Ísafold - 09.09.1914, Qupperneq 1
Kemur út tvisvar
1 viku. Verð árg.
4 kr., erlendis 5 kr.
eða 11 dollar; borg-
ist fyrir miðjan júll
erlendis fyrirfram.
Lausasala 5 a. eint.
XLI. árg.
Eeykjavík, miðvikudaginn 9. september 1914.
| TJppsögn (skrifl.)
| bundin við áramót,
| er ógild n ema kom-
1 in sé til útgefanda
I fyrir 1. oktbi. og
| sé kaupandi skuld*
1 laus við blaðið.
69. tölublað
Erí. símfregnir.
Frá Norðurálfu-ófriðnum.
London j. sept. kl. 6.5 síðd.
Ekki getið um neinar nýjar orustur í nánd við Paris.
Mótstöðuherirnir halda áfram framsókn sinni án þess að til
orustu hafi komið.
Hermálaráðuneytið í Bordeaux skýrir frá því að óvinaherinn,
sem á í höggi við vinstra herarrn Frakka, virðist ekki skeyta um
París, til þess að reyna að komast í kring um her Frakka og hafi
þeir farið fram hjá Reims og haldi nú áfram vestan við Argonne-
hálsa.
Samt sem áður er mælt að annar her sé miklu nær höfuð-
borginni.
Það vakti óhemju-fögnuð í Frakklandi og Rússlandi að Lem-
berg var tekin og þótti bæta upp vonbrigði manna yfir ósigri
skyndilega sendar til Galiciu, áður en Lemberg gafst upp og skipað
að hjálpa Austurríkismönnum til þess að verja borgina.
Tilkynt er að Vilhjálmur keisari hafist nú aðallega við í Metz.
R e u t e r.
Przcmysl er bær í Galiciu, vestur af Lemberg. Eru 50 þúsund
íbúar þar, kornverzlun töluverð og verksmiðjur margar.
London 8. sept. kl. 6 e. h.
Aðstaðan á orustusvæðinu er sérlega hagstæð fyrir banda-
mannaherinn.
Fyrir hreystilegar framkvæmdir Frakka, með drengilegri að-
stoð Breta, hefir liði Þjóðverja, sem var á leiðinni austur — suð-
austur af París, verið þröngvað til þess að snúa aftur.
Þetta hefir valdið mikilli ánægju í höfuðborgum bandamanna.
Parisarbúar eru rólegir og bera fult traust til hersins.
Sú ályktun er dregin af varlega orðuðum opinberum tilkynn-
ingum, viðvíkjandi herframkvæmdum í Frakklandi, að nú geysi
mesta orustan í ófriðnum á 150 mílna svæði, frá Senlis til Verdun.
A.lþýðufól.bókasafn Templaras. 8 kl. 7—9
Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 10-8
Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 1 —7
Bæjargjaldkerinn Laufásv. 5 kl. 12—8 og 5—7
íslandsbanki opinn 10—2l/« og B1/*—7.
K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8árd.—10 3Íöd.
Alm. fundir fid. og sd. 81/* sibd.
Landakotskirkja. Gubsþj. 9 og 8 á helgum
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankinn 11-2V*, B1/*—6'/*. Bankastj. 12-2
Landsbókasafn 12—8 og B—8. Útlán 1—8
Landsbúnabarfélagsskrifstofan opin frá 12—2
Landsféhirbir 10—2 og B—6.
Landsskjalasafnib hvern virkan dag kl. 12—2
Landssiminn opinn daglangt (8—9) virka daga
helga daga 10—12 og 4—7.
Náttúrugripasafnib opib l1/*—21/* á sunnud.
Pósthúsib opib virka d. 9—7, sunnud. 9—1.
Samábyrgb Islands 10—12 og 4—6
Stjórnarráós8krifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsimi Reykjavíkur Pósth.8 opinn daglangt
8—10 virka daga, helga daga 10—9.
Vifilstaðahælib. Heimsóknartimi 12—1
Þjóbmenjasafnib opib sd., þd. fmd. 12—2,
Sferifstofa
Eimskipafélags íslands.
Landsbankanum (uppi).
Opin daglega kl. 5:—7.
Talsími 409.
Rússa í Austur-Prússlandi, og er talið að taka Lembergs hafi mikla
hernaðarþýðingu fyrir Rússa og sé þeim til eigi lítillar hvatningar
og geri þeim auðveldari innrás í Þýzkaland og Austurríki.
Fregnin í gær um þýzku tundurbátana og tundurbátaspillana
er mönnum ráðgáta, geta verið tundurbátar og tundurbátaspillar
sem tóku þátt í orustunni við Helgoland. Þeir, sem fróðastir eru
halda að þar sem Kiel er nefnd, bendi það til þess að þeir hafi
annaðhvort lent á tundurduflum í Eystrasalti eða þá að rússneski
flotinn sé kominn á kreik.
R e u t e r.
London 6. sept, kl. 6 síðd.
Þýzki herinn á Frakklandi hefir horfið frá þvi ráði að um-
kringja vinstra fylkingararm bandamannahersins. Skeytir ekki
heldur um París, og heldur suðaustur á bóginn til Marne og á
móti vinstri og miðfylkingum Frakkahers.
Menn vita enn ekki hvort þessi breyting er með vilja gerð,
eða þeir hafa orðið að hverfa að þessu ráði vegna aðstöðu hers síns.
Samkvæmt fréttum frá Vínarborg, er allur her Austurríkis-
manna í Galizíu á flótta. Eina vonin nú er þýzka hjálparliðið,
sem er á leið til vígvallarins.
Remo, skip Wilsonsfélagsins (í Hull) sökk 40 mílur frá austur-
strönd Englands. öllum bjargað nema 20 rússneskum flóttamönnum.
öll löndin, Frakkland, Rússland og England hafa kornið sér
saman um að semja ekki frið hvert í sínu lagi.
R e u t e r.
1
London 7. sept. kl. 7.05 síðd.
Áköf orusta stóð milli Belga og Þjóðverja á föstudag og laug-
ardag.
Mikið lið Þjóðverja fór úr Brussel á föstudag áleiðis til Ter-
monde í þvi skyni að hindra samgöngur milli Antwerpen og Ostende.
Belgar rufu flóðgarða og veittu vatni á landið. Það er sagt
að Þjóðverjum hafi komið þetta mjög á óvart og flúið. Þeir yfir-
gáfu virki, en Belgar hófu á þá skothríð og varð mikið mannfall
í liði Þjóðverja.
Gizkað er á að 5000 manns hafi fallið og særst og margir
druknað i nánd við Termonde, þegar flóðgarðarnir voru rofnir.
Það er opinberlega tilkynt frá Rússlandi, að Rússar séu smátt
og- smátt að umkríngja Przemysl, sem verður bráðlega að gefast
upp eða verður tekin með áhlaupi.
Skeyti frá Rómaborg skýrir frá því að heilir hópar austur-
rískra hermanna hafi beðið að taka sig til fanga, þar eð vista-
skorturinn væri óþolandi.
Samkvæmt skeytinu frá Vínarborg voru þýzkar hersveitir
Rússar hafa tekið 82 þúsund fanga í nýafstöðnum bardaga í
nánd við landamæri Austurríkis. Hafa allir fangarnir verið fluttir
til innri héraða Rússlands.
Rússar hafa og tekið rammlega víggirta borg, Mikolajiff í
Galiciu.
Þjóðverjar hafa kastað sprengikúlum og eytt borgina Din-
ant (í Belgíu) 0g skotið þar 100 málsmetandi borgara. Þjóðverjar
fullyrða að þetta grimdarverk hafi verið framið vegna þess að
skotið hafi verið á þá þar í borginni.
Þjóðverjar hafa ennfremur gjöreytt borgina Termonde (Belgiu).
R e u t e r.
Island erlendls.
Fáninn og Knud Berlin.
Rauðkufjendurnir hér heima og Knud
Berlin, hinn danski, hnfa komið sér
innilega vel saman um að rejma
að afstýra því með öllu móti, að
rauði krossinn verði settur inn í
hvíta krossinn í fána vorum. Um
það mál ritar Berlín langa grein í
blaðið Köbcnhavn og skulum vér til
fróðleiks lesendum ísafoldar skýra ögn
frá ærslum prófessorsins út af þessu
atriði.
Hann kveðst ekki hafa rokið svo
mjög upp út af forsetaskeytinu 17. maí,
sér hafi fundist tal dan^kra blaða um
það vera að gera úlfalda úr mýflugu,
borið saman við sumt annað i dansk-
íslenzku deilunni. Enhannkveðsthafa
spáð því þá að von mundi á öðru og
miklu meira um verðu storkunarefni,
sem sé því, að hinn nýi íslenzki
fáni yrði með norsku litunum í öf-
ugri röð. Þarna kveður Berlin sig
hafa verið forspáan, þar sem aðaltil-
laga fánanefndarinnar hafi reynst á
þá leið, Hann prentar svo upp um-
mæli fánanefndarinnar og sömuleiðis
ísafoldar út af því, að þríliti fáninn
hafi sömu liti eins og fánar Breta
og Norðmanna. Segir hann að auð-
vitað sé Bretar teknir með í þessu
sambandi til málamynda, en aðal-
atriðið sé líkingin við norska fán-
ann.
Þá getur Berlin þess, að málgagn
Hannesar Hafstein Löqrétta minnist
eiunig á, að fáninn minni á skyld-
leika vor og Norðmanna og Breta
og bætir við. »Ef það skyldi satt
vera, sem fleygt er, að Hannes Haf-
stein hafi fengið loforð konungs um
staðfesting þessarar gerðar fyrirfram,
hefir hann naumast gert konungi
ljósa þessa líkingarmynd hins nýja
fána«.
Eftir þessar bollaleggingar kemur
svo Berlín að þrámælgisefni sínu,
þessu, að Zahle hafi gert sig sekan
um frámunalega vitleysu, er hann lét
fánaúrskurðinn fram ganga, og að til
þess að bæta úr þeirri villu sé það
skylda hans að leggja alt fánamálið
fyrir rikisþingið og þess skylda
aftur annað tveggja, að gefa út
yfirlýsing um að hinn nýi fáni megi
aðeins löggiltur verða á landi, ekki
í landhelgi, eða, að löggilda fyrir
ísland almennan verzlunar- og sigl-
ingafána, en sá fáni eigi að vera
Dannebrogsjáninn með sérstökuíslenzku
merki í. Og ef Zahle fáist til þess
arna, beri öllum stjórnmálaflokkum
dönskum að fylkja sér um hann í
þessu atriði, þrátt fyrir villur hans
vegar áður. En geri hann það ekki
beri flokkunum og þá fyrst og
fremst vinstriflokknum að gera mál-
ið að umtalsefni í danska ríkisþing-
inu. Hælist hann svo um út af
því, að hann hafi fengið yfirlýsingar
frá formönnum vinstriflokksins bæði
i landsþinginu og þjóðþinginu, þeim
J. C. Christensen og Jörgen Peder-
sen, þar sem þeir viðurkenni fjar-
stæðu-afstöðu þá, sem Zahle hafi
komið Dönum í út af þessu máli.
»En skyldi nú ríkisþingið, segir
loks Berlín, vera kjarklaust orðið og
hugsa sem svo, að ísland sé hvort
sem er tapað Danmörku, og að þv.
megi alveg eins nú, eins og síðar
fella hinn danska fána á íslandi og
Hjðrtur Hjartarson yfirdóms-
lögmaður, Bókhl.stlg 10. Sími 28.
Venjul. heima i2ll%—2 og 4—
á íslenzkum skipum — má eigi
gleymast, að ef Danmörk fer út á
þá kjarkleysisbraut að fella Danne-
brogsfánann á ísl.indi og veita þar
ekkert viðnám, — að afleiðingarnar
geta orðið ákaflega afdrifamiklar I
öðru fjarlægu landi, sem numið var
í öndverðu af öðrum þjóðstofni en
Dönum«. — Á hann þar við Fær-
eyjar og lætur sér eigi minna nægja
en 2 langar greinar til að sýna fram
á T. að Færeyingar komi á eftir oss
með kröfuna um sérstakan færeyskan
rána og 2. að þegar danski fáninn
sé felaur á isienzkum skipum í land-
helgi Islands, muni réttur skipa
þeirra, er undir dönskum fána sigla
eigi verða talinn jafnsjálfsagður til
fiskiveiða í landhelgi eins og nú —
og muni það mest koma niður á
Færeyingum.
------Því fer betur, að þessi
Iest»r Berlíns og mikla hvatning til
danskra stjórnarvalda um að láta
fánamálið til sín taka kemur, —
hvað sem öðru líður — eftir dúk og
disk, þar sem vilyrði konungs er
þegar fengið um staðfestingu á fán-
anum, sem Berlín f jargviðrast mest yfir.
Tíðartarið
er sagt hið versta um alt Suður-
land. Óhemju rigningar og rosi
siðasta hálfa mánuðinn. Áður en
óþurkarnir hófust höfðu menn naum-
ast náð inn helmingi af heyjum. En
það, sem ónáð var, hefir spilst ákaflega
og sumstaðar beinlínis farið á flot,
t, d. i Borgarfirði. Þar hafði sést
mikið hey á floti úti á firðinum, er
Ingólfur var síðast á ferðinni. Horf-
ur til sveita voðalegar í haust fyrir
bragðið. ___
Stelnolíusalan til íslands.
Stjórnarráðið fékk í gær skeyti
um, að sala hefði verið leyfð á 2000
steinolíutunnum til Fiskifélagsins frá
Noregi með þeim skildaga, að hún
verði flutt til landsins innan septem-
berloka.