Ísafold - 03.11.1917, Síða 2

Ísafold - 03.11.1917, Síða 2
ISAFOLD Missiraskifta-ræða eftir Ólaf Ólafsson Frikirkjuprest, haldin I. Sd. í vetri. >Alt fram streymir endalaust, Ár og dagar líða. Nú er komið hrímkalt haust, Horfln sumarblíða*. Þannig lýsir eitt alþýðuskáldið' íslenzka hinni sístreymandi fram- rás tímans. Þetta ljómandi fall- ega erindi er auðsjáanlega ort á þeim tímamótum, sem vér nú stöndum á. Skáldið stendur and- spænis vetrinum, sem er að heilsa og ganga í garð; hann rennir huganum til baka yfir liðna tím- ann og minnist með auðsæjum söknuði sumarblíðunnar, sem horf- in er; og honum þykja það auð- Bjáanlega þung umskifti, að sum- arblíðan er horfin, en í hennar stað kominn hrímkuldi sá, sem haustinu og vetrinum fylgir. Við þetta vaknar hjá honum umhugs- unin um hverfleika lífsins, um- hugsunin um það, að sí og æ heldur tímans straumur áfram, að dagarnir, árin og aldirnar líða, rennur alt og hverfur í eilífðar- djúpið mikla. Alt eru þetta eðli- legar og skynsamlegar hugsanir fyrir hvern alvörugefinn mann, hugsanir, sem eg geri líka ráð fyrir, að hreifi sér að einhverju leyti hjá oss öllum einmitt á þess- um tímamótum, sem vér nú stönd- um á. Vér erum þessa dagana komin enn einu sinni á þenna forna áfangastað. Veturinn, þessi gamli gestur, sem við Islendingar þekkj- um að ýmsu leyti betur en marg- ar aðrar þjóðir, hann barði að dyrum hjá oss í gær. Hann kom ekki óvörum nú fremur enn endra- nær. Hún gerist jafnan alvarleg á Bvipinn, íslenzka náttúran, þegar að því liður, að þessi gamli og alkunni gestur tekur að nálgast hýbýli vor. Þegar sumrinu tek- ur að halla út, þá tekur smára saman að dökkna og þyngjast alt yfirbragð og svipur jarðarinnar, hinnar sameiginlegu móður vor allra. Sólin smálækkar á lofti, veðráttan kólnar, blómskrúð jarð- arinnar bliknar og fölnar, »Þá fölna blóm og bliknar hlíð, og berar merkur standa«. Farfugl- arnir, þessir góðu gestir, sem koma til okkar um langa vegu með hverju vori, »með söng og vængjadyn«, þeir smá týnast burtu; þeir flýja hinn kalda ís- lenzka vetur og hverfa til þeirra landanna, þar sem birtan og yl- urinn bregst ekki, þótt sumrinu norðlæga halli. Vér horfum með söknuði á hverju hausti á eftir þessum sumargestum okkar, og oss kemur þá stundum líkt íhug og skáldínu, sem sagði: »Gott á fuglinn fleygi, Hann fjötra ei bönd«. Margur hefir bæði fyr og síðar gjarnan viljað verða þeim sam- ferða til að flýja vetrarmyrkur og vetrarkuldann íslenzka. En vér mennirnir, og ekki sízt vér Is- iendingar, verðum að sitja þar sem vér erum komnir, því »fótur vor er fastur, þá fljúga vill önd«. Vér verðum að sitja kyrrir og bíða i heimkynnum vorum komu vetrarins, og reyna að taka eftir föngum, með kjarki og karl- mensku, móti vetrinum og fylgi- fi8kum hans, myrkrinu og kuld- anum, byljunum og bráðviðrunum og hinum mörgu erfiðleikum, sem hver vetur hefir að jafnaði í för með sér hér norður frá i námunda við hafísinn og norðurheim- skautið. Aldrei hefir veturinn verið né er okkur íslendingum neinn aufúsu- gestur; það hljóðnar vanalega yfir börnum þessa lands, þegar hann kemur með hrímið og klak- ann í skegginu, og hríðarstrok- urnar, sem af honum standa, skella á hýbýlum vorum og skaka þau. En sízt er hann mörgum au- fúsugestur í þetta sinn. Forfeður vorir kviðu vetrinum, hugsuðu til hans með hrolli og ótta, jafnvel stundum með hrolli og skelfingu; þetta var eðlilegt; tæki þau og meðul, sem þeir höfðu til að verjast með kulda og myrkri og hriðarveðrum, voru bæði fá og smá. Aðalúrræði þeirra voru eiginlega, að grafa sig niður eða inn í jörðina og kúraþarí hálfgerðu myrkri mik- inn bluta sólarhringsins, og — þótti gott, ef menn ekki þurftu líka að þola sult og hungur. — Vetraræfi feðra vorra og mæðra var oft slæm, og fæstir af nú- tíðarkynslóðinni geta gert sér réttar hugmyndir um vetrarþrautir þeirra, og engum mundi þykja sú æfi boðleg nú. v Eu — i sínu vetrarmyrkri, kulda og svengd, sem alls ekki var ótíð, tilbáðu þeir Drottinn sinn og skapara, og sú tilbeiðsla var þeim engin uppgerð; sú til- beiðsla var þeim líka sem ljós og ylur í skammdegismyrkrinu, var þeim huggun og athvarf i öllúm nauðum. Og þó að stöku maður geri nú stundum hálfgert gaman að hinni barnslegu trú feðra vorra og mæðra, þá viti það allir menn, að sú trú og sú tilbeiðsla var þjóðarinnar líf; það var sú trú, sem sætti þá við vetrar- œfina og gaf þeim styrk til að bera veArarþrautirnar. Kynnið ykkur æfina, sem isl. þjóðin átti, ekki sízt á veturna á liðnum tím- um, þrautirnar, sem hún varð að þola, hörmungarnar, sem hún átti við að stríða frá náttúrunnar og mannanna hendi, sem yfir henni réðu, raunirnar, sem hún varð gegnum að ganga; og hugsið út í það með skynsemi og alvöru, Tivaðan henni kom styrkur og máttur í öllu þessu stríði. Og beygið síðan kné yðar með lótn- ingu fyrir þeirri trú, sem var þjóðarinnar lífskraftur bæði sum- ar og vetur á liðnum árum og öldum. En — Guði sé lof, að það hefir verið að smábirta yfir landinu og þjóðinni 'á hinum síðustu mannsöldrum; einkum hafa síð- ustu 40 árin verið framfaratími og þroskatími í flestum greinura. jX þeim tima hefir þjóðinni faríð meira fram heldur en á mörgum öldum þar á undan. Atvinnu- vegirnir hafa bæði fjölgað og batnað, samgöngurnar orðið greið- ari, manndómur og atorka farið vaxandi. Alt hefir þetta verið vitrum og góðum mönnum sannar- legt gleðiefni, og það hefir jafn- framt verið þakklætisefni við skapara vorn og Drottinn, sem öll góð og fullkomin gjöf kemur frá. Af öllu þessu hefir það leitt meðal annars, að vetrarœfi, ís- lendinga hefir verið að batna og að þeim hefir aukist rnáttur til að taka móti vetrsuþrautunum og verjast þeim. Hinn forni kvíði fyrir vetrarkomunni hefir því far- ið yfir höfuð minkandi; myrkur og kuldi heimsskautavetrarins hefir verið minna kvíðvæulegur fyrir hinar síðustu kynslóðir en hann var fyrir feður vora og mæður á fyrri tímum. En — nú kemur veturinn svo, að vér erum varbúnari að taka móti honum heldur en verið hefir að undanförnu. Auðvitað var sumarið síðasta að mörgu leyti gott og blessað, margir dagar þess blíðir og fagrir og blessun- arríkir, og lofaður og vegsamað- ur sé Guð og faðir vor á himn- um fyrir náð sína og miskun við oss alla á sumrinu. Fyrir land- búnaðinn reyndist sumarið sæmi- legt, og víðast gott, þegar á alt er litið, að minsta kosti um alt Suðurland. En svo lauk sumrinu þó, að annar aðal-atvinnuvegur manna hér um slóðir mishepnað- ist, ýmist að nokkru eða öllu, og við sumarlokin má að miklu telja hann dottinu úr sögunni. Fiskiflotinn nýi var eitt allra mesta framfaraspor landsmanna, eitt allra mesta manndóms- og atorkumerkið; hann flutti óum ræðilega björg og blessun á land, veitti fjölda manna ágæta at- vinnu á sjó og landi, fæddi og klæddi fjölda heimila bæði fjær og nær. Hann var nútíðarárós og framtíðarwow; með hann að bakhjarli þurfti í rauninni ekkert | að óttast. I : ’ ÍSfW ,En hvað skeður svo á þessu j sumri ? Jú! Annar helmingur þess flota er gerður landrækur, seldur burt úr landinu, og hinn verður að setjast sama sem á þurt land. Og það er svo langt frá því, að lands- stjórnin og þingið bjargi þessu rnáli við, að hún og það þvert á móti brýtur eða stígur yfir iandslögin til að setja innsigli sitt á þessar athaf n- ir. Sumarið 1917 er því að vissu leyti stórmerkilegt og alvarlegt sumar. Sagan mun á sínum tíma minnast þess, sem þá gerðist, og og það mun einhvern tíma alt saman dæmt eins og það á skil- ið. Og sagan mun líka minnast þess þings, sem í sumar var háð, minnast þess, að líkindum, sem eins hins lakasta og lélegasta, sem háð hefir verið, siðan alþingi var endurreist. Því var ætlað, að bjarga atvinnuvegunum og um leið Ufi og velferð landsmanna úr styrjaldarvoðanum og öldugangi dýrtíðarinnar. Það horfði á ann- an atvinnuveginn fara í kalda kol, en það gerði ekki það, sem gera þurfti og gera átti. Hér við bætist, að landsstjórnina brest- ur að vissu leyti tilfinnanlega traust landsmanna, og að gætna menn grunar og uggir, að ein- mitt nú 8é landið að sökkva í Dað skulda- óg óreiðu kviksyndi, sem langan tíma þurfi til að kom- ast upp úr aftur, og sem lama muni krafta þjóðarinnar >i fram- tíðinni og hefta væntanlegar fram- arir. Og enn má á það minn- ast, að blöðin, sem eiga að vera samvizka þjóðarinnar, þau þegja stundum um margt það, sem mið- ur fer, og bregðast með því þeirri skyldu, að segja mönnum afdrátt- arlaust sannleikann i þeim mál- um, sem mest á ríður, og um eið halda þjóðinni vakandi. Svona er, kristnu tilheyrendur, hin ytri urngerð, ytri rammi, ut- an um þjóðarástandið nú við sumaripkin. En — hvað leiðir svo af þessu öllu, fyrir veturinn jenna til að byrja með. og fyrir ramtíðina yfir höfuð? Fyrst og fremst það, að fjöldi manna hér nærlendis verður að byrja vetur- inn »upp á gamla móðinn« með tvær hendur tómar. Það er fyr- ir sig með einhleypt fólk, því eru vanalega flestir vegir færir. En iað verður erfiðari róðurinn fyrir fátæka fjölskyldufeður; þeim get- ur veturinn orðið erfiður áður en lonum er lokið. Þvi að af öllu, sem gerst hefir í sumar, leiðir nú það, sem ískyggilegast er af öllu, sem 8é atvinnuleysið Þeim vágesti kviða flestir, og það er náttúr- legt. Hvar eiga nú þeir að fá atvinnu á komandi tíma, sem verið hafa á þeim hluta fiskiflot- ans, sem af eigendum, þingi og stjórn er dæmdur til dauða og á að sendast úr landi? Og hvar þeir, sem eru á hinum helmingn um, sem eigendurnir verða að setja á þurt, af því að eigendun- uni var ekki rétt nauðsynleg hjálparhönd, meðan styrjaldar- ógnirnar standa yfir? Jú! Það hefir verið talað um, að þeir ættu að fá atvinnu, en það er enn ekki nema orðin tóm. Það eygir enginn þá atvinnu ennþá, og er þó veturinn kominn, og er meira að segja fremur úfinn og þungur á svipinn. Oskandi og vonandi, að betur rætist úr. Sérstaklega i Reykjavík verður varla þver- fótað fyrir nefndum, allar eiga þær eitthvað að gera gott, eg ef- ast ekki um það. En lítil bless- un og fá bjargráð fljóta ennþá frá þeim. Yfir störfum sumra þeirra sýnist þar að auki hvila einhver sérstök vanblessun og ógæfa; það, sem sumar hafa gert, virðist heldur hafa orðið til að auka vandræðin og gcra viðskífta- flækjuna ennþá þyngri og erfiðari Svona stöndum við þá, þegar veturinn kemur, svona horfir öllu . Árni Eiriksson Tals. 265 og 554. Pósth. 277. 1 smisaia | Heildsala. Vefnaðar'v&rur, Priónavðrur mjög fjölbreyttar. — *oO SrnávðrBT er suerta saumavitinu og hannvrðir. Þ v o 11 a- og, hreinlætisvörur, beztir og ódýrastar. Tækifærisgjafir. Saumavélar með’/ríhjóli og 5 ára verksmiðjuábyrgð. við; eg held enginn geti sagt, að ástandið sé gott eða horfurnar glæsilegar. En alt þetta bitnar á sjálfri þjóðinni; hún sýpur seiðið af öllu því, sem kann að hafa farið í handaskolum, hún fær það í of- análag ofan á dýrtíðina og styrj- aldarvandræðin. Vér kennum margt af þessu þingi og stjórn, og sumt af vandræðunum og hinu slæma ástandi á þar sinn fæð- ingarhrepp. En — hvað dugar það í raun og sannleika? Þegar út í öll þessi vandræði er komið, þá fer okkur líkt og börnunum, sem hefir orðið einhver skyssa á, og svo kenna hvort öðru um ávirðingarnar. Hinn djúpi sann- leikur i þessu máli er það, að ef þing og stjórn hefir reynst og reynist miður enn skyldi, þá á þjóðin mestu sökina á því sjálf. Hún hefir þá með eigin atkvæði lagt líf sitt og velferð í hendur þeim mönnum, sem voru ekki þeim vanda vaxnir, sízt á þess- um alvöru- og vandræðatímum; hún verður því að taka við af- leiðingunum og getur í rauninni engum um kent, nema sjálfri sér. Það hefir lengi við okkur ís- lendinga loðað, að vér trúum þeim bezt, sem tala fagurlegast og mjúkast í eyru vor. Skyldi nú ekki geta skeð, að við séum að einhverju leyti að taka út á það núna, og gerum það þó máske enn frekar síðar meir? Tímamótin eru einlægt sem nokkurskonar merkisteinar bæði í lífi manna og þjóða; við þá merkisteina er gott að staldra við um nokkur augnablik og líta bæði til baka, yfir það farna og liðna, og fram á leið til þess ófarna og ókomna; það er einmitt það, sem eg vil gera i dag. — Vér eigum að nota skynsemi vora og mannvit til að rannsaka alt ástand vort, skoða það í ljósi sannleikans. Á hvaða svæði sem við sjáum bresti, þá eigum vér að kannast við þá og reyna að laga þá. Á eftir sérhverju illu og óviturlegu ráðlagi koma þján- ingar og þrengingar. Skip hverr- ar þjóðar sekkur, þegar skynsem- inni og réttlætinu er varpað fyr- ir borð, þegar skelt er skolleyr- unum við sannleikanum. Þið þekkið ástandið, sem nú er í heiminum. Það ástand er ávöxt-. ur af því, að þjóðirnar hafa ekki rannsakað og dæmt sjálfar sig, og siðan leitast við að laga það, sem ílt ,var og ranglátt í fari þeirra. Ókomni tíminn á einlægt rætur sínar í fortiðinni; því er viturlegt við hver tímamót að líta til fortiðarinnar, og um leið laga það, sem hjá henni var áfátt. Hafi stefnan verið röng, þá er að nota tímamótin til að leggja stýr inu rfðruvísi; þannig á það að vera bæði í andlegum og likam legum efnum. Ef við íslendingar ekki viljum læra þetta, þá eigum við enga framtíð, sem kallað er; ef við viljum aldrei heyra sannleikann, þá flönum við út i dauðann. Nú er þá veturinn framundan. Eg býst við, að fortíðin hafi svo í garðinn búið, að vetrarœfin verði nú sumum lakari verið hefir, og vetrarþrautiniar þyngri. Eg kviði vetrinum fyrir hönd barna og gamalmenna; fólkið, sem er á bezta aldri, það þolir niargt élið, sem börnin og gam- almennin þola ekki. — En þó að vetrarutlitið sé í ýmsan máta ískyggilegt, þá skulum vér ekki mis8a móðinn. Vér skulum ekki vera líkir þeim, sem enga von hafa. Vér trúum á almáttugan Guð, sem ræður bæði tíma og eilífð, og sem hefir örlagaþræði þjóða og manna í hendi sinni. Það hefir verið orðað svo, að í »almáttugri hendi hans er hagur þessa kalda lands, vor vagga, braut, vor bygð og gröf, þótt búum við hin yztu höf«. Og þessi almáttugi Guð, sem með almáttugri hendi sinni stýrir alheiminum, hann hefir opinberað sig í Jesú Kristi sem algóðan föður allra manna, föður, sem elskar hvern einstakan mann og annast hvern einstakan mann; um hann er það sagt með sann- indum, að »hann heyrir stormsins hörpuslátt, íann heyrir barnsins andardrátt, hann heyrir sínum himni frá ívert hjartaslag þitt jörðu á«. í líknarfaðm þess föður flýjum við öll, þegar á reynir; hann er skjólið, sem öllum stendur opið, skjólið, sem aldrei fýkur í. Þang- að fiýðu feður vorir og mæður i sínum vetrarþrautum, þangað flýjum vér öll líka við komu jessa vetrar. Hann vantar aldrei vegi, hann vantar aldrei mátt; til hans og um hann inegum vér allir segja: »Ó, Drottinn í skaut þitt vér flýjum, ei hræðast vér þurfum í hælinu því, >ótt hörmunga dimmi af skýjum*. í þetta skaut og skjól flýjum vér, sern allir kristnir menn, og }að bregst engum, þangað flýja æir með tárin sín og sárin, harm* inn og hugarangrið, sem sumarið eða fortiðin hefir svift ástvinum og forsjármönnum. Þangað flýja hinir fátæku og smáu, sem hafa fátt í höndum til að verjast vetrarþrautum og vetrarkuldum, þangað fiýjum vér allir tneð alt það, sem að oss amar og sem hrella kann huga vorn. Óg vér skulum reyna það enn, að föður- auga hans vakir yfir öllum mönn- um. Skáldið okkar góða hefiy sagt: »Aðgætin föðurauguu klár öll reikna sinna barna tár, aðstoð þau aldrei þrýtur«. »Aðgætin föðuraugun klár« vaka yfir hverju jarðarbarni jafnt í vetrarþrautum og í sumarblíðu, og aðstoðin frá föðursins hendi þrýtur aldrei; fyrir þá náð og miskun almáttugs Guðs er íslenzka þjóðin koinin frám á þemi,an dag. En — Guð ætlast til, _að vér hjálpum oss sjálfir og að vér hjálpum hver öðrum. Börn Guðs á jörðunni eiga að breyta vitur- lega, þa,u eiga að bera umhyggju fyrir sér hvert í sínu lagi og þau eiga að haldast í hendur, leiðast sem börn í eísku og hjálpiýsi fyr? ir augliti föðursins. Til þess að vetrarþrautirnar verði sem létt« astar, þá þurfum vér að stunda ýmsar kristilegar dygðir. Vér

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.