Ísafold - 16.04.1913, Page 3
I
ÍSAFOLD
139
Til íslenzku þjóðarinnar.
Eftir að Hjálpræðisherintj hefir
starfað um 20 ár hér á íslandi með
trúmensku og sjálfsafneitun, höfum
vér, eins og mörgum er kunnugt,
mikla þörf á nýju húsi í höfuðstað
landsins, sem rúmað gæti: aðalstöð,
gistihæli, vinnustofu og samkomusal
o. m. fl. Oss hefir lengi verið ljóst,
að gamli kastalinn hafi endað þjón-
ustu sina, en samt höfum vér komist
af, með því að setja bót á bót ofan.
— En það getur ekki gengið lengur
á þennan hátt. — Það er brýn nauð-
syn á að byggja nýjan kastala, sem
getur nokkurn veginn hæft miðhluta
borgarinnar. Þess vegna skrifum vér
þessar línur, sem hvöt og bæn til
íslendinga um stuðning.
11. maí 1915 eru 20 ár liðin síð-
an Hjálpræðisherinn byrjaði starfsemi
sína hér á íslandi, og dirfumst vér
að segja, að þessi ár höfum vér haft
það takmark fyrir augum að vinna
þjóðina og landið fyrir Krist, undir
margbreyttum kringumstæðum í
heiðri og vanvirðu, vondu og góðu
umtali — að vísu fátækir, en höfum
þó gert marga ríka, ætið höfum vér
leitast við að mýkja og draga úr
sorg, neyð og söknuði af öllum teg-
undum.
Það mundi vera oss fagnaðarefni,
ef unt væri að hafa lokið bygging-
unni og geta vígt hana á fyrnefnd-
um hátíðisdegi, en til þess verðum
vér að minsta kosti að fá 5000 krónur
að gjöf frá landsbúum, auk þeirrar
fjárhæðar, sem von er á frá öðrum
hjálparlindum. Ymsar áætlanir höf-
um vér gert um þessar 5000 krónur,
sem vér munum gera almenningi
kunnar þegar fram iiða stundii, og
treystum vér hluttekningu og hjálp-
semi landsstjórnarinnar, lögreglunnar
og annara leiðandi valdhafa, og von-
um vér þá að geta gert ráð fyrir
styrk, samvinnu og áhuga manna af
Öllum stéttum og á öllum aldri.
Fyrir hönd Hjálpræðishersins.
Reykjavík í apríl 1913.
Virðingaríylst.
N. Edelbo,
leiðtogi Hjálpræðishersins á íslandi.
*
* *
Framanritað ávarp væntum vér að
njóti stuðnings almennings í kaup-
túnum og sveitum.
Olajur Björnsson, Þórh. Bjarnarson,
ritstjóri ísafoldar. biskup.
Kristjdn Jónsson, Kristj. Þorqrímsson,
háyfirdómari. Svensk v. Konsul.
Björn Kristjánsson, Þorst. Gíslason,
bankastjóri. ( ritstjóri.
Siehv. Bjarnason, Asgeir Sigurðsson,
bankastjóri. kaupmaður.
Magnús Blöndahl, Tr. Gunnarsson,
kaupm. fv. bankastjóri.
J. Havsteen, Jóhann Þorkelsson,
fv. arntm. dómkirkjuprestur.
/. Jónsson, Jes Zimsen,
docent. kaupmaður.
Oddur Gíslason, Magnús Stephensen,
yfird.lögm. f. landshöfðingi.
Brlet Bjarnhéðinsdóttir, Ól. Ólajsson,
ritstjóri. prestur.
Morten Hansen, Ludvig Kaaber,
skólastjóri. konsúll.
Jón Jensson, Guðmundur Helgason,
yfirdómari. Búnaðarfél. form.
A. V. Tulinius, Ól. Johnson,
yfird lögm. konsúll.
A. Openhaupt, Fr. Friðriksson,
umboðssali. form. K. F. U. M.
Borgpór Jósejsson, Magnús Jónsson,
bæjargjaldkeri. sýslum.
Hannes Hajiiðason, Jón Hj. Sigurðsson,
skipstjóri. héraðslæknir.
Sveinn Björnsson, Benedikt Sveinsson,
yfird.lögm. ritstjóri.
Jóh. Jóhannesson, Magnús Helgason,
kaupm. skólastjóri.
Einar Þorgilsson, xAug. Flygenring,
kaupm. kaupm.
S. Bergmann,
kaupm.
ReykjaYíkiir-annáll.
Arfurinn dularfulli, leikrit það er Hring-
atúlkurnar ætla að leika i kvöld og næstn
2 kvöld, ef vel er sótt — er eftir dönskn
skúldkonuna Emmu Gad og hefir marg-
sinnis verið sýnt í Khöfu við mikla að-
sókn. Engin hætta á öðru en að ánægju-
legt verði i leikhúsinu þessi kvöld, ef að
vanda lætur — um leik Hringsins. —
Eins og skýrsla formanns Hringsins, frú
Kristínar Jakohson hér i hl. ber með sér,
hefir þetta félag siðastliðið ár styrkt
berklaveika fátæklinga með hátt upp i
1000 kr. Drýgsti skerfurinn til þeirrar
líknar er fenginn með sjónleikum Hrings-
ins. Menn skemta sér — og likna um
leið — með því að sækja þessa sjónleika.
Húsfyllir ætti þvi að vera öll kvöldin.
Brunabótavirðingar nýjar: Húseign L.
Diohmanns við Lindargötu 14: kr. 22,545.
Húseign Ólafs Kristjánssonar við Hánar-
götu kr. 4812,00. Húseign nr. 20 b við
Lindargötu 4499,00.
Hjúskapur. Einar Ólafsson Hólm skósm.
og Gislina Magnúsdóttir frá Patreksfirði.
Gift 14. april.
Lækjargatið, suður við Barnaskóla —
þar sem Tjörnin með sogi miklu fellur i
lækjarræsið — er, af ýmsum, sem snúið
hafa sér til Isaf, talið stórhættulegt, eins
og frá því er gengið. Ef börn kynnu að
detta þar í Tjörnina er taiið gefið, að
þau muni sogast inn i ræsið og er þá
eigi fé bjóðandi i líf þeirra.
Detta er hrunnur, sem hyrgja ætti á
einhveru hátt, áður en harn dettur i!
Myndir af höfninni fyrirhuguðu hér i
Rvik hafa I s a f 0 1 d verið sendar. Er
það uppdráttur af hafnarsvæðinu, — af
hafnarmannvirkjum og loks af hafnarörm-
unum og fyrirhugaðri kolahryggju.
Þessar myndir eru á venjulegum spjald-
bréfum og munu vafalaust verða mikið
notaðar tii sendispjalda. Þau fást i hók-
verzl. og kosta 5 aura.
Nýjar verzlanir eru að spretta upp hér
í bæ um þessar mundir. Veiðarfæra-
verzlanir 2 eru nýstofnaðar, önnur (Verð-
andi), af Pétri J. Thorsteinsson, hin af
Th. Thorsteinsson.
Þá hefir Th. Thorsteínsson flutt karl-
mannsfataverzlun sina í stórhýsi það fyrir
austan Hótel iteykjavik, er Einar Bene-
diktsson lét reisa fyrir 2—3 árum, og
borið hefir nafnið »tómthúsið« til skamms
tíma. Hin nýja búð Th. Th. er hin skrant-
legasta og ánægjulegt að sjá svo góða
bæjarprýði á einhverjum fjölfarnasta stað
borgarinnar. — í sama húsi hefir og Jón
Hallgrimsson stofnsett fataverzlun.
Þá er og ný verzlun komin í búð Nic.
Bjarnason, vestast i Austurrtræti. Hún
beitir: Nýja verzlnnin og er þar til sölu
allskonar vörur, er kvenfólkið girnist.
Loks er risin upp ný vefnaðarvöruverzl-
uu í einu af Thomsenshúsum. Er það
Carl Hemmert, sem hana rekur.
Þetta er eigi litil verzluuarviðkoma á
örstuttum tima — og muu þó eitthvað
ótalið af nýjum verzlunum.
Sjúkrahússjóður Rvikur var í árslok 1912
orðinn 17,735,32.
Sumargleði stúdenta. Stúdentafélagið
gengst fyrir því nú sem ella, að stúdent-
ar höfuðstaðarins komi saman, kveðji vet-
ur og fagni sumri á siðasta vetrardag.
Þetta sinni er boðið upp á »ábæti« o:
skopleiksbrot úr Rvikurlífinu (sbr. aug-
lýsingu hér i blaðinu).
Strandbátarnir. Hólar og Skálholt lögðu
upp i fyrstu ferð slna í gær. Meðal far-
þega á Hólum voru: Stefán Guðjohnsen
faktor frá Húsavík, þeir bræður Eyólfur
og Stefán Jónssynir frá Seyðisfirði, Þór-
hallur kaupm. Danielsson frá Hornafirði
0. fl. 0. fl.
Skipafregn. Sterling fór utan á
mánudag með allmargt farþega. Til Yest-
manneyja fóru m. a. Brillouin konsúll og
Gunnar Egilsson framkvæmdarstjóri og
margir verkamenn til Guano-verksmiðju
fyrirtækisins.
Gjafir og áheit
til kvenfél. Hringurinn 1912.
Fröken Anna Nielsen . . kr. 2,00
Konsúll Kr. Þorgrímsson — 3,00
Próf. L. H. Bjarnason . — 12,00
Kaupm. Olafui Ólafsson — 46,84
Adj. Þorl. H. Bjarnason . — 24,00
Árið 1912 hefir félagið borgað með
sjúklingum kr. 942,40.
Kr. V. Jakobsson.
Málaravörur
af öllu tagi, þar á meðal
Terpentina pt. á 90,
Fernisolían bezta pt. á 80 a.
og alt annað þessu líkt.
Afsláttur i stórkaupum.
Verzl. B. H. Bjarnason.
Ostar
3 teg., hver annari betri, ódýrastir
í verzlun undirritaðs.
Sömuleiðis Korsör-margarinlð víð-
fræga og Palminið alþekta: »Kokke-
pige«.
Verzl. B. H. Bjarnason.
Varzla bæjarlandsins.
Þeir, sem vilja hafa á hendi vörzlu
bæjarlandsins næsta sumar og hesta-
gæzlu utan Laugarnesgirðingarinnar,
sæki um það til borgarstjóra fyrir
2o. þ. m. — Skrifstofa borgarstjóra
lætur í té allar upplýsingar.
Hérmeð auglýsist, að eg Bjarg-
mundur Sveinsson tek mér fyrir
ættarnafn nafnið Kjarval, og skrifa
mig hér eftir Bjargm. S. Kjarval.
2 herbergi til leigu í Brekku-
götu 5. Hafnarfirði.
Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönn-
um, að jarðarför konu minnar, Ingigerðar
I. Helgadóttur, fer fram föstud. 18. þ. m.
Húskveðja verðnr haldin kl. II. árd. á heim-
ili hinnar látnu, Skólavörðustig 4 B. Það-
an farið í Frikirkjuna.
Þorlákur Oddsson,
Skólavörðustig 4 B.
Líkkistur, j;™
Litið á birgðir minar áður en þér
knupið annarsstaðar. Teppi lánuð
ókeypis í kirkjuna,
Eyv. Árnason,
trésmiðaverksmiðja, Laufásveg 2.
Fernisolia
63 aura potturinn
í verzl. G. Zoega
Boskinn maður, sem vill
takast á hendur að bera ísafold í
austurbæinn og líma upp götuauglýs-
ingar fyrir ísafoldarprentsmiðju, ósk-
ast til viðtals sem fyrst.
Afgreiðsla ísafoldar.
Uppboðs auglýsing.
Laugardaginn þann 26.
þ. m., kl. 12 á hád., verður
opinhert uppboð haldið í
Melshúsum á Seltjarnar-
nesi og þar og þá seldir
lausafjármunir allir til-
heyrandi dánarbúi Jóns
Jónssonar í Melshúsum,
vagnar, aktygi, rumfatu-
aður, rúmstæði, margskon-
ar innanstokksmunir og
búsáhöld, svo og 3 kýr, 1
hestur, loks gamla barna-
skólahúsið, mjólkurskúr,
o. fl. —
Uppboðsskilmálar verða birtir á
uppboðsstaðnum.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu,
14. apríl 1913.
Magnus Jönsson.
11 íegundir
<J
£
°Q
O**
þessi atmdfuðu ^
og margt fleira af vönduðum
varningi í V 2 r Z lU tí
G. Zoéga.
«£»
ce
Tafaefnin,
marg effirspurðu
komu nú með síðustu skipum í klæðaverzlun
Tf. Tíndersen & Sön.
Tilboð öskast.
Ákveðið er að byggja barnaskólahús úr steinsteypu í Borgarnesi
næstkomandi sumar. — Stærð hússins 22X14 al. Uppdráttur af húsinu
m. m. er til sýnis hjá * herra byggingarmeistara Rögnvaldi Ólafssyni í
Reykjavík og skólanefndinni í Borgarnesi.
Þeir, sem óska að taka að sér byggingu á nefndu húsi, sendi skrif-
leg tilboð til skólanefndarinnar í Borgarnesi fyrlr 23. maí J>. á.
Óskað eftir tilboðum í tvennu lagi: efni og vinnu.
Borgarnesi, 14. apríl 1913.
SRóíanefnóin.
Tafsverf af fafaefnum ný-
homið fif
Ludvig Tfndersen
Hirhjusfrsefi 10.
Til Fermingarinnar
B
□
5
hefi eg nú fengið einstaklega stórt úrval af
fermiugarfötum í öllum stærðum, með ýmsu verði og
eftir nýjustu sniðum, frá 14,50—25,00.
Fataefni tvíbr., blátt og svart cheviot, einnig blátt og
svart kamgarn gott í fermingarföt,
Handa telpum: Náttkjólar, skyrtur, buxur
og skjört.
Einnig mikið úrval af kápum, i nýjustu sniðum og
eftir nýjustu tízku.
Höfuðsjöl og slæður úr silki frá 0,75 og 1,85.
Brauns verzlun „Hamborg",
Aðalstræti 9 Reykjavik.
0
□
5
u\
Fundur í kvenfélagi Fríkirkju-
safnaðarins fimtudaginn 17. þ. m á
venjulegum stað og stundu. Áríð-
andi mál á dagskrá.
Af því að ekki gat orðið fundur
um páskana, verður fundur haldinn
í Kennarafélagi Kjósar-og Gullbringu-
sýslu föstudaginn 15. mai kl. 12 í
Flensborgarskólanum.
Ögui. Sigurðsson.
En yngre musikalsk Dame fra
Kobenhavn kunde onske Ophold for
Sommerferien i et dannet Hjem paa
Island mod at undervise i dansk.
Litteratur og Oplæsning.
Eventuelle Billetter samt Opkræv-
ning bedes tilsendt
Frk. Joh. Petræus,
Sofievej 8 Kobenhavn.
Herbergi til leigu fyrir ein-
hleypa á Laugaveg 32 B uppi.