Ísafold - 01.07.1916, Page 3

Ísafold - 01.07.1916, Page 3
ISAFOLD /. v5*. /. Kappsund um sundbikar Islands fer fram sunnu- daginn 13. ágúst næstk. Þeir sem keppa vilja sendi skriflega umsókn til Olafs Gíslasonar verzlunarmanns í Liverpool fyrir 5. ágúst. Stjórn U. M. F. R. getgátu, að þótt almenningur hefði reynst tiltölulega fús til framlaga til þess að koma félag- inu á fót, gæti það að borið, að menn yrðu tregari nú um stund og teldu þessu félagi hafa verið og vera fært að græða eins og öðrum, þegar segja má, að í lófa sé það lagið öllum gufuskipafélögum. Ætli þetta sé úr lausu lofti grip- ið? — Við þessu, þ. e. effélagið þyrfti fjár, sem ekki fengist með hlutasöfnun, hafa menn jafnvel viljað slá þann varnagla, að lands- sjóður (þingið) yrði þá að hlaupa undir bagga, því aö félagið væri einskonar »þjóðstofnun«. En bæði er nú það, að þótt félág þetta sé í alla staði þjóðlegt og »þjóðþrifa- fyrirtæki®, þá er það þó ekki þjóðfélagseign. Það er að því leyti óhjákvæmilega með sama marki brent og önnur hlutafélög, að það á og verður að bera og efla sig sjálft, nema óumflýjanleg neyð hindri. Og hins vegar^ber ekki að gera ráð fyrir alt of miklu örlæti í þessum efnum hjá þinginu, fram yflr það, sem nú er félaginu í té látið (næsta fjár- hagstímabil er nú heldur ekki fyr en 1918 og 1919). Það er eins og sumum hætti til að skoða þetta félag sem eins konar líknarstofnun handa ósjálf- bjarga aumingjum, en svo ber ekki að líta á. Það er stofnað með aðstoð einstaklinga og þjóð- arheildar til þess að verða hjálp- arhella frjálsra og framgjarnra mannn, til viðskiftasjálfstæðis og velmegunar. En því að eins get- ur það rækt þessa köllun sína, að það sé og verði fært í allan sjó. Á þessum tímum er hlutverk Eimskipafélags Islands áreið- anlega fyrst og fremst að halda uppi sem greiðustum samgöngum til landsins og frá því. Því að það er oss mest áríðandi. Og nú hefir verið um hríð og á að vera enn tækifæri til þess að styrkja stofninn og auka vöxtinn — þrátt fyrir aðra óáran tímans — með því að láta félagið ekki að eins halda, við, heldur grœða og græða mikið, án þess það komi tilfnnanlega niður á nokkr- um manni. Eins og það er vonandi, að slík ósköp, sem nú geysa úti í heiminum, dynji aldrei aftur á, eins er það víst, að það tækifæri, sem af þessum sökum hefir gefist hlutlausum þjóðum til þess að afla sér fjár í ríkum mæli, kem- ur aldrei aftur. En andstreymið kemur á bll- um tímum. Og þá ekki sizt að afstöðnum þjóða-ófriði eða því um líku heimsböli. Er því sá einn kostur góður, að vera undir það húinn. Fyrir það fær enginn ámæli sinna eftirkomenda. Læt eg svo útrætt um þetta mál, nema sérstakt tilefni verði Samkomulagið viðBreta Einhverjum misskilningx hefir ból- að á hér í bæ um samkomulagið, sem * gert hefir verið við Breta um sölu íslenzkra afurða. Um það mál er grein í blaðinu Vísi í gær, sem Isafold leyfir sér að taka upp. Grein- in er svolátandi: Þess hefir orðið vart, að margir leggja rangan skilning í samkomu- lag það, um viðskifti vor við Breta, sem skýrt hefir verið frá i blöðun- um og alkunnugt var orðið að í aðsígi var. Landstjórnin hefir ekki gert bind- andi samning um neitt annað en að skylda skip, sem héðan fara með farm til útlanda, til að koma við í brezkri höfn i leiðinni til ákvörð- unarstaðar síns. — Gegn þessari skuldbindingu lofar brezka stjófnin að hindra ekki vöruflutning til annara landa en þeirra er liggja að Norð- ursjó og Eystfasalti, og lofar einnig að hindra ekki flutning á þeim af- urðum landsins til Danmerkur, sem notaðar verða þar í landi. Það er ekki á neinn hátt samþ. af ísl. stjórninni, að Bretar hindri vöruflutning til Norðurlanda. Og því síður er þess heitið, fyrir lands- manna hönd, að engar afurðir verði seldar tii þessara landa, eða Bretum gefinn forkaupsréttur á nokkrum af- urðum landsins. Mönnum er því eftir sem áður frjálst að selja vör- urnar hverjum sem hafa vill, en eftir sem áður eiga kanpandi og seljandi það á hættu, að þær vörur, sem seld- ar eru og flytjast eiga til Norður- landa og Hollands verði stöðvaðar í Bretlandi. Þvf fer því mjög fjarri að lands- menn, eins og menn virðast halda, séu nokkru v e r settir vegna þessa samkomulags. — Að Bretar stöðv- uðu flutningana að og frá landinu, áttu menn og eiga að þessu leyti enn á hættu. En öllum er frjálst að selja afurðir sínar á opnum markaði. En ef Bretar banna flutning á afurðum vorum til þessara landa, sem um er að ræða, þá eru fram- leiðendur að þvf leyti betur settir hér eftir, að brezka stjórnin hefir skuldbundið sig til að kaupa þær vörur, sem þess vegna yiði ekki unt að fá markað fyrir annarsstaðar, fyrir ákveðið verð. — En engan for- kaupsrétt eiga þeir á þeim, hvorki fyrir þetta ákveðna verð eða neitt annað. Enn hafa Bretar ekki bannað flutn- ing á afurðum vorum til nokkurs lands, og geta menn því þess vegna selt þær hverjum sem hafa vill, fyrir hvaða verð sem vera skal. En viss- ast er að selja þær á höfn hér. En auk þess hefir það unnist við þetta samkomulag, að Bretar hafa skuldbundið sig til að sjá um, að vér getum fengið allar nauðsynjavör- ur fluttar tíl landsins. Það er því enginn efi á þvf, að samningar þessir eru oss afar mikils virði, og þeir eiga miklar þakkir skyldar, sem komið hafa þessu í kring. Skipafregn; í s 1 a n d fór hóðan vestur og norð- ur um land á leið til útlanda á mið- vikudag, Mesti aragrúi farþega, svo að hvert rúm var skipað. Margt manna, aem verið heflr í kynnisför í höfuðstaðnum, hvarf heim aftur, svo sem Guðm. Thoroddsen læknir, Júlíus Havsteen yfirdómslögmaður með frú sinni, Sigr. Einarsson bæjarfógetafrú frá Akureyri, Ivarl Nikulásson for- stjóri frá Akureyri, frú Schiöth frá Akureyri ásamt dóttur sinni. Af Reykvíkingum tóku sór fari m. a. frú Theódóra Thoroddsen (til Húsa- víkur), jungfr. Ragna Stephensen, Skúli Thcroddsen cand. jur. o. m. fl. Til útlanda fóru m. a. Ólafur Þor- steinsson læknir með frú sinnij Sigfús Einarsson organisti, Jón Brynjólfsson kaupm., Helgi Hjörvar kennari, frú Guðmundsson o. fl. o. fl. Ceres fór kringum land á fimtudag. Meðal farþega héðan: Ingólfur Gíslá- son Vopnfirðingalæknir og Sigbvatur Grímsson Borgfirðiugur, fræðimaður frá Höfða. Skálholt fór Eieðan í gær áleiðis til Leith. Hólar eru væntanlegir hingað á morgun eða svo með kolafarm til Sani- einaðafólagsins. Tjaldur fer frá Kauptnannahöfn 4. þ. m. Með honum koma Einar Árn- órsson ráðherra, Ól. Johnson konsúll o. fl. 25 ára stúdentsafmæli hóldu ýms ir stúdentanna frá 189-1 hátíðlegt nú fyrir skömmu. í þéim hóp voru m. a. Dr. Helgi Pjeturss, Magnús Ein- arsson dýralæknir, Guðm. Sveinbjörns- son skrifstofustjóri, Jens B. Waage bankabókari, Karl Nikulásson forstjóri, Magnús Þorsteinsson prestur, Björn Björnsson prestur. Hjúskapur: Ólafur Þorsteinsson læknir og jungfr. Kristín Guðmunds- dóttir (Einarssonar frá Hraunum). Ný- giftu hjónin fóru með Islandi brúð- kaupsferð til Norðurjanda. Sigfús Einarsson tónskáld brá sór utan með íslandi. Hygst hann að dvelja sumarlangt víða um Norður- lönd og kynna sór nýjustu framfarir á sönglistar og söngstjórnarsviði. — Pótur Lárusson gegnir organistastörf- um hans á meðan. Brezkir ferðamenn tveir komu ’ningað með íslandi. Annar, mr. Bell er eigi nýr gestur hór, heldur gamall laxveiðimaður við ýmsar ár hór. Hinn, roskinn maður, Mac Kelvey að nafni, fór á fimtudag austur i sveitir til að skoða sig um. Fylgdarmaður hans er Stefán Stefáusson. Brezkn viðskiftasamningarnir. Kaupmannaráðið hefir, eins og getið var í skýrslu stjórnarráðsins í síðasta blaði, opnað skrifstofu hór í bænum, er veitir aila vitneskju um viðskifta- samningana við Bretland. Skrifstofu- stjóri er hr. C a r 1 P r o p p ó. Betur að þessi skrifstofa kaupmanna- stóttarinnar yrði fyrsti vísir sameigin- legs samkomustaðar kaupmanna, sem af gæti sprottið á sínum tíma: í s 1 e n z k kauphöll. Nú verður að lsera betur. Nú er enginn sýslumaður á landinu sem heitir Ari Jonsson. Nei — heldur Ari Arn- a 1 d s. Nú er ekkert skáld lengur til sem heitir Einar Hjörleifsson — heldúr Einar K v a r a n. Nú er enginn kenn- ari, sem heitir Helgi Salómonsson — heldur Helgi Hjörvar og enginn íþróttamaður sem heitir Magnús Tóm- asson — heldur Magnús K j a r a n. A því herrans ári 1916 urðu misl- ingasótt og ættarnafnapest landlæg á íslandi! Synodus hefst á sunnudaginn kl. 12 á hádegi. Síra Árni próf. Björns- son pródikar í dómkirkjunni. Engin síðdegismessa. Messað á morgun í Fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 12 á hád. (sr. Ól. Ól.) og' í Fríkirkjunni í Rvík kl. 5 síðd. (sr. Ól. Ól.). Svar frá Guðm. Hannessyni pró- fessor til Indriða Einarssonar skrif- stofustjóra kemur í næsta blaði. Hallærisvörn. Út af umræðum, sem orðið hafa um hallærisvarnamálið nú fyrir skömmu í bloðunum »Lögréttu« og »ísafold«, langar mig til að koma með svolitla ádrepu. Eg lít svo á, að aðalorsakir til hallæris og fénaðarvanhalda séu tvær: 1. Langvinn harðirdi, einkum seinni part vetrar og fram eítir vori. 2. Of létt og óholt fóður, bæði hey og vetrarbeit. Úr þeim meinum, sem stafa af þessu tvennu er lögum um fóður- forðaeftirlit og fénaðarskoðanir og lögum um korn og heyforðabúr ætlað að bæta. En að þær ráðstaf- anir séu ekki fullnægjandi, á það virðist margt benda. Til þess munu liggja margar orsakir, sem ekki er rúm eða tími til að telja upp hér. Eg læt mér nægja að benda á, að í öll þessi lög virðist vanta hagkvæm ákvæði til að draga úr féuaðarvanhöldum, sem stafa af óhollu fóðri og óhollri beit. Það er þetta atriði, sem eg vil taka til ofurlítillar íhugunar, ef ske kynni, að það gæti komið að einhverju liði til að bæta úr þessum að minu viti allra alvarlegustu vandræðum sveita- búskaparins. Þegar hey eru létt og ódrjúg, hrakin eða skemd á annan hátt, og því óholl til fóðurs, mun það undan- tekningarlítið stafa af því, að í þau vantar ýms auðmelt efni og sölt. Sama má segja um létta og að þvf er virðist óholla haga. Það er fyrir nokkru fundin mjög handhæg, og í vanalegu árferði ódýr ráð, til að bæta úr þessu, sem sé saltgjöf, og það, að lá'ía lýsi i létta eða skemda heyið, — þá verður það að hollu og drjúgu fóðri — en gef- ur lýsisvætta, góða heytuggu með léttri og þar af leiðandi óhollri út- beit. Með þvi er unt að nota út- beitina miklu meira, og sjá allir hvað mikil fóðurdrýgindi eru að þvi. Eg tel óþarft að fara fleiri orðum um kosti lýsisins sem fóðurbæds, þeir munu kunnir viða um land, þvi víða í sveitum er sagt, að það sé notað, og allir hrósa því fyrir holl- ustu og fóðurauka. Einnig hefir nokkuð verið um það ritað, bæði i búnaðarbiaðið »Fre.y«, Búnaðarritið og víðar. Sveitabændum — einkum í þeim sveitum, þar sem engin veiðistöð er — mun allerfitt að afla sér lýsis til fóðurbætis, enda þótt lýsið sé ein af afurðum sjávarútvegsins og flutt út úr landinu í tugum ef ekki hundr- uðum þúsunda tunna. En eftír því sem eg best veit, er lýsi hvergi, eða þá mjög óvíða, haft á boðstólum til innanlandsþarfa. Á þessu hygg eg að brýn þörf sé að ráða bót, ef unt er. Og þörfin er ennþá meiri af því hvað alt lýsi er í afarháu verði, svo mjög er hætt við að bændur séu nú afhuga að afla sér þess, þó þeir hafi annars verið farnir að nota það. En gæta verða menn þess, að bústofninn hefir lika hækkað í verði. Mér þykir ekki ólíklegt, að vel- ferðarnefndin með hjálp og i sam- ráði við sýslunefndii^ gæti náð í vitneskju úr sveitunum víðast hvar um landið, um hvað mikið bændur óskuðu að fá keypt af lýsi til fóð- urbætis á næstkomandi hausti og vetri, og þessa vitneskju gæti nefnd- in að likindum fengið svo snemma, að tími yrði til innkaupa-ráðstafana og sendingaráðstafana á verzlunar- staðina í kring um landið, i haust eða framan af vetrinum. Þetta mundi eg telja mjög heppilega aðferð, eins og nú stendur á, því afnvel þó málið strandaði að lokurn i þetta sinn, af einhverjum ástæðumr . þá mundi sú hreyfing sem kæm- ist á það í öllum sveitum landsins, eflaust flýta mjög fyrir almennri notkun lýsisins sem fóðurbætis. Einnig gæti ef til vill komið til mála að greiða á likan hátt fyrir útvegun á saltaðri síld og síldarmjöli til fóð- urbætis. Hvorttveggja hefi eg heyrt að ýmsum mönnum hafi reynst vel, einkum síld, til að gefa með útbeit, og^um síldarmjölið hefi eg heyrt að svo hafi reynst við fóðurtilraunirnar sem gerðar hafa verið í Slðumúla undanfarna vetur voru bezt fram- gengnar að vorinu þær ærnar sem síldarmjölið fengu. — Þó velferðarnefndin hafi þegar gert eða áformað að gera einhverjar slíkar ráðstafanir þá væri það til að styðja mál mitt um þörfina á að greiða fyrir útvegum og aðdráttum sveitabænda á þessum fóðurbætis- efnum, sem eg tel ýyrstu og s]dlf- söqðustu bjargráð sveitabúskaparins. 24. júní 1916 Guttormur Jönsson. Nýir stúdentar. í gær útskrifuðust 24 stúdentar frá Mentaskólanum. Nöfn þeirra og einkunnir eru á þessa leið: Anna Bjarnadóttir Ágúst Olgeirsson Arni Pálsson Arsæll Gunnarsson Brynj. Stefáusson Egill lónsson Friðrik Friðriksson Helgi Jónasson Jófríður Zöega Kristín Ólafsdóttir Lárus Jónsson Lúðvík Nordal Ólöf Jónsdóttir Sigurður lónasson Svanlaug Arnason Sveinbjörn Blöndal Valtýr Blöndal Þórhallur Sigtryggss Þorkell Gíslason Utanskóla: Árni Sigurðsson Helgi Ingvarsson Stig Meðal- eink. 88 6,77 69 S>31 69 S,3i S3 4,08 83 6,38 6 2 4,77 65 S,oo 52 4,00 72 S,S4 61 4,69 S9 4,S4 60 4,62 65 S,°° 63 4,8S 60 4,62 S8 4,46 S7 4^ 00 67 S,iS 6S S,oo 63 4,85 6 0 4,62 60 4,62 68 S>23 6S S,oo 2 skólasveinar og 2 utanskóla- sveinar veiktust í prófinu af misling- um, þeir ljúka við próf í næstu viku. 2 aðrir utanskólasveinar hafa enn eigi lokið prófi, og einn stóðst eigi prófið. Það er nýstárlegt við þetta próf, að við það hefir gefin verið hæsta einkunn, sem fyrir hefir komið sam- kvæmt hinni nýju reglugerð og að þá einkunn hlaut kvenstádent jungfrú Anna Bjarnadóttir (Sæmundssonar aðjunkts). Hún sýnir sig víða framsókn kvenna — samfara réttinda jafn- ræðinu. Bftirmæli. Þann 12. nóvember s. 1. andaðist að heimili sínu, Skeljabrekku i Borgar- fjarðarsýslu, bændaöldungurinn Jóhann Bergþórsson, 84 ára gamall, sonur Bergþórs bónda í Árdal og á Staðar-< hóli, Gunnlaugssonar bónda í Voga-

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.