Ísafold - 05.08.1911, Síða 1
KemTli út tvisvar i viku. Vorft Arg. (MO
arkir raia8t) 4 kr. erlendi*» P ki e*a 11/»
dollar; borsfiat fyrir mibj&a iúli (erlendis
fV^ir fram).
ISAFOLD
UppsOgn (skriflos:) bundin viö Aramót, er
ógud nema komm sé til útgefanda fyrir
1. ott. bc..tpundi skuldluus vib blabib
Afjrroibela: Ao»tarsfcr»ti 8,
XXXVIII.
árg.
I
Iteykjavík
5. águst 1911.
48. tölublað
I. O. O. P. 921189
Ðókasafn Alþ. lestrarfél. Pósthússtr. 14 5—8.
Fornpripasafn opib hvern virkan dag 1*2—2
íslandsbanki opinn 10—2 V* og 6l/«—7.
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. til
10 söd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 ‘/» sibdegis.
Landakotskirkja. öuðsþj. 8‘/» og B á helgum
Landakotsspítali f. sjúkravitj. 10 */«—12 og 4—5
Landsbankinn 11-21/», ff/t-81/*. Bankastj. viö 12-2
Landsbókasafn 12—B og 5—8. Útlán 1—B
Laiidsbúnaóarfólagflskrifstofan opin trá 12—2
LHiidsfóhirðir 10—2 og 5—Ö.
Landsflkjalasafuið á þrd. fmd. oe ld. 12—1
Landsíminn opinn virka daga 8 árd. — 0 stðd.
helga daga 8—11 og 4—6.
Lrvkning ók. i læknask. þriðjd. og föflt.d. 11—12
Náttúrugripasafn opið 1 */«—2*/« á sunnudögum
Ókeypis eyrna-, nef- og hálslækning Pósthús-
stræti 14 2. og 4. fimtud. i liv. mánuði. 2—B.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opnai 10-4 daglega.
Sýning gripa Jóns Sigurðssonar í Safnaliúsiuu
opin kl. 12—2 hvern dag.
Tannlækning ók. Pósth.str.14, 1. og B. md. 11—1
Vifils8taðahælið. Heimsóknartími 12—1.
Taxafíóagufubáf. Ingóífur
fer til
Borgarness i. 7. 11. 17. 22. 30. ág.
Sandgerðis 15. ágúst.
Keflavíkur 4. 15. 21. 23. ágúst.
Garðs 4. 15. 25. ágúst.
Taglhnýtingarnir.
Honuni er ekki saman fisað bless-
uðum þingræðisbrjótnum okkar uppi
í ráðherrasætinu, ef um það er að
tefla að brjóta þingræði, stjórnarskrá,
réttlætiskröfur og þess háttar. Og
brjóstheill er hann, þegar hann þarf
að ganga ofan í sjálfan sig frá fyrri
árum — til þess að hnýta sér sem Jast-
ast ajtan í tagl Heimastjórnarmanna.
Það er hverjum nianni kuntiugt,
hvernig hegðun hans var á þingi í
vetur, hvernig hann gleypti hvern bita,
sem honum var skipað í sig að láta,
af Heimastj.(!)mönnum — en fussaði
og skók sig við áhugamálum Sjálf
stæðismatina.
Fyrir ekki löngu myndi margur
hafa ætlað, að Kr. Jónssyni yrði dá-
lítið bumbult af því að tylla Sannleiks-
vitninu í gæzlustjórasess Landsbank-
ans. —
En á þingi 1911 — er búið var að
smeygja á hann Heimastj.(l) taglhnútn-
um — varð honum eigi mikið fyrir
öðru eins smáræði.
Hann hékk og í tagli Heimastj.(l)-
manna í loftskeytamálinu, í eftirlauna-
málinu, i botnvörpusektunum, í bann-
frestunarmálinu. Hann lét þá hnýta
sér aftan í sig í Öllum nefndarkosn-
ingum ; hann lét þá yfirleitt nota sig
eins og þægt lamb til slátrunar leitt.
En þrátt fyrir allan þenna tagl-
hnýtingsskap Kr. J. — hafa margir
menn þó hingað til kveinkað sér við
að trúa þvi, að Kr. J. mundi svíkja í
sambandsmálinu. Hann hefir sjálfur
öðru hverju verið að hampa þvi, m.
a- á þingmálafundum í kjördæmi sínu
— að i sambandsmálinu væri hann
hinn sami og áður. Með öðrum orð-
um: Þingræðisbrjóturinn hefir haft
það á oddinuni, að þótt hann sviki í
öllum öðrum málum, þá mundi hann
standa sig í sambandsmálinu.
Sjálfsagt hefii Kr. J. ætlað að reyna
að halda þetta loforð sitt — haft fufi.
an vilja á því, fyrst í stað. En hér
sem ella virðist hann hafa bugast lát-
ið — kjarkurinn bilað að halda til
streitu gagnvart Heimastj.(l)mönnum
því sem hann álítur réttmætt — al-
veg eins og í sumar, er setja átti i
háskólaembættin. Kr. J. tjáði sig þá
mjög um það við menn, að i tvö
þeirra embætta yrði engir menn settir,
af þvi að sérstaklega stóð á um þau;
gerði það fram á síðustu stundu. Kl.
11 einn daginn hafði hann þvertekið
fyrir það, að sett yrði í þessi embætti,
en kl. 2 var hann þó búinn að því.
Heimastj. klærnar verkað þetta litla á
3 tímum.
Eins virðist nú komið um sam-
bandsmálið. í því virðist taglrembi-
hnútar iunlimunarmanna vera í þann
veginn að binda Kr. J.
J. Ól. segir svo nýlega um Kr. J.:
»Núverandi ráðherra er ekki sam-
dóma ossl) að öllu leyti í sambands-
málinu, þótt að hann aðhyllist hins
vegar ekki persónusambands-vitleys-
una, og því síður skilnaðinn®.
Ekki að öllu lcyti — segir J. Ol.
En fróðlegt væri að vita hvað það er,
sem skilur Kr. J. og Heimastj.(l)menn
í sambandsmálinu nú — og hvað
langan tíma þarf til að eyða þeim
misskilningi(l)
En eitt er þegar sýnt með þess-
ari yfirlýsingu J. Ól., sem Jónatan
hefir þagað við, að Kr. J. er runninn
frá stefnu Sjálfstæðisflokksins í þessu
»máli málannac, og er að smá fika
sig yfir til innlimunarmannanna.
Sjálfstæðismenn eru þeir Kr. J. og
hans — fáu — fylgifiskar ekki. —
Heimastjórnarmenn vilja þeir enn ekki
láta kalla sig.
Taglhnýtingarnir! — taglhnýtingar
Heimastj (l)manna — mundi því rétt-
nefni fyrst um sinn.
Karl i koti.
íslenzk uppgötvun.
Netakúlur ísólfs Pálssonar.
Lesendur ísajoldar munu kannast
við IsólJ Pálsson organista á Eyrar-
bakka. Hann er mikill snillingur um
ýmsar hugvitssmíðar. Hér í blaðinu
var sumarið 1909 getið einnar upp-
götvuuar hans, nýtízku nótna-skriftar.
Nú hefir þessi sami maður nýverið
gert aðra uppgötvun, er frekar verður
látin í askana, uppgötvun, sem verða
mun annari aðal-atvinnugrein vorri,
sjávarútveginum að miklu liði.
Hann hefir búið til netakúlur, eða
netasteina af nýrri gerð miklu betri
og hentugri en hingað til hafa verið
notaðir.
Gerð kúlanna skal eigi farið út i
hér. En formenn á Suðurlands-undir-
lendi æði margir hafa notað þá og
gefið það vottorð, að hér sé um stór-
mikla framför að tefla.
Helztu kostir þessarra ísólfs-steina
eru að dómi formannanna, að fljót-
legra er miklu að leggja netin og
taka, miklu minni hætta, að netin
tapist, og þau haldast betur við botn-
inn með þessum steinum en öðrum.
Kúlur þessar er þegar farið að nota
rnikið austan fjalls.
Nú hefir herra ísólfur Pálsson feng-
ið einkarétt á uppgötvun sinni og er
nú að reyna að gera sér fé úr hon-
um með því að selja hann, til þess
að geta með því meiri krafti snúið
sér að öðrum uppgötvunum, sem um
sig eru að búa í honum.
Sýnishorn af neta-kúlum ísólfs er
á Iðnsýningunni, í herberginu, sem
sjávarafurðir eru sýndar í. Þar er
tækifæri gott til að skoða þær bæði
á sunnudag og miðvikudag, — þá tvo
daga, sem Iðnsýningunni enn er haldið
opinni.
‘) Þ. e. innlimunarmönnum.
Bretar á Egiptalandi.
Umboðsmaður Breta á Egiptulandi
Eldon Gorst lézt 12. júlí. Hann hafði
verið brezkur fulltrúi þar í landi 4
síðustu árin eða hinn eiginlegi stjórn-
Eldon Gorst.
andi landsins. Ekki þóttu honum
láta vel þessi hin mikilvægu störf.
Linur og framkvæmdalitill, en mótstað-
an gegn Bretum meðal þjóðrækinna
Kitchener lávarður.
Egipta sívaxandi. Nú er helzt talað
um að gera Kitchener lávarð, þann er
beztan gat sér orðstír í Búastyrjöld-
inni, að fulltrúa i stað Eldons Gorst.
Norræna stefnan
á Færeyjum.
Furðu mikið — og mjög um of
hefir það farið fyrir ofan garð og
neðan hjá oss Islendingum — mót
það, er stofnað var til á Færeyjum í
öndverðum júlí með Færeyingum, Is-
lendingum og Norðmönnum. — Al-
ment munu menn hér á latidi alls
ekki hafa vitað neitt af því fyrirfram.
Enda lá nærri, að enginn Islendingur
mundi rnótið sækja. Svo mikið var
tómlætið.
Norrœnar stejnur — eru tiltölulega
ný hugmynd, sprottin upp hjá Norð-
mönnum og þær til þess ætlaðar að
auka kynning og vinna að vinarhug
og samhygð milli þjóðanna af hinum
norræna þjóðstofni — þ. e. Norð-
manna og tveggja þjóðanna, sem frá
Norvegi eru runnar, Færeyinga og
Islendinga.
Hið fyrsta mót — með þessum
hætti — var sett fyrir þrem árum í
Norvegi. Það mót sóttu þó engir
íslendingar.
Annað sinni var stefnt til móts í
Færeyjum 1. júlí þ. á. Þangað sóttu
70 Austmenn og 2 íslendingar. Annar
íslendinganna fór í umboði Ung-
mennafélaganna: Halldór Jónasson
skólastjóri. Hinn var Matthías gamli
Jochumsson. Var hinn aldni skálda-
spillir á ferð í Norvegi, er Austmenn
létu í haf og slóst þá í för með.
Meðal Norðmanna, er mótið sóttu,
var skáldið, síra Anders Hovden,
Gelsvik prófessor, er bezt reit móti
Uppkastinu 1908, Taranger prófessor,
| Lavik ritstjóri »Gulu Tíðinda* o. s. frv.
Mótið stóð yfir 3 daga og fór fram
hið bezta að öllu leyti. íslands var
þar minst mjög hlýlega, bæði í ræð-
um og kveðskap. M. a. flutti norska
skáldið Hans Mo svofelda kveðju til
íslands á landsmálinu norska — og
tnunu væntanlega flestir lesendur vor-
ir skilja:
Langt nt i vest seg yver Havet kvelver
ein Himmel rattd av fild,som heng og skjelver;
og der — ein einsam Siglar — som etter eit
Forlis
du ligg og ror og kavar deg langsmed Polens Is.
Avgöymt Folk or emaa Heimar glytta,
Storm og Snjo herjar Hus og Hytta, —
kalde Land!
Men under dine gröne Jöklar kalde
der nlmar Eld i nakne Bergom alle, —
med Ofse jamvel bryt seg or djtipe Krater fram
og fyller Skar med Lava, som storknar
Tram fyr Tram.
Heite Foss Hekla fraa seg hiver,
raudt paa Sky Namnet Island skriver, —
varme Land!
Du er ’kje rikt paa grume Slott og Salar;
men du hev Nes og Oddar, Fjell og D&lar
med flöyelsmjuke Grassvord, og tiröygd
Blomen skyt,
naar Fossar sjölv paa Island si Vinter-
brynja bryt.
Gröne Tjeld — Björk i laage Ruster —
angar sött, varme Kjeldor gustar, —
fagre Land!
Det Fræ, som harde Haraldsstormen hivde
til Havs, du tok i Moderfamn og livde,
tildess at upp det hrydde i Soga og i Song
so rikt, at Noreg-Island fekk Rett til
Folkerang.
Evig ung denne Mor ho föder;
evigt raudt Ydnnseplet glöder, —
Sogeland!
Fraa Noregs Ungdom skal eg högt deg helsa
med di, at no me vil vaar Framtid frelsa
med Reising av den Arven, som Fedrene
oss gav,
og som du göymde aat css, du Bror vaar
ut i Hav! —
Hand i Hand vil vaart Guld me verja;
heilag Eid: Elsk til deg me sverja;
Frendaland!
Sendimaður Ungmennafélaganna hr.
Halldór Jónasson endar svo frásögn
sína af mótinu í Austra:
Þannig endaði þessi stefnufundur
eða norræna kynnisför til Færeyja og
var hún fyrirtaks ánægjuleg fyrir alla
málsaðila, en sá einn galli á, hvað
hluttaka íslendinga var lítil. Vér
erum ekki góðu vamr, en erum samt
langt um ríkari en vér höldum, þar
sem vér eigum frændþjóðir, sem vilja
að fyrra bragði leita af oss við-
kynningar og auðsýna oss öll merki
bróðernis og vináttu. Ættum vér
sizt að hafna þessu, þvi að ber er
hver að baki, nema sér bróður eigi, og
hver veit hvenær reynir á þolrifin
hjá oss.
Þau kynni, sem vér höfum af norsk-
um og færeyskum atvinnurekendum
hér við land, eru allsendis ónóg til
þess að mynda nokkurt innra samband
milli þjóðanna, og varð eg auk heldur
var við það, að Færeyingar þættust
ekki hafðir í hávegum hér heima,
hvorki í umgengni, ræðum eða ritum,
Sé nokkuð hæft í þessu, mundi slíkt
hverfa við nánari viðkynningu, en virð-
ing aukast hjá oss fyrir svo starf-
samri, duglegri og gáfaðri þjóð, sem
Færeyingar eru í raun og veru, þótt
hæfileikar þeirra hafi ekki fengið að
njóta sín enn til fulls fyrir fargi
framandi þjóðernis. Norðmenn eru
lengst komnir vor þriggja og lang-
stærstir og fjölmennastir, enda hefir
það mikil og fjörgandi áhrif að kom-
ast í kynni við þá, og svo víst sem
það er, að Færeyingar munu lengi
minnast heimsóknar þeirra, í sumar,
þá ætti oss íslendinga eigi síður að
fýsa til samfunda við þá. Mun siðar
verða leitað hófanna um hvar og hve-
nær þessar þrjár þjóðir geti fundist
næst á norrænum stefnufundi.
Þingmenskuframboð.
Um veturnætur verður skorið úr
iví, nvort innlimunarmennirnir frá
1908 eða Sjálfstæðismennirnir, þeir
er leystu landið úr fyrirhuguðum
æðingi þá — eiga að ráða í landi hér.
Nú þegar er farið að undirbúa og
týgja sig til veturnóttabardagans um
öll héruð.
Spurst hefir nokkuð, hverir hafðir
verði á oddinum sem þingmannsefni
í ýmsum kjördæmum landsins. Sumt
af þeim sögnum munu þó mega get-
gátur heita.
I höjuðstaðnum verða f kjöri hinir
gömlu þingmenn af Sjálfstæðismanna-
lálfu, en LHB og Jón Jónsson af
innlimunarmanna hálfu, en Halldór
Daníelsson og Guðm. Fitinbogason
magna bannfjendur fram á vígvöllinn.
í Gullbringu- og Kjósarsýslu verða
ieir í kjöri aftur Björn Kristjánsson
og síra Jens, en sagt er, að innlim-
unarmenn muni eigi svo mikið sem
reyna að etja neinum á »svartasta
blettinn« — á þeirra máli, þ. e. eitt-
ívert ágætasta vígi fyrir sjálfstæði voru
á öllu landinu. — I Arnessýslu er verið
að leita hófanna um fylgi 7 innan-
íéraðsmanna — þeirra Eggerts í Laug-
ardælum, síra Ólafs í Arnarbæli, síra
Gísla á Stórahrauni, Gísla bónda í
Stakkavík, Jóns Jónatatissonar á As-
gautsstöðum, síra Ólafs í Hraungerði
og Gunnlaugs á Kiðjabergi. Auk þeirra
munu Hannes Þorsteinsson og Sig.
ráðunnutur ætla að sækja sér minni-
iluta við kjörborðið þar — til til-
breytni. -— I Rangárvallasýslu mun
óráðið um þingmannsefni af Sjálf-
stæðismanna hálfu, en haft fyrir satt,
að þeir Einar og síra Eggert eigi að
erfiða fyrir innlimuninni. í Vestmann-
eyjum fær bæjarfógeti vor tíma til að
bjóða sig fram, en ekki hljóðbært orð-
ið, hver þar muni reyna sig móti
honum. í Vestur-Skajtajellssýslu sæk-
ir sýslumaðurinn þar mjög eftir þing-
mensku af »taglhnýtinga« hálfu, en
móti honum sækir Gisli Sveitisson;
en sagt, að Gunnar Ólafsson muni
eigi hugsa til þingmensku þar. í
Austur-Skajtafellssýslu býður Þorleifnr
Jónsson frá Hólum sig fram, en ó-
kunnugt um, hvaða mann Heimastj.(l)
fær til að »dumpa«- þar. Suður-
Múlasýslu mun ætlað að bíta á Jóna-
öngulinn, sama og 1908 — af inn-
limunarmönnum, en hverir Sjálfstæðis-
menn bjóða sig fram þar er enn óá-
kveðið. Á Seyðisjirði er sagt, að Sjálf-
stæðismönnum leiki hugur á Kristjáni
lækni Kristjánssyni, en hvort hann
gefur kost á sér, mun ófrétt enn. Af
hinna hálfu er dr. Valtýr sagður eigi
ófús að láta leiða sig til slátrunar. í
Norður-Múlasýslu kváðu þeir Jóhannes
sýslumaður og síra Eirtar Jónsson eiga
að bera merki Heimastj.(l), en Jón á
Hvanná og síra Björn Þorláksson
kváðu bjóða sig fram móti þeim. —
Auk þess nefndir til einir 2 aðrir
frambjóðendur, Halldór og Jón Stef-
ánssynir. I Suður-Þingeyjarsýslu er
Pétur Gautl. eilífur Heimastj. augna-
karl, en ekki veit maður enn, hver
býður sig fram móti honum. í
Norður-Þingeyjarsýslu býður Benedikt
Sveinsson sig fram aftur og yfirvald-
ið fyrv. 4. kgkj. þar móti honum. í
Eyjajjarðarsýslu mun bankastjóri ópóli-
tisku stofnunarinnar, sem bannar óæðri
starfsmönnum að fást við pólitík, enn
hugsa sér til hreifings, og Stefán frá
Fagraskógi kvað eiga að fá að fljóta
með — en hverir bjóða sig fram
móti þeim er enn ófrétt. Á Akur-
eyri kvað yfirvaldið eiga að þeyta
Heimastj. básúnuna móti Sig. Hjör-
leifssyni. Ur Skagajirði hefir eigi ann-
að heyrst en að gömlu þingmenn-
irnir bjóði sig fram, en móti þeim
haft orð á þeim síra Árna Björnssyni
og jafnvel Stefáni skólameistara á Ak-
ureyri. í Húnapingi hefir flogið fyrir,
að Þórarinn Jónsson, áður kgkj., eigi