Ísafold


Ísafold - 08.08.1914, Qupperneq 2

Ísafold - 08.08.1914, Qupperneq 2
240 ISAFOLD dæmi eftir sem áður á 6 ára fresti. Að þessu leyti er breytingin engin. Eigi að síður hefði slík breyting all- mikil áhrif. Frá þjóðræðis- og kjósenda sjón- armiði er hagnaðurinn einsýnn. Með þessu skipulagi eru kjósendur (i þriðjung kjördæma) spurðir annað- hvort ár hversu þeim falli stjórnar- farið, en nú á 6 ára fresti. Þó þriðjungur kjördæma sé ekki einn um kosningahituna getur hann velt litlum meiri hluta, en sýnt stórum í »tvo heimana«. Þjóðin á með pessu móti viiklu auðveldara með að segja stjórninni til syndanna. Stjórnmálaflokkunum ætti að falla skipulag þetta vel í geð. Fyrir þeim verður sjón sögu ríkari um það, hvaðan vindurinn blæ*. Þeir vita miklu betur en fyr um pjóðar- viljann, hvort kjósendum fellur stjórnarfarið vel eða illa, og geta hagað sér eftir því. Þá er það ekki minstur hagnaður að stjórnarskijti í landinu verða miklu minni tilviljun undirorpin. Þó ein- hver flugufregn, einhver misskiln- ingur, eitthvert þjóðfrægt hrópyrði sé á ferðinni, þegar kosningar fara fram, verkar alt slíkt að eins á þriðj- ung kjósenda. Svo er þjóðinni aft- ur gefinn umhugsunarfrestur í 2 ár, og sami tími stjórninni til að sýna snild sína eða bæta ráð sitt. Þá kýs annar þriðjungur kjósenda og ef til vill á annan veg en hinn fyrri. Svo gengur þetta koll af kolli. Alt fær heilbrigðari, fastari rás en fyr. Enn er einn góður kostur ótal- inn. Þetta er cðlileqasti ot? bezti veq- urtnn til pess að halda við lijandi stjórnmdlaáhuga í landinu. Við hverj- ar kosningar, myndu allir flokkar prédika sinn boðskap fyrir fólkinu og ætið myndi það nokkrum tíð- indum sæta, hvernig kosningar tækj- ust annað hvort ár og hverir kæm- ust á þing. En nú sofa flestir í 6 ár og vakna með andfælum við illan draum: herblásturinn til stjórnarskiftakosninga um land alti Eg hefi nú aðeins að bæta því við að ef kosningum væri hagað á þennan hátt, þá er um leið ráðin sú gáta hversu sleppa megi hjá nýj- um allsherjarkosningum við stjórn- arskrárbreytingar. Hvenær sem stjórnarskrárbreyting væri samþykt, væri þriðjungur þingmanna nýkos- inn og má ætla að hann sé í fullu samræmi við kjósendur. A næsta þingi er annar þriðjungur nýkosinn og nemi atkvæðatala þessara a/3 þing- manna er greitt hafa atkvæði með breytingunni, meira en helmingi allra atkvæða þingmanna, ætti það að nægja til þess að breytingin yrði af- greidd til fulls frá þinginu. Stjórnarskrárbreyting sem fengi góðan byr, yrði því samþykt til fullnustu á 2 reglulegum þingum án sérstakia kosninga, en á 3 ef fylgi væri af skornum skamti. Frh. Guðm. Hannesson. Morðmálið. Yfirréttur hefir staðfest undirrétt- ardóminn í málinu gegn Júlíönu Jónsdóttur fyrir bróðurmorðið. — Verður málinu nú vísað til hæsta- réttar. __ Heiðursmorki. Landritarinn, Klemenz Jónsson er nýlega orðinn kommandör danne- brogsorðunnar og skrifstofustjórarn- ir Indriði Einarsson og Jón Her- mannsson dannebrogsriddarar. Heljarslóðarorrusta stórveldanna og alþingi. Boðarnir frá Heljarslóðarorrustu stórveldanna brotna hér á klettun- um og sækja upp á landið. Boð- arnir heita hér kornvöruskortur, kola- leysi, saltskortur og peni.ngaleysi. — Alþingi hefir setið nótt og dag á fundum, til þess að finna út bjarg- ráð móti boðunum, að þeir gangi ekki á land upp. Það hefir ákveðið að landsstjórnin og velferðarnefndin skuli útvega kornmat, sem nægi rneðan þessi trylti hildarleikur varir. Þeir eiga að útvega ko'. Landið þarf 9000 smálestir af kolum á mán- uði. Hvern mánuð sem kol vantar skaðast þjóðin um hér um bil 600 þús. kr. — við að fiskiveiðar og verksmiðjur liggja niðri. England hefir lokað kolamarkaðinum út á við, það þarf auk annars að byrgja 600 herskip með kolum, svo þau séu á verði dag og nótt. Til að hafa eitt- hvað til að kaupa fyrir hefir löggjafar- valdið hér á landi tekið til sín gull- forða Islandsbanka og gert seðla bank- ans óinnleysanlega, þangað til í októ- ber næstkomandi. Alþingi hefir unn- ið öll þessi verk með flýti, samhug og einlægum vilja til að frelsa land- ið undan boðunum frá Heljarslóð. — Kornmatur er fáanlegur og ísland framleiðir mikið af matvælum til út- flutnings, það er naumast sérleg hætta á verulegum matarskort. Hver dag- ur, sem landið er kolalaust, kostar 20 þús. kr., fyrir utan þjáninguna, sem kuldinn hefir í för með sér þegar vetrar að. Það getur orðið erfitt að eiga við kolin. En þegar komið er upp að því hámarki, sem gefa má út í seðlum (3.2 miljónir), þá verður hver gjaldþrota um annan þveran, ef innlendu viðskiftin þurfa meiri peninga en mest má gefa út í seðlum. Gull eða útlendir seðlar. Gull er enn fáanlegt á Norðurlönd- um. Frá öðrum löndum getur Is- landsbanki ekki fengið gullforða. — Gullforði hans verður að vera í mót- aðri norðurlandamynt eftir lögunum. Meðan þessi trylti hildarleikur varit þorir engin bankastjórn að láta senda sér gull. Fyrir herháska er engin vátrygging til, skipin geta farist á tundri, sem hefir verið lagt í sjóinn. Slík tundurskeyti geta fluzt til neð- ansjávar, eins og t. d. net, sem lögð eru hér í sjóinn. Seðla frá Noregi mætti sömuleiðis fá, en Norðmenn eru einnig búnir að leggja tundur- vélar í sjóinn á ýmsum stöðum. Á- hættan við að láta senda sér norska seðla er svipuð áhættunni við að senda gull frá Danmörku. Svo er hættan fyrir því, að skipið, sem flyt- ur gullið eða seðlana, verði hertekið og skaðabætur algjörlega óvissar. — Einstakir menn kringum Dybböl hafa enn ekki fengið skaðabætur fyrir her- skaða sem þeir biðu 1864. Norskir seðlar eru ekki lögeyrir hér á landi, þótt þcir sjáist stundum manna á milli. Það mætti setja út á það. Seðlar þjóðbankans í Danmörku eru lögeyrir hér, en söm er hættan við flutninginn eins og við flutninginn á gullinu. Það er hætta, sero engin bankastjórn mundi þora að taka upp á sig. Bankastyrjöld innan lands. Mér mun nú ef til vill verða svar- að: Þú talar aðeins um íslandsbanka, Landsbankinn getur látið borga 100 —200 eða 300 þúsund krónur inn í reikning íslandsbanka erlendis, og látið svo senda sér ávísun á hann með símskeyti; borgi íslandsbanki ekki ávísunina svo gerir Landsbank- inn hann gjaldþrota, og það liggur opið fyrir, þegar Islandsbanki hefir enga seðla til þess að fullnægja kröf- unni. — Það væri að segja íslands- banka stríð á hendur, og til þess mundi aldrei draga. — íslandsbanki hefði líka gott ráð til þess að taka á móti þvi. Hann gæti samstundis látið síma sér — eigum við að segja — i.yoo.ooo króna ávísun á Lands- bankann, og gengið að honum und- ir aðför að lögum, lokað honum og gert hann gjaldþrota, það væri þjóð- félagið sem tapaði mestu. Þótt slík bankastyrjöld sé hugsanleg, þá er víst að slíkt getur ekki komið fyrir. Hagsmunir beggja bankanna og hags- munir þjóðfélagsheildarinnar eru eitt og hið sama. Hámarki seðlaútgáfunar er hér um bil náð. Um þessar mundir, á íslandsbanki inni erlendis hér um bil 1.400.000 kr., en vegna Heljarslóðarorrustu stórveldanna getur hann ekki átt á hættu að láta senda sér þær, eða brot úr þeim í gulli eða þjóðbanka- seðlum. Hér í námunda við okkur liggur 4 miljóna króna virði í salt- fiski. Eigendurnir geta orðið gjald- þrota, ef þeir geta ekki fengið pen- inga út á fiskinn, hvort sem hann verður sendur eða sendur ekki fyrir ófriðnum. — Þeirra lánardrotnar, skipstjórar, sjómenn, kolakaupmenn og verkamenn þurfa laun sín, og fái þeir þau ekki þá komast þeir á nástrá, og kannske í gjaldþrot. Mestu af þessu væri borgið, ef bankinn gæti dregið að sér peningana, sem hann á erlendis. En áhættan er svo mikil við það, að engin banka- stjórn mun voga það að láta senda sér það í gulli eða gjaldgengum seðl- um. Bjargráðið sem hefir gleymst. Eg held að alþingi hafi gleymt því, eða ekki séð fram á það, að þeir seðlar, sem unt er að gefa út eru ekki nógir fyrir viðskiftaþörfina, sem er rétt framundan deginum i dag. Af því að íslandsbanki getur ekki styrjaldarinnar vegna dregið að sér innieignina erlendis, þá eru engar líkur til að bankarnir geti fullnægt viðskifta þörfinni næstu vikur. Lands- bankinn er alveg i sömu fordæm- ingunni, ef hann léti senda sér gull (sem er dýrt nú) eða þjóðbankaseðla sjóleiðina, þá á hann sendinguna al- veg á sömu hættunni og hinn bank- inn; á því er enginn munur. Hver bankinn, sem fyndi upp á ávísunar- kaupunum á hinn, leiddi mestu ógæfu yfir landið. Eina opna leiðin sýnist mér vera, ef íslandsbanki, sem hefir einkaleyfi til að gefa út innleysan- lega seðla mætti gefa út seðla út á gullforða, sem hann legði fyrir til geymslu í þjóðbankanum í Kaup- mannahöfn meðan að stórveldin berj- ast á Heljarslóð, og gera alla alla aðdrætti óvissa fyrir okkur fámennu þjóðirnar. Gæti þessi seðilútgáfa numið 1.500.000 kr. — ef þörfin krefði — þá yrði það sjálfsagt handa báðum bönkunum nóg til að forða viðskiftalífinu innan lands frá pen- ingasvelíu. Þjóðbankinn f Khöfn er einstakra manna eign og yrði þess vegna ekki tekinn af óvinaher, þótt Khöfn væri tekin með herskildi. Hann er alveg eins tryggur geymslu- staður og Bank of England, sem líka er piivat hlutafélag. Seðlalögin fyrir þinginn. Eg get ekki komist hjá þvi, að minnast á seðlalögin fyrir þinginu. Það voru Danir sem fundu upp að setja takmarkið fyrir seðla útgáfunni 2l/2 miljón, til þess að enginn ís- lenzkur bankaseðill gæti gengið í Danmörku, eða mætti missast þang- að. Það kom líka frá sömu upp- sprettunni, að hafa seðlana sterkar trygða en upphaflega var ætlast til, því við htr áttum ekki að fá neitt sérlega ódýra seðla, eða neitt sér- lega góðan banka. Það er sjálf- stæðismerki að vera svo settur, að þurfa ekki að lána seðla hjá annari þjóð á hverju ári, þegar viðskifta- þörfin er mest. Við erum svo langt í burtu frá öðrum, að við verðum helzt að geta hjálpað okkur sjálfir bæði með seðla og annað. Innleys- aulegu seðlarair eru sú eina mynt, sem við getum slegið sjálfir. Seðlar eru ódýrari gjaldeyrir fyrir land og þjóð en gullið. I nefndaráliti, sem dagsett er í gær, stendur, að með aukningunni á innleysanlegu seðlun- um sé verið að tálma því, að gull geti komist inn i landið, og það er hálfskrítið, að sá hlutinn af nefndar- álitinu, sem þessi setning stendur i, er undirskrifaður af bankastjóra, sem stendur fyrir banka, sem stofnaður er með óinnleysanlegum seðlum. Við spörum gull með seðlunum, og við erum ekki svo ríkir, að við get- um í bráð keypt nóga gullpeninga til gjaldeyris. Englendingar hafa notað innleysanlega seðla til gjald- eyris síðan 1694, og eru ekki orðnir svo ríkir enn þann dag t dag, að þeir hafi látið sér koma til hugar að bera þá á bálið og lögleiða gull gjaldeyri í staðinn. Kjörin, sem efri deild býður eru svo, að bankinn getur ekki i 2 til 3 ár gefið út nokkurn seðil fram yfir 2^/2 miljón. Breytingartillögur neðri deildar eru svo — að mér sýnist — að bankinn mun aldrei sjá sér fært að nota þær heldur. Það er leitt fyrir hann að þurfa að nota þjóðbankaseðla á hverju hausti þegar mest kallar að. Það er lítill sómi fyrir landið, að vera alt af upp á danska þjóðbankaseðla komið. Þeir geta stundum verið ófáanlegir þegar peningavandræði eru erlendis, eða eins er ástatt og nú er. En harð- ast verður almenningur úti, og jafn- vel Landsbankinn, sem er útilokaður frá því að fá peninga hér í viðlög- um, þvi íslandsbanki hugsar eðlilega fyrst um viðskiftamenn sína áður en hann hugsar um fé handa Lands- bankanum. Rvík 8. ágúst 1914. Indr. Einarsson. ReykjaYíknr-annáll. Skipaf regn: Mjóg tefjast skipakomur hingað vegna ófriðarins. S k á 1 h o 11 átti að fara hingað frá Khöfn í fyrradag, en varð að hætta við. P o 11 u x gerði það að skilyröi fyr- ir hingaðkomu sinni, að stjórnarráðið sæi skipinu fyrir kolum — og var það gert. Pollux fór frá Bergen í gær- kveldi. Gustav Falk, strandferðaskipið fór á stað í strandferð í gær. Meðal farþega voru síra Jón Jónsson frá Stafafelli og Þórh. Daníelsson kaupm. frá Hornafirði. B 0 t n í a er farin frá Þórshöfn og kemur sennilega hingað á mánudags- kvöld. Messað á morgun: í fríkirkjunni kl. 12 síra Jóh. Þork. kl. 5 síra Har. Níelss. Frá alþingi. Fánamálid. Eftir því, sem ísafold hefir heyrt mun mega búast við, að gott samkomulng verði um afgreiðslu þess í þinginu. Stiórnarskráin. Nefndar- álitið er enn ókomið frá stjórnar- skrárnefndum alþingis, en fullyrt, að það komi i dag. Fyrirvari sá er fylgja á mun eigi verða ágreiningsefni milli þingflokkanna, að því er fróðir menn telja víst. — Er velfarið ef tekst að halda þessum tveim stórmálum nokkurnvegin utan flokka-deilanna. íslands banki. Nefnd sú er skipuð var i Neðrideild til að íhuga aukning á seðlaútgáfurétti íslands banka hefir klofnað. — Fylgir hér á eftir nefndarálit meirihluta og minn- hluta nefndarinnar. Frumvarp þetta er í öndverðu lagt fyrir þingið af stjórninni, og var í því farið fram á það, að bank- anum yrði veitt heimild til útgáfu seðla alt að 5 milj. kr. og með samsvarandi tryggingu, þeirri er nú er samkvæmt gildandi lögum bank- ans nr. 66, 10. nóv. 1905. Telur bankinn viðskiftaþörfina heimta aukna seðlaútgáfu. Viðskiftaþörfin vaxi hröðum fetum um leið og fram- leiðsla í landinu aukist, og vanti því bráðlega innlendan gjaldmiðil, nema seðlaútgáfuréttur bankans verði auk- inn frá þvi sem nú er (2 J/2 milj. kr.). Þeir nefndarmanna, er hér skrifa undir, vilja eigi neita því, að þetta sé rétt. En þeir líta svo á, að um leið og til mála komi, að bankanum verði til fullnaðar veitt meira lánstraust —- þvi að í aukn- um seðlaútgáfurétti felst aukið láns- traust, er landið veitir bankanum, og um leið aukin ábyrgð landsins á bankanum, — telja þeir nauðsyn bera til þess, að breytt verði skipu- lagi bankans á ýmsan veg, og með öllu óaðgengilegt að auka réttindi hans til frambúðar, nema viðunandi breytingar verði fyrst á þessu gerðar. Helztu breytingarnar, sem sá hluti nefndarinnar, er hér ritar undir, tel- ur sjálfsagðar, eru þessar: 1. Landsstjórnin skipi 1—2 af bankastjórunum. Með því ætti að vera aukin trygging fyrir því, að landið hafi eftirlit með bankanum, betri og meiri tök í stjórn hans en nú er. Er þetta svipað og urn Þjóðbankann danska gildir. Þar eru 2 stjórnkjörnir bankastjórar af 4 eða 5. 2. Þingið kjósi einn og stjórnin annan endurskoðunarmann, og hlut- hafar svo sem þeir telja sér þörf. Nefndarmenn, er hér undirrita, telja endurskoðun bankans nú svo vaxna, að hún veiti of litla tryggingu fyrir því, að allur rekstur bankans sé I lagi. Sérstaklega viljum vér taka það fram, að endurskoðendur mega ekki með nokkuru móti vera skuld- skeyttir bankanum eða háðir á nokk- urn hátt. Endurskoðendur þurfa þvert á móti að vera fullkomlega sjálfstæðir gagnvart þeim — hér bankanum — er þeir eiga að end- urskoða hjá. Þessum skilyrðum mun eigi hafa verið fullnægt um endur- skoðendur íslandsbanka. 3. Oss virðist allskostar óheppi- legt, að formenska í bankariðinu sé sameinuð ráðherraembættinu. Ráð- herra á ekki að vera í því ráði, held- ur á hann að vera yfir þvi og yfir bankanum, á líkan hátt og dóms- málaráðberra Dana er kcnunglegur »Bankkommissær« við Þjóðbanka Dana. Ráðherra ætti auðvitað enn- fremur að eiga rétt á, að athuga all-

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.