Ísafold - 04.11.1911, Side 3
ISAFOLD
867
Látið ykkur þykja vænt
um Suniight-sápuna.
Hún mætir ykkur á miðri
leið. Hun styttir vinnu
ykkar uni helming og
hefur helmingi minni
kostnað i för með sjer en
grænsápa.
SUNLIGHT SÁPA
Vetrarfrakkar
á fullorðna og unglinga, hæstmóðins enskt snið.
Brauns verzlun Hamborg.
-
n
n
D
-
Vefraríjúfur, sfórf úrvaí,
íjæstmóðins snið og íag.
Brauns verzí. Jiamborg.
□i
ÍD
Lúðraféíag Keykjavíkur
ætlar að fyatcfa f) l u t a v e 11 u 2. og 3. desember 1911,
og treystir fét. þeim bæjarmönnum, sem unna túðra-
spiti, að styrkja það d ýmsan þátt.
Tétagið tjefir ákveðið að spila úfi öðru íjvoru fram-
végis, þegar veður leyfir.
Sfjórnin.
nú, að Guðjón eigi sína kosningu að
þakka engu öðru en kúgun Kristjáns
ráðherra — farbanninu alræmda. Verð-
ur það hið veglega verk Kr. J. sjálf-
sagt metið að verðleikum af beggja hálfu,
sjálfstæðism. og heimanstjórnarmanna.
3 seðlar voru ógildir í Strandas/slu.
Á einum stóð milli nafna þingmanna-
efnanna: Sitt að hvorum. — Á
öðrum stóð í hringnum 8 í tölu, en á
hinum þriðja var krossað mitt á milli
beggja þingm.efnanna.
---—----------
Eftirmæli.
Þorsteinu heitinn E g i 1 s s o n
kaupm. var fæddur á Breiðabólsstöðum
á Álftanesi 5. jan. 1842. Foreldrar
hans voru hinn ágæti málfræðingur
Sveinbjörn Egilsson rektor (d. 1852), og
Helga Benediktsdóttir (Gröndals yfir
dómara). Þorsteinn heit. útskrifaðist
úr latínuskólanum 1860, úr prestaskól-
anum 1862, en tók aldrei vígslu. Hon-
um var tvívegis veitt brauð, Staðarhraun
1865 og Sandar 1867, en tók aldrei
við þeim, heldur gerðist kaupmaður í
Hafnarfirði kringum 1870 og rak þar
æ BÍðan verzlun fram til seinustu ára.
Þríkvæntur var hann, 1. sinni Arndísi
Ásgeirsdóttur (Finnbogasotiar bókbindara
á Lundum), 2. siuni Elísabetu Þórar-
insdóttur (prófasts Böðvarssonar í Görð-
um), 3. sinni Rannveigu Hansdóttur
Sivertsen og lifir hún mann sinn. Af
börnum Þorsteins heit. eru á Iífi 4 syn-
ir: Sveinbjörn verzlunarm. í Viðey og
Jóu verzlm. í Ólafsvík, báðir af fyrsta
hjónabandi, ennfr. af miöhjónabandi:
Gunnar ritstjóri Ingólfs og Þórarinn,
verzlunarm. í Hafnarfirði.
Þorsteinn heit. var fjölhæfur gáfu-
maður, svo sem hann átti kyn til.
Haun hefir ritað margt og mikið. Þar
á meðal nokkur leikrit, sem náð hafa
mikilli alþýðuhylli (Utsvarið, Prests-
kosningin). Blaðagreinar ritaði hann
margar, einkum í ísafold, þarflegar
hugvekjur um verkleg efni, þilskipaút-
veg, fiskiveiðar yfirleitt o. fl. og lika
á stundum ádeilugreinar.
Síðustu árin var Þorsteinn heit. farinn
að heilsu.
Hann veiður grafinu í dag að Görð-
um á Álftanesi.
Sigfús Eymundsson f. bók-
sali var fæddur 24. maí 1837 austur í
Vopnafirði. Tvítugur kom hann til
Reykjavíkur og fór að stunda bókbands-
iðn. Sigldi svo til Khafnar og dvaldist
þar þangað til árið 1861. En hélt þá
til Noregs og lærði þar ljósmyndagerð.
Heim kom hann aftur 1866 og dvald-
ist síðan alla æfi hér í Reykjavík, rak
hér bókband um hríð, sömuleiðis prent-
smiðju, en lengst af ljósmyndagerð og
bókasölu.
Sigfús heit. var dugnaðarmaður mik-
111, fjörmaður til framkvæmda og fylg-
inn sór. Hann átti fyrstur þátt að
gufubátaferöum hér á Faxaflóa.
Sigfús heit. var tvíkvæntur. Síðari
koua hans Solveig Daníelsdóttir, lifir
mann sinn. Þau áttu ekkert barn.
Síöustu árin var heilsa Sigfúsar heit.
biluð Og hann að mestu seztur i helg-
an stein.
Lá við Htrandi.
Saltskip tii miljónarfélagsins, Klar,
kom hingað á mánudagskvöld og
sigldi upp á granda. Hafði rekið sig
á sker í Skerjafirði yzt, svo að gat
kom á og setti þvi viljandi upp á
granda til þess að bjarga skipinu frá
að sökkva. G«V,björgunarskipið, tæmdi
svo sjóinn úr því og gat lappað svo
upp á það, að það er nú komið inn
í Viðey og er að afferma þar.
Júbilprestur.
í haust, 29. sept., átti síra Jakob
Björnsson í Saurbæ í Eyjafirði 50 ára
prestsvígsluafmæli. Hann er elzti
prestur landsins að embættisárum.
Með ári hverju fer hún vaxandi,
tala botnvörpunga, á islenzkum hönd-
um. Nú virðist samskonar bylting
vera að gerast í fiskiveiðum vorum
eins og fyrir 15—20 árum, er lands-
menn sneru huga sínum frá bátunum
opnu að þilskipunum.
Aðeins eru það nú þilskipin, sem
missa sina kórónu í hendur botn-
vörpungunum.
Það er mikilsverð framþróun i því
arna.
Nú t. d. eru ekki færri en 6 botn-
vörpungar á leiðinni yfir á íslenzkar
hendur til eignar eða umráða.
Tborsteinssonsbræðurnir, Pétur og
Th. Thorsteinsson, eru að láta smíða
sér tvo nýja botnvörpunga, sem hing-
að koma í febrúar.
Forsetafélagið er að kaupa sér nýj-
an botnvörpung, Skúla fógeta, eins
og. getið er annarsstaðar í blaðinu.
Pétur Ólafsson konsúll er í þann
veginn að kaupa sér botnvörpung.
Loks er félag manna, undir for-
ustu Elíasar Stefánssonar, i undirbún-
ingi um, að taka tvo botnvörpunga á
leigu á vettarvertíðinni.
Fjárbakjarlinn þessara fram-
kvæmda, er eftir því sem ísafold hef-
ir grenslast eftir, annar bankinn hér,
íslandsbanki.
Þessi breyting á fiskiútvegnum,
þessar tiltekjur útgerðarmanna vorra
til að vinna meira úr sjávarauðnum
kringum strendur vorar, ber sannar-
lega ekki vott um neinn kyrking í
framkvæmdarlifi þjóðar vorrar, svo
sem svartsýnismennirnir láta óspart
klingja.
Þetta sem hér er að gerast, ber
óneitanlega á sér framsóknarinnai
mark.
í þessu felst auknins> Jramleiðslunn-
ar — en á henni veltur, eigi hvað
sizt, þjóðþrif vor.
Höldum beint, en hóglega í þetta
horfið — og mun oss vel farnast.
—------------
t Moritz Halldói H.son
læknir í Norður-Dakota, sonur Hall-
dórs heitins Friðrikssonar, er nýlega
látirín (20. okt.). Hann varð 57 ára
gamall.
Hafnarlánið og kosningarn-
ar. Reykvíkingar hafa gott af þvi,
er kosningaólgan er horfin úr blóð-
inu, að átta sig á þvi, hverjum með-
ulum heimanstj.mennirnir beittu í
kosninga-undirróðrinum hér i bænum.
Eitt með öðru var það, að sjálfstæðis-
menn ætluðu sér að ræna atvinnu-
leysingja brauðinu með því að hafna
láni því til hafnargerðar, sem til boða
stæði í Danmörku — af því að það
væri danskt.
Ekki finst nokkur minsti flugufót-
ur eða átylla fyrir þessum staðhæf-
ingum.
Ekkert orð i þá átt.
Tilhæfulaus uppspuni frá rótum —
búinn til í því einu skyni að blekkja
þá, sem eigi þektu til málsins.
Sjálfstæðismenn höfðu ekkert af
fyrirhuguðu hafnarláni að segja.
Bæjarstjórnin og enginn annar á-
kveður hvar þetta lán skuli tekið.
Þess má geta um leið, að heyrst
hefir, að hafnarlánið muni fáanlegt hjá
6 bönkum alls. í þeirri tölu er bæði
íslandsbanki og Landsbankinn.
Skúli fógeti.
Tveggja alda afmæli hans fer í hönd.
Það er 11. des. næstk.
Þá stendur til að honum verði reistur
bautasteinn í Viðey.
Ennfremur munu verzlunarmanna-
félög hér á landi hafa hug á því að
heiðra minningu hins helzta frömuð-
ar innlendrar verzlunar — með há-
tíðahöldum, og ef til vill stofnun
minningarsjóðs.
í höfuðstaðnum stendur það næst
verzlunarstéttinni, félögum hennar að
gangast fyrir þvi, að tveggja alda af-
mælis hins mikla þjóðskörungs verði
minst að verðleikum.
Forsetafélagið — útgerðarfélag fóns
forseta — heldur hátiðlegt tveggja
alda-afmælið með því að bæta við sig
nýjum botvörpung, er hingað mun
von undir miðjan des.
Hann á að heita: Skúli fóqeti.
Síminn slitinn.
Sem stendur er ekki símasamband
lengra norður en að Lækjamóti — en
hvorki við Akureyri né Seyðisfjörð.
Verið sambandslaust við Seyðisfjörð
og þar af leiðandi útlönd í nokkra daga.
Ófundið hvar símslitin eru.
Reykjavikur-annáll.
Brunabótavirðingar samþ. á síðasta
bæjarstjórnarfundi: kr.
Húseign Guðm. Egilssonar, Lv. 42 50,824
— H. J. Hansens bakara, Lv. 61 15,555
— Magn.Guðmundss.,Skólv.st. 16 5,740
Fjós og hlaða Eggerts Briem,
Fólagsgarði....................15,052
Viðauki við hús Ingim. Ogmunds
sonar, Túng. 50................ 8,513
Dánir. Karen Emilía Klemenzdóttir
(landritara) 18 ára. Dó 28. október.
Þórkatla Olafsdóttir, Bygðarenda við
Frakkastíg, 61 árs. Dó 24. október.
ísleifur Axel Þorvaldsson, Hverfisgötu
37, 8 ára. Dó 27. október;
Fisksalan. M a r z hefir selt afla
sinn nýverið fyrir 428 pund sterling
(7704 kr.), Nelson sinn afla fyrir
374 pd. sterl. (6800 kr.) og loks Jón
F o r s e t i fyrir 220 pd. sterl. (4960 kr.).
Flokksfundur Sjálfstæðismanna átti
að verða í kvöld, en fórst fyrir vegna
þess, að hvorki var hægt að fá Bárubúð
nó Iðnaðarmannahúsið til fundarhalds.
Verður væutanlega í staðinn á manu-
dagskvöld.
Frakkneski konsúllinn, hr. Blanche,
brá sór snöggva ferð til Frakklands með
Botníu í gær.
Gnðsþjónusta í dómkirkjunni á morg-
un: Kl. 12: síra Jóhann Þorkelsson
(altarisganga).
Kl. 5: síra Bjarni Jónsson.
í fríkirkjunni kl. 12: síra Ól. Ól.
Hjúskapnr. Páll Magnússon járn-
smiður og Guðfinna Einarsdóttir, Skóla-
vörðustíg 5. Gift 27. október.
Kristján Helgi Bjarnason og Marta
Finnsdóttir, Laugaveg 18 C. Gift 3. nóv.
Guðmundur Sigurðsson bóndi á Hellu-
hóli undir Eyjafjöllum og Jóhanna Ól-
afsdóttir, Miðstræti 5. Gift 3. nóvbr.
Hjörtur Guðbrandsson, Klapparstíg 14
og Ólafía Sigríður Þorvaldsdóttir. Gift
27. október.
Einar Einarsson trósmiður, Lindargötu
34 og Sigurlína María Sigurðardóttir.
Gift 27. október.
Jarðarför. Sigf. Eymundsson var graf-
inn á þriðjudag — við mikið fjölmennl.
Jón Jónsson docent byrjar fyrir-
lestra í Islandssögu upp úr þessu. í
dag kl. 7^/4 biður hann þá, er sækja ætla,
að koma til viðtals við sig í háskólan-
um — sbr. augl. hans hór í blaðinu.
Lúðrafélagið ætlar að leika á lúðra
á Austurvelli á morgun (sunnud.) kl. 2,
ef veður leyfir.
Pétur Ólafsson konsúll frá Patreks-
firði kom hingað til bæjarins á Botníu
í fyrradag og hólt áfram til Englands í
gær. Hann ætlar að kaupa þar
botnvörpung og hefja botnvörpungsút-
veg á Patreksfirði í vetur.
Skipaferðir. Botn ía kom að vest-
an á fimtudag og fór út í gær. Meðal
farþega: Pótur Á. Ólafsson konsúll,
Ólafur Þ. Johnson kaupm., Halldór Þor-
steinsson skipstj., Herman Stoll, kaupm.:
Björn Guðmundsson, Guðm. Böðvarsson,
Garðar Gíslason og Chr. F. Nielsen.
Sigfús Bjarnason konsúll með frú, jung-
frú Ásta Ásmundsdóttir o. fl.
Tangaveiki hefir gert vart við sig á
nokkrum heimilum hór í bænum — svo
megn á einu heimilinu (hjá Thor Jensen),
að hertekið hefir 13 manns.
Hvenær Kvenblaðið franska »Fe-
verða miua« hefir borið þessa
karlmenn spurningu undir lesendur
gamlir? sína: »Hvenær verða karl-
menn gamlir?« Af 3743
svörum segja 2696, að karlmenn verði
ekki gamlir fyr en sjötugir, 339 uefua
65 ára aldur, 276 milli 75 og 80, 259
segja 60 árin vera takmarkið.
Flestar gera konurnar greinarmun á
orðunum »gamall« og »öldungur«. Ein
kona segir t. d.: »Karlmaður er gamall
um sextugt, en verður ekki öldungur,
fyr en hann er sjötugur«.
Önnur kona segir: »60 ár eru for-
garður ellinnar«.
»Femina« veittl verðlaun fyrir beztu
svörln. Fyrstu verðlaunum var sklft
milli tveggja kvenna, sem þóttu segja
vel og frumlega skoðanir flestra manna.
Fyrra brófið er svolátandi:
»Það er hægt yfirleitt að kalla mann
gamlan, þegar hann neytir bragða til
þess að villa fyrir alsjáandi mönuum
um aldur sinn.
Ungum stúlkum finst fimtugur mað-
ur vera öldungur, af því að þær sjá, að
hann getur verið faðir þeirra.
Með árunum skifta þó konur um
skoðun.
Þegar kona er orðin 35 eða 40 ára,
finst heuni naumast sextugur maður
gamall, ef hann gerir sór enn far um
að slá gullhamra, og lætur hana skiija
á sór með vel völdum orðum, að hún
eigi í hans augum engan hættulegan
jafningja.
Dálæti hans á henni, hvort sem það
er uppgerð eða ekki, yngir hann í henn-
ar augum«.
Hin af þeim, sem verðlauniu hlaut,
segir:
»í mínum augum er fimtugur maður
ekki öldungur, en hann er ekki heldur
á blómaskeiði lífsins. Á þeim aldri skil
eg við orðið »gamall« ekki aunað eu
piparsvein.
En eg segi: Um sextugt er hver
maður gamall, og hann má þá ekki
leugur vera gamall spjátrungur eða
gamall maður, sem getur ekki elzt og
reynir að vera á sömu skoðunum og
næsta kynslóð«.
Kona ein í París segir af mikilli
kurteisi:
»Karlmaður verður aldrei gamall«.
Önnur er jafnkurteis og segir:
»Maðurinn er ungur, meðan hann er
ungur í anda«.
Ein vitnar í vísu eftir Alfred de
Musset:
»Menn eru altaf tvítugir einhverstað-
ar í einhverjum kima í hjartanu«.
Ein segir loks og vlll engan særa:
»Karlmaður er ekki framar ungur
þegar hann er orðinn sjötugur. Hann
Kensla. Undirritaður kennir
börnum, yngri sem eldri, einnig ung-
lingum: íslenzku, dönsku, ensku (byr-
1 jendum) o. fl. Þorst. Finnbogason,
I Vesturgötu 17.
Jarðarför Köru döttur minnar fer
fram þriðjudag 7. nóvember kl. 12 á
hádegi.
Reykjavik 3. nóv. 1911.
Kl. Jónsson.
ALsvartur hvolpur, stór, hef-
ir tapast. Sá, er kynni að vita um
hann, er beðinn að gjöra viðvart á
Vesturgötu 29.
Ásta Árnadóttir
málarameistari
tekur að sér alt, sem að málaraiðn
lýtur, alls konar skrautmálun á her-
bergjum og húsgögnum eftir nýjustu
tízku, skilti o. fl. o. fl.
Vinnustofa Miðstræti 10.
Heimili Grundarstíg 15.
Reynið Boxcalf-svertuna
,Sun‘
og þér brúkið ekki aðra skósvertu úr
því.
Fæst hvarvetna á íslandi hjá kaup-
mönnum.
Buchs litarverksmiðja
Kaupmannahöfn.
er gamall þegar hanu er orðlnn 75 og
þegar hann er áttræður, stærir hann
sig af því«.
-----»K----