Ísafold - 10.02.1910, Side 2

Ísafold - 10.02.1910, Side 2
30 ISAFOLD ir fyrir meðferð þess á sambandsmál- inu á síðasta þingic Samþykt með 418 atkv. gegn 17. Loks talaði ráðgjafi nokkur orð. Kvaðst ekki sjá ástæðu til að ræða dagskrána að þessu sinni, þar eð búið væri að greiða atkvæði um málin, en kvaðst mundu taka tii máls á næsta fundi. Ráðgjafi þakkaði að endingu fundinum traustsyfirlýsinguna og aðr- ar málaundirtektir. Fundurinn lauk með því að þing- hreimur laust upp ferföldu, íslenzku htirra fyrir ráðgjafa. Mikill rómur var gerður að máli allra fundarmanna, nema Lögrétturit- stjórans. Annar fundur mánudag 7. febr. fyrir hinn hluta bœjarins. Fyrstur tók til máls ráðgjafi Bj'örn Jónsson. Ræða hans stóð yfir eina klukkustund og var á meðan stein- hljóð í salnum. Ræða hans er prent- uð á öðrum stað í blaðinu. Mikill rómur var gerður að máli ráðgjafa. Jón Þórðarson kaupm. talaði næstur. Hann flutti ráðgjafa þakkir fyrir af- skifti hans af bindindismálinu yfirleitt — og nú síðast aðflutningsbanninu. Hann vítti harðlega þá svívirðu, er einstakir óvandaðir minnihlutamenn vinna þjóð vorri með einlægum rógburði um æðsta mann landsins og aðra góða menn þjóðarinnar úr meirihlutanum. — Vítti framkomu minnihlutans í bankamálinu. Að lokum kom hann fram með traustsyfirlýsingu til ráðgj. Þá talað Þórður Sveinsson geðveikra- læknir. Hann taldi það tákn siðspill- ingar, að þessi bær skyldi kosið hafa Tryggva Gunnarsson í bæjarstjórn í þetta sinn. Flokkurinn hefði ekki viljað notast við hann við síðustu alþingiskosning- ar, ekki heldur bæjarstjórnarkosning- amar seinustu. En nú — nú væri hann fyrstur á blaði. Hvað væri fram komið síðan ? Tryggvi hefði elzt og væri nú kominn á þau ár, er hvorki vitsmunir né starfsþrek ykist — og vitnast hefði, að stjórn Tryggva á bankanum hafi bakað bankanum, sem svarar 25000 króna tjóni á hverju ári með- an hann var við hann. Það hefði vitnast, að Trgggvi hefði bakað þess- arri þjóðstofnun tjón, sem svaraði 5 kr. nefskatti á hvert mannsbarn á landinu. Þetta væri framkomið síðan! Það gæti verið álitamál, hversu hart bæri að refsa fyrir svona aðgerðir — en að heiðra manninn fyrir þær — það væri óafmáanlegur sið- spillingarblettur. Nú voru bornar upp sömu tillög- umar, sem á fyrsta fundinum. Traustsyfirlýsing til ráðgjafa var sam- þykt með 382 atkv. gegn 4. Mótmœlin gegn aukaþingi með 379 gegn 8. Þakkir tii alþingis 1909 fyrir með- ferð sambandsmálsins með 380 atkv. gegn 5. Nokkrir menn greiddu ekki atkvæði. Þá tók til máls alþingismaður dr. Jón Þorkelsson. Skýrði hann frá, að þann 6. þ. m. hefði félagið Fram samþykt vantrausts- yfirlýsingu til þingmanna Reykjavíkur. — Kvað sig ekki undra það, þar sem hann hefði ekki getað búist við að fá traustsyfirlýsingu frá pólitískum andstæðingum sínum. Skýrði hann frá ástæðunum til þess, að meirihl. hefði boðaðtil almennra kjósendafunda. Því næst las Þórður Sveinsson upp mótmæli úr Hraunhreppi í Mýrasýslu, sem prentuð eru annarsstaðar í blað- inu. Þá kom fram svohljóðandi tillaga: Fundurinn lýsir fullu trausti á þing- mönnum Reykjavíkurbæjar, dr. lóni Þorkelssyni og Magnúsi Blöndahl. Hún var samþykt með öllum greidd- um atkvæðum. Þeir ráðgjafi Björn Jónsson og alþ.m. Magnús Blöndahl þökkuðu fyrir traustsyfirlýsingamar. Þorst. Gíslason var enn á þessum fundi og reiddist svo mjög fundar- samþyktunum, að hann mddist fram og tók að mótmæla. Bað þá enn jakob Möller fundarmenn minnast þess, að Þ. G. væri sýnilegt tákn þess, að fundurinn væri ekki flokks- fundur. Lauk svo fundinum með margföld- um húrrahrópum fyrir ráðgjafa og al- þingismönnunum. Þriðji fundur þriðjud. 8. febr. fyrir vesturbæinn og miðbæinn. Ráðgjafi talaði fyrstur. Ræða hans hneig að sama efni og á öðrum fundinum og vísum vér til þeirrar skýrslu. Þórður læknir Sveinsson mintist á botnvörpuveiðalöggjöfina í sambandi við samning þann, sem fyrv. ráðh. H. Hafstein hefði á sínum tíma gjört við fjárlaganefnd ríkisþings Dana um, að 2/3 hlutar botnvörpusekta skyldu renna i ríkissjóð Dana. Vítti hann harðlega það gjörræði H. Haf- steins og þann ódrengskap, að hann skyldi hafa leynt þjóð og þing þeim samningi og reynt með því að gera hann að fótakefli fyrir næstu stjórn á eftir. — Vítti hann og rógburð manna úr minnihlutanum í eyru Dana. — Jón kaupm. Þórðarsou mintist á »Thore«-samninginn. Kvað hann samn- inginn mjög svo hagfeldan og mikla samgöngubót, bæði meðfram strönd- um íslands og landa í milli. — Enn drap hann á þær miklu bætur, er Thore- félagið nú væri að koma á innflutn- ing á fiski til Spánar (sjá grein um það annars staðar í blaðinu). — Dr. Jón Þorkelsson vítti lögleysu og og gjörræði fyrv. ráðh. H. Hafsteins i botnyörpuveiðamálinu eða ráðstöfun um sektaféð. Kvað núverandi ráð- herra hafa komið hyggilega fram i því máli við Dani, þá er fjárlögin lágu fyrir konungi til staðfestingar. — Þá vék hann að sambandsmálinu. Sýndi fram á, hversu langt tillögur minnihl.nefndarinnar í sambandsmál- inu á síðasta alþingi lægju frá réttri leið, sbr. álit og umsögn dr. Knúts Berlín um það mál eftir alþing. Kvaðst vona, að íslendingar héldu fast fram réttindum sinum. Jakob Möller, cand. phil. vítti harð- lega, en þó með hógværum og rök- studdum orðum samning H. Haf- steins um botnvörpusektirnar. Vitti einnig framkomu meirihl. islenzku nefndarmannanna í millilandanefndinni, sérstaklega ranga skýringu þeirra á ýmsum ákvæðum í hinum danska texta frumvarpsins. — Kvað hann hina fráviknu banka- stjóra hafa sannað réttar sakargiftir á hendur sér með hinum villandi og ó- nýtu vörnum, er þeir hefðu fært. Guðm. Hannesson héraðslæknir taldi skamt milli öfganna hjá báðum flokk- um, þegar talað væri um hvatirnar til mótstöðunnar; mintist á fjárhaginn og framkomu fyrv. og núverandi stjórn- ar í fjárhagsmálinu. Taldi núv. stjórn hafa farið hyggilegar að í því máli, heldur en gömlu stjórnina, en samt ekki nógu hyggilega. Þá mintist hann á sambandsmálið. Kvað þing og stjórn hafa réttilega fylgt fram vilja þjóðarinnar, fram- komnum við síðustu kosningar í því máli. Kvaðst vilja greiða atkv. með traustsyfirlýsingu til núverandi stjórn- ar, af því hann ekki treysti andstæð- ingunum til að gjöra eins vel og nú- verandi ráðherra. Að ræðum þessum loknum voru bornar upp tillögurnar sömu og á fyrri fundunum. Fór atkvæðagreiðsla svo, að traustsyfirlýsing til ráðgjafa var samþykt með 397 atkv. gegn 6, mótmæli gegn aukaþingi með 409 gegn 3 og traustsyfirlýsing til þing- manna Reykjavikur með 406 atkv. gegn 2. Nokkrir greiddu ekki atkvæði. Fundi þessum lauk eins og hinum fyrri með miklum fagnaðarópum fyrir ráðgjafa og þingmönnum kjördæmis ins. ------eee------ Ræða ráðherra á þingmálafundum í Reykjavík 7. og 8. febr. Ráðherra (B. J.) tók til máls fyrstur manna á síðari þingmálafundunum í Iðnaðarmannahúsinu og talaði að miblu leyti hið sama bæði kvöldin, með því að áheyrendur voru ekki hinir sömu. Þetta er stutt samsteypuágrip af báð- um ræðunum.: Hann kvað minni hlutann i eldri stjórnarbaráttunni (hina konungkjörnu þingmenn þá m. m.) hafa verið það ólíka minnihlutanum nú, að varast hefði hann yfirleitt að heyja hildi öðruvísi en hér í sinna landa hóp, þar sem nú skipaði minni hlutinn sér beint undir merki þeirra, er vér ætt- um í höggi við, og berðist í þeirra liði, með látlausu níði og rógi í þeirra blöðum, Dana, um sína eigin þjóð, meiri hlutann í sambandsmálinu, og þann mann einkanlega, er forustu hefði fyrir honum, þ. e. ráðherrann — espaði Dani af öllum mætti til fjandskapar við oss og hlífðist hvergi við, þótt stjórtjón ynnu með því sínu landi. Hefði verið þeirra megin róið að því öllum árum, að fjárlaganna frá síðasta þingi yrði synjað konungs- staðfestingar, og notað til þess tvö atriði í frumvarpinu: afnám hlutdeild- ar Dana í botnvörpusektunum m. m., og skipun viðskiptaráðunauts. Þeir vissu það sem var, að þá hefði ráð- herrann hlotið að fara frá völdum, en við að taka maður úr þeirra liði, minni hlutans, með því að enginn meirihlutamaður mundi fengist hafa til að skrifa undir með konungi fjár- lagasynjun. En henni hefði orðið að fylgja aukaþing í haust sem leið, til þess að samþykkja ný fjárlög og fá þau staðfest fyrir áramót, — með þeim mikla kostnaði, er þar af leiddi. Þeir hefðu talið sér alveg víst, minni hluta höfðingjarnir, að þetta mundi takast, og fengu naumast afborið vonbrigðin, er hingað barst fregnin um, að fjár- lögin væri staðfest (9. júlí). — Nýmælið um skipun íslenzks við- skiftaráðunauts fengu þeir Dani til að fjandskapast við með því að skrökva því í þá, að þar með værum vér að koma oss upp íslenzkum konsúlum hjá utan- ríkisþjóðum og brjóta þar með lög á Dönum, ganga á einkarétt konungs og utanríkisráðherrans danska til að skipa konsúla fyrir alt ríkið; og tókst ráðherra með mestu naumindum að fá þann misskilning upprættan i ríkis- ráði, og sannleikann tekinn trúanlegan, þann, að viðskiftaráðunauturinn ætti ekki og mætti ekki ráðast inn í landareign konsúlanna né beita undirróðri gegn Dönum út af sambandsmálinu, að viðlagðri heimkvöð hans. Mintist í því sambandi á nýleg bréfaskifti við utanríkisráðherrann út af lítils háttar umkvörtun, sem stafaði af rangfærðri frásögn í norsku blaði um það, er ráðunaut B. J. hefði átt að verða að orði í garð Dana; og hefði því máli lokið vel og vænlega, án nokkurra þeirra örþrifráða, er gefin hefði verið í skyn i skeytum til minni hluta blað- anna. Hálla á hellu hefði, legið við að yrði út af botnvörpusektunum vegna þess, að vitnast hefði það, sem þing- ið varði alls ekki, er þaðsamþykti að láta ekkert af þeim renna í ríkissjóð. En það var, að hinn fyrri ráðherra, H. H., hafði gert á sinni tíð (1905) að oss fornspurðum beinan samning við fjár- laganefnd fólksþingsins og yfirráðgjaf- ann danska (J. C. Chr.) um, að a/g sektanna m. m. rynnu í ríkissjóð. Hér var því um samningsrof að tefla í Dana augum, og hlaut ráðherra að vinna það til sátta um það atriði, að heitasinniliðveizlu til að koma því fram á næsta þingi, að það mál, um með- meðferð botnvörpusektanna, yrði tek- ið til nýrrar íhugunar og reynt að koma á einhverju því fyrirkomulagi eftirleiðis, er hvorutveggju sættu sig við, — en e k k i hinu, sem hermt væri í falsfrétt til minni hluta blaðanna, að Danir skyldi fá 2/g sektanna þetta fjárhagstímabil, þótt fjárlögin segðu annað I Það hefði verið eina ráðið til að forða þvi, að þjóð og þing hér stæði frammi fyrir Dönum sem það úrþvætti, er ekki mætti treysta til að efna orð og eiða. — Hingað sím- uð ummæli yfirráðgjafans nýja, er ræðum. skýrði frá, þess efnis, að þetta væntanlegt samkomulag ætti að vera sama skifting sektanna m. m. sem undanfarið, hlyti að vera af misskiln- ingi sprottin eða mishermi fyrirrenn- ara hans um það, er gerst hafði þá er fjárlögin voru staðfest; og væri það fyllilega sannanlegt. Um bankamálið hélt ræðum. þvi fram, að ekki mundi hafa verið neitt um það fengist, þótt bankastjórninni hefði verið vikið frá, ef ekki hefði þótt bera vel i veiði að sæta því færi til að koma fram hefnd fyrir af- drif »uppkastsins« sæla, sbr. Borgar- nesfundinn, og annað hitt, að i hlut áttu meiri háttar menn, sem þjóðin er orðin afvön að gert sé ekki hærra undir höfði en almúganum. Að öðr- um kosti mundi afsetningin eigi hafa þótt neitt tiltökumál, svo margfaldlega sem til hennar hefði þeir unnið, hin- ir fráförnu bankastjórar, með hverju lagabrotinu öðru hættulegra, ogfrámuna- legri vanrækslu á skyldum sínum við bankann, svo sem þeir hefðu i raun réttri sjálfir játað i öðru orðinu, þótt þræta gerðu í hinu. En synjun sak- borinna manna væri markleysa talin ella, ef engin rök fylgdu. Allir vissu, hvað við lægi, ef nauðstöddum fátækl- ing yrði á að taka í heimildarleysi eitthvert lítilræði til að svala hungri sínu. En hér væri ætlast til, að það hefði engin eftirköst þeim til miska, er valdir væri með tnargföldu lagabroti þúsundfalds tjóns, þótt ekki væri um almenna óráðvendni að tefla, og það fyrir það eitt, að í hlut ætti hátt sett- ir menn í mannfélaginu. Það væri óverjandi í alla staði, að gera þann veg upp í milli þeirra, er lög ættu jafnt yfir þá alla að ganga. Sú þjóð væri hætt komin, er misþyrma vildi á þá lund einni hinni göfugustu hugsjón mann- kynsins, réttlætishugsjóninni. Hvar skyldi staðar numið með slíkt misrétti eftir mannvirðingum ? Næsta stig gæti orðið það, að stórbrotamenn þyrftu engin eftirköst að óttast sinna misgerða, ef mikil metorð hefði og aflað sér nógu öflugs flokks, er vildi ekki þola lög, ef þeim væri ógeðfeld. En það er sama sem að hætta að lifa lög- skipuðu þjóðfélagslífi og skipa sér vís- vitandi á bekk með siðlausum villi- þjóðum. Botnvörpusektirnar. V iðskiftaráðunauturinn. Símað er frá Khöfn 5. þ. m., að þingtíðindin dönsku hermi sem hér segir ummæli Zahle yfirráðgjafa um það mál: Það er ástæða til að gera sér von um, að íslandsráðherra muni gera sér far um að koma þeirri skipun á, að sektunum verði skift eins og áður. Hann las upp bréfaviðskiftin milli ráðherranna [utanríkis og íslands] um viðskiftaráðunautinn. Tjáði sig full- ánægðan. Nánari skýring á þessu simskeyti má lesa í þingmálafundarræðu ráð- herra hér í blaðinu. t Páll sagnfr. Melsted, öldungurinn þjóðkunni, lézt í fyrrinótt á 98. aldursári. Hans verður nánar minst síðar. Látinn er á mánudaginn Kristján Jóhannesson, kaupfélagsstjóri á Eyrarbakka, kominn undir fimtugt. Mesti reglu- og dugn- aðarmaður. Nýlofuð Óli Blöndal póstþjónn hér í bæn- um og jungfrú Hedvig Bartels. Mótmæli gegn Borgarnesfundinum Mýramenn þeir, er ekki gátu á Borgarnessfundinn sæla komist vegna ófærðar o. s. frv., hafa ekki látið dragast úr hömlu að mótmæla hneyksli því, er tilviljunar-meirihluti samþykti þar. ísafold hefir borist mótmæli þau, er hér fara á eftir úr einum hrepp, Hraunhreppi. Undir standa 32 kjós- endur — en kváðu vera alls í hreppn- um 36 eða svo — minsta kosti fyrir innan 40. Hafði ekki enn náðst til allra til þess að undirskrifa mótmælin — en talið víst, að allir kjósendur þessa hrepps — nema ef til vill 1 — einn — sem sé hreppstjórinn — muni á einu máli. Samskonar mótmæla mun og von mjög bráðlega úr öðrum hrepp sýsl- unnar, sem ekki gat sótt fundinn — og verði tala mótmælenda eitthvað lík þar — er þegar sýnilegt, að meiri- hlutinn á Borgarnessfundinum er i miklum minnihluta í sýslunni. Sama mun útreiðin verða um mest- alt landið. Mótmæli Hraunhreppinga. Vér undirritaðir lýsum því hér með yfir, að vér mótmælum tillögum meiri hlutans á Borgarnessfundinum 31. janúar þ. á. Enda er það skoðun vor, að um bankamálið geti ekki al- þýða manna dæmt, að svo stöddu. Andrés Guðmundsson, Anastöðum. Guðmundur Jónsson, Hindarstapa. Benedikt Guðmundsson, s. st. Bencdikt Þórðarson, Hólmakoti. Jón Jónsson, Seljum. Eggert Magnússon, Hjörsey. Jón Jónatansson, Hjörsey. Helgi Guðmundsson, Hjörsey. Eiríkur Agúst Jóliannesson, Hamrendum. Gísli Gíslason Skálanesi. Guðmundur Runóljsson, Skálanesi. Árni Bjarnason, Vogi. Sigurbjörn Jónsson, Laxárholti. Jón Sigurðsson, Ökrurn. Helgi Jakobsson, Isleifsstöðum. Sigurður Jóhannsson, Ökrum. Eirikur Kúld Jónsson, Ökrum. Jón Einarsson, Homrum. Jóhann Kr. Sigurðsson og Sigurður Sigmundsson, Skíðsholtum. • Sigmundur Guðmundsson, Stóra-Káljakek. Pétur Þórðarson, Hjörsey. Sigurður Þorsteinsson, Stóra-Káljalcek. Pétur Runóljssou, Litla-KálJaUk. Jón Jónsson bóndi, Skiphyl. Jón Sn. Norðjjörð, Lækjarbug. Bogi Helgason, Brúarjossi. Stefán Jónsson prestur, Staðarhrauni. Guðmundur Runóljsson, Mel. Sigurður Jósejsson, Einholtum,- Sigurður Jónsson, Fíflholtum. Guðmundur Eyóljsson, Einholtum. (5 nndirskrifendur geta þess við nöfn sín, að þeir mótmæli aukaþingi, sem sé: Pétur i Hjörsey, síra Stefán á Staðarhranni, Pétur Runólfsson, Jón Jónsson og Jón Norðfjörð). Auk ofangreindra mótmæla hefir ísafold borist svofeld yfirlýsing. Vér undirskrifaðir, sem höfum orð- ið í minni hluta á svokölluðum þing- málafundi í Borgarnesi í dag, lýsum því hérmeð yfir, að við lítum svo á bankamálið, að það sé enn ekki upp- lýst svo frá öllum hliðum, að hæfilegt sé, að þjóðin hefjist handa með kröf- um um aukaþing o. fl. Vér höfum haldið því fram gagnvart meiri hluta fundarins, að enn vantaði svo mikið til, að alþýðu væri málið svo kunn- ugt, að hún gæti myndað sér fastar skoðanir um það, og væri því réttast að bíða enn, frekari upplýsinga. Þessu höfum vér haldið fram án þess að af- saka eða áfella nokkurn aðila banka- málsins. Hins vegar lýsum vér því yfir, að vér efum það mikillega, að tillaga meiri hlutans innihaldi sannan vilja fleirtölunnar af kjósendum í Mýra.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.