Ísafold - 02.11.1918, Síða 1
!£"iuur iH 1 — 2
í viku. Vntðárg.
5 kr., erlendls 7x/2
kr. eða 2 doilarjborg
lab fyrir miðjan júlí
arlendis fyrirfram.
Lausasala 10 a. eint
XLV árg.
Reykjavik, laugardaginn 2. nóvember 1918
Upp8Ögn (skrifl.
bundin við áramót,
er ógild nema kom-
; in 8Ó til útgefanda
fyrir 1. oktbr. og
só kaupandi skuld
I laus við blaðið.
55 tólublað.
Aukafundur
H.f. Eimskipafélags Islands
26. okt. 1918.
Ar 1918, laugardaginn 26. oktbr.
var haldinn aukafundur í Eimskipa-
félagi Islands, samkvæmt auglýsingu
útgefinni af stjórn félagsins 26. júní
þ. á.
Var fundurinn í Iðnaðarmanna-
húsinu i Revkjavík og settur kl. 1
e. h. af gjaldkera félagsstjórnarinnar,
hr. Eggert Claessen, i forfölium for-
manns og varaformauns, samkvæmt
umboði félagsstjórnaiinnar. Stakk
hann upp á fundaistjcra Eggert Briem
yfirdómara, og samþykti fundurinn
það með lófataki. Tók hann þá
við fundarstjórn og kvaddi til fund-
arskrifara Georg Olafssoti ctnd. po’it.
Fundarstjóri lagði fram Lö^birting-
ablaðið og þau önr.ur blöð, er fund-
urinn hafði verið auglýstur í, og
lýsti hann fundinn löglega boðaðan
með tilliti til framlagðra skjala og
samkvæmt 8. gr. félagslaganna. —
Lagði fundarstjóri ennfremur fram
skýrslu ritara stjórnarinnar um af-
hendingu aðgöngumiða- og atkvæða-
seðla á að fundi um. Skýrsla þessi
var merkt nr. 2 og er svohlj.:
Nr. 2 Lsgt fram á aukafundi í
Eimskipafélagi íslardi 26. okt. 1918.
Georg Ólafsson, fundarskrif.
Skýrsla
um afhendingu aðgöngumiða og atkvæðaseðla
að aukafundi h.f. Eimskipafélags íslands
26. okt. 1918.
Aðgðngumiðar að fundinum voru
afhentir fyrir þessu hlutafé:
1. Landssjóðs kr. 100,000
2. Vestur íslendinga — 150,275
3. Annara hluthafa — 135,400
:Samt. afh. aðgm. fyrir kr. 385 675
Alt atkvæðisbært hlutafé í félag-
inu nemur nú kr. 1,680,600, og eru
jþví afhentir aðgöngumiðar alls fyrir
22,9% af atkvæðisbæru hlutafé.
Akvæðaseðlnr eru afhentir þannig:
Atkv.
Fjármálaráðh. fyrir landssj. 4000
Öðrum hluthöfum en lands-
sjóði og Vestur-íslendingum 5416
Ben. Sveinss. og Þorði Sveinss.
í umb. Aros Eggertss. fyrir
Vestur-ísl, með hlutfallsr.
samkv. 10. gr. félagslaganna 959
Afhent alls atkvæði 10375
— tiu þúsund þrjú hundruð sjötíu
og fimm —.
Reykjavík, 25. okt. 1918.
Jón Þorláksson.
p. t. ritari félagsstjórnar h.f. Eim. ísl.
Var þá gengið tii dagskrár fund-
arins og tekið fyiir 1. mál.
Breyting á 22. gr. laganna við
d-lið orðin:
».........en aldrei má.............
fyrir hvert ár« falli burt.
Fyrir hönd íélagsstjórnarinnar
skýrði Eggert Claessen frá breyting-
artillögunni, og af hluthöfum tók
kaupm. B. H. Bjarnason til máls og
mælti með henni. Var því næst
leitað atkvæða um tillöguna og hún
samþ. með öllum gr.-atkv.
2. mál. Frumvarp til reglugerðar
fyrir eftirlaunasjóð h.f. Eimskipafél.
íslands. Samkvæmt tilmælum stjórn-
arinnar var samþykt að taka málið
út af dagskrá.
Þá gerði bankastjóri Benedikt
Sveinsson fyrbspurn til stjórnarinnar
um hve mikil brögð hefðu verið að
því að eigendaskifti bafi orðið að
hlutabréfum í félaginu. Fyrirspurn-
inni svaraði Eggert Claessen fyrir
hönd félagsstjórnarinnar og gaf eftir-
farandi skýrslu um eigendaskifti að
hlutabréfum austanhafs (annara en
Vestur íslendinga) frá stofnun félags-
íds til þessa dags:
18 eigendask. f. arftöku kr. 950,00
Atfleifar 17. Erfingjar 18.
42 eigendask. fyrir gjöf kr. 3425.00
Gefendur 36. Þiggjendur 39.
92 eigendask. fyrir kaup kr. 10500,00
Seljendur 87. Kaupendur 81
Að þvi er snerti eigendaskifti að
hiutab;éfum Vestur-Isiendinga kvað
hann félagsstjórninni ókunnugt um
eigeudaskifti meðal Vestur-íslendinga
inubytðis, en stjórnin vissi til, að
menn hér á landi hefðu keypt hluta-
bréf fyrir ca. 27 þús. kr. af Vestur-
Islendiagum, en beiðni um samþykki
til þeir.a eigendaskifta hefðu eigi
enn borist féiagsstjórninni.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundi slitið.
Egqert Briem. Georg Olajsson.
Með skýrslu Eimtkipaíélagsstjórn-
arinnar um »eigendaskifti« að hluta-
bréfum er aigerlega hnekt dylgjum,
sem blaðið Tíminn hefir flutt um,
að verið væri að reyna að gera fé
Iagið að sjálfseign nokkurra stór-
gróðamanna.
Lok styrjaldarinnar
Þau orð mun nú mega fara að
temja tungunni, því síðustu tíðindi
hniga ö!t í þá áttina, að skamt muni
að bíða vopnahlés, en að því fengnu
er talið, að friður fylgi fljótt á eftir.
Skal hér greint frá helztu atb rð-
unum þessa viku:
Wilsons skeytið Svari Wilsons, þar
°9 sem hann kveðst muni
Þjódverjar. [,era friðarboð Þjóð-
verja undir stjórnir Samherja, var
vel tekið í Þýzkalandi yfirleitt, og
talið vænleg undirstaða friðarsamn-
inga.
Þingræðið I stjórnarskrárbreytingun-
°9 um, sem Þjóðverjar hafa
Ludendorff. . • .
gert, er þingræðisreglum
fram fylgt út í æsar. Kanzlarinri
látinn bera ábyrgð gagnvart þinginu
á öllum athöfnum keisarans og hann
og embættisbræður hans á öllum
stjórnarathöfnum, þar á meðal her-
málaráðherrann á skipun og frávikn-
ing embættismanna hers og flota,
hinna æðstu hershöfðingja lika.
Þegar svo var komið, stóðst ekki
Ludendorff hershöfðingi lengur mát-
ið. Vildi hann ekki lúta stjórninni,
heldur sagði af sér. En hann hefir
nú um langa hríð verið talinn aðal-
forkólfur Þjóðverja í hermálum,
fremri og snjaliari sjálfum Hinden-
burg.
Eftirmaður Ludendorffs heitir
Hoffmann, og var einn af aðal-
mönnum Þjóðverja við friðarsamn-
ingana i Brest-Lítovsk.
Svar Þjóðverja Síðasta svar Þjóðverja
frá 28. okt. var á þessa
Wilsons. , . v
leio:
»Forsetinn veit um hinar gagn-
gerðu breytingar, sem oiðnar er og
eru að verða á stjórnarskipun Þýzka-
lands. Friðarsamningarnir verða gerð-
ir af lýðstjórn Þýzkalands, sem hefir
hið löglega framkvæmdarvald, satrí-
kvæmt stjórnskipuninni. Henni
verður herstjórnin líka að lúta«.
Ráðstefna Þegar þetta svar barst frá
í Paris. Þjóðverjum, fóru þeir
Lloyd George forsætisráðherra og
Balfour utanríkisráðherra ásamt trún-
aðarmanni Wilsons á Bretlandi,
House hershöfðingja, á ráðstefnu til
Parisarborgar, og hefir enn eigi
frézt hvað þar hefir gerst.
Austurriki Svo gersigrað telurAust-
beiðist urrjkí sig, að það hefir
sérfriðar. c _ , , .x
gefast aiveg upp og beiðst
sérfriðar með svofedu skeyti til
Wilsons:
»Sem svar við sktýti því, er for-
setinn sendi stjórn Austurríkis 18.
okt. og viðvikjandi ákvörðun forsetans
að snúa sér sérstaklega til austur-
rískn stjórnarinnar am skilmála fyrir
vopnahlé og friði, þá leyfir austur-
ríska stjórnin sér virðingarfylst að
lýsa yfir þvi, að eius og hvað fyrri
yfiriýsingar forsetans snertir, þá get-
ur hún fallist á skoðanir forsetans,
eins og þær koma fram í síðasta
skeyti hans, um rétt þjóðflokkanna
innan Austurríkis, sérstaklega Czeko-
Siovaka og Jugo-Slava. Þar sem
Austurríki—Ungverjaiand gengur að
öllum þeim skilyrðum, sem forset-
inn setur fyrir umleitunum um
vopnahlé og frið, þá er ekkert fram-
ar því til fyrirstöðu, að áliti austur-
rísku stjórnarinnar, að samningar
geti byrjað þega^ í stað. Austur-
riska stjórnin lýsir því yfir, að hún
er þannig reiðubúin til þess að hefja
samninga um frið milli Austurríkis
—Uugverjalands og bandamann:>,
og um vopnhlé þegar i stað, án
þess að bíða eftir' árangri friðarum-
leitana hinna þjóðanna.
Austurríska stjórnin biður Wilson
forseta vinsamlegast að gera þegar
ráðstafanir þessu viðvíkjandi«.
Keisararnir Austurríkiskeisari er far-
valtir. inn frá Wien og seztur
að i Búdapest, og búinn að gera
Ungverjann Andrassy greifa að utan-
ríkisráðherra.
Þýzk blöð og austurrísk halda því
óhikað fram, að Vilhjálmur keisari
geri bezt i að segja af sér. Fyrir
ári mundi það hafa þótt fyrirsögn,
að blöðin þyrðn að vera svo berorð.
Þjöðar-atkvæðið.
Nú eru fréttir komnar úr öllum
kjördæmum landsins nema Vestur-
Skaftafellssýslu (austan Mýrdals).
Frá því síðasta blað kom út hefir
frézt úr þessum kjördæmum:
Jd: Nei:
Snæfellsnessýsla . . . 616 20
Suður Þingeyjarsýsla . 504 57
Norður- Þingeyj arsýsla I7S 26
Barðastrandarsýala . . 373 3i
Norður ísafjarðasýsla . 316 103
Norður Múlasýsla . . . OO 2
Alis 2369 239
Áður greidd atkv. . 9969 750
Samtals 12338 989
Þátt takan hefir verið minni, í
þeim kjördæmum, sem frézt hefir
úr upp á siðkastið.
Sennilega verða já-in hálft þrett-
ánda þúsund og nei-in nndir tíu
hundruð.
Verður ekki annað sagt en að
greinlega skeri úr um vi ja þjóðar-
innar með atkvæðagreiðslunni.
Svo báglega, sem hr. Magnúsi
Torfasyni tókst i sinu kjöidæmi að
fá kjósendur til fylgis v ð sinn mál-
stað hefir þó hr. Benedikt Sveins-
son fengið hálfu hraklegri útreið í
sinu kjördæmi, þar sem að ein
i2°/0 af greiddum atkvæðum eru
móti sáítmálanum.
Fossanefndin.
Á þinginu í sumar var, eins og
lesendur vora rekur minni til, ail-
mikið rætt um fossanefndarfarganið,
hve mislagðar hendur stjórninni
hefðu verið um skipun hennar o. s.
frv. Einkum var það einn nefndar-
manna, sem enginn lét sér detta i
hug að nokkurn tíma hefði nokkurt
erindi átt í þá nefnd. Enda kom
ðllum saman um, að einu verðleik-
arnir, sem litið hefði verið á, með
venjulegri óhlutdrægni stjórnarinnar,
hefðu verið, að maðurinn var bróðir
jjármálaráðherrans.
Eigi að síður var fjármálaráðherr-
an það brjóstheill i þingsalnum í
sumar, að fullyrða, að það mundi
sannast á sinum tima, að bróðir
sinn hefði unnið og mundi vinna
mikið og þarft verk í nefndinni.
Staðfesting(i) á þeim orðum fjár-
málaiáðherrans er nú komin, því að
nýlega hefir Einari Arnórssýni pró-
fessor verið bætt við í nefndina, að
ósk hennar.
Meiri vanti austsyfirlýsing á hr.
G. E. var lítt hugsanleg. Honum
hefir, eins og vita mátti, ekki verið
treyst til að vinna veikið sem lög-
fræðingnr í nefndinni. En mundi
þá hinn eiginleikinn, sem hafður
hefir verið til að bera i bætifláka
fyrir skipun hans í nefndina, »sýslu-
menska* hans i Arnessýslu, gera
setu hans i nefndinni verjandi?
Hvað skyldu Arnesingar segja um
það?
Einlyndi og marglyndi.
——OOO ' * "■
Það heiti hefir Sigurður Nordál
prófessor valið erindum þeim, sem
hann ætlar að flytja i vetur fyrir
almenning, sem styrkþegi Hann-
esar Arnasonar sjóðsins. Erindin
flytur hann á hverju mánudagskvöldi
kl. 9 siðdegis í Bárubúð.
Þar sem flest önnur biöð hafa
þegar flutt greinargerð prófessorsins
fyrir efni fyrirlestranna, þykir oss
óþarfi að endurtaka það. En óhætt
er að íullyrða, að erindin verða dýr-
mæt svalalynd þróunarþyrstum sál-
um.
Fyrsta erindi prófessorsins á mánu-
daginn var, sóttu svo margir, sem
húsrúm frekast leyfði, og er það
sammæli viðstaddra, að þar hafi farið
saman hugðnæmt efni og falleg fram-
setning, svo hvortteggja átti ein-
dregna samúð áheyrenda.
Látnir landar erlendis
Influenzan i Khöfn. hefir reynst
mannskæð einnig í hóp landa vorra.
Síminn hefir flutt fregnir um að
þessir 3 íslendingar værn dinir dr
Influenzn.
Halldór Gunnlðgsson stórkaupm,
sonur Jakobs Gunnlaugssonar, Þór-
hallur Espoiin stúdent og Karl Magn-
ússon bókbindari, sonur Magnúsar
Gunnarssonar, en mágnr Bjarns frá
Vogi.
#
Hæstaréttardómur
er nú fallinn í máli þvi, sem vín-
salarnir höiðuðu á móti landstjórn-
inni út af þvf, að þeir voru sviftir
vínsöluleyfi, er bannlögin gengu i
gildi. Dómurinn sýknaði stjórnina
og synjaði kröfum vinsaianna og
voru þeir dæmdir í 500 króna máls-
kostnað.
ReykjaYÍkpraDDáll.
Spánskaveikin fer óðnm vaxandi
hér í höfuðstaðnum, en hefír enn
sem komið er ekki reynat mann-
akæð.
Sbipverjarnir af Nirði eru nú
fleatir komnir hingað á botnvörpung-
nm þeim aem komið hafa frá Bret-
landi afðoatu dagana.
þýzbi kafbáturlnn abaut um 50
sbotum á Njörð, áður eu hann fékk
komið honum f kaf.
Tvo sólarhringa höfðuat akipverjar
við í bátunum.
Geir, björgunarakipið, kom á fímtu-
dag að austan og hafði komið tunn-
unum ölium f land í Skaftár-ósum.
Bréfapjald með mynd af Geyair
og Gullfoaa og 2 fslenzkum flöggum
hefír Helgi Árnaaon f Safnahúsinu
nýlega gefíð útt.