Ísafold - 15.04.1916, Síða 3
ISAFOLD
göfga mannssálina og vernda hana
frá sora mannlífsins.*)
Samrýmd formsfegurð og efnis-
meðferð skapar ritlist. Samræmi
náttúru og mannlifslíkinga er að
skapa mannssálir og sálarlíf, og það-
an sjáist áhrif náttúrunnar og sam-
band sálarinnar við hið ytra líf.
Er það tilgangurinn með því, sem
hér fer á eftir, að sýna hversu verk-
um J. Tr. er ábótavant í þessu, og
þó sumstaðar sé hart að orði kveðið,
þá er það aðeins þar sem brotin
gegn listinni eru átakanlegust.
Frh.
Gullfoss fór héðan síðastl. miðviku-
dag áleiðis til Austfjarða og útlanda,
fullhlaðinn vörum. Meðal farþega til
útlanda: Ólafur Björnsson ritstjóri,
Th. Thorsteinsson kaupm., Capt. Carl
Trolle, Bick. Thors framkvæmdastj.,
Guðm. Thorsteinsson listmálari, Ásgr.
Eyþórsson kaupm. o. fl. Til Aust-
fjarða fóru: Jónas Andrósson kaupm.
á Norðfirði, Björn Sveinsson kaupm.,
Sigfús Blöndahl kaupm., Halldór Jóns-
son umboðsm. á Seyðisfirði o. fl.
Flora kom hingað í fyrradag snemma.
Hafði verið tekin miðja vegu milli
Færejja og Vestmannaeyja af brezku
herskipi og látin halda til Stornoway
til rannsóknar á póstflutningi. Úr
þeirri rannsókn varð þó ekkert og
skipinu leyft að fara ferða sinna. —
Hrepti versta veður á leiðinni hingað
til lands og misti útbyrðis eitthvað af
síldartunnum, tómum þó. Flora fer í
dag vestur og norður um land með
mikinn fjölda farþega.
Samábyrgðin. Umboðsmenn fyrir
Samábyrgð íslands á fiskiskipum eru:
Trolle & Kohde, Bredgade 6j Khöfn,
fyrir Danmörku, Noreg og Svíþjóð. Á
Dýrafirði hefir Ól. Proppó kaupmaður
fengið umboð.
Landssjóðskolin kosta kr. 9.60 skp.
Matth. Einarsson læknir kvað vera
væntanlegur með Botníu í næstu viku.
Hjúskapnr. 12. apríl voru gefin
saman þau Tngveldur A. Sigmunds-
dóttir kenslukona frá Sandi og Jón
Pótursson frá Inggjaldshóli.
Hjáipræðisherinn. Búið er nú að
rífa gamla »Kastalann« til grunna er
Hjálpræðisherinn hefir haft bækistöð
sína í síðan hann kom til landsins.
Ætlar herinn að reisa þar fallegt stein-
steypuhús, tvílyft með risi, sem mikil
bæjarprýði er að, og á það að verða
fullgert í október næstkomandi.
Dr. Alexander Jóhannesson flytur
fyrirlestur í Bárubúð á morgun kl. 5
síðd um: Fegurð kvenna íný-
íslenzkum skáldskap.
Fyrirlestur þessi á að birtast í apríl
hefti bókmentatímaritsins Eddu, er
gefið er út i Kristjaniu.
Kinnarhvolssystur hefir Leikfólag
Bvíkur nú sýnt fyrir troðfullu húsi 5
sinnum. Leikið verður í 6. sinni í
kvöld.
Messað í dómkirkjunni á morgun
kl. 12 síra Bj. J., kl. 5 sfra Jóh. Þ.
Messað á morgun í fríkirkjunni í
Hafnarfirði kl. 12 (S1'ra Ók Ól.) og í
fríkirkjunni í Beykjavík kl. 5 (síra
Ól. Ól.).
Ásgrímur málari opnar á morgun
málverkasýningu í Vinaminni. Mun
hennar getið nánar áður en langt um
líður. En eigi þætti oss það neitt
ótrúlegt þótt menn fýsti að sjá það
allra nýjasta eftir Ásgrím, slíkur lista-
maður sem hann er — og það sem
bezt er, alíslenzkur listamaður, sem
markar stefnu í list sinni eins og beztu
listamenn hvers lands gera.
*) Sbr. ræðu haldna á Breiðu-
mýri 19. júní 1915.
Johannes Mayrhofer
er þýzkur rithöfundur, sem hefir
sérstaklega kynt sér mentalíf Norð-
urlanda, og þar á meðal er kunnur
ýmsum Islendingum, sem við rit-
störf eða skáldskap fást. Hann
leggur flest fagurfræðilegt á gjörfa
hönd, hann er fyrirtaks ljóðskáld,
og skrifar bæði í bundnu og
óbundnu máli. Hann kom hingað
til íslands með einu af síðustu
þýzku ferðamannaskipunnm, og
heimsótti mjög marga menn hér í
bæ, sem kunnir eru afritum sínum.
Eitt af ritum hans er um Hinrik
Ibsen. Mayrhofer fær ótrúlega mik-
ið út úr bréfum Ibsens og ljóðmæl-,
um hans. Aðalinnihald ritsins er um
leikrit Ibsens, sem voru skáldsins
aðal-æfistarf. Sérstakur kapítuli er
um hvert leikritið fyrir sig. Dóm-
arnir eru bæði settir fram beinlínis
og óbeinlínis. . Síðari leikrit Ibsens
eru Mayrhofer siður kær, en hin
fyrti. Þar kallar hann Ibsen spá-
mann realistisku stefnunnar. Hon-
um er sú stefna ekki eins hugleikin,
og hin fyrri stefna Ibsens. Ibsen
endar rómönsku stefnuna með
íKonungsefnunumc, og Mayrhofer
álítur að, ef Ibsen hefði haldið henni
áfram, þá hefði hann orðið eitt af
mestu skáldum heimsins. En hann
tekur aðra stefnu, og svo sýnist
oftlega, segir Mayrhofer, sem hann
hafi, þrátt fyrir alt sitt gengi á sinni
síðari braut, langa lengi borið æsku-
ástina til rómönsku stefnunnar í
brjósti sér, og séð eftir henni með
hrygð og þrá.
Mayrhofer er ungur maður enn
þá. Við væntum alls hins bezta frá
honum, og vonum að þar á meðal
verði eitthvað, sem geri landi þessu,
og einhverjum af mönnum þess
sóma.
Risaframfarir
á sviði landbúnaðarins.
I danska blaðinu »Verden og Vi«
5. árg. nr. 47, 19. nóvember 1915,
er eftirfarandi grein um »Aktiebola-
get Separatorc.
Fyrir rúmri hálfri öld síðan var
mjólkin á sveitaheimilum vorum sett
i ker, til þess að rjóminn fengi að
setjast. Síðan var rjóminn fleyttur
af mjólkinni með sleif eða skeið.
En hugvitssamur maður komst
eitt sinn að þeirri niðurstöðu, er
hann var að fleyta rjómann af mjók-
inni, — en það er mjög erfið vinna
—, að rjóminn er ekkert annað en
fituefni, sem sökum þess hve létt
það er, flýtur ofan á undanrennunni.
Hann fór þá að hugsa um, hveröig
auðveldara væri að skilja rjómann
frá mjólkinni en með þolinmæði og
rjómasleif. Auðvitað með miðflótta-
aflinu.
Kinverjarnir, sem fyr á öldutn að
minsta kosti voru mun hugvitssam-
ari en við, notuðu fyrir þúsundum
ára nokkurskonar skilvindu til að
skilja safa og olíu úr aldinum og
jurtatrefjum. »Skilvindan« þeirra var
að visu ekki annað en pottur í
bandi. En hugsunin (Principet) var
nákvæmlega hið sama, eins og í
hinni ágætu vél sem ber nafn Dr.
Gustaf de Laval’s og eru nú yfir
i3/* millión slíkra véla að vinna víðs-
vegar í heiminum.
Útbú frá »Aktiebolaget Separator«
og systurflrmu Stockholmsverksmiðj-
unnar hafa verið stofnuð í New-
York, og þar er allri notaþörf Ame-
ríku fullnægt í eigin verksmiðju.
Einnig í Berlín, París, Wien, Buda-
pest, Milano og Kaupmannahöfn.
Aðalverksmiðja Alfa-Laval skilvind-
anna er þó í Stockhólmi, og ná
byggingar firmans þar yfir meira en
30000 fermetra svæði.
Þar vinna daglega rúmlega iooo
manns undir yfirstjórn 60 verkfræð-
inga Og skrifstofumanna.
í aflstöð verksmiðjunnar eru 4
stórir gufukatlar með vélkyndingu.
Með »Laval’s« turbínu. og nokkrum
smærri aflvélum eru framleidd 1300
hestöfl. Um 1000 nýtizku vélar
starfa þar daglega og framleiða þús-
undir af skilvindum. Ollu er komið
fyrir i vélasölum verksmiðjunnar á
amedska vísu.
Alls eru framleiddar 120000 Alfa-
skilvindur árlega, og framleiðir Stock-
hólmsverksmiðjan helming þeirra.
Er vér höfðum séð hina geypi-
stóru vinnusali, samsetningarstofur
og málarsali verksmiðjunnar, sýndu
eigendur hennar oss smjörbú sitt,
sem þeir hafa fulla ástæðu til að
vera ánægðir með. Engin skilvinda
fer út úr verksmiðjunni, fyr en hún
hefir sannað það við reynsluna, að
hún getur skilið mjólkina, og rjóm-
inn, sem skilinn er í verksmiðjunni
á þennan hátt, er síðan gerður að
smjcri, sem starfmenn »Separator’s«
fá á þann hátt nokkru ódýrara en i
búðum.
Verksmiðjan hugsar alveg einstak-
lega vel um heilsufar og velferð
starfsmanna sinna. Hún hefir stofnað
marga sjóði til eflingar velferð starfs-
mannanna, alls um 1300000 króna.
Cr stærsta eftirlaunasjóðnum fær hver
starfsmaður 800 til 1200 krónur eftir-
laun árlega, frá því hann er 60 ára,
eða ef hann verður óvinnufær sök-
um lasleika. Ekkjur manna, sem
dáið hafa í þjónustu verksmiðjunnar,
fá alt að 300 króna eftirlaun á
ári. Auk þess eru sérstakir sjóðir
fyrir slys og sjúkdóma, svo og einn
mjög stór sjóður »til styrktar verka-
mönnum til að byggja sér sumarbú-
staði í sveit«. Verkamenn fá dag-
lega ókeypis kaffi eða nýmjólk, og
gerir verksmiðjan þetta í þeim til-
gangi að venja verkaménn frá áfengis-
nautn.
Á óðali Separator’s »Hamra« er
nýtlzku heilsuhæli, og i verksmiðj-
unum sjálfum er hugsað svo vel um
verkamenn, að slíkt á sér ekki dæmi
í Danmörku.
Þar er stórt gufueldhús og borð*
salur, Jar sem starfsmennimir geta
fengið tvær ágætar máltíðir (morgun-
verð og kveldverð) fyrir 75 aura á
dag.
Verksmiðjan launar sérstakan lækn-
ir og tannlæknir; hún hefir stórt
baðhús með sérstakri deild fyrir raf-
böð og nuddingar.
Afleiðingin af þessari umönnun
við þjóna sína, ásamt góðum hækk-
andi launum, er sú, að verksmiðjan
ætið hefir mjög duglegt verkafólk,
og hafa sumir vertð yfir 30 ár í
þjóuustu hennar.
Hlutafé Separator’s er 28 milliónir
króna. Með stöðugri vinnu, með
þátttöku í öllam mögulegum sýning-
um, með tilraunum með smjörbú o.
fl., en fyrst og fremst sökum þess,
hve afar fínt og fullkomið smíðið
og frágangur á öllu er, erSeparator
orðið heimsfirma, sem við með
ánægju setjum fremst í röð sænskra
stóriðnaðarfyrirtækja.
Þyi það, að danski landbúnaður-
inn, sem er mjög vandur um val á
vélum sinum, hefir sett Alfa-Laval
skilvinduna í svo afarmörg smjörbú
sín, það er viðurkenning, sem við
ekki getum gengið fram hjá. Og
— Separator skilur mjólkina okkar,
en í okkar hag.
Þannig ritar danska blaðið.
. Accumolatorsyre
Saltsyre
Salpetersyre
Svovlsyre
Vand destl.
Allun '
Blyhvidt
Mönnie
Sölverglöd
Tungspath
Zinkh.vidt
Carraghenmos
Skjællak orange
Skjællak T. N.
Terpentinolie
Aceton
Formalin
Svovlkulstof
Kvægsölv
Karbolineum
Karbolsyre
Stenkulstjære
Vandgastjære
Vilcoolie
Bisulfat
Catechu
Blysukker
Chlorcalcium
Chloikalk
Chlormagnesium
Chlorsur Natron
Chlorzink
Gul Cyanjernkalium.
Glaubersalt calc.
Japanvoks
Elain
Lerjord svovlsur
Magnesia
Mælkesukker
Mælkesyre
Soda caust.
Soda calc.
Natronlud
Svovl
Svovlnatrium
Talcum
Zinkstöv
Citronsyre
Vinsyre
Bieget Palmeolie
Parafin
Ceresin
Gasglycerin
Glycerin kem. ren.
Kobbervitriol
Kali Salpeter
Natron Salpeter
Vilhelm Hansen & Co.a.s.
Köbenhavn L. Hejrevej 43.
Telefon 6188. Telegramadr.: Vilhansen
íslenzkur landbúnaður tekur nú
miklum og hröðum framförum. Þess
vegna álitum vér þessa grein vel
verða upptökú í ísafold.
Dönsku greininni fylgdu nokkrar
myndir. Ef íslensku bændurnar og
aðra skyldi langa til að sjá myndir
af verksmiðjum, byggingum og skil-
vindum Separator’s, mun aðalum-
boðsmaður verksmiðjunnar á Islandi,
hr. Hallgrímur Benediktsson, Reykja-
vík, vafalaust geta og vilja sýna þær
og skýra. Max.
Vélabátur fórst
við Vestmannaeyjaeyjar á sunnu-
daginn var. Hét hann Haffari, eign
Jóns kaupmanns Einarssonar þar í
eyjunum. Hafði farið á sjó snemma
sem aðrir bátar, en svo hvesti með
hríð þegar á leið daginn og á heim-
leiðinni rakst báturinn á Skarfatanga
á Heimaey og brotnaði i spón.
Fimm menn voru á bátnum og
druknuðu þrir, formaðurinn Jón
Stefánsson, vélstjórinn, Gunnar ,að
nafni, og einn háseti, Gunnlaugur.
Tveir menn voru syndir og komust
til lands og klifu upp klettana —
Tómas Þórðarson frá Varmahlíð
undir Eyjafjöllum og Þórarinn nokk-
ur úr Keflavík.
Tómas hafði verið á vélbátnum
Sæunn, sem fóist í Eyjunum fyrir
nokkru, en komst þá einnig lífs af.
3
Dómur
féll í vfirrétti síðasta mánudag
(10. þ. m.) í máli, er Einar Jónsson
járnsmiður á Eyrarbakka höfðaði í
fyrra í héraði gegn Guðmundi Is-
leifssyni útvegsbónda, út af æru-
meiðandi ummælum og áburði, um
að hann (Einar), sem var slökkvi-
liðsstjóri á Bakkanum, hefði »kveikt
í« Ingólfshúsunum, er brunnu þar.
Undirrétturinn dæmdi Guðmund í
1 jo kr. sekt eða 3$ da%a einjalt
janqelsi, og umrnæli hans dauð 0%
ómerk, en hann skyldi greiða Einari
30 kr. málskostnað. Þessum dómi
áfrýjaði Guðmundur til yfirdóms,
en þar var hann staðjestur, og áfrýj-
andi dæmdur í 40 kr. mdlskostnað í
viðbót vtð hitt. Var það tekið fram
í dómnum, að Guðm. hefði á engan
hátt getað réttlætt áburð sinn.
Málið flutti f yfirrétti fyrir hönd
Einars Jónssonar, Gísli Sveinsson
yfirdómslögmaður, en af hendi Guðm.
ísleifssonar Páll Jónson yfirdóms-
lögmaður.
Símfregnir.
Skipströnd.
ísafirði í gær.
Á sunnudaginn strönduðu tvö ey-
firzk skip við Önundarfjörð. Hétu
þau Júlíus og Vonin. Menn björg-
uðust allir.
Vonin náðist útafturinnan skams,.
en er eitthvað skemd. Július hefir
ekki náðst af grunni ennþá og ekki
búist við því að hann muni nást.
Hér er bezta veður í dag.
„Gaulverjabæjarmár.
Eftirhreyta.
Dómur var kveðinn upp i yfir-
rétti fyrra mánudag í máli, þar sem
Jón Magnússon fyr i Gaulverjabæ
(eða Páll Jónsson yfirdómslögmaður
fyrir hans hönd) áfrýjar úrskurði fó-
getaréttar Arnessýslu um synjun á
að setja hann inn á jörðina. Voru
stefndir Skúli Thorarensen bóndi í
Gaulverjabæ og Dagur Brynjúlfsson
hreppstjóri. Yfirdómur staðfesti synj-
unarúrskurðinn, dæmdi áfrýjanda í
25 kr. málskostnað til hvors hinna
stefndu og 20 kr. sekt fyrir þrætu-
girni.
Áminoing vegna átengis-
veitingar. Mælt er að 6 eða
7 læknar hér í bænum hafi fengið
áminningu hjá landlækni fyrir mis-
brúkun á áfengisveitingu með lyf-
seðlum gegnum lyfjabúðina hér.
— Sem kunnugt er, þá er hver á-
fengisseðill bókfærður í lyfjabúðinni
ásamt nafni lækms þess er seðilinn
hefir gefið út. — Nú munu vera
alls um 20 læknar með læknisleyfi
hér í bænum að meðtöldum upp-
gjafalæknunum.
Gjaldkeramálið.
Hingað til hefir reynst ókleyft
að fá ákveðin svör bankastjórnar-
innar um það, hvort hún óskaði að
skjöl gjaldkeramálsins og bankabygg-
ingarmálsins yrðu birt eða ekki. B.
Kr. virðist ekki jafn ákveðinn í því
máli þegar hann á að taka opinbera
ákvörðun um það á sina ábyrgð og
þegar hann ærslast í blaðinu sínu á
bak við drenginn.