Ísafold - 25.09.1915, Page 2

Ísafold - 25.09.1915, Page 2
2 IS A FO L D það skapast, eigi einungis af því, að landið yrði betra, heldur, og einkum, af því að þá hefði menn eitthvað lagt í sölurnar fyrir það. Þá er að athuga, hverjir séu annmarkar á að koma þegnskyldu- vinnunni í framkvæmd og hverja erfiðleika hún bakar landsmönn- um. Það er vitaskuld, að það kostar landssjóð allmikið fé að undirbúa verkstjóra, en það mega lika heita einu erfiðleikarnir, sem teljandi eru fyrir landssjóðinn. Það mundi og fljótlega borga sig í haganlegri verkstjórn. Fyrir landslýðinn er eigi önn- ur óþægindi að telja en vinnutap um lengri eða skemri tíma, alt eftir því, hve langur eða stuttur þegnskyldutíminn væri. En þótt menn hugsuðu sér heilt ár, og lengri tími hefir engum enn kom- ið til hugar, þá mundi það geta skoðast sem fé, er lagt væri á vöxtu. Mennirnir yrði sem sé miklu nýtari menn sér sjálfum og öðrum og þeir gæti verið að taka út á þessa eins árs vinnu alla sína æfi. í sárfáum tilfellum mundi þetta verða neinum tilfinnanlegt, og naumast munu þess dæmi í útlöndum, að nokkur fjölskylda hafi fyrir þá sök farið á vonar- völ og er þó hervarnarskyldan þar víðast lengri tími en eitt ár, sum8taðar jafnvel þrjú ár. Að þessu athuguðu leyfum við okkur að bera fram tillögu til þingsályktunar um atkvæða- greiðslu í þegnskyldumálinu, á þingskj. 518. Látinn Vestnr-íslendingur. Dáinn er 5. júli í sumar Krist- ján Jónsson frá Straumfirði. Hann var fæddur 25. apríl 1871 í Knarrarnesi á Mýrum. Olst uppi Straumfirði, fór vestur um haf fyrir 20 árum og dvaldist þar á ýmsum stöðum. Síðast átti hann heima í Red Deer í Alberta-fylki. Dauðamein hans var Ptomaine Poisoning. Var veikur að eins sex daga. Jarðarförin fór fram 6. júlí frá Methodista-kirkjunni í Red Deer, undir umsjón Foresters- félagsins, sem hann var félagi í, að viðstöddu mörgu fólki. Hinn látni var þektur og hinn vinsælasti, jafnt meðal Islendinga sem þar lendra manna. Hefir þar ekkja, einn sonur og sex dætur að sjá á bak og syrgja ástríkan eiginmann og elskaban föður. (Eftir Lögbergi). Embættaveitingar. Annað yfirdómaraembættið er veitt E^erti Briem skrifstofustjóra, frá i október. Aftur er skrifstofustjóraembættið^ sem Eggert Briem gegndi, veitt Guðmundi Sveinbj'órnsson aðstoðarm., frá sama degi. Loks er Bj'órn ÞórSarson cand. jur. skipaður aðstoðarmaður á r. skrif- stofu í stað G. Svbj. í laga-prófessorsembættið er settur Olafur Lárusson cand. juris frá Sel- árdal. Settur læknir í Miðfjarðarhéraði er Ólajur Gunnarsson cand. med. & chir. Húsaleigukvittanabækur fást eins og að undanförnu í Bókverzlun Isafoldar Verð 0.30 aurar 50 blöð. Erl. simfregnir. Opinber tilkynning frá brezku utanríkisstjórninni í London. flugbelg, brutum stórar brýr, eydd- um bátabrú og annari stöplabrú, flugvélafallbyssu og skutum niður eitt loftfar. Vér skutum í rústir raf- magnsverksmiðju í Turcheim og ger- eyddum fótgönguliðssveit og járn- brautarlest í Lothringen, eyddum járnbrautarstöð í Thiancourt og 4 skotfærageymslum í Vogesafjöilum. Annarsstaðar varð aukinn árangur af þessari óvenjumiklu skothríð. Milli Somme og Aisne tókum vér skotgröf og guldum fallbyssuskot- hríð Þjóðverja i sömu mynt. 19. september gerðu Þjóðverjar stórkostlega sprengingu vestan við Peronne og hóf fótgöngulið þeirra áhlaup rétt á eftir, en því var hrundið. Hjá skurðinum milli Aisne og Marne gerðu Þjóðverjar þrjú áhlaup hvert á eftir öðru á brúna hjá Sa- pigneul, en unnu ekkert á. 19. september náðum vér njósnarstöðv- um þeirra þar fyrir austan. í Vogesafjöllum skutu óvinirnir á Hilsenfurst og 415. hæðina, sem er sunnan við Steinback. Skýrsla French. London 22. sept. Sir fohn French skýrir frá því að óvinirnir hafi aukið stórskotahrið sína á stöðvar Breta síðustu tvo dag- ana. Guldu Bretar þeim það ræki- lega i sömu mynt. 20. september kviknaði i Hout- hulstskógi af fallbyssuskotum Breta og varð þar stór sprenging. 19. september urðu níu orustur i lofti. Tvö f]andmannaloftför voru hrakin til jarðar á stöðvum Þjóð- verja, eldur kom upp i öðru þeirra en vélin í hinu stóð í björlu báli. Gullfoss-fréttin. Einstaka menn hafa viljað liggja þeim blöðnm á hálsi er opinberuðu fyrstu fréttina um Gull- foss á mánudaginn. Þetta er harla mikill misskilningur. Það var miklu fremur s k y 1 d a blað- anna að sk/ra greinilega frá hverskyns fróttin væri, þar sem hún var hvort sem er kominn út meðal manna og hættan þá stórmikil, að fengi margýktan og rangan blæ i meðferðinni. Minnisvarði Kristjáns konnngs 9. verður afhjúpaður á morgun á afmæli núverandi konungs vors. Einar Jóns- son myndhöggvari hefir gert myndina. Stendur konungur með útrótta hönd og á að tákna það augnablik, er hann gefur íslendingum stjórnarskrá. Myndastyttan stendur á norðurhelm- ingi stjórnarráðsblettsins og er hlið- stæð við minnisvarða Jóns Signrðssonar. Síra Kristján Eldjárn var einn farþega á Esbjerg norður í fyrradag, eftir þriggja vikna kynnisdvöl hér í bænum. Ennfremur fóru með Esbjerg Jakob Havsteen etazráð og frú hans, sömul. frú Yalgerður Nikulásson. Til Noregs fór botnvörpungurinn Ingólfur Arnarson / gær. Með hon- um tóku sór fari: Eggert Briem frá Viðey, Gunnar Thorsteinsson kaupm., Enberg verzlunarm., frú Lára Páls- dóttir, jungfrú María Þorvarðsdóttir og Helgi Jónsson verzlunarm. Hjúskapui'. Magnús Tómasson verzl- unarmaður og jungfrú Soffía Siemsen. Gift í dag. Þingmennirnir Björn Hallsson, Björn Þorláksson, Jón frá Hvanná og Þórarinn Benediktsson fóru til Austur- lands með Ceres í gær. En Karl al- þm. Einarsson fór til Vestmannaeyja með Sterling í fyrrakvöld. Messað á morgun í dómkirkjunni1 kl. 12 síra Bjarui Jóusson, kl. 5 síra Jóh. Þorkelsson. Messað á morgun í Fríkirkjunni í Hafnatfirði kl. 12 síra Ól. Ól., og í Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 5 síðd. síra Ól. Ól. Jarðarför Kristjáns Þorgrímssonar konsúls fór fram í dag að viðstöddu afarmiklu fjölmenni. Húskveðju flutti síra Jóhann Þorkelsson, en í kirkjunni talaði síra Bjarni Jónsson. Kistan var borin frá lieimili hins látna að kirkjunni af Leikfólagsmönn- um, en inn í kirkjuna báru kistuna konsúlar Belga, Breta, Frakka, Norð- manna, Rússa og Þjóðverja og út úr kirkjunni bæjarfulltrúar. Kirkjan var tjölduð svörtu og jarðarförin öll hin kátíðlegasta. Gullfoss kom til Vestmanneyja í nótt. Kemur hingað í fyrramálið. Athugasemdir viS vegamál Vesíur Húnvetninga. í 45. tölubl. ísafoldar hefir hr.- sýslunefndarmaður Gunnar Kristó- fersson í Valdarási skrifað alllangt mál um vegamál okkar Vestur-Hún- vetninga í sambandi við erindi lands- verkfræðings Jóns Þorlákssonar og brúarstæði á Víðidalsá. En með því sumt í þessu skrifi hr. G. Kr. er villandi og sumt beinlínis rangfært,. þá vil eg gera við það fáeinar at- hugasemdir. Um innganginn í grein hans er ekkert að segja, fram að því er til þess kemur, hve mikið hafi verið' lagt til vegarins fyrir Múlann úr hverjum einstökum hreppi. Eg hafði engin afskifti af því máli, er þvi ekki kunnugur krónutalinu og tek því umsögn hr. G. Kr. trú- anlega með það, en þá er að lita á hlutföllin til þess að sjá hvort Þor- kelshólshreppur hafi sýnt þar rausn öðrum fremur. • Hr. G. Kr. segir sjálfur að 18—20 bæir úr Þorkelshólshreppi noti Múla- veginn og telur þaðan komið í sam- skotum 1500 kr. í Kirkjuhvammshreppi geta alls ekki nema 6 bæir notað Múlaveg- inn sem kaupstaðarveg og þaðan telur hann komið 6—700 kr. Ekki er sá útreikningur Þorkelshólshreppi til inntekta. Úr Þve.árhreppi hygg eg hafi komið minna fyrir afskifti Víðidælinga af veginum. Þeir vildu toga hann framá við, Þverárhrepp- ingar aftur út á við og kendi víst um tíma allmikillar hreppapólitíkur hjá hvorum fyrir sig, en sigurinn í þ?irri sennu varð að lokum Víðidæl- inga megin, vegna þess að sýslu- nefndarmaður Þverárhrepps andaðist vorið 1914. Tók þá hr. G. Kr. að sér yfir- umsjón með vegalagningunni fyrir hönd sýslunefndarinnar, verkstjóri var Halldór Pálsson, og brá þá svó við, að verkstjórinn beygði veginn svo fram á við, að nú liggur aust- urpartur hans í áttina til heiða í stað þess að stefna til sveita, er eg ekki í vafa um að þetta vegareiptog milli hreppanna frá því fyrsta hefir dreg- ið mjög úr tillögum úr Þverárhreppi- Rétt á eftir að hr. G. Kr. befir talað um, að 18—20 bæir úr Víði- dal noti Múlaveginn, segir hann: »Nái þær, 0 tillögur verkfræðings- ins, fram að ganga, er þéttbygðasta hluta hreppsins gert ókleift að sækja til Hvammstanga og þeim heimilun- um, sem ríflegastan skerf hafa lagt til Múlavegarins, gert ómögulegt að Ný síldveiðistöð. Vafalaust hefir grein Magnúsar sýslumanns Torfasonar í síðasta blaði um nýja og ágæta síldveiðistöð að Höfn i Hornvík — vakið verulega athygli. Aldrei hefir sildin hér við iand orðið eins mikil auðsuppspretta lands og þjóðar, eins og þetta ár. Færi því svfc, sem vonir má gera sér um eftir grein M. T., að þar nyrðra við Horn mundi geta risið upp nýr Siglufjörður, jafngóður eða betri en sá gamli, þá er þar um að tefla svo mikla upptökugróða-von í framtiðinni, að mikil lyftistöng mætti verða undir framtíðarbúskap þjóðarinnar. Oft er oss borið tómlæti á brýn, íslendingum, og því miður um of með sannindum. Menn vilja altof oft festa sýn við það eitt sem er, byggja á því einu, telja það eitt traust, en hafa ými- gust á nýjungum, vilja gera sig að svartsýnismönnum i þvi efni, gæt- andi ekki að þvi, að öll framför og framsókn i raun réttri byggist á framtíðartrú hins bjartsýna manns. Hér hefir nú verið bent á nýja og væntanlega mikla viðbótar-auðs- uppsprettu hér í landi. Hvort réttar reynist skoðanir gagn- kunnugs manns i þessu efni — því verður tíminn og reynslan að skera úr. En annað er víst og það er það, að vér höfum eigi efni á þvi, að láta þá góðu framtiðarvon farast ófyr- irsynju i órökstuddu tómlæti og trú- leysi. Það mun nú vera svo, að-tii þess að ganga úr skugga um nothæfi þessarar fyrirhuguðu sildveiðistöðvar þarf fyrst og fremst að rannsaka höfnina í Hornvík og gera af henni teikning. Kemur þar til landsstjórn- arinnar kasta að reyna að sjá fyrir þvi, að það verði gert á ábyggileg- an hátt. Ennfremur mun þurfa að rannsaka símaleiðir þangað. Þykir oss líklegt, að landsímastjórnin bregð- ist vel við um það efni, þar sem svo mikið getur verið í húfi um framtíðar-framleiðslu-möguleika lands- ins, eins og vorir mun mega gera sér um þenna stað. Erl. sfmfregnir frá fréttarit. ísafoldar og Morgunbl. Brezkur katbátur sökti þýzku beitiskipi meö tundurskeyti í Kjöge-flóa. Þjóðverjar hafa tekið Vilna. Þjóðverjar hafa roíið herlínu Itússa í Kúrlandi. Japansmenn hafa komið á fót 1200 hergagnaverk- smiðjum. Prófessor Anton Thom- sen dauður. fAnton Thomsen var ungur mað- ur, nýorðinn prófessor í heimspeki eftir Höffding). London, 21. sept. Útdráttur úr opinberum skýrslum Rússa 17.—20. sept. Á svæðinu milli Riga og Dwinsk urðu aðeins smáskærur norðvestan við Mitau. Rússum tókst að sprengja brú, sem Þjóðverjar ætluðu að Ieggja yfir Aa. Nær Dwinsk varð viður- eignin skarpari. 17. september hrundum vér áhlaupi Þjóðverja á Illusk, sem er norðvestur af Dwinsk, og unnum þeim mikið manntjón og handtókum hundrað manns. Vestar hrundum vér einnig af oss áhlaupum. í öðru áhlaupi náðu Þjóðverjar bóndabænum Steidern og ónýttu skotgrafir vorar með stórskotahríð. En vér náðum þeim stöðvum dag- inn eftir og tókum nokkurt herfang i skotfærum. Sunnan við Dwinsk hafa óvinirn- tekið þorpin Vidzy og Dowgelisky og 17. sept. sóttu hersveitir þeirra fram og tóku Vileika eftir að sæg- ur af riddaraliði Þjóðverja hafði bar- ist við oss og reynt að komast á hlið við oss að sunnan og austan. í öllum þessum orustum sýndu her- sveitir vorar óbifanlega hreysti í hin- um mestu mannraunum. Þjóðverjar sækja ákafast fram í áttina til Vilna, sunnan og austan við Meiszagola. Suðaustur af Orany eru þorpin tekin til skiftis og óvinirnir halda áfram grimmilegri stórskotahríð hjá Dombrovo. Þjóðverjar hafa farið yfir ána Scara og eru komnir rétt að Pinsk, en stöðvar vorar eru alveg óbreyttar fyrir þvi. Að sunnanverðu komumst vér til Derazno og hröktum óvinina til næsta þorps. Tókum vér þar 4 vélbyssur að herfangi og handtókum 2000 manns. Annarstaðar handtók- um vér f gagnáhlaupum 12 liðsfor- S4° hermenn, og 14 liðsfor- ingja og 800 heimenn. í héraðinu umhverfis Rowno tvístruðum vér miklu liði óvinanna og handtókuro hershöfðingja 8. tví- fylkis og rúmlega 800 hermenn. Rússar hafa gert harða hríð um- hverfis Luck og handtekið þar 5 liðsforingja, 7000 menn og mikið af herfangi, þar á meðal 10 her- eldaskála. Ákafar árásir, þessu líkar, hafa hnekt áhlaupum óvinanna og þess vegna hafa þeir fengið sér ógrynni aukaliðs. London, 21. sept. Útdráttur úr opinherum skýfslum Frakka 17,—20. sept Brezkur floti hefir skotið á varnar- stöðvar Þjóðverja á Belgíuströndum og veitti stórskotalið vort honuro vígsgengi á landi. Látlaus og grimmileg skothríð hefir staðið alla vikuna á endilöngu orustusvæðinu. Sérstaklega var hún áköf í Artois-héraði. Er nú mjög farið að draga úr skothríð Þjóðverja þar, og árangur skota vorra á vél- byssustöðvar Þjóðverja og sprengju- varpara er sýnilegur. I Champagne-héraði unnum vér óvinunum mikið tjón og ónýttum skjóigarða þeirra. Hjá Meuse var stórskotahríð vor einna mest hjá St. Mihiel. Þessa dagana skutum vér þar niður njósnar-

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.