Ísafold - 29.11.1920, Side 4
4
ÍSAFOLD
Að-ví.su gera sumir jafnaðarmeim
ráð fyrir því, að hver maður vinni
það verk, sem hann helst vill vinna
og best á við hann. Hver maður,
seg.ja þeir, á að fá þá stöðu í mann-
félaginu sem hann óskar og er við
hans liæfi og skapferli.
Hætt er við því, að margir vildu
komast í fínu'stu stijðuroar, sem
'kallaðar eru, eða vinna þau störf,
scm iéttust eru.Fæstir mundu hjóða
sig fram í þær stöður, sem bæði eru
erfiðar og hættusamar, til dæmis
sjómaimastöðu og námuvinnu.Hver
fær ]>á mentun lianda harni sínu,
sem hann óska r. Afleiðingin af því
j rði sú, að flestir eða allir foreldrar
mundu láta hörn síu húa sig undir
embættj eða fínni .viöður. Bnginn
vildi vinna óhreinu störfin, til dæm
is hirða svíu, moka fjós, hirða fénað
úti og inni, alla daga ársins jafnt
o. s. frv.
Þess ber Ijka að gæta að mjög
niargir menn eru eigi hueigðir
fremur fvrir eitt starf en annað,
eða eina stöðu fremur en aðra. Þeir
sem eru jafntækir á flest, mundu
vilja fá léttasta starfið, sem ríkið
þyrfti að láta vinna. Flestir vildu
vej’a yfirmenji eða í tignarstöðu.
Samkvæmt jafnaðarstefnunni hafa
allir rétt til þess, sem hafa vilja
til þess og getu. Og fáir vildu þá
ieggja á sig líkamlegt erfiði. —
Þetta kæmi stjórninnj í vandræði,
og yrði hún þá að taka til sömu
ráða og Lenin, sem sé, að þrýsta
mönnum til vinnu með hervaldi.
En hvaða gagn er að þeim her til
k-ngdar. sem þætti skipanir stjórn-
arinnar óréttmætar? Þetta eitt,
hvaða stöðu hver ætti að fá, yrði
ærið óánægjuefni, sem engin stjórn
gæti hætt úr til lengdar.
I
III.
Eigi eru jafnaðarmenn hræddir
við neina galla á mönnum, þegar
þeirra þjóðfélagsskipun er komin
á. Þá búast þeir við því, að menn-
irnir verði ósköp góðir, sáttfúsir,
mannúðlegir, kærleiksríkir, og ó-
eigingjarnir ættjgirðarvmir. Það er
líka víst, að jafnaðarmannaríkið
þrífst eigi nema því að eins, að all-
ir einstaklingar þess verði nálega
eins góðir og fullkomnir eins og
englar á himnum. — Og ef einhver
engillirm félli, eins og í gamla daga,
og hanji væri jafnoki Napoleons
hins mikla, þá gæti eitthvað nýtt
skeð, sem engan jafnaðarmann hef-
ir dreymt nm. Eða hitt, sem senni-
legra er að við hæri, að einhver
Napóleon kæmist til æðstu valda í
jafnaðarmaimaríkinu. Efialtes end
urborinn gæti verið hans ráðgjafi
eða aðrir hans líkar.
IV.
Jafnaðamnenn hafa nokkrum
sinnum fengið tækifæri til þess að
reyna þjóðfélags hugmynd sína, en
það hefir alt af farið út um þúfur
fjnrir þeim. 1848 vildi verkalýðiir-
inn í París hafa verkamannastjórn
og að allur auður skyldi vera sam-
eign allra. Það fengu þeir ekki. En
þá gat þó Louis Blane jafnaðarm.
fengið því framgengt að hin :al-
kunnu þjóðverkstæði voru stofnuð.
Þar áttu allir atvinnulausir meim,
sem skiftu tugum þúsunda, að fá
atviimu, hver við þau störf, sem
honum hest hentaði. Það kom brátt
í ljós, að ofmargir vildu vinna viss
störf, en engir sum önnur, sem erfið
ust og ófínust þóttu. Þess vegna
varð að loka verksmiðjunum. Þær
báru sig heldur ekki fjárhagslega.
Tapið á hverjum degi hátt á annað
hundrað þúsimd krónur.
„Saint-Siinonistai"‘ gerðu, 1830,
tilraun til þess að koma stefnuskrá
sinni í framkyæmd- Þeir stofnuðu
nýiendu. Þar lifðu allir í frjálsri
sarnbúð- En þó blessaðist eigi sá
búskapur lengi. „Saint-Simonista-
nýlendan“ gafst upp. Á Frakk-
landi, Alzir, Texas og víða í Ame-
ríku hafa jafnaðarmenn (kommún-
istar) komið á fót nýlendum, þar
sein nokkur þúsund manna hafa lif-
að eftir fyrirmælum kommúnista í
félagsskap, sem þeir kalla fylking-
ar. Eu hvergi hafa þessi kommún-
ista félög þrifist; öll liðið undir
lok. —
Sú þjóðfélagsskipun, sem leggur
hömlur á meðfædda sjálfbjargar-
hvöt og hindrar alla frjálsa sam-
kepni milli einstaklinganna, veldur
kyrstöðu eða jafnvel afturför. —
Hún er því eigi heilbiúgð eða eftir-
sóknarverð.
S. Þ.
Símfregnir.
Frá fréttaritara Isafoldar.
Eíkisstjóraskiftin í Grikklandi.
Reuters fréttastofa tilkynnir, að
Konduriotis hafi lagt niður ríkis-
sfjórn í Grikklandi, en Olga drotn-
ing orðið við tilmælum ráðuneytis-
ins, um að taka að sér forstöðu rík-
isins, þaugað til Konstantin kon-
ungur komi.
Khöfn 20. nóv.
Bandamenn og Grikkir.
Frá London er símað, að búist sé
við því, að stjórnir Breta og
Frakka Iýsí því yfir, að þær séu
því mótfallnir, að Konst'antin kon-
ungur t-aki aftur við völdum í
Grikklandi, og ef að svo fari, þá
verði öllu sambandi slitið við Grikk
land, en aftur á móti mundi Georg
prins hljóta viðurkenningu þeirra.
Forsætisr'áðherrar Breta og Frakka
ætla að koma saman á ráðstefnu
bráðlega og taka sameiginlega og
endanlega ákvörðun um þetta mál.
Kolaútflutningur frá Bretlandi.
Námaráðuneytið brezka hefir
leyft (ótakmarkaðan) kolaútflutn-
ing frá Bretlandi frá 1. des.
Her Wrangels.
Frá Konstantinopel er símað, að
100 þús. flóttamenn af her Wran-
gels séu þangað komnir.
Khöfn 22. nó\.
Manndrápin í írlandi.
Frá London er síniað, að óald
arflokkar Sinn-Feina hafi myrt
fjölda sofandi, enskra herforingja
í gærmorgun í Dublin, og hafa þar
orðið blóðugir bardagar á götun-
um. Búist er við, að lögreglan grípi
til hræðilegra hefndarverka.
Atkvæðagreiðslan um konungdóm
Konstantins í Grikklandi.
Reuters fréttastofa tilkynnir. að
atkvæðagreiðslunni um heimkomu
Konstantins Grikkjakonungs muni
verða frestað (átti að fara fram
28. þ. m.), vegna mótmæla Eng-
lendinga og uppreistaranda í gríska
setuliðinu í Smyrna.
Konnngleg hjónaefni.
Elsta dóttir Konstantins ’konungs
Helena, er trúlofuð Carol, ríkiserf-
ingja í Rúmeníu.
Khöfn 23. nóv.
Iianska stjórnin og viðskiftanefndin.
Danska stjórnin hefir hafnað öll-
um tillögum viðskiftanefjidarinnar
(valutakommission), sein skipuð
var í Danmörku í liaust, og lýsir
stjórnin jafnframt yfir þeirri skoð-
un sinni, að engra nýrra ráðstaf-
ana, svo sem innflutningsbanns á
(jinstökum vörutegundum eða
skömtunar sé þörf, til að ha.fa hem-
ii á gjaldeyrisgenginu, því að hið
almenna verðfall á heimsmarkaðin-
um muni gera það að vei'kum, að
ástandið lagist af sjálfu sér smátt
og smátt.
Alþjóðafundur verkamanna.
Fi'á Loiidon er símað, að alþjóða-
fulltrúafuiidur verkamannafélaga
sé liafinn þar.
Khöfn 25. nóv.
Frá Grikklandi.
Havas-fréttastofa itilkynnir, að
gríska stjórnin sé fús til að veit.a
stjórnum bandamanna ti'yggingar
(fyrir vináttu sinni), en haldi fast
við heimkvaðning Konstantíns kon-
ungs.
Á
Keisaradrotningin dauðvona..
Símað er frá Amsterdam, að keis-
aradrotningin þýzka, kona Vil-
hjálms keisara, liggi dauðvona.
Frá írlandi.
Brezka stjórnin hefir látið setja
Dublin í herkví.
Khófn 25. nóv.
Enska þingið og írlandsmálin.
Frá London er símað, að neðri
málstofa breska þingsins hafj með
303 atkv. gegn 83 lýst velþóknun
sinni yfir framkomu her- og lög-
regluliðsins í írlandi, sem stefnu
stjórnarinnar í Irlandsmálum. —-
Sinn Feinar eru nú teknir höndum
hópum saman í Dublin, og sagt er,
að komist hafi upp um eitthvert
samsæri af þeirra hálfu gegn helstu
andstæðingum þeirra í London.
Konstantin og Grikkir.
Frá Aþenu er símað, að fjöl-
skylda Konstantins konungs sé
komin þangað, og hafði henni ver-
ið tekið með kostum og kynjum.
Gert er ráð fyrir því, að Rhallis
forsætisráðherra farj bráðlega á
fund bandamannastjórnanna, til
þess að tala máli Konstantins kon-
ungs við þtér.
Bvikfir-amiál].
Lagning rafmagnsþráðanna í götur
bæjarins hefir gengið töluvert betur
ei. búist var við. Gerir það hin góða
tíð, er verið hefir hingað til, frostleys-
ið. En þegar frost koma að mun, verð-
ur hætt vinnunni og hún eigi byrjuð
aftur fyr en að vori.
Hjónaband. Nýlega voru gefin saman
í hjónaband á Akureyri ungfrú Fanney
Jóhannesdóttir (frá ísafirði) og Jón
Sveinsson borgarstjóri á Akureyri.
E.s. Enigheden hleður hér fisk til
Spánar.
Verðlækkun mikla auglýsti verzlun
Björns Rristjánssonar á ýmislegri
vefnaðarvöru í síðustu viku. Og áður
hafði önnur verzlun auglýst. á l'íkan
hátt. Er þetta í sumra augum fyrir-
boði almennrar verðlækunar. Væri vel,
ef svo reyndist.
Kaupmaniwáð Islacds í Danmðrku
hefir skrifstoíu í Co t Adelersgade 9 i Kaepmannahöfn. Skriístofan
gefur féiagsmönnum og öðrum íslenzkum krupmönnum fú-.lega ókeypis
upp’ýsingsr um almenn verzlunar- iðnaðar og sanigöngumál og annað
er að verzlun lýtur.
„IXION“ Cabin Biscuits (skipsbrauð) er búið tií af mörg-
um mismunandi tegundum sérstaklega hentugt fyrír í Jendinga.
í Englandi er „IXION“ brauð aðalfæðan um boið i fiski-
skipum.
Fæst í öllum helztu verzlunum.
Aðgætið að nafnið „IXION“ sé á hverri köku.
Vörumerkið „IXION“ á kexi er trygging fyrir hollri og
góðri fæðu.
8ole Manufacturers:
Wright & Co. (Liverpool) Ltd.
Kirkjugarðinum lokað. Umsjóna.r-
maður kirkjugarðsins hefir auglýst, að
frtunvegis verði kirkjugarðinum lokað
um leið og fer að skyggja. Tvö hlið
verða opin meðan bjart er, að norðvest
an og norðaustan. Mönnum er strang-
lega liannað að klifra yfir múrinn eða
fara á annan hátt inn í garðinn en um
opin hlið.
þrotabú. Geir Pálsson trésmiður hef-
ir selt eignir sínar fram sem þrotabú.
Verður skiftafundur í þVí á laugar-
daginn kemur.
Kvöldskemtun ásamt hlutaveltu
hélt Dýravemdunarfélag íslands um
síðustu helgi til ágóða fyrir félag-
ið. Er gott og mannúðarríkt starf sem
félagið berst fvrir, og er ástæða til að
menn sýni því vinsemd með því að
styrkja það með gjöfum.
..Gullfoss kom hingað síðastliðinn
föstud. Meðal farþega voru: Ma^iús
Guðmundsson ráðh. og frú, J. Böggild
og frú, H. Tofte bankastjóri, Guðmund
ur Thorsteinsson listmálari, ungfrú
Jófríður Zoega, frú Valgerður Bene-
diktsson, frú Kristín Jaeobson, Hjört-
ur porsteinsson verkfr., B. Bjamason
(frá Siglufirði), Erlingur Pálsson yfir-
lögregluþjónn, Jón Sigurðsson skipstj.,
H. S. Hanson kaupm., Jón Ólafsson,
o. fl.,
Frá Vestmannaeyjum komu Porst.
Johnsen, Árni Sighvatsson, Jóh Jós-
efsson 0. fl.
Botnvörpungarnir Ari, Belgaum og
Walpole komu af veiðum nýlega. Bel-
gaum og Walpole með 1500 kassa hver,
en Ari með 1200. Fóra þeir allir með
aflann til Englands í gærkveldi.
ísland. Ferð þess verður frestað
þannig, að skipið fer ekki fyr en 10.
desember frá Khöfn, er jþað gert a£
því að desemherferð Botníu verður
slept.
Sigurður Sigfússon kaupfélagsstjóri
á Húsavík hefir fengið staðfestingu
á ættarnafninu „Bjarklind“ handa sér
og fjölskyldu sinni.
Zenitha, dauska seglskipið sem
strandaði um daginn, en Geir náði aft-
ur út, hefir verið dregið á land í
Slippnum. — Björgunarskipið Geir
fer fram á helming verðs skipsins,.
eftir mati við björgunina, í björgunar-
laun. Hefir það við fyrstu virðingu
verið metið 100.000 króna virði, en að
líkindum mun fram fara yfirmat nú
þegar skipið er komið á land og unt er
að rannsaka botninn grandgæfilegu.
Valdemar Steffensen læknir á Akur-
eyri liggur mjög veikur um þessar
mundir, eftirköst eftir inflúenzu. Mun
hann verða fluttur hingað til bæjar-
ins með fyrstu ferð að norðan.
Bifreiðarslys. í fyrri viku varð
bifreiðarslys neðan til á Laugavegin-
um, er atvikaðist þannig:
Gamall verkamaður, að nafni Eiríkur
Eiríksson, var á ferð upp Laugaveg.
Hitti hann þar vöraflutningabifreið,
fulla af grjóti, og fékk leyfi bílstjór-
ans til að standa á brettinu meðfram
hlið bílsins, pegar þangáð kom, er hann
(þurfti að fara af, stökk hann ofan. a£
brettinu, en rann til um leið og datt
undir bílinn. Varð hann með mjöðmina
undir afturhjólinu. Maðurinn var flutt
ur á sjúkrahús.
Færeysk málverkasýning hefir verið
opin jindanfarið í K. F. V- M. Eru
þar nokkur málverk til sýnis eftir fær-
eyska málara. Myndirnar Iþykja lag-
legar, en þó nokkur viðvaningsbragur
á þeim.