Ísafold - 06.09.1916, Síða 3
ISAFOLD
/ JTliðbamum.
Tíús miít í Lækjargötu er tit sötu með mjög góðum
borgunarskitmáíum.
Húsið er bygt 1907—1908. Er að öllu vandað og hefir jafnan verið
vel hirt. Mig er oftast að hitta i bókaverzlun minni í Læjargötu 6 A.
Talsími 263.
Herra yfirdómslögmaður E. Claessen gefur einnig allar nauðsyn-
legar upplýsingar.
Guðm. Gamalíelsson.
Málaravörur
frá A. Stelling komu með e.s. Islandi
i Verzlunina VON,
Laugavegi 55.
Vélstjóraskúlinn
byrjar 1. oktðber næstkomandi kl. 12 á hádegi
í Iðnskólanum í Reykjayík.
Þeir, sem stunda vilja nám í skólanum,J sendi umsókn um það til
undirritaðs, fyrir 25. september. Umsóknin sé skrifuð af umsækjanda
sjálfum og stíluð til Stjórnarráðsins. Umsókninni fylgi skirnarseðill,
læknisvottorð og skírteini um að hafa unnið minst 2 ár og 7 mánuði
við smiða- eða véiavinnu, eða, i staðinn fyrir þetta skírteini, vélmeistara-
skírteini, ásamt meðmælum frá meistara eða meisturum þeim er hann
hefir unnið hjá.
M. B. Jessen.
afstöðu Saloniki-hersins. Sókn Bulgara
Hófst fyrir hálfum mánuði og höfðu þeir tii
hennar þrjá fjórðu hluta hers sins að minsta
kosti og höfðu Rumenar þvi gott næði til
þess að draga saman allan sinn her.
Bandamenn hófu þegar öfluga gagnsókn og
hafa unnið talsvert á i miðju og i vinstra
herarmi. En aðalorustan er enn aðeins á
fyrsta (lágu) stigi. Þess ber að gæta að
Kavalla, sem Búlgarar tóku, er utan við
það svæði sem bandamenn verja. Með tökn
borgarianar hafa Búlgaraaðeins lagt undirsig
grískt land, af pólitiskum ástæðum, en það
er enginn hernaðarsigur.
London édagsett.
í gærkvöldi var gerð loftárás á austur-
strönd Bretlands og á London. Voru i för-
inni fleiri évinaloftför, en nokkru sinni áður
hafa gert árás á Englandi sem.
Sprengikúlum var varpað niður á ýms-
um stöðum. Árásinni á London var hrund-
ið og eitt loftfar var skotið niður. Það
brann
London 3. sept.
í loftárásinni i gærkvöldi tóku 13 loftför
þátt og er hún þannig mesta loftárásin,
sem gerð hefir verið á England. Loftfar-
arnir réðust einkum á héruðin á austur-
ströndinni, en förinni mun aðallega hafa
verið héitið til London og ýmsra verksmiðju-
staða i Midland-héraðinu. Loftfararnir
gátu ekki stýrt vélunum beina leið, en svifu
fram og aftur til þess að leila höggstaðar
á þeim stöðum, sem þeir ætluðu að ráð-
ast á.
Að eins þrem loftförum tókst að komast
til úthverfa Lundúna. Eitt þeirra kom til
norðurhluta borgarinnar um kl. 2.15 f. h.,
en varð þegar fundið með leitarljósum og
skotið ákaft á það með fallbyssum og frá
flugvélum. Eftir fáar minútur sást það að
loftfarið stóð i Ijósum loga og féll til jarð-
ar 'mjög skyndilega. Leifar loftfarsins,
grindarrústir, vélar og hálfbrunnir likamir
flugmanna fundust hjá Cuffley, skamt frá
Enfield. Grind loftfarsins var mestmegnis
gerð úr tré og virðist það benda til þess
að skortur sé'orðinn á aluminium i Þýzka-
landi.
Tvö önnur loftför, sem nálguðust Lund-
únaborg voru hrakin aftur áður en þau
kæmust til miðrar borgarinnar.
London 4. sept.
Dar Salaam, fyrrum höfuðborg i þýzku
Austur-Afriku, gafst upp kl. 9 i morgun.
Sjóliðsmenn og hermenn vorir hafa sezt
að í borginni.
Erl. símfregnir.
(frá fréttaritara ísaf. og Morgunbl.)
Kaupmannahöfn 3. sept.
Búmenar hafa tekið
skörðin í Siebenbttrgen.
Zeppelinsloftför hafagert
árásir á Bukarest.
Sagt er að Constantin
Grikkjakonungur hafl sagt
af sér.
Grikkir hervæðast.
Hindenburg hefir tekið
við herstjórninni af Fal-
kenhayn á suðausturvíg-
stöðvunum.
Bússar sækja ákaft fram,
Kaupm.höfn 4. sept.
Óeyrðir og vandræði í
Grikklandi.
Konstantin konungur er
veikur og heflr verið skor-
inn upp.
Bretar og Frakkar hafa
dregið saman flota sinn
hjá Piræus og sett þar lið
á land.
13 Zeppelin-loftför hafa
ráðist á austurströnd Eng-
lands.
Zahle stingur upp á því,
að grundvallariögin gangi
í gildi 5. október næst-
komandi.
Ættarnafna-hégóminn.
Alt af kemur eitthvað nýtt I —
Mikið er það vald, sem hégómafýsn-
in hefir yfir hugum og gerðum manna.
Og mikil seiðmögn liggja í útlendu
tizkutildri. Við höfum reynslu, sem
staðfestir þessi og þvílík ummæli.
Grátbroslegt er að hugsa til þess, að
jafavel þeir menn, sem virtust vilja
vernda okkar góða mál og halda því
frá spillingu, jafnvel þeir geta fengið
af sér að Ijá ættarnafna-hégómanum
lið sitt. Það er nógu gaman að at-
huga samkvæmnina(l), sem kemur
fram hjá ýmsum svonefndum mála-
»púristum* um þessar mundir. —
Við höfum lesið i blöðum og bók-
um miklar og magni þungrar vand-
lætingaræður um eiginheiti manna,
nafnskrípi, sem ýmsum háum herr-
um þóknast að kalla svo. En rétt
um sama leyti kemur svo ættarnafna-
óskapnuðurinn fram. Og hvað er
þá? — Þá er tekið á móti þeirri
furðu með fagnaðarlátum og opnum
örmum. Nú keppast menn við að
klina á sig hverju nafnskrípinu eftir
annað, og þykir heiður að!
Sögum og málvenju íslenzkunnar
er ekki skeytt. Útlenda hégóma-sið-
venjan er metin meira og það þó
að tilkoma hennar hér gangi í ber-
högg við bezta arfinn okkar: málið!
Ó, — þið misvitru Njálar! — Þið
syndgið gegn heillögum anda mál-
rækninnar og, þar með þjóðrækn-
innar! — — Mikið er búið að rita
um þessi ógeðslegu islenzku ættar-
nöfn. Helzti málsvari þeirra, sem
komið hefir opinberlega fram, er dr.
Guðm. Finnbogason. Röksemdir
hans hafa birst í »Isafold«. Þær
eru i mesta máta veigalitlar, svo sem
von er á. Þetta mál verður ekki
rökrætt með heimspekilegum orða-
vafningum Árni Pálsson hefir ritað
á móti Guðmundi, sömul. í »ísaf.«.
Farast honum þar vel orð, og virð-
ist hann alveg kveða andmælanda
sínn í kút rakaskorts og svara. _
Ýmsir hégómans »attaníossar« hafa
vappað á stjá í dagblöðunum í
Reykjavík, og reynt að veita ættar-
nöfnunum liðsinni, með fátæklegu
og aumlegu háði um mótstöðumenn
þeirra. Við þá andlegu smásveina
er ekki vert að tala. Þeir hafa ekki
annað í pokahorninu en vatnsbyssur
og froðu.
Nú eru komnir fram á sjónar-
sviðir herra »Viðar, herra »Bjarnar«
og fleiri þvílíkir náungar. Hvernig
lizt ykkur á þetta? — Maigir enn
þá glæsilegri, kumpánar eiga eftir að
koma fram fyrir Frónbúans undr-
andi augu I Hvað skyldi nú Konráð
hafa sagt? — Eða Jónas? — Ætli
þeir mundu syngja þessum tímans
táknum lof og dýrð ? 11 Dr. Alex-
ander Jónannesson hefir skrifað ágæta
ritgerð í »ísafold«, viðvíkjandi ættar-
nöfnunum, eða öllu heldur skrifi
Guðm. Finnbogasonar nm þau. —
Ritgerð sú er mjög góð: hógvær,
nákvæm qg rökstudd, enda virðist
dr. Alexander vera efni í bezta vís-
indamann, — gerhugull og víðsýnn.
Við íslendingar þyrftum að eiga
mikið af slíkum mönnum. Minna
af þeim sem flauta út í loftið, hvar
sem stendur, og fljóta alt af á yfir-
borðinu, og vita svo aldrei hvað á
botninum býr!
Eg skrifa ekki þessar linur til að
sannfæra menn um skaðsemi ættar-
nafnanna. Til þess er eg ekki fær.
Og að hinu leytinu eru fram komin
svo mörg og mikil skýrteini, sem
skýra mál þetta, frá báðum hliðum,
að vel er fært að mynda sér ákveðna
skoðun á því. Eg vildi að eins
hvetja menn til að kvnna sér þau
rök og gera mitt til að þessi ættar-
nafnaósómi fái maklegar viðtökur.
Hann ætti að fara í gapastokkinn I
Málið okkar er dýrmætt, — svo
dýrmætt, að alt það, sem beinlínis
eða óbeinlínis verkar skaðlega og
skemmandi á fegurð þess, á sð réttu
lagi að gera landrækt. — Útlent
tizkutildur á ekki að saurga okkar
dýrasta atf. Óhreinar krumlur eiga
ekki að káfa á þeim helgidómi. —
Allir sannir íslendingar eru vissulega
á einu máli um þetta. Þetta er i
raun og veru það tilfinningamál,
sem ekki á að verða fyrir háði og
hleypidómum. Meðmælendur ættar-
nafnanna játa, að enga nauðsyn beri
til að innleiða þau hér. — Gott —
en með þessu játa þeir, að þ'að sé
ekkert annað en hégómafýsn, elting-
arleikur einskisverðrar tizku, sem hér
á hlut að máli.
Þeir detta um sjálfa sig, þeir þjóð-
ræknu mennl — — Málvinir, —
við skulum gera harða hríð að öllu
því, sem skemmir mál vort, og eins
fyrir þvi, þó að skemdarandarnir séu
»kallaðir fram« af málfræðingum,
skáldum og heimspekingum! —
Natur^ali.
Gullfoss var á ísafirði í gær, átti
þá eftir að koma á
Onundarfjörð,
Dýrafjörð,
Bíldudal,
Ólafsvík og ef til vill Sand,
og er því ekki væntanlegur fyr en á
föstudag.
Brezkt lijálparbeitiskip kom hing-
að í morgun. Ókunnugt um erindi
þess og heiti. Húfur hermanna nafn-
lausar.
Stjðrnarráðinu barst skeyti í morg-
un þess efnis, að Bisp, leiguskip
hennar, só komið til New York.
ísland kom hingað á mánudagsmorg-
un. Meðal farþega fráútlöndum: Halldór
Sigurðsson úrsm., Páll Stefánsson stór-
kaupm., Jón Sveinbjörnsson kammer-
junker |og skrifstofustjóri, Fr. Nielsen
umboðssali, Ólafur Þorsteinsson læknir
og kona hans, jungfrú Sigr. Stephen-
sen, frú Kristjana Thorsteinsson o. fl.
Frá Vestmannaeyjum komu Bogi Ólafs-
son kennari, Bjarni SÍghvatsson o. fl. —
Skipið á að fara vestur á morgun.
Sigurjón Sumarliðason póstur hef-
ir sagt lausu starfi sínu (fór milli
Akureyrar og Staðar), og við því tek-
ið Kristján Jóhannesson frá Jódísar-
stöðum í Eyjafirði.
Síra Guðmundur Guðmundsson
frá Gufudal er orðinn fríkirkjuprestur
í Bolungarvfk í stað síra Páls Sigurðs-
son.
Bæjarbruni.
Síðastliðinu föstudag kviknaði eld-
ur í ibúðarhúsinu að Ketilvöllum i
Laugardal, og brann það til kaldra
kola. Afspyrnurok var á, og hyggja
menn að kviknað hafi út frá ofn-
pipu. Áfast við ibúðarhúsið, sem
var lítið, var skemma, og brann hún
og. En það tókst að verja heyhlöðu,
sem þar er skamt frá.
Öllum innanstokksmunum var
bjargað. Húsið var vátrygt i vá-
tryggingarfélagi sveitabæja.
Veðurskýrslur.
Laugardaginn 1. september.
Vm. n. kaldi, hiti 51.
Rv. n. kaldi, hiti 6.1
ísafj, logn, hiti 3.0
Ak. n.n.v. stinnings gola, hiti 5.0
Gr. n.v. kul, snjór, hiti 0.5
Sf. n.a. stinnings kaldi, hiti 5.5
Þórsh., F. v. kaldi, hiti 11.0
Sunnudaginn 3. september.
Vm. a. kaldi, hiti 8.9
Rv. a. kul, hiti 5.2
ísafj, v. kul, hiti 6.1.
Ak. s. gola, hiti 3.5
Gr. s. andvari, hiti 3.2
Sf. logn, hiti 4.0
Þórsh., F. s.a. gola, regn.hiti 7.5
Mánudaginn 4. sept.
Vm. a.n.a. andvari, hiti 6,2
Rv. a. andvari, hiti 4,8
ís. logn, hiti 3,6
Ak. logn, hiti 5,0
Gr. s. kul, hiti 4,2
Sf. a. kaldi, regn, hiti 6,1
Þh. F. s.a. kul, hiti 10,7
Þriðjudaginn 5. sept.
Vm. v. kaldi, hiti 8.3
Rv. s. gola, hiti 8.2
íf. v. hvassviðri, regn, hiti 9.3
Ak. ssv. kaldi, hiti 11.0
Gr. ssv. kaldi, hiti 7.5
Sf. logn, regn, hiti 11.7
Þh. F. s. andvari, hiti 9.7
élezf aé augíýsa
i cKsqfolé
Fundur
verður haldinn i kennarafélagi Gull-
bringusýslu fimtudaginn 28. septbr.
næstk., kl. 1 e. h. í barnaskólanum
í Hafnarfirði.
Stjórnin.
Sveitamenn!
Þið, sem viljið fá ykkur reglulega
góða og vel beitta rakhnifa, kaupið
þi hjá mér. — Eg brýni alla hnifa
áður en eg læt þá af hendi.
Eyólfur Jóuksou frá Herru,
Austurstræti 17.
Gluggagler
ódýrast
í Verzl. VON,
Laugavegi 55.
Nærsveitamenn
eru vinsamlega beðnir að vitja
Isatoldar í afgreiðsluna, þegar
þeir eru á ferð í bænum, einkum
Mosfellssveitarmenn og aðrir, sem
flytja mjólk til bæjarins daglega.
Áfgreiðslw? opin á hverjum virkum
degi kl. 8 á morgnana til kl. 8 i.
kvöldin.