Ísafold - 08.10.1914, Síða 1

Ísafold - 08.10.1914, Síða 1
f Kemur út tvisvar | 1 i viku. Yerð árg. | I 4 kr., erlendis 5 kr. f | eða 1 Jdollar; borg,- | l istfyrirmiðjan júlí | I ei’lendis fyrirfram. | | Lausasala 5 a. eint. | M ...............» XLI. árg. Ritstjórl: Ól»fup Bjöpn SfSOT? Reykjavík, fimtudaginn 8. október 1914 Talsími 48. B ...........—..... ■ . Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, er ógild nema kom- in só til útgefanda fyrir 1. oktbr. og só kaupandl skuld- laus við blaðið. 77. tölublað Hæður við jarðarför Potsfeitts Eríitigssortar, fluftar í Tríkirhjunni. „Þekking vor er i molum“. Ræða prófessors Haralds Nielssonar. »Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í moluru; en þegar hið fullkomna kemur, þá líður það undir lok, sem er í mo1um«. (1. Kor. 13, 9—10.) Það er einkennilegur hógværðarblær á þessum orðum bins mikla postula. Honum finst mest þörf á að taka þetta fram um þekking sína, að hún sé ófullkomin — sé í molum. Þó er hann sér þess meðvitandi að hafa hlotið alveg sérstaka opinberun; hann veit hann hefir nieð alveg sérstökum og óvanalegum hætti séð meira en öðrum al- ,ment auðnast að sjá, meira af þeim hulda heimi, sem felst bak við þessa sýnilegu náttúru. Hann veit líka að hann á það, sem þá var nefnd spádómsgáfa: hæfileika til að tala af mikilli andagifi. um andlega hlnti og aðdáanlega innsýni til þess að dæma um og skilja í því, sem andans er, og oft er öðrum hulinn leyndardómur. En sú gáfa er og takmörkuð, svo að spádómur hans er líka ófull- kominn — erí molum. Vér sjáum að eins »svo sem í skugg- sjá í óljósri mynd«, segir hann. En jafnframt því, hve glögt hann finnur til þessa, horfir hann með hugarrósemi fram á við, þvi að hann veit, að honum er ætlað að eignast síðar fullkomnari þekk- ing. Þá liður það undir iok, sem er í molum. Hann minnist bernskuára sinna og þess, hvernig hann þá talaði, hugsaði og ályktaði. Nú, eftir að hann er orðinn full- orðinn, segist hann hafa lagt batnaskapinn niður. En eins mikill og mnnurinn sé á hugsunarhætti bernskuár- anna og fullorðinsaldursins, eins mikill munur fullyrðir hann að muni verða á þeirri þekking, sem hann nú á, og þeirri, er hann öðlast, »þegar hið fullkomna kemur«, þeg- ar hann flyzt burt úr jarðlífinu og fær að »vera með Kristi«, eins og hann orðar það. Þekking vor er í molum. Finnum vér ekki öll til þess, er vér stöndum gagnvart alvarlegustu atburðum lifs- ins? Stöndum vér nokkuru sinni svo við banabeð þess, er vér höfum elskað, að vér vildum ekki fegnir vita meira? Verðum vér þá ekki við það að kannast, að þekking vor nær skamt? Oe er það ekki fyrir þessa sömu sök, að oss greinir svo m)ög á, er vér reynum að skilja lífið og tilgang tilveru vorrar? En vér gleymum svo oft hógværð og auðmýkt postuians, gleymum því svo þráfaidlega, að vér hver um sig eigum að eins til smá sannleikskorn, en tölum ósjnldan eins og vérættum sannleikann allan, að minsta kosti allan aðalkjarna hans. Vér erum eins og börn, sem einhver af góðleik sínum hefir gefið fáeinar krónur, en ætla síðan að þan eigi of fjár — ef ekki miljónir, er unt sé að kaupa alt fyrir, svo að segja hvað sem þeim dettur í hug. — Og eins er um hugvit vort og skynsemi; sumir halda að hún sé sá lampi, er lýsi upp alla tilver- una fyrir oss, og ekkert sé til, sem hún fái eigi gripið. Og í hinu mikla trausti til skynsemi sinnar þylja þeir spádóma sína, en gleyma tíðast að taka það fram, að þeir séu í molum, eins og postulinn gerði. Skáldin hafa löngum verið talin náskyld spámönnnn- um. Þeim er gefin fögur og merkileg gáfa: innsýni og andagift. Þau vekja og æfinlega öldur í hinu andlega lífi kring um sig. Svo var og um hann, sem hér hvilir nár í þessari hvitu kistu. Oft stóð gustur af Ijóðum hans. Hann bar fram hugsanir sínar með óhlífnara hætti en vér höfðum áður átt að venjast. Hann vildi rifa niður ýmis- legt i hugsunarhætti fólks, er hann taldi rangt og honum var orðið illa við. Hann nefndi ljóð sín »Þyrna«, því að hann vissi að ýmislegt 1 þeim mundi særa aðra. A þyrn- unum eru hvassir brodáar, sem stinga og rifa það, er þeir snerta. í vöggugjöf hafði hann eignast gagnrýninn og efa- gjarnan hug. Og þeir, sem svo eru gerðir, taka snemma að velta fyrir sér þyngstu ráðgátum tilverunnar, einkum ef gagnrýnigáfunni fylgir þrá til þess að skilja sem bezt til- gang tilverunnar; en sú þrá er í insta eðli sinu náskyld því, er vér nefnum trúarþörf. Elana eigum vér vafalaust öll f einhverri mynd, en mjög misjafnlega rík er hún í oss. Þan árin, er þetta alt brýzt fastast um í huga vor- utn, lifði hann erlendis, við hás'kólann í Kaupmannahöfn, þar sem alt andlegt lif var og er með meira fjöri en hjá oss. Þar var andlega loftið heitt á þeim árum. Annars vegar ríkti þar í landi mjög þröngsýn og öfgakend og einhliða trúmálastefna, en hins vegar meðal margra helztu’ öientamannanna önnur jafnæst og einhliða vantrúarstefna, er sýndi kirkju og kristindómi opinberan fjandskap. Jafn- ftamt þessu var þá jafnaðarmannahreyfingin sem óðast að ryðja sér til rúms með kröfur sínar um frelsi, jafnrétti og bræðralag. Sú hreyfing var og kirkjunni andvíg og fann henni það með réttu til foráttu, að hún væri jafnan fúsust til bandalags við valdhafana og auðæfin. Skáldin era næmari fyrir eldi andans en aðrir. Og Þorsteinn Erlingsson varð gagnteknari af þessum hreyf- ingum en flestir íslendingar aðrir. Önnur stefnan sló á efastrengi hjarta hans, jafnframt því sem hún lyfti anda hans og auðgaði með ýmsum hætti. Hin kom við enn viðkvæmari strengi: þrá hans eftir réttlæti og löngun til þess að þeir, sem lægra eru settir og snauðari ern, öðlist viðunanlegri kjör. Því lengur sem hann lifir í þessu andlega umhverfi, því betur sannfærist hann um þetta: lífið er fult af rang- læti, eins og það er; mannfélagskipunin öll óviðunandi, því að valdhafar og auðmenn beita kúgun, svo að »rétt- urinn er hrakinn á hæl og réttlætið stendur langt í burtu«. Og kirkjan tekur þátt í kúguninni; dregur taum þeirra, sem betur eru settir og heftir hugsanafrelsið og varpar óvild sinni á þá, sem hafa frábrugðnar skoðanir henni sjálfri. Krists eigin boðskapur er fjötraður í kenningar- kerfi, sem siðar er til orðið, og fær eigi að njóta sín. Og loks kemst skáldið svo langt, að hann missir al’.a trú á framhald lífsins eftir dauðann. Og tilveran verður vond í augum hans, eins og Jobs, sem óskaði þe$s, að hann hefði. aldrei fæðst. Æðsta hngsjónin verður þá að bæta kjör mannanna hér í lífi, koma meiri jöfnuði á: jafnaðar- menskan verður fagnaðarefindi hans. En við ofurefli er að etja, og mannkyninu miðar litið áfram. Gremjan verð- ur þá mest við höfund tilverunnar, sem hafi skapað oss til þessa vesnla og kvalafulla lifs. Þeim, sem komnir eru mn á slikar hugsanabrautir, er það mesta efaefnið, hvort guð sé til, og ef hann sé til, hvort hann sé góður. Slíks hugsunarháttar kennir víða í kvæðum Þorsteins Er- lingssonar. Og það er ekki nema eðlilegt, að hans kenni þar. Hví átti hann ekki að yrkja um það, sem hugur hans fjallaði rnest um, og hvi átti hann ekki að boða það, sem hann taldi sannast? Það er því í fullu samræmi við þetta, að einmitt ádeilukvæði hans sum eru mikilfengleg- ust og i þeim er mestur kraftur og eldmóður. Og óvild hans bitnar sérstaklega á kirkjunni. Honum finst alt það rangt, sem hún hafi kent sér, og hann vill má áhrif hennar burt úr huga sér. »En til þess að skafa það alt saman af er æfin að helmingi gengin«. Þegar ort er í slikntn móð, verður margt einhliða, og oss, sern kirkjunni unnum, fanst ýmislegt ósanngjarnt, sem hann sagði. En vér vorum líka aldir upp við mjög einhliða hugsunarhátt; oss hafði verið kent að telja kenn- ingar kirkjunnar helga eign mannanna, og vér höfðum eigi verið vandir við hugsunarfrelsið og gagnrýnihuginn, heldur á hitt, að beygja skynsemina tii hlýðni við trúna. Hefir ekki kirkjan tiðast haldið því fram, að hún ætti trúarsannindin svo fullkomin, sem oss væri ætlað að eign- ast þau á þessari jörð? En eftir því sem árin liðu, kom og mikil breyting á hugsunarhátt ýmissa manna innan kirkjunnar. Nú höfum vér margir lært það, sumir fyrir sárt hugarstríð, að ýmislegt í kenning kirkjunnar stendur engan veginn svo förtum fótum, sem haldið var að oss. Eftir því sem vér þioskuð'umst betur og gátum aflað oss víðtækari þekkíngar, sáum vér, að þar var ýmislegt full- yrt, sem allar sannanir vantaði fyrir, og að víða fær hinn sögulegi sannleikur ekki að njóta sín fyrir trúarsetningnm og erfikenning. Vér fundum líka tií þess, að ýmislegt varð að skafa út, sáum að þekking og kenning kirkju- deildanna var að ýmsu leyti mjög ófnllkomin, var i mol- um, eins og þekking postulans. Og eg fæ eigi betur séð en að vér kirkjunnar menn gerum vel í að hugfesta oss þessi orð Þorsteins Erlingssonar: »Það verður á bók þess svo varlega að skrifa, sem veikur er íæddur og skamt á að lifa«. Úr þvi að það féll í mitt hlutskifti, að mæla hér nokkur orð við kistu hans, þá langar mig til að lýsa yfir því, að eg erfi ekki við hann hörðu orðin um kirkjuna. Mér finst eg skilja, hvernig þau eru til orðin; og sá sem skilur, fyrirgefur alt. Mér finst þau sum enn einhliða og ósanngjörn, en eg er þess fullvis, að þau voru í sam- ræmi við sannfæring hans þá. Og mér er vaxinn svo mikill þroski, að eg kann að meta snildin.i, eins fyrir því, þótt henni sé beitt á skoðanir, sem eg er ósamþykkur. En hitt er mér mikill sársauki að hugsa til þess, að kirkjan skuli ekki megna að veita þeim neina hjálp, sem komast út á þær efasemdabrautir, sem hann lenti út á. Gerum oss fulla grein fyrir því, hve sárt þeir oft hljóta að finna til og hve dapurlegt lífið oft er þeim, sem ekki geta einu sinni í þrautum lifsins hvílt hugann við þá sannfæring, að tilveran hljóti að vera góð og eilíf gæzka sé á leið með ait til fullkomnunar. En hugsar kirkjan ekki oftast mest um að varpa slikum efamönnum frá sér ? í kenning hennar heyra peir sjaldnast mikið af blíðuróm hans, sem sagði: »Komið til mín allir þér, sem erfiði og þunga eruð hlaðnir, og eg mun veita yður hvíld«. Og því miður hefir kirkjan of fá lyf við efasemdum manna á vorum dögum. í stað þess að ríghalda í gamlar erfi- kenningar* ætti hún miklu fremur að reyna af mætti að afla sér þekkingar nútímans og gera sér far um að sam- þýða þann dýrmæta sannleika, sem hún á, hugsunarhætti nútíðarmanna, og um fram alt minnast þess, að þekking hennar er i molum, og að því er henni stöðugt þörf að biðja guð um meira ljós. Með þeim hætti mundi og umburðarlyndið vaxa. Eg finn þvi sárara til þessa sem mér er kunnugt um, að Þorsteinn Erlingsson átti svo marga strengi í sálu sinni, sem í raun og veru gátu ekki annað en bergmálað sumt i boðskap Krists. Enda hafði hann alla daga hinar mestu mætur á Kristi. í sumar sagði hann mér eitt sinn frá þvi, að hann hefði oft verið að hugsa um og sig hefði langað til að yrkja samfeldan kvæðaflokk um Krist, lýsa honum frá því, er hann sagði fyrir, að hann mundi verða líflátinn og til þess er hann var krossfestur. Og eg er sannfærður um, að ef úr þvi hefði orðið, hefði margt erindið orðið fagurt og átakanlegt. Og hver getur lesið svo kvæði hans, að hann finni ekki, að hér talar hjarta, sem fult er af miskunn með smælingjunum og öllum þeim, sem eiga bágt. Átakanlegust erukvæði hans um fuglana. Hve vorkennir hann þeim i skammdeginu, þegar þeir eiga engan vin að, nema geisla sólarinnar, til að veima kalda fæturna. Þegar sólin er horfin og yfir skyggir, liggur honum við að gráta þeirra vegna. Hann kennir svo í brjósti um sumarbörnin »svöng og dauðalúin«, að hann langar til að byrja að hughreysta þau, likt og krist- inn prestur reynir að telja um fyrir þeim, sem bágt eiga og eru að gefast upp í lífsbaráttunni: »Litlu vinir, verjist þið, við eigum ekki að deyja, aftur lifna lauf á við«, langaði mig að segja. »Þó að sólu þeki ský, þó hún sjáist eigi, kemur hún aftur ung og hlý á þeim bjarta vegi«. »Þessi hörðu harmaspor hyggurðu drauma tóma, þegar þú, litli vin, í vor vappar á milli blóma*. Mundi ekki Kristur hafa sagt við þann, sem svona talar: »Þú ert ekki fjarri guðs ríki«. Óg ætti það ekki að vera kirkjunni sársauki, að geta ekki gefið slíku hjarta guðstraustið ? Eru ekki fuglarnir honum jafnframt ímynd smælingjanna, allra þeirra, sem eiga bágast, þeirra sem hann langar mest til að hjálpa og hugga, en hann verður að þegja, af því að honum finst náttúran grimm og blind, og svartur himininn svarar honum engu ? Var hann ekki sjálfur stundum likum kjörum háður og söngfuglinn, þegar vetra tók: átti lítið fyrir sig að leggja, »ekki af neinu nóg, nema von og kvæðum* ? í hrifning hans af jafnaðarmenskunni er og mikið af sann-kristilegu hugarfari; sú hreyfing er i insta eðli sínu ger-kristin, þótt hún enn af skammsýni víðast hvar varpi trúarbrögðunum frá >sér, í stað þess að leita þar öflugustu ástæðunnar fyrir réttmæti sinu, Því að ef allir eiga ódauðlega sál, þá eiga þeir allir jafnan rétt til að þroska hana hér í heimi áður en þeir hverfa inn á næsta tilveru- stigið. Allir sannir Krists lærisveinar vilja stefna með skáldinu að því landi, »þar sannleiki ríkir og jöfnuður býr og syngur þar hósanna saman«. Og hann skildi einkarvel afstöðu Krists til syndaranna og elskaði innileikann, hvar sem hann kom fram. Fyrir því hafði hann svo miklar mætur á sálmum Hallgríms Péturs- sonar. Þetta sýnir oss bezt, hve nálægt vér erum hver öðrum í skoðunum, þegar hið bezta í oss fær að njóta sín. Sú guðfræði, sem Þ. E. kyntist bezt og honum var andstæðust, hélt fram gerspilling manneðlisins. Hinu var hann óvanur að hnldið væri fram, að einnar aðal- sönnunurinnar fyrir gæzku guðs væri að leita í góðleik mannlegs hjarta, einkum þar sem þetta birtist á hæsta stigi. Srðustu ár æfinnar tók hann aftur að vona, að til væri framhald lífsins eftir dauðann. Og þegar hann sá hilla undir þá von, fagnaði. hann henni. Eitt sinn sagði hann við mig: »1 tuttugu og fimm ár hefi eg þózt sann- færður um það, að ekkert líf væri til eftir dauðann. En þú mátt ekki halda að mig hafi ekki langað til þess, eins og hvern annan«. Og það var hann sem sagði þetta: »Éf ódauðleiki manns-sálarinnar sannast, þá er það svo stórköstleg framför í sögu mannkynsins, að mér fyndist ástæða að taka upp nýtt tímatal frá þeim degi«. Hann lokaði ekki hug sínum, heldur var fús að taka sannleik- anum, hvaðan sem hann kom. Og þótt hann yrði þá að láta það víkja, sem hann haffii talið rétt áður, hikaði hann eigi við það. Hann taldi sjáltsagt, að kannast við að þekkingin á þessum efnum væri ófullkomin — væri í molum. Hann hafði oft um þetta þessi orð úr íslend- ingabók: »En hvatki es missagt es í fræþom þessum, þá es scyllt at hava þat heldr, es sannara reynist«.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.