Ísafold - 18.10.1913, Blaðsíða 3
ISAFO LD
329
Mótorbátur ferst.
Þrír menn drnkna.
A miðvikudagsmorgun kl. io fór
mótorbátur með 3 mönnum á, héð-
an dr bænum og var ferðinni heitið
suður að Sandgerði.
En báturinn hefir aldrei komið
fram. Sagt að sést hafi til hans frá
Sandgerði á miðvikudagskvöld. Síð-
an ekki. Daginn eftir fór að reka
hluti dr honum, svo að engum blöð-
um þarf um að fletta forlög hans.
Mennirnir 1.3 sem druknað hafa,
voru:
Magnús Guðmundsson frá Sand-
gerði á Miðnesi, 23 ára, formaður
bátsins.
Guðjón Bjarnason, frá Bjarnabæ,
til heimilis, Bókhlöðustíg 6 B, 43 ára.
Baldvin Kristjánsson, Lgv.62, 27ára.
Lætur eftir sig konu og 3 ungbörn.
Guðjón var einn hinna kunnu
Bjarnabæjarbræðra, sem lengi hafa
taldir verið veiðisælastir sjómanna hér.
Farið kringum kjötmerkingarlögin.
Frá Stykkishólmi var Isaýold símað
í morgun, að gerð hefði verið tilraun
af einni verzluninni þar, til að fara
kringum kjötmerkingarlögin. Það
var Tangsverzlun, sem í gær tók
upp á því, að merkja kjöt sitt með
eigin stimpli, í stað kjötskoðunar-
manns. En kjötskoðunarmaðurinn,
Guðtn. Guðmundsson héraðslæknir,
símaði þegar stjórnarráðinu um þetta
og fekk svoiátandi símsvar frá því
í gærkveldi:
»Stjórnarráðið telur kjötstimpl-
ing Tangsverzlunar koma í bága
við 3. gr. kjötmerkingarlaganna
og mun, þar sem drslit þessi heyra,
eftir 4. gr., undir dómstólana, láta
höfða opinbert lögreglumál, ef
ekki er þegar i stað hætt að nota
merkið.
Sjórnarráðið«.
Hvort verzlunin lætur skipast við
þetta skeyti, er ekki fullvíst enn.
En rétt er að benda á, að slík að-
ferð sem þessi getur stórspilt fyrir
sölu á öllu kjöti, minsta kosti í Stykk-
ishólmi, og er því mjög ámælisveit,
ef haldið væri áfram uppteknum hætti.
f Kolbeinn Eiríksson,
fyrrum bóndi í Mástungum i
Árnessýslu er nýlega látinn.
Kolbeinn var hinn mesti merkis-
maður, óvenju mentaður, gáfað-
ur og ritfimur. Skrifaði hann eigi
sjaldan í ísafold bæði um stjórnmál
og annað. — Kelbeins verður ítar-
lega minst hér í bl. síðar.
(0: innsæi) eða opinberun, hafi nokk-
urn tíma verið til, er óleyst spurn-
ing. Sumir þykjast vita rök fyrir
þvi, að svo hafi verið. Þeirra vitn-
isburði má með engu móti neita
hugsunarlaust. Hið sanna er, að
það er ávalt afar-ísjárvert og torvelt
að neita nokkrum hlut, sem varðar
allsherjar efni, þar eð sönnunin fyrir
þess konar má vera að eins fólgin
eða ókomin, sérstaklega eigi fram-
komin á vissum tíma í veraldarsög-
unni, eða á nokkru vissu menningar-
stigi einhvers einstaks manns. Dul-
spekin (mystivismi) hlýtur að hafa
sinn rétt, þólt samband hennar við
vísindin hafi eigi fundist. Hvort
fyrir sig hefir farið sinna ferða sér
og sundurlaust, en engin óvinátta
þarf í milli að bera. Sérhver virki-
leikur krefst sönnunar og réttrar
tneðferðar. Ef raddir Sókratesar og
jungfrdarinnar frá Orleans hafa verið
sannar staðreyndir, hljóta þær að
filheyra heimi skynseminnar og
mannvitsins.
Þótt eg nd tali ex cathetra (0: frá
Rikisrádsftmdur,
þar sem íslenzku frumvörpin m.
m. verða lögð fyrir konung, verður
haldinn á þriðjudag. Þá vitnast vænt-
anlega hvenær kosningar eiga að
fara fram.
Frézt hefir að þær muni standa
til þ. 10. jdní. Sönnur á því ófengn-
ar enn.
8000 krónur
hefir flotamálaráðuneytið danska
verið dæmt til að greiða enskum
botnvörpung »Claudius« frá Grims-
by fyrir að draga »Islands Falk« af
gruuni á Flateyri þ. 25. okt. síðast-
liðinn.
hefir Switzer verið [dæmt fyrir
að draga^Vestu af grunni á ísafirði
í fyrra. ___
ReykjaYíknr-annáll.
Ásgrímur málari hætti við að fara
utan með Ceres á síðustu stundu. Verð-
ur hann fyrst um sinn kyr í bænum.
Benedikt Jónasson bæjarverkfræð-
ingur hefir sagt lausu starfi sínu frá
1. apríl næstkomandi. Veganefnd var
falið á síðasta bæjarstj.fundi að ráða
fiam úr því máli.
Ditlev Thomsen konsdll fór hóðan
áleiðis til Danmerkur í gær á Flóru.
Ætlaði á leiðinni að finna að máli for-
göngumenn samvinnufólaganna norðan-
lands, sem hann hefir rekið erindifyr-
ir undanfarið.
•
Ellistyrktarsjóðsstyrkur var veitt-
ur 277 gamalmennum á síðasta bæjar-
stjórnarfundi.
Fisksölureglugjörðin var enn til
umræðu í bæjarstjórn á firntudaginn,
en ekki var hægt að ráða því til lykta
sökum fulltrúafæðar á fundinum.
Er það vanvirða mikil, er fulltrúar
þeir, sem bæjarbdar hafa kosið í bæjar-
stjórn, nenna ekki að koma á fundina
eða sitja þá út.
Hjúskapur: Þórarinn Ólafsson,
Hverfisgötu 2 og ym. Guðmundína
Sigurrós Guðmundsdóttir sama stað.
Gift 11. okt.
Ásgeir Björnsson frá Heggstöðum
í Ándakíl og ym. Sigríður Sveinsdóttir
sama stað. Gift 11. okt.
Olafur Kristinn Teitsson frá Hlöðu-
nesi og ym. Vilborg Magndsdóttir sama
stað. Gift 11. okt.
Helgi Jónsson bóndi í Miðhdsum í
Gndpverjahreppi og ym. Kristín Bryn-
jófsdóttir sama stað. Gift 12. okt.
Guðjón Þórðarson frá Vestmanneyum
og ym. Valgerður Þorvaldsdóttir sama
stað. Gift 12. okt.
Ólafur Jóti Jónsson múrari og ym.
kennarastóli) sem einn af svaramönn-
um hinna rétttrduðu vísinda, hika
eg mér eigi við að gera persónulega
yfirlýsing og um leið yfirlit yfir það,
sem andi minn hefir grætt og kom-
>ist að eftir 30 ára reynslu sálfræði-
legra rannsókna, er eg hóf alls eigi
af nokkrum fdsleik, heldur þvert á
móti með óvild og hinum venjulega
hleypidómi. Hér er eigi staður til
að greina smámuni né deila um stað-
hafnir, sem rétttrdanin eigi vill sjá
né heyra, en því get eg eigi gleymt,
að ummæli frá þessu sæti mínu eru
eigi töluð fyrir hverfula stund, held-
ur verða þau uppi og munu dæmd
verða af kynslóðum, sem enn eru
óbornar — kynslóðum, sem efalaust
verða vitrari og fróðari og með víð-
ari sjóndeildarhring heldur en vér
höfum. Forseti yðar ætti fyrir því
eigi að vera bundinn af hömlum
ndtímans rétttrdnaðar í vísindum,
eða takmarkaður af tízkunnar trd
umhverfis hann. Til réttlætingar
sjálfum mér og samverkamönnum
mínum verð eg að eiga það á hættu,
Þóra Petrína Jónsdóttir Bókhlöðustíg
6 A. Gift 14. okt,
Þorvaldur Kristján Ólafsson sjóm.
og ym. Þórunn Halldórsd., bæði frá
Keflavík. Gift 16. okt.
Messað í dómkirkjunni á morgun
kl. 12, sóra Jóh. Þorkelsson (ferming),
kl. 5 síra Bjarni Jónsson.
í fríkirkjunni kl. 12 síra Ól. Ólafsson.
Skipafregn. Cerea fór til dtlanda
í fyrradag, með fjölda farþega. Til
Vesturheims fóru Asmundur Jónsson
með konu og börnum, Sveinn Oddson
bifreiðarstjóri, Einar Páll Jónsson skrif-
ari o. fl. Til Danmerkur: Jungfrúrn-
ar Guðrún Thorsteinsson, Ragnheiður
Jónasdóttir og Sigríður Sigurðardóttir
hjúkrunarkona frá Vífilsstöðum til að
fullnuma sig í hjúkrunarfræði, og Guðm.
Thorsteinsson málari. Til Englands:
Sigurður Sigurðsson cand. theol. á leið til
Frakklands og fleiri landa á meginland-
inu. Til Vestmanneyja : Gísli Johnsen
konsúll og Ágúst Gíslason útgerðar-
maður.
Flora kom þann 15. þ. mán. og
fór aftur í gærkvöldi. Ólafur Eyólfsson
kaupmaður, Jón Þorláksson landsverk-
fræðingur og V. Knudsen komu hingað.
Meðal þeirra er komu og fóru aftur á
Floru voru Jón Bergsveinsson síldar-
matsmaður frá Akureyri og Karl Sig-
valdason búfræðiskandídat.
Hlutavelta
Hið ísl. kvenfélag •
heldur hlutaveltu laugardag 18. þ. m.
kl. 8 x/2 síðd. og sunnudag 19. þ. m.
kl. 6—8 og 9 —11 síðd.
i Iðnaðarinannahdsinu.
Sérstakt barnaborð ndllalaust.
Ágóðinn rennur í
Styrktarsjóð kvenna.
Ágæta muni um að keppa.
Lúðrar þeyttir.
Fiskur
fæst nd í
Li verpool
reyktur: Lax, Ýsa, Ldða. Saltaður:
Ufsi, Smáfiskur, Hnakkakdlur.
að eg kunni að særa áheyrendur
mina, eigi einungis með því að láta
hér bóka þá sannfæringu vora, að
fyrirbrigði, sem nd kallast dulræn
(occult), megi prófa og sýna viðráð-
anleg og reglubundin með nákvæmri
og fastri vísindameðferð, heldur fer
eg lengra og segi — og fer svo
fljótt yfir sögu, sem unt er — að
staðhafnir, á þann hátt prófaðar,
hafa þegar sannfært mig urn það, að
minni manns og ylhvatir sé eigi
skorðað og bundið við samband við
materiuefnin, sem hérna megin eru
skilyrði þess, að þau komi í ljós, og
að sérvera persónunnar viðvari eftir
viðskilnaðinn eða likamsdauðann.
Sönnun þessa — engin ný, einstök
eða snögglega fengin — er komin
smásaman, fyrir samsafn og marg-
faldleik fyrirbrigða (accumulation) og
fyrir langvarandi, alvörugefnar íhug-
anir. Þannig hefi eg vissu fengið
fyrir því, að framliðnar, skynsamar
verur geti, ef svo eða svo hagar til,
haft samband við oss hérna megin,
og á þann hátt óbeinlínis opnað oss
Glímufélagið Ármann
hefir æfingar sinar í leikfimishdsi
Mentaskólans i vetur á þriðjudags og
föstudagskvöldum kl. 9Y4.
Einnig annast félagið um tilsögn
í grísk-rómverskri glimu á mánu-
dags og fimtudagskvöldum á sama
tima. Kenslu í henm annast sá er
nd mun færastur um það vera hér
á landi.
íslenzka glímu kennir aðallega
undirritaður.
Nýir meðlimir gefi sig fram við
Jón jónsson kaupmann frá Vaðnesi
eða undirritaðan.
F. h. Glímufél. Ármanu.
Hallgr. Benediktsson.
diifftufyrirlQSÍur
i cSqíqL
Sunnudag 12. okt. kl 6^ síðd.
EJni\ Yfirlit yfir isjárvert og
ótryggilegt trdar-, mannfélags- og
stjórnmála-ástand vorra tíma, skoðað
í ljósi guðs orðs.
Merkilegir spádómar rætast aug-
sýnilega, er alþjóðafriður eða alþjóða-
ófriður ber að höndum.
Allir velkomnir.
O. J. Olsen.
Hér með tilkynnist vinum og vandamönn-
um, að jarðarför Vilborgar Ólafsdóttur, sem
andaðist þann 12. okt. s. I, fer fram þriðju-
daginn 21. s. m. kl. II '/« f. m. frá heimili
hennar. Þingholtsstræti 26.
Öllum þeim, sem með návist sinni heiðr-
uðu útför systur minnar, frú Margrétar
Egilsdóttur, eða á annan hátt sýndu hlut-
tekningu sína, votta eg mitt innilegasta
þakklæti. Kristín Laxdal.
Jarðarför Þorbjargar lllugadóttur, sem
andaðist i Landakotsspítala 13. þ. m., fer
fram mánudaginn 20. okt. kl. II f. m. frá
þjóðkirkjunni.
Öllum þeim, sem sýndu mér hluttekningu
við fráfaíl mannsins mfns sál., Jóns Guð-
mundssonar, og fylgdu honum til grafar,
eða á einhvern hátt heiðruðu útför hans,
votta eg mitt innilegasta hjartans þakklæti.
Brunnstig 8, Reykjavik 17/10 1913.
Þóra Nikulásdóttir.
aðgang að vísíndalegri viðkynningu;
ennfremur það, að vér getum vænst
þess að ná smátt og smátt meiri eða
minni skilningi á eðlisháttum stærri,
líklega ljósvakakendri tilveru, og á
þeim skilyrðum, sem lagt geti brd
eða Bifröst yfir hið dularfulla djdp,
sem aðskilur. Hópur rannsóknar-
manna, sem vel finna til ábyrgðar
sinnar, eru nd þegar lentir á strönd-
um nýs meginlands, — ströndum,
þar sem erfitt er að fóta sig, en lofa
miklu«.
Og meira mætti um þetta segja.
Aðferðir visindanna eru eigi hinftr
einu, þótt þær séu vorar einu, til
þess að finna sannleikann, uno itin-
ere non potest perveniri ad tam grande
secretum*).«
Og enn eru eftir nokkrar máls-
greinar af hinni röksamlegu tölu,
sem eg máske sendi lsajold síðar,
ef þess er óskað. Þær greinar eru
um afstöðu vísinda og trdarbragða
innbyrðis, og mjög svo eftirtekta-
*) 0: að svo stórfeldum sannleik liggja
fleiri götur en ein. (M. J.)
Bridge
reihnitigsblokMr
nýkomnar í
Bókverzí.
tsafoídar.
Ullarpeysur
fyrir unga og fullorðna, nýkomnar í
verzlun G. Zoéga
Göðan ungling
vantar til sndninga nd þegar.
Afgr. visar á.
f»egar við í vor sem leið urðum
fyrir því óhappi, að bær okkar, Laxár-
bakki í Mikiaholtshreppi, brann til
kaldra kola, ásamt miklu af fatnaði
og bdshlutum, þá brugðu sveitungar
okkar, ásamt öðrum fleirum, drengi-
lega við og skutu saman allmiklu fé
okkur til hjálpar, urðu samskot þau
alls um 400 kr. Fyrir þessa drengi-
legu og skjótu hjálp, sem varð til
þess, að við 1 vor gátum komið bæn-
um upp aftur, vottum við sveitung-
um og öllum gefendum okkar inni-
legasta þakklæti.
Laxárbakka 10. okt. 1913.
Magndís Benediktsd. Bjarni Ivarsson.
Ensk vaðmáí
og
Dömukíæði
dr rniklu að velja. {Annáluð að-
gæðum í
verzíun G. Zoega.
Teiknibesfikk,
íausar rissfjaðrir og
sirkfar
nýkomnir i
cfiófíverzl. Jsqfolóar
Rauðstjörnóttann fola með
marki: heilrifað hægra og sýlt vinstra
vantar. Finnandi geri mér viðvart.
Sveinn Sœmundsson, Breiðagerði á
Vatnsleysuströnd.
Stúlka, heilsugóð, óskast nd
þegar í vetrarvist, Bræðraborgarst. 15.
verðar, ekki einungis fyrir oss ís-
lendinga, heldur frændþjóðir vorar,
þar sem enn virðist ráða miklu hin
gamla kredda, sem heimspekingur
Dana, Sören Kierkegaard vakti upp
af löngum dvala:
Credo quia absurdum.
Þá visinda-lokleysu hefi eg hvergi
séð betur kveðna niður en nd hafa
þeir gert Englendingarnir Sir Oliver
Lodge og biskupinn Wakefield í
Birmingham. Mun ræða hins siðara
bráðum birtast í Nýju Kirkjubl. Má
ætla, að klerkdómur vor muni hafa
gott af að íhuga hana — eigi síður
en kenningu hins fyrnefnda mikil-
mennis.
Matth. Jochumsson.
Svar
við hinni löngu veðdeildargrein
Jóhanns Jóhannessonar kaupm., f
Lögréttu kemur í næsta blaði, komst
eigi að í dag vegna þrengsla.