Ísafold


Ísafold - 08.08.1914, Qupperneq 3

Ísafold - 08.08.1914, Qupperneq 3
I S A F 0 L D 241 an hag bankans, hvenær sem hann vill, 4. Bankaráðið er nú, samkvæmt reglum bankans, svo að segja alveg valdalaust, hefir eigi einu sinni rétt til að líta í bækur bankans, kemur einu sinni á ári á bankaráðsfund svokallaðan, kvittar ársreikninginn og tekur út kaup sitt. Þess verður eigi vart, að bankaráðið skifti sér, eða geti skift sér, af bankanum. Það þarf því að auka va!d banka- ráðsins að stórum mun, og jafnframt tryggja landinu jafnan meiri hluta í því, svo að það geti haft yfirlit yfir útlán og alla starfsemi bankans og eftirlit í þá átt. Nú er bankaráðs- staðan skoðuð einungis sem ábyrgð- arlaus og athafnalaus staða. En á þessu þarf að verða breyting hvoru- tveggja, áður en viðlit geti verið að láta bankanum í té mein hlunnindi til frambúðar en nú hefir hann. 5. Málmforðann, til tryggingar seðlum bankans, virðist sjálfsagt að færa upp úr 3/s í 4/8 eða 50 % af seðlafúlgu þeirri, er hverju sinni er i umferð, eins og var í upphafi, eftir lögum 7. júní 1902, en breytt var með lögum nr. 65, 10. nóv. 1905. í Þjóðbankanum danska skal málmforðinn aldrei minni vera en 50 °/0, og er banki þessi þó talinn mjög tryggur. Landið ber i raun og veru ábyrgð á seð'um bankans, þar sem seðlarnir eru lögboðinn gjaldmiðill, og fall bankans, vegna ógjaldfærni, hiyti að verða, af þess- ari ástæðu, mjög alvarlegt fyrir land- ið og stórum alvarlegra en fall hvers annars banka einstakra manna, er eigi gefur út seðla. Enn fremur sýnist nauðsyn á því, að ríkara eftirlit sé haft með því, að lögboðinn málmforði sé í raun og veru, á hverjum tima sem er, fyrir hendi í bankanum. 6. Rikara eftirlit þarf og með seðlum bankans, sérstaklega með því, hvað sé ónýtt af þeim. 7. Yfirlit yfir hag bankans ætti að birta mánaðarlega í blaði þvi hér á landi, er stjórnarvaldabirtingar flytur, og auðvitað á íslenzka tungu. Þetta er að vísu ákveðið nú, en hefir eigi verið fylgt nú á þessu ári. Þá ættu ársreikningar bankans að vera glöggvari en nú er, svo að betur sæist, hvað í hverjum lið felst. »Ymsir skuldheimtumenn*, nema t. d. yfir hálfu þriðju miljón á síðasta ársreikningi. Og er ýmsum getum um það leitt, hvað felist í þessari upphæð, enda óvanalega há á reikn- ingi eigi stærra banka en íslands- banki er. Vekur slík reikningsupp- gerð tortrygni gagnvart bankanum, sem vér ætlum þó óþarfa. 8. Upphaflega (sbr. Alþt. 1901 A. þingskjal 45), sýnist tilætlunin hafa verið sú, að bankinn skyldi eigi feka sparisjóðsstarfsemi, sakir þess að slík starfsemi yki áhættu hans, og enda eigi vel fallið seðiabanka að reka þesskonar störf. Þetta at- riði vill nefndin líka, að tekið verði ril rækilegrar athugunar, áður en af- ráðið yrði til frambúðar um aukinn seðlaútgáfurétt til handa bankanum. 9. Það hefir viðgengist, að bank- inn hefir veitt lán gegn sjálfs sins blutabréfum sem handveði. Þetta Þýkir hvarvetna, að því er oss er bezt kunnugt, allskostar óviðeigandi °g eigi hættulaust. Og ætti það því eigi að eiga sér stað, því að uni leið og bankinn tapaði, minkar Verðmæti veðsins, enda vel fallið til a^ koma hlutabréfunum í óeðlilega hátt verð. Ie>. Þá virðist oss sanngjarnt, að seðlaúlgáfuréttur bankans er auk- lnn, þá skuli bankinn greiða hundr- aðsgjalö til landsjóðs af seðlafúlgu Þeirri, sem hverju sinni er í umferð ram yfir málmforðann. Þetta er e*nskonar endurgjald fyrir áhættu landsins á seðlunum, og á jafnframt að koma í veg fyrir það, að réttur- inn sé misbrúkaður. Þótt vér getum eigi, samkvæmt framanskráðu, gengið að stj.frv. eða frv. eins og það kom til deildarinn- ar frá háttv. efri deild, þar sem réttur til aukningar seðlaútgáfurétt- arins er veittur bankanum ótíma- takmarkað og án þess að sett séu nokkur ný skilyrði um eftirlit með bankanum og skipulagi hans, þá þykir oss að því gangandi nú, sér- staklega með tillit til þess voveiflega hernaðarástands, sem nú stendur, að heimila bankanum að auka seðla- útgáfu sína um 700 þús. krónur í mesta lagi, gegn 50% málmforð*- tryggingu og 2% árgjaldi i lands- sjóð af því, sem fram yfir málm- forðann er í umferð. og að þetta verði aðeins til bráðabirgða, gildi eigi lengur en til októberloka 1915. enda leysi bankinn, fyrir þann tíma, inn það af þessum 700 þús. kr. sem þá verður í umferð fram yfir 2 */a miljón, nema næsta þiug geri aðra ráðstöfun. Berum vér því fram fyrir háttv. deild breytingartillögurnar á þingskj. 404 við frv., og ráðum háttv. deild til að samþykkja það með þeim breytingum. Alþingi 7. ágúst 1914. Einar Arnórsson. Sig. Gunnarsson, með fyrirvara að því er snertir sum atriði i nefndarálitinu. Eftir atvikum samþykkir breyting- artillögunum, en ósamdóma ýmsu í nefndarálitinu. H. Hafstein. Pétur Jónsson. Við, sem ritum hér undir, erum samþykkir framanrituðu nefndaráliti, að því er snertir innganginn og lið- ina 1—10, en sjáum eigi ástæðu til, að veita neinn aukinn seðlaútgáfu- rétt, eins og lagt er til þar að síð- ustu. Á þessutu ófriðartimum, þegar að- eins gull er gjaldgengt, þá virðist æði ískyggilegt, að ýta undir það, að gefið sé út meira af seðlum en áður er leyft, því slík aukning gæti verkað öfugt, þannig, að vér yrðum í enn meiri vandræðum með borg- un útlendra nauðsynja en nú, eins og síðar skal sýnt. Þegar þess er gætt, að innlenda viðskiftaþörfin krefur eigi meir en sem svarar helmingnum af seðlum íslandsbanka, auk Landsbankaseðl- anna, þá virðist nauðsynin ekki vera brýn, og má sjá seðlaumferð íslands- banka af meðfylgjandi fylgiskjali sið- ustu 6 árin. Ef allir núverandi seðlar beggja bankanna eru úti, þá nemur það 38 krónum á hvert mannsbarn á land- inu, fyrir utan útlenda seðla, sem hér eru í umferð, sem er ekki lítið, og fyrir utan silfur og koparmynt. Gull sést sjaldan. 1901 segir Þjóð- bankinn danski, að peningaumferðin í 3 löndunum, Danmörk, Noregi og Svíaríki, hafi verið um 20 ára bil 37 kr. á mann. Nærri má geta hvort innanlands peninga-umferðin er meiri hér nú en þar var þá. íslandsbanki getur því ekki þurft meira af seðlum en hann hefir nú, og mun eiga fult í fangi með að útvega nægt gull, ef þeir eru allir settir í umferð. Þar sem auðsætt er, að innlenda viðskiftaþörfin heimtar eigi meiri seðla, þá getur eigi verið beðið um þá af öðrum ástæðum en þessum: 1. Af ótta fyrir því, að sparisjóður íslandsbanka verði tæmdur, en til þess ótta er nú engin ástæða, síðan lögin um vernd banka og sparisjóða voru staðfest. Auk þess eru útborgunarskilmálar ís- laudsbanka úr sparisjóðsbókum hans þannig, að bankinn getur borgað svo lítið sem hann vill. Sú ástæða fellur því um sjálfa sig. 2. íslandsbanki segir: Eg þarf seðlanna með, til þess að borga út fiskfarma fyrir út- lend verzlunarhús og banka, sem eg hefi viðskifti við. En það er nauðsynlegt, að gera sér ijóst, hvað verið er að gera þeg- ar seðlar eru auknir í því skyni. Það er verið að tálma því, að qull geti komist inn í landið, sem borgun fyrir okkar gullsígildi, vörurnar, og verið að setja bankann og landið í hættu, verið að stuðla að því, að vörur okkar fari úr landinu dn pess nokkur ábyggileg trygging sé jyrir borguninni. Slík útborgun á förmum fyrir út- lend verzlunarhús og banka fer þannig fram : Bankinn borgar farmana með skuldabréfi á sjálfan sig, seðlunum, lætur þjóðina lána sér andvirði farms- ins upp á landsins ábyrgð. í stað- inn fyrir upphæð þá, sem bankarn- ir hér og iandið hafa þannig sett sig í skuld fyrir, fá þeir oftast 3 mánaða víxla á útlent verzlunarhús eða banka. Þessa 3 mánaða víxla senda þeir svo stundum með skipinu er flytur farminn til »Ordru«-hafnar á Skot- landi, eða í pósti. Og er engin trygging fyrir, á slíkum ófriðartím- um, að víxlarnir komi fram. Komist víxlarnir sína leið, til Lund- úna vanalega, eru þeir samþyktir, og liggja bessi blöð því þar í 3 mánuði. Margt getur skeð á þeim tíma, á hernaðartímum. a. Að prívatbankar þeir eða verzlun- arhús, sem viðskifti eru við, verði gjaldþrota. b. Að bankarnir verði eyðilagðir og rændir, og er þá þessum pappírs- blöðum hætt. A hernaðartímum reynir óvinveitta þjóðin allra mest að skaöa peninga- stofnanir óvinarins og að ræna þær fé. Það liggur í augum uppi, að slík viðskifti eru á ófriðartimum stórhættuleg fyrir landið. Bankinn á á hættunni að standa í skuld fyrir fiskfarmana, en fá ekkert i staðinn. Og hvar stendur bankinn þá ? Ekkert getur undir þessum kring- umstæðum verið trygg borgun nema gull i landinu sjálfu, og helzt til mikil léttúð að líta öðruvísi á. í staðinn fyrir að gefa út meiri seðla, á þingið að fá íslandsbanka til að láta sína útlendu viðskiftavini vita að undir pessum kringumstaðum, geti hann ekki borgað fiskfarma fyrir þá, nema þeir, á eigin ábyrgð, sendi andvirðið hingað heim i gulli. Hvert gætið þing mundi fara þann- ig að. Og þá eru nokkrar likur fyrir að landið fái mynt til þess að kaupa fyrir nauðsynjar sínar í Vesturheimi. Það virðist liggja nær fyrir þing og stjórn, að semja heim- ildarlög fyrir stjórnina til þess að banna að vörur vorar fari til Spánar og Ítalíu fyr en andvirði þeirra er komið í gulli hingað til landsins, eða þangað til ófriðarhættan er af- staðin. Það bann mundi tryggja bankana og landið gegn allri hættu og sem full þörf er á að tryggja, eins og nú er ástatt. Við leggjum því til að frumvarpið verði felt ásamt með breytingartil- lögunum. Alþingi 7. ágúst 1914. Björn Kristjánsson. Þorl. Jónsson. Hjörtur Snorrason. Eftirlaunin. Þingsályktunar- tillagan um skipun milliþinganefndar til að rannsaka eftirlaunamálið í sam- bandi við launakjör embættismanna yfirleitt var til umræðu í Neðrideild i gær. Lagðist einn embættismaður landsins Sig. Sigurðsson ráðunautur mjög hávært móti tillögunni, en ráðherra og Sv. Bj. mæltu með henni. Var tillagan að lokum sam >ykt tneð öllum atkv. gegn 5. Héraírunivarpið margrædda er nú Ioks að lögum orðið. Gerðist sá atburður i Efrideild í gær, með terkjum þó. Var frv. um friðun téra samþykt með 6: 5 atkv. (Bj. Þorl., Guðm. Bj., Karl Einatsson, Kr. Dan. og Magn. Pét.) Djóðjarðasala. Frv. um sölu á jörðinni Núpur í Öxarfirði var felt í Neðrideild í gær með mikl- um atkvæða mun. Heimildarlögin um rekstur Vífilsstaðahælis, heimflutning á lista- verkum Einars Jónssonar og vita- smíði á Grímsey, eru nú samþykt i Neðrideild, en lávarðarnir eftir. Nýr liáskólakennari. Frum- varpið um stofnun kennaraembættis klassiskum fræðum við háskólann refir Efrideild samþykt. í Neðri- deild kom það til r. umr. í gær og fekk að lifa þar með 17:8 atkv. (E. P., G. H., Bj. H., Einar Jónsson, Magn. Kr., Sig. Sig., St. St. Þór. B.) Fóðrun sauðfjárá kraft- fóðri. Eftir ^Andrés Lyóljsson. í grein, sem Jón Þorláksson lands- verkfræðingur ritar i Lögr., 27. tbl. þ. á., skýrir hann frá reynslu Magn- úsar bróður síns á Blikastöðum, við- víkjandi fóðrun sauðfjár á korni (rúgi). Það væri æskilegt að allir þeir, er ábyggilega reynslu hafa um fóðrun sauðfjár á kraftfóðri, er bændum mætti að haldi koma, létu reynslu sina í ljósi, því tíðin nú, bendir ó- tvíræðilega til þess, að heyfengur verði ekk: svo mikill í sumar, að bændur geti sett á allan sinn bú- stofn, þar sem líka heyfyrningar munu óviða vera eftir síðastliðinn vetur. Útlitið er þvi það, að bænd- ur virðast neyddir til að afla sér hjálparfóðurs handa skepnum sinum, ef þeir eiga ekki að farga þeim að mun, eða setja þær í voða með slæmri ásetningu. En bændum er yfirleitt ókunnugt um, hvaða fóðurtegund þeir eiga að nota, hvaða gildi hver þeirra hefir og þarafleiðandi hversu kostnaðarsamt er að fóðra búfé sitt þannig. Ábyggilegar tilraunir eru nauðsyn- legar til að leiða þessi atriði i ljós, en »flest skal i neyð nota«, og þess vegna eiga menn að skýra frá reynslu sinni í því efni, enda getur reynsl- an, sé hún margreynd, gert fult gagn. J. Þ. segir að Magnús á Blika- stöðum telji 2/8 pela eða V7 kg. af korni hálfa gjöf framan af vetri, en 1 pela seinni hluta vetrar. Af reynslu Magnúsar, sem skýrt er frá i greininni, nm gjöfina siðast- liðinn vetur, er nú eigi vel hægt að sjá hvort svo er í raun og veru, að að þetta magn svari til hálfrar gjaf- ar, þar sem bæði beitín og heygjöf- in, einkum gæði heysins, eru óþektir liðir, sem gildi kornfóðursins velt- ur á. Þess er getið í greininni, að beit- in á Blikastöðum sé »mjög kjarn- lítiL. Sé tekið tillit til þeirrar umsagn- ar, ásamt þvi að heyið af jörðinni er talið létt, og nýting þess hefir eðlilega verið í verra lagi, svo og þess hvað heyeyðslan var lítil, og síðast en ekki sízt þess, að fénað- urinn var í góðu standi, þá liggur nærri að álykta, að kornskamtur- inn hafi gefið mjög góða raun, eða verið i raun og veru meiri hluti fóðursins. En sé aftur á móti litið til þess, að M. telur að hann hafi eytt alt að 2 köplum af heyi, hefði hann gef- ið það eingöngu, eða samtals 120 kg. á hverja kind, sýnist rúggjöfin hafa minna giidi, en þá hlýtur líka gildi beitarinnar að hækka mjög, eða nema alt að a/5 fóðursins, eftir þvi sem heyeyðsla hefir orðið á land- rýrðarjörðum, þar sem gefið var fram á miðjan sauðburð. Þótt þarna virðist vera mótscgn um gildi kornsins þá er þó enn á það að líta, að hið siðara er getgáta M., sem virðist mjög lág, sé miðað við gildi heyja, eins og þau reynd- ust síðastl. vetur, þar sem þau megn- uðu sumstaðar alls eigi að halda líf- inu í fénaðinum, þó ekki væru spör- uð, enda heygjöf M. numið litlu meira en vera til iðrafylla í inni- stöðuna. Þó virðist mega treysta því, að áminstur fóðurskamtur svari til '/2 gjafar eða vel það. — Dæm- ið virðist fremur benda til að svo sé. En svo er það enn spurning hvort minna muni ekki nægja, og á svar- inu veltur það' mjög, hvort alment muni borga sig að fóðra sauðfé á korni upp um sveitir, nema sérstak- lega standi á. Sé miðað við verð á kornvöru f kaupstöðum úti um land, eins og það hefir verið undanfarin ár og bætt við það flutningskostnaði upp um sveitir, þá mun vart gerandi ráð fyrir að rúg kg. verði minna en kr. 0.20. Sé nú geit ráð fyrir að fóður- tíminn svari til 20 vikna innistöðu, og fénu sé gefin hálf gjöf af rúgi, sem eftir reynslu Magnúsar ætti að vera um 165 gröm að meðaltali, þá verður korngjöfin á kind samtals 23 kg. og nemur kr. 4.60 með áð- urminstu verði, eða fóðrið kr. 9.20 á það fé, sem er sett á korngjöf- ina. Uppi i Borgarfirði vissi eg þess dæmi í vetur að fjáreigandi, sem sá fyrir heyþrot hjá sér, fór að gefa ánum rúg. Á jörðinni, þar sem ærnar voru, var ekki um neina út beit að tala. Lét hann draga helm- ing þeirrar heygjafar, er ærnar höfðu áður fengið og bætti það upp með 100 gr rúgi á dag (Vio úr kg.). Þetta byrjaði hann síðari hluta vetrar. Árangurinn varð sá, að ærnar héldust við, virtust fremur losna eft- ir fóðurbreytinguna, að dómi eig- anda og skoðunarmanns hreppsins. Voru ærnar í góðu standi í vor. — Megi marka þetta, sem styðst við gamalt lag, þá virðist kornið, sem Blikastaðaærnar fengu, hafa verið meira en hálf gjöf. í samskonar dæmi og áður yrði korneyðslan miðuð við þenna skamt — 14 kg. hálf gjöfin eða kr 2.80. Af ritgerðum Torfa Bjarnasonar f. skólastjóra í Ólafsdal (Bún.rit 23. ár, bls. 185 og sama rit 26. ár, bls. 271), má ráða, að hann telur eining af korni hafa fóðurgildi á við 24/a af töðu (gamalt lag) og 4V6 af út- heyi. Nú mun láta nærri að sauð kindinni sé ætlað á dag um 1 kg. af útheyi, meðalkjarngóðu og vel verk- uðu. Ætti þá V8 svara til hálfrar gjafar handa kind á dag. Er það nærri mitt á milli þess, sem Magnúsi á Blikastöðum reyndist nóg og þess er virtist nægilegt í dæm- inu sem eg nefndi hér að framan. Eftir því væri korngjöf á kind í samskonar dæmi (hálf gjöfin) 17V2 kg. eða kr. 3.50. Af þessu virðist þá óhætt að draga þá ályktun, að það muni geta borgað sig vel, að setja nokkurn hluta fjárins á korn, ef illa heyjast, eða þau hrekjast, svo þau geta ekki fullnægt þörf skepn- unnar, eins og síðastl. vetur, heldur

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.