Ísafold - 22.09.1917, Síða 1
Kemur út tvisvar
í viku. Verðárg.
5 kr., erlendis 7^/a
kr. eða 2 dollarjborg-
lst fyrir miðjan júlí
erlendis fj'tirfram.
Lausasala B a. eint
ísafoldarprentsmiðja.
Ritstjóri: Ólsfur Björnsson.
Talsími nr. 455.
XLIV. árg.
Reykjavik, laugardaginn 22. sept. 1917.
Uppsögn (skrifl.
bundin við áramót,
er ógild nema kom-
in só til útgefanda
fyrir 1. oktbr. og
só kaupandl skuld
laus vlð blaðið.
60 tðlublað
>Beynslan or sannleikur* sagöi »Repp« eg
-iþótti at> vitrari maöur, ReyEsla alheims hefir
dœmt Fordbíla að vera bezta allra bíJa, og
albeims dóm verönr ekki bnekt. Af Ford-
fbilum eru fleiri á feró i heiminum on af öll-
am öörum biltegundum samanlagt. Hvað
sannar það? í*aö sannar það. Fordbillinn
v©r beztur allra* bíla enda hefir bann unnið
sér öndveigissœti meðal allra Btla, hjá öllum
þjóöum, og blotið heiðursnafnið
V eraldarvagn.
Fást að eins hjá undirrituðum sem einnig
Selur binar beimsfrœgu DUNLOP DERK og
íSLONGUR fyrir aliar tegnndir bila.
P. Stcfánsson,
Lækjartorgi 1,
Báglega tókst
með alþing enn
Þau einkunnarorð má tvímæla-
laust velja alþingi því, er sleit
á mánudaginn. Þessi lýsing gildir
yfirleitt um störf þess, þótt ein-
staka undantekning megi finna
til að staðfesta tegluna, svo sem
það, að samkomulag alls þings
ins fekst til að gera kröfu
um siglingafána, sem vitanlega
ihefst nú fram, ef iandsstjórnin
ratast á það að fylgja því máli
fast eftir við konung íslands,
og ætti það að vera henni vork-
unnarlaust með alt alþingi og alla
þjóðina að baki sér.
Ekki lýsir það sízt högum al-
hingis í sumar, að inn á þingið
ér rutt ekki minna en 137 jrum-
vörpum — og nær ekki einu sinni
helmingur þeirra fram að ganga.
Það er eins og þingmenn hafi
verið að leika sér að því að tefja
tíma þings þessa, sem eingöngu
átti að fjalla um bjarqráð Jyrir
pjóðina á þessum miklu hörm-
ungatímura, með þvi að hrúga
inn á það lítils- eða einkisnytum
hégómanýmælum eða breytingum
á eldri lögum. Þau eru 70 frum-
vörpin, sem voru léttvæg fundin
og feld eða vísað frá, en 67 hin,
sem fram náðu að ganga.
Ef það er ekki að eyða dýr-
mætum tima alþingis, slíkt fram-
ferði, þá vitum vér eigi til hvers
sú lýsing nær. Og þroskaleysið —
já skrælingjahátlurinn, sem lýsir
sér í því að varpa svo óhugs-
uðum, óundirbúnum og óþörfum
frumvarpamýgrút inn á þing —
ætti að vera víti til varnar i
framtíðinni. Oft hefir frumvarpa-
flutningsæði þingmanna vakið ó-
hug, en að þessu sinni teljum
vér það hiklaust óverjandi.
í flestu hefir þetta þing reynst
siður en svo jafnoki fyrirrennara
sinna, heldur yfirleitt eftirbátur.
Engin tilþrif til þess að bæta að
neinu syndir fyrri þinga, svo
sem t. d. að forðast það eða gera
störf í þjóðarinnar þarfir að póli
tiskum bitlingum. Sjaldan eða
aldrei hefir úthlutun bitlingasteik-
urinnar borið á sér jafnskýr mörk
fiokkahlutdrægninnar. Þeir, sem
nenna að hafa fyrir því að at-
huga, hvernig þingið hagaði sér
við það starf, munu fljótlega átta
sig á, að það var undantekning,
að þingið liti á hæfileika. mann-
anna til þess að gegna þeim
störfum, sem það valdi þá í,
heldur var það reglan að hugsa
eingöngu um að stinga bita að
einstökum þingmönnum.
Það væri þarfa-nýmæli að titiloka
þingmenn frá þessum bitlingum
og mundi hefja veg og gengi al-
þingis1 meira en margt annað.
Á það benti ísafold í haust, að
grundvöllur gömlu flokkaskifting-
arinnar væri eigi lengur til. Nú
gilti að eins um að velja á þing
nýtustu mennina hvað sem gömlum
flokkaværingum liði. Þetta vildu
þeir ekki heyra þá, sem nú aia
hvað mest á því, að gamla flokka-
skiftingin eigi við engin rök að
styðjast. Og þeim tókst mjög um
of að hamra þá skoðun inn í
kjósendur, sem í sömu herbúðum
er nú talin staðlaus og eingöngu
til ills.
En af þeim blekkingum, sem
beitt var fyrir kosningarnar i haust,
sýpur nú þjóðin seyðið m. a. með
því að eiga við að búa landsstjórn,
sem alment er viðurkend að vera
óhæf til þess að stýra landinu
gegnum brim og boða styrjaldar-
vandræðanna, sem nú steðja að
oss.
Með því að misbeita flokksvald-
inu og fórna öllu á altari þess —
hefir alþingi skilið þjóðina eftir
undir handleiðslu manna, sem
alls ekki kunna að fara með hina
margbrotnu og flóknu landsstjórn-
arvél á þessum tímum.
Það er ekki nema eðlilegt, að
nú heyrist þungir áfellisdómar
um þingið fyrir það giapræði,
auk margra annara synda og
skiljanlegt og berandi vott um
vaxandi þroska þjóðarinnar, að
þær gerast háværari og hávær-
ari raddir þær, sem, eftir þá
reynslu, sem þegar er fengin,
telja þingrof bezta ráðið út úr
ógöngunum — treystandi því, að
þjóðin láti vítin frá síðustu kosn-
ingum verða sér að varnaði fram-
vegis.
Verzlunarráð Islands.
A mánudaginn var fundnr hald-
inn hér i bæ í því skyni að
setja á stofn »Verzlunarráð lslands«.
Sátu fundinn 52 manns, en 21 höfðu
sent umboÖ.
Kaupmannaráð íslands hafði samið
frv. til laga fyrir Verzlunarráðið, og
var það samþykt með nokkurum
breytingum.
1 lögunum segir svo um tilqanz
verzlunarráðsins: »Tilgangur ráðs-
ins er að vernda og efla verzlun,
iðnað og siglingar<.
En verksvið ráðsins er þetta:
a) Að svara fyrirspurnum frá al-
þingi og stjórnarvöldum og öðrum
um veizlunar-, toll-, vátryggingar-
og samgöngumál og annað það, er
varðar atvinnugreinir þær, sem ráðið
er fulltrúi fyrir. Ráðið skal einnig
af sjálfsdáðum, ef þöif þykir, gera
tillögur eða láta i ljósi álit sitt i
þessum efnum.
b) Að vinna að þvi að koma á
festu og samræmi i viðskiftavenjum.
c) Að koma á fót gerðardómum
í málum, er varða þær atvipnugrein-
ar, er hér um ræðir.
d) Að safna, vinna úr og birta
skýrslur um ástand þessara atvinnu-
grein, eftir þvi sem föng eru á.
e) Að fylgjast með breytingum á
erlendri löggjöf og öðrum atburðum
'er kunna að hafa áhrif á atvinnuvegi
landsins.
f) Að gefa út blað þegar fært
þykir, er skýri frá því markverðasta
i viðskiftamálum innanlands Og utan.
í blaðinu skulu einnig birt lög og
stjó'narfyrirskipanir er sneita atvinnu-
mál.
A hverju ári skal gefin út greini-
leg skýrsla um aðgerðir ráðsins og
reikningur um fjárhag þess undan-
farið ár.
Sjö fulltrúar skipa ráðið, og hlutu
þessir kosningu: les Zimsen, Garðar
Gíslason, )ón Brynjólfsson, Ol. John-
son, Carl Proppé, Jensen-Bjerg og
Olgeir Friðgeirsson.
Stjórn Búnaðarfélagsins og stjórn
Fiskifélagsins eru fulltrúanefndir fyrir
landbúnað og fiskiveiðar, en hingað
til hefir algerlega vantað slíka full-
trúanefnd fyrir verzlun iðnað og sigl-
ingar. Kaupmannaráðið hefir að vísu
starfað sem fulltrúaráð fyrir verzlun-
arstéttiua, en hefir nær eingöngu
bygst á Kaupmannafélagi Reykjavik-
ur. Að verzlunarráði íslands standa
aftur á móti atvinnurekendur í þess-
um greinum um land alt. Síðast
þegar aðalmanntal fór fram árið 1910
lifðu um 10,000 landsmanna á verzl-
un, samgöngum, handverki og iðn-
aði, en siðan hefir þeim vafalaust
fjölgað mikið og likindi tii að þeim
muni fjölga mikið á komandi árum.
En mikilvægi atvinnuveganna fer ekki
eingöngu eftir þvi, hve margir lifa
á þeim, heldur einnig, og það mest,
eftir þvi hverja þýðingu þeir hafa
fyrir þjóðfélagið i heild sinni. Og
hér er einmitt um atvinnuvegi að
ræða, sem hafa rfarmikla þýðingu
íyrir alla þjóðina og velgengni henn-
ar er roikið undir því komin að þeir
séu í sem beztu lagi.
Atvinnuráð, er starfa í svipuðum
tilgangi og ætlast er til að verzlun-
arráðið starfi hafa afarlengi tiðkast i
öðrum löndum og hefir reynslan sýnt
að starfsemi þeirra er til ómetanlegs
gagns. Það á sér allsstaðar stað ná-
iu samvinna milli stjórnarvalda og
atvinnuráða, enda er það meginþátt-
ur í starfsemi þeirra. Sérstaklega
hafa verzlunarráðin ennfremur unnið
að því að koma á heilbrigðum og
hagkvæmum viðskiftavenjum og á
verzlunarráð íslands vafalaust mikið
starf fyrir höndum í þessu efni.
Erlendis hafa verzlunarráðin átt
upptök að ýmsum stórfeldum um-
bótum, og ávalt hafa þau vakandi
auga með vexti og viðgangi atvinnu-
veganna; hefir oft verið ástæða fyrir
þau að gr pa í taumanna, hvetja eða
letja til framkvæmda, eftir því sem
þörf var á. Þetta atriði ec, ekki
veigamimt fyrir oss, einkum nú, er
gera má iáð fyrir, að hér verði
miklar framfarir innan allra at-
vinnuvega, er styrjöldinni lýkur
Þá verður full þörf fyrir framsýni
og víðsýni og um að gera að not-
færa sér reynsluna, bæði okkar eigin
og annara, Að eins með því móti
verður hjá því komist að stórfé og
fyrirhöfn fari forgörðum vegna fyr-
irtækja, sem ráðleysislega er tilstofnað.
Lög frá Alþingi.
1. Lög um breyting á lögum nr. 17,
9. júlí 1909, um almennan elli-
styrk.
2. Lög um stækkun verzlunarlóSar
Isafjarðar.
3. Lög um breytingu á lögum nr.
35, 13. des. 1895, um löggllding
verzlunarstaðar hjá Bakkagerðl í
Borgarfirði.
4. Lög um sölu á kirkjueigninni 7
hndr. að fornu mati úr Tungu í
Skutilsflröl.
5. Lög um heimild handa bæjar- og
sveitarstjórnum til að taka eign-
arnámi eða á leigu brauðgerðar-
hús o. fl.
6. Lög um breytingu á 1. gr. laga
nr. 45, 16. nóv. 1907, um skipun
prestakalla (Miklaholtsprestakall).
7. Lög um framlenging á gildi laga
nr. 30, 22. okt. 1912, og laga nr.
44, 2. uóv. 1914, og laga nr. 45,
s. d. (vörutollur).
8. Lög um breyting á lögum nr. 49,
10. nóv. 1913, um eignarnáms-
heimild fyrir bæjarstjórn ísafjarð-
ar á lóð og mannvirkjum undir
hafnarbryggju.
9. Lög um húsaleigu í Reykjavík.
10. Lög um breyting á og viðauka
við lög 1. febrúar 1917 um heim-
ild fyrir landsstjórnina til /msra
ráðstafana út af Norðurálfuófriðn-
um.
11. Lög um breyting á lögum nr. 26,
20. okt. 1915, um vátrygging
sveitabæja og annara húsa í sveit-
um, utan kauptúna.
12. Lög um heimild fyrlr stjórnarráð
íslands til að setja reglugeröir um
notkun hafna o. 11.
13. Lög um þóknun til vitna.
14. Lög um breytlng á lögum nr. 39,
11. júlí 1911, um sjúkrasamlög,
og á lögum um breyting á þeim
lögum nr. 35, 3. nóv. 1915.
15. Lög um viðauka við lög 11. des.
1891, um samþyktir um kynbæt-
ur hesta.
16. Lög um breyting á og viðauka við
lög um stofnun Ræktunarsjóðs
íslands, 2. marz 1900.
17. Lög um stofnun alþýðuskóla á
Eiðum og afhendingu Eiðaeignar
til landssjóðs.
18. Lög um framkvæmd eignarnáms.
19. Lög um breyting á lögum nr. 30.
20. okt. 1913, um umboð þjóð-
jaröa.
20. Lög um breyting á lögum nr. 21
2. nóv. 1914, um notkun bifreiða,
og viðauka við sömu lög.
21. Lög um stefnufrest til íslenzkra
dómstóla.-
22. Lög um heimild fyrir landsstjórn-
ina til að leyfa íslandsbanka að
auka seðlaupphæð þá, er banklnn
má gefa út samkvæmt 4. gr. laga
nr. 66, 10. nóv. 1905.
23. Lög unt mæiitæki og vogaráhöld,
24. Lög um framlenging á friðunar-
tíma hrelndýra.
25. Lög um málskostnað einkamála.
26. Lög um breyting á lögum nr. 18,
13. sept. 1901, um manntal í
Reykjavík.
27. Lög um mjólkursölu í Reykjavik.
28. Lög um skiftingu bæjarfógetaem-
bættisins í Reykjavík og um stofn-
sórstakrar tollgæzlu í Reykjavík-
urkaupstað.
29. Lög um hjónavígslu.
30. Lög um gjöld til holræsa og gang-
stétta á Akureyri.
31. Lög um áveitu á Flóann.
32. Lög um einkasöluheimlld lands-
stjórnarinnar á steinolíu.
33. Lög um laun hreppstjóra og
aukatekjur m. m.
34. Fjáraukalög fyrir árin 1914 og
1915.
35. Lög um fyrirhleöslu fyrír Þverá
og Markarfljót.
36. Lög um afnám laga nr. 21, 20.
okt. 1905, um skýrslur um ali-
dýrasjúkdóma.
37. Lög um breytingu á sveitarstjórn-
arlögum nr. 43, 10. nóv. 1905
(hækkun oddvitalauna og sýslu-
nefndarmanna um þriöjung).
38. Lög um breyting á lögum frá 22.
nóv. 1907, um vegi (flutninga
brautir í Húnavatnssýslu).
á9. Lög um samþyktir um herpinóta-
veiði á fjörðum inn úr Húnaflóa.
40. Fjáraukalög fyrir árin 1916 og
1917.
41. Lög um stofnun dósentsembættis
í læknadeild Háskóla íslands (í
líffærameinfræði og sóttkveikju-
fræði).
42. Lög um breytlng á lögum nr. 22.
8. okt. 1883, um bæjarstjórn á
Akureyri, og lögum nr. 43, 11.
júlí 1911, um breyting á þeim
lögum.
43. Lög um slysatrygging sjómanna.
44. Lög um samþyktir um kornforða-
búr til skepnufóöurs.
45. Lög um útmælingar ióða f kaup-
stöðum, löggiltum kauptúnum o. fl.
46. Lög um breyting á lögum nr. 12,
9. júlí 1909, um breyting á lög-
um um stofnun Landsbanka 18.
sept. 1885 m. m.
47. Lög um breyting á 1. gr. laga
um vitagjald frá 11. júlí 1911.
48. Lög um breytingar á og viöauka
við lög nr. 35, 20. okt. 1913, um
ritsíma- og talsímakerfi íslands.
49. Lög um lýsismat
50. Lög um samþykt á landsreikning-
unum 1914 og 1915.
51. Lög um stefnubirtlngar.
52. Lög um fiskivelðasamþyktir og
lendingasjóöi.
53. Lög um breyting á 1. gr. tolllaga
fyrir ísland, nr. 54, 11. júlí
1911.
54. Lög um lögræði.
55. Lög um bæjarstjórn ísafjarðar.
56. Lög um bráðabirgðahækkun á
. burðargjaidi.
57. Lög um breyting á lögum um
fasteignamat.
58. Lög um rekstur loftskeytastöðva
á íslandi.
59. Lög um aðflutningsbann á áfengi.
60. Lög um breyting á og viðauka
við lög nr. 23, 14. des. 1877, um
tekjuskatt.
61. Lög um stofnun húsmæðraskóla á
Norðurlandi.