Ísafold - 19.01.1918, Page 3
I S A F O L D
3
JTlundir frá fyeimssfijrjðldinm.
JTJaívælaútfjíufun í Beígíu.
í Belgíu starfar nefnd eiti frá hlutlaúsum löndutn að úthlutun matvæla handa fátæklirtgum, sem keypt eru fyrir samskot meðal hlutlausra þjóða. Eins og sjá má á mynd-
myndinni eru »fátæklingarnir< ú> öllum stéttum, vt nti mega nær allir heita fátækir þar í landh
IV
Samanburðurinn á þýðingunum i
kveri þessu við frumkvæðin hehr
leitt í ljó', að þær eru að meiri og
minna leyti gallaðar. Væri sami
mæhkvarði lagður á aðrar ljóðaþýð-
ingar íslenzkar er enginn vafi á, ?ð
ýmsir af göllum þeim, er hér hefir
verið bent á, munu koma þar i ljós,
enda er það sizt að furða, því vitan-
legt er, að fá ljóð eru svo vel gerð,
að ekki megi eitthvað að þeim finnn.
Erlend fagurfræðisrit áa og grúa af
rannsóknum og ritgerðum um ein-
stök ljóð og einstök skáídrit, eink-
um þau, er verulegt bókmentigildi
hafa. Heimssnillingarnir jafnt o;
smælingjarnir meðal skáldanna verOa
að sætta sig við aðfinslur, séu þær
á rökum bygðar, því að skáldfákur
inn skeiðar ekki altaf jafa knálega
um grund, hvort sem hann þeysir
um upplönd slns eigin anda eða
leitar inn i hugsjónaheim erlendra
skálda. Og skáldfákurinn er kenjótt-
ur og þarf mikla tamningu áður en
hann lýtur boðum þess, er á bak
sezt. Þetta hafa stórskáldin fundið
og finna Og þvi er það, að Klopstock
bað drottinn um fyrirgefningu í sér-
stöku kvæði, er hann hafði lokið
við Messíasarkviðu sina, ef skáldfák-
urinn hefði hrasað með hann á leið-
inni. En hvert skáldrit, er birtist
hjá einni þjóð, á að vera leiðarsteinn
hennar inn til hugsjónalanda fram-
tiðarinnar, og þvi er mikils um vert,
að vel sé til þeirra vandað, og að
þeir leiðarsteinar, er sóttir eru utan
tir heimi, brotni ekki á leiðinni,
verði hrufótáfr og ójafnir og missi
ljóshæfileika sina.
Alexandcr Jóhannesson.
Riykjavíte-aopíiH,
A ís úr Viðej'. Einn dftginn gengu
3 menn úr Viðey yfir að Kleppi.
Hefir það eigi komið fyrir síðan
„harða veturinn* 1880—1881.
Eimskipafélagið átti 4 ára afmæli
þ. 17. þ. mán. og mintist þess með
fánum við hún á húsum sínum og
Gullfoss lá fánum prýddur frá hvirfli
til ilja.
Astfólgnara afmælisbarn — hinni
íslenzku þjóð en Eimskipafélagið get-
ur ekki, svo mikinn og góðan orðstír
hefir það getið sér og svo stórmikið
gagn hefir það unnið þjóðinni þann
stutta tíma, sem það hefir staðið.
Kjörskrá til bæjarstjórnarkosn-
inganna 31. jan. næstkom. liggur nú
frammi.
Margar kærur hafa borist bæjar-
stjórn frá stjórn Alþýðuflokksins um,
að menn séu ekki teknir á kjörskrá,
hafi þeir ekkert greitt af útsvari sfnu
1917.
f>e8Bum kærum hefir bæjarstjórn
vísað til úrskurðar kjörstjórnar.
Ræjarstjórnarkosningin. Heyrst
hefir þegar um lista sem von kvað
vera á við kosninguna 31. jan. næst-
kom. A öðrum listanum verður líkl.
fyrsti maður Sveinn Björnsson, en á
hinum (alþýðufl. lista), sem þegar er
fram kominn eru fyrstu nöfn: þor-
varður þorvarðarson prentari. ölafur
Friðriksson ritstjóri og JónBaldvins-
Bon prentari.
Skipafregn:
S t e r 1 i n g komst ekki héðan fyr
en á sunnudag síðla, var ísteptur á
höfninni. Auk farþeganna, sem taldir
voru í síðasta blaði, tók Olsen,
aðst.m. brezka konsúlsins sér fari til
Noregs snöggva ferð.
Lagarfoss komst inn á Fá-
skrúðsfjörð núna um miðja viku. eftir
mikla hrakninga og viku útivist frá
Bvíb. Var skipið þá svo ísað, að
naumast mátti við neinu, ef fljóta
átti og svo ferlegt hafði það verið
ásýndum, að miklu líkara þótti stór
um, hrönglóttum fsjaka en skipi. Frá
Fáskrúðsfirði stóð til að Lagarfoss
færi til Seýðisfjarðftr og affermdi
vörurnar þar, því engar horfur eru á
því fyrst um sinn, að skip komist
norður fyrir Langanes vegna íss.
B o t n i a á að fara héðan til Noregs
á næstunni. Von á henni frá Seyðis
flrði hingað, hið fyrsta.
Geysir fór héðan á mánudag til
Borgen. Var búist við að hægt yrði
að senda með honum mikinn póst,
en einhvernveginn atvikaðist það svo,
að hann fór mönnum óafvitandi og
mun Iítinn sem engan póst hafa tekið.
Utgerðin. Héðan úr bæ lítur út
iyrir, að engir botnvörpungar verði
gerðir út á vertíðinni, vegna þess,
hve dýrt saltjð er og kolin lítil og
dýr,
Vélbátaútvegur verður aftur senni-
lega nokkur.
Leibafmæli, 25 ára, á siðast í
þessum mánuði(30.jan.) frú Stefanía
Guðmundsdóttir. Hún leikur þann
dag eitt af helztu hlutverkunum, sem
hún hefir fengist við: Mögdu íHeim-
ilinu. Eftir leikinn stendur til að
að efnt verði til heiðurssamsæti fyr-
ir frúna.
Aufe frú Stefaníu eiga 2 af góð-
leikendum vorum 25 ára leikafmæli
í þessum mánuði. Eru það þeir Helgi
Helgason og Friðfinnur Guðjónsson.
Hinn síðari er þó eiginlega eldri
leikari, lék fyrsta sinni á Akureyri
1890, en hér í bæ fyrsta sinni 1893
En Helgi kom fyrst á leiksvið í
Hafnaríirði. Báðir hafa unnið leiklist
vorri mikið gagn, verið ábyggilegir
og leyst hlutverk sín alljafnan mjög
snoturlega af hendi.
Baiinsókn á farþegagózi mjög
ströng fór fram áður en Sterling fór.
Stóðu þeir bæjarfógeti og aðstoðarm.
brezka ræðismannsins í því verki
fram á laugardagskvöld, með þeim
árangri að 2 farþegar, sem ætluðuað
fara, voru kyrsettir, þeir G. E. Guð
mundsson námumaður og þorvaldur
Arnason stúdent. Höfðu báðir f fór-
um sínum einkabréf til manna erlend
is, en farþegum verið harðlega bann-
að að flytja með sér póst.
SIíáldastyrkTirlmi.
S jörnarráðið hefir nú úthlut?ð
styiknum til skálda og listamanna,
stnikvæmt ákvörðun síðasta alþingis,
samtals 12 þús. krónur. Þessir hafa
fengið styrk:
Einar H. Kvaran, rithöf. 2400
Einar Jónsson, myndh. 1500
Guðm. Manússon, rithöf. 1200
Guðm. Guðmundsson, skáld 1000
Jóhann Sigui jónsson, rithöf. 1000
Valdemar Briem, vígslubiskup 800
Guðm. Friðjónsson, skáld 600
Jakob Thorarensen, skáld 600
Sig. Heiðdal, sagrtaskáld 600
Asgr. Jónsson, málari 500
Br. Þórðtrson, málari 500
Jóhannes Kjarval, málari 500
Ríkharður Jónsson, myndism. 500
Hjálmar Lárusson, myndsk. 300
Símfregnir.
90 höfrungar drepnir.
Fiéttaritari vor á AkuTeyri símaði
oss í gær á þá leið, að Jón bóndi á
Grímsnesi á Látraströ id við Eyja-
fjörð hafi farið frarn að sjó með 7
menn með sér. Gengu þeir þar að
vök nokkurri, þar sem margir höfr-
ungar voru fyrir. Ráku þeir alls
90 höfrunga á land og drápu þá.
Jón gaf hverjum fylgdarmanna
sinna 4 höfrunga i ómakslaun.
Kjötið er selt á n aura pundið.
Útflntningsleyfi kvað ekki vers
fengið í New York fyrir vörur, sem
Frftncis Hyde á að taka. Og eigi
heldur fyrir vörur f »lslandt. En
eitthvað kvað vera af vörum liggj-
andi í New York, sem kaupmenn
hafa fengið útflutningsleyfi fyrir, svo
vonandi verða skipin látin taka þær
heldur en að tefjast lengi vestra.
Vilbjálmur Stefánsson.
Eftir því sem segir i grein í ensku
blaði frá 1. jan. er Vilhjálmur Ste-
fánsson kominn til Fort Yukon. En
hann hefir verið í leiðangri noiður
um höf í rúm 4 ár.