Ísafold - 09.03.1912, Blaðsíða 3
ISAFOLD
53
Verzíutiin
Björn Krisfjánsson
hefir nú fengið með Sterling1:
Langsjöl og Trefla
HÚfur barna, telpu og karla
Silki svört. Slifsi mjög góð
Náttkjóla. Borðdúka hvíta
Morgunkjólaflúnel. Millipils.
Feiknin öll af nýjum vörum væntanleg með Ask.
Verzlunin
Björn Jirisfjánsson
arnir Ari Jónsson og Kr. Linnet. —
Settur sýslumaður, um stundarsakir,
frá i. marz er Magnús Blöndal hrepp-
stjóri i Stykkishólmi.
Pistlar úr sveitinni.
Raugárvallasýslu, 17. febr.
Nú erum við ánægSir við forsjónitia
út af tíðinni.
Að eins þorrakastið núna fyrripart
þessa mánaðar gerði talsverðan skugga.
Nokkrar jarðir á Landi og Rangárvöll-
um skemdust til muna af sattdfoki, og
fjártap varð lítilsháttar. Mest á eitium
hæ um 20 kindur.
Þá (7. þ. m.) urðu einnig tveir ferða-
menn úti á veginum rótt hjá Varmadal.
Lágu þar saman helfrosnir a berangri.
Það voru harðt'rískir og efnilegir bræður
unnins dagsverks hennar, gleð mig á
aftni Hfsins við ávexti þess til heilla
þjóðfélaginn — uppeldi mannvættlegra
barna o. fl. — minnist hennar mestu
gleðistunda — að líktta bágstöddum —
með því að senda þessa litlu afmælis-
gjöf líknarstofnun á þessum hennar fá-
tíða afmælisdegi.
”/, 1912. Þ.
Þetta er stórmyndarleg og falleg
gjöf. Mundu eigi til vera fleiri, sem
minnast vildu látinna ástvina sinna
með gjöf til Heilsuhælisins á afmæl-
um þeirra ?
í næsta blaði verða birtar fleiri af-
mælisgjafir.
á bezta aldursskeiði frá Grund í Vestur-
Eyjafjallahreppi, Sveinbjörn og Gísli
Brynjólfur Guðmttndssynir Sveinbjarnar-
sonar prests frá Holti.
Við landsstjórnina erunt við aftur á
móti ekki ánægðir. Læknir okkar er
skipaður til að gegna hóraðlæknisstörf-
um í Reykjavík, Hann hefir fengið setta
hór nýlærða og ekki fulllærða lækna,
hvern eftir annau, sem að vísu, máske
af tilviljun, reynast allir vel nýtir og
líkleg læknisefni. Um þetta var þó lítið
að tala, meðan læknir okkar vai ytra
á annað ár til að fullnuma sig í læknis-
listinni, einkum ef við hefðum notið hans
á eftir. En nú þegar hann er faritin,
sýnist mörgum ntiður að læknir Reykja-
víkur haldi einnig Rangárvallahéraðið
sem hjáleigu um lengri tíma.
Það b ú n a ð a r m á 1 var til umræðu
á fundi í gær, í Þykkvabænum, sem utn i
40 menn sóttu: að hlaða í Djúpós. Hantt '
fellur úr Rangánum báðum og Þverá,
þar sem þær koma saman út með Safa i
ntýri sunnanverðri og út í Þjórsár-útfall. \
Djúpós hefir runttið þannig í nær 100
ár. Hann gerir mikinn skaða með sínu >
mikla vatnsmegni, en líka nokkurn vinn-
ing. Hattn hefir átt mestan þátt í því
að gera Safamýri fræga.
Loforð er fengið fyrir laudssjóðsláni
til að hlaða í Djúpós alt að 30 þús. kr.
A fundinum ttrðu skiftar skoðanir um
árangur íhleðslunnar.
Nokkrir töldu það mikinn vinning,
þar sem upp kæmi stórar lattdspildur,
sem nú eru óvinnandi fyrir vatni. Marg-
ir álitu vinninginn tvfsýnan, og surnir
töldu tapið vísara.
Ástæður þeirra, sem daufastir voru
með verkið voru þær, að erfitt mnni
reynast að hlaða í ósinn, þar sem hann
er um 150 faðma breiður með lausum
sandbotni, og ekkert efni nærlendis nema
sendin grasrót. En einkum þó hitt, að
komi stífla í óslnn, þá hljóti vötnin að
arjóta sór farveg annarsstaðar þess í stað
og geti það þá orðið þar sem ver gegn-
ir t. d. á Safamýri, Þykkvabæinn eða
Landeyjarnar frekara en orðið er.
Smærri ástæður þeirra voru minna
gras á engjum, en erfitt með áveitu eink-
um á bala, sem nú eru helzt slegnir.
Sandfok á Vestur-Þykkvabæinn, eins og
úr Fjarkastokks-farveginum og missir
veiði. Ennfremur bann frá Landeying-
um að hlaða í Ósinu, en það kom þó
ekki fram fyr en í fundarlok.
Sa,mþykt var með miklum meirihluta
að eiga ekkert við verkið að svo stöddu.
Rausnar-afmælisgjöf
til Heilsuhælisins.
50 kr. voru ritstjóra ísafoldar af-
hentar í gær til Heilsuhælisins og
fylgdu þessar linur með:
1 æðingardagur dáinnar konu minnar
29. febr. 18.. tel eg mesta happadag
æfi minnar, minnist með ánægju vel
Suðurpóífinn
fundinn.
Khöfn, “/, ’12 kl. 4 siOd.
Koald Ammundsen símar
frá Nýja-Sjálandi til Krist-
janíu, að hann hafl fnndið
suður-pólinn 14.—17 des-
ember. — öllum suðurpóls-
förunum líður vel.
Lofaðu einn, svo þú lastir eigi annan.
Hinn 17. þ. m. ritar hr.. Jóh. Jóhannes-
grein i „Isafold<, og er sú grein afj mörgu
leyti ágæt. Þó er sá einn hluti hennar, er
mér virðist gjarna hefði mátt vera nokkuð
á annan veg. Það er þá hann minnist á
Grindvlkinga og >hinn ókrýnda konung
þeirra«, er bann nefnir svo. TJmmæli hans
um þá eru raunar afsakandi, sökum þess,
að hr. Jóh. Jóhannesson mun vera alveg
ókunnur sálarlifi þeirra, Grindvíkinganna.
Þau minna mig á ummæli sumra útlend-
inga i garð vorn íslendinga, sem eigi virð-
ast bygð á mikilli sérþekkingu á oss. Mér
virðist t. d. ekkert undarlegt, þó að fátækir
sjómenn, sem verða fyrir þeim skaða að
missa skipin sin — einu áhöldin, sem þeir
hafa til að afla daglegs branðs handa sér
og sínum, — >harmi þau mjög«, eins og
Jóh. Jóhannesson kemst að orði. Þeim
veitir ekki eins létt að bæta sér skaðann
og kanpmönnunum hérna i Reykjavik, þótt
þeir yrðu fyrir álika fjártjóni. Abur á
móti hefi eg alls ekki orðið þess var, að
skipamissirinn hafi dregið úr þakklætistil-
finningu þeirra til lifgjafa sinna. Þeir hafa
að visu, þvi miður, eigi minst þeirra opin-
berlega, og enginn þeirra hefir orðið svo
svangur, að hann langaði til að eta i minn-
ingu lifgjafa sinna, ein- og siður er orðinn
hér i Reykjavik. Ástraliunegrar eta vini
sfna 1 virðingarskyni; flna fólkið etur minn-
ingu vorra beztu manna i likum tilgangi.
Það heldur llklega eins og negrarnir, að
minningin geymist hezt í maganum. Grind-
vikingar eru enn ekki orðnir svo >evrop-
eiskir«. Þér fyrirgefið! En þótt þeir hafi
ekki látið heyra til sín i blöðunum, — þá
veit eg samt, að þeir geyma minningu lif-
gjafa sinna i hjartanu — ekki i maganum
— og saga lifgjafanna mun um ókomnar
aldir lifa i hjörtum niðja þeirra manna,
sem hr. Ólafur Ólafsson og skipverjar hans
hrifu úr greipum heljar. Saga hetjanna
mun lifa — en ekki i maganum.
Hver >hinn ókrýndi konungur* á að vera
veit eg eigi með vissu, en hitt veit eg, að
Grindvikingar hanga ekki i stéli neins
>Grindvikinga konungs*. Sannar það bezt,
að ekki lita þeir allir sömu augum á lands-
mál; en sú myndi eðlileg afleiðing and-
legs einveldis. Eg veit heldur eigi voair
)ess manns 1 Vikinm', sem eigi sé af hjarta
lakklátnr llfgjöfnnum.
Að öðru leyti er grein hr. Jóh. Jóhann-
essonar ágæt, og eg hefði verið bonum mjög
lakklátur fyrir nana, ef hann hefði alls
kostar fylgt hinni gullnu reglu: »Lofaðu
einn, svo þú lastir eigi annan«.
Með innilegasta þakklæti og beztu fram-
tiðaróskum til sæhetjanna hr. Olafs Olafs-
sonar og skipverja hans.
Reykjavik 20. febr. 1912.
Ouðm. R. Ólafsson.
-----------
Reykjavikur-annáll.
Alþýðufrreðslan: Á morgun kl. 5 flytur
Jón prófessor Helgason alþýðu-erindi um
náltúrulögin og kraftaverkin.
Dánir. Guðmundur Kláusson ekþjum.,
60 ára. Dó á Lækjarbotnum 26. febrúar.
Klara Gisladótt.ir, 12 ára, Bergstaðastr.36.
Dó 3. marz.
Jensína Eyvindsdóttir ym. Hverfisg. 56,
15 ára. Dó 4. marz.
Föstuprédlkun flytur sira Jóh. Þorkels-
son i dómkirkjunni miðvikud. 13. þ. m. kl. 6.
Guðsþjónusta á morgun:
í dómk. kl. 12 sira Bj. J., kl. 5 sira J. Þork.
í frikirkjunni kl. 12 slra Ól. Ól.
Hafnarnofnd ný var kosin á siðasta bæjar-
stjórnarfundi — innan bæjarstjórnar þeir
JónÞoriáksson, Klemenz Jónsson og Tryggvi
Gunnar8son; utan bæjarstjórnar: Ásgeir
Sigurðsson kaupm. og Jón Olafsson skipstj.
Hjdskapur. Einar Helgason lausamaður
frá Ásbjarnarstöðum i Hvitársiðu og ym.
Helga Jónsdóttir frá Þorgautsstöðum i
Hvítársiðu. Gift 2. marz.
Vilhjálmnr Geir Gestsson frá Mýrarhús-
um i Hafnarfirði og ym. Jónina Jónsdótt-
ir. Gift 3, marz.
Kvöldskemtun vur haldin i Bárubúð i
fyrrakvöld til ágóða fyrir Barnauppeldissjóð
Thorvaldsensfélagsins. Skemtiskráin var
ágætlega úr garði gerð. Þarna fekk fólk að
heyra hinn nýja hljóðfæraflokk, sem Oscar
Johansen hefir komið á fót, og naut hann
sin miklu betur i Báruhúainu en i veitinga-
sal Hotel íslands. Hljóðfæraflokkurinn lék
BÍðast Eldgamla ísafold. Það verður enn
sem komið er að telja aðal-þjóðlag vort.
Aðrar þjóðir hafa svo mikið við þjóðlag
sitt að hlusta á það standandi, sýna fivi
svo mikla virðingu fram yfir önnur lög.
Þann góða sið höfum vér eigi lært enn,
Islendingar. Eins og drumhslegar klessur,
er klindu sér sem fastast við bekkina —
þannig hagaði áheyrendahópurinn í Báru-
búð sér fyrsta sinni, sem þjóðlag okkar
heyrðist ieikið af reglnlegum hljóðfæraflokk.
— Ætli það væri óhugsanlegt að koma
kvikasilfri i fólkið næsta sinni?
En sá liðurinn á skránni, sem mestum
tiðindum sætti og rnestan vakti fögnuðinn
með áheyrendum, var planóleiknr hr. Jóns
Norðmanns. Bæjarbúar hafa eigi af þvl
vitað fyr, að mitt á meðal vor er svo
einkar-efnilegt snillingsefni á planó. Hr.
Jón Norðmann er kornungnr (16 ára), en
er þegar búinn að ná svo mikilli leikni á
hljóðfæri, að aðdáanlegt er. Hann lék þetta
sinni tvö lög, annað eftir Liszt (Friska), en
hitt eftir norska tónskáldið Sinding (Marche
grotesque), sem Shattuck lék hér um sum-
arið. Pianóleik Jóns Norðmanns var tekið
með svo dynjandi iófakiappi af áheyrend-
um, að mjög er fátitt hér. — Yonandi gefst
þessum unga einkar-efnilega listamanni færi
á að fulikomna sig i list sinni. Hitt væri
synd, að svo gott pund væri i jöröu grafið.
Einsöngva sungu þau ennfremur fröken
Anna Klemenzdóttir (landritara) og Einar
Indriðason. Eru þau bæði orðin kunn
bæjarbúum fyrir söng sinn. Frk. Anna
hefir kvenna hezt hljóð hjá oss, og þetta
sinni naut hún sin óvenjuvel — annars hagar
hana stundum feimni —, og Einar ætti að
syngja miklu oftar einsöngva, svo vel fer
hann með það, sem hann fæst við.
Eiin stóð á skránni: Upplestur, dr. G.
Finnbogason. (Upplestur er raunar orð-
skrípi hið versta, þvi ekki eins m'áurlestur,
einkum þegar sá er les stendur herra en
áheyrendur!!). En þetta var nú raunar alls
eigi upp- eða niðurlestur hjá dr. G. F.,
heldur fróðlegt erindi heimspekilegs efnis —
sem þó eigi átti heima á þessum stað,
heldur t. d. i alþýðufræðslu-erindi.
Húsið var fullskipað áheyrendum, og
þykir oss mjög liklegt, að takast myndi að
fylla húsið annað sinni með svo ágætri
skemtiskrá — og gott hefði Barnauppeldis-
sjóðurinn af þvi. Pianóleikur Jóns Norð-
manns einn ætti að geta fylt húsið.
Málshðfðun.
Landsbankastjórarnir eru búnir að
stefna Tryggva Gunnarssyni fyrir á-
burð hans á þá um falskar skýrslur
og enn íremur hefir Björn Kristjáns-
son stefnt Lögrittu fyrir svívirður í sinn
garð í síðasta blaði. Nokkrir starfs-
menn bankans hafa og gert Lögréttu
sömu skil.
Mitt inniíegasta ástarþakklæti sendi
eg öllum, sem hugsuðu til mín þann
6. Eg hefi yngst um 80 ár.
Anna G.
Sigurvegarinn ,VEGA‘
á að komaSt inn á hvert einasta heimili á landinu, fyrst og fremst af því að
Vegaskilvindan er staöreynd að því að vera sú fullkomnasta og bezta
og í öðru lagi af því, að verksmiðjan frá því i dag hefir fært útsöluverðið
niður um 10 krónur á hverri vél.
Vega nr. x, sem skilur 78 pt. á klst. kostar nú að eins 80 kr.
Vega — 2, — — 130 — - — — 100 kr.
'ragtfritt á alla viðkomustaði strandferðaskipanna, gegn því að peningar
fylgi pöntun.
Einka umboðssala í
verzlun B. H. Bjarnason.
r^\r^ r^ r^ n ri r^
ki'ki ki Wi ki ki w A
fflaaagaaa
Nýkomið! Nýkomið! Nýkomið!
til
Árna Eirikssonar
mikið af nýjum vörum.
Þar á meðal Flúnell margar teg.,
fiðurhelt Léreft — og margt fleira.
Feiknin öll til viðbótar með Botníu.
kiíki ki
r^ r^ r^ r-’v r^ r^ r^
ki ki kilki kA ki k.A
Til kaups eia ábúðar
frá næstu fardögum fæst hin dgata
jörts Björk í Grímsnesi. Jörðin
er hérumbil 20 hundruð. Tún nær
alslétt gefur af sér ca. 250 hesta af
töðu, engjar nálægt túngarði 4—500
hesta. Ágæt hagbeit i Lyngdalsheiði.
farðarhús í góðu lagi. Engar kvaðir;
laus við ágang. Verð sanngjarnt.
Menn snúi sér til Sveins yfirdóms-
lögmanns Björnssonar í Reykjavík.
Saumastofa
Arna Einarssonar
saumar
karla og kvenna fatnað
eftir
uýjustu tízku.
Vönduð vinna. —
— Sanngjarnt verð.
Víravirkisnál fundin. Vitja
má í Bókverzlun ísafoldar.
Innileg þökk til allra, sem á einhvern hátt
hafa sýnt hluttekningu við andlát og jarðar-
för stjúpdöttur mínnar, frk. Sigriðar Melsteð.
Thora Melsted.
Hjartanlega þökkum víð og biðjurn guð að
launa öllum þeim, sem sýndu okkur hluttekn-
ingu við fráfall okkar elskuiega sonar.
Ingibj. Danivalsdöttir. Samúel Guðmundsson.
Verzl.B.H.Bjarnason
fékk með »Sterling« flest allar þær
vörur, sem áður voru uppseldar, t. d.
Strausykur, Karamelur,
Konfektrúsínur, Sveskjur,
Semolíugrjón, Telaut,
Eggjapúlver, Sago stór,
Terpentínu pt. á 90 a.
Gull- og Nikkelbronce,
Maliognibejtse, Vagnáburð
g ó ð a n og ó d ý r a n.
Rottugildrur, .
Pottar email., Kaffibrenuarar,
Hrákadallar, IVIjólkurbrús-
ar og margsk. Járnvörur m. m. fl.
Verðið er að vanda hið lægsta
í borginni.
Ágætt hús í miðbænum
fæst til ieigu frá 14. mai n, k. — 8
herbergi og eldhús, kjallari, pakkhús
m. m. — Skemtilegur garður fyrir
sunnan húsið. — Upplýsingar gefur
Sig. Thoroddsen Frikirkjuveg 3. Telef.
227.
Stúlka óskast í vist frá 14. maí.
Gott kaup. — Upplýsingar á Frakka-
stig 4.
Öllum þeim, sem heiðruðu útför Guðm.
sáluga Kláussonar með nærveru sinni, og á
annan hátt sýndu okkur hluttekningu og hjálp-
fýsi, vottum vér innilegt þakklæti.
Ættingjarnir.
Leikféí. Heifkjavíkur
Ræningjarnir
eftir Schiller
verða leiknir
sunnudag 10. þ. m.
í Iðnaðarmannahúsinu kl. 8 síðdegis.
Alþýðnfræðsla Stúdentaíélagsins
Jón Helgason
prófessor
flytur erindi um
Náttúrulögin og kraftaverkin
í Iðnaðarmannahúsinu
sunnudaginn 10. þ.m. kl. 5 síðd,
Inngangur kostar 10 aura.
Reikningseyðublöð
hvergi ódýrari en í
Bókverzlun ísafoldar.