Ísafold - 23.11.1918, Qupperneq 4
4
I S A F O L D
og lotning fyrir henni, sem alstaðar
skin í gegnum það, sem Hulda
skrifar, hvort sem er bundið mál
eða óbundið. Náttúru-ástin er sterk-
asti þittur þessara sagna. Sólsetri,
sólarupp ás, haustkvöldum og vor-
morgncm er þar betur lýst en hinni
mannlegu náttúru. Og þar sem við
fáum að skygnast inn í sálir persón-
anna, þá er það oftast fyrir það, að
náttúran hefir opnað okkur veg til
þeirra. Og persónurnar eru flestar
það, sem þær eru, einmitt vegna
þess, að náttúran hækkar þær, lifið
í henni og með henni, en ekki bin
innri þróun, ekki hið eiginlega ein-
staklimseðli. — Og það er auðséð,
hve nánu jamlífi Hulda lifir við
náttúruna, þegar maður les smásög-
ur ! ennar. Náttúrudýrkun hennar
er einskonar guðsdýrkun. En hún
má ekki byggja sögur sínar þannig,
að þær verði að miklu leyti lýsing
á þeirri dýrkun, og hún sé hið ber-
andi afl hverrar persónu, sem sög-
nrnar fjalla um.
Ef huldu tækist að fá meiri dypt
í sögi rnar sínar, og sérkennilegri
blæ } Sr sálir og hjöitn persóna
sinna, þá mundi hún skrifa þær
fyllri og öflugri. Og það held eg
hún fái með tíð og tima, því að
sál hennar er marglauguð í lista-
brunninum.
ReykjaYíknraDDáll.
Jarðarfarir margar fara nú fram
daglega. VÍ5a erlendis hafa þær ver-
ið algerlega bannaðar— vegna veikinda.
Það hefir ekki verið gert hér. En ekki
verður það nógsamlega br/nt fyrir öll-
um að fara varlega, vera ekki að
hætta sér út til jarðarfara. nema gall-
frískir séu og sízt að bíða úti við hús-
kveðjur eða fara f misjöfnu veðri fram
í kirkjugarð.
Skipafregn:
B o t n i a kom hingað í fyrrakvöld.
Meðal farþega voru: Knud Zimsen
borgarstjóri og frú hans, Loftur Guð-
mundason verksmiðjueigandi, jungfrú
Sólveig Björnson, Jón Björnsson kaup-
maður, Þorvaldur Pálssou læknir, Carl
Ólsen stórkaupmaður, Egill Jacobsen
kaupmaður, O. Forberg landsímastjóri,
Gísli Ólafsson símstjóri o. m. fl.
G u 11 f o s s fór vestur um haf á
mánudag. Farþegi: Magnús Th. S.
Blöndahl framkvæmdarstjóri.
Jón Kristjánsson prófessor og kona
hans voru grafin í dag. Hófst athöfn-
In í Háskólanum. Þar talaði síra Jó-
hann Þorkelsson. Frá Háskóla til
kirkju, báru lærisveinar Jóns heit.
en í kírkju og úr kennarar Háskólaus.
Biskupinn, herra Jón, hólt rœðuna í
kirkjunni.
Prestkosningar.
í Öræfum er nýkjörinn prestur
síra Eirikur Helgason, sem þar heflr
verið sattur, með öllum greiddum
atkvæðum.
í Grímsnesi var kosið 3. þ. m.
Hlaut sira Þorst. Briem í Grundar-
þingum 114 atkv., en sfra Helgi P.
Hjálmarsson 7. Kosning var ólög-
mæt tegna þess að eigi greiddi
helmingur kjósenda utkvæði.
Látinn landi.
I Gula Tidend frá miðjum okt.
er þess getið, að látinn sé i Bodö
þrltugur íslenzkur sjómaður Guð-
mundur Einarsson, ættaður úr Rvík.
Banameinið: spanska veikin. Ekki
þekkjum vér deili á þessnm manni
ÆÐARDUNN
ósksst keyptur
Tilboð sendist
Carl Höepfner lil.
Reykjavík. Simneíni: Höepiner.
Nú hefi eg fengið aftar birgðir
af hinum margþráðu
FRAM-
skiivindum.
Ennfremur skilvindu-hringa.
F r a m-sfeilvindur skilja 130 litra á
kl.stund, eru vandaðar að efni og smíði,
skilja mjög vel, eru einfaldar og því fljót-
legt að hreinsa þær. Odýrari en aðrar
skilvindur. Yfir 300 bæntíur nota nú
F r a m-skilvindnr,
og helmíngi fleiri þurfa að eignast þær.
A
Frá og með 20 þ. m. eru
forvextir af víxlum og vextir
af lánum
f báðum bönkuuum ákveðnir 6Ya — sex og hálfur — af huadraði, auk
framlengingargjalds.
Landsbanki Islands. islandsbartki.
Skagfjörð.
Hér með tiUynaist vinum og vandamönnum, fjær og nær, að konan
min elsknkg, Elín Eiriksdóttir, andaðist þ. 17. þ. m. að heimili okkar,
Bergstaðastræti 20.
Reykjivik 18. nóv. 1918.
fón Hróbjartsson,
vélstjóri.
Það tilkynnist hér með ættingjum og vinum að konan mln, Magn-
hildur Björnsdóttir, ’ézt að heimili okkar, Belgsholti i Borgarfirði, 13. þ.
mánaðar.
Guðm. S. Thorgrímsson.
Uppboðsauglýsing.
Fimtudaginn þann 5. desembermánaðar næstkomandi, kl. 12 á hád.
verða, við þinghús Garðahrepps að Görðum, seld við opinbert uppboð 2
hross, er verið hafa í óskilum hjá undirrituðum hreppstjóra nefnds hrepps,
dökkgrá hryssa ca. 4 vetra, ótamin, með marki sýlt vinstra, og Ijóst mer-
tryppi með sama marki, veturgamalt, er geDgur undir hryssunni.
Uppboðsskilmálar verða birtir á uppboðsstaðnum.
Asi i Garðahreppi, hinn 21. nóvbr. 1918.
Oddgeir Þorkelsson.
Bezí að augíýsa í Isafoíd.
Bftirmæli.
Ár 1916, hinn22. desember, andað-
ist að Narfikoti á Vatnsleysuströnd,
öldungurinn Björn Guðnason, 82
ára gamall. Björn sál. var fæddur
í Austurkoti í sama hreppi árið
1834, og ólst hann npp og dvaldi
þar framyfir sextugsaldur. Hann
var tvikvæntur, var fyrri kona hans
Margrét ívarsdóttir, systir hinna
nafnkunnu, svonefndu Skjaldakois-
bræðra, Guðmundar og Gísla. Með
henni eignaðist hann 2 syni, er
annar þeirra á Iifi í Vesturheimi
en hinn dáinn fyrir fáum árum.
Síðari kona hans hét Sigriður Þórðar-
dóttir, ættuð frá Brattsholti í Biskups-
tungum. Eignuðust þau hjón 4 börn,
og eru 2 þeirra á lífi, ásamt dóttur,
er hann eignaðist milli kvenna. Or
Vatnsleysustrandarhreppi flntti Björn
sál. með konu og börnum til Reykja-
víkur, og eftir fá ár þaðan til Vestur-
heims, einnig með konu og börn
um, þá á sjötugsaldri. Voru síðari
konu börn hans þá á ómagaaldri;
má það heita dæmafár kjatkur af
jafn-öldruðum manni, mjög efna-
litlum.
Þegar til Vesturheims kom iéðst
hann i að taka heimilisréttailand,
óunnið og óræktað, reisa sér hús og
ryðja og rækta land til hveitisáning-
ar. Geta má nærri, hvílíkum erfið-
leikum það var bundið fyrir jafn-
roskinn og lúinn mann, og það því
fremur, sem kunni ekkert til
þeirra verka. Sagði hann sjálfur svo
frá, að fáir mundu geta getið sér til
allra þeirra erfiðleika — og hörm-
unga. Þegar vestur kom, var hann
með tvær hendur tómar, en með
dugnaði og hyggindum varð hann
þar á fám árum efnaðri en margir
þeir, sem þangað komu á bezta aldr:,
og dvalið hafa þar um lengri tima.
Árið 1915 misti Björn sál. síðari
konu sína; fór hugur hans þá að
hvatfla heim til ættlandsins; og
svo varð heimþráin sterk, að hann
seldi þar eignir sínar. Gaf hann
börnum sinum nokkurn hluta þeirra,
líknarstofnunum talsvert fé, og sjá!f-
um sér skiidi hann eftir það sem
hann áleit sig mundi þurfa til æfi-
loka; síðan kvaddi hann börn sín
og fluttist hingað heim um haustið
1916, til þess, eins og hann sjálfur
sagði, að fá að deyja hér i ættlandi
sínu og átthögum.
Björn sál. var velgreindur maðu-
og bókhneigður; ör var hann i
lund en þó gætinn vel, og kom
sér allsstaðar vel. Um nokkur ár
var hann hreppsnefndaroddviti i
Vatnsleysustrandarhreppi og leysti
þann starfa vel af hendi. — Yms
mótlæti reyndi hann sem flestir aðr-
ir. Hann var lengi mjög efnalitill,
og átti við þröngan efnahag að búa.
Tvö börn sín misti hann vofeiglega,
og báðam eiginkonum sínum varð
hann að fylgja til grafar. Andstreym-
ið og sorgina bar hann með kristi-
levri undirgefni án möglunar. Erfið-
leikana sigraði hann með kjarki og
karimensku, og efnahag sinn bætti
hann svo með hagsýni og fram-
úrskarandi dugnaði á gamalsaldri, að
hann varð vel efnaður. Þá hinstu
innilegu ósk slna, að fá að komast
heim til átthaganna og deyja þar,
fékk hann uppfylta; hann andaðist
nálægt 3 mánnðum eftir heimkom-
una. A hinum framliðna rættist bók-
staflega, að drottinn gefur börnum
sínum þrek og blessar þau.
Blessuð sé minning hans.
Vinur hins látna.
Seðlar,
Hnakkar (venjul. trévirkjahnakkar),
JárnvirkjahDakkar (rósóttir), Spaða-
hnakkar með en.'.ku lagi, Kliftöskur,
Hnakktöskur, Handtöskur, Se*laveski,
Peningabuddur, Innheimtumanna-
vesld, Axlabönd. Allskonar Ólar til-
heyrandi söðlasmíði, Byssuólar, Byssu-
hulstur, Baktöskur, Beizlisstengur,
ístöð, Járnmél, Keyri, Tjöld, Fisk-
ábreiður, Vagna-yfirbreiðslur o. m.fl.
Aktýgi ýmsar gerðir og allir sérstakir
hlutir til þeirra.
Gömul reiðtýgi keypt og seld.
Fvrir söðlasmiði: Hnakk-og söðul-
virki, Plyds, Dýnustrigi, Hringjur o.fl.
SöBlasmíðabúQin Laugavegi 18 B.
Simi 646.
£ Kdstjánason.
Travarer.
Forbintíelse söges med Köbere af
Planker, Brædder, Tömmer, Lister,
Snedkerier etc.
ARtiebolaget BacklöDd & Rönqvist,
Göteborg, Sverige.
Gerið svo vel
að koma inn í söðlasmiðabúðina á
Laugavegi 18 B og skoða ódýrustu
reiðbeizlin, sem nú eru fáanleg.
SöðlasmíðabúBin Laugavegi 18 B.
Simi 646.
Þakkarávarp
Innilegt hjartans þakklæti vottnm
við þeim hr. Snæbirni Arnljótssyni
kaupmanni í Reykjavik og frú hans
fyrir staka hjálpsemi, göfuglyndi og
alúð, er þan sýndu Jóni sál. Sig-
urðssyni frá Bægistöðum í Þistilfirði,
í sumar sem leið, er hann lá bana-
leguna á Landakotsspitala.
Þórshöfn 22. október 1918.
Ekkja og börn hins látna.
Salóme Jónasdöttir. Helqa Jónsdóttir.
María Jónsdóttir. Guðrún S. Jónsdóttir.
Jóhann Jónsson.
Fiskafli til ágústloka.
Verzlunarráðið hefir reynt að afla
sér upplýsinga um fiskafla það sem
af er árinu. Sneri ráðið sér i þvi
skyni til eins manns i hverri sýslu
og óskaði eftir að fá skýrslur um
fiskaflann til ágústloka. Urðu menn
ágætlega við tilmælum ráðsins og
um 10. sept. höfðu borist skýrslur
að heita má úr öllum sýslum og
kaupstöðum laodsins, og kom það í
ljós, að fiskafli frá ársbyrjun til ágúst-
loka hafði numið um 16000 tonn,
talið í þurrum saltfiski.
(Verzl.tíð.)
Mannalát.
Látinn er hér f bænum í gær-
morgun Sveinn Sveinsson trésmiður,
rúmlega sjötugur að aldri. Er þar
sæmdarmanni á bak að sjá og verð-
ur hans nánar minst hér í blaðinu
síðar.
Þ. 9. þ. mán. lézt í Hafnarfirði
Sigfús Berqmann kaupmaður eftir
margra ára þunga vanheilsu. Nýlega
er og dáinn Odd^eir kaupm. Ottesen,
á Ytra-Hólmi, faðir Péturs alþm.,
úr heilablóðfalli. Beggja þessara
merkismanna verður nánar getið sið-
ar.