Ísafold - 03.12.1913, Síða 3
IS A F O L D
377
Erlendar símfregTLÍr
Khöjn i. Des. hl. 6>10 siðd.
Prússar gegti Tröhkum.
Prússneskir liðsjoringjar haja ráðist á Frakka nteð pýzkum borgara-
rttti í bœnutn Zabern í Elsass o° sett nokkra í varðhald. 1 Elsass-Lohtrinqen
haja orðið miklar asingar út aj pessu.
Bæjargjöld
Þess er alvarlega kraíist, að allir þeir, svo hjú sem húsbændur,
sem eiga ógoldið bæjarsjóði aukaútsvar, lóðargjald, vatns-
skatt, sótaragjald, holræsagjald, brunabótagjald, sal-
ernagjald, erfðafestugjald, tíund, innlagningarkostnað
á vatni, eða hvert annað gjald sem er, sem greiðast á í bæjarsjóð, að
greiða fiað tafarlaust svo ekki þurfi að taka það lögtaki.
Bæjargjaldkerinn.
Kokes
selur Gasstöð Reykjavikur
ödýrast allra,
að eins 31—32 kr. tonnið heimflntt.
Við efnarannsókn hefir kokes Gasstöðvarinnar
reynst betra en kokes það, sem til bæjarins eru flutt
frá útlöndum.
é^assfoðin.
deilda, tóku að miklu leyti til greina
tillögur fiskiþingsins, enda virtust
þingmenn yfir höfuð vilja styrkja til-
gang félagsins og bera hlýjan hug
til starfsemi þess.
Einkum finn eg ástæðu til, að til-
nefna formann fjárlaganefndar neðri
deildar — (i. þingmann Reykvikinga),
báða þingmenn Kjósar og Gullbringu-
sýslu og þingmann Norður-Þingey-
inga, er ásamt fleirum börðust kapp-
samlega fyrir áhugamálum félagsins.
Þess ber líka að geta, að þingmaður
Vestur-ísfifðínga og þingmaður Akur-
eyrar bæði sem fulltrúar í Fiskiþing-
inu og alþingismenn, unnu með ár-
vekni að undirbúningi máíanna á
Fiskiþinginu og að úrslitum þeirra á
alþingi.
LagafrnmYarp Eimskipafélagsins.
Með þessari fyrirsögn birtist grein
í blaði hér í bænum í dag.
Er þar vikið að tveim atriðum,
sem frumvarpið snerta. Kennii þar
misskilnings um bæði atriðin. Enda
þótt vér hygðum, að þessi atriði
mundu eigi geta orðíð til þess að
valda nokkrum misskilningi, þá tel-
jum vér rétt að leiðrétta hann, úr
því hann hefir komið fram, og þann-
ig virðist ekki uggvænt að fleiri en
greinarhöfundurinn geti misskilið
frumvarpið á sama hátt.
Bæði atriðin snerta io. gr. frum-
varpsins.
Þar segir fyrst:
»Rétt til að mæta á fundum fé-
lagsins hafa þeir einir, sem staðið
hafa sem hluthafar á hluthafaskrá
fjóra mánuði næstu áður en fund-
urinn er haldinn. Hluthafar geta
falið öðrum atkvæðisbærum hlut-
höfum, sem ekki eiga sæti i stjórn
félagsins, að fara með atkvæði sín
á fundum«.
Út af þessu leiðir greinarhöf., að
eigi geti mætt á stojnjundinum 17.
jan. næstkomandi aðrir en þeir, sem
þá hafi staðið að minsta kosti fjóra
mánuði á hluthafaskrá og að eigi
geti aðrir en hluthafar farið með
atkvæði á þeim fundi. En petta er
alqer misskilninqur.
Hér er eigi um að ræða lög, sem
nú séu í gildi, heldur laqajrumyarp
sem einmitt stoínfundur á að greiða
atkvæði um, hvort hann vilji gera
að lögum, breytt eða óbreytt.
í auglýsingu um stofnfundinn,
sem birt er í öllum blöðum iands-
ins og ávalt má lesa I skrifstofu-
gluggum félagsins og hjá umboðs-
mönnum segir:
að allir, sem greitt hafi hlutafé sitt,
fái afhenta aðgöngumiða að stofn-
fundinum dagana 12.—16. janúar,
að menn geti fengi öðrurn (hlut-
hafar ekki til teknir) umboð til að
mæta fyrir sig á fundinum,
að eyðublöð undir slík umboð fá-
ist hjá öllum umboðsmönnum fé-
lagsins.
Hver maður sem skrifar sig jyrir
hlutum einhverntíma fyrir stojnjund,
— þó hann jafnvel ekki geri það
fyr en daginn áður — getur því
mætt þar eða jalið öðrum rnanni um-
boð til að mæta fyrir sig, þó með því
sjálfsagða skilyrði, að hann hafi greitt
hlutafé sitt. Eyðublöðin undir um-
boðin hafa verið send Vestur-íslend-
ingum, og skorað á þá að nota þau.
Sá sem umboð fær getur og falið
það öðrum.
Vér vildum einmitt reyna að gera
öllurn, sem hafa skrifað sig fyrir hlut-
um, kost á að neyta hluthafaréttar
sins á stofnfundi, og væntum að oss
hafi tekist það.
Hitt atriðið er tillaga vor í laga-
frumvarpinu, hvernig ákvæði skuli
vera um atkvæðamagn félagsmanna
í lögum félagsins, sem stofnfundur
ræður algerlega, hvort hann aðhyll-
ist eða eigi.
En hitt er það, að tillaga þessi er
gerð eftir mjög nákvæma íhugun,
sem það bezta, er vér treystum oss
að stinga upp á.
Hún er þessi:
»Eitt atkvæði er fyrir hverjar
25 krónur, sem hluthafi á í fé-
lagínu. Þó getur enginn hluthafi
átt fleiri atkvæði en 500 alls fyrir
sjálfan sig og aðra .... Enginn
hluthafi getur þó við atkvæða-
greiðslur á fundum átt meira en
*/6 greiddra atkvæða fyrir sjálfan
sig eða aðra«.
í erlendum hlutafélögum og mörg-
um hérlendum er sú venja, að at-
kvæðamagn hluthafa fari alveg eftir
hlutafjáreign þeirra. Út af þessari
venju höfum vér stungið upp á að
bregða, til pess að komið verði i veg
fyrir of mikil yfirráð einstakra manna
í félaginu.
Einn maður getur samkvæmt frum-
varpinu aldrei haft meiru yfir að
ráða en l/32 hluta af atkvæðamagni
féiagsins, ef hlutaféð verður, eins og
minst má gera ráð fyrir, og enn
minni hluta, ef rneira verður hluta
féð, og sérstaklega ef landssjóður
verður hluthafi, eins og ekki er ólik-
legt að verði. Ef fáir menn mæta
á fundi, er sleginn varnaglinn með
því að ákveða ennjremur, að enginn
einn hluthafi geti átt meira en ’/6
hluta greiddra atkvæða á fundinum.
Þetta töldum vér svo langt farið
sem sanngjarnt væri, til að takmarka
eitiræði einstakra manna, án þess þó
að styggja menn frá því að kaupa
hluti í félaginu fyrir ríflegar upp-
hæðir, svo að von væri um, að nægi-
legt hutafé fengist.
Af þessu sést, að rangt er dæmið,
sem greínarhöf. tekur frá hlutafélagi
hér í bænum til að sýna hverjar af-
leiðingar ákvæðis þessa geti orðið.
Slíkt, sem hann talar um, gæti aldrei
komið fyrir í Eimskipafélaginu, ef
tillaga vor væri samþykt. Og skal
í þessu sambandi bent á, að eftir
vorri tillögu getur enginn úr stjórn-
inni Jarið með uniboð fyrir aðra, eins
og greiuarhöf. skýrir réttilega frá,
en í öðru sámbandi. fafnframt vil-
jum vér benda á, að dæmi greinar-
höfundarins um einræði tveggja
manna á fundi, er gersamlega rangt,
vegna þess, að í því dæmi tekur
greinarhöf. ekki tillit til takmörkun-
arinnar um, að enginn hluthafi megi
á fundi hafa fleiri atkvæði en lf0
greiddra atkvæða fyrir sjálfan sig
og aðra.
Vér höfum talið oss skylt að leið-
rétta þenna bersýnilega misskilning.
En eigi má skilja það svo, að vér
séum mönnum eigi þakklátir fyrir
allar bendingar, sem orðið geti laga-
frumvarpinu til bóta. Oss er vissu-
lega eigi síður ant um það en cðr-
um, að sem bezt sé frá félagsstofn-
un þessari gengið.
Reykjavík, 28. nóvember 1913.
Bráðabirgðastjórnin.
Skýring.
ísafold hefir verið beðin fyrir eftir-
fylgjandi skýringu:
í grein í 92. tölubl. ísafoldar, með
fyrirsögninni, Fengsæld Valsins 1913,
er Garðar Landnemi meðal þeirra
fáu botnvörpunga, sem nafngreindir
eru, að handsamaðir hafi verið.
Því til skýringar skal þess getið,
að sá botnvörpungur var ekki hand-
samaður vegna óleyfilegra fiskiveiða,
heldur sektaður vegna misskilnings
á leyfi stjórnarráðsins um undanþágu
frá því að hafa veiðarfæri í búlka,
innan landhelgislínunnar.
Botnvörpungurinn lá af sér veður
við Vestmanneyjar, fy.rir akkerum,
með hlerana utanborðs, en skipstjóri
áleit sig hafa rétt til, samkvæmt
bréfi stjórnarráðsins, er veitti umrætt
leyfi án tímatakmörkunar. En vegna
þess að lög mæla svo fyrir, (sem
skipstjóra var ókunnugt um), að
leyfið sé veitt að eins til eins árs í
senn, og leyfisbréfið var orðið rúm-
lega ársgamalt, var skipið dæmt i
lægstu sekt, sem sé kr. 200.
Hagstofa Islands.
Frumvarpið um hagstofu íslands
er, eins og áður er getið, staðfest af
konungi. Mun hagstofan taka til
starfa núna um nýárið.
Enn er eigi opinbert hverir verða
eigi starfsmenn hagstofunnar. En
fullyrt er, að Þorsteinn Þorsteinsson
cand. polit. verði forstjóri hennar og
Georg Olafsson cand polit. aðstoðar-
maður.
Má það hepni heita að eiga völ
á svo vel færum mönnurn til þess
að leiða hagstofuna »íyrstu sporin«.
Þeir hafa báðir dvalið erlendis í
haust og munu hafa kynt sér sér-
staklega alt það, er að hagstofu-
störfum lýtur. Þorsteinn brá sér
m. a. til Noregs i þvi skyni.
Stjórnmálafundur
var haldinn á Akureyri í fyrra-
kvöld. Þingmaðurinn hr. Magnús
Kristjánsson hafði iátið það í Ijósi
þar, að sambandskostirnir, sem ráð
herra flutti hingað, í fyrra um þetta
levti, mundu Jrá konungi runnir.
Fánamálið var þnr og á dagskrá
og samþ. fundarmeun að lokum til-
lögu frá Stefáni skólameistara, er
lýsti velþóknun á úrskurði konungs í
fánamálinu. Margir þá gengnir af
fundi.
Símjregh.
Fjármálin.
Vér höfum orðið þess varir, að
greinar þær, sem Isajold hefir flutt
um tjármál vor hafa verið lesnar af
mestu athygli. Enn er von nokkurra
greira um þau mál m. a. frá Ind-
riða Einarssyni skrifstofustjóra.
Hrakningar VeKtu.
Það voru margir orðnir dauðhrædd-
ir um afdrif Vestu, er það loksins
fréttist á sunnudaginn siðdegis, að
hún hefði komið til Seyðisfjarðar þá
um daginn kl. 2.
Isafold símaði til Seyðisfjarðar til
að fá að vita fréttir af skipinu. Hafði
Vesta þá verið að hrekjast milli Fær-
eyja og íslands í hinu mesta farviðri
í næstum 7 sólarhnnga.
Föstudagsmorgun var Vesta kom-
in 60 sjómílur suðaustur af Vest-
manneyjum, en þá voru eigi kol til,
nema til 4 daga, en stormur beint
á móti. Var þá ráðið af að halda
til Seyðisfjarðar. Um hríð var vélin
stöðvuð til þess að treina kolin —
Hjartans þakklæti votta eg
undirrituð öllum þeim nær og fjær,
sem réttu mér hjálparhönd í veikindum
mínum.
Guðný Þorgilsdóttir
sjúklingur i Landakotsspítala.
Búnaðar námsskeið
í Þjórsártúni
verður haldið 12.—17. janúar í
vetur. Að forfallalausu mun alþýðu-
fræðslunefnd Stúdentafélagsins einnig
láta halda þar fyrirlestra.
Nemendur gefi sig fram við Ólaf
lækni IsIoifsKon í Þjórsártúni.
Búnaðarfélag íslands.
Loks komst Vesta til Seyðisfjarðar,
er hún átti kolaforða eftir til 1Ú2
dags. Miklu munaði því eigi, og er
vonandi að þess verði gætt eftirleið-
is á ðllutn skipum, að eigi geti kol
þrotið, svo miklar séu birgðirnar.
Vesta hélt áleiðis hingað frá Seyðisf.
i fyrri nótt og kom til Vestmanna-
eyja í morgun. Vélbátur sem hún
hafði meðferðis á þilfarinu, til Gísla
Johnsens konsúls í Vestmannaeyjum
var það sem mestan gerði trafalann
á þessu hrakningaferðalagi.
ReykjaYikur-aDDáll.
Aðkomumenn i bænum: Frú Guðrún
Björnsdóttir frá Borgarnesi, jnngfrú Halla
Sigurðardóttir frá Kallaðarnesi, Sveinn
Guðmundsson kaupfélagsstjóri frá Akra-
nesi og Jóhann Björnsson hreppstj. s.st.
Fimtugur verðnr Thor Jensen kaupm. i
dag.
Fisksalan til Englands. Marz seldi afla
sinn i gær fyrir rúm 9000 kr., en Apríl
áður fyrir rúm 10,000 kr. (560 pd. sterl.).
Var það óvenjugott verð, minst ster). pd.
fyrir kittið. Ennfr. hefir Great Admiral
selt afla sinn fyrir 11,000 kr.
Frú Laura Finsen œtlar að syngja á
föstudagskvöldið kemur i Báruhúð. Að
þesBn sinni syngur frúin að mestu norsk
og islenzk lög. Nú er færið fyrir þá sem
urðu af hinni ágætu skemtun frúarinnar
um daginn.
Búnaðar námsskeið
á Hvanneyri
verður haldið 2.—7. febrúar í
vetur. Af hálfu Búnaðarfélags íslands
mun Jón landsverkfræðingur Þorláks-
son halda þar fyrirlestra (um húsa-
gerð) og annarhvor ráðunautur þess,
og ennfremur, ef því verður við
komið, maður frá alþýðufræðslunefnd
Stúdentafélagsins.
Þeir sem vilja sækja námsskeiðið
snúi sér til undirritaðs.
Hvanneyri 2. des. 1913.
Tíaíídór Viífjjálmsson.
Kvöldskemtunar efnir Bjarni Björnsson
leikari til annað kvöld i Bárubúð.
Leikhúsið. Leikfélag Reykjavikur hefir
nú leikið »Trú og heimili* tvisvar sinn-
um við hinn bezta orðstlr. — Dómnr um
leikinn eftir E g o verður að hiða næsta
blaðs.
Morðmálið. Réttarhöld eru i þvi við
og við. Neitar Jón stöðugt að hann sé
nokkuð við glæpinn riðinn. — Júliana er
nú allhress.
Ráðherra Hannes Hafstein er meðal far-
þeganna á Botniu.
Skipafregn. Botnia kom til Seyðis-
fjarðar 1 morgun kl. 9.
V e s t a kom til Vestmanneyja í morcr-
un kl. 9.
Veðrátta hefir verið köld og hörð und-
anfarið. Grimdarfrost á Norðurlandi, t.
d. 23 stig á Giimsstöðum i fyrradag.
Þjóðreisn heitir hið uýja stjórnmálafé-
lag »Heimastjórnarmanna« hér í bænum.
Verzlunarskólinn. Bólað hefir nokkuð
á ókyrð þar i vikulokin siðustu. Eitt-
hvað undir 60 nemendnr sendu þá skóla-
nefnd ákæru á skóiastjórann, hr. Ó. G.
Eyjólfxson, og heimtuðu hann frá skól-
anum, kváðust eigi koma í tima ella.
Málalok eru ókomin enn, en svo mikið
er vist, að skólanefnd hefir krafist þess,
að piltar kæmu i tíma, en yrðu úr skól-
anum ella.
Baldur fer til Englands i dag. Meðal
farþega: Hallgrimur Benediktsson.
...— ■ —