Ísafold


Ísafold - 04.05.1910, Qupperneq 2

Ísafold - 04.05.1910, Qupperneq 2
104 láAFOLD 7/7- fermingarinnar og fjvítasunnunnar eru nýkomnar feiknamiklar birgðir af alls konar skófatnaði, þar á meðal margar nýjar tegundir, t. d.: Kvenstigvél skinandi falleg á kr. 7.00 og 7.50. Karlm.stígvél, sem »Zeppelin« heita, afarvönduð og falleg aðeins kr. 8.00. Unglinga- og barnaskófatnaður, óþrjótandi úrval. Strigaskór og brúnn skófatnaður handa fólki á öllum aldri. Legghlífar (Gamascher) af 12 tegundum, verð frá 2.25. Munið að hjá mér er úrvalið stærst, gæðin mest, verðið lægst! Lárus 6. Lúðvígsson f>ingf)oltssfræti 2. hann vissulega fær um að leggja jafnmikið fé til öruggrar hafnar. Höfnin mundi gjörbreyta suðurlands undirlendinu miklu fyr en járnbraut. Einkum vegna fossanna. Viðskifta- veltan ykist miklu meir á Eyrarbakka fyrir höfnina en i Reykjavík fyrir járnbraut. Viðskiftin við útlönd gælu landssjóði meiri tekjur en viðskifti í Reykjavík. Landssjóður fengi því fyr endurgoldin kostnað við hafnargerð en járnbraut — bæði með tollum og sköttum. Sé það álitið, að landssjóði sé fært að bjóða 3 lf2 milj. kr. til járnbrautar, því er þá ekki þorandi, að bjóða i viilj. kr. til hajnarvirkis ? Jafngott væri að spyrja fossafélögin hvað þau gerðu, ef þeim yrðu í lófa lagðar á sínum tíma 2 milj. kr. Sennilega gerðu þau ekki minna en það, að láta skoða og rannsaka á sinn kostnað. Og gæti það verið betra en ekki neitt fyrir tilboð að eins. Hvar á höfnin að vera. Sökum verzlunarmagns og vega, væri höfnin bezt sett á Eyrarbakka. Þar næst á Stokkseyri eða þar á milli. A þeim stöðum mætti hafnarvirkið vera, að eg hygg, helmingi dýrara en í Þorlákshöfn. Svo er hún langt út úr vegum og samgöngum öllum. Þar er engin verzlun, og þaðan yrði að leggja braut langa og kostbæra, því brautarstæði er afleitt í köflum, nema þá með stórkostlegum krókum. Braut sú yrði að liggja alla leið að Olfusárbrú og niður á Bakka, því ekki munu vera nokkur tök á því, að brúa ána neðar. Dýrt yrði það og erfitt fyrir Eyrarbakka og Stokks- eyri að ná vöru þaðan, eftir svo langri braut. Kostnaðaraukinn við braut þessa, flutningurinn, erfiðleikarnir og óþæg- iiidi á margan hátt, mundi sjálfsagt jafna sig á móti miljónum króna. Og auk þess verða héraðinu til hnekk- is: draga úr framkvæmd og framför- um, móts við höfn á hentugri stað. Þegnskylduvinnan. IV. Hermann Jónasson hefir haldið því fram, í sambandi við þegnskylduvinn- una, að með henni mundu menn hér á landi læra hlýðni og stjórnsemi. Okkur íslendingum hefir verið borið það á brýn, bæði fyr og síðar, að vér kynnum hvorki að hlýða eða stjórna. Jafnvel þó þetta kunni að sumu leyti að vera ofmælt, þá verður því þó ekki neitað, að oss er að ýmsu leyti ábóta- vant í þessu efni. Það er haft að orðtæki, að sá, sem ekki kunni að hlýða, kunni heldur ekki að stjórna. Eftir þessu er þá hlýðnin fyrsta skilyrði góðrar stjórn- semi. En eru nú íslendingar í raun og veru óhlýðnir? Það verður naumast sagt með sanni um menn alment. Langflestir, sem eg hefi unnið með, hafa verið gegnir og unnið sæmilega. En annars fer hlýðni manna og hversu þeir vinna vel, mjög eftir því, hvernig þeim er stjórnað. Óhlýðnin á því oft rót sína að rekja til þess, að verkstjórnin hefir ekki verið í svo góðu lagi, sem skyldi. Meinið er, að vér eigum svo fátt af mönnum, er kunna þá list, að stjórna og segja öðrum fyrir, svo vel sé. Og væri nauðsyn að ráða bót á þvi. Hér mætti nefna mörg dæmi þess, að mönnum er ósýnt um, að stjórna verki og leiðbeina öðrum í verklægni. En það er ekki ástæða til að þreyta menn á slíkri upptalningu. Þó verð eg að nefna eitt dæmi: Maður nokkur hafði verkstjórn á hendi. Verkmennirnir voru misjafnir og sumir fákunnandi í þvi, sein þeim var sagt að gjöra. Verkstjórinn leit yfir hópinn og sá hvað hver gerði. Gekk hann þá til þeirra, er honum þótti vinna annaðhvort laklega eða klaufalega, tók af þeim verkfærin og fór að sýna þeim, hverniq peir ynnn og gerði gaman að verkum þeirra. En honum kom ekki til hugar að sýna þessum mönnum um leið hvern- ig peir ættu að vinna, eða leiðbeina þeim í því, sem þeir voru að gera. Og þessi maður var þó kallaður góð- ur verkstjóri. Hann sá um það, að menn héldu áfram að vinna og slórðu ekki. En að öðru leyti var verk- stjórnin ekki á marga fiska. Það er því að mínu áliti mest kom- ið undir verkstjórninni, hvernig menn leysa verk sín af hendi. Ef hún er í góðu lagi og verkstjórinn vaxinn stöðu sinni, þá ber ekki á öðru en að menn hlýði og geri skyldu sína. Eg heyri oft kvartað yfir því, eink- um hér- í Reykjavík, að menn séu, ekki ýkja óhlýðnir, en dæmalaust svik- ulir. Það megi aldrei af þeim líta þessum verkamönnum, því þá séu þeir undir eins vísir til að svíkjast um. Væri nú þessi ásökun á rökum bygð, þá er hér að tefla um eina tegund óhlýðni, og hana eigi sem bezta. Upp til sveita heyri eg miklu sjaldn- ar kvartað yfir þessu. En þar er þess að gæta, að húsbóndinn fylgir oftast fólki sínu að verki og er með því frá morgni til kvölds. Þetta hefir þau áhrif, að fólkið vinn- ur betur, og það vinnur um leíð með meiri ánægju, þegar húsbóndinn eða verkstjórinn er í verki með því. Hér í Reykjavík er nokkuð öðru máli að gegna. — Mönnum er skip- að til vinnu, en eftirlitið með vinn- unni er oft nauðalítið, og verkstjórn- in oft ófullkomin. Þetta vekur óá- nægju hjá þeim, sem vinna, og freistar þá éf til vill til þess að fara sér hægt. En hitt er satt, og þess verður mað- ur daglega var, að menn eru, margir hverir að minsta kosti, seinir til lengi, að snúa sér við, og ekki stundvísir. Og seinlætið getur stundum verið svo mikið hjá sumum, að það eigi skylt við óhlýðni. En þetta seinlæti og mók er mjög hvimleitt, og getur valdið skaða og slysum. — Kemur það sér því oft illa, þegar menn eru lengi að búa sig til að hlýða, og þurfa að hugsa sig um, áður en þeir gegna. Þetta seinlæti og sinnuleysi sprett- ijr sjaldnast, að eg hygg, af meðfæddri tilhneiging til óhlýðni. Hittmun sönnu nær, að um sé að kenna hirðulausu uppeldi og óvana. En þennan óvana þarf að uppræta. Það þarf að kenna mönnum að vera fljótir til, gegna skipunum á sama augnabiikinu og þær eru gefnar, og venja þá við að vera kvika og snara 1' öllum hreyfingum. Með þegnskylduvinnunni vænti eg þess, að ráðin verði bót á þessu og mönnum kend þar þessi augnabliks hlýðni og stundvísi, sem okkur er svo áfátt í. Gjört hefir verið ráð fyrir því, að í sambandi við þegnskylduvinnuna yrðu hafðar um hönd æfingar í íþrótt- um og leikfimi. Það mundi og hafa mjög góð áhrif og auka gildi þegn- skylduvinnunnar og gera hana vin- sælli. En æfing í íþróttum og leikfimi mundi að öðru leyti vinna mjög í þá átt, að kenna mönnum hlýðni og stjórnsemi. Æfing með leiðbeining í þessum greinum venur menn á stund- víslega hlýðni og reglubundnar hreyf- ingar. Það vita og allir, er tekið hafa þátt í þessum æfingum, hve hollar þær eru og hressandi. Þær auka einnig áhuga manna og tjör, stæla vöðvana og þroska menn líkamlega og andlega. Iþróttir þær, er komið geta til greina í þessu sambandi, eru meðal annars glímur, stökk, hlaup, sund o. fl. Á sundið legg eg einna mesta á- herzlu af þeim íþróttum, er hér voru nefndar, enda ætd að vera auðsætt að koma því við á flestum stöðum. Víð- ast hvar er auðið að ná i vatn, jafn- vel uppi á heiðum og fjöllum, til sundæfinga. Vitanlega mundi það oft- ast vera kalt vatn, en það skiftir minstu. Kalt vatn er holt og herðir líkamann. Á þennan hátt yrði þegnskylduvinn- an annars vegar verklegur skóli, þar sem menn lærðu ýmsar vinnuaðferðir og handbrögð, og hins vegar fengju þeir þarna æfingu í líkamsíþróttum og leikfimi. (Nl.) Aðflutningsbannið. Á fjóðnngsþingi U. M, F. Norðlendinga, Bem haldið var á Akureyri 8., 9. og 10. marz var gerð svo hljóðandi ályktuo: »t>rátt fyrir það, þó að sumum knnni að virðast það vafasamt, hvort lög þau um aðfiutning8bann áfengra drykkja, sem sam- þykt voru af alþingi 1909, hafi verið heppi- legasta úrræðið til þess að leysa þjóðina undan oki vinnautnarinnar, telur fjórðungs- þingið það skyldu hvers góðs drengs, sem vill styðja heill þjóðarinnar, að vinna að þvi á allan hátt, að þeim lögum verði sem bezt hlýtt i hvivetna. Þess vegna skorar það á öll ungmennafélög innan fjórðungs- samhandsins að beita sér fyrir málið á þann hátt að vernda lögin, að svo miklu leyti, sem þau geta, gegn óheilbrigðum árásum, sem gerðar kunna að verða á þan, og einn- ig gagnvart brotum á þeim, er þan koma t.il framkvæmda.« Samþykt með þorra at- kvæða. Tvær frakkneskar skútur, Martha og Perseverance hafa nýlega verið dæmdar ósjófærar fyrir fúa sakir og leka. Þriðja skútan var talin þess megnug, ef að henni væri dyttað hér, að staulast til Frakklands. — Hinar tvær verða líklega höggnar upp og seldar hér í Rvík. Sex þrotabú voru gerð upp hér í bænum á mánudaginn. Síður en ekki glæsileg voru úrslitin. Eitt þeirra skuldaði 17000 kr., en átti einar 344 kr. upp í þá skuld, annað skuldaði 81 n kr. og átti rúmar 37 kr. upp í það. Þriðja búið gat borgað 4 kr. 32 au. upp í hverjar 1000 kr., sem á því hvíldu. Langbezt stóð sig eina dánar-þrotabú- ið, sem sé Sig. heit. frá Fjöllum. Það gat borgað 15,41 °/0 af skuldunum. Gjaldþrot virðast orðin langmesti gróðavegurinn hér um slóðir. Að skulda 17000 kr. og sleppa við 16636 kr. af því — það er gróði í lagi. Roosevelt forseti kom til Khafnar í gær og var tekið þar með ódæmafögnuði, er oss símað i gærkveldi seint. Hann dvelst í Kaup- mannahöfn þangað til í kvöld. Býr í konungshöllinni Chr. VII. Palæ. — í dag á að halda honum dýrindis- veizlu í ráðhúsi Kaupmannahafnar. — Á morgun um hádegi kemur hann til Kristjaníu og þaðan heldur hann til Stokkhólms. Vita-leysið hjá oss. Gert að umtalsefni í parlamentinu. Einn af þingmönnum frjálslynda flokksins á Bretlandi, Wing mintist á það í ræðu, er hann hélt í neðri mál- stofunni brezku þ. 19. apríl, hversu illa suðurströnd íslands væri skipuð vitum. Skoraði hann á utanríkisráð- gjafann Sir Edw. Grey að fara þess á leit við stjórnarvöldin íslenzku, að reist yrði vitakerfi á suðurströndinni Enn mintist hann á, hve nauðsynlegt væri, að gerð yrðu nokkuð víða smáskýli með vistum, sem skipbrotsmenn gætu leitað hælis í. Einn undirráðgjafanna, Mc. Kinnon, svaraði áskorun Wings. Sagði, að stjórninni brezku nefði borist vitneskja um, að íslenzk stjórnarvöld hefðu á prjónunum að láta gera vita á Ingólfs- höfða. Hann bætti því við, að stjórn- arvöld hér hefðu ekkert á móti því, að útlendir útgerðarmenn létu gera skýli eins og Wing hefði talað um. Kvað hann og stjórninni ant um, að svofeld skýli kæmust upp, en enga peninga fyrir hendi, sem leyfilegt væri að nota í þessa átt. En hann kvaðst mundu láta rannsaka ítarlega þetta mál og vinna að því, að skýlin með einhverju móti yrðu reist. Skipaferðlr. Botnía kom á rnánudagsmorgun, 2. þ. m. frá Khöfn. Farþegar: Philipsen stein- olíufólagsstjóri með fjölskyldu sinni, Jón Laxdal tónskáld með sinni konu, And- rós Björnsson cand. phil. ; ennfremur Böving yfirróttarmálfl.m., sonur Bövings, er eitt sinn var sýslumaður Snæfellinga og konu hans Krist/nar Magnússen frá Skarði. Hann er kominn hingað í kynnis- ferð og verður hór mánaðartíma. Richard Braun stórkaupmaður frá Hamborg, Frið- þjófur Thorsteinsson o. fl. Frá Yest- manneyjum: Gunnar alþm. Ólafsson. Sterling kom til Khafnar 1. maí um morguninn. Lawoissier frakkneska varðskipið kom hingað á sunnudaginn síðdegis. Spítalaskipið frakkneska kom á mánudaginn. Bókafregnir. Á guðs vegum (paa Guds Veje), hin heimsfræga skáldsaga Björnstjerne Björn- sons, kemur út í íslenzkri þýðingu í sumar eða undir haustið. Bjarni Jóns- son frá Vogi hefir þýtt. Reykjavikur-annáll. Aðkomumenn : Sig Þórólfsson skólastjóri frá Hvltárvöllnm. Aflabrögð : Tveir botnvörpungar islenzk- ir, nýkomnir inn, Valnriun með 5000 og Freyr með 12000. Á sunnudag kom inn þilskipið Hildur (eign Jóns Laxdals) og hafði aflað 10.000. Hildur hefir aflað alls á vertiðinni 32000 og er það óvenju- mikill afli. Guðsþjónusta. Á morgun verður aðeins ein messa i dómkirkjunni, á hádegi. Dóm- kirkjupresturinn fermir. — í Fríkirkjunni: hádegismessa. Hjálpræðisherinn minnist 15 ára afmælis sins á morgun (uppstigningardag). 1 mai- mánuði 1895 komu þeir hingað, Chr. Erik- sen og ÍBÍendingurinn Þorsteinn Davlðssou og hófu hjálpræðisstarfið. Síðan hefir her- inn og starf hans aukist að miklum mun og breiðst út um land alt. — Liknarstarf- semi hersins hefir verið mikil og ýmislegt annað þarft hefir unrið verið af hersins hálfu t. d. stofnun ferðamannahælis o. fl. Kl. 4 á morgun verður kaffisamkoma fyr- ir gamalmenni, og enn 2 samkomur kl. 6 og kl. 8. Sumarfagnaðurinn á laugardagskveldið var afarilla sóttur, enda veður svo bölvað og ósumarlegt sem verða mátti. Sumt var skemtilegt á að hlýða, en annað voðalegt. Veðrátta. Ekki batnar enn. Seint geng- ur sumrinu að ná tökum á landi voru. Snjór fallið i nótt, alhvit jörð í morgnn. Fádæma-afleitar horfur til sveita. Bankaóreglan á Akureyri. Sighvatur Bjarnason bankastjóri hef- ir tjáð ísafold, að það sé mishermi í síðasta blaði, að ekki hafi neitt verið gert af hálfu lögrelgustjórans á Akur- eyri út af hvarfi Friðriks útibústjóra. Lögreglustjóri hafi símað til sýslu- mannsins á Eskifirði og beðið hann rannsaka, hvort Friðrik væri um borð í skipinu »Ingolf«, sem kom til Akur- eyrar rétt um sama leyti og Friðrik hvarf og hélt þaðan austur um land. En um önnur skip en Ingolf og Láru, er strandaði fám dögum síðar, hafi naumast getað verið að tefla. ísafold hafði fregnina um afskifta- leysi lögreglustjórans eftir manni norður á Akureyri, nákunnugum, svo að par hafa fáir vitað af þessum ráð- stöfunum lögreglustjórans, enda sagði og Sighv. bankastjóri, að það hefði verið á fárra vitorði. Skýrsla um útibúsóregluna mun verða lögð fyrir bankaráð Islandsbanka í sumar á undan aðalfundi og verður það þess að skera úr hvort og hvern- ig birta skuli. Mark Twain. Hann var jarðaður í New-York þ. 25. apríl og viðhöfnin ákaflega mikil. — Myndin þessi tekin af honum í fyrra. Stutt og laggott. Af gnlli er hvergi framleitt eins mikið og í Transvaal í Suður-Afríkn. í fyrra nam framleiðslan 556 miljónum króna. Bvenær náum vér íslendingar svo miklu gulli úr jörðu? Dómur var ónýttur fyrir skömmu i Paris vegna þess, að nokkur vitni höfðu svarið eið — með hanzka á höndnnum. Seinustu kosningarnar á Englandi kost- uðu 22’/2 miljón króna. Elzti maður á Norðurlöndum á heima i Lofoten í Noregi; bann er 113 ára gamall. Jarðarför átti að fara fram i bæ einum á Frakklandi fyrir sköramu, en hætti i miðjum klíðnm. Likið spurði sem sé: Hversvegna er s ona margt fólk hérna? Barón nokknr, v. Muller var nýlega hand- samaður. Hann hafði á einu ári átt 30 konurl Páfinn hefir 35 skrifara til að sjá um bréfaskriftir sinar. í Málmhaugum og Kristjaniu verða heims- sýningar 1914. í Berlín eru 1256 miljónamæringar. Einn af þeim á 43 miljónir, tveir 42 milj., o. s. frv. Byggingar og lóðir i New-York voru i fyrra virtar á 8400 miljónir dollara (rúmar 30000 miljónir króna). Heimssýningin sem haldin er i Briissel þetta ár, hófst 23. f. mán. Rússneska rikið hefir einokun á brenni- vlni. Tekjurnar af þeirri einokun nema 75°/0 af öllum tekjum ríkisins. Það er verið að byggja skip eitt i Belfast, sem verður langstærsta skip veraldarinnar. Það á að heita The Olympic og White- starlínan á það. Það verður 4.000 smá- lestir. Lusitania og Mauretania, sem ganga næst þessu, eru ekki nema 31000 smálestir. Nýjasta uppgötvun í Ameriku: barna- vöggur, sem gangtól eru I, er hreyfa vögg- una og leika vögguvisnalög i senn. 1200 skip farast á ári hverju — eða 3—4 á dag að meðaltali. í unglingaskólum Gyðinga á Spáni eru veitt á ári hverju 200 kr. verðlaun fyrir sannsögli. Morð á Frakkjandi hafa á slðustu 30 ár- um aukist úr 176 upp i 318 á ári. Tveir ítalir eru um þessar mundir að fara kringum hnöttinn — í tunnu. Þeir búast við að verða 12 ár á leiðinni. Stjörnufræðingum í Cambridge hefir tal- ist svo til, að halinn á halastjörnunni, er hér sást i janúar mundi vera 9.000.000 mílna.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.