Ísafold - 27.04.1918, Side 4
4
IS AFOLD
Erl simfregnir
Frá fréttaritara ísafoldar.
Khöfn, 19. apríi.
Herskyldnlög Breta hafa verið
satnþykt í efri rnálstofu Brezka þings-
ins.
ítaiskt lið er komið til vesturvíg-
stöðvanna.
Bæjarskrá Reykjavíkur
1918 -
fœst hjá bóksölum.
Nokkur eintók i b a n d i og á betri pappír, fást á skrifstofu
Isafoldar.
Reglitgjörð
um
ráðstafanir til að tryggja verslun landsins
Samkvæmt heimild í lögum nr. 6, 8. febrúar 1917, um heimild
handa landsstjórninni til ráðstafana til tryggingar aðflutningnm til lands-
ins, eru hjermeð sett eftirfarandi fyrirmæli.
Leiðarbók
(skibsdagbog) og
Leiðarbókar-uppkast
(kladde)
handa skipum, gefið út að tilhlutun Stjórnarráðs Islands, hvorttveggja á
íslenzku, er nýkomið út. — Fest á skrifstofu ísafoldar.
Isafold -- Olafur Björnsson.
1
Vátadagbók
handa vélameisturum á skipum) gefin út að tilhlutun Stjórnarráðs íslands,
á íslenzku, kemur út eftir nobkra daga.
Isafoíd --- Olafur B/örnsson.
Nýjar bækur:
C. W. Leadbeater:
Lífið eftir dauðann.
Þýtt hefir
Sig. Kristófer Pétursson.
Skiftar skoðanir
Eftir
Sig. Kristófer Pétursson.
(Sérprent úr Lögréttu).
Hin fyrri kostar kr. 0.75, en hin siðari kr. 0.50.
Fást hjá bðksölam.
Isafold —. Olafur Björnsson.
K.höfn 20. apríl.
Frá London er símað að í írlandi
hah menn tekið höndum sarnan til
þess að berjast gegn herskyldunni.
Her Bandaríkjanna verður nú á
næstunni 3 miljónir og síðar 5 mil-
jónir manna.
Vasa og Reaumo eru fallnar. Finska
stjórnin er aftur komin til Helsing-
fors.
Clemenceau forsætisráðherra hefir
gefið þinginu fullkomna skýrsln í
bréfamálinu (milli Karls keisara og
Sixtus prinz) og lagt fram öll skjöl
því viðvíkjandi. ■
Ukraine og Rúmenia ætla að skifta
Bessarabín á milli sín.
Khöfn. 2r. apríl.
Hlé má enn heita að sé á vestur-
vigstöðvunum. Að eins smá áhlaup
^jerð að beg^.ja hálfu.
Hernaðarlán Þjóðverja eru nú orð-
in samtals miljard marka.
I Engiandi verða kröfurnar æ há-
værari um það, að útlendingum, sem
neita að ganga í herþjónustu, verði
visað úr landi.
Meðlimir írska landsþingsins eru
að koma á samtökum gegn her-
skyldu í írlandi.
Khöfn, 22. apríl.
Frá París er simað, að búist sé
við nýrri sókn af hálfu Þjóðverja
i Picardie.
í ráði er í Bandarikjunum að
gera alla menn á aldrinum 18 til
50 ára herskylda.
Þjóðverjar eru komnir til Krim.
Senatið í Bandaríkjunum hefir
veitt 1312 milj. dollara til flotans.
Óánægja fer vaxandi i írlandi
og horfir til óeirða. Hervörðnr
hefir verið settur við járnbrautir,
póst- og símastöðvar.
Deilur eru að rísa milli Búlgara
og Tyrkja.
Khöfn 23. apríl.
Úrslit þjóðþingskosninganna urðu
þan, að kosnir voru: 45 vinstri-
menn, 39 jafnaðarmenn, 32 róttæk-
ir vinstrimenn (stjórnarflokkurinn),
22 íhaldsmenn og 1 »industrial«
(áður óþektur flokkur). Af hinum
nýkosnu þingmönnum ern 71 fylgj-
andi stjórninni en 68 andvigir
henni.
Khöfn, ^ódagsett
Frá London er símað að Gua-
temala hafi sagt miðríkjipum stríð
á hendur.
Herskip hafa ráðist á Ostende og
Zeebrugge, sett þar lið á land og
gert ^ríiggesknrðinn ófæran með
*því að sökkva þar niður skipum.
Allsherjarverkfall hafið í írlandi.
Austurríkst hjálparlið er komið til
Belgíu.
Frá Budapest er símað að Szter-
nyr verzlunarráðherra sé orðinn for-
sætisráðherra þar.
♦Vorwartsc vítir fyrirætlanir Þjóð-
verja i Eistlandi og Líflandi.
Þjóðverjar hafa tekið S^eaborg.
Khöfn, 24 apríl.
Frá London er símað að Þjóð-
verjar hafi enn á ný ógnað Hol-
lendingum.
Atkvæðagreiðslan um heimastjórn
írlands hefir fallið á móti Lloyd
Géorge og Ulstermönnum verið
heitið einhverjum ívilnunum.
Frakkar hafa upphafið ýmsa verzl-
unarsamninga.
. • Khöfn 25. apríl.
Frá París er simað, að Þjóðverj-
ar hafi hafið ákafa stórskotahríð hjá
Somme og Avre.
Frá London er simað, að Þjóð-
verjar hafi gert stórfeld fótgöngu-
liðsáhlaup á öllu orustusvæðinu.
Frá Berlín er símað, að Þjóðverj-
ar hafi náð Simferopol á Krim á
sitt vald.
Frá Petrograd er simað, að
'Jekaterinoslav hafi verið umkringd.
Kornilöfi er látinn.
c7C. cflnóarsen & Son
Reykjavík.
Landsins e 1 z t a klæðaverzlun og
saumastofa. Stofnsett 1887.
Aöalstræti 16. Sími 32.
Stærsta úrval af alls-
. konar fataefnum .
. og öllu til fata. .
Sighv. Blöndahl
cand. jur. .
Viðtalstími kl. u —12 og 4—6.
Lækjargötu 6 B.
Sími 720. Pósthólf 2.
Khöfn 26. apríl.
Þjóðverjar hafa náð Kemmel.
Utanríkisráðherra Hollendinga seg-
ir. að landið sé nú í miklum vanda
statt og horfur ískyggilegar.
Zahle-stjórnin situr við völd framr
vegis.
1. gr.
Meðan samningar standa nú yfir milli Bretastjórnar og sendimanna
landsstjórnarinnar íslensku um verðlag á islenskum afurðum 1918, er
bannað að selja til útlanda eða gjöra samning um sölu til útlanda á is-
lenskum afurðum, sem framleiddar hafa verið eða framieiddar verða á yfir-
standandi ári.
2. gr.
Brot gegn ákvæðum 1. gr. reglugjörðar þessarar varða sektum alt að
300,000 krónum. Bæði sá, sem selur eða lofar að selja vörur þær, sem
greindar eru i 1. gr. og á þann hátt, er þar greinir, og sá, sem kaupir
eða iofar að kaupa þær, skal sekur talinn við ákvæði regiugjörðar þess-
arar. Hið selda. eða umsamda er að veði fyiir sektunum. *
3- gr-
Með mál út af brotum gegti reglugjörð þessari skal fara sem al-
menn lögreglumál.
Áður en dómari úrskurði sektir, án þess að mál fari fyrir dóm,
skal málið borið undir stjörnarráðið.
4- gr.
Reglugjörð þessi öðlast gildi þegar í stað.
Þetta er birt öllum þeim til eftirbreytni, sem hlut eiga að máli.-
í stjónarrráði fslantls 22. apríl 1918.
Sigurður Jónsson
Oddur Jfsrmannsson.
Auglýsing.
í sambandi við reglugjörð þá um ráðstafanir til að tryggja verslun
landsins, sem gefin hefur verið út i dag, auglýsist hjermeð, að lands-
stjórnin vegna landssjóðs getur ekki tekið neina ábyrgð á afleiðingum af
ráðstöfunum eða sölusamningum manna á milli hjer á landi um íslenskar
afurðir til útflutnings, sem framleiddar hafa verið eða framieiddar verða
á yfirsfandandi ári.
í stjornarráði fslands 22. apríl 1918.
I
Sigurður Jónsson.
Oddur Hermannsson.
Passí usálmar
og
150 sálmar
t
fást
hjá bóksölum bœjarins.
Bímanak
fjanda
ísíenzkum fiskimönnum 1918
er komið út
og fœsf biá bóksöfum.