Ísafold - 12.01.1920, Page 1

Ísafold - 12.01.1920, Page 1
r íRitstjóri: Vilhjálmor Finsen. — Sími s0o> Stjórnmálarit.tjóri: Eiuar Arnórsson. ísafo! darprentsmi? ja. XLVJI. árg. Reykjavik, mánudaginn 12. janúar 1920 X. tölublað. Bólu-Hjálmar Ljóðmæli eftir Hjálniar Jóns- son í Bóiu I.—II. Jón porkels- son hefir búið undir prentun. Á kostnað Hjálmars Lárusson- ar. Reykjavík 191ð—1919. L , í Æfikjör íslenzkra skálda eru mis- jöfn. Sumir eru fæddir sólarmegin' í lífinu, eru settir ungir til menta, lauga anda sinn í lindum heimsbók- mentanna og sitja í mestu virðinga- j stöðum mannfélagsins meginhluta! lífsins.Svo var um Bjarna Thorar-1 i .ensen. Aðrir eiga raunar því láni að j fagna að mega horfa yfir hinar j miklu víðlendur mannlegrar hugs-j unar og' veraldarfegurðar, en mega i þó tæplega teljast lánsmexm á vana legan mælikvarða, deyja á unga aldri einir sér og yfirgefnir. Svo var um Jónas Hallgrímsson. Enn eru þau skáld vor, er bundin eru við heimahagana, fæddir í örbirgð og volæði, aumingjar mannlífsins, en eiga þó þann innra eld, er lýsir upp hugskotssjónir þeirra og hlýj- ar þeim í andstreymi lífsins. Svo var um Bólu-Hjálmar. Aðstæðurn- ar eru harla ólíkar og því eðlilegt, að þeirra gæti í skáldskap þeirra. Um hugarkendir og hneigðir skálds iáða mest ætterni og lífskjör. Því er nauðsynlegt að rita ítarlegar æfi sögur og skýra frá öllu því, er geti aukíð skilning vorn í einstökum atriðum. H. Af ljóðmælum Bólu-Hjálmars voru, eins og kunnugt er, til tvær útgáfur: Akureyrarútgáfan 1879, er aldrei varð lokið við, og Reykja- víkurútgáfan 1888, er Hannes Haf- stein sá um og ritaði formála fyrir. Var það að tilhlutun þeirra Arn- ljóts Ólafssonarpreatsað Sauðanesi, Árna prests Jóhannssonar í Glæsi- hæ og Jóns Sigurðssonar frá Gaut- löndum, að kvæðum Bólu-Hjálmars var safnað saman og ‘þau síðan gef- in út. Akureyrarútgáfan þótti lé- leg mjög, en Reykjavíkurútgáfan var aðeins úrval af kvæðum og kviðlingum Bólu-Hjálmars, þar eð hún var miðuð við ákveðinn arka- fjölda. ÚTval Hannesar Hafsteins var smekklega gert, en lýsingin á skáldskap Bólu-Hjálmars var ein- hliða að ýmsu leyti og gætti þar nokkurs skoðana Verðandi-manna, er vildu koma raunsæisstefnunni að, líka í skýringum sínum á skáld- ritum annara, er voru annars eðlis, eins og t. d. Bólu-Hjálmar. Nú hefir dóttursonurskáldsinSjHjálmarLár- usson myndskeri, kostað 3. útgáfu af skáldritum afa síns og hefir þjóð skjalavörður dr. Jón Þoii'kelsson annast um útgáfuna. Má segja að þessi 3. útgáfa sé fyrsta útgá'fa af öllum ljóðmælum Bólu-Hjálmars, þeim, er vert hefir þótt að prenta. Birtist í þessari útgáfu fjöldi af nýjum kvæðum Bólu-Hjálmars, og eru sum af þeim með þeim allra beztu, er hann hefir kveðið. Þá fylgir og ítarleg æfisaga eftir dr. j Jón, er einkum skýrir frá ætt og j uppvexti Bóiu-Hjálmars og er þar tekið af skarið um mörg vafaatriði' >g einkum rakin ættBólu-Hjálmars,! svo að ekki þarf lengur um að vill- j ast. „Guð minn, eg þakka þér, þú heyrir alt mitt kvein, þín er meðferð á mér miskunn og spekin ein. Þegar mín. þörf er mest og þrotin lífs úrræðenn, þú veizt að velja bezt veglynda hjálparmenn‘ ‘. ! Erfiljóð hans mörg eru mjög III. falleg og skara langt fram úr í Fæðingardagur Bólu-Hjálmars er skáldskap hans; nægir í því efni nú talinn 29. sept. 1796, en dánar- dagur 25. júlí 1875; voru foreldrar hans Jón Benediktsson, er síðar bjó í Krossanesi, og er föðurætt Bólu-Hjálmars rakin til gáfaðra, lærðra og mikilhæfra manna á 17. öld, en móðirin, Marsibil Semings- dóttir, fekk vitnishurðinn: „skraf- in, ei skikkanleg, ekki margkunn- andi‘ ‘; er ætt hennar rakin til Jóns Þórðarsonar í Hvammi í Laxár- dal (d. 1689), er var skáld gott. Æfi Bólu-Hjálmars er ekki marg- hrotin, hann lifir basl-búi á nokkr- um jörðum (lengi í Bólstaðagerði í Blönduhiíð, þaðan nafnið Bóla), lendir í málaferlum út af þjófnað- argrun, á við þröngan kost að búa og deyr uppgefinn og slitinn, nær áttræðu. IV. Yrkisefni Bólu-Hjáimars eru, eins og við er að búast, ýmist lausa- vísur um menn og atburði, er urðu fyrir honum á lífsieiðinni, erfiljóð eftir vini og vandamenn eða aðra, er hann var beðinn að yrkja eftir, mörg ljóðabréf, er hann orti undir nafni annara, heimsádeilur og skop kvæði, rímur 0. fl. Bent hefir verið á; að Bólu-Hjálmar lýsi einkum óblíðri náttúru landsins, sbr. er hann lætur „Fjallkonu“ segja: „Sjá nú, hvað ég er beinaber, hrjóstin visin og fölar kinnar“ 0. s. frv. og yrki því ac þessu leyL andstætt Jónasi Hallgrímssyni og öðrum skáldum, er lýsi einkum landinr. í skrautklæðum, silfuiúækjum, heið- jöklunj, bláf jöllum, fífilbrekkum o. s. frv. #!sbr. 1888 útg. bls. 35) ; er ‘það að vonum, að fátæktarbasl Hjálmars og andstreymi lífsins hafi gert hann bölsýnan. Hann kvartar víða sáran undan fátæktinni: ..Mér fylgir fátæktin fótmál hvert hér á jörð; eru snart úthafin okkar viðskifti hörð; svo hvort sinn vandrar veg við skilin þrotabú; hálfníræð1) eins og eg örbirgðin mín er nú‘ ‘. („Fátæktin“, kveðið 1871) Hitt er ölln merkilegra, að þiátt. fyrir alt andstreymi lífsins og alla galla Bólu-Hjálmars, er ber- sýnilegir eru þeim, er lesa kvæði hans, er trúarstyrkleikur hans óbil- andi. Þegar hann barmar sér mest eins og í kvæðinu um fátæktina kveður hann: J) í raun og veru hálfáttræð. að benda á erfiljóð hans eftir Þor- vald Jónsson í Framnesi (II. bls. 43), Árna Sigurðsson frá Stokk- hólma (II, bl. 60), Sigurð Krist- jánsson á Silfrastöðum (II, bls. 64), er byrjar þannig: „Sígur enn sól í svalan ægi, drýpur kuldadögg; kveðjandi kvöldröðull kastar nábleikum glampa guðs á ljóra. Á mannviðar björk meginstyrkva dundi dauðans högg.‘“ Falleg eru og eftirmæli hans eftir Ingibjörgu Arnórsdóttur á Eiðstöð- um, er hef jast þannig: „Húmar um bekki, hnígur sól í æginn, hrekur ljósið nóttin geigvænlig, blómstrin þau, sem breiddust út um daginn, byrgja höfuð nú og fela sig, dökkrauð ský úr djúpi hreggs og vinda clragast upp með veðurbrigði glögg, kvöldröðull þá kveður fjallatinda, kaldri grætur loptið héludögg.‘ ‘ : II, bls. 151). Þá má nefna eftir- mæli hans eftir Gunnsteinsstaða- börnin (einkum I., II, bls. 86), ennfremur Andvöku (II, bls. 178) og Harmakvein (II, bls. 189), er hann orti hvorttveggja eftir konu sína, er hann unni mjög hugástum. í öllum þessum kvæðum kemur trú- arstyrkleikur hans í ljós og mætti rauna.r ætla, að þessi erfiljóðatrú hans væri eingöngu vani tímans, en kæmi lítið við Hjálmar sjálfan. Svo er ekki. Trúin fylgdi honum alt lífið. Þegar hann var á bezta skeiði átti hann von á dag einn að standa fyrir rétti og gegna 10 mótmælend- um. Kvað hann þá Morgunsöng (I, bls. 160), heita bæn til guðs að hjálpa sér og styðja: „Legg þú mér ráðin, ljúfi guð, launsátrum öllum við, efl mína dáð mót ófögnuð, orð og hugrekki styð —“ Og í bréfi einu frá síðustu æfiárum hans (1873), er prentað er í þess- ari útgáfu, kvartar hann undan þrem fylgikonum sínum: „Þær þrjár fylgikonur mínar, syndin, gigtin og ellin, ganga mjög hart að mér, en eg vona við fáum nú bráð- um að skilja og guð láti mig nú ekki lifa fleiri vetur, eða þá með vægari kjörum. En verði hans vilji.“ (II, bls. 301). Y. Hefi eg drepið á trúarkvæði og erfiljóð Iljálmars, af því að í þeim gætir sterkastra tilfinninga hans og innileika. Lausavísur hans og kviðlingar ýmsir eru ekki mikils virði, þótt víða sé vel að orði kom- ist. Hann átti afarhægt að gera vísu og mælti þær af munni fram við ýms tækifæri. Hann lék sér að orðaleikjum og þóttist hvergi þurfa að lána: „íslenzkan er orða frjósöm móðir, ekki þarf að sníkja, bræður góðir, né heilum stela hendingum og hugmyndanna vendingum.“ (II, bls. 274) Ýmsar af vísum hans eru mjög grófyrtar. Um þær segir dr. Jón í formála sínum: „Það er eins og Hjálmar hafi stundum gaman af að sýna snild sína í slíkum vísum, og snildarleg staka af því tagi er rétt metið minna guðlast heldur en vel meint, lélega kveðið, þeflaust og bragðlaust bænavers. Eru því nokkrar þess háttar bögur teknar hér upp í bókina —“ í bragbún- ingi og hugsun fetar Hjálmar víða í fótspor fyrirrennara sinna og gætir viða áhrifa frá Jóni Þor- lákssyni, Gísla Brynjúlfssyni o. fl. Raupsaldurinn (H, bls. 172) minn- ir á karlagrobb Bjarna Thoraren- sen, konungsdýrkun hans í kvæð- inu „ísland“ (H,bls. 156) var í samræmi við skoðanir tímans. En þróttur tilfinninganna og málsnild hans setti hann á sínum tíma á bekk með beztu skáldum landsins. íslenzka þjóðsálin var fyrri hluta 19. aldar að mörgu svipuð Hjálmari frá Ðólu og því er þakkarvert, að nú er loks fengin fullnægjandi útgáfa af ljóðmæliun hans. Bók- mentasögu þjóðarinnar er. því að- eins hægt að rita, að til séu vand- aðar útgáfur af ritum höfimda þeirra, er þjóðin eignast á hverj- um tíma. Flestar hugsanir og at- hafnir manna svelgur tímans mikli sær, eu reynt er að bjarga þeim fáu perlum,er glóa hingað og þang- að. Hjálmar frá Bólu lét sjálfur lítt af skáldskap sínum, en hann fann þess vott, meðan hann lifði, „að guð á margan gimstein þann, sem glóir í mannsorpinu.“ A. J. Vilhj Stefénsson og hreindýraræktin Félag hefir nú nýlega verið stofn- rð í Kanada til þess að liagnýta ráð- leggingar Yilhjálms Stefánssonar um hreindýrarækt þar norður á ís hafsströndinni. Nefnist félagið Thé North American Reindeer Co og er höfuðstóll þess 750 þús. dollarar. Hefir félagið þegar leigt af stjórn inni 75,850 fermílur af heiðarlandi norðan við Churchill-ána og á að borga um 192 þús. clollara Æ>ga í leigu fyrir það. * Aramótin. „Nú árið er liðið í aldanna skaut“ í dag er enn eitt ár að kveðja og annað að rísa á rústum þess. Eilíf og óstöðvandi rennur tímans breiða móða fram hjá manni, en ber þó alt með sér ýmist á yfifborði eða niðri í hyljum sínum. Manni verður ósjálfrátt að 'líta til baka þegar maður sér síðustu sólargeisla hvers árs roða fjöllin. Þá hverfur einn þáttur í leik lífsins Annar hefst að morgni. Maður hef- ir elzt um eitt' ár — borist einu öldufalli nær endadægri. Þjóð vor hefir aukið lífsreynslu sína um eins árs skeið. Vonir og draumar, sem hún átti um síðustu áramót, eru ef til vill týndar og aðrar komnar í staðinn, eða þær eru rættar og nýj- ar enn öflugrj og fegurri seztar að völdum. Hún hefir ef til vill fengið byr tuidir báða vængi þroska síns og franifara. Hún hefir eÞ til viil komið auga á einhvern varðeld, sem hún ætlar að láta lýsa sér á ókomnum árum. Alt þetta og margt fleira flýgur um hug manns er maður minnist. áraskiftanna. Og þó altaf kunni að verða komið auga á eitthvað, sem miður fer, í þeim þætti, sem nú er að hverfa, þá mun ekki verða liægt að segja annað, en þetta síðasta ár hafi verið þjóð vorri hagstætt um flesta hluti. Engin slík pest og síð- asta ár,hefir herjað á vort fámenna lið. Blóðtakan sú hefir ekki eudur- tekið sig nú. Atvinnuvegir vorir liafa gengið þolanlega, bæði til ‘lands og sjávar, og sumar greinar þeirra ágætlega. Landsmenn hafa fengið óvenjulega hátt verðfyriraf- urðir slínar, svolhátt, að dýrtíð og þeir örðugleikar, sem henni fylgja, hafa að mestu horfið. Afkoma manna er engu verri nú en áður, sumstaðar betri. Og sama má segja á öðrum sviðum.Þjóðinni hefir aukist sjálfs- virðing og sjálfstraust. Síðasta ár hefir leitt það í ljós, að henni er altaf að verða annara um sín beztu hnoss, andleg og efnaleg. Hún vill ekki hleypa erlendum áhrifum að máli sínu 0 g auðlindum. Hún vill ekki brenna sig á því soði aft- ,ur, er hún hefir verið að súpa dreggjar af í margar aldir. Þetta síðasta ár hefir líka leitt í ijós skýrara en hin undanförnu, að ný öfl og nýjar stefnur eru að marka sér brautir hér og berjast til þrautar fyrir tilveru sinni. Jafn- aðarmannahreyfing og samvinnu- hrevfing hafa aldrei látið jafnmik- ið til sín taka, einkum hin síðari. Af þessari auknu baráttu, sem landsmenn- hafa orðið að standa í vegna þessara nýju útbrotasömu hreyfinga, hafa komið í Ijós ný öfl og nýjar eigindir í þjóðinni, sem sýna, að hún er ekki eins einhæf og áður hefir verið haldið. Og þessi öfl gefa vonir um euðugri og fyilri framtíð þjóð vorri til handa, ef þau lenda ekki í öfgum og óheilind- / 1 \ \

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.