Ísafold - 13.07.1918, Síða 4
ISAFOLD
Laus staða.
Kennarastarfið við barnaskólann á Flatey á Breiðafirði er laust tii
umsóknar næstkomanái skólaár.
Laun samkvæmt f æðslulögunum.
Umsóknir sendist skólanefnd fyrir x. september.
Flatey 22. júni 1918.
Fyrir hönd nefndarinnar
Jön Jónsson
(frá Lundi).
t
Bændur athugið!
Vegna si-vaxandi eftirspnrnar á smáílátum, svo sem: döllum,
fötum og byt um, hefi eg nú fyrirliggjandi nægtir af þeim með
sanngjörnu verði.
Strokka smíða eg með nokkra daga fyrirvara. Kaupið aðeins
sterk og endingargóð ilát, það mun borga sig bezt. En þau er að fá hjá:
Jóni Jónssyni beyki Klapparst 7.
Sími 593. Reyfeiavík. Box 1-02.
Tilkynning.
Háttvirtum viðskiftavinum mínum tilkynnist hér með að herra O. J.
Lauth, er um mörg undanfarin ár hefir starfað við klæðaverzlun mina,
er orðinn meðeigandi i verzluninni, og verður hún eftirleiðis rekin af
okkur i félagi undir firmanafninu Auderseu & Lauth. Jafnframt
þakka eg minum mörgu viðskiftavinum góð viðskifti og leyfi mér að
vænta þess að verzlunin njóti sama trausts hér eftir sem áður.
Reykjavík 1. júlí 1918.
Við viljum fá stjórn, sem bindur
enda á ófriðinn svo fljótt sem unt
er; vér neitum jafnvel að greiða at-
kvæði með fjárbeiðnum stjórnarinnar.
Ledebour sagði að það væri skylda
þýzka öreigalýðsins, að hvetji til
stjórnarbyltingar. Forsetinn vítti
þessi ummæli.
Frá London er símað, að gufu-
skipið Gustaf Falck og farmur þess
hafi verið gert upptækt.
»Neue Freie Presse« býst við
því, að Czernin komist bráðlega
aftur til valda.
Frá Aþenu er símað, að Moha-
med V. Tyikjasoldán sé dauður.
ítalir hafa enn tekið 23qp faoga
hjá Piave.
Khöfn. 5. júlí.
Bretar hafa tekið Hamel.
Frakkar hafa sótt fram 5 kiló-
metra hjá Autrecher og Noulin
sous Touvent og handtekið 1000
Þjóðverja.
Stjórnin í Hollandi hefir sagt af
sér.
Khöfn, s. júlí.
Hinir frægu sænku flugmenn,
Cederström barún og Krokstedt fóru
i flugför til Finnlands og hefir siðan
eigi til þeirra frézt. Eru þeir nú
taldir af.
í íaldsmenn og vinstrimenn í
dans .a landþinginu hafa samþykt að
velja ellefu manna nefnd til þess að
rannsaka málið út af skeyti því, er
Zahle sendi amtmanni Færeyja 15.
marz. Stjórnarflokkarnir skoruðust
undan að greiða atkvæði.
Maximalistar hafa beðið ósigur hjá
Irkutsk og stafar þeim nú hætta af
Síberiu-mönnum og eins frá Murman-
ströndinni.
Ukrainstjórn hefir sagt af sér.
Komist hefir upp um þýzk sam-
tök i Suður-Afríku.
Skríllinn í Róm hefir gert aðsúg
að höll sendiherra Þjóðverja.
í Tyrklandi hefir verið kosinn nýr
keisari og heitir sá Múbamed VI.
Branting er kominn til París.
Khöfn, 6. júlí.
Frelsisdagur Bandaríkjanna var
hátiðlegur haldinn um England og
Frakkland. Wilson flutti stórmerka
ræðu þann dag hjá gröf Washing-
tons.
Siðustu rússnesk blöð halda þvi
fram, að Nikulás keisari hafi \;erið
myrtur, en Lenin mótmælir því.
Framkoma jafnaðarmanna í þýzka
þinginu er harðlega vitt (i þýzkum
blöðum).
23000 Armenar hafa tekið Eri-
wan.
Það er nú borið til baíla aftur að
Finnar flytji herlið til Karelen-hér-
aðs og hafi gert alla Breta útlæga.
Kaupmannahöfn, 7. júli.
Sendiherra Maximalista i Ameríku
hefir verið hneptur í varðháld.
Astralíumenn hafa gert árás með
góðum árangri hjá Villers.
Frá Moskva er símað að 75000
uppreistarmenn séu á leið til Kiev.
íbúar á Murman-ströndínni æskja
þess að ganga i bandalag við banda-
menn.
Khöfn 7. júlí.
Mirbach sendiherra Þjóðverja í
Moskva, hefir veiið myrtur.
Orðasveimur hefir borist út um
það einhvérjar krókaleiðir, að Michael
stórfursti hafi verið kosinn keisari
als Rússaveldis.
í alir sækja fram hjá Piavemynni.
Vorwaerts, blað þýskra jafnaðar-
manna, vítir það grimmilega, að kart-
öfluskamturinn hefir enn verið mink-
aður í Berlín, svo að hann er nú
aðeins eitt pund á viku.
Khöfn 8. júli
Ritzau og Wolffs fréttastofur til-
kyntu i gærkvöldi að hinir ákafari
hyltingarmsnn í Rússlandi viður
kendu að M rbach hafi verið drep-
inn. Forkolfar hægfara byltinga-
manna hafa verið hneptir í varðhald.
Gagnbyltingarmenn heyja orustur á
götunum í Moskva, á mörgum stöð-
um í senn. Maximalistar fullyrða
að þeir hafi enn yfirhöndina.
Þjóðverjar halda þvi fram, að Mir-
bach hafi verið drepinn fyrir undir-
róður bandamanra.
Frá Wíen er símað að Austurrík-
ismenn hafi yfirgefið hólmana i Piave-
mynni.
Khöfn 8. júlí
Flugvélaárás hefir verið gerð á
Miklagarð.
Það er talið að motð Mirbachs
sé upphaf að allsherjar upprei t gegn
Maximalistum.
Paris býst við nýrri sókn af Þjóð-
verja hálfu.
Frá Berlin er símað að Astralíu-
menn hafi aukið sókn hjá Somme
og Lys.
Khöfn 9. júlí
Uppreistarástand i Moskva. Gagn-
byltingarmnnn vilja semja við Maxi-
malista, en krefjast þess að þeir
gangi sér þá algerlega á vald.
Meðllmir stjórnarinnar hafa verið
hneptir í varðhald í sendiherrabú-
stað.Þjððverja i Moskva.
Ahlaup ítala hjá Asiago magnast.
Deila er risin milli Tyrkja og
Búlgara út af Dobrudja.
Merkileg friðargrein er birt í þýzka
blaðinu »Vossische Zeitungc og er
þess þar krafist að friðarsamningun-
um i Brest Litowsk verði kollvarpað,
að Belgía verði endurreist og að
þýski herinn verði fluttur burt úr
Frakklandi en Þjóðverjar fái aftur
nýlendur sinar. Það er álitið að
greinin sé birt i samráði við stjórn-
ina (utanríkisráðh. Kiihlmann).
Khöfn 9. júlí
Frakkar h3Ía gert árásir á Hony-
pont og Salzburg.
Samningar um bandalag Þýzka-
lands og Austurrikis byrjuðu í gær.
MiIjukofF er kominn til Kiew
til að semja við einveldissinna.
Það er opinberlega tilkynt að
Kuhlmann utanrikisráðherra Þjóð-
verja hafi sagt af sér embætti. Bú-
ist er við að Hintze sendiherra i
Kristianiu komi í hans stað.
K.höfn 10. júti.
Maximalistar halda því fram, að
gagnbyltingin i Rússlandi hafi verið
kæfð niður og fullu skipulagi komið
á aftur.
Bandamönnum ber á milli um það,
á hvern hátt þeir eigi að skerast í
ieikinn í Siberíu.
Því er lýst yfir i Þýzkalandi, að
embættisafsögn Kúhlmanns utanríkis-
ráðherra sé ekki fprirboði neinnar
stefnubreytingar, með því að ríkis-
kanzlarinn sé hinn sami. Af blöð
unurn er það »Tageblatt« eitt, sem
heldor því fram, að fráför Kúhl-
manns sé sigur fyrir »Algermana«-
stefnuna.
K.höfn 10. júlí.
Það er búist við því, að fráför
Kúhlmanns muni standa i sambandi
við s ðustu ræður hans og Scheide-
manns.
Ítalír hafa handtekið 1300 menn
í Alba iíu.
Khöfn 11. júli.
Frjalslyndi flokkurinn í Þýzka-
landi hefir snúist gegn ríkiskanzlar
anum og varakanzlaranum. Vor-
waerts krefst þess að Hertling leggi
niður völd.
FrUarsamningar eru byrjaðir milli
Rússa og Finna í Reval.
Frantz, fyrverandi sendiherra i
Kaupmannahöfn er orðin sendiherra
Austurrikismanna i Moskva.
Enska blaðið Morningpost hefir
afturkallað fyrri ásakanir sínar í garð
Dana.
Khöfn, 11. júlí.
í grein, sem sænska blaðið »Dagens
Nyheter* flytur um ályktun fulltrúa-
ráðs alþýðuflokksins, segir að það sé
nú ljóst hve óheppilegt það hafi ver-
ið, að danskir ihaldsmenn skyldu
eigi hafa falltrúa i samninganefnd-
inni. Danska þjóðin mundi hafa
verið öruggari ef íhaldsmenn nefðu
ályktað réttilega um það hver áhrif
þeir hefðu getað haft á samingana í
Reykjavik.
Frakkar hafa gert útrás hjá Oise.
Lík Mirbachs hefir verið flutt til
Berlín.
Fyrsta verk finska landsþingsins
hefir orðið það, að samþykkja lög
um það að Finnland skuli vera kon-
ungsríki.
í samræmi við ofanritað viljum
jR dlnÓQTSQll.
við geta þess, að við munum á
allan hátt kosta kapps um að gera vif skiftamönnum okkar til hæfis, svo að
verzlunin verði hér eftir, eigi síður en hingað til makleg þeirrar miklu
velvildar er hún hefir notið.
dlnéersQn <8 JSauífí.
Veiðimenn!
Sænska púðrið ágæta er komið aftur.
Hins og flestum er kunnugt reynist þetta púðar betra en flestar
aðrar tegundir sem hingað hafa fluzt.
bareð birgðirnar eru ekki miklar en óvíst að meira púður fáist inn-
flutt á þessn ári, er áríðandi að þér sendið mér pöntun yðar sem fyrst.
Ennfremur hefi eg fengið: Skothylki nr. 12 16 20 24 og 28.
Eley hvellhettur, hleösluáhöld nr. 12 & 16 fægistengur,
bursta og byssuvaseliu, skóthylfejabelti, veiðimanna-
töskur 0. fl. o. fl. Högl, haglabyssur og kúlubyssur (kal.
22) og fleiri vörur fæ eg frá Ameríku í næsta mánuði.
Virðingarfylst,
Hans Peíersen.
Símnefni: »Aldan«. Hafnarstræti 4 Reykjavík. Sími: 213.
Ný bók!
HRÆÐUR I.
eftir Sig. Heiðdal.
----fæst hjá bóksölum. -
Aðalútsala í bókaverzlun Arinbj. Sveinbjarnarsonar.
i