Ísafold - 12.06.1912, Qupperneq 1
Kemxu út fcvisvar i viku. Verð árg. (90
arkir minst) 4 kr. erlencUa 6 ki( e$a 1 */■
dollar; borgist fyrir miöjan júli (erlenúie
fyrir fram). _____________
ISAFOLD
Dppsögn (strifleg) bnndin yiO dramót, ei
ógild nema komln sé til útgefanda fyrii
1. okt. eg aaapandi ikuldlani yiO blaOit)
Afgieibala: Anetaietmti 8,
XXXIX. árg.
Reykjavík 12. jnní 1912.
Konungslíkfylgdin. Við járnbrautarstöðina í Hróarskeldu.
Greftrun Friðriks konungs VIII.
------ Khöfn 5. júní 1912.
Greftrun konungs fór fram föstudaginn 24. maí.
Sorgarhátíðin hófst í hallarkirkjunni í Khöfn hálfri stundu fyrir hádegi rheð örstuttri guðsþjónustugerð, að
viðstöddum eingöngu vandamönnum konungs, útlendum þjóðhöfðingjum eða fulltrúum þeirra, sendiherrunum og
tignasta hirðfólki. —
A hvítum silkihjúpuðum líkpalli stendur kista konungs, skrýdd þúsundum ilmandi blóma og litskrúðugra
borða, frá öllum konungshirðum Norðurálfu. Að lokinni guðsþjónustu er kistan borin út úr kirkjunni og samstundis
kveður við hringing frá öllum kirkjuklukkum borgarinnar. Gegnum óslitna hermannaröð á hvora hönd gengur hin
skrautlega sorgarfylking eftir kistunni til járnbrautar-likvagnsins. Foringjar úr herráðinu bera kistuna upp í vagninn,
líkfylgdin sundrast inn í klefana og lestin heldur af stað til Hróarskeldu.
Allur bærinn er skrýddur sorgarfánum, og grenikvistum er stráð á göturnar. Skrúðgangan hefst frá brautar-
stöðinni. Fremstir ganga konungarnir fjórir: Kristján Danakonungur, Gústaj Svíakonungur, Hákon Noregskonungur
og Georq Grikkjakonungur.1) En þar næst fulltrúar stórveldanna og þá hver eftir tign. Viðhafnarmikil skrúðganga,
þar sem alls konar gull- og silfurdregnir einkennisbúningar ljóma í sólskininu og hljóðar hermannafylkingar líða fram
hjá með föstum reglubundnum skrefum.
Líkvagninn staðnæmist fyrir framan dómkirkjuna og 12 herforingjar bera kistuna inn um fordyrnar. Uppi
yfir innganginum er gullin kóróna í sorgarslæðum og kirkjugólfið er al-lagt svörtu klæði. Sálmurinn O, blessuð stund
er sunginn af fjölmennri söngsveit og Paulli skriftafaðir konungs heldur líkræðuna. Eftir það er kista konungs loks
borin inn í kapellu Friðriks V. og meðan sungið Sjá pann hinn núkla Jlokk. í kapellunni bað skriftafaðirinn bæn og
og kastaði rekunum. Eftir síðasta sálminn kváðu við fallbyssuskot hermannasveitarinnar utan frá — og líkfylgdin
gengur út úr kirkjunni.
‘) Á myndinni sést Kristján X. með sonum sinum sitt til hvorrar handar lengst til vinstri, þá Gústaf Sviakonungur, þá
Georg Grikkjakonungnr og loks Hákun Norðmannakonungur. í baksýn til hægri á tröppnnum sést Gústaf prins og vinstra megin við
hann Carl Svíaprins, sem ú Ingibjörgu Friðriksdóttur hins 8.
I. O. O. F. 93569
Alþýbufól.bókasaín Pósthússtr. 14 kl. 6—8.
Augnlækning ókeypis i Lækjarg. 2 mvd. 2—3
Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 10—3.
Bæjarfógotaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4—7
Bæjargjaldkerinn Laugav. 11 kl. 12—8 og 6—7
Eyrna-,nef-og hálslækn. ók. P0ath.str.l4A fid,2 3
íslandsbanki opinn 10—2 '/* og 6>/■—7.
K.P.U.M. Lestrar- og skrifsfcofa 8 árd.—10 sí>d.
Alra. fundir fid. og sd. 8 */« síódegis.
Landabotskirkja. öubsþj. 9 og fi á helgura
Landakotsspltali f. sjúkravitj. 10»/«—12 og 4-6
Landsbankinn ll-2»/a, ^M1/*. Bankastj. viM2-2
Landsbókasafn 12—8 og 6—8. Útlán 1—8
Landsbúnabarfólagsskrifðtofan opin trá 12—2
Landsfóhirbir 10—2 og 6—«.
Landsakjalasafnib hvern virkan dag 12—2
Landsiminn opinn daglangt [8—9] virka daga.
helga daga 10—12 og 4—7.
Lækning ókeypis Þingh.str. 28 þd. og fsd. 12—1
Náttúrugripasafn opib 1 */«—2*/« á Rnnnudögura
8tjórnarráöaskrifstofurnar opnar 10 -4 dagleg
Talslmi Reykjavlkur (Pósth. 8) opinn daglangt
(8—10) virka daga; holga daga 10—9.
Tannlækning ókeypis Pósth.sfcc. 14B md. 11—12
Vlfilsstabahælib. Heimsóknartimi 12—1.
Þjóómenjasafnib opió á sd., þrd. og fmd. 12—2
Uppreistin í Marokkó.
---- Kh. »/# '12
Marokkóbúar hafa af nýju sezt um
borgina Fez og gert á hana hverja
atlöguna annari harðari. Það er ekki
minni hei en 20,000 manns, er árás-
ina gerðu, en Liautey yfirherforingi
Frakka situr þar fyrir með einar sex
þúsundir.
Atlögurnar hafa orðið fleiri og ákaf-
ari með hverjum degi og nú má kalla,
að þar standi látlaus hrið. Uppreistar-
menn hefta alla aðflutninga til borg-
arinnar, banna alla vegi. Þrjár kaup-
mannalestir hafa verið rændar og mörg
afskekt héruð verið brend.
En verst af öllu þykir þó Frökk-
um, að þeir geta ekki lengur treyst
sjálfum íbúum borgarinnar. Þeir draga
fullkominn taum uppreistarmanna,
landa sinna. Margir kynflokkar þar í
kring hafa enn fretr.ur sent Liautey
yfirherforinga þau boð, að þeir sæi
sig knúða tii að ganga í lið með óvin-
um Frakka, ef þeir treystust ekki til
að vernda þá fyrir heitingum upp-
reistar-flokkanna.
Ráðuneytisforseti Frakka, Poincaré,
hefir lýst yfir því í neðri deild, að
hann veitti Liautey fulla heimild til
að gera alt, sem unt væri til að bæta
úr ýmsum stjórnarfarslegum missmíð-
um af Frakka hendi.
Símskeyti frá Tanger skýrir frá, að
nýr soldán sé útnefndur r Suður-
Marokkó.
Úlfúðin til Frakka vex dag frá degi.
Hrakfarir Marokkobúa.
Síðustu fregnir.
Franski yfirhershöfðinginn í Mar-
okkó, Liautey, hefir sent frá Fez 1.
júní kl. 9 um kvöldið svofelda skýrslu:
Herfylking Gouraud’s ofursta, sem
i eru 5 sveitir fótgönguliðs, 6 deildir
stórskotaliðs og 2 riddarasveitir, rudd-
ist kl. 5 í morgun fram í móti óvin-
unum, sem höfðu safnast saman á
bökkum Seba-árinnar 10 km. í norð-
vestur frá Fez.
Fylkingin gjörði grimmilega atlögu
á herdeildir óvinanna, og kl. 10 var
gjörð stórskotahríð á stóreflis herbúð,
svo að óvinirnir hrukku undan og
flýðu hópum sarnan upp í fjöllin.
Eleissami, foringi þess hers náðist.
Margir úr óvinahernum féllu. Vér
létum 9 manns, en 28 sárir. Stór
deild af skotliðinu hefir rekið flóttann.
Óvinunum virðist fullkomlega sundrað.
Heimspekisprófi við Kh.háskóla
hafa þessir stúdentar lokið: Héðinn
Valdimarsson með I. einkunn, Hjört-
ur Þorsteinsson með III. eink., Magn-
ús Jochumsson með ágætiseinkunn,
Steinþór Guðmundsson með I. eink.
og Þorlákur Bjönsson með ágætiseink-
unn.
Ýms erlend tíðindi.
Ótriðurinn.
Þessa dagana eru ítalir að kveðja
saman herdeild 28,000 manna, sem
tekur setu i Chios og Mytilene. All-
ar þær eyjar, sem ítalir hafast við
í, hafa verið hersettar síðustu viku
með ítölsku setuliði, og nú er í iáði
að skipa opinberar stöður ítölskum
embættismönnum.
Ef Tyrkir vilja nú ekki semja frið,
eftir að sett er niður herdeild í Chios
og Mytilene, ætla ítalir sér að gjöra
stórskotahríð á Smyrna og gjöra at-
lögu á borgina af sjó og landi í senn.
Nú geta menn til að stórveldin
sitji ekki lengur auðum höndum, held-
ur láti til skarar skríða um ófriðinn.
í þessum mánuði mun verða kvatt til
alþjóða fundar og friðarkostir settir.
Uppgötvari flugvóiarinnar
látinn. Kh. 12.
Wilbur Wright, uppgötvari flugvél-
arinnar, andaðist 30. maí í Dayton í
Ohio í N.-Ameríku. Hann lézt úr
taugaveiki eftir viku legu.
Þeir voru tveir bræður, hann og
Orville Wright, er tóku að iðka loft-
renning árið 1900 við Kitty Hawk
í Nord Carolina. Þeir höfðu renni-
tæki og mótor í, og 17. desember
hepnaðist þeim fyrsta flugið. Með
sifeldum framförum og umbótum á
Wilbur Wright.
flugtækjunum tókst þeim loks árið
1905 að fljúga 40 km. á 40 mín. og
á gamlársdag 1908 flaug Wilbur Wright
látlaust 2 klst. og 21 mín. Það var
frammistaða, sem allur heimurinn dáð-
ist að.
Wilbur Wright var fæddur í Henry
County i fylkinu Ohio 16. apríl 1867.
Föðurafi hans var landstjóri í fylkinu
New York, en í móðurætt var hann
af þýzkum furstaættum.
Prófessor Julius Petersen
látinn.
Læknissögufræðingurinn Julius Pet-
ersen, prófessor við Kaupmannahafnar
háskóla, Iézt 28. maí. Hann var mjög
merkur visindamaður í sinni grein og
hefir ritað margar bækur. íslenzkum
stúdentum í Khöfn er hann sérstak-
lega að góðu kunnur sem Garðlæknir,
og munu þeir fáir stúdentar frá síð-
ari árum, er ekki hafi reynt á hjálp.
semi hans. Lík hans var brent í gær.
í líkbrensluhúsinu flutti prófessor
Höffding stutta ræðu. Meðal ógrynni
blómsveiga var einn frá íslenzknm
stúdentum í Kaupmannahöfn, með
bláum og hvítum borðum.
Næsta blað
á laugardag. Margar greinar og
fréttir innlendar bíða þess.
40. tölublað
Frá þingmálafundum.
í Hafnarflrði var þingmála-
lúndur haldinn siðastliðinn laugardag,
af þingmönnum Gullbringu- og Kjós-
arsýslu, þeim Birni Kristjánssyni
bankastjóra og síia Jens Pálssyni
rrófasti.
Á fund þenna höfðu samkomulags-
:rjendur í Rvík sent alt stórskotalið sitt:
Bjarna frá Vogi, Gísla Sveinsson og
doktor skjalavörð — til þess að reyna
að spilla fyrir því, að þingmálafundur
æssi samþykti tillögur, er færu í
samkomulagsáttina í sambandsmálinu.
En svo hrapallega mistókst sú til-
raun, að þeir eigi höfðu sinum máls-
stað til stuðnings, nema 2—4 atkvæði.
Eitt málgagn þeirra lætur það vera
3, annað 4, en hið rétta mun vera
2 atkv.
Aftur fekk samkomulagstillaga frá
síra Jetis með sér 14 atkv. — fund-
urinn orðinn svo fámennur, er til at-
kvæða var gengið.
A fundinum var og staddur Sveinn
Björnsson og héldu þeir síra Jens
uppisókn af samkomulagsmanna hálfu,
en í móti mælti stórskotaliðið alt, sem
að ofan getur.
Kolaeinkasalan eða einokunin var
feld með öllum atkvæðum gegn einu.
Björn Kristjánsson reifaði það mál og
lagði eindregið móti því. Eru nú
auðséð forlög Kartagóborgar. — Það
virðist eins einróma mótspyma gegn
kolaeinkasölunni á þingmálafundum,
eins og fylgið við samkomulagstil-
raunirnar i sambandsmálinu.
Stjórnarskráin. Samþykt var á Hafn-
arf]arðarfundinum tillaga um, að sam-
þykkja stjórnarskrána frá síðasta þingi
óbreytta.
—«—
Á Lágafelli átti að halda þingmála-
fund á mánudag, en fórst fyrir vegna
fámennis.
Verkfallið í Lundúnum.
--- Kh. #/e 12.
Verkfallið sem verkamenn í Lund-
únum, þeir er eiga í hafnarvinnu og
flutningum, hófu í fyrra mánuði,
stendur enn yfir. En þó betri horf-
ur til samkomulags þessa dagana.
Harry Gosling, sem hér er mynd
af, er foringi verkmanna. Hann hefir
undirbúið verkfallið í hljóði, svo heita
mátti að það kæmi óvörum yfir land-
Harry Gosling.
ið — öðruvísi en kolaverkfallið í
vetur, sem fyrst reis upp eftir langar
og miklar deilur.
Ein aðalkrafan sem verkmenn fara
fram á er vitanlega launahækkun. En
Gosling kveður þó annað ekki síður
hafa hrundið þvi af stað. Það er iðn-
aðarsamband verkmanna. Þeir geti
hvorki né vilji vinna með fólki, sem
standi utan iðnaðarfélaganna. Af þess-
um rótum er verkfallið aðallega runn-
ið, segir hann; af þessum ástæðum
hafa nú meira en 100,000 manns tekið
þátt í þvi. Verðhækkun hefir lagst
á nýjan og nýjan varning og enska
stjórnin hefir oröið að taka í taumana.
Hún hefir boðað til fundar fulltrúa-