Ísafold - 05.08.1911, Síða 3
ISAFOLD
191
Glaðlyndi hressir og fjörgar
hugann eins og heilnæmt
læknisfyf hressir íikamann
Sunlight sápan visar á bug
deyfð og drurrga.
Hun gjörir bjart yfir
heimilinu og gjörir erfiði
dagsins ljuft og ánægjulegt.
SUNLIGHT SÁPA
2241
Beitarlandið.
Hið afgirta land í Fossvogi og austurhluti Vatiísmýrarinnar er eingöngu
ætlað til kúabeitar. Kringlumýri, Mjóamýri og Sogin innan girðinga til hesta-
beitar. Þeir, sem vilja láta hesta sína og kýr í beitarlönd þessi, snúi sér til
vörzlunarmannsins Þorsteins Þorsteinssonar, Laugavegi 380 (talsími 160).
Hestarétt er við heimili hans, og sækir hann hesta dag hvern kl. 8 árd. og
kl. 2 síðdegis og flytur hesta kl. 8 og 10 síðdegis. Kúaeigendur sæki og
flytji kýr sinar.
Borgarstjóri Reykjavíkur, 3 ágúst 1911.
Páít Einarsson.
Úrsmíðavinnusfofa mín er fíuft
í Tfófeí Ísíand (vesturl)futann).
Inngangur úr TJðafsfræti.
Carí T. Barfeís.
Gasinnlagningar
fyrir sama verð og áður, legg eg fyrir þá, sem um það biðja fyrir
1. september n. k. Carl F. Bartels í Hótel ísland tekur á móti pöntunum.
Frá 15. ágúst verður mig að hitta í Aðalstræti 8.
Vatnssalerni og allan útbúnað til skólpræsa útvegað og uppsett fyrir
sanngjarnt verð.
'Porkeíí P. Cíementz, vatn- og gasmeistari.
Bakarí.
Bakaríið í Vesturgötu 14, eigu dánarbús C. Fredriksens,
er til sölu. Bakaríð er nrjög gott og er þar mikil verzl-
un, sem gefur góðan arð.
Lysthafendur snúi sér sem fyrst til Jes Zimsens í
Reykjavík, sem gefur nauðsynlegar upplýsingar.
Samsöngvar.
Hinn efnilegi ungi söngvari vor,
Pétur A. Jónsson, hefir á tveimur sam-
söngvum veitt bæjarbúum miklaánægju
með söng sinum, og má með sanni
segja með ofurlítilli orðabreytingu, að
hann í þetta sinni »kom, söng og
sigraði“. Sönghljóð hr. P. J. eru
afarmikil; það var oss Reykvíkingum
áður kunnugt, en nú hefir bæzt við
það sem áður vantaði. og það er list-
in að nota þessa miklu sönggáfu, með
öðrum orðum góður »skóli * og vald
}’fir röddinni. Þeg.ar lir. P. J. var
hér síðnst og vér áttum kost á að
heyra söng hans, naut söngröddin
sín bezt, þegar henni var beitt
með fullum krafti, en nú má segj.i,
að hún nýtur sín ekki síður þegar
söngvarinn syngur veikt. Söngrödd
hr. P. J. er afarmjúk og hreimfögur,
þó ekki tæki hann á öllu þvi, sem
hann á til, það sýndi hann bezt t. d.
í tveimut' smásöngvum eftir Lange-
Múller: »Aakande« og »En Engel
har rört din Pande*. I söngvum úr
»operum« Wagners Valkyrjunni og
Lohengrin þótti mér ekkert vanta
á karlmenskubrag og kraft í söng hr.
P. J., en þó sá blíðleikur og sú við-
kvæmni samfara, sem tónskáldið læt-
ur bregða fyrir í þessum snildarsöngv-
um sinum. Aria úr ítalskri operu
»Tosca« eftir Pucchini söng hr. P.
J. snildarvel og varð hann að syngja
bæði það og »Sverrir konungur« aftur.
Sérstaklega vil eg geta þess, að hr.
P. J. í »Tosca« náði t. d. ágætlega
tökum á því, að lýsa með söng sín-
um þeirri örvæntingu og viðkvæmu
sorg, sem felst f hendingunum:
»Forbi for stedse, Döden nu skal
os skille. — Nu ved jeg först hvor
höjt jeg elsker Livet« — »ja, elsker
Livet*.
Það er óþarfi að lýsa frekar þess-
um samsöngvum hr. P. J., — nóg
að segja, að þeir, sem ekki enn þá
hafa farið til þess að heyra þennan
bezta söngvara vorn, ættu ekki að
setja sig úr færi, ef hr. P. J. gefur
enn kost á einum samsöng. Gæfan
fylgi honum, er hann nú kveður land
sitt um ófyrirsjáanlega langan tíma,
til þess að leita sér þess fjár og frama,
sem vér landar hans erum of smáir
og fátækir til að veita honum.
Á. Th.
-----4-----
Fáninn og útlendingar.
Vér eigum, ekki hvað sízt, að leggja
oss i framkróka um að sýna fána vorn,
hinn íslenzka, er útlendinga ber að
garði vorum. Hann er sýnilegt merki
þess, sem vér viljum vera, sjáljstæð
pjóð í jrjálsu landi.
Aldrei ber jafnmarga útlendinga
hingað í einu og þá er þýzku ferða-
skipin koma.
Þegar Cincinnati var á ferðinni í
júlí, sáust ekki nema 1 eða 2 fánar
íslenzkir á stöng. Það var ilt frá-
sagnar.
Nú er von á næsta ferðamannaskipi
í miðri næstu viku.
Þá ættu fánaeigendur vorir eigi að
leggjast undir höfuð að sýna þjóð-
ernismerki vort.
íslendingasundinu
er frestað til sunnudagsins 13. þ.
m., kl. 6 síðd., sakir ógróinna meiðsla
bikarshafa. — Þessu varð komið við
í þetta sinn með því að engir keppi-
nautar koma langt að.
Þingvallaferðir.
Allir sem vetlingi valda rjúka nú
úr bænum upp í sveitir. Enginn er
þó sá staður, er jafnmjög dregur að
sér bæjarbúa eins Og Þingvellir. Alt
er þar fult aí fólki og margt liggur í
tjöldum. Þing í nýjum stíl — er nú
háð þar á hverju sumri. En róstu-
þing er það eigi — heldur hvildarping
og hressingar fvrir ryk- og ólofts-
þreytta Reykvikinga. Ekki getur held-
ur unaðslegri sumarverustað, þá er
veðurguðinn er í mildu skapi.
En hversu niargir mundu það vera
af Þingvallaförum, sem athuga nokkuð
hina fornu sögustaði þarf
í brekkunni niður að Öxará frá Al-
mannagjá gegnt Þingvallabæ — er
hver búðarrústin af annarri. Þessar
rústir er mjög gaman að skoða.
Uppdráttur af Þingvöllum eftir Sigurð
heitinn málara er til — og sýnt þar,
hvar margar hinar helztu búðir höfð-
ingjanna voru. Eftir þeim uppdrætti
eru t. d. auðfundnar rústir af Njáls-
búð, búð Snorra, Möðruvellingabúð
o. s. frv. o. s. frv.
Hver sem hefir gaman af sögu
landsins ætti að hafa þann uppdrátt
við hendina og kynna sér nokkuð
frásagnir úr íslendingasögum um við-
Luirði á alþingi hinu forna, t. d. liðs-
bónarfcrð Njálssona og m. fl. — og
mun ánægja hans af Þingvalladvól-
inni at meiri.
Konsúlar
hafa þeir verið viðurkendir nýlega:
Ólafur Jóhannesson á Vatneyri, frakk-
neskur konsúlaragent og Guðm. Lúter
Hannesson á ísafirði, norskur visi-
konsúll.
Eydalaprestakall
var veitt 10. júlí síra Pétri Þor-
steinssyni, sem lengi hefir verið þar
aðstoðarprestur.
Reykjavikur-annáll.
Aðkomumenn : Pétur Ólafsson konsúll frá
Patreksfirði, Sæm. Halldórsson kanpmaður
Stykkishólmi, sira Pétur Þorsteinsson frá
Eydölum,
Dáinn: Gisli J. Nikulásson, ógiftur, 53
ára, frá Norðurkoti f Vogum. Dó 4. þ. mán.
á Spitalastig 10.
Erindi um alþjóðakvennafundinn i Stokk-
hólmi, og ferð um Svíþjóð flytur stud. mag.
Laufey Valdimarsdóttir í Iðnaðarmanna-
húsinu í kvöld. M. a. fléttar hún inn i
erindið ræðu eina eftir skáldkonuna Selmu
Lagerlöf, er hún flutti á kvennafundinum.
Ferðalög: Landritari er á ferðalagi aust-
ur um sveitir þessa dagana. Síra Ólafur
frikirkjuprestur sömuleiðis, og margt annað
bæjarmanna.
Guðsþjónusta í dómkirkjunni á morgun
kl. 10 slra Pr. Fr.
Stra Jóhann og slra Bjarni báðir fjarver-
andi.
Ekki messað i frikirkjunni á morgun, prest-
urinn fjarverandi,
Síra Pr. Pr. gegnir fyrir alla (3) prestana
meðan þeir eru fjarverandi.
Skipaferðir: Ceres iár til útlanda á fimtu-
dagskvöld. Pari tóku sér allmargir Vestur-
farar (30) auk nokkurra aunarra farþega.
Þýzka herskipið, Viktoria Luise, sem hing-
að var von i júlí, en kom ekki þá, kvað
koma hingað á morgun.
Suður í Sundskála. Eg las um daginn
all-ítarlega grein um Laugarnar eftir Vig-
disi, og langar til að segja nokkur orð
þeirri grein viðvíkjandi. Eg get ómögu-
lega orðið VigdÍBÍ samferða í sjöunda him-
in, sem hún kemst í, þegar hún hugsar um
þá veliíðan, sem hún fann eftir baðið. Þvi
þegar eg hefi farið inn í Laugar, sem sjald-
an hefir komið fyrir, hefi eg farið að eins
til að læra sund, en ekki til að fá mér
hress.tndi bað, enda mun fæstum liða vel,
eftir að hafa verið '/s—1 kl.st. i 20—30
stiga heitu vatni. Nei, þá vil eg ráða Vigdisi
og öðrum fleiri — að fara einu sinni suð-
ur i Sundskála, fá sér þar sól og sjóbað,
þvi það er hressandi og holt, og hættulaust
fyrir alla heilbrigða menn. Þeir sem ekki
kunna sund geta þó vaðið, sólin og sjórinn
gjöra sitt fyrir þvi. Ef sundskálinn væri
betur sóttur, þá held eg að við sæum nkki
eins mörg náfol andlit og við sjáum nú á
götunum hér í Reykjavik, og ef ungu stúlk-
urnar og piltarnir hugsuðu meira um að
hetða líkama sinn en þau gjöra, gjöra hann
færari til að standast árásir sjúkdómanna,
þá mundu færri unglingar falla á miðju
æskuskeiði og þjóðin vera hraustari en hún
er nú. Höfum þetta hugfast, og látum leið
okkar sem oftast liggja suður .að Sund-
skála. Við þurfum þess.
Káta.
Látin er Andrea Jóhannsdóttir, kona Er-
lendar bóuda Giunnarssonar á Sturlu-Reykj*
um. — Góð kona og mikils jnetin.
Laus embætti og sýslanlr. Skólastjóra-
stadan við Iðnskólann verður laus 1. okt.
næstkomandi. Umsóknir á að senda stjórn-
arráðinu fyrir 15. sept.
Prestakallið Kirkjubær i Hróarstungu;
veitist frá fardögum 1912. UmBÓknarfrest-
ur til 1. okt.
Sýslumannsembœttið i Suðurmúlasýsiu.
Árslaun 3000 kr. Umsóknarfrestur til 10.
sept.
Kennarasýslan við bændaskólann á
flvanneyri. Árslaun 1200 kr. ásamt leigu-
lausum bústað. Umsóknarfrestur tii 10.
sept.
Fífldirfska Landsbankagæzlustjórans,
sem Kr, Jónsson smeygði inn á atkvæið
sínu, keyrir æ meir og meir úr hófi
fram.
Hati.i blygðast sín eigi fyrir að vera
að nudda á hiuum rakalausu ósannind
um, sem margrekin eru aftur, um að
svo og svo mikið af iatidssjóðsláninu
frá 1909 hafi eigi komið til skila. Hann
var í fyrra sífelt að ala á mannorðsmeið-
andi getsökum út af þessu máli í garð
fyrv. ráðherra. Fyrir kverkar þeim
dylgjum neyddist núv. ráðherra að taka
á þinginu, og lysa yfir í báðum deild
um, að þessar dylgjur, sem upphaflega
mun hafa verið spytt í J. 01. af sjálfri
Hans Hágöfgi, væru rakalaus ósannindi
þ. e. hver eyrir af lánintt í röð og reglu.
Nú fitjar »pólitiska k 1 áðaro11 aii«, sem
Jón Sigurðsson svo kallar í brófum síu-
i?m, enn ttpp á þessum lygttm og fjasar
um að 75000 kr. hafi aldrei kornið til
skila í bankHnn etin í dag.
Naumast verðttr ráð fyrir því gert,
að Laiidsbaiikagæzlustjórinn viti ekki,
að þessar 75000 kr. voru borgaðar í
fyrstu afborgun lánsins, svo sem getið
er í ísafold 5. apríl þ. á., af herra Ind-
riða Einarssyni.
Og hvað er J. Ól. þá að gera með
atferli sínu?
Vísvitandi, vísvitandi — það sem hon-
um er tamast.
Kári.
f ^
Sighvatur Árnason.
fyrv. alþingismaður.
Drúpa Eyja fornu fjöllin
fregn við dánar," afreksmanns
þar sem skreyttur laufi liggur
langrar æfi vegur hans.
Prægri sögu átti enginn
austur þar i kærri sveit;
hún mun lifa' i margra minni
meðan bærast hjörtu 1 eit.
Liklegt er að þjóð og þingi
þyki vert að minnast á,
bvílik ást á ættjörð vorri
i hans lifi fólgin lá.
Hver mun fram í háa elli
hjá os8 stiga fleiri spor
landsins bag til gagns og gæfu?
gott, ef 8á finst meðal vor.
Hver sem kemur aust'r, að ánum
— ef til brúnna litur sá —
merkiskafla’ úr Sighvats sögu
sigur frægan lesa má.
Það var ekki þarflaus mælgi
þessu máli er ruddi brant
oft sem mótbyr átti strangan,
unz að lokum vanst sú þraut.
Æfi8törf mins aldna vinar
ekki er þörf að telja hér,
þjóðin geymir þau i heiðri
þakklát, eins og verðugt er.
En eg vil þó á það benda
ungum sonum þessa lands,
að þeir fylgi drengskaps-dáðum,
dæmi frægðarverka hans
Þó hann sé frá sjónum vorum
svifinn eftir langan dag,
veit eg enn hans andi þráir
08S til handa frjálsan hag.
Mér er lika sem hann segi
svo að heyri gjörvöll þjóð:
Synir aldrei svikið móður,
sverjið það við hjartans blóð.
*
* *
Farðu vel með vopnin slitin!
vel má sjá i eggjum skarð,
baráttan fyrst borið befir
börnum landsins dýran arð. —
Sé þér rótt, þú legst nú lúinn
lágt við móðurjarðar skaut;
horfi blítt á hvilu þína
himinsól af geisla braut.
Jón Þórðarson
Morgunkjólar, góðir og ódýrir,
til sölu á Bergstaðastræú 20.
t
cHrvaRur úívoréur
urn sjálfstæði íslands og hverskonar
menning og framfarir lands vors og
þjóðar er blaðið
NORÐURLAND
Ritstjóri: Sigurður Hjörleifsson
alþingismaður á Akureyri.
Hver sá, er ann viðreisn og sjálfstæði
landsins, ætti að kaupa það blað og
lesa. — Það kostar 3 kr. um árið;
en þeir sem gerast kaupendur á þess-
um ársfjórðungi, fá blaðið til ársloka
fyrir 2 kr.
Útsölumaður í Reykjavík er
Sigurbjörn Porkeísson
verzlunarm. Edinborg (Njálsg. 44).
Brúkuð frimerki
keypt:
Almenn (Chr. IX og 2 kóngar).
I eyrir pr. 100 st. 60 aur.
3 aurar — stykki 2 —
4 - - - 2 -
5 — - — I —
6 — — — 4 -
10 — - — 1
16 — — — 12 —
20 - - — 5 —
25 - — - 15 —
40 — — - 20 —
50 — — — 30 —
100 — — — 85 —
200 — — — 170 —
Þjónusta.
3 aurar pr. stykki 2 aur.
4 — — — 3 —
5 — — — 4 —
10 - - - 6 —
16 - — - 12 —
20 — - - 12 —
50 — - — 35 —
Eldri frímerki isl. og bréfspjöld
keypt hæsta verði.
Einnig útlend frímerki keypt.
A. Gregersen.
Hittist á Hótel ísland daglega kl. 4—8.
Fundist hefir regnkápa á Mos-
fellsheiði aa/7; vitja má til Ásgeirs G.
Stefánssonar trésmiðs, Hafnarfirði.
Brúnn hestur, 3—4 vetra, m.:
stúfrifað vinstra, er í óskilum að
Fremra-Hálsi í Kjós. Eigandi vitji
hans sem fyrst gegn borgun þessarar
auglýsingar og annars áfallins kostnaðar.
Rauður hestur,
mark blaðstýft aftan vinstra, spjald i
tagli merkt Kópavogur, tapaðist frá
Skildinganesi siðastl. sunnudagsnótt.
Finnandi skili eða geri viðvart til
dómk.prests Jóhanns Þorkelssonar eða
Brynjólfs í Skildinganesi.
Hér með tilkynnist, að jarðarför
manesins míns sal., Ara trésmiðs Hall-
varðssonar, fer fram frá Landakotsspit-
ala þriðjud. 8. þ. mán. kl. ll‘/2.
Sólborg Helgadóttir.
Innilegt þakklæti
finnum við okkur skylt að vetta opinberlega
herra járnsmið Sigurði Vigfússyni i Hafnar-
firði fyrir frábærar velgerðir hans víð okkur
og barn okkar, Jóhönnu Ólafíu, er hann tók
til fósturs i vor af okkur bláfátækum. Göfug-
lyndi þessa manns, sem er okkur með öllu
vandalaus. og velgjörningur hans i örðugum
ástæðum okkar, getam við engu öðru launað,
en að biðja algóðan guð að borga honum
fyrir okkur og barnið okkar. Og þeirri ósk
fylgja okkar ínnilegustu bænir til guðs um
blessun og gæfu honum til handa i bráð og
lengd.
Reykjavik, Lindargötu I.
Sigurður Ólafsson. Maren Ingibj. Guðmundsd.
Karlmaúus-urfesti úr silfri
hefir tapast frá Laugaveg að Oðins-
götu 8 B. Skilist þangað. Há fund-
arlaun.