Ísafold - 27.10.1919, Síða 4
4
' * D
fært að segja sig úr þversum flokkn-
um fyr en í lok síðasta þings.
petta samband milli M. T. og
„Tímans“ er erfitt að skilja, því
ekkert er andstæðara hagsmunum
kjósenda á Isafirði en einmitt
stefna „Tímans“. En sagt er að
„Tíminn hafi gert sér von um að
ná meiri hluta í þinginu eftir næstu
kosningar, og þá búist við að flokk-
inn myndi vanta ráðherra. Og ef
til vill hefir M. T. vantað ráðherra-
stöðu. En nú lítur út fyrir að sókn-
in ætli að bresta og veiðin verði
sýnd „Tímanum“ er ekki gefin.
#
Fyrirlestrar
Jóns biskups Helgasonar
í Kaupmannahöfn.
Jón biskup Helgason er nú sem
stendur í Danmörku og hefir flutt
fyrirlestra við háskólann í Kaup-
mannahöfn um kirkjusögu íslands
frá tímum siðskiftanna og fram á
vora daga. Segir „Berlingske Tid-
ende“ 14. þessa mánaðar, að kvöld-
ið áðnr hafi biskupinn flutt f}rrsta
fyrirlestur sinn um siðaskiftin og
undanfara þeirra.
------o-------
Ragnar Lundbarg
Iíann var forstöðumaður fyrir
h.f. De förenade Boktryekerierne,
en lét af þeirri stöðu í sumar og
gerðist framkvæmdastjóri sænks-ís-
lenzka verzlunarfélagsins í Stock-
hólmi er hann kom heim aftur
héðan.
Um hann er grein með mynd af
honum í sænska tímaritinu „Hvar
8 dag“ 28. f. m. og segir það að
hann muni að því er sagt sé verða
fyrsti yfirkonsúll Svía á landi hér.
í sarna tímaritshefti er grein eftir
R. L. um ísland og íslendinga. Per
hann, sem vænta mátti af honum,
mjög lofsamlegum orðum um land
vort og þjóð. Hann stingur og upp
á ýmsu er aukið gæti þekkingu
hverrar þjóðarinnar á annari, hinn-
ar sænsku og íslenzku, og viðskifti
þeirra innbyrðis, svo sem blaða-
mannaheimsókn, listasýning og
beinar eimskipasamgöngur.
Greininni fylgja 6 myndir frá
för lians hingað, 5 frá Reykjavík
og 1 af þeim hjónunum og' föru-
nautum þeirra á pingvöllum.
M. p.
0 •-------
Nýr höfuðsmaflur
á Islands Falk.
Þegar „Islands Palk“ kemur til
Kaupmannahafnar næst, verða þar
foringjaskifti. Heitir sá A. G. Top-
söe-Jensen, er þ'á tekur við forustu
varðskipsins.
Liðsforingjaskifti verða einnig á
skipinu. Nýju liðsforingjarnir þar
heita: Nörguard, Dahl, Hempel-
fförgensen, Mörch, H. J. OJsen verk-
fræðingur og H. E. aðstoðar-
verkfræðingur.
V
RejtiMmnaáll.
Ný veiki
Forseti Finna
Bjarni Sæmundsson kennari og frú
hans hafa orðið fyrir þeirri sorg, að
missa yngstu dóttur sína.
Islands Falk fór héðan á föstudaginn
og ætlaði til Danmerkur. En skipi'ð
hefir siitiið aftur af einhverjum or-
sökum og kom hingaö inn í morgun.
•Foringjaskifti eiga aö verða.á skip-
inu, er það kemur til Hafnar. Heitir
sá A. G. Topsöe Jensen, sem þá tekur
við. Munu margir vona a'ð hann verði
röggsamlegri í sinni stoðu heldur en
núverandi yfirforingi.
Kvikmyndaleikendurnir eru nú allir
farnir héðan nema Sommerfeldts-hjón-
in og Larsen myndasmiður. En þau
fara héðan með „Gullfossi“. — Mynd-
in hefir verið reynd í Kaupmannahöfn
og þvkir mikið til hennar koma fyrir
fegurð og hvað hún sé vel leikin. Er
sérstaklega getið Guðm. Thorsteinsson-
ar og sagt að hann muni geta átt mikla
framtíö fyrir sér sem kvikmyndaleikari.
I yfirkjörstjórn hefir bæjarst.jórn
kosið þá Sighvat Bjarnason banka-
stjóra og Eggert Briem yfirdómara, og
til vara Agúst Jósefsson bæjarfulltrúa
og Jón Asbjömsson cand. jur.
„ísland“ kom hingað í gærmorgun
með marga farþega. par á meðal voru
Vilhj. Finsen ritstjóri (kemur frá rit-
stjórafundinum í Stokkhólmi) og Her-
bert M. Sigmundsson prentsmiðjustjóri.
Dánarfregn. Eyþór Kjaran, stýri-
maður á „Vínlandi“, andaðist á Landa-
kotsspítala á laugardagsmorgun. Hann
var ungur maður og hinn efnilegasti
og er hverjum manni harmtlauði.
Gunnlaugur Einarsson læknir kom
hingað til bæjarins með Islandi. Hefir
hann að undanfömu dvalið í Krist-
janíu. Nú ætlar hann sér að setjast
að á Eyrarbakka og fer þangað næstu
daga.
Skip ferst. A fimtudagsnótt strand-
aöi seglskipið „Activ“ frá Marstal,
fram undan Knarrarnesi á Mýrum, og
fórust menn allir. Skipið var á ieið
til Borgarness með trjáviðarfarm til
Kaupfélags Borgfirðinga. Mikiö af
farminum hefir rekið í land, svo og
brot úr skipinu, en lík skipverja ófund-
in. Hygg.ja menn að þeir muni hafa
\erið 5 eða C.
Nýtt tímarit um andleg mál fer bráö-
úm að koma út hér. pað heitir „Morg-
un“ og ritstjóri er Einar H. Kvaran
skáld.
Nýtt dagblaS ætla verkalýðsfélögin
liér í bænum að fara að gefa út innan
skamms. Ritsljjóri verðhr Ólafur
Friðriksson. „Dagsbrún“ helduráfram
að korna út vikulega eins og áður,. að
minsta kosti til nýárs.
Taugaveiki kvað vera að stinga
sér niður í bænum núna. Sjúkling-
at jafnharðan einangraðir og því
vonandi að veikin breiðist ekki út.
Yerkföll í New York
Síðustu dönsk blöð herma það,
að hafnarverkamenn í New York
hafi lagt niður vinnu. Jafnframt
hafa og námaverkamenn lagt niður
vinnu og komið fram með nýjar
kröfur. Krefjast þeir þess nú, að
vinna að eins 5 daga í viku og 6
tíma á dag en fá svo 60% kaup-
hækkun.
Samkvæmt læknablaðinu norska,
hefir á fjórum stöðum í Nöregi orð-
ið vart við nýjan sjúkdóm, sem
menn þekkja eigi, en er nú þó all-
víða í Norðurálfunni. Veikindin
byrja með hitasótt og síðan leggjast
þau í heilann og hætta sumar heila-
frumurnar að starfa. Augnalokin
verða máttlaus og hníga niður og
sjúklingurinn fellur í dvala og get-
ur legið þannig milli heims og helj-
ar í heilan mánuð. Sé veíkin svæsin
í byrjun, fylgir heni stjarfi, höfuð-
verkur, uppsala og hálsrígur. Halda
læknar, að veiki þessi sé eftirköst
spönsku veikinnar.
Glimufélagið
9
Armann
er nú að færast í aukana á ný og
ætlar að hafa æfingar tvisvar í
viku í vetur. Hafa félaginu bæst 14
nýir meðlimir í liaust og eru marg-
ir þeirra utan af landi og hinir efni-
legustu glímumenn. Veitir síst af
að nýjum þrótti verði blásið í
glímuna, því hún hefir verið hálf-
gert alnbogabarn í íslenzku íþrótta-
lífi síðustu árin. En svo má ekki
vera. Glíman er okkar þjóðaríþrótt,
eina íslenzka íþróttin sem við get-
um verið hreyknir af og henni á
því að vera æðri sess settur, en
öllum öðrum íþróttum.
Knattspyrnan hefir náð föstust-
um tökum allra íþrótta á íslenzkum
— eða að minsta kosti reykvískum—
áhorfendum og er það síst að lasta,
því íþróttin er holl og skemtileg.
En okkur má ekki gleymast, að
við höfum alveg sérstakar skyldur
við giímuna. Hún er okkar eign og
það er því hlutskifti okkar að halda
henni yið og efla hana og þekkingu
manna á henni bæði utan lands og
innan. Glíman er of göfug til þess
að gjalda þess að hún sé í umsjá
þjóðar, sem gætir hennar illa og
lætur hana hýrast í öskustónni. ís-
lendingar eiga í glímunni sinni svo
dýrmætt djásn, að þeir eru minni
menn en áður ef þeir gæta þess
ekki trúlega.
„Armann“ hefir því eigi litlar
skyldur. Og íslenzkir íþróttamenn
ættu að hafa það hugfast, að hversu
góðar og hollar sem aðrar íþróttir
eru, þá mega þeir aldrei gleyma
þeirri íþróttinni, sem Islendingnum
ber fyrst og íremSt skylda til að
gæta vel, — glímunni.
Ef nokkrir menn verða sendir
héðan á Olympíuleikana næsta ár,
þá verða það glímumenn. Og nú
verða veitt verðlaun fyrir glímuna
á leikunum. En Ármannsfélagar
og aðrir glímumenn verða að minn-
ast þess, að kröfur verða gerðar til
glímumannanna sem sendir verða,
meiri en nokkru sinni fyr, og að
engir verða sendir ef þeim kröfum
verður ekki fullnægt. pessvegna er
það eigi litlu varðandi, að íþróttin
vei'ði iðkuð af kappi í vetur. pað
er fyrsta skilyrðið fyrir því að
glíman verði á leikskrá heimsmóts-
ins.
K. J. Ssáhlberq
HanD var áður prófessor i lö>:nm
við haskólann i Helsingfors. Er
hann auk þess kunnur vlsindamaður
og stjórnmálamaður og hefir notið
mikils álits og vinsælda bjá finsku
þjóðinni i frelsisbaráttu hennar. Hefir
hann i mörg ár verið forseti finska
þjóðþingsins. Hann er læddar áiið
1865.
Minnlsmerki Bismarks
i Knivsbjerg i Suftur-fótlandi á nú
að flytja þaðan burtu. Félag það
sem á Knivsbjerg, ásamt minnis-
merkinu, hefir sjálft tekið ákvörðun
um að flytja það burt, og senni-
iega verður farið með það suður
fyrir hia nýju landamæri Þýzkalands.
Þykir það betur komið þar. —
Myndin bér að ofau er tekin hjá
minnismerkinu, er Þjóðverjar héldu
þar fund með : ér, til þess að mót-
mælalandamærab eytiagunni áSuður-
Jótiandi.
Kolischak.
Kolt:chak aðmiráll er rú sá mrð-
itrinn rreðal rússne kra þjóða, sem
einna mest er talað urr. Hann er
45 ára sð ald1’, sonur sjó ðisfonngjr.
Hmn fekk eld^kírnina i orustunni
hjá Po t A'thur, í str ðinu milli
Kússa og I para, og gat sér þir
framúrskarandi orðstír. Eftir þann
ófrið setti hann sér það markmið að
er.dmbæta rússneska flotann, og gekk
að því starfi með frábæmm dugnaði
og ötulleik. Fyrstu ir ófriðarins
mikla hafði hann ýmsar trúnaðar*
stöður á hendi, en þá er Kerenski
komst til valda, sagði hann af sér
embætti sinu sem flotaforingi og
fluttist af landi burt til Ameríku.
Etgi dvaldi hann þar þó lengi. Þeg-
ar Bolzhewikkar náðu völdunum
uudir sig, sneri hann heim á leið
aftur, í þeim tilgangi að berja Bol-
zhtwikka mður og koma aftur á
friði og reglu i Rússlandi. Hefir
hann síðan stöðagt átt i ófriði við
Bolzhewrkka og verið sá brimbrjót-
ur, sem hefir varnað stefnu þeirra
að breiðast austur á bóginn.
James Watt
Seint í septembermánuði var 10(1
ára dánarminning James Watt há-
tíðleg Iialdin í Birmingham.
Streymdi þangað múgur og marg-
menni frá öllum héruðum Eng-
lands.
pað er einkennilegt með Watt,
að hann hefir eigi að eins hlotið
lieimsfrægð fyrir þær uppgötvanir
er hann gerði, heldur einnig fyrir
uppgötvanir sem aðrir gerðn.
pannig halda margir því fram, að
hann hafi fundið upp gufuvélina.
En sannleikurinn er sá, að hann.
éndurbætti gamla uppgötvun og
gerði liana hagnýta. Gufuvélin var
fundin upp löngu áður en Watt
fæddist. Hugvitsmaðurinn hét
Newcomen, og var Englendingur.
En sú vél, sem hann gerði, var illa
nothæf og eyddi afskaplega miklu
af kolum.
En svo var það að James Watt
fékk vél þessa til aðgerðar. Sá
hann þá fljótt, að kolaeyðslan staf-
aði af því, að þrír fjórðu hlutar
hitans fóru forgörðum. Tók hann
sér þá þegar fyrir hendur að bæta
vélina. Og honum hepnaðist að gera
hana svo, að hún varð fimm sinn-
um aflmeiri en áður. Hann gerði
einnig þá uppgötvun, að snúa
„stimplinum" við og láta hann
ganga upp- og ofan og setja liann
í samband við drifhjól. Og eftir 13
ára strit hafði honum orðið svo
mikið ágengt, að gufuvélin mátti
kallast nothæf. Og þá fóru menn
þegar að kaupa hana og nota í nám-
um, myllum og verksmiðjum. Með
því hóf gufuvélin sigurför sína nm
heiminn.
Spitzbsrgan
Það var á fundi æðsta ráðs Bacda-
manna hmn 25. f. m. að ákveðiö
var að Noregur skyldi íá sðalumriÖ-
in yfir Spilzbergen.
Daginn eftir geiði utan'íkisráð-
herra Norðmanna giein fy rir þessari
ákörðun á fundi i ráðuncytma i
Kristjaníu. Sagði hann að Noregur
fengi óskorað pólitiskt dioitinvald
yfir landinu, en þó meðþvi skilyrði,
aö aðrar þjóðir mættu reka þar
atvinnu undir lögsögu Norðmanna.
Jafnvel þótt enginn peningalegur
stórhagnaður væri að þessnm nýja
landauka fyrir Noreg nú í svip, þi
bæri þó að gleðjast af viðurkenn-
ingunni, þvi að Spitzbergen væri
að sumn leyti framtíðarland; og
ómetanlegt að geta gripið þar til
kolanáms, ef kolaflutningar stovuð-
ust annarstaðar frá.