Ísafold - 10.03.1917, Page 2
2
ISAFOLD
Leikfélaginu er sæmd að því,
hversu vel Nýársnóttinni er komið
í kerfi á leiksviðinu mi, sennilega
betur en nokkru sinni áður.
Leikurinn er miklu meira fyrir
augað en eyrað — rétt eins og
Álfnóll Heibergs. Sjálft er leikritið
upphaflega búið til af tvítugum
sveita-skólapilti — fýrir meira en
mannsaldri (37 árum), og því ekki
furða þótt það, á ýmsa lund, beri
vott full-þroska-skorts, Ea víst er
um það, að eicdregið snertir það
viðkvæma samúðar-strengi alþýðunn-
ar — án þess í *neinu atriði að
þjóna skrílskendum. Það er vist, að
Nýársnóttin á langa lífdaga fyrir
höndum á íslenzku leiksviði, þótt
játa verði, að eigi hafi í sér fólgna
þá kosti, sem þykja tilheyra leik-
sviðslistarviðleitni vorra daga.
Nokkurir nýir leikendur fá að
spreyta sig fyrsta sinn á leiksviðinu
í Nýársnóttinni. Þar á meðal elsk-
hugarnir i leiknum, og er um bæði
það að segja, að mega með meiri
þroska og æfingu að góðu liði koma.
Þá hefir leikfélaginu og bæzt leik-
andi í þeim er leikur Svartáif þræl
(Eyólfur Jónsson rakari). Er þar auð-
sær leik-áhugi, sem' vel má verða
Leikfélaginu ábati á sinu sviði.
»Geta ber og Guðmundar« stend-
ur þar. Og eigi má svo við þess-
ar linur skiljast^ að eigi sé minst
frú Halldóru Vigfúsdóttur, sem enn
af nýju sýnir, að henni er trúandi
fyrir að ljúga ekki á leiksviðinu,
heldur eiga i fórum sínum fyrirtaks-
leikgáfu — eitthvað svo dæmalaust
»trúverðugt«, sem greinilega hefir
sýnt sig, bæði í Syndam annarra í
ömmuhlutverkinu og nú i Nýárs-
nóttinni.
Svo er um leiksýningar hér i bæ
sem annað, að »í dýrtíðinni« verð-
ur að »láta tilganginn helga meðalið*,
þ. e. tjalda því, sem líklegast er til
að »ganga í fólkið*. Er það ekki
nema eðlilegt, að um það sé aðal-
lega hugsað — á þessum tímum.
En þó — I Mættum við ekki vænta
þess, að Leikfélagið sæi sér fært —
að lofa okkur áhorfendum að sjá eitt-
hvað nýtt, sem verulegt braqö væri
að og gefa þeim, sem í félaginu starfa
— ný hlutverk, sem kveikt gætu í
þeim löngun til að: spreyta sig.
Eoo.
----"iit- ............
Iþröttafél. Reykjavíkur
10 ára.
Á morgun, n. marz, eru 10 ár
liðin frá því að íþróttafélag Reykja-
víkur var stofnað. Er það nú elsta
og fjölmennasta íþróttafélag á íslandi,
meðlimir um 200 alls. Það hefir
ætíð haldið uppi leikfimisæfingum á
vetrum frá því það var stofnað, og
aukist ár frá ári. Fyrrti kennari fé-
lagsins var Andreas Bertelsen, er var for-
stjóri klæðaverksmiðjunnar. Iðunnar.
Var hann áhugasamur mjög og kendi
félagsmönnum ókeypis fyrstu árin.
Nú hefir félagið þrjá kennara ogstarfar
í sex flokkum. Fyrst framan af var
að eins einn flokkur í félaginu, en
1913 var stofnaður flokkur fyrir «ng-
linga. 1915 var stofnaður flokkur
fyrir eldri menn (svokallaður Menta-
mannaflokkur eða »01d Boys«). 1916
voru stofnaðir 3 flokkar, fyrir konur
eldri en 16 ára, fyrir drengi og fyrir
stúlkur innan þess aldurs.
Húsbyggingarsjóður var stofnaður
í fyrra að tilhlutun hr. yfirdómslög-
manns Sveins Björnssonar. Var það
gert vegna þess að stöðugt kreppir
meir og meir að félaginu hvað hús-
rúm snertir og er það alveg undir
hælinn lagt hversu lengi það fær að
nota leikfimishús Mentaskólans, sem
það notar nú aðallega. Sjóður þessi
er heldur fátækur enn og ættu þeir,
sem ráð hafa á og íþróttum unna
að styrkja hann með fégjöfum, þvi
þar er gefið góðu málefni og iþrótta-
mönnum vorum hjálpað til þess að
fá viðunandi húsnæði.
Leimfimissýningu hélt félagið fyrst
5. júní 1910 í Barnaskólagarðinum
og þótti takast vel. Siðan hefir það
haft sýningu nærfell á hverju ári.
Til þess að minnast 10 ára afmæl-
isdags félagsins koma félagar allir
saman á Nýja Landi á morgun, en
aðalafmælisfagnaðurinn verður i Iðnó
á miðvikudaginn kemur.
-----T -----!
Sjúkrasamlag Iieykjavíkur hélt
aðalfund sinn síðastliðiö mánudags-
kvöld. Sökum fólaga-fæðar á annan
bóginn og ofmikílla veikinda samfara
dyrtíðinni, stendur hagur samlagsins
ekki eins vel og vera bæri. En um
að kenna tómlæti þeirra, sem »vita
ekki hvað þeir eru að gera,« er þeir.
fresta um e i n n d a g að ganga í
samlagið.
Stjórn eamlag3Íns var endurkosin,
nema hvað Steindór Björnsson kennari
kom í stað Guðm. Björnson land-
læknis, sem aftur var kosinn heiðurs-
félagi ásamt þeim síra Ólafi fríkirkju-
presti og Tryggva Gunnarssyni.
Nokkuð hafa tillög samlagsmanna
hækkað s^o sem vonlegt er og óhjá-
kvæmilegt á þessum tímum.
Úthlntun nauðsynjavara. Bæjar-
búar notfæra sór dyggilega nauðsynja-
vöru-miðana, sem bæjarstjórn lætur
afhenda daglega — til þess að ná sór í
kol, steinolíu og sykur. Sykurskamtur-
inn hefir nú verið færður niður um
þriðjung.
Rausnargjof barst Landsspítala-
sjóðnum nýlega frá manni, sem eig
vill láta nafns getið, 1000 krónur.
Kviksögnr hafa gengið um bæinn
um, að Valurinn, danska landhelgis-
gæzluskipið, væri fenginn til að flytja
póst og farþega frá Kaupmannahöfn
hingað. En enginn flugufótur hefir
enn fundist fyrir þeirri fregn.
Skipafregn. Þ ó r, botnvörpungur fiski-
veiðahlutafélagsins Defensor kom, öll-
um á óvart, til Seyöisfjarðar á mánu-
daginn. Hafði fengið leyfi brezkra
stjórnarvalda til að fara beint hingað
frá Kaupmannahöfn, póst- og farþega-
laust. Einn hinua skrásettu háseta er
Þórður Sveinsson fyrv. póstafgreiðslu-
maður. Þór fór frá Seyðisfirði norður
um land og tók saltfarm á Akureyri.
Er væntanlegur hingað í dag.
Skipin Activ og Are hafa ný-
verið komið hingað frá Englandi, og
munu þá að mestu taldar siglingar til
Islands á þessum eíðustu og verstu
tímum.
Messað á morgun í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði kl. 12 (síra Ól. Ól.). Messu-
fa.ll í Fríkirkjunni í Beykjavík, en aðal-
fundur safnaðarins haldinn kl. 5 síðd.
í kirkjunni.
í Dómkirkjunni kl. 12 (síra B. J.).
Kl. 5 8Íðd. (síra Jóh. Þork.).
ÚtflntnÍBgsbann Atvinnumálaráð-
herrann hefir 1. þ. m. gefið út svo-
hljóðandi reglugerð um útflutnings-
bann á /msum vörum: »Bannað er að
flytja út úr landinu eða selja úr land-
inu allar aðfluttar nauðsynjavörur, svo
sem matvæli, veiðarfæri, salt, kol, stein-
ol/u 0. s. frv. Eun fremur er bannað
að flytja út úr landinu eða selja úr
landinu smjör, sem framleitt er hór á
landi. Þó er heimilt að birgja upp skip,
sem sigla frá íslandi, til næstu er-
lendrar hafnar, sem þau ætla að koma
á. Brot gegn fyrirmælum 1. gr. varða
sektum frá 500 til 5000 kr., og auk
þess skulu hinar afhentu vörur teknar
aftur. Fer um mál út af brotum þess-
um sem um almenn lögreglumál. Reglu-
gerð þessi öðlast gildi þegar í stað og
fellur jafnframt úr gildi reglugerð 6
ágúst 1914, um ráðstafanir til að tryggja
landið gegn hættu, sem stafað geti af
ófriði í Norðurálfu, samkvæmt lögum 1.
ágúst 1914.
----- ----------------
Um álit launanefadarimiar
og heilbrigðismál voi,
Eftir Árna Árnason, lækni í Dalasýsln.
»Credo ego vos jndices mirsri
qnidsitijnod qnnm tot snmmi
oratores hominesqne nobilis-
simi hic sedeant ego potis-
simns snrreierim, qni neqne
aetate neqne ingenio neque
anctoritate sit cnm iis, qui
hic sedeant comparandns.*
C i c e r o.
Milliþinganefndin í launa- og eftir-
launamálinu hefir nú birtt álit sit, og
er það stór bók. Um efni hennar
hefir áður verið nokkuð getið í blöð-
unum, og skal það ekki rakið hér.
Einnig hefir verið fundið að gerð-
um hennar að ýmsu leyt.i, en eg
hef ekki séð litið á áiit hennar frá
lækna sjónarmiði aðallega. Efni þessa
máls á að verða það, að geta um
og athuga þau atriði í nefndarálitinu,
sem sérstaklega fjalla um heilbrigðis-
málin og læknastéttina. Þetta er aðal-
lega að finna í bókinni I frumvarpi
til laga um laun embættismanna með
athugasemd (bls. 190—242) frv. til
laga um skipun læknishéraða o. fl.
með aths. (bls. 261—271) og víðar
á stangli. Fyrst skal skýrt frá helztu
tillögum nefndarinnar, að því er
kemur til lækna.
Landlækni eru ætluð 3Ó00 upp í
4500 kr. laun. Læknishéruðum, utan
Reykjavíkur, er skift í 3 flokka og
eru launin í þeim héruðum, sem
launanefndin (hér eftir skammstafað
lnfd.eðalnfdin)telut bezt, i2ookr.; þau
eru 9. Launin í 9 lökustu héruðun-
um eru 1800 kr., en í hinum öll-
um 23 eru þau 1500 kr. eins og
nú. Héruðum er fækkað um 5, svo
að þau verði 42. Þau 5, sem leggj-
ast eiga niður, eru Flateyjarhérað,
er sameinist Reykhólahéraði, Naut-
eyrarhérað, er sameinist ísafjarðar-
héraði, Reykjarfjarðarhérað, er sam-
einist Hólmavíkurhér., Höfðahverfis-
hérað, er skiítist á milli Svarfdæla-,
Akureyrar-, Reykdæla- og Húsavíkur-
héraða, og Axarfjarðarhérað, er legg-
ist við Þistilsfjarðarhérað, en 1 hrepp-
ur úr því héraði til Vopnafjarðar-
héraðs. Holdsveikralæknisembættið
falli niður, en héraðslæknir í Reykja-
vík gegni því jafnframt og fái
2800 kr. upp í 4000 kr. laun, eða
meðallaun 3400 kr. Geðveikralæknir
og Vífilstaða fái báðir jafnt, 2400
upp 1.3600 kr.; áætluð meðaKaun
3120 kr. Laun héraðslækna eiga að
vera föst, ekki að fara hækkandi,
með því að læknar þurfi strax á full-
um launum að halda. Nefndin vill
breyta ferðataxta lækna þannig, að
borgunin verði hærri fyrir stuttar
ferðir, en nú er. Fyrir 1 kl.st. sé
borgun 2 kr., fyrir ferð í 2 tíma
1 kr. 25 aura um tímann, en 3
tíma 1 kr. um tímann o. s. frv.
niður í 50 au. um tímann fyrir 10
kl.tíma ferð. »Ef læknir erað heim-
an meira en 10 stundir, en ekki
yfir sólarhring, greiðast honum 6 kr.«
En síðan fær hanu 25 aura — tuttugu
og fimm aura — um timann, en
hálfu hærra gjald að nóttu. Þetta er
um ferðir í einstakra manna þarfir,
en taxti fyrir ferðir i þarfir hins
opinbera á að vera óbreyttur. Enn-
fremur er óbreytt ákvæðið um gjald-
skrá. Launanefndin vill ekki gera
tiilögur um laun augnlæknis, og vill
fella burt styrk til tannlæknis og
hálslæknis. Kenslu þá, sem háskól-
inn missir við breytinguna, á að
jafna upp á hagkvæmasta hátt.
Af öðrum atriðum, er taka tilallra
embættismanna, má nefna, að eftir-
laun á að afnema, en í staðinn komi
lífeyristrygging, og skal stofna líf-
eyrissjóð, er embættismenn skulu
teggja í árlega, og fá, að afloknu
starfi ákveðna upphæð fyrir hvert
þjónustuár. Þessar upphæðir fara
eftir launahæð, og skal gjalda af
1500—2jookr. launum (ffestithéraðs-
læknar) kr. 74,40 á ári, en styrkur
síðar fyrir þetta gjald, nemur 40 kr.
árlega fyrir hvert þjónustuár.
Þau atriði, sem nefndin kveðst
fara eftir við ákvörðun launanna,
eru: 1. hve mikinn undirbúning
starfið heimtar, 2. hve vandasamt
embættið er, og mikilsvarðandi fyrir
þjóðfélagið, 3. hvort starfinu er sam-
fara mikil peningaábyrgð, 4. hvort
starfið heimtar alla starfskrafta
embættismannsins, og 3. hvort starf-
ið er slitsamt og erfitt. Þessi fimm
atriði má nefna rr.ælisnúru nefndar-
innar og verður vitnað í þau síðar.
En lauminum er ætlað að upp-
fylla efúrtöld skilyrði: 1. að embættis-
maður geti lifað sómasamlega af
laununum, 2. að embættismenn fái
endurgoldinn þann kostnað, sem
ætla má, að þeir jafnaðarlega hafi
orðið að leggja fram, til að búa sig
undir embættið, 3. að embættismenn
geti trygt sér nokkurn lífeyri til
styrktar, ef hann þarf að sleppa
embætti fyrir elli sakir eða vanheilsu,
og 4. að tekið sé í laununum hæfi-
legt tillit til þeirrar ábyrðar og vandi,
sem embættinu fylgir.
Af þeim atriðum, sem nefnd eru
hér að framan, sleppi eg því, að tala
um breytingartill. nefndarinnar um
kenslu við læknadeild háskólans,
breytingar á starfsviði héraðslæknis
Reykjavíkur og tillögurnar um sér-
fræðingana. Það, sem eg ætla að
Hta á, eru tillögur launanefndarinnar
um kjör héraðslækna og breytingu
á héraðaskipuninni, fækkun héraða.
Um fyrra atriðið, kjör lækna, þá ætla
eg ekki að athuga, hvort fyrirhuguð
laun séu í sjálfu sér hæfileg, eða of
lág eða of há, heldur hitt hvort
launatillögurnar séu í samræmi við
laun annara embættaflokka og hvort
samræmi sé milli þeirra innbyrðis.
Bæði er það, að atriðið um launa-
upphæðina, ákveðna krónutölu, er í
sjálfu sér minna um vert og svo
hitt, að eg tel mér enga skyldu og
engan rétt til þess að bera fram
Akveðnar kröfur í því efni; ef þær
kæmu fram, ættu þær að koma frá
læknastéttinni í heild sinni. Og hitt
er aðalatriðið, að fult samræmi sé
á milli allra launs, og að lækna-
embættin séu sett jafnhliða öðrum
embættaflokkum, er telja verður hlið-
stæða. Þá er krafan um ákveðna
upphæð líka jafnframt orðin sameigin-
leg, en ekki lengur sérkrafa lækna-
stéttarinnar.
Efni mitt verður þá í tveim aðal-
köflum, og er
I. kafli: Álit launanefndar um
skipun læknishéraða, en
II. kafli: Alit launanefndar um
kjör héraðslækna. (Framb.)
Miðilssjóðurinn.
Frá V. G..................kr. 10,00
Frá sjúklingi í Vífilsstaða-
hælinu.................— 50,00-
Reykjavík 3. marz 1917.
Har. Níelsson.
Eitrmælj.
Aðfaranótt hins 16. þ. m. drukaðt
bór á höfninni merkismaðurinn Sigurð-
ur Gunnarsson. Foreldrar hans eru
þau hjón Gunnar hreppstj. Andrésson
og Katrín Sigurðardóttir á Hólmum í
Landeyjum. S. G. er fæddur í Háfa-
hól í Holtasveit 17. sept. 1883. Hann
ólst upp með foreldrum sínum fram
að tvítugs aldri, fór síðan til Rvíkur,
þaðan hingað; var nokkur ár við verzl-
un Arna kaupmanns Sigfússonar. —
Margt var S. G. vel gefið; karlmenni
að burðum og listgefiun; málari góður
og teiknari góður, og fagurritari með
afbrigðum, smiður á tró og járn, og
mun hafa getað flest, er hann á annað
borð reyndi, syndur var hann vel; (hið
óhappalega atvik að fótur hans varð
fastur í kænuuni varð orsök í druknun
hans). Dugnaðarmaður og áræðinn, og
vel á vegi efnalega.
Bóklega var hann vel að sór, fremur
vonum, þar sem hann var að mestu
sjálfmentaður; kunni talsvert í tungu-
málum, vel að sér í reikningi, hag-
mæltur vel, dulur í skapi og manna
orðvarastur, en síglaður og viðfeldinn
í viðmóti, manna bónbeztur og skjótur
til að hlaupa undir bagga í bráðri
þörf, þéttur í lund og fastheldinn við
sínar skoðanir hverjar sem voru, eink-
a r vinsssll maður. Við fráfall
hans kom stórt skarð í fylkingar góðra
drengja og uppbyggilegra manua hér,
og er hann öllum harmdauði, og ekki
sízt unnustu hans, Guðbjörgu Jóns-
dóttur.
Og þessi maður ferst svo að segja
uppi undir húsveggjum vorum. Sig-
urður er þriðji uppkomni son-
u r i n n, sem foreldrarnir liafa mist. —
Ef taliu væru öll slys, sem orðið hafa
hór í Eyjum bæði á sjó og landi síð-
astliðin 20—30 ar, þá yrði það löngr.;
saga og raunaleg.
Vestmanneyjum, 30. jan. 1917
Oddg. Gudmundsen.
Dánaríreg’n.
13. jan andaðist í Flatey á
Breiðaíirði ekkjan Ragnheiður'
Jónsdóttir. Hún fæddist á Kinnar-
stöðum íReykhólasveit2.febr.l817
og var því nærri hundrað ára
þegar hún dó. Bróðir hennar
var Sigurður Johnsen, fyrrum
kaupmaður í Flatey. Ragnheiður
kom á 18. ári til Flateyjar og
var þar 8 ár þjónustustúlka hjá
Guðmundi Scheving kaupmanni
og konu hans. Svo giftist hún
Þórarni Þorlákssyni merkisbónda
í Hvallátrum 0g lifðu þau saman.
um 50 ár í ástúðlegu hjónabandi,
en áttu ekki börn, sem upp kom-
ust. Skömmu eftir lát manns síns
misti Ragnheiður sjónina 0g var
blind í 22 ár. Hún var furðan-
lega ern og hress svo að segja
til hins síðasta og dó þjánirigar-
laust. Hún var góð og guðhrædd:
kona, glaðlynd, rólynd og kjark-
mikil. S. J.