Ísafold - 09.06.1917, Page 1
Kemur út tvisvar
í viku. VerSárg.
5 kr., erlendia 7^/j
kr. eða 2 dollarjborg-
ist fyrir miðjan júlí
erlendis fyrirfram.
Lauaasala 5 a. eint
XLIV. árg.
Reykjavik, laugardaginn 9 júni 1917
Uppsögn ^skrlfl.
bundln vlð áramót,
er ógild nema kom-
In bó til útgefanda
fyrir 1. oktbr. og
aé kaupandi skuld-
lau»-vin blaSiS.
39. tölublaö
.
Model 85-4
4500.00
Brúua bifreiðio.
Hér fj.i ð fiið stóra og skrautlega Overland bifreið,
með ölium nýtíjku útbúnaði, setn gefur yður meira fyrir
peninga yðar en nokkur önnur bdreið í heiminum.
Þetta er einmitt sú bifreið sem hentar yður, fjöl-
skyldu yðar og pyngju.
Þvi húo er í alla staði skrautleg, liturinn er fagur-
brúnn, með mjög fínum frágangi. Tjöld og himinn i
sámsvarandi lit, með öllum nútímans þægindum.
í þessari bifreið er hin heimsfiæga Overland 4 cy-
lindera hreifivél, sem knýr áfram fleiri b'.freiðar én nokk-
ur önnur vél af líkri stærð og gerð. Vélin er afar-kraft-
mikil en þó eldneytisspör. Þessi bifreið hefir stór og sver
hjól og langt á milli hjólanna, er þvi mjög þægileg.
Ein af þessum bifreiðutn hefir þegar komið hingað.
Þér munuð hafa veitt henni eftirtekt. Húu er H. F. 5.
Væntanlega koma nokkrar af þessum ágætu bifreið-
um hingað bráðlega.
Tryggið yður í tírra.
Un.boðsmaður vor er:
Jónatan t»orsteinsson, Reykjavík.
The Willys-Overland Company
Toledo, Ohio, U. S. A.
•Reynslan er sannleikur* sagði »Repp« eg
l>óttCaö!>itrari mafiur. Reynsla alheims hefir
dœmt IFordbíla að vera bezta allra bila og
alheims dóm verður ekki bnekt. Af Ford-
bílum eru fleiri A feið i heiminum en af öll-
nm öðrum bíltegundum samaníagt. Hvað
fiannar það ? Það sanuar það. Fordbillinn
er beztur allra bíla enda hefir hann unnið
sér öndvoigissieti meðal allra Bila, hjá öllum
þjóðum og hlotið heiðarsnafnið
Yeraldarvagn.
Fást að eins hjá undiirituðum sem einnig
selur hinar heimsfrægu DUNLOP DEKK og
JSL0NGUR fyrir allar tegundir bila.
P. Stefánsson,
Lækjartorgi 1,
JLlþýðufél bókasatn Templarae. 8 kl. 7—0
bx^ígarstjóraskrifst. opin dapl. 10 -1‘2 og 1—ö
Bajftrfóf’etttskrifstofan opin v. d. 10—1? og 1—5
Bæjargjaldkérinn Laufásv. 5 kl. 10—12 og 1—B
Ífiiandsbanki opinn 10—4.
'SLF.U.M. Lestrar-og skrifstofa Fárd.—10 lf d,
Alm. fundir fid. og sd. 81/* slðd.
Landakotskirkja. Guðsþj. 9 og 6 á helgaxn
Landakotsspitali f. ajúkravitj. 11—1.
Landsbankinn 10—8. Bankasðj. 10—12
íiandsbókasafn 12—8 og 5—8. Útlán 1—8
'L&násbúnaðarfélagsskrifstofan opin frá 12-2
Lanásféhirðir 4—5.
liftöásaíminn opinn daglangt (8—9) virka dafca
helga daga 10—18 og 4—7.
iiifitasafnið (lokað fyrst um sinnj
Wáttúrugripasafnið opið l*/a—2*/a á sunnnd.
Pófithúsið opið virka d. 9—7, sunnud. 9—1.
Samábyrgð Islands kl. 1—6.
Btjórnarráðs8krifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsími Royk,javíkur Pósth 8 opinn 8—12.
Vlfiletaðahælið. Heimsóknftrtimi 12—1
tjóðmenjasafnið opið sd., þrd. og fid. 12—2
IÞjóðakjalasafnið hvern virkan dag kl. )2- 8
og 6—8 siðd.
Vöruverðið og
brezku samningarnir.
í fróðlegri grein, sem S. Carl
Löve útgerðarmaður og skipstjóri
ritar í »Vísi« .5. þ. m. um vél-
bátaútgerð, kastar hann meðal
annara fram þeirri spurningu,
hvort landsstjórnin hafi snúið sér
til Breta um hækkun á samnings-
verðinu á íslenzkum afurðum,
vegna hinnar gífurlegu hækkunar
á aðfluttum vörum síðan á ný-
ári. Margir hafa talið sjálfsagt
að stjórnin færi fram á þetta við
Breta, og mér er kunnugt um, að
landsstjórninni hefir verið bent á
þetta fyrir þó nokkru síðan. Hvað
hefir gerst í því er mér ókunnugt
um.
Hinu geri eg ráð fyrir að slík
málaleitun, ef rétt væri að farið,
gæti baft góðan árangur. Það er
vitanlegt að grundvöllur samn-
inga þeirra sem gerðir voru við
Breta fyrir rúmu ári síðan var
þessi:
Bretar telja sig neydda til þess
af hernaðarástæðum að stöðva
fiutning íslenzkra afurða á þá
staði, sem þær eru bezt borgaðar.
Til þess að kyrkja eigi með þessu
íslenzka framleiðslu, vilja þeir
skuldbinda sig til að kaupa þann
hluta framleiðslunnar, sem heftur
er því verði að islenzkum fram-
leiðendum sé trygður sanngjarn
hagnaður af framleiðslunni.
Þetta er rauði þráðurinn í sam-
komulaginu.
Nú er það kunnugt, að árið
1916 var verð þetta þannig sett,
eftir að kjötverðið hækkaði með
útflutningsleyfinu til Noregs, að
það náði tilgangi sínum: að trvggja
sanngjarnan hagnað af framleiðsl-
unni. Landsstjórnin mun og hafa
talið verð það, er um var samið
á síðastliðnum vetri ná þessum
tilgangi. En síðan hefir sú ger-
breyting orðið, að aðalvöruteg-
undir þær, er notaðar eru til
framleiðslu sjávarafurða hafa
hækkað í verði, sem nemur jafn-
vel hundruðum °/0 og allaraðrar
nauðsynjar hafa hækkað stór-
kostlega.
Afleiðingin er sú að í stað
sanngjarns hagnaðar verður tap
á framleiðslunni, nema samninga-
verðið brezka verði hækkað. Til
þessað koma þessu máli fram munu
tæplega nægja símskeytasending-
ar frá landsstjórninni. Heppileg-
ast væri líklega að einhver ráð-
herranna fari, ef stjórnin teldi
hæft, til Lundúna með tveím
eða fleiri duglegum mönnum og
gætu þeir lagt fyrir brezku stjórn-
ina full gögn fyrir því, hvað
verðið þurfi að vera til að tryggja
sanngjarnan hagnað af framleiðsl-
unni.
Þetta er eitt af mestu alvöru-
málunum, þvi með vissu tapi
fyrir stafni hlýtur framleiðslan
að mestu leyti að liggja niðri.
Af því leiðir alment atvinnuleysi
og hörmungar þær, sem það hlýt-
ur að hafa í för með sér. Og
með hverju á að borga aðfluttu
vörurnar, ef útflutningur á innlend-
um afurðum minlcar svo afskap-
lega, sem nú eru helzt horfur á?
Eg get eigi stilt mig um að
minnast á það í þessu sambandi,
hve óbiigjarnir eru sumir þeir
dómar, sem heyrast um viðskifd
Breta við oss út af ófriðnum. Án
þess að fara nokkuð út í dóma
um brezku samningana að öðru
leyti vil eg að eins benda á það,
að úr því Bretar töldu nauðsyn-
legt og réttmætt að hefta vöru-
flutninga vora af hernaðarástæð-
um og gátu það, þá hefir þeim
farist vel, er þeir lofuðu að tryggja
oss sölu þeirra afurða sem yrðu
fyrir því barði, svo góðu verði
að sanngjarn hagnaður yrði af
að framleiða þær. Og mér er
það kunnugt að brezka stjórnin
hefir á nokkrum sviðum greitt
engu ver eða jafnvel betur, fyrir
os8 íslendingum í viðskiftum en
sumum öðrum hlutlausum þjóð-
um þótt stærri séu.
Slíkt verður að segjast, þó eigi
væri til annars en að mótmæla
þvi kröftuglega, er menn vilja
bera viðskifti Breta við oss sam-
an við framkomu Þjóðverja, er
þeir heimsækja Færeyinga, sem
voru á friðsömum fiskiveiðum á
-venjulegum miðum sínum, og
skjóta orðalaust. undan þeim skip-
in,jrlsaklausum, en setja áhöfn
skipanna í beinan lífsháska.
Svei m Björnsson.
Aths.
Eftir að þetta er ritað sé eg
að stjórnarblaðið »Landið« telur
það illkleift að halda uppi brezka
verðinu vegna þess að grund-
völlurinn sé þar illa lagður og
eg hafi í byrjun farið fram á ó-
hæfilega lágt verð, sökum þekk-
ingarleysis á framleiðslukostnað-
inum. Eg hefi að mestu látið
hlutlausar ákúrur gegn mér út af
umræddum erindisrekstri mínum
og mun gera svo enu. Tel til-
gangslausar stælur um það; tím-
inn einn leiðir það i ljós, hvert
ámæli eg á fyrir það. Eg vil
aðeins geta þess, að verð, það er
eg fór fram á í byrjun, og þótt-
ist geta rökstutt, var ekki lægra
en uppástungur þær, sem komu
héðan og bygðar voru á fullri
þekkingu um framleiðslukostnað-
inn. Og takist stjórninni að halda
uppi þeim »illa* grundvelli, sem
lagður var í byrjun, þ. e. að verð-
ið sé miðað við framleiðslukostn-
aðinn, að viðbættum sanngjörn-
um hagnaði, hygg eg að henni
muni eigi ámælt, þótt ámælis-
vert sé það talið, er eg var við
það riðinn.
Sv. B.
Bannlogin gerast nú víða umræðu-
efni. N/lega var haldinn kjósenda-
fundur um þau á ísafirði og samþykt
þar tillaga um að skora á alþlngi að
efla eftirlitið með þeim og að breyta
þeim, svo að þau nái betur tilgangi
sínum.
Stjórnin sótt?
»Landið* hefir talið sig knúð til
að nota talsvert dálkarúm til umtals
aðfinslunum við stjórnina, sem kom-
ið hafa fram í blöðunum seinustu
vikurnar og verið hefir mikið um-
talsefni síðan augu almennings opn-
uðust fyrir þvi, hve illa stjórninni
sem nú er, farast stjórnarstörfin.
Meira er það skraf blaðsins að víð-
áttu en viti.
»Landið« finnur að því að það sé
kallað vörn, sem blaðið hefir svarað
aðfinslunum með. »Bragð er að þá
barnið finnurc má segja. Enda höf-
um vér þegar bent á að vörnin var
engin. En nú Htur út fyrir að svör
blaðsins ætli að snúast npp í sóktt á
hendur landsstjórninni?
Er það ekki árás á landsstjórnina
að segja, að hún hafi horft viss vitandi
á það að kol og salf gengu algerlega
til þurðar án þess að hreyfa legg
legg eða lið, af pví að hún áleit það
hlutverk h.f. Kol og Salt að sjá land-
inu algerlega fyrir þessum vörumi?
Er það ekki árás á landsstjórnina
að segja að hún hafi horft víss vit-
andi á það, að steinolía gekk til
þurðar, af pvi að hún áleit að Stein-
olíufélagið ætti að sjá landsmönnum
fyrir steinolíul?
Er' það ekki árás á landsstjórnina
að segja að hún hafi ekkert vitaö
um vöntun á þessum vörum fyr en
alt var orðið tómt, af því að útgerð-
armenn hafi ekki krafist varanna fyr
af landsstjórninnU ?
Er það ekki árás á stjórnina að
víta Eimskipafélagsstjórnina fyrir að
benda á þann mann til Ameríku-
ferðarinnar sem stjórn Eimskipafé-
lagsins taldi hæfastan og landsstjórn-
in síðan beiddi einnig að reka erindi
sín af því að hún (landstjórnin)
áleit hann til þess vel hæfanl?
Er það ekki árás á landsstjórnina
að gefa í skyn eins ótvíræðlega og
blaðið gerir að stjómin geri ekkert
nema það, sem aðrir benda henni á
eða þvinga hana til að geral?
Vér hyggjum að eigi sé ofmælt,
að svo frumkvæðislítil stjórn sé óvið-
unandi á þessum alvörutímum.
í sama dálkinum sem blaðið við-
urkennir að hér sé tilfinnanlegnr
skortur á kolum, salti og steinolíu,
segir það: »Oss er ókunnugt um
að tilfinnanlegur skortur sé orðinn í
landinu ... «1
Þessi leikur með lífsmálin hjá
stjórnarblaðinu er oss óskiljanlegur
með öllu.
Heimspekisprófi við háskólann hafa
þessir stúdentar lokið:
Anna Bjarnadóttlr I. ág.
Árni Sigurðsson I. ág.
Helgi JónassoU I.
Inglmar Jónsson I. ág.
Lúðvfk D. Nordal I.
Magnús Guðmundsson I.
Pótur Magnússou II. betri.
Stanley Guðmundsson I.
Sveinn Ogmundsson II. betrl
Þorkell Gíslason II. lakari.
Auk þessara stúdenta tóku 2 próf
fyrir nokkru, þeir Helgi lngvarsson
og Egill Jónsson, báðir með I. ein-
kunn.