Ísafold - 23.08.1921, Blaðsíða 2

Ísafold - 23.08.1921, Blaðsíða 2
í mollulegum bókmentum og fá- breyttu fjelagslífi. Hann getur rýmkað um, þar sem of mikill er smáborgarskapurinn, kjaftháttur- inn, eða menn eru of hársárir. Slík gamansemi er hvorki klúr nje sær- andi, því list er aldrei klúr. Og ef 'þessi nýja útgáfa af gam- ansögum Gröndals gæti að ein- hverju lðyti orðið til þess að efla skilning manna á þessu efni, þá hef- ir hún ekki farið erindisleysu, hvað sem menn annars kunna að halda um hana. Ýmsar tegundir slíks skáldskapar eru til frá fomu fari og vísindin hafa langa lengi brotið heilann um eðli og tilgang hans og háðsins yfirleitt — þann feril má rekja óslitið allar götur frá Aristó- teles. Einhver hefir skýrgreint mennina þannig, að þeir væru dýr, sem gætu hlegið. Og í sambandi við það hefir franski heimspekingur- inn Bergson gert þá athugasemd, að maðurinn væri skepna, sem hleg- ið væri að. Og það á að minsta kosti alt eins vel við um mennina í Hel j arslóð ar orustu. Um útbreiðslu þessarar bókar, eins og annara þeirra, sem út eru gefnar á þessum síðustu og verstu tímum, fer annars eftir því ,jhvað buddan segir“ hjá bóndanum. — Margir kvarta nú um það, að þeir verði að draga að sjer hendina, meira en þeir vildu um bókakaup, vegna þess hvað þær sjeu dýrar. Nokkuð er þó bókaverð misjafnt hjer, miðað við stærð og gæði, en þó mun sannleikurinn sá, að bæk- ur eru nú ekki hlutfallslega dýrari heldur en fyrii* stríðið. Og ýmsu eyða menn sjálfsagt nú, þrátt fyrir alt dýrtíðarhjal, sem ekki er þarf- ara en það, þó menn keyptu sjer góða bók. En ef til vill á það ekki við síður nú en áður, sem Gröndal skrifaði einu sinni í brjefi (í Óðni) : þegar fólkið hefir ekki að jeta, þá er alt svo dauft og drungalegt, en þó sá það ekki á, að ráð hafði það til að eyða 9000 kr. í kómedíur, tombólur og basar — svona eru fs- lendingar. Með öllu þeiria fram farakjaftæði og búskapartali hafa þeir ekki vit á lífinu heldur en tundar. Vþg. -------0------- Uti um heim. Endurreisn Þýskalands. Ófriðuriun og ekki síður »friður- inn* hefir gert Þjóðverjum þnngar búsyfjar. Atvinnulíf þeirra og fjár- hagur er stórlamað og mörg sam- bönd þeirra út á við slitin. Þeir vinna þó mjög ósleitiiega að endur- reisn þjóðféiagsins á öllum sviðum, þó hart sé aðgöngu og erfitt um framkvæmdir. Þeir láta sér ekki sist umhugað um það, að koma á aftnr góðum samböndum og samvinnu við aðrar þjóðir, ekki aðeins í versl unar- og viðskiftamáluro, heldur einrig, og ekki sfður, í andlegum máiutn. Fara Þjóðvetjar ýmsar leiðir til þessa og hefir yfirleitt orðið vel á- gengt og hafa nú aftar náð mörgnm sambðndum og samstarfi við út- lendar þjóðir og stofnanir. Til þess að gefa möimum nokkra hugmynd um starf þeirra á þessi sviði, að því er til andlegra starfa kemnr, verður sagt hér nokkuð frá svonefndri há- skóla viku, sem ekki alls fyrir löugu var haldin i Leipzig. Þangað var stefnt mentamönnum bæði þýskum og erlendutn — uæ i^oomanns— og voru svo haldnir vísindalegir fyiir- lestrar, söngskemtanir, ýmsar sýning- ar opDar og gestunum kynt það sem markveiðast þótti i borginni og helst auðkendi þýskt þjóðlíf. A’lar eða flertar menningarþjóðir (þó ekki Íslendingaí?) áttu þarna fulltrúa, nema Frakkland og England, jafn- vel fyrirverand; óvinaþjððir eins og Bandaiíkin, Japm, Ítalía og Belgía. Af Norðurlandaþjóðunnm voru Sví- ar fjölmennastir og var með þeitn stúdentakór frá Lundi og söng við góðan orðstýr, Frá Norðmönnum voru m. a. próíessorarrir Wenger og Bjerknes og er sá siðari frægur veðurfræðingur. Frá danska háskól- anum kom enginn fulltiúi, en 25 danskir ritböfundar og listamenn voiu þar, þar á meðal dr. Emil Rasmussen og er hér farið eftir frá- sögn hans. Aður en hin eiginlega háskóla- vika hófst, var nokkrum dögum eytt til þess að ferðast um umhverf- ið og skoða ýmislegt, sem ferða- menn fá annars venjulega ekki að sjá, r. d. ank opinberra bygginga, allskonar verksmiðjar og hin risa- vöxnu bókaforlög Reclam, Teubner, Peters o. fl. Einknm er stórhýsi Reclam tilkommmikið. Þar eru hin- ar alkunnn smáútgáfur prentaðar, heftar, bundaar og algerlega frá þeim gengið. Þar er bókaforði sem í eru 25 rrstlj. bindi. Einstakt í sinni röð er einnig hið svonefnda Deutche Bucherei, stórfelt nýtísku bókasafn þar sem safna á saœan bókstaflega öllu því sem nokkurntíma hefir ver- ið prents.ð í Þýskalandi, á þýsku eða öðrum málum. Þar fer einnig gifurlega stór og þægilegnr lestrsr- saltir og liggja þar m. a. stöðogt frammi um 3 þúsnnd rit. En i Þýska- iaodi eru alls gefin út um 27 þús, tímarit. Síðan hófust fynlestrarnir í há- skólanum rúmlega 30. T. d. var talað um gildi háskólanna i andlegu Hfi Þýikalands (próf. Litt), um and- legt samband Skandinaviu og Þýska- landa (próf. Mogk), um andann í hinnm þýska idealisma (L;psius), um uppruna og heimkynni Eddukvæð- anna (Sieve s), um rclativitetskenn- ingn Einsteios (Jaffé), um gildi lút- erstiúirinnar fyrir evrópurnenning- una (Boebemer), um frumkristni og jafnaðarmensku (Leipoldt) og sagði það tvent væri hvort öðru andstætt. Auk þess voru sýnd söfn og til- raunastöðvar háskólans, t. d. hin sál- fræðilega tilraunastofa Wundts, sem verið hefir fyrirmynd slikra stofnana erlendis og talaði eftirmaður hans (Krueger) um Wundt og starfseæi hans. Auk þessa var svo hljómlist mik- ið stunduð. Sýndar voru ýmsar opernr (Fideiio — Oberon — Síð- asta æfintýri Dod Juans) og einnig die Meistersinger Wagners og söng þar »hinn guðdómlegi* Wolf frá Múnchm eitt aðalhlutverkið. Sömu- leiðis mátti heyra þar Tannhauser, Trstan und Isolde o. fl. Þá var haldin Handel-konsert í Thomas- kirkjnnni, en þ,ir er heimsfrægt kór. Einnig var haldinn samsöngnr til að kynna mönnum nýja þýska kirkjumúsik og söng þar og lék kór og orkester háskólans sjálfs. Snmir frægnstu stjórnarar Þýska- Iands stjórnnðu þessum hljómleik- um. Yfirleitt var reynt að draga fram sem raest og best og sem fjölbreytt- ast sýcishorn af þýsku andlegu lífi og talað hreinskilnislega og hispurs- laust um ástandið og framtiðarhorf- urnar. Megináhrifin, sem gestirnir sögðust hafa orðið fyrir, voru þessi: Við Þjóðverjar erum sigraðir, við erum illa staddir, en við tökum aft- ur til starfa, við endurskoðum og eadu'nýjum sjálfa okkur og skoðan- ír okkar, en örvæntum ekki fyrir nokkurn mun. Yfirleitt þóttust flest- ir gestirnir hsfa fengið aðra hug- mund um þýskt andlegt líf nútim- ans, sérstaklega við háskólana, en þeir höfðu áður, þar sem t. d. Frakk- ar hafa á siðka tið að ýmsu leyti niðrað þeim. Þýskir háskólar hafa þó síður en svo við glæsileg kjör að búa sem stendur. í Leipzig einni ern yfir 6 þús. stúdentar. Mjög margir þeirra verða að vinna fyrir sér jafnóðum. I Berlln vinna margir þeirra I skrif- stöfum eða bönkum, eða þeir spila við dans og skemtanir á nóttunni, til þess að fá peninga til að stunda nám á daginn, og þeir eru þjónar i veitingahúsum. Allmikil trúaralda kvað einnig ganga yfir æskulýðinn þýska, einkum tilhneiging til hinnar gömlu þýsku dulspeki. Félög hafa einnig verið stofnuð til útbreiðslu á keno- ingum heimspekingsins F.chte og eru í því um 100 þús. manns. Æti- unin mun að halda þessum »vik- um< áfram og spá margir þvi að þarna verði með tímanum merkileg menningarmiðstöð, að sínu leyti eins og Leipziger Messe er á sínu sviði. Því Þjóðverjar eru einráðnir í því að »reyna að vinna og örvænta ekki». SJálfstœdiskröfup Svert- íngja. Nýlega var getið hér i blaðinu hinnar miklu hreyfingar, sem inynd- ast hefir meðal Svert’ingja viðsvegar um heim, i þá átt að sameina kyn- stofn sinn og stofna allsherjar Svert- ingjarfki. Gera þeir tilkall til Afriku og vilja ná þar fullum réttindum og slíta algerlega af sér ok hvitra manna. I nýkomnum skeytum segir, að þeir séu nú sestir á rökstóla i Ncw York til þess að ræða mál sín og leggja ráðin á, og að_ þeir hafi í hótunnm. Svertingjar em voldugur kynstofn að tölnnni til, alís um 400 miljón- ir manna. Frumheimkynni þebra er Afríka eða tniðbik hennar alt milli Indlandshafs og Atianzhafs, frá suð- urmörkum eyðimerkurinnar Sahara og suður fyrir miðjarðarbaug að heimkynnum Hottentotta og Búsk- manna. Þessi landsvæði byggja þeir enn að mestu leyti, en sá hluti þeirra sem þar býr er á mjög lágu menningarstigi og þessum »heima- öldu« svertingjum mundi ekki til hugar koma að hefja sjálfstJeðisbar- áttu. Hreifingin kemur úr annari átt: frá Svertingjum þeim, sem fluttir voru vestur til Ameríku í þrældóm og eru nú fjölmennir orðnir i þeirr: álfcr. Hafa þeir mannast vel á sið- ustu áratugum og lært siði og ósiði menningarþjóðanna. Sjálfstæðishreifing Svertingjanna í Ameriku er ekki ný. í allmör. ár befir verið unnið kappsamlega að því, að vekja þá til meðvitundar um mannréttindi þeirra og þjóðarrétt- indi, og tú er hreifingin orðin al- roenn i Norður-Amerikn. Foringi þessarar hreifin^ar nú heitir Marcns Garvey og er fæddur á Jamaica. Hann ef aðeins þritugnr að aldri, vel mentaður maður í listam og vísindum, hefir farið viða um lönd og mörgu kynst; hanu er rithöf- undur og ræðuskörungur og gagn- kunnagur sÖgu kynbálks slns. Hug- sjón hans er sú, að stofna riki allra Svertingja í Mið-Afriku — Ethiopiu — sem standi fyllilega jafnfætis stór- veldunum og safna þangað Svert- ingjum öllum víðsvegar úr heimi, meðal annars þeim, sem stolið var til Ameriku. í orði kveðnu hafa Svertinjgar þegar stofnað þetta riki sitt, bráða- birgðalýðveldi, líkt og lýðveldi Sinn- Fesna i írlandi, og er Marcus Garv- ey forseti þess. Hann er ennfrem- ur forseti »Hins almenna framfara- félags Svertingja< og »Heimsbanda- lags AIfríkuþjóðarinnar<, forsíjóri eimskipafélagsins »Svarta stjarnan< og »Verslunarfélags Svertingja«, rit- stjóri og útgefandi blaðsins »Negvo World« sem er áhrifamesta Svert- ingjablaðið i heimi, og miljónir svartra manna tigna hann sem end- urlausnara sinn. Framfarafélag Svert- ingja telur nú 4 miljón félagsmenn og á fundi sem haldinn var í félag- inu siðastliðið sumar var samþykt yfirlýsing um réttindi Svertingja og grundvallarskjal um frelsi þeirra. Var skjal þetta í 66 liðum og lýst þar yfir fullu jafnrétti Svertingja við aðrar þjóðir og tilkall gert til hölds- réttar þeirra i Afriku, »ættaróðali allra Svertingja. Evrópa fyrir Ev- rópumenn, Asía fyrir Asinmenn og Afríka fyrir Afrikumenn bæði þá sem heima ern og fjarstaddir*. Þar er ennfremur krafist, að Svertingjar fái rétt til að hafa atkvæðisbæra full- irúa á öllum alþjóðaráðstefnum og því lýst yfir, að Svertingjar virð alþjóðasambandið að vettugi svo framarlega sem það reyni til að halda fyrir þeim skýlausum rétti þeirra. Eimskipafélagið »Svarta stjarnan< á að hafa 2*/a miljón sterlingspunda höfuðstól og er hver hlutur 24 shillings, og mega eigi aðrir en Svertingjar vera hluthafar. Þá hafa SvertÍQgjar kosið sér »hæstráðands« og verða allir að hlýða boði hans og banni. Heitir sá Gabriel Johnson er hlotið hefir þetta veglega embætti, en varamað- ur hans heitir Marke. Má sjá á þessu, að Svertingjar hafa rniklar ráðagerðir frammi og eru stórhcga. En hætta stafar engin af þessu í bráð. Til þess er hiuu mentaði hluti þeirra of fámennur ennþá. En þeir koma áreiðanlega síðir. ---------0-------- Það mundi ekki vera úr vegi að athuga lítið eitt greinarstúf i Tim- anum, sem kom út 20. þ. m. um búskapinn á Vifilsstöðurn, þvi að i henni er ýmislegt sem einkeonir blaöið. Blaðið byrjar með tilvitnun í bibl- iuna og verður eigi annað sagt en að það eigi vel við hjá einum upp- gjafa-drottinsþjóni og er vel að hann sýnir, að haun hefir haldið eitthvað við hinum heilögu fræðum, enda var ekki vanþðrf á að sýna það al- meaningi svart á hvitn, því að ella mundi því tranðla trúað, þar sem allir mnnn hafa álitið, að hann hafi, síðan hann flosnaði upp frá Hest- þingunnm, eingöngu gefið sig við því að rita nið nm einstaka roenn, sem hafa verið svo lánsamir að vera honnm i vegi á braut blaðamensku- spillingarinnar. Það er ekki að undra þótt slikur húðarjálkur kristn- inúar Hki sér við spámeDn Gamla testamentisins, en sennilegt er að hann geri sér sjálfum fullhátt undir höfði, í.r hann álítnr að landsstjórn- in telji hann * jafnsnjallan og Akab taldi spámanninn Mika. Að minsta kosti er ekki vitað, að landsstjórnin hafi nokkru sinni virt hann svars. En þetta er nú aðeins formáli. Eitt af aðalatrituðunum í »Tíma<- eintaki þessu er það, að sjálfur rit- stjórinn gerði sér »beinlínis ferð« suðnr að Vífilsstöðum, til að Hta þar á búskapinn. Þetta verður að athugast vel Og alþjóð verður að taka vel eftir.því hvað ritstjórinn sjálfur leggur i sölurnar til þes;; að fræða. Hugsum oss það. Hann tek- ur sér fyrir hendur að fara alla leið frá Laufási við Reykjavik til Vífils- staða, gerir sér, eins og hann kemst að orði, »beinlínis ferð< í þessum tilgangi, líklega þó ekki fyr en hann var búinn að hirða Liufástúnið, og að eigin sögn þá fyrst, er hann var orðinn þreyttur á »illum spádómum< i garð stjórnarinnar. Og hvað sér hann svo á þessum stað? Hann sér alt í besta gengi. Betur rekinn bú- skap en nokkurs staðar annars staðar á landinu. Auðvitað dettur engum i hug að efast um þetta, og ef ein- hverjum skyldi deíta i hug að bera brigður á að ritstjórinn þekki bú- skap allsstaðar á landinu, er ráðleg- ast fyrir þann hinn sama að láta slikt ekki í Ijósi, þvi að annars á hann vissa von á margdálkaðri skammagrein i »Tímanum«, sem er sendur ókeypis inn á flest heimili landsins. En eg kemst út frá efninu, eg ætlaði að tala meira um »beinlinis ferðin<, til Vífilsstaða og dýrðina, sem herra ritstjórinn sá þar. Þar er eins og tekið er fram, búskapur- inn afbragð og alt búið að borgi sig. En athugar ritstjórinn, þessi nýi Mika spámaður íslensku þjóðar- innar þá ekki, að þsssi búskapur er rekinú undir yfirumsjónjóns Magnús- sonar forsætisráðherra og að hann hlýtur að eiga bróðurpartinn af lof- inu? Hefir hann athugað hvað hann er að gera? Tæplega. Hann man liklega ekki að læknirinn á Vífils- stöðum er bróðir forsætisráðherra og að hann hiýtur lika að eiga eitt- hvað af þessu iofi, þvi að líklega ræður ráðsmaðurinn ekki meira en húsbændurnir. Þar mun ekki gilda sama reglan og um Tryggva og Jónas. Já, og alt er búið að borga sig strax. Auðvitað dettur engum i hug að rengja þetta. Mjólkin úr kún- um hefir borgað það alt, þ/í að hún er reiknuð með Reykjavikur- verði. Sýnilega má það mikið hafa upp úr mjólkinni og er freistandi að reikna út hvað þeir muni á henni græða, sem engu þurfa tii jarðabóta að kosta heldur fá alt frá feðrum sínum, eins og mjólknrgrósserinn í Laufási. En það er best að reyna að reikna það út seinna. Anmingja nýi spámaðnrinn frá Lsnfási, sem altaf skammar stjórn- ina fyrir alt, þntfti þá ekki lengra en hálftima ferð úr föðnrhúsum til þess að sjá lofsamleg verk þessarar sömn stjórnar. Hún borgaði sig ferðin sú. En ætli spámaðurinn vildi ekki, þegar ekki er mjög annrfkt i Laufási, gera svo vel og taka sér ferð á hendur t. d. ?.ð Lauganesi og Kleppi og sjá hvernig þar er um- horh. Sú ferð þarf eiginlega ekki að kosta hann neitt, ef hann fer á vagnhestinnm og í ðllu falli verðnr kostnaðurinn ekki meiri en andvirð- ið fyrir 2—3 lítra af mjólk. Þar sér hann kannske eitthvað ennþá betra en á Vífisstööum og gæti það orð-

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.