Ísafold - 05.07.1913, Qupperneq 1
Kemur út tvisvar
í viku. Verð árg.
4 kr., eriendis 5 kr.
eða 1-Jdollar; borg-
ist fyrir miðjan ]úli
erleiidis fyrirfram.
Lausasala 5 a. pint.
XXXX. árg.
Reykjavík, laugardaginn 5. júlí 1913.
Uppsögn (skrifl.) |
bundin við áramót, |
erógild nema kom |
in sé til útgefanda |
fyrir 1. oktbr. og I
só kaupandi skuld- I
laus við blaðið. |
=g'.............. ■
54. tölublað
I. O. O F. 94749.
Alþýöafól.bókasaf'n Templaras. 8 kl. 7—9.
Angnlækninc: ókeypis i Lækjarg. 2 mvd. 2—3
BorgHrstjóraskrifstofan opin virka daca 10—3
Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4—7
Bæjargjaldkerinn Laugav. 11 kl. 12—8 og 6—7
Eyrna- nef- hálslækn. ók. Pósth.str. 14A fid. 2—8
íslandsbanki opinn 10—2V* og 51/*—7.
K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8 árd.—10 siðd.
Alm. fundir fid. og sd. 81/* siöd.
Landakotskirkja. Quósþj. 9 og 6 á helgum.
Landakotsfpitali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankinn 11-21/*, 51/*—61/!. Bankastj. 12-2
Landsbókasafn 12—B og 5—8. Útlán 1—8.
Landsbúnaðarfólagsskrifstofan opin frá 12 2
Landsfóhirbir 10—2 og 5—6.
Landsskjalasafnið hvern virkan dag kl. 12—2
Landssín*inn opinn daglangt (8—9) virka daga
helgaMaga 10—12 og 4—7.
Lækning ókeypis Þingb.str. 28 þd.ogfsd. 12—1
Náttúrugripasafnib opib l1/*—21/* á sunnud.
Samábyrgb Islands 10—12 og 4—6.
Stjórnarráósskrifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsimi Reykjavikur Pósth.3 opinn daglangt
(8—10) virka daga helga daga 10—9.
Tannlækning ókeypis Pósth.str. 14B md. 11—12
Vifílstaðahælib. Heimsóknartimi 12—1
Þjóbmenjasafnið opib á hverjum degi 12—2.
Nýja Bló
V esalingarnir.
(Hinir ógæfusömu).
Mesta aðsóknarleikrit heimsins.
3. þáttar: Cosette, fósturdóttir gal-
eiðuþrælsins.
Síðasta skifti sunnudag 6. júli
kl. 6, 7, 8 og 9. y
Mánudag 7. júli og næstn kvöld
kl. 8Vj og 9*/,
verður sýndar siðasti þáttur:
Galeiðuþrællinn á tímum stjórnarbylt-
ingarinnar.
Verð aðgöngnmiða sama og áður.
Nýjar bækur:
Ljósaskifti,
ljóðabálkur um kristnitökuna áíslandi,
eftir Guðmund Guðmundsson skáld.
Verð 0.90.
Friður á jörðu,
eftir Guðmund Guðmundsson skáld.
2. útgáfa. Verð 0.75.
Hví slær þú mig?
Erindi Haralds Ntelssonar prófessors
um dularful! fyrirbrigði.
Verð 0.40.
Fást í bókverzlununum.
Erl. simfregnir.
Khöfn 4. júlí.
Frá nýja ófriðnum.
Mannskæðar orustur.
Búlgrarar fara halloka.
Tyrkir ei u búnir að fresta
því að efna friðarskilmál-
ana. Rúmenir hervæðast.
Nú fer að kárna gaman, auðsjáan-
lega. Kemur þá Búlgörum í koll
landgræðgi þeirra, ef þeir bíða lægra
hlut fyrir bandamönnum sínum.
Stórveldin virðast nú sitja hjá og
horfa á, því að eigi getur þeirra að
neinu í símfregnum.
Danska ráðuneytið uýja.
Efsta röð (frá vinstri): P. Munch her; og flotamálaráðherra. Hassinq-
Jörgensen, verzlunar- og atvinnumálaráðherra. Edvard Brandes, fjármála- og
utanríkisráðherra. í miðju: Zahle, yfirráðherra. Neðsta röð: Keiser-
Nielsen, kirkju- og kenslumálaráðherra. Ove Rode, innanríkisráðherra og
Rr. Pedersen-Sandby landbúnaðarráðherra.
Frá alþingi.
Enginn fáni. Frá því var skýrt í
síðasta blaði, að nokkrar reykvískar
konur hefðu sent alþingi að gjöf
veifu til að draga á stöng sem funda-.
merki, bláa að lit með orðinu Alpingi
í hvitum stöfum. A einkafundi
þingmanna í fyrradag var út af þessu
tekin sú ákvörðun að draga enga
veifu á stöng, hvorki dannebrog né
kvenna-gjöfina.
Flokkaskifting. Bœndaflokkurinn er
nú hlaupinn af stokkunum og eru í
honum |þessir þingmenn: Einar
Jónsson þingm. Rangæinga, Guðjón
Guðlaugsson, Hákon Kristófersson(?),
Jón Jónatansson, fósef Björnsson,
Ólafur Briem, Pétur Jónsson, Sig-
urður Sigurðsson, Stefán frá Fagra-
skógi, Tryggvi Bjarnason, Þórarinn
Jónsson og Þorleifur Jónsson. Tvö
mál eru alveg undanskilin flokks-
böndum, eftir því sem heyrst hefir:
sambandsmálið og ráðherra stuðningur.
Fjárlögin. — Kosningfjárlaganefnd-
ar. Fjárlögin komu til x. umræðu
í gær. Ráðherra talaði nokkur orð
alment um frv. stjórnarinnar. Lárus
H. Bjarnason, einnig nokkur orð,
harmaði lotteríleysið þ. e., að lotterí-
lögin skyldu óstaðfest, með því að
landssjóð munaði svo mikið um þann
tekjumissi, 400,000 kr., eftir því,
sem honum taldist til. Þá fann
hann og að því, að eigi skyldi fé
hafa verið veitt til viðskiftaráðunauta.
— Ráðherra svarnði engu um lotterí-
ið, en hina fjárveitinguna kvað hann
mundu geta komið til athugunar
fyrir fjárlaganefnd í annari mynd
en nú.
Þá var kosin Jjárlaganeýnd. Komu
þar fram 3 listar, einn frá Bænda-
flokknum, anuar frá Sambandsflokkn-
um og hinn þriðji frá Heimastjórnar
og Sjálfstæðisflokkuum o. fl. í sam-
einingu. Er hægt að segja með
nokkurn veginn vissu, hverir atkvæði
greiddu með hverjum lista og setjum
vér nöfnin hér, af því þau gefa all-
góða hugmynd um flokkaskiftinguna.
Bændaflokkslistinn (C.) hlaut 7 atkvæði
og munu það verið hafa Einar frá
Geldingalæk, Ól. Briern, Pétur, Sig.
Sig., Stef. Stef., Tryggvi og Þorleifur.
Sambandsflokkslistinn (B.) 6 atkv.:
Hannes Hafstein, Jóh. Jóh., Jón
Magn., Kristján Jónsson, Magnús
Kristjánsson og Matthías Ól. Listi
»hinna sameinuðu* (A.) hlaut 12 at-
kv. og munu verið hafa: Benedikt
Sveinsson, Bjarni Jónsson, Björn
Kr., Eggert Pálsson, Guðm. Eggerz,
Halldór Steinsson, Jón sagnfr., Jón
Ól., Kristinn Daníelsson, Lárus H.
B., Skúli og Valtýr. §
Fjárlaganefnd|varð svo skipuð, að
hinir sameinuðu komu að 3, Lárusi,
Eggert P. og Skúla. Bændaflokkur-
inn 2, Pétri og Sig. Sig. og Sam-
bandsfl. 2, Jóhannesi og Kristjáni
Jónssyni, hinum síðarr með hlutkesti
milli hans og Valtýs, er var 4. mað-
ur á lista hinna sameinuðu.
Formaður fjárlaganefndar er L. H.
B., en Pétur skrifari — og framsögu-
maður.
Fjáraukalög 1912—1913. Fyrsta
umræða í gær. Ráðherra og L. H. B.
töluðu um nokkur atriði þeirra, en
síðan var þeim visaðtil fjárlaganefndar.
Þingnefndir. í gær var heill hóp-
ur af stjórnarfrumvörpum á dagskrá
beggja deilda og öll sett i nefnd.
í neðri deild voru auk fjárlaga og
fjáraukalaga 1912—1913 (sjá áður)
landsreikningasamþykt og fjáraukalög
1910 og 1911. í nefnd til þess að
athuga þau frumvörp, reikningslaga-
nefnd, voru kosnir: Guðm. Eggerz,
Stefán Stefánsson og Magnús Krist-
jánsson.
í efri deild voru 7 stjórnarfrum-
vörp fyrir:
x. Siglingalagabálkurinn mikli,sem
var og á ferðinni í fyrra. Nefnd:
Eiríkur Br. (form.), Sig. Eggerz (skrif-
ari) og Sig. Stefánsson.
2. Frumvarp um ábyrgðarýélög.
Nefnd: Július Havsteen (forrn.),
Steingr. (skrifari), Guðj. Guðlaugsson.
3. Frv. um talsíma og ritsíma.
Nefnd: Björn Þorl. (form.), Jósef
(skrifari) og Þórarinn.
4. Frv. um vatnsveitingar. Nefnd:
Jón Jónatansson (form.), Þórarinn
(skrifari), Eiríkur, Jósef og Steingr.
5. Frv. um breytingar á bæjar-
stjórnarkosningum. Nefnd: Guðjón
(form.), Sig. Eggerz (skrif.) og Guð-
mundur Björnsson.
6. Frv. um hagstoju, þ. e. sér-
staka skrifstofu til þess að sjá um
hagfræðisskýrslur o. s. frv. Nefnd:
Sig. Stef. (form.), Guðm. Bj. (skrif.)
og Steingr.
7. Frv. um sjódóma og réttarýar
í sjómálum. Nefnd: Sig. Eggerz
(form.), Guðm. Bj. (skrif.) og Eirikur
Briem.
Allar nefndir í efri deild voru
kosnar í einu. hljóði, svo er sam-
komulagið gott þar í deild.
Fánamálið. Frumvarp“um islenzk-
an fánaghafa* þeir borið' fram þing-
menn Reykvikinga og Guðm. Eggerz.
Það hljóðar svo: Q H
»Hér á landi skal vera löggildur
íslenzkur sérfáni. Sameinað alþingi
ræður gerð fánans«.
Frumvarpið er stutt, en hefði þó
verið bæði lagbetra og styttra með
því að skella fyrsta atkvæðið framan
af orðinu sérfáni, því það er
óþarft.
Við þetta frumv. er þegar komin
breytingartill. frá Bjarna — Bened.
— Skúla.
Þeir vilja orða 1. gr.: ísland skal
hafa sérstakan fána, og bæta við 2
greinum. Hin fyrri ákveður að gerð
fánans skuli vera sú, sem nú er not-
uð, en 3. gr. að með lögum þessum
séu úr gildi numin öll þau ákvæði
i íslenzkum lögum, er heimila isl.
skipum að nota annan fána.
Samgöngunjálanefnd. Þeir Krist-
itxn Danielsson, Björn Kr., Valtýr,
Matth. Ól. og Stefán Eyfirðinga flytja
þingsályktunartillögu svo látandi:
Neðri deild alþingis ályktar að skipa
5 manna nefnd til þess að ihuga
samgöngumál á sjó og að koma fram
nteð tillögur um þnu.
Landsbnnkimi. Þingsályktunartil-
laga er komin fram honum viðvíkj-
andi frá sömu mönnum og flytja
samgöngumálatillögutia. Hún hljóð-
ar svo:
Neðri deild alþingis ályktar að
skipa 3 manna nefnd. 1. Til þess
að athuga, á hvern hátt haganlegast
mundi að efla hag Landsbankans, og
koma fram með tillögur þar að lút-
andi. 2. Til þess að íhuga fyrir-
komulag veðdeildar Landsbankans, og
koma fram með tillögur um, á hvern
hátt hún verði styrkt, eða hvort til-
tækilegra sé að stofna sérstakan veð-
banka.
Notkun botnvörpusekta. Tvö frum-
vörp eru komin fram um notkun
sektafjárins, annað frá B. Kr., sira
Kristni, Matth. Ol. og Skúla um að
féð renni til Fiskiveiðasjóðs íslands,
hitt frá síra Sig. Stefánssyni um, að
2/3 hlutar skuli lagt i sérstakan sjóð,
'Landhelgissjóð íslands, ogskuli lands-
sjóður ennfr. leggja þessurn sjóði 5
þús. kr. árlega. A sínum tíma, þeg-
ar alþingi telur hentugt, skal sjóðn-
um varið til eflingar landhelgisvörn-
um Islands fyrir ólöglegum veiðum.
Nýtt læknishérað. Þingmenn
Gullbr. og Kjósarsýslu flytja frumv.
um að gera Þingvalla-, Kjósar-,
Kjalarness- og Hvalfjarðarhrepp út
fyrir Hrafnabjörg að sérstöku læknis-
héraði, er nefnist Kjósarhérað.
Nýtt stjórnarskrárfrumvarp. Þri-
menningarnir Bjarni, Benedikt, Skúli
eru þegar komnir fram með frv.
til breytinga á stjórnarskránnni.
Við fljótlegan yfirlestur virtist oss
þessar breytingar helztar: Ríkisráðs-
ákvæðið felt burtu. Ekki gert ráð
fyrir landritaraembættinu. Konung-
kjörnir þingmenn teknir af. Kosn-
ingarréttur veittur öllum, konum og
körlum, sem náð hafa lögaldri er
kosning fei fram, eru fædd hér á
landi eða hafa átt hér lögheimili 5
síðustu ár og búið eitt ár í kjördæm-
inu. Tala þingmanna gerð 36. 1
efri deild 12, kosnir eins og þjóð-
kjörnu efrideildarmennirnir nú. Kjör-
timabilið 4 ár. Skilnaður ríkis og
kirkju heimilaður með eitxföldum
lögum. Sambandslög milli íslands
og Danmerkur skal jafnan bera undir
þjóðaratkvæði, eftir að alþiugi hefir
samþykt.
Það stendur til bóta þetta frumv.
að ýmsu leyti, svo sem vikið mun
að síðar hér í blaðinu.
Eldurinn og afréttur Land-
manna. Enn sem komið er,
verður eigi sagt um, hvort Land-
menn geta rekið á afrétt sinn vegna
eldgangsins að fjallabaki. Meðan
ekki er útséð um, að gosin séu dvín-
uð, niun'varla hættaridi á að senda
féð inn eftir. Fullorðna féð munu
þeir þó ætla sér að reka, ef kostur
er. En lömbunum eru þeir stað-
ráðnir i að koma fyrir. Gnúpverja-
hrepps-menn hafa txú nýlega á al-
mennum hreppsfundi heitið Land-
mannahreppi ókeypis afrétti fyrir
1000 lörob. Drengilega af sér vikið.