Ísafold - 04.05.1910, Blaðsíða 1
Ki'fflci út. tvisvar l viku. Vorð Arg. (80
arkir minst) 4 k>\, erlondio 5 k> ofta 1 x/a
dollar; bovgist fyrir miðjan júli (erleniis
fyrir frara).
ISAFOLD
DppBögn (skrifleg) bundin vifi dramót, er
ógild nema komln sé til útgefnnda fyrir
1. ofet. eg uaupandi akuldlaue vib blaöib
Afrroiösla: AueturatrKti 8.
XXXVII. árg,
Reykjavík miðvikudaginn 4. maí 1910.
28. tðlublað
I. O. O. F. 91568Va_____________________
Forngripasafn opið sunnud., þrd. og fmd. 12—2
íslandsbanki opinn 10—21/« og 6l/*—7.
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. til
10 siðd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 */• síðdegis
Landakotskirkja. öuðsþj. 91/* og 6 á helgum
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 101/*—12 og 4—5
Landsbankinn 11-2 »/*, 61/*-??1/*. Bankastj. við 12-2
Landsbókasaín 12—8 og 5—8. Útlán 1—3
Landsféhiróir 10—2 og 5—6.
Landsskjalasafnið á þrd. fmd. og ld. 12—1
Lækning ók. i læknask. þrihjd. og föstd. 11—12
Náttúrugripasafn opiö l1/*—21/* á sunnudögum
Tannlækning ók. Pósth.str.14, 1. og 3. md. 11—1
Lárus Fjeldsted
yfirréttarmálafærslumaður
Lækjargata 2
Heima kl. n—12 og 4—5.
Úrskurður fógeta
Og
dómur landsyfirréttarins.
Hinn 25. apríl hefir landsyfirdóm-
urinn staðfest úrskurð fógeta frá 4.
jan. 1910, er veitti gjörðarbeiðanda
Kristjáni Jónssyni sem gæzlustjóra »að-
gang að Landsbankahúsinu og bókum
bankans og skjölum*.
Deiluefni er það, hvort ráðherra
íslands hafi hnft vald til þess að lög-
um að víkja gæzlustjórum landsbank-
ans frá, til fulls, um stundarsakir og
þá til hve langs tíma, eða alls ekki.
Flestir, þeir sem um þetta mál hafa
rætt eða ritað skynsamlega, hafa litið
svo á, að heimild ráðherra til frávikn-
ingarinnar væri alveg vafalaus, fyrst
og fremst samkvæmt ákvæðum stjórn-
arskrárinnar um greining valdsins, í
öðru lagi samkvæmt lögum um stofn-
un Landsbanka 18. sept. 1885 og í
þriðja lagi samkvæmt hlutarins eðli.
— Samkvæmt stjórnarskránni fer ráð-
herra með framkvæmdarvaldið í land-
inu sem umboðsmaður konungs; hann
hefir eftirlit með öllum opinberum
starfsmönnum og embættismönnum
og getur vikið þeim frá, öllum, nema
þeim, sem sérstaklega eru undanteknir
með lögum. — En lög um stofnun
Landsbanka 1885 gera enga undan-
tekningu að pessu leyti um gæzlustjóra
Landsbankans. Þvert á móti verður
ákvæðið í 20. gr. nefndra laga urn
frávikningarvald landshöfðingja um
stundarsakir, ekki skilið öðruvisi en
svo, að með því sé gefið tvímælalaust
til kynna, að um þessa menn gildi
alveg sömu reglur sem aðra opinbera
starfsmenn, sem háðir eru eftirliti
landsstjórnarinnar. — Ákvæðið um
það, að gæzlustjórarnir skuli kosnir
af alþingi eru undantekning frá þeim
reglum, sem annars gilda um verksvið
alþingis og tná pví alls ekki leiða aj
pví ákvœði neitt annað en pað, sem
orðin beint til segja. Alþingi hefir því
ekki vald til þess að víkja þeim frá
né neitt yfir þeim að segja, um frant
réttinn til að kjósa þá. — Loks er
þess að gæta, að hversu viðtækt, sem
vald alþingis yfir þessum mönnum
væri, þá hlyti ráðherra þó að hafa
vald til að víkja þeim frá, ef honum
þætti þess við þurfa, því að hann er
sjálfkjörinn til að fara með vald al-
þingis á milli þinga.
Þannig munu flestir hafa litið á
málið og rökin sýnast ekki veigalítil.
En fógetanum sýndist annað. Hann
virdst álita, að heimild ráðherra til að
víkja gæzlustjórunum frá, lægi ein-
göngu í frávikningarákvæðinu í 20.
gr. bankalaganna 1885. En það
ákvæði var felt burt í lögum siðasta
alþingis um breyting á bankalögun-
nm, sem komu í gildi 1. jan. s.l. og
þvi álitur hann, að frávikningarvald
ráðherra hafi pá verið á enda. Hitt
tók fógetinn ekki með í reikninginn,
sem getið er um hér að ofan, að
ákvæðið um kosning þessara manna
af alþingi er undantekningarákvæði,
sem ekkert verður leitt af um stöðu
þeirra að öðru leyti eða eftirlit með
þeim, og því hljóta þeir að vera í
öllu jafnháðir valdi landsstjórnarinnar
sem aðrir sýslunarmenn, nema skýlaus
heimild sé fyrir í lögum. En það
verður ekki talin skýlaus heimild fyr-
ir undantekning að þessu leyti, þó að
frávikningarákvæðið, — sem í raun-
inni var alveg óþarft i eldri lögunum
— hafi ekki verið tekið upp i nýrri
lögin. Enda verður ekki séð, að neitt
slíkt hafi vakað fyrir þinginu 1909.
Má því til stuðnings benda á, að þá
mætti alveg eins segja, að þingið hafi
ætlast til, að ráðherra mætti ekki
skipa menn til bráðabirgða i gæzlu-
stjórastörf, þegar gæzlustjórar forfall-
ast, sem vel getur komið fyrir um
þá báða á milli þinga. Þar stendur
alveg eins á. Þetta var tiltekið i
gömlu lögunum, en felt burt í nýju
lögunum. En allir sjá, að slik álykt-
un væri hreinasta fjarstæða.
Fógetinn leit nú samt sem áður
svona á málið og Kristján Jónsson
háyfirdómari sjálfsagt lika, því að
hann hefði ekki beðið til nýárs með
að leita aðstoðar fógeta, ef hann hefði
álitið frávikninguna ógilda frá upphafi.
En svo kemur dómur landsyfirrétt-
ar með lausn á málinu, sem engum
hafði áður dottið í hug, eða að minsta
kosti enginn hafði látið í ljósi opin-
berlega það eg til veit. Þar sem
fógetinn hafði skoðað frávikning gæzlu-
stjóranna 22. nóv. s.l. gilda til nýárs,
sem frávikning um stundarsakir, en
ógilda eftir nýár vegna nýju laganna,
þá fór landsyfirréttur svofeldum orð-
um um röksemdir fógeta: að »þær
geti eigi eins og málið liggur fyrir
komið til álita hér«, því að frávikn-
ingin hafi aldrei verið gild, ekki einu
sinni til nýárs. — Þetta sá ekki fó-
getinn og ekki Kristján Jónsson; þetta
hafði enginn séð nema landsyfirrétt-
urinn.
Landsyfirréttur byggir á því:
1. Að ráðherra hafi aldrei haft
vald til að vikja gæzlustjórunum frá
nema um stundarsakir samkv. lögun-
um frá 1885. Ráðherra hafi aldrei
haft víðtækara vald i þessu efni en
Iandshöfðinginn. Þvi til stuðnings
vitnar hann til niðurlags 20. gr. lag-
anna og segir, að þar sé »ekki gert
ráð fyrir, að svo geti borið undir, að
landshöfðingi þurfi að setja mann í
stað bankaforstjóra, sem vikið er frá
til fullnaðar«. Þetta er nokkuð tor-
skilið, því að í endi greinarinnar, sem
til er vísað, er einmitt ákvæði um
það, hvernig fara skuli að »ef sæti
verður autt í forstjórninni«.
Er þá ekki sæti autt i bankafor-
stjórninni, þegar gæzlustjóra hefir ver-
ið vikið frá til fullsf
2. Að hér sé um fullnaðarfrávikn-
ing að ræða. — Það byggir dómur-
inn víst á því, að í frávikningunni
var ekki tekið fram, að hún ætti að-
eins að gilda um stund, og málsvari
stjórnarinnar fyrir réttinum skoðaði
hana sem frávikning til fullnaðar.
Dómurinn útskýrir hvað hann skilji
við »frávikning um stundarsakir«;
hann segir, að lögin frá 1885 hafi
veitt »landsstjórninni vald til að víkja
forstjórum bankans frá um stundar
sakir, þangað til fullnaðarúrskurður
væri lagður á málið af alþingi, eða
ef svo bæri undir, af dómstólunum*.1)
— Þetta er vafalaust rétt skilið, en
þá verður torskilinn munurinn á fulln-
aðarfrávikning og frávikning um stund,
því að frávikning um stund gildir þá
til næsta alþingis og ekki lengur, en
um hve mikla fullnaðarfrávikning,
sem er að ræða, þá gildir hún ein-
mitt líka til næsta alþingis og ekki
lengur. Því að alþingi getur altaf
kosið hinn frávikna gæzlustjóra aftur
og á þann hátt íelt frávikninguna úr
gildi.
Yfirrétturinn gerir samt feiknamik-
inn mun á þessu, svo mikinn mun,
að vegna þess, að frávikn. 22. nóv-
*) Hér er auðvitað átt við dóm um til-
efni frávikningarinnar, en ekki dóm um
»oompetanee« ráðherra i þvi efni.
er skoðuð fullnaðarfrávikning, er hún
algerlega ógild frá upphafi, — ekki
einusinni gild um stundarsakir. Þetta
er höfuðatriðið í forsendum dómsins og
jafnframt það atriði, sem langerfiðast
er að skilja. — Ráðherra hafði vald
til að víkja gæzlustjórunum frá um
stundarsakir, en hann tók það ekki
fram, að frávikningin ætti aðeins að
gilda um stundarsakir og þessvegna
er hún ekki gild, hvorki um stundar-
sakir eða til fullnaðar.
Þetta sýnist alveg óskiljanlegt, jafn-
vel þótt gengið væri út frá, áð ein-
hver tímalengdar-mismunur væri á
frávikning til fullnaðar og frávikning
um stundarsakir, sem alls ekki er hér
til að dreifa, eins og sýnt hefir verið
að ofan.
Tökum dæmi, sem virðist alveg
samskonar:
Eg hefi mann í þjónustu minni og
samningar eru svo okkar á milli, að
eg má segja honum upp vistinni þeg-
ar mér sýnist, en frá 14. maí n. k.
er hann ráðinn hjá mér fastur vinnu-
maður. Nú mislíkar mér við mann-
inn, segjum 1. febrúar og rek hann
úr vistinni. En mér láist að taka það
fram, að burtreksturinn gildi ekki
nema til 14. maí, eða jafnvel hefi
það á orði (eg sjálfur eða ráðsmaður
minn), að þetta sé fullnaðar burtrekst-
ur af heimilinu. Þessa meðferð þarf
maðurinn ekki að láta sér lynda. Hann
getur samstundis fengið sig »settan
inn« á heimili mitt með fógetagjörð
og mundi sennilega krefjast þess, að
sér væri heimilaður t. d. aðgangur eða
meðnotkun að húsum mínum, mat-
vælum og rúmfatnaði eða þvíumlíkt.*
Hann gæti haldið sér við það, að slík-
ur burtrekstur væri algerlega ógildur
ekki aðeins frá 14. maí næstkomandi,
heldur einnig til þess tíma. — Eða
þannig mundi landsyfirréttur íslands
líta á málið, í samræmi við dóminn
25. apríl. —
Niðurstaða landsyfirréttar sýnist vera
sú, að frávikningin hafi verið ógild
vegna formgalla, af því að orðin »um
stundarsakir« vantaði. Þá sýnist liggja
beint við fyrir ráðherra að árétta frá-
vikninguna og sneiða hjá formgallan-
um. Eftir skoðun landsyfirréttar gæti
hann nú sjálfsagt vikið háyfirdómara
Kr. J. burtu frá húsi, bókum og skjöl-
um bankans »um stundarsakir«.
Það eru mörg fleiri eftirtektaverð
atriði í dómi þessum, en einhvern-
staðar verður að nema staðar. Ann-
ars gæti vel orðið úr þessu heill bækl-
ingur í stað stuttrar blaðagreinar.
Verður þessi dómur nú til þess að
auka traust manna á landsyfirréttin-
um eða til þess að rýra það — »um
stundarsakir* ?
Tertius.
Jarðarför Björnsons
fór fram í gær í Kristjaníu, auð-
vitað með mestu viðhöfn. (Símfregn
4/b. írá Khöfn).
Paulhan flugineistari,
hinn frakkneski, hefir flogið í flug-
vél þessa dagana frá Lundúnum til
Manchester, segir símskeyti frá Khöfn
í morgun, eða með öðrum orðum þvert
yfir Stóra-Bretland. Það mun nærri
láta að flug hans í þetta sinn hafi
numið vegalengdinni frá Stykkishólmi
til Seyðisfjarðar.
Skipstrand I Selvogi.
Frakkneskt skip, Ondine frá Pain-
poul í Bretagne strandaði í Selvogi,
skamt frá Strandakirkju, síðastliðinn
laugardag. Það var á leið hingað til
Rvíkur og átti að birgja fiskiskipin
frakknesku með salti og cðrum birgð-
um og taka fiskinn úr þeim. Farm-
urinn ónýttist algerlega og sjálft
fór skipið í spón. — Allir menn kom-
ust af. —
Þoka var mikil þenna dag, hvast
og ólga í sjóinn.
Halastjarnan.
Algerlega hættulaus jarðarbúum.
Halleys-halastjarnan er sem stend-
ur á leiðinni í námunda við jörð-
ina — og fer allhratt yfir. Eigi
minna en 190000 rastir hendist hún
á hverjum klukkutíma. — Hinn 18.
maí kemst hún næst jörðu. Þá verð-
ur hún ekki nema 24 miljónir rastir
frá jörðunni! En það er eigi að síð-
ur dálagleg vegalengd!
Af stjörnunni sjálfri fáum vér lítið
að segja, en hali hennar verð-
ur þá orðinn svo langur, að hann
lykur um jörðina.
Þessi faðmlög halans og jarðarinn-
ar hafa margir orðið æði smeikir við;
ekki trútt um, að til sé fólk víða um
lönd, er taiið hefir víst, að halinn
myndi drepa jarðarbúa með eiturefn-
um þeim, sem í honum eru. Svo
ramt hefir kveðið að hræðslu fólks,
að mýmargir foreldrar suður um Sviss
og Frakkland hafa kvatt fjarlæg börn
sín heim, svo öll fjölskyldan gæti í
sameiningu gengið í greipar
glötuninni.
í Austurríki hefir hræðslan sum-
staðar meðal almennings orðið svo
megn, að fólk hefir selt eignir sínar
fyrir sama sem ekki neitt — til þess
að geta »lifað hátt« það sem eftir
væri jarðlifsins — til 18. maí! —
Stjórnin þar vaið meira að segja að
taka það ráð að skipa öllum klerkum að
fræða fólk af stólnum um hættuleys-
ið — og kennurum öllum var og
boðið að gefa börnunum fræðslu um
halastjörnuna.
Þessi beigur við stjörnuhalann e r
sem sé ástæðulaus með
ö 11 u, segja stjörnufræðingarnir — og
þeir vita hvað þeir syngja.
Stjörnufræðingarnir eru þegar bún-
ir að atliuga nokkrar stjörnur, meðan
stjðrnuhalinn lukti um pœr og komust
þeir að raun um, að ljósmagn þeirra
rýrnaði nauðalítið meðan þær voru í
halanum. Þetta sannar, að efni hal-
ans er mjög létt og gagnsœtt. Hefir
talist til, að halinn mundi vera
6—7.000.000.000 (miljarðar) voga
(kílógramma) eða 12—14 miljarðar
punda, en það er aðeins Viooooooo
af þyngd loftsins á jörðunni. Það
er því ekki meiri líkur fyrir því,
að eiturefni í halanum komist inn í
jörðina en að sagögn geti þrengt sér
inn i tré.
En — segjum nú svo, að eitthvað
af efnunum í halanum komist inn í
loftið hjá okkur! — Mundi það eigi
geta orðið oss skeinuhætt?
Nei, nei, svara vitringarnir. —
Mennirnir anda að sér 4 vogum (8
pd.) af lofti á hverjum sólarhring, en
í þessum 4 vogum getur eiturefnið úr
halanum ekki einu sinni numið l/t ögn
(milligrammi). — Eiturefnið er: blá-
sýrugas. Hálf ögn af því samsvarar
blásýruefninu, sem er í einu litlu glasi
af kirsiberjalikör. — Það er alt og
sumt. Þurfa menn því engu að
kvíða daginn, sem halastjarnan heim-
sækir okkur.
Halastjarnan er að fyrirferð 16000
sinnum stærri en jörðin. — Sem
stendur mun halinn vera nál. 12
miljónum rasta, en á eftir að verða
meira en helmingi lengri.
H. 18. maí kl. ^/s um morguuinn
"verður halastjarnan næst jörðunni.
Úr því fjarlægist hún óðfluga.
Jörðin hefir áður lent í halastjörnu-
hala. Síðast þ. 30. júní 1861.
En ekki bar neitt óvenjulegt við
þann dag. Engin breyting á loftinu,
svo að hægt væri að finna.
Sama máli verður að gegna 18. og
19. maí næstkomandi.
ísafold hafa borist margar, miklar
og ferlegar sögur af hræðslu fólks
hér í bænum við halastjörnuna. Fólk
á að vera lagst í rúmið vegna hræðslu,
selja af sér spjarirnar, o. s. frv., af
því það býst við heimsenda.
Það mun pví ekki vanpörý á pví að
brýna pað rækilega ýyrir ðllum, að pað
eru ekkert annað en verstu bábiljur, að
oss geti staýað nokkur hin minsta hcetta
aý halastjörnunni.
Þeir er annað segja, fara með fjar-
stæður og vitleysu.
Járnbraut austnr í Árnessfsla,
Eftir Vigfús Guðmundsson.
Hvað mætti höfnin kosta?
Það er vandi mikill að svara þeirri
spurningu, og þörf enn meiri að
hnýsast í svarið.
Líklegt er, að alt smjör rjómabú-
anna austan fjalls yrði flutt af Bakk-
anum, ef þar væri höfn. Á því spar-
aðist þá að fnestu leyti flutningskostn-
aður suður yfir fjall. Eftir járnbraut-
arverði, nær því 2000 kr. Verðhækk-
un útlendrar vöru og verðlækkun
innlendrar vöru stafaði af því að
kostnaður sparaðist. Óvanalega er
dýrt að leigja seglskip á Bakkann
vegna hafnleysis, og einatt er ómögu-
legt að fá gufuskip til að bíða þar, ef
ekki verður á vetfangi náð í vörurnar.
Þetta getur stundum dregist viku til
hálfsmánaðar, og væri dýrt að láta
gufuskip bíða svo lengi. Seglskip eru
mest notuð þar. Ábyrgðargjald er
hátt, og uppskipun dýrari þar en á
flestum stöðum öðrum.'
Alt þetta yrði gagnólíkt, ef góð
höfn yrði gerð. Hve mikið þá spar-
aðist, get eg ekki sagt. En ekki
þætti mér ólíklegt, að það næmi 6%
til jafnaðar bæði á aðfluttri vöru og
útfluttri. Sjálfsagt drægist verzlun
Árnessýslu að höfninni, hvar sem hún
væri, og ykist fljótt vöruflutningur
þangað. Ef að eins væri að tala um
Eyrarbakka eða Stokkseyri, þyrfti
höfnin í öðrum kauptúnum ekki að
eyðileggja hitt kauptúnið. Samband
gæti verið milli þeirra, t. d. með
vandaðri braut og oliuvagni (motor).
Á öflugum vagni mætti flytja marga
tugi smálesta á dag. Sennilegt að
höfnin sparaði samt á fjarlægri stöð-
um svo sem 3 °/0. Áætlun eftir þessu:
1907 aðfl. vörnr og útfl. 4 Eyr-
arbakka kr. 686.000 6 % = . kr. 41160
S. ár aðfl. vörur og útfl. 4 Stokks-
eyri kr. 538,000 3 °/0 = . . — 16140
Viðbót við aðfl. vörur og útfl.
fyrir hafnv. kr. 33,333 6 °/0 = — 2000
Sparnaður 4 flutningi rjómabú-
smjörs gerður að eins ... — 700
Sparnaðurinn þá kr. 60,000
Jafnt vöxtum og afborgun 6 °/0 af i
milj. króna. Mætti ná þessu fé inn
með hafnargjaldi og tolli á aðfl. vör-
um að miklu leyti eða öllu. Varan
yrði samt ekki dýrari en verið hefði
áður. Sparnaðinum yrði varla varið
betur til annars en að eignast gott
hafnvirki, ef þess væri kostur. Því
miklum hagnaði og margskonar fram-
för mundi höfnin fá til vegar komið.
Sérstaklega má nefna aýl ýossanna
þar í sýslum, sem yrði miklu aðgengi-
legra og arðvænlegia, fyrir höfnina.
Nú stranda ef til vill samningar um
fossana við útlend félög á hafnleysinu.
Ef við hefðum ráð á að bjóða i—2
milj. kr. til hafnarvirkis, er ekkert
ólíklegt að fossafélögin fengjust til að
gera höfnina úr garði að öllu öðru
leyti á sinn kostnað. Og braut legðu
þau frá höfninni.
Færi áætlun mín ekki mjög langt
frá lagi, sé eg ekki betur en sýslurn-
ar tvœr, gegnum verzlunina i Árnes-
sýslu, gœtu staðið straum af i rnilj.
kr. Ekki skaðlaust sér að eins, heldur
með stórum ábata, því stærri, sem
meira yrði framleitt og meira verzlað.
Sé landssjóður fær um það að
leggja mikið fé til járnbrautar, þá er