Ísafold - 18.11.1914, Qupperneq 4
355
í SAFOLD
flugtnenn hafi kastað sprengikúlum á
Dover eins og þýzk blöð segja.
WolíF fréttastofan þýzka segir, að
Tyrkir hafi unnið sigur og tekið
fallbyssur í Egiptalandi, en það er
gersamlega ósatt.
Tyrkir þykjast hafa unnið sigur á
Rússum, en það er einber upp-
spuni, sem dreift hefir verið út i
Miklagarði að skipun Þjóðverja.
Frankfurter Zeitung segir að þýzk-
ir fangar í Englandi eigi svo ílt,
að af 700 föngum hafi 46 dáið úr
lungnabólgu og typhoid. Sannleik-
urinn er sá, að af öllum þeim sem
í haldi eru hafa 5 dáið.
London 14. nóv. kl. 12.10 e. h.
Serbar vinna sigur.
Opinber tilkynning frá Cettinje
hermir að mikill her Austurrikis-
manna hafi ráðist á Svartfellinga hjá
Klobuk og Timon en varnarliðið,
sem var miklu fámennara, rak óvin-
ina af höndum sér.
Æðisgengin orusta við Ypres.
London 13. nóv. kl. 11.47 e. h.
Hermálaráðuneytið gaf út eftirfar-
andi tilkynningu í kvöld:
Prússneska lifvarðarliðið gerði æð-
istrylt áhlaup II. nóv. á nokkurn
hluta fylkingarbrjóstsins. þar sem 1.
höfuðdeild vor var fyrir framan Ypres.
Herlið vort varð fyrir þeirri mestu
skothrið, sem það hefir enn komisti.
Skothriðin byrjaði í dögun og stóð i 3
kl.stundir. Þar næst gerðu 1. og 4.
stórfylki prússneska lifvarðarliðsins
áhlaup i þéttum hóp. Menn halda
að þetta úrvalalið hafi verið sent
þangað í því sérstaka skyni að brjót-
ast gegn um fylkingarnar, þar sem
fótgönguliðinu hafði eigi tekist að
gera það. Óvinirnir hertu áhlaupið
sem mest þeir máttu og sýndu
mikla hreysti. En vorir menn tóku
djarflega á móti þó að liðsmunur
væri mikill og ráku óvinina af hönd-
um sér svo að þeim tókst eigi að
ryðja sér braut til Ypres.
En vegna þess, hve miklu liði
var teflt fram af óvinanna hálfu,
rofnuðu fylkingar vorar á þrem stöð-
um, þó voru óvinirnir brotnir á bak
aftur og þeim varnað að vinna frek-
ara á. Þjóðv. biðu feikilegt manntjóti.
700 Þjóðverjar fundust dauðir á því
orustusvæði einu saman, sem var
fyrir aftan fremstu skotgryfjur vorar.
Manntjónið í liði þeirra hlýtur að
hafa verið gífurlegt. Vér höfum og
mist margt manna. Agæt framganga
vorra manna verður eigi nógsam-
lega lofuð.
London 14. nóv. 12.15 s‘ðd.
Opinber frönsk tilkynning send
út í gærkvöldi, segir:
Áhlaup Þjóðverja á svæðinu frá
sjó austur að Lys hafa ekki verið
eins áköf og fyr; sumstaðar á orustu-
svæðinu hefir verið sókn af vorri
hálfu. Vér höfum komist suður
fyrir Bixscoote.
Fyrir austan Ypres höfum vér
tekið Hamlet aftur, sem vér höfðum
mist. Fyrir sunnan Ypres höfum
vér hrundið áhlaupum prússneska
lífvarðarliðsins.
Annars staðar frá orustusvæðunum
hafa engar fregnir komið nema um
skothríðar.
Rússar sækja fram
f Galiciu.
í Galiciu hafa Rússar komist til
Dinainz, þrátt fyrir mótspyrnu aftur-
fylkingar Austurrikismanna, sem biðu
ógurlegt mannfall þegar Rússar tóku
Krosno.
í héruðunum við Sanok og Turka
halda Austurríkismenn undan.
Tyrkland dauðadaemt.
Frændi Tvrkjasoldáns, Sabah ed
Dina, hefir sent honum skeyti og
segir að Tyrkland sé dauða dæmt
með því að berjnst fyrir Þýzkaland
og biður hann að gera alt sem í
hans valdi stendur til þess að hætta
ófriðnum gegn bandamönnum. Með
þvf að halda áfram fremji Tyrkland
sjálfsmorð.
þjóðverjar um Bretaher.
Nú kveður við annan tón hjá
Þjóðverjum um brezka herinn. Þýzk-
ír hermenn biðja þjóðina i bréfum
sinum, að meta ekki oflítið hreysti
og hernaðarkunnáttu Breta. Þetta
er ekki að undra, þegar gáð er að
því hvern hlut hinn fámenni en
duglegi brezki her hefir átt um
eyðileggingu kærustu fyrirætlanir
Þjóðverja.
Sjúkdómar Austurrikls-
manna.
Samkvæmt áreiðanlegum fregnum
hafa Serbar tekið mikið af læknis-
lyfjabirgðum, svo að skortur er orð-
inn á þeim hjá Austurríkismönnum.
Hjá þeim er mikill skortur á for-
ingjum. Þeir, sem áður voru tnldir
ótækir í herinn, eru nú teknir.
Ástandið á þýzkalandi.
Times befir það eftir mikilsmetn-
um manni frá hlutlausu landi, sem
er gagnkunnugur á Þýzkalandi, að
það megi ekki dæma um hagi
Þýzkalands eftir því sem blöðin þar
segi. Betri menn á Þýzkalandi sjái
nú að Þýzkaland hefir fknað út i
hryggileg glæfrafyrirtæki. Herfor-
ingjiráðið hefir ekki náð nokkru þvi
takmarki, er það hafði sett sér. Þjóð-
verjar hafa verið stöðvaðir á öllum
svæðum og þeir hafa lítið annað
haft upp úr hinum áköfu árásum
sínum 100 fyrstu daga ófr'ðarins
en langan mannfallslista. Hann bætir
því við, að hatur manna á Þýzka-
landi til Englands stafi af því að
þeir séu sannfærðir um að ósigur-
inn sé óumflýj.mlegur.
Viðureignin i Frakklandi.
Þjóðverjar vinna ekkert á.
London 14. nóv. kl. 4.10 síðd.
Opinber frönsk tilkynning, gefin
út síðdegis í dag segir að Þjóðverj-
ar hafi enn á ný gert áhlaup i hér-
aðinu hjá Lasfigny og á svæðinu frá
Aisne til Berry au Bac, en þær árás-
ir hafa mishepnast. I Argonne er
orustan hafin á ný og er grimmari
en áður. Þjóðverjar reyndu að t3ka,
aftur vigið de París Og St. Hubert.
Stórskotalið vort gat hindrað fram-
sóknartilraunir óvinanna kringum
Verdun áður en fótgöngulið þeirra
komst af stað.
Hjá Bixcboote höfum vér komist
áfram um 1 kilometer austur á bóg-
inn.
Rússar vinna.
London 15. nóv. kl. n f. h.
Frá Aðalherstöðvum Rússa er til
kynt að Rússar hafa stöðugan fram-
gang í Austur-Prússlandi.
Áhlaupum Þjððverja hrundið.
London 15. nóv. kl. 11 f. h.
Opinber frönsk tilkynning, send
út í gærkveldi, segir: Bandamönn-
um hefir veitt betur í dag milli sjávar
og norður fyrir Lille.
Hjá Ypres.
London 15. nóv. kl. 5.10 síðd.
Frönsk opinber tilkynning gefin
út í kvöld segir að viðureignin i gær
hafi verið tiltölulega hæg. Hafi það
aðallega verið stórskotaliðið sem lét
til sin taka.
Arásir Þjóðverja norðan, austan og
sunnan við Ypres hafa verið brotnar
á bak aftur og hafa árásarmenn beð-
ið mikið manntjón.
Hinar áköfu árásir Þjóðverja nú
um nokkra daga hafa ekki borið
annan ávöxt en þann, að þeir hafa
tekið rústirnar af Dixmundeþorpi.
Tyrknesknum skipum sökt.
Opinber tilkynning frá Miklagarði
staðfestir það, að Tyrkir hafi mist
3 flutningaskip hlaðin herliði og
skotfærum, sem rússnesk herskip
söktu.
Herskipin á Tsingtauhöfn.
Er Tsingtau féll fundust eyðilögð
í höfninni eitt austurrískt beúiskip,
5 þýzkir fallbyssubátar, 1 tundur-
bátaspillir og eitt skip, sem notað
var til að leggja tundurdufl.
Framgangur Rússa.
London 16. nóv. kl. 1,3 siðd.
Frá aðalherstöðvum Rússa er til-
kynt: í Austur-Prússlandi hefir lið
vort haft góðan framgang hjá Stallu-
ponen. Þrátt fyrir örugt viðnám
óvinanna sóttum vér fram í héraðinu
hjá Niedenburg. Á vinstri bakka
Weichsel nær fylkingarbrjóstið frá
Plock til Wartafljótsins. Óvinirnir
halda undan til Kalisz-Wielum 12
mílur frá landamærum Slesiu.
Suðurfrá hafa óvinirnir reynt að
hefja sókn, en hefir mistekist það.
Vér höldum áfram að sækja til
Kraká. í Galiciu reyna Austurrikis-
menn að búa um sig til varnar hjá
ánni Dunatz og í héraðinu fyrir
vestan Zuabno, Tarnow, Wisloka og
hjá Jaslo.
Rússar halda til skarðanna í Karp-
atafjöllunum.
Serbar sigra.
Opinber tilkynning frá Serbum
segir að austuríkskum hersveitum
hafi verið stökt undan i Herzego-
wina og hafi þær beðið ákaflegt
manntjón.
Flugmenn eyða vígjum.
Flugmenn bandamanna hafa ger-
eytt tveimnr gömlum vígjum hjá
Lille, sem óvinirnir notuðu fyrir
forðabúr. Brezku hersveitirnar hafa
tekið marga fanga og býlsur þessa
seinustu daga.
þýzk blöð.
Þýzku blöðin fara mjög lofsam-
legum orðum um Roberts heidnn
lávarð og drengilega framkomu Breta
við fyrirliðana á Emden.
Frá Suður-Afriku.
1 Suður-Afríku hefir de Beer hers-
höfðingi tekið heila hersveit upp-
reistarmanna ásamt 70 hestum skamt
frá Schweizer Reneke. Vlisser hers-
höfðingi hefir tekið höndum ýmsa
uppreistarmenn á landamærum Kap-
nýlendunnar og Transwaal.
Meira lið og meira fé.
Parlamentið gaf í dag samþykki
sitt ul þess að auka herinn enn um
1 miljón manna, er þá reglulegi
herinn 2,186,400 manns, auk land-
varnarliðsins. Auk þess voru veittar
225 milj. sterlingspunda til herkostn-
aðar í viðbót við það sem áður var
veitt.
í Belgíu.
London 16. nóv. kl. 6,15 síðd.
Opinber frönsk tilkynning, send út
síðd. í dag hljóðar svo:
Vatni hefir á ný verið veitt á svæð-
ið suður frá Dixmude til staðar 5
kilometra frá Bixchoote.
Lið Þjóðverja gerði tilraunir til
þess að komast yfir skurðinn á þessu
svæði, en þeir voru reknir aftur yfir
um brýrnar. Þýzk hersveit var ger-
eydd fyrir sunnan Bixchoote. Á því
svæði hefir þjóðverjum verið hrundið
og vér höfum tekið nokkrar þýðing-
armiklar aðstöður. Vér höfum sótt
dálítið fram milli Lys og Oise.
Annatstaðar á orustusvæðinu hefir
lítil breyting orðið.
Jörð til sölu.
Breiðabólstaður í Reykholts-
dal fæst til kaups og ábúðar í næstu
fardögum. Upplýsingar sölunni við-
víkjandi gefa þeir síra Guðmundur
Helgason í Reykjavik og Sveinn
kaupm. Guðmundsson á Akranesi.
Ingólfur Gnðmnndsson.
Breiðabólstað.
Kransar. IMlædi. Likkistnr.
Lítið birgðir minar áður en þér kaup-
ið annarsstaðar.
Teppi lánuð ó k e y p i s í kirkjuna,
Eyv. ÁrnaKoo,
trésmiðaverksmiðja, Laufásveg 2
Klæðayerksmiðjan Alafoss
kembir, spinnur, tvinnar, þæfir, ló-
skér, pressar, litar, gagneimir (afdamp-
ar) og býr til falleg tau, Vinnulaun
lægri en hjá öðrum klæðaverksmið-
jum hér á landi.
Alafoss-afgreiðslan, Laugavegi 34.
Rvik. Simi 404.
Bogi A. J. Þorðarson.
Trúlofunarhringar
^ 3^ra ^ýi115^
lægsta verði hjá
Jóni Sigmundssyni,
gullsmið Laugavegi 8.
Bijðið nm
Eivesa Cacao
í blýumbúðum með safnaramerkjum
og áprentuðu söluverði frá
I & II. Salomonsen,
Köbenhavn.
:Dulrúnir
eftir
Hermann Jónasson
fást 'hjá flestum bóksölum hér
andi og í Söluturninum í Rvík.
Minningarritið
um Björn Jónsson, fyrra bindi með
mörgum myndum, er komið út og
fæst í bókaverzlunum. Verð: 1.50.
Hjartans þakklæti til allra þeirra, sem
á einn eða annan hátt hafa sýnt mér hlut-
tekningu við fráfail og jarðarför konu
minnar, Þuriðar sál. Guðmundsdóttur.
Kristinn Jónsson.
Sjúkrasamíag
Hetjkjavíkur
heldur fyrri aðalfund sinn í húsi K.
F. U. M. (kjallarasalnum), fimtudag-
inn 26. þ. m. kl. 9 síðd.
Yfirlit yfir hag samlagsins verður
lagt fram á fundinum, og rædd ýms
þau mál, er samlagið varða.
Ungu stúlkur og piltar! Tryggið
heilsu yðar með því að ganga i sam-
lagið sem allra fyrst!
Reykjavik 17. nóv. 1914.
J6n Páfssön
p. t. form.
SkiftafnDdur
í dánaibúi Guðmundar Magnússonar
úr Reykjavik, er druknaði haustið
1911 á Bcrgarfirði eystra, /erður
haldinn laugardag 21. þ. m. kl. 12
á hádegi í bæjarþingsstofunni hér.
Væntanlega lokið þá skiftum.
Bæjarfógetinn í Reykjavík,
14. nóv. 1914.
Jón Magnússon.
Ung, góð, jólbær kýr, til kaups.
Uppl. á Laugavegi 40 (niðri).
Grátt hesttryppi, á að giska tvæ
vett, marklaust og halt á vinstra
níturfæti er í óskilum hjá lögregl-
unni.
Réttur eígandi vitji þess innan 8
daga og borgi allan áfallinn kostnað.
Ella verður það selt.
Reykjavík, 17. nóvbr. 1914.
Bæjarfógetinn.
Jörðin Loftsstaðir vestri í Árnes-
sýslu fæst til kaups og ábúðar í far-
dögum 1915. Tún og engi nfgirt.
Jörðin liggur að sjó og fylgir henni
fjörubeit og reki. Semja ber við
Stefán Guðmundsson Vorsabæjarhjá-
leigu í Árnessýslu.
Jörð til kaups.
Til kaups og ábúðar i næstu far-
dögum fæst Kalmanstjörn í Hafna-
hreppi 22.2 h. ásamt þurrabúðum
Reykjanesi og Traðarhúsum. Á
jörðinni er íbúðarhús úr timbri 12
X16 al., mjög vandað. Fénaðnrhús
járnvarið, roeð steypugólfi, 9X33 al.
Þurkhús, salthús ásamt fleiri húsum.
Frá Kalmanstjörn er eitt hið
hægasta og bezta útræði á Suður-
landi, sauðfjárganga ágæt. Eggja-
og fuglatekja mikil. Viðarreki mik-
ill á 10 rasta svæði. Matjurtagarðar
um 1000 Q lm. ásamt steinsteypu-
blómgarði.
Um kaupin má semja við herra
undirritaðan eiganda nefndrar jarðar.
Kalmanstjörn 3. nóvember 1914.
Olafur Ketilsson.
Aggerbecks Irissápa
er óviHjBlnanlepta góB fyrir húðina. Cppáhalú
allra kvenna. Ðezta barnanápa. Bib.jið kaap"
menn y?)ar um bana.