Ísafold - 02.09.1916, Qupperneq 1
Kemur út tvisvar
í viku. Verðárg.
5 kr., erlendis
kr. eða 2 dollar;borg-
Ist fyrir miðjan júlí
erlendis fyrirfram.
Lausasala 5 a. eint.
XLIII. árg.
Reykjavik, laugardaginn 2. september 1916.
Uppsögn (skrifl.
bundin við áramót,
er ógild nema kom-
in só til útgefanda
fyrir 1. oktbr. og
só kaupandi skuld
laus við blaðið.
64. tölublað
Alþýfiafól.bóbasatn Templaras. ö kl. 7—0
iBorgarstjóraskrifatofan opin virka daga 11-8
Bœjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 1 -7
Bœj argjaldkerinn Laufásv. 5 kl. 12—8 og —7
Íslandsbanki opinn 10—4.
!K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8Ard,—10 -.íbd.
Alm. fundir fld. og sd. 8*/a sibd.
Landakotskirkja. Gnbsþj. 0 og 6 A helgum
;Landakotsspítali f. sjúkravitj. 11—1.
Landshankinn 10—8. Bankast.j. 10—12.
Landsbókasafn 12—8 og 6—8. ÚtlAn 1—8
Tiandsbúnabarfólagsskrifstofan opin frA 12—2
Landsféhiröir 10—2 og 6—6.
LandBskialasafnib hvern virkan dag kl. 35S-2
’Landssiminn opinn daglangt (8—0) virka daga
helga daga 10—12 og 4—7.
^iistasafnib opib hvein dag kl 12—2
NAttúrngripasatnib opib V/a—21/* A sucnnd.
Pósthúsió opib virka d. 0—7, sunnud. 0—1.
BamAbyrgb Islands 12—2 og 4—6
iStjórnarrAbsskrifstofnrnar opnar 10—4 dagl.
l'alsimi Reykjavíkur Pósth. 8 opinn 8—12.
Vifilstabahælib. Ileimsóknartimi 12—1
^jóbmenjasafnib opib hvern dag 12—2
pmmrrrimnrrrrrr
Klæðaverzlun
H. Andersen & Sön.
Aðalstr. 16.
Stofnsett 1888.
Sími 32.
þar eru fötin sanmuð flest g
þar eru fataefnin bezt.
irrmimiitiumTTm
'Vandaðastar og ódýrastar
Likkistur
seljum við undirritaðir.
XÍ8tur fyTirliggjandi af ýmsri gerö.
Steingr. Guðmundss. Amtm.stíg 4.
Tryggvi Arnason Njálsg. 9.
Erl. símfregnir.
(frá fréttaritara ísaf. og Morgunbl.)
Kaupm.höfn, 25. ág.
35 Zeppelinsloftför taafa
•ónýzt síðan ófriðurinn
bófst.
Fundir í Landþinginn
danska hefjast aftur i dag.
E>ar munn atkvæði greidd
gegn söln Vesturheims-
®yja.
Kaupmannahöfn, 27. ág.
Frakkar hafa tekið Mau-
repas.
Bretar hafa sótt fram
hjá Thiepval.
Landþingið danska heflr
með 44 atkvæðum gegn 8
hafnað tilboði Bandaríkj-
anna um kaup á Vestur-
heimseyjum. Búist er við
því að nýjar kosningar
fari fram um mánaðamót
október-nóvember.
sfis&arai
I fjrni Eiríkssort \
§
I
a
VA
Tlusturstræti 6
S ^ffajnaéar- &rjona~ og Saumavörur □
hvergi ódýrari né betri. Q
fovoífa- og dCrainlœíisvorur
beztar og ódýrastar.
JSoiRföng og cŒœRifœrisgjqfir
hentugt og fjölbreytt.
íö
%
Ásg. 6. Gunnlaugsson & Go.
Austurstræti 1, Reykjavík,
selja:
Vefnaðarvörur — Smávörur.
Karlmanna og unglinga ytri- og innritatnaði.
Regnkápur — Sjóföt — Ferðaföt.
Prjónavörur.
Netjagarn — Línur — Öngla — Manilla.
Smurningsoliu.
Yandaðar vörur, Sanngjarnt verð.
Pöntunum utan af landi sVarað um hæl.
vel,
Símon Ðalaskáld.
K v e ð j a.
'S?
Kaupmannahöfn, 29. ágúst.
Italir hafa sagt f»jóðver-
jum stríð á hendur.
Rumenar hafa sagt Anst-
urríki- og Ungverjalandi
stríð á hendur.
Grikkir á báðum áttum.
Búlgarar hafa tekið Ka-
valla.
Kaupmannahöfn 29. á .
JÞjóðverjar hafa sagt
Rúmenum stríð á hendur.
Erl. simfregnir
Opinber tilkynning frá brezku
utanríkisstjórninni i London.
London, ódagsett.
Vikuskýrsla Buchans frá vlgstöðvum
Breta:
Frá vesturvígstöðvunum.
Alla vikuna hafa Bretar verið að sækja
fram. Um klukkan 5 siðdegis föstudaginn
18. þ. mán. var áhlaup gert á allri herlln-
unni frá Thiepval að Somme. Eftir grimmi-
lega stórskotahrið tókst tveimur herfylkj-
um Breta að ná ramlega viggirtum stöðv-
um sunnan við Thiepval. Sex þýzkir liðs-
foringjar og 160 hermenn gáfust upp i
einum hóp, og að öllu samtöldu er það
sennilegt, að Þjóðverjar hafi þar mist um
2000 manns. Gagnáhlaupi þeirra var þeg-
ar tvístrað með stórskotahrfð. Vér sóttum
einnig fram I áttina til Martinpuich og frá
skóginum þar fyrir sunnan færðum vér
stöðvar vorar fram á rúmlega tveggja
milna svæði um 200—600 metra. Vér
tókum Stonequarry rétt hjá Guillemont eftir
nokkra stunda höggorustu.
Sunnudaginn 20. ág. skutu Þjóðverjar
ákaft á stöðvar vorar og um miðjan dag-
inn gerðu þeir áhlaup á hinar nýju stöðv-
ar vorar vestan við skóginn hjá Martin-
puich. Komust þeir inn f fremstu skotgröf
vora, en fótgöngulið vort hrakti þá þaðan
aftur þegar I stað. Daginn eftir urðu þar
hjá skóginum og hjá Mouquet-bóndabæ ýms-
ar sprengju-árásir, en þær leiddu eigi til
neinna breytinga.
Þriðjudaginn 22. ágúst sóttum vér stöð-
ugt fram i vinstra herarmi og komumst
rétt að Mouquet og á móts við bæinn norð-
austur af honurn og færðum oss i áttina
til Thiepval, svo að þangað eru nú 1000
metrar.
Á miðvikudaginn gerðu Þjóðverjar mikl-
ar tilraunir til þess að hrekja oss af hæð-
unum sunnan við Thiepval, en mistókst það
algerlega og biðu mikið tjón. Veður hafði
nú gerst bjartara og þaggaði stórskotalið
vort niður I nokkrum skotvigjum óvinanna
og flugmenn vorir háðu margar orustur.
Mistum vér enga flugvél, en óvinirnir fjórar.
Frá Austur-Afríku,
Smuts hershöfðingi kreppir nú óðum að
herleifum Þjóðverja. Herlið Van Deventers
sækir austur á bóginn meðfram aðaljárn-
brautinni. Aðrar hersveitir sækja fram til
járnbrautarinnar milli Van Deventers og
sjávar og Northey hershöfðingi sækir einn-
ig fram að járnbrautinni að sunnan. En
meðfram ströndinni sækir enn eitt herlið
fram til Dares-Salaam frá Bagamoyo, sem
nú er i höndum Breta og veita herskip
þvi vígsgengi.
Frá Saloniki.
Brezkt berlið, sem er i her Sarrails
hefir þessa vikuna tekið þátt i því að
hnekkja sókn Búlgara. Talsverð stórskota-
liösviöureign hefir staðið hjá Doiran-vatni
og hjá Struma og riddaralið Breta hefir
gert mikilsverðar njósnir.
Frá flotanum.
Laugardaginn 19. ágúst kom herskipafloti
Þjóðverja út úr höfn, en forðaðist að leggja
til orustu og hvarf bráðlega aftur heim til
sín. Kafbátar söktu tveimur léttum brezk-
um beitiskipum, þá er þau voru að leita
óvinanna.
Sama dag átti brezkur kafbátur I höggi
við þýzkt orustuskip (dreadnought) af
Nassau flokknum og hitti það tvisvar með
tundurskeyti. Það eru miklar likur til þess
að ætla, að það skip hafi sokkið áður en
það náði höfn.
Eítirmæli.
Þann 25. apríl 8.1. andaðist að heim-
ili sínu Fljótshólum merkiskonan Guð-
ríður Jónsdóttir.
Guðríður sál. var fædd 28. jan. 1835
á Loftsstoðum, dóttir Jóns heitins
bónda þar Jónssonar, Gamalíelssonar á
Stokkseyri. En móðir Guðríðar, kona
Jóns á Loftsstöðum, var Sigríður Jóns-
dóttir hreppstjóra í Móhúsum, sem
nafnkunnur var á sinni tíð.
Árið 1866 giftisthún Halldóri Stein-
dórssyni frá Fljótshólum. Reistu þau
þar bú sama ár og bjuggu rausnarbúi
þar til maðnr hennar audaðist 1895.
Höfðu þó við mikla vanheilsu hans að
stríja, svo hún hlaut oft að annast bú
þeirra að öllu leyti, enda hélt hún
búskapnum áfram eftir andlát hans
með börnum sínum með sama skör-
ungsskap og áður.
Börn hennar eru: Sigríður, í Reykja-
vík, Jón og Þuríður, bæði í Fljótshól-
um, hafa búið með móður sinni. Bjarni
son hennar, sem hún hafði slept við
hálfri jörðinni fyrir allmörgum árum,
hinn mesti framkvæmda- og dugnaðar-
maður í hvívetna, andaðist síðastliðið
vor eftir stutta legu úr lungnabólgu.
Var henni það hinn mesti harmur, svo
að kröftum hennar fór eftir það hnign-
andi, þótt hún ávalt bæri það vel.
Guðríður sál. var í meðallagi há
vexti, en þétt á velli, og sýndi við
fyrsta tillit, að þar var engin meðal-'
kona. Svipur hennar sýndi greind,
kjark og drenglyndi og það var eng-
inn falssvipur, heldur hreint endurskin
hennar miklu mannkosta. Hún var
trúkona mikil; sá æðri ráðstöfun í
ýmsu, sem fyrir hana hafði komið. Bú-
skapinn stundaði hún með ráðdeild og
fjöri til dánardægurs, enda studdu
börn hennar hana mjög vel.
Bera Fljótshólar miklar menjar starfs
hennar og barna hennar. Væri
að sem flestar konur væru slíkar.
Blessuð só hennar minning.
D.
Símon Guðmnndsson frá Norður-
garði í Mýrdal. Ort undir nafni Rósu
Jónsdóttur, fóstursystur hins látna.
Með rísandi sunnu þú BÍgldir úr höfn
og sólbrosin lóku, en ókyrr var dröfn;
og andardrátt hafsins þú heyrðir við
strönd,
með helþungum stunum þaðvarpaðiönd.
Það bjó yfir banráðum skæðum.
Þvf brátt fór að hvessa, og brosandi sól
af bólstrunum huldist á skýjanna stól;
en gráfextar öldurnar geisuðu fram
°g gripir um fleyið með járnefldum
hramm,
og ofan í djúpið það drógu.
í æfinnar blóma þar sökstu í sæ,
sunginn til grafar af nístandi blæ.
Og flughraður brimgnýrinn fregnina ber.
Hann flytur oss sfðustu kveðju frá þór.
Hún hljómar sem himneskur ómur.
Oss grátperlur hrygðar nú glitra á brá,
vór grátum, því nú ertu horfinn oss frá;
en horfinn þó að eins um örlitla stund,
því aftur við sjáumst — við. þráum
þann fund —
á eilffðar algóða landi.
Þín lífstíðin stutta var ljósgeislum stráð;
hún lifir hjá vinum, gullrúnum skráð.
Því minning deyr aldrei, þótt mold
verði hitt.
Við munum og þökkum alt lífsstarfið
þitt.
Þig kærleikur knúði til dáða.
Richard Beok,
Flýgur víða fregDÍn slík
fróns um bygð án tafar,
skáldið Dala’ er lagður lfk
lágt í bólið grafar.
Brags að vfgum lands um láð
löngum varstu slingur.
Þú hefir marga »hildi háð«
horfni skáldmæringur.
Áður til að ylja sál
oft með Bakkus saztu.
Hraðar en tungan mælti mál
margoft kveðið gaztu.
Áð lyfta hugaus harmi frá,
hörpuna léztu gjalla.
Börnin ungu brostu hjá
bragasmiðnum snjalla.
Þú brostfr, þó að blósi kalt
— bara lézt þig dreyma. —
Á hverjum bæ um ísland alt
eiga Ijóð þfn heima.
Ættartal þín æfði sál
yfir landið víða.
Mörg hin fornu fræðamál
fallega vanstu þýða.
Æska þín var arg og strit
— enginn skólavetur. —
Það var ekki »aðkeypt vit<í
í þér, því fór betur.
Birtist jafnt í blíðu og raun
bragargáfan léða,
þó að engin landssjóðslaun
lyftu þór að kveða.
Þó víða lægi vegur þinu
— veit eg það með sannl, —
að vinur og gestur velkominn
varstu í hverjum ranni.
Oft um blómgað æskusvið
ómi hreyfðir braga,
því hugurinn jafnan hafði bið
heima í firði Skaga.