Ísafold - 12.08.1916, Qupperneq 1
Kemur út tvisvar
í viku. Verðárg.
5 kr., erlendis 7J/2
kr. eSa 2 dollarjborg-
ist fyrir miðjan júlí
erlendis fyrirfram.
Lausasala 5 a. eint.
11
ISAFOLD
ísafoldarprentsmiðja.
Ritstjári: Dlafur BjörnssDn.
Talsimi nr. 455.
Uppsögn (skrifl.
bundin við áramót,
er ógild nema kom-
ln só til útgefanda
fyrir 1. oktbr. og
só kaupandl skuld-
laus við blaðið.
XLIII. árg.
Reykjavík, laugardaginn 12. ágúst 1916.
59. tölublað
Sítna.
Heyrðu Stína, Stína mínl
Veiztu hvað jeg sá?
Ærnar bitu í haganum
Og lömbin ljeku hjá.
Nú langar mig til að vita,
Því jeg elska þig,
Hvort þú vilt nú dansa og leika
Svona fyrir mig?
En Stína dansar aldrei framar —
Eilthvað er það, sem henni amar.
'Brostu Stina, Stína mínl
Veiztu hvar jeg var?
Jeg gekk út í hraunið
Að horfa á stjörnurnar.
Nú langar mig til að sjá
Hvort yndislegar skín
Siríus og Venus,
Eða augun þín?
En Stína brosir aldrei framar —
Eitthvað er það, sem henni amar.
Hlæðu Stína, Stina mínl
Áðan fann jeg það,
Að barn í vöggu hló svo dátt,
Mjer hitnaði’ í hjartastað.
Nú langar mig til að heyra
Hvernig ástin hlær,
Vita hvort að ylinn leggur
Hjarta mínu nær?
En Stína hlær nú aldrei framar —
Eitthvað er það, sem henni amar.
Gráttu Stína, Stína min I
Veiztu hvað jeg veit?
Piltur náði hafmey á öngul,
En af sig hún sleit.
Nú langar mig að sjá þig gráta,
Jeg skal hugga þig.
Þá vaknar kanske ást þín aftur,
Ó — fyrir mig?
En Stina grætur aldrei framar —
Eitthvað er það, sem henni amar.
Stina litla, Stína min I
Viltu heyra ljóð?
Það eru vökudraumar um
Hvað þú sjert góð.
Kondu nú fram í dalinn
Og dreymdu með mjer,
Þar á jeg kvæði falin
Og öll handa þjer.
En Stinu dreymir aldrei framar —
Eitthváð er það, sem henni amar.
Sigurður Sigurðsson.
Alþýðufél.bókasafn Templaras. 3 kl. 7—B
Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 11
Bœjarfógoíaskrifstofan opin v. d. 10—2 og I—7
Bæjargjaldkerinn Laufásv. 5 kl. 12—8 og í—17
íslandsbanki opinn 10—4.
SLF.U.M. Lestrar- og skrifstofa 8 árd,—10 síðd.
Al.m, fundir fid. og sd. S^/s síðd.
Landakotskirkja. Ghiðsþj. 9 og 6 á helgusn
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Jjandabankinn 10—3. Bankastj. 10—12.
liftndsbókásafn 12—3 og 5—8. Útlán 1—8
Iiandsbúnaðarfélagsskrifstofan opin frá 12—2
Landsféhirðir 10—2 og 5—6.
Eiandsskjalasafnið hvern virkan dag kl. 12^2
Tiandssiminn opinn daglangt (8—9) virka daga
helga daga 10—12 og 4—7.
Æiistasafnið opið hvern dag kl. 12—2
Náttúrugripasafnið opið P/a—2*/a á sunnud.
Pósthúsið opið virka d. 9—7, sunnud. 9—1.
Samábyrgð Islands 12—2 og 4—6
Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsimi Reykjavikur Pósth.8 opinn 8—12.
Vífilstaðahælið. Heimsóknartimi 12—1
frjóðmenjasafnið opið hvern dag 12—2,
Landskosningarnar
Afarlítil hluttaka.
Aldrei nokkurntíma munu nokk-
urar kosningar í þessu landi hafa
verið neitt til líka eins afar-illa sótt-
ar eins og »landskjörið« síðastliðinn
laugardag.
Eftir þeim fréttum, sem komnar
eru, eru líkur til að eigi hafi atkvæði
greitt fleiri en 15—20 af hundraði
hverju, þ. e. 5.—6. hver kjósandi.
Áhugaleysið er svo megnt, að
undrun sætir.
Gauragangurinn í Þversum-mönn-
um gegn stjórninni hefir ekki fallið
í þann jarðveg, sem þeir hafa við
búist.
Rógurinn út af brezka samkomu-
laginu, svo dyggilega sem hann var
rekinn, hefir ekki tekist, eins og til
var stofnað, að æsa þjóðina í blindni
gegn stjórninni.
Lengra hafa áhrif hans ekki náð
en að kyrsetja sennilega heima það
af fylgismönnum stjórnarinnar, sem
ekki hafa í rauninni viljað trúa róg-
inum, en þó eigi verið búnir að átta
sig til fullnustu á málinu.
Miklar sögur ganga af óstýrilæti
sumra »Þversum«-forkólfanna við
þessar kosningar. En enginn veru-
legur undirróður sagður af annarra
hálfu.
Sem spegill af vilja þjóðarinnar
verða þessar landskosningar, því
miður, markleysa ein — frá hvaða
sjónarmiði, sem á er litið.
Á kjörþing vantaði vafalaust meira
en 4/5 hluta kjósenda.
Hinn tæpi x/6 hluti, sem kýs, get-
ur eigi talist neinn fulltrúi þjóðar-
viljans.
Slikt og þvílikt áhugaleysi er þjóð-
inni engin sæmd — einkum ekki
þegar það kemur fram fyrsta sinni,
sem velja á þingmenn til 12 ára
þingsetu.
Hinar afskaplega daufu undirtekt-
ir um land alt í landskosningunum,
koma berlega í ljós í tölunum hér
á eftir, scm teknar eru eftir skeyt-
um bæði til ísafoldar og annara
blaða.
Hér í Rcykjavík kusu: 820 af
3800 á kjörskrá. Hafnarfirði 58 af
431. Seltjarnarnesi 15 af 89. Eyrar-
bakka 89 af 272. Stokkseyri um
60 af um 300. Vik 50 af 160.
Dyrhólahreppi 37 af 80. Blöndu-
ósi 20 af 50. Sauðárkróki 32 af
140. Skarðshreppi (Skagafirði) 6 af
44. Akureyri 160 aí 600. Glæsi-
bæjahreppi 40. Öngulsstaðahreppi
60. ísafirði 160 af 350. Súðavíkur-
hreppi 9 af 90.
í Ögurbreppi kusu 8 kjósendur.
Kosningunni hér i Reykjavík var
lokið kl. 7 e. hád. og frá kl. 4 til
7 höfðu komið um 50 manns til að
kjósa. Aætlað var að fjórði hluti
kjósenda, sem kusu hér, hafi verið
konur, og hafa þá kosið um 200,
en á kjörskrá eru um 2100. — A
Akureyri höfðu sárfáar konur kosið,
en fleiri þar í sveitunum í kring.
En yfirleitt höfðu konur sótt kosn-
ingarnar mjög illa.
í Vestmannaeyjum kusu 115 kjós-
endur alls (13 konur) af 412.
Á Akranesi kusu 74 kjósendur
af 265 á kjörskrá. í Innra-Ákranes-
hreppi 30 af 46. í Borgarnesi 19 af
um 70. í Árnarneshreppi í Eyja-
fjarðarsýslu kusu 18 af um 120 á
kjörskrá, og í Svarfaðardal 13 af
160—170.
Á Patreksfirði kusu 20 kjósendur
af 147 á kjörskrá.
Á Bíldudal 31 af 130 á kjörskrá
og Tálknafirði 12 af 90 á kjörskrá.
A Þingeyri við Dýrafjörð 52 af
212 á kjörskrá.
I Viðvikursveit í Skagafirði kusu 20
og i Lýtingsstaðahr. 6. í Bæjarhreppi
í Strandasýslu 10, i Staðarhreppi 12.
í Torfalækjarhreppi í Húnavatnsýslu
8. Á Siglufirði 19.
í Stykkishólmi kusn 29, í Helga-
fellssveit 15, í Skógarstrandarhreppi
10.
A Seyðisfirði kusu 40. 1 allri
Suður-Múlasýslu 296 af nál. 1200.
í Dalasýslu kusu alis 252 af 550.
Þar af i Hörðudalshreppi 15, Mið-
dalshreppi 29, Haukdalshreppi 13,
Laxárdalshreppi 14, Hvammshreppi
25, Fellsstrandarhreppi 15, Skarð-
strandarhreppi 8, Saurbæjarhreppi 26.
Bankamálin tvö.
Laudsstjórnin hefir gefið út sem
viðbót við B deild stjórnartlðindanna
»Skjöl viðvíkjandi Landsbankanum:
I. Inugangur. II. Um kærur gegu
féhirði bankans o. fl. III. Um bygg-
ingu nýs bankahúss«.
Mega menn þar sjá öll bréfaskifti
stjórnarráðsins, Landsbankastjórnar-
innar og, gjaldkera bankans — út
af brottrekstrarkröfu bankastjórn-
Hlutafél. ,Völundur‘
íslands fullkomnasta trésmíðaverbsmiðja og timbnrverzlun
Reykjavík
hefir venjulega fyrirliggjandi miklar birgðir af sænsku timbri, strikuðum
innihurðum af algengum stærðum og ýmislegum listum.
Smíðar fljótt og vel hurðir og glugga og annað, er að húsabyggingum lýtur.
rinnar, sem stjórnarráðið synjaði
lgerlega.
Mál það hefir vakið talsverða at-
lygli, og mun því margan fýsa að
:ynna sér það.
Ótíðin — Rosinn.
Vandræðaástand.
Vandaðastar og ódýrastar
Líkkistur
seljum við undirritaðir.
Kistur fyíirliggjandi af ýmsrl gerö.
Steingr. Guðmundss. Amtm.stíg 4.
Tryggvi Arnason Njálsg. 9.
jjmuummmujrmi
Klæðaverzlun
H. Andersen & Sön.
Ekki linniv rosanum enn, sem
staðið hefir nú óslitið frá sláttar-
byrjun um Suðurland alt ogVest-
urland (og náð til Norðurlands
að nokkru). Er ástandið hið
hörmulegasta hjá búendum í sveit-
unum: Ofan á hina miklu þurka
og kulda í vor og fyrri part
sumarsins, er víða eyddi nærri
öllum jarðargróðri eða kyrkti
hann að miklum mun, — slotar
nú ekki vætunni, svo að töður
eru nú skemdar og ónýtar og œrið
heyfall annað liggur undir hráðum
skemdtim,
Bændur eru hálfnaðir með slátt
(o: að slá niður grasið), en sitja
nú með kaupafólk svo dýrt, að
mönnum ægir við að nefna á
nafn.
En hvað skal gera, ef þessu
vindur fram?
Það virðist óhjákvæmilegt, að
hey verða lítil og skemd, svo
sem við búið er, — að bændur
hugsi til að reyna að afla sér
fóðurhœtis, og er þá ekki um
.annan fóðurbæti að tala en út-
lendan eða síld að norðan. En
hvorttveggja þarf að flytja hing-
að (eða á aðra staði á láhdinu)
sjóleið, sem mikil vandkvæði eru
á vegna vandræðalegrar skipa-
eklu til flutninga.
Ef bændur taka þann upp, held-
ur en að eyða bústofni sínum, að
Aðalstr. 16.
Stofnsett 1888. Simi 32.
þar eru fötin sanmuð flest
þar eru fataefnin bezt
rrrrrr
rrrjLmjLiAijmn
gera tilraun til þess að fá fóður
að, þótt dýrt sé (og það má vera
dýrt, ef það borgar sig ekki bet-
ur en að tefla á tvær hættur og
máske »fella«), þá er ekki sýnt
annað en að landsstjórnin verði að
annast um það, að þeir fái vör~
una ftutta hingað, ef engin kost-
Ur er hjá skipafélögunum. Og
fyrir því, að til þessa geti kom-
ið, verður þegar að gera ráð og
stjórnin að vera undir það búin.
Búast má við, að bændur hafi
einhver samtök sín á milli um
þetta, eða þá einhverir kaup-
sýslumenn fyrir þeirra hönd. En
ekki verður um það deilt, að
landsstjórninni er skylt að hlaupa
undir bagga, á allan þann hátt,
er hún fær orkað, ef heill al-
mennings á miklum hluta af
landinu er í hútí.
ér. Sv,
Aths. Landsstjórnin hefir þeg-
ar gert ráðstafanir til þess að
| reyna að útvega fóðurbætir frá
i útíöndum ■ og síldarrajöl að uorðan.
Ritstj.