Ísafold - 24.07.1915, Side 4

Ísafold - 24.07.1915, Side 4
ISAFOLD Erl. simfregnir. Opinber tilkynning frá brezku utanríkisstjórninni í London. London 2i. júlí. Skýrsla French. Sir lohn French sendir svolátand skýrslu 20. júlí: Eftir að hafa gert ágæta spreng- ingu í gærkvöldi, rétt vestan við Chateau Hooge, sem er austan við Ypres, náðu liðsveitir vorar hér um bil 150 metrum af skotgröíum óvin- anna. Þessar stöðvar hafa síðan verið styrktar. Tvær vélbyssur tók- um vér að herfangi og handtókum 15 menn, f>ar á meðal 2 liðsforingja. Tvær aðrar vélbyssur ónýttust við sprenginguna. Engin tíðindi annars staðar. London 20. jiilí. Útdráttur úr opinberum skýrslum Frakka 17'—19. júlf. Alla þessa daga hefir stórskotahríð- in í Arrashéraði haldið áfram. í Arras uiðu spjöll mikil þ. 19. júlí því þá var skotið 60 sprengikúlum á borgina, Áköf stórskotahríð var einnig i Belgíu 18. júlí, og 20. júli, i Aisne-dal og milli Meuse og Moselle. Enn fremur hefir verið skotið á Rheims og Soissons. I Argonne. 16. og 17. júlí var barist með handsprengjum og varpsprengjum í héraðinu umhverfis Marie Therese og að kveldi hins 16. hrundum vér tveim áhlaupum Þjóðverja vestan við Bournvilles. Sama kveldið gerðu Þjóðverjar áhlaup í Lothringen, en var tvístrað og sömuleiðis hjá Bar de Sapt í Vogesafjöllum, er þeir reyndu að ná aftur mistum stöðvum. Aðfaranótt 19. júli miðaði oss nokkuð áfram i framverðaskærum í eystri jaðri Parry-skógar i Lothring- en. Er það hjá Nanhof. Álla þessa daga var grimm orusta i Meushéraði. Eftir ákafa stórskota- hrið gerðu óvinirnir þ. 17. júlí áhlaup á stöðvar vorar frá Calonne skot gryfjum til Les Eparges-þorps. Þeim tókst að eins að ná fótfestu í ein- um stað i skotgröfum sem vér höfð um tekið 6. júlí en annarstaðar voru þeir hraktir með miklu manntjóni. Flokkur Þjóðverja sem komst inn i gil nokkurt og voru þeir þar annað- hvort drepnir eða handteknir. Morguninn eftir var snörp fót- gönguliðsorusta og með snöggu gagnáhlaupi tókst oss að ná aftur skotgröfum sem vér höfðum mist daginn áður. Siðan gerðu Þjóðverj- ar á oss nýtt áhlaup og létu fylgja gusur af logandi vökva, en þeim var hrundið. Vér unnum óvinun- um mikið manntjón og tókum menn höndum: 2 liðsfoiingja og rúmlega 200 liðsmenn úr þrem tvifylkjum. 20. júlí voru enn gerð áhlaup á oss i þessu héraði, en þeim var auðveld- lega hrundið. Flugmenn vorir hafa aftur verið hepnir: 19. júli elti ein af flugvélum vor- um þýzkan flugmann og skaut vél hans niður með vélbyssuskothrið, rétt yfir skotgryfjum Þjóðverja hjá Soissons. Stórskotalið vort ónýtti flugvél Þjóðverjans algerlega, Sama dag köstuðu fjögur loftför Nærsveitamenn eru vinsamlega beðnir að vitja Isafoltlar í afgreiðsluna, þeg?r þeir eru á ferð i bænum, einkum Mosfellssveitarmenn og aðrir, setn flytja mjólk til bæjarins daglega Afgreiðslan opin á hverjum virkum degi kl. 8 á morgnana til kl. 8 á kvöldin. vor 48 spreng:kúlum yfir járnbraut- armótin i Challenauge, sunnan við Vouziers. 20. júli vörpnðu 6 flugvélar sprengikúlum yfir Colmarjárnbraut- arstöð. Ollu þau þar tjóni miklu á aðalstöðinni og eins á farangurs- stöðinni. Engum sprengikúlum var kastað á borgina sjálfa. Flugmenn vorir komu aftur heilu og höldnu. Leiöréttingar. í opinberum frönskum leiðrétting- um við skýrslur Þjóðverja 14.—16. júli er þessa getið: Tilraunum Þjóðvetja til þess að rjúfa varnarlinu vora i Argonne hefir verið hamlað síðan 13. júlí. Þær 7000 hertekinna manna sem Þjóð- verjar tala um, er eigi tala þeirra manna sem vér höfum mist i Arg- onne, heldur allra þeirra manna, sem herteknir hafa verið í þessum mán- uði af voru liði. Á hinn bóginn hafa Þjóðverjar beðið jafnmikið tjón. V., London 21. júlí. Útdráttur *>• úr opinberum skýrslum Russa 18.—20. júli. Orustan milli Weichsel og vestri hluta fljótsins Bug varð ákaflega grimm 17 júli. Lið vort hrundi hreystilega af sér áhlaupum óvin anna og heldur stöðvunum. Hjá Lublin gerðu óvinirnir áhlaup um alt orustusvæðið, einkum i Wil- kolas-héraðinu. Á þvi svæði rákum vér af oss 10 áhlaup 18. júlí. Óvinirnir réðust á oss með miklu liði 18. júlí á vestri bakka Wilprz og tókst þeim að komast nokkuð áleiðis.í Izdebno-héraði hjá Krasn- ostaw. Lið vort beið allmikið mann- tjón en rak þó hraustlega af hönd- um sér áhlaupin fram á nótt. Á eystri bakka Wieprz biðu óvinirnir mikið tjón er þeir gerðu árás hjá Wolica. Lágu mannabúkar í hrönn- um fyrir framan skotgryfjur vorar. Milli Huczwa og Bug hrundum vér af oss mögnuðum áhlaupum og rákum óvinina úr Metelm-skóginum. Óvinirnir reyndu að fara austur yfir Bug en tókst það ekki. 20. júlí færðu óvinirnir sig nær hinum nýju stöðvum vorum, en fara þó gætilega. Þeir hafa fært dálitið út kvíarnar á hægri bakka Bug í Sokal-héraði. í Riga og Shavli- héruðunum halda óvinirnir áfram sókn bæði með riddaraliði og fót- gönguliði. Fyrir austan Popeliany handtókum vér joo manns og 7 foringja og tókum 7 vélbyssur að herfangi. Vér hrundum af oss áhlaup- um .fyrir norðan Shavli. Fyrir vestan Niemen tókst óvinunum að ná nokkrum skotgröfum, sem vér höfðum tekið daginn áður. Framsókn Þjóðverja til Przasnysz neýddi oss til að draga sem mest lið saman nær Narew og breyta til um fylkingaskipun vestan við Weich- sel; höfum vér gert það óhindraðir. Umsátursfallbyssur frá Novo Georgiewsk-kastalanum skutu á fram- fylkingar Þjóðverja 18. júlí og bar sú skothrlð góðan árangur. Hjá Dniestr unnum vér ágætan sigur á óvinunum fyrir handan ána. Þar hertókum vér 2joo Austur- rfkismenn og 12 vélbyssur. Frá Hellusundi. London, 22. júli. Sir Ian Hamilton skýrir frá því, að á nyrðri vigvellinum hafi stiga- manna flokkur ráðist á fremstu skotgröf vora aðfaranótt hins 18. júlí. Allir óvinirnir flýðu nema einn, sem var drepinn. 19. júli komumst við á snoðir um það hvar Tyrkir höfðu fall- byssu til þess að skjóta á flugmenn vora. Ein af fallbyssum vorum beindi þá skotum sinum þangað og hitti hana i annað skifti. Var hún ger- ónýtt og sprengd i loft upp í 50 skotum. Að sunnanverðu gerðu Tyrkir áhlaup 18. júlí á nokkrar skotgrafir, sem Frakkar höfðu tekið, en voru þegar hraktir aftur. Bretar sækja alt- af á, á sínu svæði, og styrkja stöðv- ar sinar. Sums staðar auka þeir við skotgrafir þær sem þeir unnu 12. og 13. júli. í gær (21. júli) tókum við dálítið vigi með ákaflega litlu manntjóni og áhlaup gerðum vér á samgöngu- gröf Tyrkja og tókst vel. Vélbyssu sem Tyrkir höfðu gegnt vinstra herarmi vorum, ónýtti franska stórskotaliðið. A báðum stöðum hefir stórskotalið óvinanna verið ötuliega að verki. Erl. slmfregnir frá fréttarit. ísafoldar og Morgunbl. Khöfn, 21. júlí. ítalir hafa unnið stórsigur hjá Isonso Þjóðverjar hafa tekið Windau. Það tilkynnist hérmeð að jarðarför Þorbjargar sál. Símonardóttir frá Háfi i Ásahreppi fer fram mánudag- inn 26. þ. m. og hefst með húskveðju kl. II f. m. á heimili hinnar látnu, Njálsgötu 13 B. Börn og systkini. 50 hestar af töðu óskast keyptir. Tilboð um lægsta verð ósk- ast fyrir 30. þ. m., merkt 101, send- ist afgreiðslu ísafoldar. Rauður hestur tvístjörnóttur, marklaus, 6 vetra gamall, klárgengur, hefir tapast frá Árbæ í Ölfusi. Finnarrdi er vinsamlega beðinn að koma hesti þessum að Tryggvaskála eða Árbæ. Hellerup Husmoderskole BengtasyeJ 15 ved Kbhvn. Skole og Hjem for unge Piger. Vinterkursus beg. 4. Novbr. Program sendes. Petra Laugesen. Vindilmunnstykki úr rafi hefir tapast einhversstaðar á leiðinni frá Þingvöllum um Geitháls að Kol- viðarhóli. Ritstj. vísar á eiganda. Reynið Boxcalf-svertuna ,Sun6 og þér brúkið ekki aðra skósvertu úr því. Fæst hvarvetna á íslandi hjá kaup mönnum. Buchs litarverksmiðja Kaupmannahöfn. Skóverzlun StefánsGunnarssonar Austurstræti 3. Nýkomið mikið úrval af Kvenskóm, Barnaskóm og Stígvélum. Einnig Ilskór (Sandalar), Karlm. strigaskór með leðri í kring og Verkmannastígvél. Húskennari Stúlka óskast til að kenna á komanda vetri 5 börnum, 7—13 ára. Hún verður að geta kent byrjendum pianóspil. Tilboð óskast send undirrituðum sem fyrst og þar í framtekið kaup fyrir veturinn eða mánaðarkaup. R. Johansen kaupmaður á Reyðarfirði. TJímanak 1915 ftjrir ísíenzka fiskimetm fsesf fjjá bóksöíum. Bændur! Biðjið kaupmann yðar um hið ágæta Mc. Dougalls baðlyf fri A. Gudmundsson, 2 Commercial-Street Lækjargötu 4 f-eúh. Reykjavík. (Talsimi 282, Pósthólf 132). Sá sem einu sinni hefir notað þetta fjárbað, vill ekki annað upp frá því. Unglingaskólinn á Sauðárkróki. Skólaárið frá 1. nóv. til 1. mai. Kenslustundir á dag 4—5. Kenslugjald fyrir reglulega nemendur 15 kr. yfir skólaárið. Sem óreglulegir nemendur geta menn notið kenslu í einstökum greinum, fleiri eða færri. — Skólinn tekur sem nemendur bæði pilta og stúlkur. —■ Umsækjendur snúi sér til undirritaðs er gefur nánari upplýsingar um skólann. Sauðárkróki 1. júlí 1915. )ön Þ. Björnsson. Wasburn, Crosby Co., Minneapolis, Píllsbury Flour Mills Company, Minn. United Flour Mills Company, New-York ásamt’ennþáiýmsum stærri ameríkönskum£milnum,£hefir A. OBENHAUPT, Reykjavií umboðssölu fyrir. Enginn kaupmaður eða kaupfélög ættu að ákveða sig með haúst-innkaup sin á amerikönskum mjölvörum áður en að hafa spurst fyrir hjá mér um verð og gæði. Verðið er hrein netto -|- fragt og vátryggingu, annar kostnaður svo sem bankakostnaður eða ómakslaun eru ekki reiknuð.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.