Ísafold - 09.03.1912, Page 4
54
ISAFOLD
f-
1 BÍÓ .
| |Allmikla eftirtekt hefir það vakið
meðal bæjarbúa, að fyrir skömmu
hefir Bíó sýnt áhrifamikinn og mjög
hrifandi sorgleik, sem heitir heim-
ilisböl niitímans, og af því sýning
þessi er einstök í sinni röð, vil eg
gefa þeim kost á að sjá sýningarskrána,
sem ekki hafa enn haft tækifæri eða
vilja til að vera áhorfendur.
Sýningarskráin er á þessa leið:
Pað er saga áfengiseitarsins, sem hér er
hirt. — Ömurleg saga brennivinsins, þessa
eiturs, sem er eins og refsivöndur stórra
þjóðfélagsheilda og árlega vinnur meira tjón
en krahhamein og berklaveiki til samans.
Easpar lifir ánægjulegu heimilislifi. Hann
er fulitrúi verzlunarhúss eins, sem virðir
mjög dugnað hans og áreiðanleik.
En alt í kemur ógæfan yfir hann. Kvöld
eitt, eftir skrifstofutima, lætur hann til leið-
ast að fara með nokkrum léttúðugum kunn-
ingjum sinum i veitingahús. Spilar hann
þar knattspil og verðnr kendur í fyrsta
sinni. Og hann kemur heim þannig á sig
kominn, að hann hræðir bæði konu og börn,
vegna þess, að þau hafa aldrei séð hann i
eim ham áður. En það er ekki þar með
úið. Kaspar hefir fengið áfengiseitrið i
likama sinn og með því svo mikla brenni-
vinslöngun, að hann getur ekki verið án
688 lengur. Með hverjum degi nálgast
ann undirdjúpið. Vegurinn frá skrifstof-
unni liggur nú ekki lengur heim, heldur til
veitingahússins, þar sem nýir vinir biða
hans við spil og drykkju. Þegar hann svo
kemur heim til sin einhvern tima nætur, er
hann ringlaður og skilningslítill. Störf sin
vanrækir hann auðvitað. Hann er nú sljór
og hugsnnarlitill þegar hann situr við skrif-
borðið, þar sem hann áður var með lifi og
fjöri. Þegar svo skrifstofustjórinn einn góð-
an veðurdag kemur að honnm þar sem
hann situr með flöskuna i laumi i vinnu-
timanum, þá er hann ekki lengi að veita
honum lausn frá starfanum.
í þetta skifti fer hann heim frá skrifstof-
unni og skýrir konu sinni frá þvi, hve illa
sé komið. A hrífandi hátt lofar hann henni
nú að hann skuli ekki drekka framar. Og
um tima litur i rann og veru svo út,
sem hann muni standa við orð sin. En
þvi miður situr hann bráðum meðal kunn-
mgjanna i veitingahúsinu.
Atta ár eru liðin. Það eru rústir af
heimili, sem vér lítum nú inn i og leifar
af manneskjum, sem lifa milli þessara nöktu
steinveggja og innan nm húsgagnaskriflin.
— Faðir, sem skellur af ölæði — þrettán
ára stúlka, sem þvi mætti ætla að nú skyldi
hyrja að lifa, liggur i rúminu og bíður
þess að dauðinn endi þjáningar þær,
sem tæringin veldur henni — drengur, sem
ilt eftirdæmi föðurins hefir leitt inn á
glæpabrautina — og loks móðir. Andlit
hennar hefir einu sinni verið fagnrt, en
hnngur og mótlæti hefir nú markað það
djúpum hrukkum, augun eru sokkin af
gráti yfir böli þvi, sem hefir orðið henni
og hennar að hlutskifti.
Eitt kvöld kemur Jakob þjótandi inn i
hina fátæklegu stofu. Hefir hann i félagi
með öðrum manni gert húshrot, en vinnu-
fólkið vaknað og nú er hann á flótta undan
lögreglunni. Hurðinni er hrundið upp og
3 iögregluþjónar taka hann, setja hann i
járn og draga hann burt með sér, en móðir
hans, sem ekki hefir mátt við þessu, hníg-
ur niður á gólfið. Faðirinn situr kyr og
hlær tryllingslega. Hann skilur þetta ekki.
Með tröllslegum hlátri reikar hann út
á götuna og skreiðist inn í hina vanalegu
knæpu, innan um skril stórhorgarinnar. Þeg-
ar hann kemur heim aftur, hefir kona hans
stytt sér aldur og hinni sjúku dóttur
sinni með eitri. Örlög sonarins hafa svift
hana siðustu leifnm mótstöðuaflsins; — hún
gat ekki meira og leitaði svo friðar i dauð-
anum.
Siðustu dagar .Kaspars er ömurlegasti
þáttur ieiksins. I geðveikisdeild fátækra-
hælisins hittnm vér hann i einbýliskiefa
sinum, þar sem hann hefir ekki félagsskap
við annað en kynjadýr þau, er drykkjuæði
hans skapar. Þar ráfar hann fram og aft-
ur, aftur og fram, þangað til þessari hræði-
legu tiiveru hans lýkur.
Sýning þessi á pappírnum er ná-
skyld mörgum þeim lýsingum, sem
meðhaldsmenn bindindismálsins hafa
svo mörgum sinnum gefið. Þeir hafa
reynt að láta allar dyr drykkjuheim-
ilanna standa opnar, til þess að knýja
fram meðaumkun meðbræðranna fyrir
þeim óútmálanlegu sorgum og böli,
sem þar á heima. En þetta hefir ekki
nógsamlega dugað; því þeir sem elska
vínið meira en sjálfa sig, hafa ekki
viljað líta við, — ekki þorað að líta
framan í skinhoraða, grátandi konu,
með hungraðan, kaldan og nakinn
barnahóp, og sjálfan húsföðurinn ann-
aðhvort útúr fullan með hnefann á
lofti, albúinn að láta höggið ríða að
sinni skjálfandi fjölskyldu, eða hrjót-
andi uppi í bæli sinu. Þessa sjón
vilja víndýrkendurnir helzt vera lausir
við — þeir af svo kölluðu fínna(ll)
tægi — hvað varðar þá um þótt
nokkrir ræflar(lll) drepi sig á ofnautn
áfengis. Það svarar auðvitað kostn-
aði, þegar um almenn mannréttindi(ll)
er að tefla, eins og þeir kalla það.
Þeir segja, að bindindisglóparnir séu
að hrópa um tár ekkna og munaðar-
leysingja, og virða að engu þá sker-
andi kveinstafi hungraðra kvenna og
barna, sem skera eyru manna innan,
vegna hljóðsins af neyðarópinu, þegar
heimilisverndarinn(ll) dregur konu sína
á hárinu og ber hana eins og fisk, af
þvi hún er svo ósvífin(II) að biðja um
brauðbita handa úlfsoltnum barnahópn-
um. Þetta er álitið af bindindis-and-
stæðingum málinu óviðkomandi, og i
stað þess að taka þenna sorglega
beiska sannleika með í reikninginn,
hamast þeir á bindindismönnum og
landsins löggjöfum fyrir þá hróplegu
rangsleitni(ll) að hefta innflutning á
þeim ófögnuði, sem veldur miklu
táraflóði og volæði i hryggilegustu
mynd.
Hvað gerir nú myndin í Bió? —
Hún sýnir áhorfendunum vel gjörðan
spegil af drykkjumannsheimilinu, og
þar er ekki um að villast: slíkar sjónir
sjá þeir oft, sem fyrir bindindismálið
starfa — þeir glápa ekki á þessa sýn
sem neitt furðuverk, framleitt af mann-
legu hugviti. Nei, sú eina undan-
tekning á sér stað, að konur drykkju-
mannanna okkar sýna þann mikla
kjark að treina í sér líftóruna, vegna
barnahópsins.
Hvernig lizt bindindismótmælend-
um á, að sjá eyðilagða drykkjumann-
inn stela húsaleigu, sem kona hans
hefir fengið sem ölmusu, að eins til
að verða ekki með veiku barni sínu
kastað út á götu. Hvað gerir hann
svo við peningana? Hlykkist með
þá tryllingsglaður til brennivínssalans.
Halda þeir, að slík dæmi séu hér ekki ?
Jú, fjölda mörg. Eða hvað segja sömu
menn um, að drykkjurúturinn þrífur
af konu sinni með valdi meðul þau,
sem eru ætluð dauðsjúku barni hans
til bjargar? Hvað gerir hann við
þau ? Drekkur þau með ofsakæti, með-
an barnið stynur í rúminu við hné
hans. Þetta er líka langt frá að vera
fátitt hér. Hvernig lízt ennfrem-
ur sömu mönnum á karlmannlega,
góðlega manninn, sem í byrjun mynd-
arinnar faðmar að sér börn sin með
föðurlegum innileik, og hvernig sýn-
ist þeim sami maðurinn, þegar hann
fylgir sínum tapaða syni til dyra í
járnum, skellihlæjandi, og hvað halda
þeir, að hafi breytt þessum prúða og
glaða og hamingjusama manni í þá
hrygðarmynd, sem sést i hálmgryfj-
unni í geðveikrahælinu? Þetta eru
alt verkanir vínnautnarinnar — fyrsta
glasið skapaði þar ástríðuna, sera oft-
ar. Slik dæmi á íslenzka þjóðin ó-
teljandi, og tjáir þar ekki á móti að
mæla.
Eg var í Bíó fyrsta kvöldið, sem
mynd þessi var sýnd og var sjónar-
vottur að tárum og meðaumkun margra
viðstaddra. Eg veitti því líka eftir-
tekt, að sumir af þeim, sem hvellast-
an hafa brýnt róminn móti bind-
indisstarfsemi og lagt fram það litla,
sem þeir áttu til að gera hana tor-
tryggilega, gengu út löngu áður en
sýningin var úti. Annaðhvort hafa
þeir, að vanda, ekki viljað vera sjón-
arvottar að þeirri ómælanlegu sorgar-
sjón, sem myndin sýnir, eða ekki
getað haldið vatni vegna hluttekning-
ar með drykkjumannaheimilunum, og
er vel farið, væri sú getgátan rétt.
Eg vil þakka hr. Petersen, formanni
fyrir Bíó, fyrir hversu — mér
liggur við að segja — mikinn kjark
og sjálfstæði hann sýnir með því, að
róta við drykkjubölinu. Við eigum
öðru að venjast af löndum hans, sem
búsettir eru hér í bænum.
Þessi mynd verður sýnd aftur í
næstu viku.
Þið ungu, ógiftu stúlkur og piltar
ættuð að sækja sýninguna. Þar sjáið
þið heimilið í tveim ólíkum mynd-
um. Slík sjón getur orðið ykkur til
leiðbeiningar og viðvörunar á lífsleið-
inni, og þið drykkjumenn reynið að
drattast ófullir á sýningu þessa og
sjáið ykkar eigin drykkjubrettur og
aðfarir og íhugið hvaða heimilissælu
það veitir ykkar ástvinum. Vel gæti
farið svo, að þið færuð heim með
kinnroða og að þið keyptuð einni
flöskunni færra, en því fleiri brauð
upp í börnin ykkar. Drykkjumanna-
konurnar eiga ekkert erindi í Bió
þetta sinn. Þá sjón þurfa þær ekki
að sækja út fyrir heimilið.
Að síðustu: Unga fólkið ætti að
sækja vel margnefnda sýningu. Þar
sést heimili, sem er sann-nefnt jarð-
neskt himnaríki, en sem er nokkru
síðar hrunið af völdum vínsins og
orðinn kvalastaður, þar sem hörm-
ungar og dauði skipa æðsta sess.
Reykjavík x. marz 1912.
Jóh. Jóhannesson.
Öllum þeim fjær og nær, sem sýndu okk-
ur alúðlega hluttekningu i okkar sáru sorg
af hinu hörmulega fráfalli okkar heitt elskuðu:
bræðranna Sveinbjarnar og Gisla Brynjólfs,
sem urðu úti á Rangárvöllum aðfaranótt 8.
þ. m., vottum við hér með okkar innilegasta
hjartans þakklæti, og meðal hinna fjarlægari
viljum við sérstaklega nefna húsfreyju Vig-
dfsi Þorvarðsdóttur f Varmadal, ión Guð-
mundsson á Ægissiðu og konu hans og börn,
sem og hjónin á Selalæk, er öll með alúð-
legri og hjartanlegri umhyggju önnuðust Ifkin
frá þvf þau fundust og bjuggu um þau i
kistunum til heimflutnings.
Öllum þessum vinum okkar biðjum við al-
góðan guð að launa af sinni náðarnægð.
Efstu-Grund undir Eyjafjöllum 24. febr. 1912.
Halldóra Björnsdóttir. Elin Guðmundsdóttir.
Björn Guðmundsson.
Skrifstofa
bæjarverkfræðings
er flutt í slökkvistöðina í Tjarnargötu
(uppi). — Opin frá kl. 11—12.
4—5 herbergja íbúð með
eldhúsi og geymslu, óskast til leigu
frá 14. mai. Ritstj. vísar á.
lAAAIir er heitið, ef bak-kassinn á úrinu er ekki stimplaður
IUUU Kli með0,800,semerstimpilláöllumúrumúrskírusilfri.
W 15 króna ábati 40W§
þetta ár eins og i fyrra. Til þess nð safna meðmælnm nm alt ísland, til notkunar i aðalverðskrána 1913 0g 1914, selj-
um við eins og f fyrra 600 ósvikin karla- og kvenna- silfnrúr 15 kr. ódýrara en venja er til. Úrin eru eins og hver mnn
lríind nrr -i ára olrvlf larrí AkirvnA IT nném. _
°g vonum að bver kaupandi __
oss þau meðmæli sem honum virðist úrin eiga skilið, þar sem vér vitanlega leggjum oss i framkróka með að senda svo
vandað og vel stilt úr sem mögulegt er. Þess vegna ráðum vér bverjum, sem vill fá verulega fallegt og vandað úr, til
þess, að senda sem fyrst pöntun, þareð hér er verulega kostur á að verja peningum sinum vel. Skrifið þess vegna strax
þareð ekki eru seld nema 600, og fyrstu 300 úrunum fylgir festi ókeypis. Alt er sent gegn eftirkröfu og ekki tekið á
móti borgun fyrir fram. Ef úrið likar ekki er það tekið í skiftum.
Meðmælingasala á skófatnaði.
Þareð vér opnum einnig skófatnaðardeild við verziunina, seljum vér til Islands 400 tvendir af karla- og kvenua-
stigvélum fyrir hálfvirði. Til þess að kunngera þetta lága verð, seljum vér skóna á 9 kr. 50 a. Stígvéi þau, sem send
verða, eru af allra beztu teguud vorri, og nákvæmlega eftir þvi sem hver óskar, hvort sem heldur vill með lakkti eða
ekki. Fást af öllum stærðum, frá nr. 36—42 fyrir konur og 40—46 fyrir karla. Takið til númerið Þeim stigvélum, sem
ekki eru mituleg, fæst skift. Yér getum ábyrgst lesendum blaðsins að þetta tilboð er hið ódýrasta, Bem þekst hefir á
Islandi, þegar tekið er tillit til gæðanna, og þess hve frágangur er vandaður og lögun. Öllum, sem kynnu að þarfnast
stigvéla, viljnm vér þvi ráða til að skrifa strax. Þessar 400 tvendir verða ekki lengi að fara.
Ur gullvarningsbúðinni
verða seldar 200 tvendir (400 stk.) trúlofunarhringar, tvendin á 6 kr. — stk. 3 kr. Af ateinhringum verða seldir um 200.
Góður hringur á 50 aura, betri á 1 kr., ágætur og endingargóöur á 2 kr., bezta teg. úr skiru gulli og með 25 ára ábyrgð
á 5 kr. Hringirnir fást af öllum stærðum og gerðum og með hvaða lagi og lit sem þér óskið að hafa steininn, rauðan,
svartan, grsenan hvitan; sömuleiðis með 2 steinum. Alt samkvæmt óskum. Takið mál af fingrinum með pappírsræmu
og sendið ásamt tilteknu verði og steinlit. Um 300 hálsfestar með viðhengjum verða seldar með 50% afslætti, hver á
kr. (karla) og 2 kr. (kvenna), öll gull-lögð og hafa kostað 6—7 kr.
Gmll-double úrfestar, sem hafa kostað 3 kr. ern seldar á kr. 1.40, áður sem hafa kostað 5 kr. seldar á 2 kr.
— áður 8 kr. nú 3 kr. — áður 15 kr. nú 4 kr. Gulldouble festi sem hefir kostað 15 kr. fæst nú á 6 kr. og með 10
ára ábyrgð hver festi. Nikkelfestar á 0.15—0.25—0.50—0.75 og 1 kr. Silfurfestar og hvitmálms frá 1—1% til 2 kr.
Allar festarnar fást af þeim gerðum sem um er beðið, — einfaldar og tvöfaldar, með eða án nistis. Mansjettbnappar á
0.25—0.45—0.65—1.00—1.50 og 2 kr. Festar frá 1 kr., en úr gulldouble, undir 1 kr. gyltar. Slifsisnálar af öllum gerð-
nm til 50 a. og með beztu gyllingu 1 kr. Armbönd frá 25—60—75 a. og frá 1—2—3—4—5—6—8 kr. Fást af öllum
gerðum. Hálsdjásn með steinum frá 25—50—75 a. og kr. 1—2—3—4—5—6—8 og 10. Vasalampar frá 0.65—0.85—lkr.
Frá úrverzluninni.
Nikkel-akkerisúr á kr. 1.75. — Úr með gullrönd á 4 kr. — Roskoph úr á 6 kr., alm. verð 18 kr. — Loks 20
verðlaunuð 15 steina akkerisúr i silfurkössum með gullrönd, 5 ára ábyrgð, — áður 44 kr. nú 20,kr., 15 tvilokuð gull-
doubl-úr með akkerisgangi og 3 ára ábyrgð — áður 30 nú 12 kr. Nikkel vekjara-úr kr. 1.75. Úr eir, með 4 bjöllum,
sjálflýsandi skifu og 2 ára ábyrgð kr. 4.50. Beztn sem f&Bt.
Vörur úr öllum deildum seldar langt undir hálfvirði:
Reiðhjóladekk 1.95—2.65—3.50—5—7 kr. Slöngur 1.25—2.50. Stórar fótdælur 1 kr., handdælur 40 og 65 a.
Nokknr mjög góð reiðhjól með 2 ára ábyrgð á 65 kr. Nokkur ódýr hjól á 32 kr. Nokkur karlmanna-fataefni 5X2‘/4
al., fæst með öllum litnm, 10 kr. stk. alm. verð 6 kr. al. Nokkrir Solingen-vasahnífar á 65 a. Borðhnífar gaflar og
skeiðar á 25 a. Munnhörpur á 25—50—65—75—100—125—150--165 a. Buddur á 35—45—65 —75—85—100—150—200 a.
Dömutöskur 30—65—90—100—159—185 a. 8—10 »heimsúr« (sýna tlmann nm allan beim) á 15 kr. 3 stk. 14 karata
gullúr, tvilokuð, með veðhlaupsvísi og slagverki á 385 kr. Loftvogir á 1—2—3—4—5—6—7—8—9 og 10 kr. Kíkira á
l_2-3-4—5-6-7-8-9-10 kr.
Ait er svo ódýrt að kaupmenn geta með stórum hagnaði keypt vörur sínar hjá oss. Allir sem kaupa hjá oss
fyrir peninga út í hönd, geta skapað sér glæsilega framtið með þvi að verzla með vörurnar. Verð þetta gildir ekki fyr-
ir pantanir undir 20 kr., við minni pantanir bætist burðargjald — annars ekki. Alt gegn eftirkröfu. Fyrirframborgun
ekki tekin. Þvi skift sem ekki likar. Skrifið því strax. Avalt greinilega utanáskrift. Byrjið að verzla með vörur okkar.
Adr: Aarhus Uhr-, Cycle- & Guldvaremagasin
Kroendal Import Forretning, Söndergade 51, Aarhus, Danmark.
Telefon
Nr. 2640.
Kunsten til Folket.
Uden Kunst — intet Hjem.
Et virkelig enestaaende Tilfælde, for en Ringe Sum at anskaffe sig
flere værdifulde Kunstværker af de mest fremragenda Kunstnere tilbydes
herved af Svenska Konstförlaget, som ved fordelagtigt Indköb paa Kon-
karsauktion har erhvervet fölgende Billeder:
>Midsommardans«, Maleri af Andern Zorn, >Hafsðrnar«, Maleri af
Bruno Liljefors, »En Hjaltes Död«, Maleri af Nils Forsberg, »Efter
Snöstormen«, Maleri af Johan Tirén (den nylig afdöde Kunstner). Alle
disse BiUeder findes ogsaa i Nationalmuseet i Stockholm. »Pansar-
fartyget Aran«, Akvarel af Kaptajn Erik Högg, >Valborgsmassoafton«,
af C. Schubert, >Kárlek i skottkárra«, af W. Strutt, >Namnsdagsbordet«,
af Fanny Brate, >Segeltur«, af Carl Larsson, »Svenska kronprinsparet«,
fint udfört efter Fotografi, samt 8 stk. kunstneriske Jul- og Nytaarskort.
Zorns Billede er 670X460 mm. stort, de andre 470X350 mm.
Den samlede Pris for alle disse Kunstværker er meget höj, men vi
vil for et kort Tidsrum sælge dem til kun kr. 2,50, fragt og toldfri
mod Forudbetaling. Mod Efterkrav maa I Krone fölge med Ordren.
Obs.l Opgiv tydelig Navn og Adresse. Frimærker modtages ogsaa. For-
söm ikke dette absolut enestaaende Tilfœlde til at pryde Deres
Hjem, eller til at köbe en pragtfuld men alligevel billig JulegaveUt
Skriv i dag til
Svenska konstförlaget, Stockholm 7. Sverige.
smms
hreina, úrvals
Stjörnu-Kókódnft
er aðeins selt í þar til
gerðuin V4 pds. pokum,
með firmanafni og inn-
sigli. III
KlædevæYer Edeling, Viborg, Danmark,
sender Portofrit io Al. sort, graat, mkblaa, mkgrön, mkbrun finulds Ceviots-
klæde til en flot Damekjole for kun 8 Kr. 85 ðre, eller 5 Al. 2 Al. br.
sort, mkblaa, graanistret Renulds Stof til en solid og smuk Herredragt
for kun 13 Kr. 85 Ore. — Ingen Risikol — Kan ombyttes eller tilbagetages.
Uld köbes 6$ Öre Pd., strikkede Klude 25 Öre Pd.
Meinlaust mönnum og skepnum.
Ratin’s Salgskontor, Pilestr. 1, Köbenhavn K.
Tom Tjáder,
Nybrogade 28. Köbenhavn K.
Býr til meðul til að losa menn við
veggjatítlur, flær, maur og möl, enn-
fremur rottur og mýs. Eina verk-
smiðjan í þessarri grein, sem hlaut
gullpening (Grand Prix) að verðlaun-
um á sýningunni í Lundúnum 1911.
Einkasali ráðinn í hverjum bæ.
Heilræði.
I samfleytt 30 ár þjáðist eg af meltÍDgar-
þrautum og magaveiki, er virtist ólæknandi.
Um þetta áraskeið leitaði eg eigi færri en
6 lækna og notaði meðöl frá þeim, hverjum
um sig, um langan tíma, en alt reyndist
það árangurslauBt. — Eg fór þá að reyna
hinn ágæta bitter Waldemars Petersens,
Kína-lífs-elixír, og fann þegar til bata, er
eg hafði tekið inn úr 2 flöskum, og þegar
eg haiði notað 8 flöskur, hafði mér farið
svo fram, að eg gat neytt allrar almennrar
fæðn án þess að mér yrði meint við. Nú
kemur það að eins fyrir einstöku sinnum,
að eg verð var við þenna sjúkdóm; tek eg
þá inn einn skamt af bitternum og er þ&
jafnan albata þegar daginn eftir.
Eg vil þvi ráða hverjum þeim manni,
sem þjáðnr er af sams konar sjúkleika, að
nota ofannefndan hitter, og mun þá ekki
iðra þess.
Veðramóti í Skagafirði 20. marz 1911.
Björn Jónsson,
hreppstjóri, dbrm.
Hvað vantar?
í samkvæmum til sveita og í bæj-
um — eykur sönsfurinn gleði manna
— öllu öðru fremur.
En fólkið man oft ekki eftir lög-
um og textum — og alt fer því í
mola.
Hvað vantar við þessi tæktfæri?
Islenzku sönirbókina, með 300 text-
um og lagboðum, sem er í vasabók-
arformi og hver maður getur á sig
stungið.
Tœkifœrisqjöf qetur ekki betri.
Hún fæst hjá öllum bóksölum og
kostar aðeins kr. 1,75 í ágætu bandi.
Biðjið um islenzku söngbókina hjá
næsta bóksala. Notið hana til að
gleðja vini yðar við hátíðleg tæki-
færi.
Islenzka söngbókin á að
vera til á hverju einasta is-
lenzku heimili.
Ritstjóri: Ólafur Björnsson.
Isafoldarprentsmiðja