. umfram það er gerðist þar: voru á ís- iandi 181 kr. á mann hinar útfluttu móts við 97 kr. á mann í Svíþjóð og innfluttar 250 kr. á mann hér móts við 127 kr. f Sviþjóð. Af vörum þeim, er ísland fær frá Svíþjóð kveður langmest að trjávör- um — þær námu rúmum 88.000 af rúmum 300.000 alls árið 1907. En ísl. vörui, er til Svíþjóðar fara, eru nær eingöngu fiskur, sem sé fyrir 1605400 kr. af alls 1608000. Lundborg blöskrar, að af hinum miklu vörum, sem íslendingar hafi að miðla öðrum þjóðum, skuli ekki meira en sem svarar tæpum ^/so hluta eða ekki fullri Vs milj. flytjast til Svíþjóðar; en aðfl. vörur til Svíþjóðar eru alls frá öðrum löndum um 682 milj. kr. Höf. mælir mjög fastlega með þvi, að Svíar komi sér upp heimansend- um konsúl á Islandi, eins og Norð- menn hafi gert og Frakkar þar áður. Telur það vera stórmikils vert til að auka viðskifti Svía við ísland, er hann vill láta róa að öllum árum. Jólabókin. 1. Útg. Árni Jóhannsson og Theodór Árnason. önten- berg. Rvlk 1909. Að líkindum fyrsta »jólabókin« á islenzku, að fráskildum »jólablöð- um« einstöku blaða og tímarita. Kver þetta, 47 bls., er sjálfstæð jólabók, með »jólaefni«, d: efni, er vekur djúpar og alvarlegar hugsanir í sam- ræmi við jólin og jólsendurminning- arnar, sem »eru mörgum hinar allra kærustu, og Jólabókin á að stuðla að því að varðveita þær og auðga«, segja útg. í formálanum. — Tilraun þeirra með bók þessari er því lofsverð mjög, og takmarkið fagurt. Hér á landi er því miður ekki gert mikið i þá átt að vekja jólahugsun og veita jóla- gleði. Enda er jólagleði fjöldans fólg- in í mat og drykk einum og margra i ofáti og ofdrykkju, veizlum, gleði og glaum, er svæfir hug og hjarta, en veitir hvorki gleði né frið. Og þó er enginn tími ársins eins vel fallinn til að vekja djúpar hugsanir og hreyfingar i mannshjarta og einmitt um jólin, lyfta huganum yfir daglegt starf og strið á þær brautir, er manns- andinn þráir og verður að fara, ef sæll á að verða. Erlendis er mesti urmull af jóla- bókum á ári hverju, stórum og smá- um, skrautlegum með fjölda mynda og fjölbreyttu efni bæði fyrir börn og unglinga og fullorðna. Fjöldi þeirra eru algerð skrautrit og hin bezta jóla- gjöf, I jólabók þeirra feðganna A. J. og Th. A. eru að eins tvær sögur eða réttara jólaajintýri, og bæði þýdd ; eru þau eftir tvonafnkunna höfunda danska, Ingeborg Marie Sick og Carl Ewald, og eru bæði gullfalleg og auðug af diúpum og fögrum hugsunum, óvaua- lega fögrum hér á landi, svo eg býst jafnvel við, að margir njóti þeirra eigi til fulls, einmitt þess vegna. Eru þau þó ljós og skýr. Það' er fagur og djúpsær skáldskapur í báðum, og sterk- ur jólablær. Glögg og skilningsrík lýsing á þrá mannlegs hjarta eftir friði og sælu, er heimurinn eigi getur veitt. Fyrra æfintýrið, Jólastjarna Edessu- borgar, er skrautbúið mjög, orðskrúð og hugsjónafegurð mikil, sem aust- rænu æfintýri sæmir, og er því þýð- ingin fyrirtaks góð, hvern veg sem á hana er litið. — Eg hefi margt fag- urt jólaæfintýri lesið um dagana, og þó var þetta æfintýri mér meiri and- leg nautn en fjöldamörg önnur, — ef til vill af því, að búningurinn var ís- lenzkur. Hitt æfintýrið Jólin eftir Ewald er hugðnæmt mjög og þrungið af djúpri kristilegri hugsun — þó hún komi ef til vill eigi heim við skoðanir trú- bragba.flokkanna. En »kentiing« æfin- týrsins er fögur og heilbrigð og eftir- breytnisverð fyrir alla trúbragðaflokka: Allir leita að lokum »meistarans«, jólagestsins ókunna. Allir prá hann og verða að finna hann aftur. í þeirri prá og þeirri leit mætast allir og verða jafningjar. Biskupinn (þjóð- kirkjan), presturinn (heimatrúboðið), lögregluþjónninn, drykkjumannsræfill- inn, hefðarkonan, sem var þjófur o. m. fl. Þá höfðu allar kirkjukiukkur sameginlegan boðskap að færa þeim öllum, hvers flokks sem þeir voru. ------— Það er kristindómur!----------- Þetta mun nú annars þykja alllang- ur ritdómur um »litla« bók. En þó vildi eg, að eg gæti haft hann enn lengri, því að eg hefi fundið fegurra og meira efni i þessum tveim æfin- týrum, heldur en í mörgum þykkum skáldsögum og ritverkum. Helgi Valtýsson. Mlspreutast i fáeinnm eintölum af þessu blaði, i öðrnm dálk 12. línu n. — stjórnarandstæðinga, á að vera andstæðing- ana. Hátíðamessurnar. Sd breyting verð- nr á hátiðamessunum i frikirkjunni, að i stað frikirkjuprests prédikar á aðfangadags- kvöld cand. theol. Brynjólfur Magn- ú s s 0 n. Utanáskrift viOskiftaráðunauts- ins er Jungfernstieg 25. Hambnrg, e k k i Jnngferm — eins og misprentast hafði í síðasta blaði. Fundnr Hafnardeildar Bókmentafélagsins. Ársfundur deildarinnar var haldinn mánudaginn 29. nóvbr. 1909. For seti lagði fram endurskoðaðan reikn- ing fyrir árið 1908. Tekjur deildar- innar höfðu verið á árinu kr. 6522 90, útgjöld kr. 5565.72. í sjóði voru við árslok kr. 23477.04. Reikning- urinn var samþyktur umræðulaust. Þá skýrði forseti frá bókaútgáfu fé- lagsins á liðna árinu. Reykjavíkur- deildin hefði gefið út Skírnir 82 ár, Islenzkt fornbréfasafn VIII. 3 og Sýslumannaæfir Boga Benediktssonar III. 4 Hafnardeildin hafði gefið út Lýsingu íslands eftir Þorv. Thorodd- sen I. 2, Safn til_ sögu íslands IV. 2 og Æfisögu Jóns Ólafssonar Indiafara I. í ár væri gefið út af Reykjavíkurdeild- inni: Skírnir 83. ár, ísl. fornbréfa- safn IX. 1 og Sýslumannaæfir Boga Benediktssonar IV. 1, af Hafnardeild- inni: Lýsing íslands eftir Þorv. Thor- oddsen II. 1, Safn til sögu íslands IV. 3, Æfisaga Jóns Ólafssonar India- fara II. og Islendingasaga eftir B. Th. Melsted II. 3. Bókaútgáfan hefði verið mun meiri en undanfarin ár. Næsta ár yrðu hér í deildinni engin ný rit gefin út, en einungis framhald áður samþyktra rita. Þá skýrði forseti frá ástæðum fyrir fresti ársfundar. Hann gat þess, að stjórnin hefði sent í haust fyrirspurn til félaga í deildinni viðvíkjandi heim- flutningsmálinu. Meiri hluti deildar- manna hefði verið heimflutningi mót- fallinn, í Ameríku hefðu 21 verið með heimflutningi, 22 á móti, í Danmörku 10 með, 25 móti, í öðrum löndum 1 með, 21 móti,_ alls 32 með, 68 móti. Félagið Argalinn í Ameríku hafði sent skriflega fundarályktun gegn heimflutningi, sem forseti las upp. Þá fór fram stjórnarkosning. Stjórn- in var endurkosin: Forseti próf. Þorvaldur Thoroddsen, féhirðir GIsli Brynjólfsson læknir, skrifari Sigfús Blöndal undirbókavörður við konungl. bókasafnið, bókavörður Pétur Bogason stud. med. & chir. í varastjórn voru kosnir: Varaforseti mag. Bogi Th. Melsted, varaféhirðir Þór. E. Tulinius stórkaupmaður, varaskrifari Stefán G. Stefánsson cand. jur. og varabóka- vörður Vernharður Þorsteinsson stud. mag. Endurskoðunarmenn voru kosnir þeir Stefán Jónsson stud. med. & chir. og Jónas Einarsson stud. polit. — 30 nýir félagar voru teknir inn á fund- inum. Ofanritaða skýrslu hefir ísafold fengið senda frá stjórn Hafnardeildar- innar. En úr privatbréfum frá Höfn er sagt svo frá kosningunum, að Þor- valdur prófessor Thoroddsen hafi beitt allmegnri hlutdrægni. Hann hafði ó- gilt einn atkvæðaseðil fyrir þær sakir, að ekki stóð nafn kjósanda aftan á honum. En það ákvæði var ekki gert heyrinkunnugt fyrr en nefndur kjósandi var genginn af fundi. Því næst leyfði forseti einum manni, er á fundinn kom, eftir að atkvæðaseðlar voru hirtir, að kjósa, en neitaði öðr- um að kjósa, er kom ofboð lítið seinna, en þó, áður en atkvæði voru upplesin. En, segir í bréfunum, báðir mennirnir, sem ekki fengu að njóta atkvæðis síns, veittu Gísla Sveinssyni fylgi til forsetakosningar, en sá eini, er fekk það, Þorvaldi prófessor. Með þessari aðferð náði Þorvaldur jafnmörgum atkvæðum og Gísli og úrskurðaði þá, að hann sjálfur \ æri kosinu. En fylgismenn Gísla segja, að hann hefði, ef hlutdrægnislaust hefði verið farið í sakirnar, haft 2 atkvæðum fleiri en Þorv. og því að réttu lagi átt að verða forseti félags- ins. Skræiingjafélagið. Stjórn Skrælingjafélagsins sendi 21. þ. mán. svofelt símskeyti til ísafoldar: Fundarályktun íslenzkra stúdenta röng og villandi. Nákvæm skýrsla seinna. Stjórn Atlantseyjafélags. Þess ber að geta, að fundarályktun sú, er ísaf. birti í seinasta blaði var frá almennum íslendingafundi, en ekki stúdentafundi. Ef til vill á símskeytið því við einhverja ályktun, sem ekki hefir borist hingað enn. — Vér skulum að öðru leyti eng- an dóm leggja á þetta mál. íslend- ingar í Höfn gera óefað hreint fyrir sínum dyrum, þegar þar að kemur. Svar til blaðsins Iugólfs. Úr því Ingólfur sýnist ekki ætla að halda því til streitu, að eg hafi verið samtímis á tveim stöðum suður við ráðgjafahúsið þ. 28. f. m., meðan mannfjöldinn vnr þnr, þá tel eg mér nægja það svar til blaðsins, að birta nokkrar yfirlýsingar um það, sem fram fór á tröppunum og mér kemur við, frá mönnum, sem voru þir allan tím- ann við handriðið og tröppurnar og voru sjónar og heyrnarvottar að öllu, sem fór fram, frá því er fólkið kom þangað og til þess, er það fór þaðan aftur. Mér hefir heldur verið ráðið frá, að eiga þessar yfirlýsingar undir ráð- vendni ritstjóra Ingólfs og bið eg því Isafold fyrir þær: Við undirritaðir vorum staddir við ráð- hciraliúsið þ. 28. uóv. og stóðum þar við tröppurnar allan þann tíma, sem mann- fjöldinn var þar i kring og sknlum við lýsa yfir því, að við heyrðum Þorstein Erlings- sou hvorki tala þar þan orð, sem blaðið Ingólfur hermir eftir bonum, né neitt ann- að 1 þá átt. Við heyrðum það eitt, að hann mæltist til, að fá að komast með barn sitt nr þrönginni. Reykjavik, 15, desember 1909. Guðmundur Jakobsson. Sigurj. Péturss. P. J. Torfason. Jón Thorarensen. Eg undirritaður var staddur við ráð- herrahúsið, á tröppunum þar eða við þær, allan þann tíma, sem mannsöfnuðurinn var þar þ. 28. f. m. Eg varð var við það, er Þorsteinn Erlingsson gekk npp tröppnrnar, og var það eftir, að mannfjöldinn hafði margsinnÍ8 fagnað ráðherra Birni Jónssyni með húrrahrópnm. — Eg heyrði Þorstein Erlingsson aldrei segja þau orð, sem blaðið Ingólfur hermir upp á hann þ. 9. þ. m., né neitt i þá átt, né neinn annan fara bónarveg að mönaum um, að fagna ráð- berranum. Reykjavik, 15 desember 1909. Jakob Möller, stud. med. Út af ummælum bl. Ingólfs um Þorstein Erlingsson, finn sg ástæðu til að votta það, að eg var sjónarvottur að þvi, þegar Þoríteinn Erliugsson gekk inn til ráðgjafa úr mannþrönginni 28. f. m., og var það eftir að ráðgjafi var tvibúinn að koma út á svalirnar og tala til fólksins og bjóða því tvivegis góða nótt. Reykjavik, 20. desember 1909. Ben. S. Þórarinsson. Rvik 21. desember 1909. Þorsteinn Erlingsson. Nýr íiðluleikari. í veitingasalinn í Hótel Island er nýkominn fiðluleikari erlendur h r. Oskar Johansen. Hann er bú- inn að leika þar nokkur kvöld og hefir jafnan verið húsfyllir þar síðan — og meira en það. Maður þessi er og miklu betur að sér í þessari list, en vér eigum að venjast hér á landi og því margfaldlega þess verður, að á hann sé hlustað'. Oss brestur sér- þekkingu til þess að dæma með rök- um um listfengi hans, getum að eins svona frá »almennu sjónarmiði« sagt, að það nr mikil unun að hlusta á hann. Máske Linbúi(!) vilji leiða oss í allan sannleika um þessi efni ? Jungfrú Kristrún Hallgrímsson leik- ur undir fiðluspilinu — smekkvíslega, eins og hennar var von og vísa. Hr. Oskar Johansen býður kensiu í fiðluspili. — Það ættu bæjarbúar að nota sér. Sakamálsrannsókn er nýhöfðuð gegn manni á Akur- eyri, Birni Líndal málaflutningsmanni og ritstjóra. Hann hafði verið sett- ur þar sýslumaður um tíma sumarið 1907, meðan sýslum. Guðl. Guðmunds- son var á þingi, farið ferðir til að eiga við landhelgisseka Norðmenn m. m. og látið borga sér býsnavel úr lands- sjóði, eftir fylgiskjalalausum reikningi. Nú hefir komið kæra fiá formanni á gufuskipi (Perwie), er flutti hann og menn með honum eitthvað út Eyja- fjörð og hann lézt hafa greitt vel fyrir, bæði fargjald og annað, um að sá reikningur muni vera til búinn alveg út i loftið; hann hafi verið fluttur ókeypis og þeir félagar. Og orð leikur á, að eitthvað muni hafa verið fleira miður hreint í þeim reikningum, sem kallað er.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.