Ísafold - 09.12.1916, Page 3
I SA F O L D
Nú mun enginn þingmanna óska
þess, að neinar verulegar ályktanir
verði gerðar á aukaþinginu meðan
i/4 hluta þess vantar. En þar sem
ekki er heldur hægt að fresta sjálf:i
þingketningunni, viiðist einasta ráðið
til að komast út úr þessum þing-
manna-vandræðum, að aldursfor-
seti Jresti pinojundum. þegar búið er
að skipa þingmönnum í kjördeildir,
unz allir pingmenn eru kornnir. Þá
daga má svo auðvitað nota til ucd-
irbúnings þinghaldsins á ýmsan hátt,
þótt eigi sé haldnir beinir þingfundir.
ReykjaYíinr-annáll.
Kvóldskenitnn. Bjarni Björnsson
skopleikari hefir efnt til kvöldskemt-
ana í Bárubúð bæði fimtudagskvöld
og í gærkvöld —við afarmikla aðsókn.
Skipafregn.
Gullfoss kom til Kaupmannahafnar
þ. 4 des.
Botnia fór frá Leith í fyrradag.
Getur sennilega ekki komið hingaðfyr
en á fimtudag eða föstudag í næstu
viku.
Ceres kom að vestan í fyrradag
með eitthvað um 100 farþega, m. a.
bræðurna Kristján og Pál Torfasyni.
og Oscar Clausen verzlunarm. Skipið
fer héðan í dag.
ísland fór frá Eskifirði til útlanda
f miðri vikunni.
Breiðafjarðarbátnrinn nýi »Svan-
ur<( kom hingað fyrsta sinni á mið-
vikudaginn með nokkra farþega að
vestau. Báturinn er 67 smálestir að
stærð, vélin hefir 80 hestöfl, og fer
báturinn 8—9 mílur á vöku.
Bæjarskráin. Vér viljum vekja
athygli á auglýsingunni um Bæjar-
skrána hér í blaðinu, og mælast prl-
þess, að stjórnir allra félaga nrani
eftir að senda útgef. umbeðna sk/rslu
fyrir miðjan mánuðinn.
Messað á morgun í fríkirkjunni í
Hafnarfirði kl. 12 á hád. síra Ól., Ól.
og í fríkirkjunni í Reykjavík kl. 5
síðdegis slra Ól. 01.
Brunabótafélagið
1 sambandi við greinina um
Brunabótafélag íslands hér í blað
inu, biður framkvæmdarstjóri
Brunabótafélags íslands oss geta
þess, að forstjóri eins af dönsku
brunabótafélögunum, »Nordisk
Brandforsikring«, hafi reynst sér
mjög vel um ýraislegt, er hann
þurfti til leiðbeiningar við undir-
búning félagsins, þótt hann stæði
fast með hinum dönsku félögun-
um, að vilja eigi endurtryggja
fyrir Brunabótafélagið. Maður
þessi er af.íslenzku bergi brotinn,
eins og nafn hans ber með sér.
Hann heitir Magnusen.
Af Goðafossi
er fréttalaust, annað en það, að
Geir og 2 botnvörpungar eiu á
strandstaðnum að reyna að dæla skip-
ið. Því miður mun enn sem fyr
litil sem engin von um að honum
verði náð út.
Úr bréfi,
rituðu 13. nóv. síðastliðinn úr einu
af keimastjórnark]ördæmmu landsins:
»Eg er að vona og hugga mig
við, að Einar ráðherra hafi komist
að í Árnessýslu.
Garðarshólma geymir örfum
gullnum rúnum sögu, letur
Einars snild í stjónarstörfum,
stærri’ og betri’ en samtíð metur.
Sá mun verða sögunnar réttláti
dómurt.
Fáfækralöggjöfisi.
Aðfinslur og tillögur.
Eftir
Guðm. R. Olafsson
úr Grindavík.
I. Frh.
Þá verður næst fyrir mér II.
kafli laganna, ei hefst með 31.
greininni. Það er framfærslu-
sveitaskiftibálkurinn, sem ræðir
um bútun landsins i fátækrahér-
uð, sveitfesti og þ. u. 1. Afieiðing
hans eru ákveðin i V. kafla, um
viðskifti sveitastjórna, þar á með-
al hinir alræmdu hreppaflutningar,
þar sem menn eru miskunnarlaust
reknir á sína sveit, án tillits til
þess, hvort þeim er það geðfelt
eða hið gagnstæða, (ef fylgt er
ákvæði 69. gr.), likt og stroku-
þrælar voru reknir heim til sín
í fornöld. — Hvar vituð þér al-
valdara réttleysi, herrar mínir og
frúr?!
Þá er að líta á III. kafiann.
Fyrst er 45. gr. Hún er ósköp
sakleysislega, jafnvel góðlátlega
orðuð á pappírnum: »Sveitar-
styrk skal veita á þann hátt, að
gætt sé svo sem verða má hvort
tveggja í einu, hagsmuna fátækra-
félagsins og þarfa, og velferðar
þurfalingsins.* — En hvað er
meir talið eftir og víða skorið við
neglur ejx.sveitarstyrkur? — Það
er svo sem séð fyrir veiferð fá-
tæklingsins með því, að gjöra
hann ómyndugan, fiytja hann
ihreppafiutningi á sína sveit, og
setja hann svo niður hjá þeim,
sem lægst »býður i hann«! Nei,
fyrirgeíið mér, heiðruðu löggjafar.
46. gr. bannar undirboð á fram-
færslu þurfalinga. Fyrirgefið mér
glópsku þá, ef þér haldið, að í
sveitar8tjórnir geti eigi valist
menn, sem kunna að leita hóf-
anna, og leika bak við tjöldin.
En slíkar krókaleiðir rekumst
vér á viðar en hjá sveitarstjórn-
arvöldunum.
Eigi er 47. gr. síður orðuð i
»mildum mannúðaranda*: »Þurfa-
mönnum skal veita styrk á þann
hátt, að styrkurinn sé lagður
þeim á heimili þeirra, eða þeim
komið fyrir á góðum heimilum,
þar sem vel fer um þá, þeír látn-
ir fara á sjúkrahús*), ef læknir
álítur þess þörf, eða þeim loks
komið fyrir á framfærslu- eða
vinnustofnun, sem er undir um-
sjón lögreglustjóra og stjórnarráð-
ið hefir sett reglur fyrir.« En
hver er framkvæmdin allvíða?
Er hún altaf í fullu samræmi við
bókstaf þessarar greinar? Eru það
t. d. eingöngu góðu heimilin, sem
sveitarstyrkþegar eru settir nið-
ur á? Þá væri alt gott og bless-
að um framkvæmd þess ákvæðis.
En eg er skelfing hræddur um,
að þar sé ekki »á visan að róa«.
— Get eg sannað það? — Ó, það
held eg reyndar.
Það eru eigi nema 2—3 ár síð-
an, að einn af læknum þessa
lands var á ferð í héraði síuu,
sem er mjög víðáttumikið. Kom
hann þá af tilviljun auga á sveit-
arbarn á bæ einum, er varð á
leið hans. Barnið var um ársgam-
alt að mig minnir, og hafði því
verið komið þarna fyrir skömmu
*) Algeng m&lTÍlla. fyrlr: i sjúkrahns.
Fer illa á slíknm bögnmælum i lögnm
þjóðarinnar.
Aðalfundur
Fiskifélags Islands
verðnr hadinn í húf=i K. F. U. M. í Reykjavik þ. 10. febrúar 1917 kl.
6 e. h. A fundinum gerir stjórnin grein fyrir hag félagsins og gerðum
á hinu liðna ári, bomar upp fyrir fundinum til samþyktar lagabreytingar
þær, er siðasta fiskiþing samþykti. Kosnir 4 fulltrúar til að taka sæti á
fiskiþinginu.
Rædd ýms önnur mál, sem upp kunna að verða borin.
Díildarféiögum er heimilt að senda fulltrúa á fundinn samkvæmt 18
gr, íélagslaganna.
Stjórnin.
eftir fæðinguna. Lækni virtist
athugavert útlit barnsins og skoð-
aði það, án þess að hann væri
beðinn, og hafði hans aldrei ver-
ið leitað til þess. Það var þá alt
orðið skakt og bæklað af bein-
kröm, og sýkin komin á það
stig, að lækningar var engin
kostur, en hefði læknis verið
leitað í tíma* var góð von um
bata að mestu eða öllu leyti.
Hið eina, sem læknir gat og
gjörði, var því að reka hrepps-
nefndina til að útvega barninu
betri og gjörhugulli samastað
eftirleiðis. — Saga þessi er áreið-
anleg, því að læknir sagði mér
hana sjálfur. Þetta er þó að eins
dæmi, að vísu tekið af verri end-
ánum.
Það er, sem betur fer, svo
mikið til af góðum heimilum, þar
sem mönnum þykir skömm að að
fara illa með niðursetninga, ekki
sízt ómálga börn, að hjá því get-
ur ekki farið, að margir þeirra
lendi í bærilegum höndum, jafn-
vel í ágætisstöðum, þar sem þeim
er sýnd ástúð og farið með þá
eins og sjálfbjarga menn; en það
er ekki framkvæmd laganna al-
ment að þakka, eða eftirlitinu
með þeim. Um atlæti og viðmót
við styrkþegana er fátt um skýrsl-
ur. Þó kom sú fregn í blöðunum
fyrir fáum árum, að umkomu-
laus drengur var drepinn af harð-
rétti. Það er raunar einsdæmi nú
orðið, að likaminn sé deyddur.
Sálarkvalirnar er erfiðara að
mæla. Og þó að vér sleppum al-
veg meðferð fyrri alda og ára
tuga á munaðarlausum niðursetn-
ingum — hver yðar getur frætt
mig á því, hvor fleiri eru, góðu
eða löku og afleitu heimilin, sem
sveitarbörnin og sveitlægu gamal-
mennin gista' i kvöld? Eða má eg
spyrja: Hver hefir eftirlit með
því? — Athuguli gestur, sem víða
hefir augu! Vilt þú ekki »segja
mér að sunnan® eða norðan: Hvort
sást þú sveitarungling oftar glaðan
eða hryggan, oftar brosa eða tár-
ast? — Eg vona að svarið geti
orðið lögum og landi til sóma.
Brosið er einkenni hinnar frjálsu
æsku. Þunglyndið er henni ó-
eiginlegt og tortímir henni. >Dap-
urt geð skrælir beinin.*
Auðvitað er læknis vitjað til
þurfamanna jafnfljótt og annara,
til niðursetningsins engu síður en
húsbóndans, og hann svo fluttur í
s júkrahús, ef þörf gerist, og reynt
að hjúkra honum eftir mætti,
bæði heima hjá sér og í* stóra
húsinu í Landakoti. Eða hver ef-
ast um það? Eg get raunar ekki
rent beinkrömssögunni og fleirum
kyndugum sögum niður eins og
nýmjólk; en það er nú líklega
af sérvizku.
Að endingu gerir greinin ráð
fyrir »framfærslu- eða vinnustofn-
un, sem er undir umsjón lögreglu-
stjóra og stjórnarráðið hefir sett
reglur fyrir«. Þarna er þó drep-
ið á dálítið, sem vit er í. Það
er óneitanlega réttara að afla
mönnum atvinnu, heldur en að
»setja þá á sveitina«, ef annars
er kostur að hjálpa þeim til að
bjarga sér á eigin spýtur, fremur
en að gera þá að ómyndugum
þurfalingum. Og þó svo sé, að
þeir þurfi frekari hjálpar við,
ætti fyrst og fremst ávalt að
byrja á því, að sjá þeim fyrir
atvinnu, sem er við þeirra hæfi,
0g hvetja þá á allar íundir til að
bjarga sér sjálfir. En svo er hér
eins og víðar, að annað er það,
sem er, og hitt, sem á að vera.
Stjórnarráðið hefir víst fengið að
halda kröftum sínum óskertum
af reglugerðarsamningum fyrir
vinnustofnanir handa févana at-
vinnuleysingjum, og eftirlitsstarf
lögreglustjóranna með þeim hefir
varla um of eytt afli né tíma
þeirra. Það er þó lítið menning-
ar eða fjáraflabragð, að svifta at-
vinnulausa menn opinberum rétt-
indum og sletta svo í þá fé frá
öðrum, í stað þess að sjá þeim
fyrir nægri vinnu, og lofa þeim
að vera óskertum mönnum, eins
og hinum.
Eg hygg, að eigi megi draga
lengur, að koma á fót fjölbreytt-
um fyrirtækjum, sem veiti margs-
konar atvinnu, er sé við hæfi
sem allra flestra að unt er, og
veiti þeim atvinnu, er með þurfa.
Landssjóður ræki elíkar verkstofn-
anir, eða hafi ella svo mjög hönd
í bagga með þeim, að iandstjórn-
in ráði öllum framkvæmdum.
Fjölmörg framleiðsla getur kom-
ið til greina; en þess sé vandlega
gætt, að hver fái það starf, er
honum lœtur bezt.
Til eru átakanlegar iýsingar
úr sögu þrælasölunnar, þar sem
segir frá uppboðum, þá er menn
voru leiddir frain og seldir. Fað-
ir svörtu fjölskyldunnar var seld-
ur í suðurátt, móðirin, konan
hans, langt norður í land, og
börnin þeirra austur og vestur,
eitthvað út í buskann. Þau sáust
oftast aldrei framar. Oss blöskrar
grimd þrælakaupmannanna, er
tvístra fjölskyldunum og þerra
tár foreldra og barna með svipu-
höggum, og lofum guð fyrir, að
svörtu þrælasölunni er að mestu
útrýmt. Vér myndum og telja
þann mann varg í véum, sem
verzlaði með mannakjöt. Slík at-
vinna myndi fylla öll óspilt hjörtu
megnasta viðbjóði. Þó er enn í
lögum vorum leyft að sundra
fjölskyldum, og það viðgengst enn
fram á þenna dag, án þess að
þær hafi annað til saka unnið,
en að vera fjárhagslega upp á
aðra komnar, þurfa að biðja um
sveitarstyrk; og enn er víxlun
og verzlun með lifandi menn —
ekki líkami dáinna manna —,
sem eru svo óhepnir, að hafa
ekki næga peninga. Farisearnir
»síuðu mýfluguna, en sulgu úlf-
aldann«, sagði Kristur; og vér
látum oss nægja, nærri 1900 ár-
umsíðar,að hafaskömm á»prangi«
á steindauðum mannabúkum, en
lögleyfa flæking á lifandi mönn-
um í sparnaðarskyni, smyglibrask
undir fölsku nafni. Sér er nú
hver samkvæmnin!
»Þú talar sem fávísar konur
tala,« sagði Job, er honum virtist
húsfreyja sín mæla staðleysu
stafi. Eg býst gjarna við, að ein-
hverjum ykkar verði líkt á munmý
er hann les þessi ummæli, þar
sem eg eigi þó að vita, að undir-
boð sé nú bannað, og lögin raæli
svo fyrir, að þurfamönnum sé
»komið fyrir á góðum heimilum*.
Eg kannast við lagabókstafinn;
en hitt legg eg undir dóm kom-
andi kynslóða og beztu manna
yfirsýn, þeirra, er nú lifa, hver
framkvæmdin er víða. Og þar er
lögin leyfa sundrun heimila, þótt
fjölskyldurnar »lifi saman í ást
og eindrægni«, þá er ekki góðs
að vænta. Flogið hefir fyrir saga
eigi als fyrir löngu, — að sumu
leyti mætti líklega kalla hana
skrítlu —, er segir frá oddvita,
sem reið bæ frá bæ, til að koma
fyrir ófæddu barni, fyrir sem
minst meðlag, því að foreldrarnir
voru á sveitinni, og barnið var
rifið frá móðurinni í blóðbönd-
unum, að því er mér er sagt.
Þess má geta, að foreldrarnir
voru hjón. En þótt eg telji hjóna-
bönd nauðsynleg, ekki sízt vegna
barnanna, þá mun fáum bland-
ast hugur um, að jafnranglátt er
að börnin gjaldi, hvort sem þau
eru skilgetin eða eigi. Það mun
þó oft hafa »brunnið við«, að
börn hafi goldið faðernis eða móð-
ernis. Og erfðalögin styðja það
misrétti á hlægilegan hátt, og þó
grátlegan sökum þeirra, er mis-
réttið líða. Frh.
Erl. símfregnir
frá fréttaritara Isaf. og Morgunbl.).
Kaupmannahöfn 7. des.
Orusturnar í Aþenuborg
eru nu á enda.
Bandamenn hafa lagt
uudir sig ýmsa þýðingar-
mikla staði í Grikklandi»
Asquith hefir sagt af sér.
Þjóðverjar hafa unuið
sigur hjá Argosul.
Þýzkir kafbátar hafa
sökt þremur skipum f
nánd við Madeira.
------— ■ ia»----
Nærsveitamenn
eru vinsamlega beðnir að vitja
Isafoldar í afgreiðsluna, þegar
þeir eru á ferð í bænum, einkum
Mosfellssveitarmenn og aðrir, sem
flytja mjólk til bæjarins daglega.
ÁJEgteiðskf opin á hverjum virkum
degi kl. 8 á morgnana til kl. 8 ás
kvöldin.