Ísafold - 05.08.1920, Síða 4
4
ÍSAFOLD
Ungverjar og Frakkar.
Frá Budapest er símað, að fjár-
málasamDÍrigar milli Ungverja og
Frakka séa á döfinni.
Eússar svíkja öll loforð.
Frá Kovno er símiað, að íhersveit-
ir Litháa séu horfnar frá Yilna og
bolshvíkingar svíki öll loforð, sem
'þeir hafi gefið Litháum.
Khöfn 30. júlí.
Samningar Þjóðverja.
Frá Berlín er símað, að ríkis-
þingið hafi staðfest Spa-samning-
ana-
Ófarir Pólverja.
Frá Berlín er símað, að norður-
her Pólverja sé gersigraður og her
bolshvíkinga sé kominn að landa-
mærum Þýzkalands.
Frakkar og Arabar.
Frá Beyruth hefir sú fregn bor-
M til ParLsar, að Emir Feycál st
flúinn og ný stjóm komin á lagg-
imar í Damaskus, er hafi gengið
að friðarkostum Fra.kka, m. a. að
gjálda þeim 10 miljónir franka og
leysa alveg upp herinn.
Bela Kun frjáls.
Þjóðverjar hafa látið Bela Kun
frjálsan ferða sinna,
Khöfn 1. ágúst.
Frá Pólverjum.
Frá París er símað, að bolshe-
vikkar geri sitt ítrasta til þess að
eyðileggja her Pólverja áður en
vopnahléssamningar hef jist. Bretar
em ánægðir með hina nýju stjóm
í Póllandi.
2000 pólskir hermenn hafa verið
kyrsettir í Þýzkalandi, af því þeir
fóra yfir landamærin.
Bretar og Eússar.
Bretastjóm hefir gert sovjet-
stjóminni það tilboð, að láta Krass-
in-s endinefndina undirbúa friðar-
ráðstefnuna.
Herskyldan í Þýzkalandi.
Frá Berlín er símað, lað Þjóð-
verjar hafi nú afnumið herskyldu
og upphafið alla herrétti.
Verkfall í Noregi.
Jámbrautarmenn í Noregi hafa
hafið verkfall. Hefir það stöðvað
ferðamannastrauminn mjög.
Spa-samningarnir.
Samningar þeir, sem bandamenn
og Þjóðverj^r gerðy í Spa, hafa
verið samþyktir í þinginu í París
með Tniklum meiri hluta. Urðu tölu-
verðar umræður um 200 miljón
franka fyrir framgreiðslu til Þjóð-
verja fyrir kol.
Khöfn, 3. ágúst.
írlandsdeilan.
Frá London er símað, að sátta-
tilraunir milli Englendinga og Ira
hafi strandað og að búist sé við
nýjum blóðsúthellingum.
Búmenar og Bússar.
Frá Belgrad er símað, að Rúm-
enar hafi krafist þess, að Rússar
verði á brott úr Ressarabíu innan
þriggja daga.
Póllands-styrjöldin.
Frá Warsjá er símað, að búist
sé við því, að Bolshevikkar taki
borgina herskildi þá og þegar. Er
verið að víggirða hana og sömuieið-
is Lemberg.
Khöfn 4. ágúst.
Grikkir og Tyrkir.
Fra London er símað, að Grikkir
hafi nú lagt undir sig alla Þrakíu
að Tschataidja-línunni.
Spa-samningarnir
hafa verið samþýktir í neðri mál-
stofu brezka þingsins.
Krassin og Kamineff
eru komnir til Lundúna.
Afbrotamenn náðaðir.
Frá Berlín er símað, að þýzkir
stjómmálaafbrotamenn hafi verið
náðaðir að uundanskildum upp-
reisnarmönnum í Bayern og for-
sprökkum Kapp-byltingarinnar.
Pólska styrjöldin.
Frá Warschau er símað, að ákaf-
ar orustur séu háðar hjá Brest-
Litowsk og Brody. Hershöfðingjar
bolshvíkinga hafa neitað að stöðva
framsóknina fyr en vopnahléssamn-
ingar hafi verið undirritaðir og allir
skilmálar Rússa samþyktir.
Rvíkir-aimál].
Landlæknir G. Bjömson er nýkom-
inn úr eftirlitsferð til Vestmanna-
eyja. Var honnm haldið heiðurssam-
sæti af eyjarskeggjum. Landlæknir
segir afskaplega mikinn fisk kominn
á land í Eyjunum og yfirleitt almenn
velmegun manna.
Grauslund, forstjóri Hjálpræðishers-
ins hér á landi er kominn aftur úr för
sinni til Danmerknr. Hefir hann hald-
ið fyrirlestur hér um ferð sína.
Gullfoss kom snemma á langardag,
eftir 11 stunda ferð frá Vestmanna-
eyjum. Meðal farþega voru: Frú Þóra
Möller, frú Valgerður og síra porsteinn
Briem, Nielsen framkvæmdastjóri, Jón
Gunnarsson samábýrgðarstjóri, kona
hans og dóttir, frú Sigríður Pálsson,
frú Stefanie Hjaltested, Guðm. Hlíð-
dal rafmagnsfræðingur, Magnús Thor-
steinsson bankaritari, Sig. Ólafsson
rakari, Þorkell Clementz, Soffiía Jó-
hannesdóttir frá ísafirði. Og frá Vest-
mannaeyjum: Dr. Alexander Jóhann-
esson, Gísli J. Johnson konsúll og Arni
Sigfússon kaupm.
Vett, einn eigenda og forstjóra
hinnar miklu og þektu verzlunar í
Kaupmannahöfn, „Magasin du Nord“,
hefir dvalið hér um hríð ásamt dóttur
sinni. Hefir haun m. a. ferðast austur
um Ámes- og Raugárvallasýslur og
kynst mörgu á því ferðalagi.
Trúlofun sína opinberuðu nýlega
þau Helgi Tómasson stnd. med. og
Kristín Bjarnadóttir stúdent.
Silungsveiði í Þingvallavatni hefir
verið með minna móti í sumar. Bændur
þar eystra segja að veiðin minki árlega
og er sennilega um að kenna hinni
miklu murtuveiði úr vatninu á haustin.
Hjónaband. Fyrra laug^rdag voru
gefin saman í hjónaband ungfrú Ásta
Ólafsdóttir (heitins Sveinssonar gull-
smiðs) og Magnús Erlendsson gullsmið
ur. Ennfremur ungfrú Carlotta Alberts
dóttir og Jón Bjarni Helgason verzl-
unarmaður.
bifreiðin fastar ferðir á hverjum laug-
ardegi með póst og farþega og ank
þess á þriðjndögum þegar nógn margir
farþegar gefa sig fram. Eru fargjöld
með póstbifreiðunum meira en þriðj-
ungi ódýrari en með öðrum.
Slátturinn. Á Suðurlandi hafa tún
brugðist mjög víða og orðið miklu lak-
ari en á horfðist í vor. Nýting á töð-
unni mun aftur á móti hafa orðið góð
hjá öllum þeim, sem snemma byrjuðu
að slá, því þeir munu hafa hirt und-
an um síðustu helgi.
Enigheden, danskt eimskip, kom
hingað í vikunni eftir langa ferð
frá Danmörku. Með skipinu kom Jó-
hannes bæjarfógeti Jóhannesson úr
ferð sinni um Danmörku í tilefni af
sameiningu Suður-Jótlauds og Dan-
merkur, en Þorsteinn Gíslason ritetj.
kom ekki fyr en með íslandi. Skip-
stjóri á Enigheden er Kronika, tengda-
sonur Kristjáns dómstjóra Jónissonar,
og er frú hans með honum. Skipið hafði
allmikinn póst meðferðis,
porskafli er nú orðinn allgóður á
Norðurlandi, einkum Eyjafirði. Fá bát-
ar í róðri frá 3—5000 pund og sækja
aflann stutt. Síld er enn engin gengin
inn á fjörðinn.
Bösklega ekið. 1 klufekustund og 40
mínútur var Jónatan ; porsteinsson
austan frá Ölfusárbrú og hingað til
Reykjavíkur kvöldið sem hús hans
brann. Vita menn ekki ti'l, að sú leið
hafi verið farin á svo stuttum tíma.
Síldarútgerðin á Vestfjörðum kvað
vera mun minni nú en síðasta ár. Þó
er eitthvað gert út frá öllum veiði-
stöðvum þar. Eru það most bátar með
reknet, fáir sem gera út með hring-
nætur. Veiðin hefir til þessa tíma verið
fremnr dauf. En nú kvað vera að lifna
| yfir henni.
—
Skáli sá, er byrjað var að byggja
fyrir sunnan Iðnaðarmannahúeið í til-
efni af konnngskomunni, hefir nú ver-
ið rifinn niður aftur. Mun haun hafa
staðið skemst allra þeirra hús&, sem
reist hafa verið hér í bænum.
Goodtemplarahúsið. Verið er að gera
því til góða á ýmsan hátt. Verða ný-
ir gluggar settir í allt húsið að sunn-
anverðu, en gluggarnir á norðurhlið
teknir af. Verður gert að húsinu á
ýmsan hátt, frárensli gert frá því sem
áður var ekkert, og húsið málað að
utan og innan. Var það orðið allniður-
nítt, enda hafa þar verið haldin upp-
boð mörg og samkomur, sem illa fara
með húsakynni.
Héraðsmót var haldið á Hvítárbökk-
um síðastl. sunnudag og sóttu það á
annað þúsund manns, þar á meðal um
100 héðan úr bænum. Hafði Bjarni al-
þingismaður Jónsson frá Vogi verið
fenginn til þess að halda erindi á mót-
inu. Má nokkuð marka hug almenn-
ings upp til sveita í fossamálinn af
því, að einmitt Bjarni hefir verið
fenginn til að flytja erindi á tveimur
stærstu mótunum, sem haldin hafa
verið í nálægum héruðum í ,sumar.
Vörutalnmg. Viðskiftanefndin hefir
ákveðið að láta fram fara talningu á
nauðsynjavörum hjá heildsölum, kaup-
mönnum og kaupfélögum í Reykjavík
Uæstk. 5. ágúst. Verða eyðublöð send
hiutaðeigendum í þessu skyui.
Póstbifreið gengur nú að Garðsauka
á hverjum fimtudegi og flytur hún far-
þega auk póstsins. Til Þingvalla fer
Söng sunnan frá Englandi heyrðu
loftskeytamennirnir á Melastöðinni
nýlega. Mikil gerast verkin mannanna!
F. H. KREBS I
medlem af Dansk Ingeniörforening
KONSULTERENDE INGENIÖRFIRMA
for Projektering og Udbygning af:
KRAFTSTATIONER, Vandkraít, Damp, Diesel, Sugegas osv.
ELEKTRISKE KRAFTOVERFÖRINGS- 0G FORDELINGSANLÆG
ELEKTRISK Varme, Lys, Drivkraft m. v.
0RGANISATI0N AF ELEKTRICiTETSFORSYNING
KÖBENHAVN V., Alhambravej 17. Tlgr. Adr. Elektrokrebs
Kaupmanoaráð Islands í Danmörku
hefir skrifstofu í Cort Adelersgade 9 í Kaupmannahöfn. Skrifstofan
gefur félagsmönnum og öðrum íslenzkutmkaupmönnum fúslega ókeypis
upplýsingar um almenn verzlunar- iðnaðar- og samgöngumál og annað
er að verzlun lýtur.
Skibsleilighet
Kutter »Princess« kl. 3/3 G, 1, i,
Veritas. 150 Dw. ton, vil antagelig
bli udlosset Sauderkrog Island 30
August. Befragtere telegraferer til
Bolstad Egersund, Norge.
Matsöluhús Rosenbergs veitinga-
manns í Nýja Bíó var opnað um fyrri
belgi. Eru hin fegurstu salakynni í
húsinu, einn stór veitingasalur og tveir
minni niðri en þrjár stofur uppi. —
Húsgögn öll 0g borðbúnaður er nýtt
og einkar vandað í alla staði. Hljóm-
leika hafa þeir Þórarinn og Eggert
Guðmundssynir. Er allur frágangur
hinn smekklegasti í búsinu.
Kuldatíð var svo mikil á Norður-
landi síðari hluta síðustu viku, að í
Laxárdal í Skagafirði snjóaði alt of-
an að bæ einn daginn. Grasspretta
kvað þó vera allgóð, en óþurkasamt nm
nokkurt skeið fyrirfarandi.
Aðalumboðsm.: Sig. Slgurz & Co.
Síldin. Engin síld kvað enn hafa
veiðst á veiðistöðvunnm Vestanlands.
Er veðráttufari kent um að nokkru
Svo eru enn ekki öll skip lögð út á
veiðar, þau, sem eiga að ganga þaðan.
En síldin er sögð mikil úti fyrir Vest-
fjörðum.
Mannslát. Nýlátin er hér í bænum
frú Andrea Andrésdóttir, kona Hann-
esar Jónssonar kaupm.
Frú Marie Kathrine Jónsson, ekkja
Sigurðar fangavarðar andaðist á snnnu
dagskvöldið. Hún var ættuð úr Suður-
jótlandi, merk kona, sem eignaðist hér
marga vini í bænum, er sakna munu
heunar.
Maðnr druknar. Síðast þegar Ster-
ling kom hingað, hafði skipið með-
ferðis líkið af dönskum sjómanni, sem
fallið liafði fyrir borð af dönsku segl-
skipi skamt fyrir utan Gróttu. Var
bátur settur út frá seglskipinu, en
maðurinn andaðist skömmu eftir að
hann hafði náðst. Sterling tók bátinn
og líkið með hingað og um kvöldið
kom seglskipið inn.
i --- '
Lík Pálma Pálssonar yfirkennara
kom hingað með Gullfossi í siðustu
ferð. Fór jarðarförin fram í dag að
viðstöddu fjölmpnni.
Glitofnar ábreiður
eða
sððulklæði
vil eg kanpa.
Vilh« Finsen, ritstjóri
Þakklæti.
Mitt innilegt hjartans þakklæti
sendi eg hérmeð öllum þeim, sem
á einn 0g annan hátt bafa veitt mér
bjálp og auðsýnt mér hluttekningu
og gert mínar erfiðu kringumstæð-
ur léttbærari frá því er minn ást-
kæri eiginmaður andaðist.
Bg get ekki talið hér npp nöfn
allra minna velgerðamanna, enda
þótt það væri vel við eigandi, en
get þó ekki gengið fram hjá að
nefna bér Guðmund Jónsson á
Ánastöðum, því að honum ber mér
isérstaklega að þakka fyrijr hans
margsýndu drengilegu b.jálp, en
einkum þó á síðastliðnum vetri, er
hann gekkst fyrir fjársöfnun
handa mér og gaf mér sjálfur, er
mér lá mikið á peningum. Honum,
og öllum þeim, er veitt hafa mér
hjalp, óska eg af hjarta allra heilla
og hamingju.
Skálanesi í júlí 1920.
Rósa Steinsdóttir.