Ísafold - 24.01.1914, Síða 2
24
ISAFOLD
alt sitt mikla starf án þess að telja
sér einn eyri fyrir.
Þegar hér var komið bar bráða-
birgðastjórnin fram tillögu um að
stoýna Eimskipajélav Islands og var
henni, sem nærri má geta, tekið
með einróma fögnuði.
Þá var tekið til við 4. lið dag-
skránnar, aðalefni fundarins: að rœð&
0g sampykkja lög jélagsins.
I fundarsköpum var gert ráð fyrir
2 umræðum. Hin fyrri entist allan
laugardaginn fram á nótt, en hin
síðari fór fram fram á fimtudaginn
í þessari viku og stóðu umræður
8—9 klst.
Það er eigi rúm í blaðinu að
þessu sinni til þess að fara nákvæm-
lega út í lagabreytingar og umræð-
ur um þær, enda gerum vér ráð
fyrir, að birta lögin í heild í næsta
blaði eða svo.
Verulegar deilur urðu engar, nema
um fyrirkomulagið á hluttöku hinna
þriggja aðila i Eimskipafélaginu:
landssjóðs, Vestur-íslendinga og
Austur-íslendinga. Landsstjórnin
hafði krafist þess að eiga aldrei
minna atkvæðavald á fundum en
Vestur-íslendingar; en fulltrúi þeirra
vildi með engu móti að því ákvæði
ganga. Fór þá svo, sem oftast eða
ætíð, er á milli bar hans og annara
aðila, að fundarmenn studdu kröfur
Vestur-íslendinga. Var ákvæði það,
er stjórnin vildi fá inn í lögin felt
með 5177 atkv. gegn 2530.
Um atkvæðavaldið á fundum fé-
lagsins urðu á endanum þessar
lyktir:
Ef hluthafar í Vesturheimi fela á
fundi þeim í Winnipeg, er um ræðir
í 17. grein, umboðsmanni eða um-
boðsmönnum búsettum i Vestur-
heimi að fara með atkvæði sin, og
hlutaeign þeirra að meðtalinni hluta-
eign umboðsmannsins eða umboðs-
mannanna sjálfra samsvarar alls
meiru en 500 atkvæðum, skal at-
kvæðatala slíks umboðsmanns eða
umboðsmanna þó eigi vera tak
mörkuð sem að framan greinir,
heldur getur hún orðið jafnmikill
hluti af samanlagðri tölu allra at-
kvæða umboðsmannsins fyrir sjálfan
sig og aðra eins og aðgöngumiðar
hafa verið afhentir að fundinum fyr-
ir miklum hluta af atkvæðisbæru
hlutafé annara en Vestur íslendinga,
þannig t. d., að ef aðgöngumiðar
hafa verið afhentir fyrir s/5 alls at-
kvæðisbærs hlutafjár annars en
Vestur-íslendinga, þá getur umboðs-
maðurinn eða umboðsmennirnir
neytt á fundinum 3/5 af þeim at-
kvæðum, sem hann eða þeir eiga
eða þeim hafa verið falin. Af
hlutafé landsjóðs telst svo mikið
atkvæðisbært, sem nemur 2 5krónum
fyrir hvert atkvæði, sem landsjóður
hefir án tillits til þeirrar sérstöku
hækkunar á atkvæðatölu landsjóðs,
sem kann að koma fram til þess
að atkvæði hans verði eigi færri en
atkvæði Vestur-íslendinga.
Farið skal eftir skýrslu er ritari
félagsstjórnarinnar gefur um afhend-
ingu aðgöngumiða.
Ef þeir samningar verða, að land-
sjóður gerist hluthafi í félaginu fyrir
400.000 krónur (sbr. 4. gr.) skal
fara um atkvæði hans, sem hér
segir r
A meðan hlutafé félagsins að
meðtöldu hlutafé landssjóðs (kr.
400,000) fer eigi fram úr einni
miljón króna, skal landssjóður hafa
4000 atkvæði. Þar eftir fær land-
sjóður ennfremur eitt atkvæði fyrir
hverjar 125 krónur af hlutafé sem
við bætist, unz öll hlutafjáruppbæð
félagsins nemur svo miklu, að land-
sjóður hefir fengið eitt atkvæði fyrir
hverjar 25 krónur af hlutafé sinu.
Um þátttöku landssjóðs í kosningu
stjórnrr og endurskoðenda fer eftir
ákvæðunum í 13. og 17. gr.
Annað atriði, sem nokkuð var
um deilt, var skipun stjórnarinnar.
Vestur-íslendingar kröfðust þess i
upphafi að mega velja úr sínum hóp
2 stjórnendur, en fulltrúi þeirra
hvarf frá þeirri kröfu, er það vitn-
aðist á stofnfundinum, að siglinga-
lögin nýju banna að stjórnendur í
slíkum fyrirtækjum og þessu sé bú-
settir erlendis.
Var það samkomulag úr um stjórn-
arskipunina, að V.-ísl. skyldu til-
nefna 4 menn, búsetta í Reykjavik,
en Austur-íslendingar 8 búsetta menn
hér I stjórnina og velja síðan í sam-
einingu 6 af þessum 12 tilnefndu
mönnum.
Lögmæti funda vildi hr. Bíldfel
binda við, að fundarsókn næmi 51%
af hluthafaatkv., en svo langt þótti
fundinum eigi ráðlegt að ganga og
samþykti að 33% hluthafa atkvæði
skyldi nægja.
Margar tillögur komu fram um
að takmarka atkvæðamagn hinna
stærri hlutaeigenda, en voru allar
feldar.
Líka voru feldar allar tillögur um,
að stjórnendur mættu vera búsettir
utan Reykjavíkur.
Annars skal eigi fjölyrt um breyt-
ingarnar. Sjálf lögin skýra sig bezt
í fyrra kvöld seint var lokið laga-
samþyktinni og tekið til stjórnar-
kosningar.
Fjögur stjórnendaefni voru tilnefnc
af fulltrúa V.-íslendinga hr. Bíidfell.
Það voru:
Halldór Daníelsson yfirdómari,
Jón Gunnarsson samábyrgðarstjóri,
Magnús Helgason skólastjóri og
Magnús Sigurðsson yfirdómslögm.
Kosnir voru
Jón Gunnarsson með 5431 atkv.
Halldór Daníelsson 4911 —
Magnús Helgason fekk 3026 —
Magnús Sigurðsson— 1110 —
Að því loknu fór fram kosning
hinna 5 stjórnendanna og voru þessir
kosnir :j
Sveinn Björnsson
Ólajur Johnson
Eqgert Claessen
Garðar Gíslason
Jón Björnsson
Næstir voru:
Olgeir Friðgeirsson með 1990 —
Thor Jensen — 1628 —
Halldór Þorsteinsson — 1320 —
Magnús Sigurðsson — 1264 —
Jón Brynjólfsson — 1094 —
Jón Ólafsson skipstj. — 1035 —
Axel Tulinius — 1009 —
Páll Halidórsson — 787 —
Magnús Magnússon — 552 —
Endurskoðendur voru kosnir:
L. H. Bjarnason prójessor 2925.
O. G. Eyóljsson skólastjóri 2291.
Til vara:
Þórður Sveinsson póstajgr.m. 1031.
Eftir atkvæðagreiðsluna var borin
upp svo hljóðandi tillaga frá bráða-
birgðastjórninni:
»Fundurinn heimilar félagsstjórn-
inni að láta smíða tvö skip til ferða
milli landa*. Var till. þessi samþ.
I einu hljóði.
Því næst var stjórninni í einu
hljóði heimilað að kaupa eða láta
smiða, tvö strandferðaskip, ef þeir
samningar yrðu, að landssjóður tæki
hluti í félaginu fyrir 400 þús. kr.
Tillaga frá J. Bíldfell um að eng-
um verði veitt kauplaust far með
skipum félagsins, nema framkvæmd-
arstjóra, og engum gerð nein iv’ln-
un á fargjaldi né flutningsgjaldi um
fram venjulegar ivilnanir til stærri
viðskiftavina — var samþykt.
Síðan var samþykt áskorun til
stjórnarinnar um að ráða aðeins ís-
lendinga á skipin, að svo miklu leyti
sem völ væri á hæfum mönnum ís-
lenzkum.
Var siðan fundi slitið.
hlaut 6677 atkv.
— 5360 —
— 4144 —
— 3677 —
— 3399 —
Erlendar fréttir
og ýmsar greinar bíða næsta blaðs
vegna þrengsla.
Um veðdeildarlögin
flutti Björn Kristjánsson bankastjóri,
í Sjálfstæðisfélaginu þ. 20. jan., er-
indi það, er birt er í 6. tölubl. ísa-
foldar í dag. Til andmæla risu upp
Jóhann Jóhannesson kaum., E. M.
Jónasson málafl.m. og Þórður Thor-
oddsen læknir.
Veðdeildarlagamálið á að ræða með
stillingu og rökum, eins og erindi
B. Kr. er ritað, rangt að beita æs-
ingum í sliku máli, svo sem hr.
óh. Jóh. og Lögrétta hafa gert.
Okeypjs:
1. Mynd aj Hallgrimi Péturssyni
(300 ára minning).
2. AJmælisgjöJ Æskunnar, (ljóð og
sögur með mörgum myndum).
3. Jólablaðið 1914 (16 bls. í skraut-
prentaðri kápu, í lok ársins),
fá þeir, sem gerast kaupendur að
yfirstandandi árgangi barnablaðsins
Æskan og standa í skilum með and-
virðið. Argangurinn (112 bls.) kostar
1 krönu og 20 aura.
Útsölumenn óskast.
Afgreiðslustofa á Laugavegi 63 (uppi).
Opin kl. 9—10 f. h. og 2—3 e. h.
Bæjarstjórnar-kosningin
á mánudaginn.
• Heilmargir listar eru komnir fram
til bæjarstj.kosningarinnar á mánudag-
inn — alls 7.
Þeir líta svona út:
A-listinn:
Sigurður Jónsson, barnakennari.
Magnús Magnússon, stýrm.kennari.
Magnús Helgason, Kennarask.stj.
Sæm. Bjarnhéðinsson, próf.
Jón Jónsson frá Vaðnesi, kaupm.
B-listinn:
Kristján Þorgrímsson, konsúll.
Helgi Zoega, kaupm.
Samúel Ólafsson, söðlasm.
Páll Halldórsson, skólastj.
Guðm. Guðmundsson,Vegamótum
C-listinn:
Frú Bríet Bjarnhéðinsdóttir.
Frú Jónína Jónatansdóttir.
Magnús Helgason, kennarskólastj.
Jón Ólafsson, skipstj.
D-listinn:
Sighvatur Brynjólfsson, næturv.
Guðm. Hannesson, próf.
Magnús Helgason, Kennaraskólastj.
Samúel Ólafsson, söðlasm.
Þorsteinn Erlingsson, skáld.
E-listiun:
Jón Ólafsson, skipstj.
Þórður Narfason, trésm.
Jóhannes Hjartarson, verzlm.
Sigurður Jónsson, bókbindari.
Jóhannes Jósefsson, trésm.
F-listinn:
Pétur Hjaltested, úrsm.
Jóhannes Jósefsson, trésm.
Hjörtur Hjartarson, trésm.
Sæm. Bjarnhéðinsson, próf.
G-listinn:
Jóhann Jóhannesson, kaupm.
Jes Zimsen, konsúll.
Sighvatur Bjarnason, bankastj.
Pétur Þorsteinsson, verkstj.
Gísli Þorbjarnarson, búfræðingur.
A-listinn er sá listinn, sem pér eigið
að kjósa.
Það er listinn, sem Sjálfstæðis-
menn standa að — og kjósa allir —
auk margra annara. Því allir, sem
stillilega meta mannvalið á listunum,
sjá, að á A-listanum er það bezt.
A ýmsum öðrum listum er góð-
um sjálfstæðismönnum dreift inn i
milli sem agni á fáfróða kjósendur,
til að ginna pá til að velja rangan
lista.
Svo er t. d. um þann Iistann, er
efstur er á hinn eini bæjarfulltrúi af
þeim, er frá fara, er sækír fast að
komast aftur í bæjarstjórn.
Eigutn vér þar við B listann, sem
hr Kr. Ó. Þorgrimsson hefir hleypt
af stokkunum til að koma sjálfum
sér( að aftur.
A það skulu eigi dulur dregnar,
að vér teljum bæjarstjórnina meira
en vel mega vera án konsúlsins —
Hann hefir verið tillögufár í meira
lagi í bæjarstjórn og lagt á það
mesta stund á fundum, að koma
fólki til að hlæja, eins og þegar hann
er að leika Kranz í Æfintýrinu. En
slíkum mönnum er eigi þörf á i
bæjarstjórn. Að fara að verðlauna
hann einan þeirra 3, er bæjarstjórn
ganga úr, með því að endurkjósa
íann, væri að fara aftan að siðun-
um.
Væri vel, að sænski konsúllinn
fengi hvíid frá bæjarstjórn næstu 6
árin.
Breyting á kosningarat-
höfninni,
sem allir kjósendur þurfa að átta sig
nákvæmlega á er, að samkv. lögum
frá síðasta alþingi er leyfilegt hver-
jum kjósanda
að breyta um röðina á
listanum.
Ef mönnum t. d. likar bezt aft-
asta nafn á lista, er ekkert annað en
að setja tölustafinn 1 við það nafn,
2 við nafnið, sem þeim mönnum
líkar næst bezt o. s. frv. Sömuleið-
is meiga menn strika út nöfn, er
þeir vilja ekki hafa, en engu najní
najni beeta við og að eins kjósa á
einum lista.
Samninga-sargið.
Undanhaldið.
1.
Hinn nýi »leiðtogi« stjórnarflokks-
ins, hr. Skallagrímur, hefir kveðið
mjög skýrt og skorinort upp úr um
stefnu Sambandsflokksins í Lögréttu
þ. 14. jan.
Stejnan er jyrit og Jremst að halda
við l síjellu samningaumleitunum við
Dani um sjáljstœðismál vort.
Það er gott, að þessi yfirlýsing,
svo ótvíræð sem hún er, skuli nú
fengin. Þá þurfa kjósendur eigi fram-
ar vitnanna við.
Þá vita kjósendur, að með því að
styðja stjórnar- eða Sambandsflokks-
menn á þing, eiga þeir sinn þátt í
því, að halda við hinu ófrjósama,
engisnýta samningasargi við Dani
um sambandsmálið — sargi, sem
hver sá, er kapplaust lítur á málið,
hlýtur að sjá, að er með öllu von-
laust um, að til bærilegra lykta
leiði.
Það gegnir furðu, að all-stórum
stjórnmálaflokki í landinu skuli detta
í hug, að sæmilegar málalyktir á
sjálfstæðismál vort fáist nú hjá Dön-
um, eins og umhorfs er í hugum
manna þar í sveit í vorn garð.
Og mestri furðu gegnir þó, að
þeir mennirnir, sem þátt áttu í brað-
ingnum, skuli láta sig henda slika
villu.
Þegar «bræðingurinn« var á döf-
inni var hægt með sanni að segja
Dönum, að honum var fylgjandi 4/B
hlutar þingsins og fullyrða mátti vafa-
laust, að meginþorri þjóðarinnar var
sama sinnis.
En þrátt fyrir þær miklu líkur, er
færa mátti fyrir þvi, að með bræð-
ingnum fengist sæmilegur friður í
landi hér, og nokkurnveginn ánægja
með sambandið — þá urðu nndir-
tektir Dana svo afleitar, sem »grút-
urinn« bar vitni um.
Hvaða von mun þá vera nú um
sæmilega kosti, ef farið væri að sarga
í samningum, með þjóðina marg-
klofna að baki ?
Hvað muudu Danir hugsa, ef við
færum nú enn, svo skömmu eftir
»grútinn«, að fitja upp á samninga-
tilmælum ?
Þeir mundu þykjast mega álykta,
að vér værum eigi lítið óðfúsir í
samkomulag, er vér þrátt fyrir stór
orð um síðustu boð þeirra, eftir
eigi lengri tíma, kremum á samninga-
biðilsbrókum.
Og þeir mundu sízt bata boð sín,
er slíka sjá samningaáfergju og
átakanlegar lýsingar á þörfinni miklu
hjá oss, að ná einhverjum samning-
um, eins og lýsir sér í þessum
dæmalausu Skallagríms-greinum Lög-
réttu.
Hafi nokkur stjórnmálamaður vor
ritað fagurlega móti þeim grllum,
sem Hannes Hafstein og flokks-
menn hans reyndu að vekja til þess
........
að veikja traustið á sjálfum oss árin
fyrir kosningarnar 1908 og 1911 —
þá var það hr. Éinar Hjörleifsson
Og hafi nokkur stjórnmálamaður
vor reynt að næra þessar grilur veru-
lega nú, þá er það hr. Skallagrímur
0: hr. Einar Hjörleifsson i Lögréttu
I9r4-
Með því að eigi getur betri »penna«
til að svara hr. Skallagrími 0: E. H.
frá 1914, heldur en hr. E. H. frá
1908—1909 og 1911 skulum vér
leyfa oss að tilfæra nokkur orð hans
frá þessum tímum:
Árið 1914 segir Skallagrímur (í
Lögr. nr. 3, 4 dálk 1 bls.) um
kenningar Sjálfstæðisflokksforíngj-
anna:
»Eftir þeim kenningum eigum vér
ekki að hugsa til þess að semja, fyr
en Danir hafi viðurkent það, að
stöðulögin sé markleysa.
Við eigum með öðrum orðum,
eftir þeim kenningum að draga samn-
inga, þangað til hinn samningsaðil-
inn hefir horfið alveg frá sínum mál-
stað og gefið það alt eftir, sem samn-
ingarnir ættu að vera um«.
En í bæklingi sínum: Frjálst sam-
bandsland segir E. H. bls. 85.
»Nú er baráttan um það, að ís-
land verði viðurkent það, sem ís-
lendingar hafa jafnan talið það verar
þegar þeir hafa nokkuð getað um'
það mál hugsað, það sem það hefir
ávalt verið að réttu lagi og er enn:
Frjálst sambandsland!
Það er ekkert samningsatriði nú.
Það er undirstaða allra samninga.
Á annari undirstöðu viljum vér alls
ekkert semja um sambandsmál vort«.
Skyldi Skallagrímur geta fundið
nokkura sál í sinum nýja flokki er
til þess vilji verða að samsinna því,
að ísland sé Jrjálst sambandsland
Danmerkur eftir stöðulögunum ?
Skyldi hann finna nokkura sál í
þessum nýja flokki sínum, er þori
að bera móti því, að orð hans frá
1907—1908 fari einmitt fram á það,
að grundvöllurinn undir öllum samn-
ingum við Dani sé, að þeir »viður-
kenni að stöðulögin sé markleysa?«
Að þessu sinni skal staðar numið
um að láta E. H. frá 1907—1908
og E. H. frá 1911 svara E. H. frá 1914,
en miklu meira er í sarpinum og
mun nánara á það vikið næst, um
leið og fána-undanhald E. H. verður
gert að umtalsefni.
Bæjarstjórn Hafnarfjarð-
ar. í hana voru kosnir þ. 20. þ.
m. Ágúst Flygenring, Guðmundur
Helgason og Magnús Jóhannsson.
Kanamerjunker.
Það er titill, sem dönskum hðs-
foringjum af hærri stigum og aðals-
manna-ungviði er veittur, af konungi,
Hafa þessir herrar m. a. það hlut-
verk að stýra dansleikum hirðarinn-
ar o. s. frv.
Þessi vegtylla hefir á nýársdag síð-
astliðinn fallið íslendingi í skaut —
fyrsta sinni, að því er sögur fara af.
Lukkubarnið er hr. Ión H. Svein-
bj'órnsson, nefndarritari uppkastsnefnd-
arinnar og »fræðari« konungs um
íslenzk mál, að því er sagt er, og
aldrei verið mótmælt.
Embættaveitingar.
Ari Jónsson cand. juns er skipað-
ur sýslumaður Húnvetninga frá 1.
apríl þ. á að telja.
Sigurður Hjörleijsson uppgjafarit-
stjóri er skipaður læknir á Eskifirði-